Skip to main content

Búkolla 18.-24. apríl 2024

Page 1

Búkolla 18. - 24. apríl · 28. árg. 15. tbl. 2024

Viðskiptaþjónusta Suðurlands og TMtryggingar Ormsvelli 7, Hvolsvelli Sími 487-8688 Opið mánud.- fimmtud. frá kl. 9 -12 og 13 -16 Föstud. frá kl. 9 -12 og 13 -15

Íbúafundur í Ásahreppi Hreppsnefnd Ásahrepps boðar til íbúafundar um mögulegar viðræður um sameiningu við nágrannasveitarfélag eða -sveitarfélög. Tilgangur fundarins er að gefa íbúum færi á að koma sjónarmiðum sínum á framfæri upplýsa þá um ferli sameiningarviðræðna ef til þeirra kemur. Eins og fram kemur í dagskrá fundar, þá mun verða unnið í hópum á fundinum til að auðvelda fundarmönnum að koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Fundurinn verður haldinn í matsal Laugalandsskóla þann 22. apríl nk. kl. 17:00. Dagskrá: 1. Kynning á ferli sameiningarviðræðna 2. Umræður í hópum Hægt verður að sitja fundinn í fjarfundi á Teams og taka þátt í umræðum með því að senda ábendingar og fyrirspurnir í gegn um Slido. Tengill á fundinn verður birtur á vefsvæði Ásahrepps (https://asahreppur.is) að morgni fundardags. Við hvetjum alla íbúa að láta sig málið varða og mæta til fundar, hvort sem er að Laugalandi eða á fjarfundi. Hreppsnefnd Ásahrepps


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook