Skip to main content

Búkolla 26. september - 4. október 2023

Page 1

Búkolla 28. sept. - 4. okt. · 27. árg. 39. tbl. 2023

Viðskiptaþjónusta Suðurlands og Tryggingamiðstöðin Ormsvelli 7, Hvolsvelli Sími 487-8688 Opið mánud.- fimmtud. frá kl. 9 -12 og 13 -16 Föstud. frá kl. 9 -12 og 13 -15

Húmor virkar

Heilsueflandi Rangárvallasýsla Húmor virkar – Sveinn Waage Fyrirlestur í Hvolnum 4. október kl 19:30 Fyrirlesturinn Húmor Virkar hefur notið vinsælda undanfarin misseri og fengið hreint frábærar viðtökur og dóma í hvert sinn. Fyrirlesturinn er mjög skemmtilegur en líka fræðandi og samanstendur m.a. af niðurstöðum viðamikilla rannsókna og vinnu á virkni húmors á heilsu, sem er umtalsverð, og sem árangursaukandi afl í atvinnulífinu og lífinu almennt. Höfundur og fyrirlesari er Sveinn Waage Hann starfar sem markaðsstjóri hjá Svarinu ehf. sem m.a. setur upp nýju þjónustumiðstöðina á Landeyjarhafnarafleggjaranum hér í Rangárþingi. En að auki, undanfarið ár, hefur Sveinn verið víðsvegar að flytja þennan fyrirlestur; Húmor Virkar. Hann hlakkar mikið til að koma til okkar með þennan dásamlega boðskap og vonast til að sjá sem flesta.

Rangárþing ytra Fyrir okkur öll!

Rangárþing eystra

Ásahreppur


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Búkolla 26. september - 4. október 2023 by Rangárthing ytra - Issuu