Skip to main content

Sjálfbærniskýrsla Nova 2025

Page 1


Skýrsla ársins 2025

Sjálfbærni

Efnisyfirlit

Kveðja frá forstjóra

Sjálfbærni & Nova

Sjálfbærnistefnan

Sigrar ársins

Viðurkenningar ársins

Mikilvægisgreining

Árið 2025 í tölum

Áskoranir

Nova Umhverfið

Umhver fisstefnan

Minnkum sóun

Hringrásarhagkerfið

Gömul tækni út fyrir nýja

Umhverfisvænt samstarf

Nova Samfélagið

Geðrækt Nova

Nova elskar nýsköpun

Nova elskar íslenska tónlist

Dansararnir okkar

Nova Góðir stjórnarhættir

Stjór narhættir hjá Nova

Netöryggi

Sjálfbærni stjórnarhættir

Framundan á árinu 2026

Ítarefni

Umhverfi

Félagslegir þættir

Stjórnarhættir

Almennar upplýsingar

Kveðja frá forstjóra

Árið 2025 var viðburðarríkt ár hjá Nova og kveðjum

við það með miklu takklæti í hjarta. Aðalmarkmið Nova eru að vera fyrst inn í framtíðina með ánægðustu

viðskiptavinina, besta liðið og flottasta brandið. Við trúum því að sjálfbærni sé órjúfanlegur þáttur í að ná settum markmiðum og því mikilvægt að taka aldrei augun af þeim bolta.

Á árinu settum við sjálfbærnimál í frekari fókus. Við bættum

við dansara á dansgólfið til að drífa sjálfbærnina áfram og gera hana samofna við einstaka kúltúrinn okkar.

Við lögðum áfram áherslu á að draga úr umhverfisfótsporinu okkar með því að minnka sóun og nýta hringrásarlausnir. Við byrjuðum að selja grænar græjur og fórum í samstarf við Hopp þar sem við bjóðum besta dílinn á umhverfisvænum samgöngum í gegnum

í stað þess að applifa. Þessari vegferð munum við halda áfram á árinu 2026 með áherslu á skjáhvíld.

Nova appið. Við þróuðum einnig fyrsta eSIM söluflæði farsímaþjónustu á Íslandi í 100% sjálfsafgreiðslu. Lausnin markar tímamót þar sem viðskiptavinir okkar geta nú virkjað símanúmerið sitt rafrænt og verið lausir við plast SIM kortið. Við slökktum alfarið á 2G dreifikerfinu okkar í byrjun árs og útfösun 3G er nánast lokið, en áætlað er að hún klárist á Q1/Q2 árið 2026. Við fengum svo KPMG aftur í lið með okkur við að vinna umhverfisbókhaldið okkar fyrir árið og hjálpa okkur að ná enn betri tökum á upplýsingum um losunina okkar.

Geðræktin er orðin partur af erfðaefninu okkar. Frá árinu 2020 höfum við staðið að geðræktarvegferð sem miðar að því að stuðla að ábyrgri netnotkun og að draga úr neikvæðum áhrifum samfélagsmiðla með því að hvetja viðskiptavini okkar til að upplifa

Við hlutum Íslensku ánægjuvogina 17. árið í röð og alveg frá upphafi höfum við hlotið viðurkenninguna Fyrirmyndarfyrirtæki

VR. Við tökum því ekki sem sjálfsögðum hlut og teljum það endurspegla áhrif hins einstaka kúlturs sem við búum yfir hjá Nova.

Árið 2026 stefnum við að því að byggja upp gagnagrunn sem gerir okkur kleift að setja okkur raunhæf, mælanleg og tímasett markmið á þeim sviðum sjálfbærni sem skipta starfsemina okkar mestu máli. Við ætlum líka að halda áfram að þróa og móta aðferðafræði við mat á sjálfbærniframmistöðu birgjanna okkar.

Við förum full tilhlökkunar inn í nýtt ár fullt af nýjungum og spennandi áskorunum.

Sjálfbærni & Nova

Við hjá Nova áttum okkur á því mikilvæga hlutverki sem við gegnum í samfélaginu, sérstaklega þegar það kemur að netöryggi og mótvægisaðgerðum við neikvæðum áhrifum netnotkunar. Við viljum vera trú í orðum og verki og nýta áhrifin okkar til góðs. Það gerum við með því að huga að samfélaginu og umhverfinu í kringum okkur.

Við erum árskorendur í eðli okkar og þrífumst á því að gera betur, bæði inn á við og út á við. Vegferðin í átt að sjálfbærri þróun er ekki bein leið og er það undir okkur komið að leggja hönd á plóg þar sem við getum, þróast og læra með hverju skrefi. Sjálfbærni

Sjálfbærnistefnan

Við viljum nýta sérþekkingu og sérstöðu Nova til að vinna gegn þeim neikvæðu áhrifum sem starfsemi hefur á samfélagið og umhverfið.

Áhersluþættir Nova í samræmi við sjálfbærnistefnu félagsins

Stuðla að ábyrgri netnotkun með forvörnum og fræðslu til viðskiptavina og neytenda

Tryggja almenn mannréttindi, jafna stöðu og tækifæri starfsfólks óháð kyni, kynhneigð, uppruna, trú eða aldri

Vinna gegn neikvæðum áhrifum netnotkunar með því að leggja áherslu á fjölbreytileika og að brjóta niður staðalímyndir í markaðsefni

Stuðla að hagkvæmri uppbyggingu fjarskiptainnviða

Markmið Nova eru að vera fyrst inn í framtíðina með besta liðið, ánægðustu viðskiptavinina og flottasta brandið.

