Búkolla 11. - 17. apríl · 28. árg. 14. tbl. 2024
Viðskiptaþjónusta Suðurlands og TMtryggingar Ormsvelli 7, Hvolsvelli Sími 487-8688 Opið mánud.- fimmtud. frá kl. 9 -12 og 13 -16 Föstud. frá kl. 9 -12 og 13 -15
Leikskólinn Heklukot
Rangárþing ytra Fyrir okkur öll!
Sérkennslustjóri og deildarstjóri
Auglýst er eftir sérkennslustjóra og deildarstjóra til starfa í 80- 100% stöður við leikskólann Heklukot á Hellu í Rangárþingi ytra Við erum Skóli á grænni grein og einnig er unnið eftir markmiðum Heilsustefnunnar sem stuðlar að heilsueflingu í leikskólasamfélaginu með áherslu á næringu, hreyfingu og listsköpun í leik. Unnið eftir starfslýsingu Félags leikskólakennara og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Menntun, hæfni og reynsla: • leyfisbréf kennara eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi • reynsla af sérkennslu • sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð • góð íslenskukunnátta • góð tölvukunnátta Umsókn og ferilskrá óskast send á netfangið inga@heklukot.is Nánari upplýsingar veitir Ingigerður Stefánsdóttir leikskólastjóri í síma 488-7045. Upplýsingar um skólann er að finna á www.heklukot.is. Umsóknarfrestur til 16. apríl 2024.