Búkolla
Viðskiptaþjónusta Suðurlands og Tryggingamiðstöðin Ormsvelli 7, Hvolsvelli Sími 487-8688 Opið mán-föst. 9-12 og 13-16
2. - 8. febrúar · 27. árg. 5. tbl. 2023
Þorrablót Búnaðarfélags Vestur-Eyfellinga
verður haldið að Heimalandi 18. febrúar nk. Húsið opnar kl. 20.00. Síðustu 3 ár innansveitar verða gerð upp með gríni og glensi. Matur í umsjón Ástu í Seli síðan verður dansiball fram á nótt með hljómsveitinni Koppafeiti. Fylgjast má nánar með á viðburði á fésbókinni „Þorrablót búnaðarfélags V-Eyfellinga og Mígandi“ Miðapantanir: Jóhanna í Skálakoti skalakot@simnet.is s-8468504 Martina á Mið-Grund martina.holmgren@gmail.com, s-7897510 Katrín á Ásólfsskála asolfsskali@simnet.is s-8617489
VILT ÞÚ STARFA VIÐ ENDURHEIMT? Landgræðslan býður verktökum á námskeið um vernd og endurheimt votlendis með áherslu á aðferðir við framkvæmdir. Eftir námskeiðið fá þátttakendur staðfestingarskjal sem hægt verður að framvísa þegar sótt er um verk í endurheimt votlendis.
22. febrúar 2023, kl. 20:00 Rafrænt kvöldnámskeið (Teams). Skráning í síma 488-3085 eða með tölvupósti á votlendi@land.is