Við trúum því að áhersla á sjálfbærni hjálpi okkur að ná settum markmiðum.

Sigrar ársins

Sjálfbærni sett í frekari fókus

Slökkt á 2G dreifikerfi

Við vildum innleiða sjálfbærni betur inn í Nova kúltúrinn árið 2025. Stöðugildi var búið til utan um málaflokkinn og fengum við nýjan dansara til okkar um mitt ár til að vera drifkraftur sjálfbærni innan Nova. Í upphafi árs 2025 var lokið við að slökkva alfarið á 2G dreifikerfi Nova, sem markaði stór tímamót í rekstri fjarskiptakerfanna okkar.

Íslenska Ánægjuvogin 17 ár í röð

Nova hlaut Íslensku ánægjuvogina 17. árið í röð, marktækt hæst á okkar markaði með einkunnina 72,7.

Staðall um stjórnkerfi upplýsingaöryggis

Netöryggi skiptir okkur höfuðmáli.

Nova hlaut vottun samkvæmt ISO 27001 staðlinum í desember 2024 og var honum viðhaldið á árinu.

Vinnan er hafin og mun halda áfram árið 2026. Greining á aðfangakeðju og birgjamat

Slökkt á 3G dreifikerfi

Við erum nálægt markmiðinu þar sem útfösun er að mestu lokið. Áætlað er að hún klárist á Q1/Q2 árið 2026.

Tvöföld mikilvægisgreining

Á árinu tókum við þó mikilvægt byrjunarskref þar sem við skilgreindum haghafa og greindum áhrif, áhættur og tækifæri félagsins í tengslum við sjálfbærni. Við munum nýta grunninn sem við höfum lagt til að framkvæma tvöfalda mikilvægisgreiningu á næstu árum.

Tilraunaverkefni með notkun vindorkugjafa

Í byrjun árs stefndum við á að gera tilraunir með að bæta við vindorkugjöfum til að knýja fjarskiptasambönd á afskekktum stöðum sem eru ekki orkufrekir. Verkefnið fór ekki af stað en hins vegar náðum við að setja upp gagnasamband á afskekktan sendastað í gegnum gervihnattasamband þar sem ekki eru fyrir innviðir og mjög kostnaðarsamt væri að koma ljósleiðara á staðinn.

Jafnlaunavottun

Jafnrétti er ákvörðun og er Nova jafnlaunavottað fyrirtæki þar sem allir dansarar njóta jafnra launakjara fyrir jafn flókna dansa.

Viðurkenningar á árinu

Jafnvægisvog FKAÍslenska ánægjuvogin Sjálfbærniásinn

Besta íslenska vörumerki vinnustaðar (50+ starfsmenn) 2025

3 tilnefningar til Lúðursins Fyrirtæki framtíðarinnar

Fyrirmyndarfyrirtæki

Mikilvægisgreining

Við hjá Nova brennum fyrir að nýta auðlindir okkar til fulls á skilvirkan máta. Við viljum vinna betur í stað þess að vinna meira.

Á liðnu ári stefndum við á að ljúka tvöfaldri mikilvægisgreiningu fyrir félagið.

Í ljósi þeirra vendinga sem áttu sér stað í löggjöf um sjálfbærnimál á vettvangi Evrópusambandsins í byrjun árs 2025 ákváðum við að taka eitt skref til baka og leggja mat á hagkvæmustu næstu skref fyrir félagið í síbreytilegu sjálfbærniregluverki.

Á árinu tókum við mikilvægt byrjunarskref í vinnslu tvöfaldrar mikilvægisgreiningar. Við skilgreindum haghafa félagsins og flokkuðum þá í: (1) notendur sjálfbærniskýrslunnar, (2) haghafar sem verða fyrir áhrifum af starfsemi Nova og (3) haghafar sem falla í báða flokka.

Nova stefnir að því að ljúka tvöfaldri mikilvægisgreiningu í samræmi við sjálfbærniregluverk Evrópusambandsins á næstu árum.

Við greindum einnig áhrif, áhættur og tækifæri félagsins í tengslum við sjálfbærni. Út frá niðurstöðu greiningarinnar teljast áhersluþættir Nova vera eftirfarandi:

Áhrif loftslagsbreytinga Nýting auðlinda og hringrásarhagkerfið Eigin mannauður

Viðskiptavinir og neytendur Nýsköpun Viðskiptasiðferði Netöryggi

Stjórnarhættir

Áskoranir

Við höfum mætt ýmsum áskorunum á sjálfbærnivegferð ársins. Nova líkt og önnur eru að feta ótroðnar slóðir. Við trúum því að með því að vera hreinskilin við okkur sjálf um áskoranirnar getum við betur tekist á við þær. Helstu áskoranirnar sem við stóðum frammi fyrir á árinu voru:

Að staðsetja okkur innan sjálfbærniregluverksins

Í byrjun árs var væntanlegt að Nova, líkt og önnur skráð félög, myndi falla undir CSRD regluverk Evrópusambandsins.

Í lok árs var staðan önnur og Nova fellur eins og er utan gildissviðs regluverksins. Í ljósi breytinganna hefur okkur reynst áskorun að staðsetja okkur innan sjálfbærniregluverksins.

