Skip to main content

Búkolla 17. - 23. nóvember 2022

Page 1

Búkolla 17. - 23. nóv. · 27. árg. 46. tbl. 2022

Viðskiptaþjónusta Suðurlands og Tryggingamiðstöðin Ormsvelli 7, Hvolsvelli Sími 487-8688 Opið mán-föst. 9-12 og 13-16

Málþing um Njálu á Hvolsvelli Guðni Ágústsson boðar til málþings um Njáls sögu í Midgard á Hvolsvelli laugardaginn 19. nóvember næstkomandi klukkan 13.30. Þar verður rætt um gildi sögunnar og hún sett inn í samhengi nútímans. Þeirri spurningu verður velt upp hvernig nota megi söguna til að styrkja ferðaþjónustuna í Rangárþingi. Sögusetrið í Hvolsvelli varðaði leiðina en nú er einkum horft til nýrra sýninga sem miðla sagnaarfinum, þar má nefna Landnámssetrið í Borgarnesi sem byggt hefur verið upp af miklum myndarskap á undanförnum árum. Ísólfur Gylfi Pálmason mun stjórna málþinginu. Guðni Ágústsson setur ráðstefnuna. Framsögur flytja Anton Kári Halldórsson sveitarstjóri, Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningarmálaráðherra, Arthur Björgvin Bollason ræðir um Njálu á stafrænni öld, Gunnhildur Edda Kristjánsdóttir segir frá Njálureflinum, Hermann Árnason ræðir ferð Flosa frá Svínafelli á Þríhyrningshálsa og Hjálmar Árnason mælir fyrir minni Jóns Böðvarssonar.

Allt áhugafólk um Njálssögu velkomið


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Búkolla 17. - 23. nóvember 2022 by Rangárthing ytra - Issuu