Búkolla 22. - 28. september · 27. árg. 38 tbl. 2022
Viðskiptaþjónusta Suðurlands og Tryggingamiðstöðin Ormsvelli 7, Hvolsvelli Sími 487-8688 Opið mán-föst. 9-12 og 13-16
Margt verður til í kvenna höndum
Handverkssýning í Fljótshlíð Kvenfélagið Eining á Hvolsvelli verður með sýningu á handverkum kvenna í félagsheimilinu Goðalandi í Fljótshlíð. Opnun sýningarinnar er kl 14.00 laugardaginn 24. september. Við hvetjum konur sem eiga þjóðbúning að mæta í honum í tilefni dagsins. Á sýningunni verður handverk unnið með nál og ýmis verkfæri til sauma. Við munum sýna hvað þessi litli hlutur sem nálin er hefur haft mikil áhrif á líf okkar allra. Sýningin mun standa frá 24. september til 9. október. Sýningin verður opin laugardaga og sunnudaga frá 12:00 til 18:00 en einnig verður hægt að taka á móti hópum alla virka daga. Hægt er að panta fyrir hópa á netfanginu mtrygg@ismennt.is eða í síma 824-8889
Aðgangur ókeypis!