Að setja raunhæf, markviss og mælanleg markmið

Við viljum ekki vera risaeðlur. Við viljum vera fyrst inn í framtíðina með snjallari lausnir. Árangur í sjálfbærni er órjúfanlegur þáttur í því. Jafnframt viljum við vanda til verka í öllu sem við tökum okkur fyrir hendur og láta verkin tala. Þegar við setjum fram staðhæfingar viljum við að þær hafi þýðingu og vægi. Það hefur reynst okkur áskorun að setja fram raunhæf og markviss markmið sem eru jafnframt mælanleg. Verkefni ársins 2026 er að ná utan um þau gögn sem gera okkur kleift að setja okkur raunhæf markmið.

Sjálfbærnimat á birgjum

Á árinu hófum við vinnu við að leggja mat á sjálfbærniframmistöðu birgjanna okkar. Í því ferli sáum við snemma tækifæri til úrbóta í þeirri aðferðafræði og framkvæmd sem lagt var upp með. Við brugðumst við með því að endurhanna ferlið frá grunni með það að markmiði að tryggja markvissari og árangursríkari niðurstöður sem munu styðja betur við reksturinn okkar. Þessi reynsla undirstrikar að sjálfbærni er stöðugur lærdómur sem krefst reglulegrar endurskoðunar og þróunar.

Umhverfið

Umhverfisstefnan okkar

„ “ Við viljum draga úr kolefnissporinu

okkar með því að minnka sóun, leggja áherslu á hringrásarhagkerfið og stuðla að hagkvæmri uppbyggingu fjarskiptainnviða.

Við erum alltaf að reyna að ná betur utan um kolefnissporið okkar. Betri þekking á heildarlosun veitir okkur tólin sem við þurfum til að leita lausna við að draga úr henni. Við fengum KPMG til að aðstoða okkur aftur í ár við vinnslu á umhverfisbókhaldinu okkar, en bókhaldið er að finna aftar í skýrslunni undir Ítarefni.

Minnkum sóun

Mötuneyti Nova | Minni matarsóun

Til að draga úr matarsóun höfum við hannað eigið smáforrit þar sem starfsfólk getur pantað þann mat og það magn sem hentar hverjum og einum.

Með því getum við betur stillt af innkaup og framreiðslu og þannig lágmarkað matarsóun.

Jafnframt hvetjum við starfsfólk til að taka afganga með heim, með það að markmiði að nýta matinn sem best og minnka óþarfa sóun.

Tæki og búnaður í endurvinnslu

Þegar við endurnýjum eldri græjur og búnað leggjum við áherslu á að finna þeim farveg í nýjum höndum eða í viðeigandi endurvinnslu.

Við vinnum náið með samstarfsaðila okkar

Foxway, sem sérhæfir sig í hringrásarhagkerfinu og tryggir að tæki fari í endurnýtingu eða endurvinnslu á ábyrgan hátt. Með þessu stuðlum við að því að verðmæt efni haldist í hringrás og að rafeindabúnaður verði ekki að óþarfa úrgangi.

Innra markaðstorg | Gullkistan

Með Gullkistunni, sérstöku smáforriti fyrir starfsfólk Nova, gefum við eldri búnaði og vörum sem ekki eru lengur í söluvænlegu ástandi nýtt líf. Þar býðst starfsfólki að kaupa slíkar vörur á hagstæðum kjörum og þannig lengja líftíma þeirra. Með þessu tryggjum við að tæki og búnaður sem annars gætu orðið að úrgangi nýtist áfram innan fyrirtækisins. Gullkistan er því hluti af hringrásarhugsun okkar þar sem við drögum úr sóun, nýtum auðlindir betur og sköpum virði úr því sem fyrir er.

Hringrásarhagkerfið

Offramleiðsla, ofneysla og förgun tækja flýtir fyrir tæmingu þeirra takmörkuðu auðlinda sem tæknigeirinn reiðir sig á til að knýja áfram stafræna þróun. Hringrásarlausnir eru því lykilatriði í að varðveita, endurheimta og endurnýta þessar auðlindir.

Á árinu sendum við 1032 tæki til Foxway þar sem 79,5% tækjanna voru endurnýtt og hin 20,5% voru sett í endurvinnslu hjá traustum endurvinnslu samstarfsaðilum Foxway.

Með samstarfi okkar við Foxway stuðlum við að því að verðmæt efni haldist í hringrás og að raf- og rafeindabúnaður verði ekki að óþarfa úrgangi.

Grænar græjur

Í júní byrjuðum við að selja grænar græjur í samstarfi við Foxway, en það eru símtæki sem hafa verið endurnýtt (e. Refurbished). Á árinu seldum við 358 grænar græjur!

Gömul tækni

út fyrir nýja

Við viljum stanslaust storka óbreyttu ástandi.

Á árinu héldum við áfram að þróa nýja tækni í þágu umhverfisins.

Tilraunaverkefni

Fjarskiptasamband á afskekktum stöðum!

Árið 2024 settum við í gang fjarskiptastað á Dynjandisheiði á vestfjörðum í samstarfi við Neyðarlínuna. Þar voru engir innviðir til staðar og þróuðum við því “offgrid” lausn til að komast hjá kostnaðarsömum aðgerðum sem myndu sömuleiðis hafa áhrif á náttúruna. Notast var við endurunnar rafhlöður úr rafmagnsbílum, rafstöð og sólarsellur til að tryggja rafmagn. Árið 2025 héldum við áfram með verkefnið og notuðum gervihnattarsamband í samstarfi við Starlink til að tengja fjarskiptasendirinn við umheiminn. Í framtíðinni stendur til að bæta við vindmyllu til að hámarka notkun á endurnýjanlegum orkugjöfum.

Bless 3G, halló framtíð!

Með því að slökkva á 3G sköpum við rými fyrir nýja tækni sem notar minni orku. Í byrjun árs slökktum við alfarið á 2G dreifikerfinu okkar. Útfösun 3G er einnig að mestu lokið en í lok árs áttum við einungis eftir að slökkva á 3G á höfuðborgarsvæðinu og Reykjanesi. Áætlað er að útfösun verði lokið á Q1/Q2 árið 2026.

eSIM umbreytingin

Á árinu þróuðum við fyrsta eSIM-söluflæði farsímaþjónustu á Íslandi í 100% sjálfsafgreiðslu. Með eSIM einföldum við ferlið við að koma í viðskipti og bætum upplifunina, þar sem virkjun fer fram stafrænt án þess að afhenda plastkort.

Umbreytingin styður um leið við sjálfbærnistefnuna okkar og býr Nova undir eSIM-only framtíð. Lausnin gerir okkur kleift að draga úr kolefnislosun Nova til lengri tíma litið, þar sem með tímanum mun draga úr notkun plast SIM-korta og þeirri losun sem framleiðsla, flutningur og dreifing þeirra hefur í för með sér.

Umhverfisvænt samstarf

Á árinu 2025 fór Nova í samstarf við Hopp með það að leiðarljósi að bjóða upp á besta dílinn á umhverfisvænum samgöngum og hvetja fólk til að leggja niður símann, fara út og lifa lífinu.

Sem hluti af samstarfi Nova og Hopp hefur Nova þróað stafrænt klippikort í Nova appinu sem viðskiptavinir geta nýtt fyrir rafskútuferðir, ásamt tveimur þjónustuleiðum. Þjónustuleiðin Innflutningsgjöf Nova veitir þeim sem eru að flytja inneign fyrir Hopp flutningsbíl, ásamt bestu kjörum á heimaneti. NemaDíll er sértilboð fyrir nema þar sem þeir fá allra bestu kjörin á mánaðaráskriftum að Hopp rafskútum eða deilibílum.

Nova elskar samfélagið!

Raunin er sú að eðli starfseminnar okkar ýtir undir óhóflega skjá- og netnotkun. Við leggjum því áherslu á að vinna á móti þeim neikvæðu áhrifum sem tækin og tæknin hafa

í för með sér. Með fræðslu og forvörnum viljum við stuðla að ábyrgri skjá- og netnotkun fyrir viðskiptavini okkar og neytendur.

Besta liðið skilar ánægðustu viðskiptavinunum

Mikilvægast fyrir okkur er að eiga ánægðustu viðskiptavinina og besta liðið. Þess vegna leggjum við áherslu á að vinna í okkur sjálfum fyrst.

Í samræmi við sjálfbærnistefnuna vinnum við markvisst að tilteknum áherslum.

Bjóða upp á heilsueflandi vöru- og þjónustuframboð

Hvetja fólk til þess að vera meðvitað um skjátíma, samfélagsmiðlaskrun og sjónvarpsgláp Leggja áherslu á fjölbreytileika og vinna gegn staðalímyndum, sem er ein af neikvæðu birtingamyndum samfélagsmiðla

Vegferð síðustu ár

Geðrækt Nova

Vertu á staðnum

Herferð sem vísar til þess að njóta augnabliksins í raunheimum.

Spjallspjöld

Spjallspjöld voru gefin til að ýta undir spjall á gamla mátann

Elskaðu þig

Áhersla var lögð á mikilvægi þess að elska sjálft sig í allri sinni mynd.

Elskum öll!

Herferðin snerist um að elska öll án fordóma og haturs.

Skopp

AfterDark

Samkoma fyrir ungmenni í samstarfi með Skopp með lifandi tónlist.

Allir úr!

Fólk var hvatt til að losa sig við símann og neikvæða líkamsímynd.

Jánúar

Við hvöttum til jákvæðni byrjun árs með jákvæðum skilaboðum og fréttum

Geðræktardagatal

Við skoruðum á skammdegið og minntum á ólíkar hliðar geðræktar.

BUSL

Við héldum tvo símalausa tónleika í Laugardalslaug.

Plana hitting Nú getur þú planað hitting á einfaldan hátt í Nova appinu

Mæta. Hlaupa. Njóta!

Við hvöttum fólk til að njóta hlaupasumarsins á eigin forsendum.

Skjátíma í játíma

Við hvöttum foreldra til að sýna skjáhugamálum barna áhuga með forvörn að leiðarljósi.

Svefnheilsa

Dr. Erla Björnsdóttir deildi með okkur ráðum um betri svefn samhliða svefnheilsuherferð.

Skautasvellið

Frá árinu 2014 höfum við hvatt öll til að skauta inn jólin með fjölskyldu og vinum.

Rauði þráðurinn

Að hvetja fólk til að upplifa í staðinn fyrir að applifa

Heilsueflandi vöruframboð Stafrænar lausnir

Áherslur okkar á vellíðan endurspeglast í vöruúrvali og þjónustu sem styður

Vörur sem ýta undir skjáhvíld

Herferð Svefnheilsa í vörufókus

Við höfum sett sérstaka áherslu á að þróa lausnir inn í Nova appið sem gefur viðskiptavinum tól til að rækta geðið og upplifa meira.

Spjallspjöld Andrýmið Hugleiðsla appinu

Herferð Heilsan í vörufókus

Plana hitting Ný lausn í appið sem einfaldar líf viðskiptavina

Viðburðir Fríðindi

Við viljum skapa tækifæri þar sem fólk getur komið saman og skapað gæðastundir.

Novasvellið Ábreiður Tónleikar

NovaFest í Eyjum Skopp AfterDark Viðburður fyrir ungmenni

Veskið á ekki að tæmast við að leggja gæðastundir inn í bankann. Fríðindi sem gefa þér tækifæri til að lifa litríkara lífi.

FyrstiSéns Forsala á viðburði 2F1 Upplifanir

FríttStöff Líkamsrækt Klipp Upplifanir

Novasvellið

Novasvellið á Ingólfstorgi er stærsti viðburður Nova á árinu og er orðið ómissandi stopp fyrir borgarbúa í jólaösinni. Markmið svellsins er að skapa aðgengilegan vettvang þar sem fjölskyldur og vinir geta átt saman gæða samverustundir á þessum annasamasta tíma ársins. Svellið var opnað í 10. sinn í ár og hefur nú laðað að sér yfir 100.000 gesti síðan það var opnað fyrst árið 2015.

Nova er fyrst inn í framtíðina og tengjumst við því nýsköpun órjúfanlegum

böndum

Nova elskar frábærar hugmyndir og hefur svo sannarlega lagt sitt af mörkum í að koma hugmyndum framtíðarinnar á framfæri. Í samstarfi við KLAK heldur Nova uppi einum stærsta hraðli á Íslandi: Startup SuperNova. Hraðallinn hefur skapað mikið virði fyrir íslenskt samfélag, en verkefnið var stofnað árið 2020 og er þátttaka í hraðlinum að fullu styrkt af Nova, sem er bakhjarl verkefnisins.

Virði sem hraðallinn hefur skapað fyrir samfélagið

Starfandi fyrirtæki

24

Launþegar

120

Rekstrartekjur

3,5 ma

Það er enginn skemmtistaður án tónlistar

Íslensk tónlist er einfaldlega hluti af erfðamenginu okkar

og höfum við frá upphafi stutt við íslenska tónlist með vinatónum, ótal tónleikum og ótrúlegum viðburðum.

Nova hefur dansað við tónlistina í gegnum árin og heldur áfram að efla og styðja við upprennandi tónlistarfólk.

Superman — Saint Pete

Mest spilaða lag á Íslandi

4 vikur í röð

Vinatónar

Á árinu fengu Vinatónar Nova nýtt líf í Nova appinu, þar sem viðskiptavinir Nova hafa nú betri aðgang að því að stilla sína uppáhalds íslensku tónlist sem vinatón.

Inspector Spacetime Fjöldi á tónleikum 17. júní +3.314

Íslenskir vinatónar

Aukning notkunar í appinu

350 manns

Ábreiður

Á árinu 2025 kynntum við nýjungina Ábreiður Nova þar sem við fengum tónlistarfólk úr ólíkum áttum til að gera svokallaðar ábreiður af eldri íslenskum lögum.

Öll eru velkomin á stærsta skemmtistað í heimi!

Dansararnir okkar

Við hjá Nova tryggjum almenn mannréttindi, jafna stöðu og tækifæri allra dansaranna okkar óháð kyni, kynhneigð, uppruna, trú eða aldri. Við elskum góða mannasiði og höfum því sett okkur siðareglur sem við höfum að leiðarljósi í samskiptum okkar við hvert annað og í viðskiptum.

uppfærð árið 2024, leggur grunninn að skuldbindingu okkar við virðingu mannréttinda. Við forðumst staðalímyndir í atvinnuauglýsingum og þjálfum nýja dansara með miklum áhuga og hvatningu. Þá tryggir vottað jafnlaunakerfi jafnrétti dansaranna okkar. Við leggjum áherslu á að samræma vinnu og einkalíf með sveigjanlegum vinnutíma og fjölskylduvænu umhverfi. Stefnan okkar tryggir að Nova sé vinnustaður laus við ofbeldi, áreitni, einelti og útilokun. Einnig fordæmum við hvers kyns barnaþrælkun og nauðungarvinnu.

Heilsu-, öryggis- og geðræktarstefnan okkar tryggir að lögum um heilsu og öryggi sé fylgt í hvívetna. Við framfylgjum stefnunni með fræðslu, forvörnum og hvatningu fyrir öll. Svo tökum við reglulega stöðuna á dönsurunum okkar með starfsmannakönnunum.

Fræðsla og upplýsingagjöf með ólíkum leiðum

Fræðsla og forvarnir

inn á við

Daglega | Standup

Alla morgna taka dansarar í verslun og þjónustuveri sér stund til að stilla saman strengi fyrir daginn. sýnum hvað við erum að gera og sjáum hvað önnur eru að keppast við.

Mánaðarlega | Danstíminn

Mánaðarlega hittast öll í verslunum og þjónustuveri til að fræðast, skora á og drekka í sig nýjustu upplýsingar.

Árlega | Novadagurinn

Í upphafi hvers árs hittast allir Novaliðar og leggja línurnar fyrir komandi ár.

Fræðsla og forvarnir inn á við

Innan Nova er samansafn af fólki með ýmissa snilligáfu og hikum við ekki við að læra af hvoru öðru. Á árinu byrjuðum við með nýja tegund af fræðslu: Delluna, þar sem starfsfólk stígur á stokk og deilir sinni dellu. Árið 2025 lærðum við t.a.m. um hlutabréfamarkaðinn, samfélagsmiðla og efnissköpun, hlaup, gervigreind og fengum innsýn í Novalífið frá upphafi Nova.

Dellan

Fræðsla og forvarnir

Orkustiginn

Á árinu settum við OrkuStiga í vel valin fundarherbergi til að minna okkur á að taka reglulega púlsinn á orkustiginu, bæði hjá okkur sjálfum en líka vera ófeimin við að eiga samtalið við aðra liðsfélaga.

Besta liðið

Stirða liðið

Í apríl buðum við starfsfólki upp á að koma á vinnutíma í Stirðu tímana hjá Lilju Sigurgeirsdóttur, þar sem við unnum að því að bæta liðleika og almenna heilsu.

Apríl Júní Sept Okt Des

Hlaupaáskorun

Í júní skoruðum við á hvert annað til að spretta úr spori í hlaupaáskoruninni, þar sem við hvöttum öll Nova liðinu til þess að taka þátt Bakgarðshlaupinu seinna um haustið.

NovaGusur

Í september fórum við saman í FarGufu til að sækja okkur OrkuBúst! FarGufan sló gegn og hefur orðið að reglulegum viðburði síðan þá.

Orkubúst

október tvinnuðum við saman fræðslu og fróðleik bland við áskorun á Nova liðið: að safna eins mörgum orkubúst mínútum og mögulegt var, þeim tilgangi að átta sig á því hvað gefur orku og hvað tekur orku.

Vikulegir íþróttahittingar

Í desember hófum við vikulega körfuboltahittinga, þar sem allar körfuboltastjörnur Nova geta látið ljós sitt skína.

Besta liðið

Hrósarinn

Við vitum hversu stóran part hrós spila í starfsánægju hjá besta liðinu. Við nýtum okkur eigið tól sem heitir

Hrósarinn til að halda hrósunum í hæstu hæðum. Á árinu 2025 sendum við 3388 hrós, til samanburðar við 1765 á árinu 2024.

NovaSkólinn er sjö daga langt prógramm þar sem við blöndum saman fræðslu, fyrirlestrum og verklegri þjálfun. Öll sem hefja störf hjá Nova fara í gegnum

NovaSkólann þar sem við viljum efla fólk frá fyrsta degi, bæði í leik og starfi.

Á sama tíma og við hor fum á skólann sem tól til að kenna praktíkina, horfum við fyrst og fremst á hann sem kúltúrskóla. Þar viljum við stilla saman strengi og ganga úr skugga um að fólk viti hvernig við vinnum.

Fimm sinnum á ári tökum við Púlsinn á Nova liðinu og sendum út starfsánægjukannanir.

Tilgangurinn með Púlsinum er ekki að spyrja einföldu spurninganna heldur að koma auga á úrbótatækifæri til að gera okkur enn betri.

Niðurstöður nar úr hverjum púls eru síðan teknar fyrir á vikulegum morgunfundum og í kjölfarið eru þær teknar til umræðu í hverju teymi fyrir sig.

Rödd allra í Nova liðinu skiptir máli og því viljum við vera með 100% svarhlutfall í NovaPúlsinum. Meðalsvarhlutfall ársins 2025 var 90%.

Góða stjórnarhætti

Stjórnarhættir hjá Nova

Stjórn Nova hefur tileinkað sér góða stjórnarhætti og stefnir ætíð að því að fylgja þeim kröfum sem fram koma í viðurkenndum leiðbeiningum sem til staðar eru hverju sinni, auk þeirra laga sem um starfsemi félagsins gilda. Þá hefur Nova sett sér upplýsingaog samskiptastefnu til að tryggja að hagsmunaaðilar hafi jafnan aðgang að réttum, áreiðanlegum og tímanlegum upplýsingum um starfsemi Nova Klúbbsins hverju sinni.

Nova hefur sett sér skýrar siðareglur sem eru endurskoðaðar árlega og samþykktar af framkvæmdastjórn. Í upphafi starfs fær starfsfólk kynningu á reglunum og skrifa öll undir trúnaðaryfirlýsingu árlega þar sem vísað er sérstaklega til þeirra. Við viljum koma fram við aðra eins og við viljum að komið sé fram við okkur og starfa með ábyrga og góða viðskiptahætti að leiðarljósi. Í siðareglunum er sett fram skýr stefna gegn hverskyns spillingu eða mútugreiðslum. Ef upp koma brot á siðareglunum hefur Nova sett sér verklag til þess að fylgja eftir slíkum málum.

Þá höfum við sett okkur reglur um vernd uppljóstrara til að stuðla að því að upplýst verði og tilkynnt um möguleg lögbrot eða aðra ámælisverða háttsemi hjá Nova.

Nova vill styðja félög til góðra verka í samræmi við skyldu okkar til samfélagsins með gagnsæi að leiðarljósi. Við höfum valið okkur að styðja einungis þau málefni sem samræmast okkar gildum, þ.e. geðrækt, nýsköpun og íslenska tónlist.

Jafnrétti er okkur hugleikið og höfum við því sett okkur styrktarstefnu um að veita ekki framlög til einstakra stjórnmálaflokka né til íþróttasambanda eða samtaka.

Netöryggi

Upplýsinga- og netöryggi er einn mikilvægasti liðurinn í allri starfsemi okkar hjá Nova. Við höfum sett okkur stefnu í öryggi

upplýsinga og frá árinu 2024 höfum við viðhaldið vottun samkvæmt ISO 27001 staðlinum um stjórnkerfi upplýsingaöryggis.

Öll hjá Nova þurfa að leggja hönd á plóg til að tryggja og viðhalda öryggi og ber því öllu starfsfólki að vinna samkvæmt öryggisstefnu félagsins. Framkvæmdastjórn Nova fer með ábyrgð á innleiðingu stefnunnar en Öryggisstjóri hefur eftirlit með framkvæmd hennar.

Öll í Nova fara í gegnum öryggisfræðslu í NovaSkólanum áður en þau hefja störf, þar sem m.a. er farið yfir upplýsingaöryggi og meðferð persónuupplýsinga. Á árinu lögðum við áherslu á fræðslu um notkun gervigreindar út frá öryggissjónarmiðum. Þá fór fram regluleg öryggisfræðsla á innri vef félagsins.

Hér má finna Öryggisstefnu Nova .

Ef þig þyrstir í að lesa smáa letrið... Kíktu á skjalasafnið okkar.

Sjálfbærni

stjórnarhættir

Framkvæmdastjórn Nova ber ábyrgð á sjálfbærnimálum félagsins og ber að tryggja að stjórn sé upplýst a.m.k. tvisvar á ári um hvernig félaginu miðar í sjálfbærnitengdum verkefnum.

Lögfræðingur félagsins ber ábyrgð á innleiðingu sjálfbærnistefnunnar sem þjálfari SKÖP teymisins, en SKÖP stendur fyrir

Sjálfbærni, Kúltúr, Öryggi og Persónuvernd. Stjórn félagsins fer svo með eftirlitshlutverk.

Á árinu var áherslumál Nova að innleiða sjálfbærnina betur inn í kúltúrinn okkar. Um mitt ár fengum við til okkar sjálfbærniséní sem heldur utan um sjálfbærnina og drífur hana áfram, ásamt lögfræðingi félagsins.

Í lok árs 2025 settum við svo saman sjálfbærni samstarfshóp með það að markmiði að draga fleiri dansara Nova að borðinu á sjálfbærnivegferðinni.

Sjálfbærniskipuritið

Stjórn

Forstjóri

SKÖP

Sjálfbærni samstarfshópur

Framundan á árinu 2026

Við stefnum að því að byggja upp gagnagrunn sem gerir okkur kleift að setja okkur raunhæf, mælanleg og tímasett markmið

á þeim sviðum sjálfbærni sem skipta starfsemi okkar mestu máli, í samhengi við forgangsröðun og áhrif hennar.

Við stefnum að því að ná betri yfirsýn yfir losunina okkar með því að víkka út og bæta útreikninga í umfangi 3. Áform eru um að bæta við greiningu á losun vegna notkunar seldra vara (flokkur 11) og meðhöndlunar seldra vara við lok líftíma (flokkur 12), eftir því sem aðgengi að gögnum og aðferðafræði leyfir.

Við munum halda áfram að vinna að því að draga úr ofnotkun og stuðla að ábyrgri netnotkun með geðræktarvegferðinni okkar.

Við ætlum að halda áfram að þróa og móta nálgun okkar

við mat á sjálfbærniframmistöðu birgja með það að markmiði að styrkja yfirsýn og samþættingu sjálfbærnisjónarmiða í virðiskeðjunni. Markmiðið er að verkefnið verði komið í markvissari farveg fyrir lok árs 2026.

Ítarefni

Umhverfi

E1. Losun gróðurhúsalofttegunda

Umfang 1 Bein losun

Eldsneyti

Umfang 2 Óbein losun frá keyptri orku - staðbundin losun

Umfang 2 Óbein losun frá keyptri orku - markaðslosun

Rafmagn - staðbundin losun

Rafmagn - markaðslosun

Hitaveita

Umfang 3 Aðrir óbeinir losunarþættir

Flokkur 1 - Keyptar vörur og þjónustu

Flokkur 3 - Orkutengd losun utan umfang 1 og 2

Flokkur 5 - Myndun úrgangs starfsemi fyrirtækisins

Flokkur 6 - Viðskiptaferðir

Flokkur 7 - Ferðir starfsmanna til og frá vinnu

Heildarlosun - Umfang 1 + 2 + 3 Staðbundin losun fyrir UF2

Heildarlosun - Umfang 1 + 2 + 3 Markaðslosun losun fyrir UF2

E2. Losunarkræfni gróðurhúsalofttegunda

1)Heildarlosun gróðurhúsalofttegunda miðað við úttaksstærð

E3. Orkunotkun

1)Heildarmagn beinnar orkunotkunar

2)Heildarmagn óbeinnar orkunotkunar

E4. Orkukræfni

1)Heildarorkunotkun miðað við úttaksstærð

E5. Samsetning orku

1)Hlutfall orkunotkunar eftir tegund orkuframleiðslu prósentum

Endurnýjanleg

Umhverfi frh.

E6. Vatnsnotkun

1)Heildarmagn af vatni sem er notað Úrgangur

Flokkunarhlutfall

Umhverfisstarfsemi

Fyrirtæki fylgir formlegri umhverfisstefnu

Fyrirtæki fylgir tilteknum stefnum f. úrgang, vatn, orku, og/eða endurvinnslu

Fyrirtæki notast við viðurkennt orkustjórnunarkerfi

Loftlagseftirlit/stjórn

Hefur stjórn þín eftirlit með og/eða stjórnar loftlagstengdri áhættu?

Loftlagseftirlit/stjórnendur

Æðsta stjórnunarteymi hefur eftirlit með og/eða stjórnar loftlagstengdri áhættu?

Mildun loftlagsáhættu

Árleg heildarfjárfesting loftslagstengdum innviðum, seiglu og vöruþróun

Félagslegir þættir

Launahlutfall forstjóra

Launamunur kynjanna

Starfsmannavelta

Kynjafjölbreytni

Hlutfall tímabundinna starfskrafta

Aðgerðir gegn mismunun

Hnattræn heilsa og öryggi

Barna- og nauðungarvinna

Mannréttindi

Veikindahlutfall

Hlutfall heildarlaunagreiðslu forstjóra og miðgildis heildarlaunagreiðslna starfsmanna fullu starfi

Er þetta hlutfall sett fram af fyrirtækinu þínu skýrslugjöf til yfirvalda?

Hlutfall miðgildis launagreiðslna karla og miðgildis launagreiðslna kvenna

Árleg breyting starfsmanna fullu starfi, prósentum

Árleg breyting starfsmanna hlutastarfi, í prósentum

Kynjahlutfall innan fyrirtækisins, í prósentum (KVK / KK)

Kynjahlutfall byrjunarstörfum og næsta starfsmannalagi fyrir ofan, í prósentum (KVK / KK)

Kynjahlutfall störfum efsta starfsmannalagi og sem framkvæmdastjórar, prósentum

Prósenta starfsmanna hlutastarfi

Fylgir fyrirtækið þitt stefnu er varðar kynferðislegt áreiti og/eða jafnrétti?

Fylgir fyrirtækið þitt starfstengdri heilsustefnu og/eða hnattrænni stefnu um heilsu og öryggi?

Fylgir fyrirtækið þitt stefnu gegn barna- og/eða nauðungarvinnu?

Ef já, nær stefnan gegn barna- og/eða nauðungarvinnu einnig til birgja og seljenda?

Fylgir fyrirtækið þitt mannréttindastefnu?

Ef já, nær mannréttindastefnan einnig til birgja og seljenda?

Meðaltal hlutfalls veikindadaga af heildar vinnudögum

Stjórnarhættir

Kynjahlutfall í stjórn

Óhæði stjórnar

Kaupaukar

Kjarasamningar

Siðareglur birgja

Siðferði og aðgerðir gegn spillingu

Persónuvernd

Sjálfbærniskýrsla

Starfsvenjur við upplýsingagjöf

Hlutfall kvenna stjórn í prósentum (samanborið við karla)

Hlutfall kvenna formennsku nefnda prósentum (samanborið við karla)

Bannar fyrirtækið forstjóra að sinna stjórnarformennsku?

Hlutfall óháðra stjórnarmann í prósentum

Fá framkvæmdastjórar formlegan kaupauka fyrir að ná árangri á sviði sjálfbærni?

Hlutfall starfsmanna fyrirtækisins prósentum sem fellur undir almenna kjarasamninga

Ber seljendum þínum eða birgjum að fylgja siðareglum?

Ef já, hve hátt hlutfall þinna birgja hafa formlega vottað að þeir fylgi siðareglunum, í prósentum?

Fylgir fyrirtækið þitt stefnu um siðferði og/eða aðgerðum gegn spillingu?

Ef já, hve hátt hlutfall vinnuafls þíns hefur formlega vottað að það fylgi stefnunni, prósentum?

Fylgir fyrirtækið þitt stefnu um persónuvernd?

Hefur fyrirtækið þitt hafist handa við að fylgja GDPR reglum?

Gefur fyrirtækið þitt út sjálfbærniskýrslu?

Eru gögn um sjálfbærni að finna skýrslugjöf til yfirvalda?

Veitir fyrirtækið þitt upplýsingar um sjálfbærni til viðurkenndra aðila með skipulögðum hætti?

Leggur fyrirtækið þitt áherslu á tiltekin heimsmarkmið sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun (UN SDGs)?

Setur fyrirtækið þitt

og gefur skýrslu um framvindu heimsmarkmiða SÞ?

Gögn tekin út/sannreynd af ytri aðila Er upplýsingagjöf þín um sjálfbærni tekin út eða sannreynd af þriðja aðila?

*Öll Nova undirrita árlega trúnaðaryfirlýsingu þar sem vísað er til siðareglna félagsins

Almennar upplýsingar

Um skýrsluna

Þessi sjálfbærniskýrsla er gefin út fyrir árið 2025 og er fjórða sjálfbærniskýrsla sem Nova gefur út. Skýrslan er unnin af sérfræðingum innan Nova. Markaðsdeild Nova annaðist ritstjórn, myndskreytingu, hönnun og umbrot skýrslunnar. Skýrslan er gefin út fyrir hönd Nova klúbbsins hf. og dótturfélaga.

Sjálfbærniuppgjör

Nova Klúbburinn hf. er skráður á aðallista NASDAQ og er sjálfbærniuppgjörið unnið með hliðsjón af UFS-leiðbeiningum NASDAQ (e. ESG Reporting Guide 2.0). KPMG annaðist vinnslu umhverfisbókhaldsins.

í lykilflokkum í Umfangi 3, einkum keyptri vöru og þjónustu.

Umfang 1

Bein losun frá starfsemi Nova nam 50 tonnum CO2íg árið 2025 og hefur aukist frá árinu 2024, en losun árið 2024 nam 40 tonnum.

Losunin stafar fyrst og fremst af eldsneytisnotkun bifreiða.

Umfang 2

Megnið af losuninni í Umfangi 2 er vegna reksturs fjarskiptainnviða.

Umfang 3

Losun í Umfangi 3 nam 1.158 tonnum CO2íg árið 2025 samanborið við 1.226 tonn árið 2024 og 1.220 tonn árið 2023.

Langstærsti liðurinn í Umfangi 3 eru aðkeyptar vörur og þjónusta. Frá 2024 hefur aðferðafræði við útreikning á losun vegna ferða starfsmanna til og frá vinnu verið uppfærð. Fyrri ár hafa verið endurreiknuð til samræmis við nýja aðferðafræði til að tryggja samanburðarhæfni milli ára.

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook