Skip to main content

Bökunarbæklingur Nóa Síríus 2016

Page 1


KÖKUBÆKLINGUR

Kökubæklingur

Nóa Síríusar 2016

Uppskriftir:

Berglind Guðmundsdóttir

Berglind Guðmundsdóttir er eigandi uppskriftasíðunnar GulurRauðurGrænn&salt sem hefur notið mikilla vinsælda meðal landsmanna undanfarin ár. Á GulurRauðurGrænn&salt er lögð áhersla á einfaldar, ölbreyttar og bragðgóðar uppskriftir og þar ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. www.grgs.is

Fylgihlutir:

Snúran er verslun í Síðumúla 21 sem kappkostar að bjóða upp á spennandi og fallegar vörur sem prýða heimilið.

Ljósmyndir: Hróbjartur Sigurðsson

Útlit og umbrot: Árnasynir

Prentun: Ísafold ehf.

Útgefandi:

Nói Síríus, Hesthálsi 2-4, 110 Reykjavík

Í BAK S TURI NN FRÁ NÓA SÍRÍU S I

Nói Síríus hefur fylgt Íslendingum í að verða 100 ár og í gegnum árin hafa vörur fyrirtækisins verið sérstaklega vinsælar í bakstur. Allir landsmenn þekkja Síríus súkkulaðið og gæði þess, en undanfarin ár hefur það einnig orðið æ vinsælla að nota sælgætið frá Nóa Síríusi í kökugerð og hvers kyns bakstur. Kökubæklingur Nóa Síríusar hefur því eðlilega notið mikilla vinsælda og er fyrir löngu orðinn fastur liður í undirbúningi margra Íslendinga fyrir hátíðarnar. Sem fyrr erum við stolt af kökubæklingnum og því að geta boðið Íslendingum upp á úrvalshráefni í ómótstæðilegar freistingar. Njótið vel.

SÚKKULAÐIÐ

FRÁ NÓA SÍRÍU S I

Síríus Konsum 45% (suðusúkkulaði)

Þetta eina sanna sem löngu er orðið klassískt. Kakóinnihaldið er 45%, það er meðalbragðsterkt og hentar vel hvort sem er til neyslu beint úr pakkanum eða í bakstur og matargerð að ógleymdu heita súkkulaðinu.

Síríus 56%

Áþekkt Síríus 45% súkkulaðinu en kakóinnihaldið er 56%. Einstaklega kröftugt súkkulaðibragð án þess að vera rammt í munni. Þetta súkkulaði er frekar lítið sætt og geðjast því vel þeim sem kunna ekki að meta sætar vörur.

Síríus Konsum 70%

Toppsúkkulaðið í munni þeirra sem vilja almennilegt súkkulaðibragð og ekkert annað. Bragðfyllingin er mikil en samt í góðu jafnvægi. Kakóinnihaldið er eins og nafnið gefur til kynna 70% og sykurinnihald er komið niður fyrir 30%. Segja má að neytandinn þurfi svolítið að venjast svona kröftugu og lítið sætu súkkulaði og eðlilegt að mörgum þyki bragðið fullrammt við fyrstu kynni. Síríus Konsum 70% hentar vel í eftirrétti, mú ur og súkkulaðitertur þar sem maður vill ná fram miklu súkkulaðibragði og fá eindreginn súkkulaðilit.

Síríus rjómasúkkulaði

Síríus rjómasúkkulaði er vinsælasta súkkulaði Íslendinga. Það inniheldur mikið af þurrkaðri mjólk sem blandast einkar vel við kakóbaunirnar frá Fílabeinsströndinni.

Bragðið er milt og mjúkt. Þetta súkkulaði er unnið á sérstakan hátt til þess að fá eins mjúka áferð og hægt er svo að það bráðni þægilega í munni. Rjómasúkkulaðið er mestmegnis borðað eins og það kemur fyrir, hreint eða með hnetum og/eða rúsínum.

Síríus rjómasúkkulaði er einnig notað í bakstur þar sem leitað er eftir mildum undirtóni frekar en sterku súkkulaðibragði.

Síríus Konsum hvítt súkkulaði

Hvítt súkkulaði er hvítt vegna þess að það inniheldur einungis kakósmjör en engin kakóþurrefni (sem gefa hefðbundnu súkkulaði brúna litinn). Síríus Konsum hvítt súkkulaði er milt á bragðið en með mikla fyllingu og hentar því vel í allan bakstur, auk þess að vera einstaklega gómsætt beint úr pakkanum.

Sjálfbærni og samfélagsábyrgð

Síríus súkkulaði er hluti af Cocoa Horizons verkefninu.

Cocoa Horizons gerir kakóræktendum kleift að rækta og framleiða kakóið á

sjál æran og ábyrgan hátt. Cocoa Horizons ferlið tryggir fræðslu til kakóbænda varðandi ræktunaraðferðir og aðbúnað starfsfólks auk þess sem það kemur að fræðslumálum, heilsugæslu og aðgengi að hreinu vatni. Þannig stuðlar Cocoa Horizons að betri lífsskilyrðum í kakóræktarsamfélögum.

SARA B ER N HARDT

í ofnskú u

HRÁEFNI

Möndlubotn

400 g möndlur

400 g sykur

4 tsk lyftiduft

6 eggjahvítur

Súkkulaðikrem

250 g smjör

200 g flórsykur

6 eggjarauður

4 tsk Konsum kakó

2 tsk vanillusykur eða vanilludropar

Súkkulaðiglassúr

200 g Konsum suðusúkkulaði

2 msk smjör

AÐFERÐ

Möndlubotn

Malið möndlur í matvinnsluvél. Blandið svo lyftidufti saman við möndlurnar.

Stífþeytið eggjahvítur og blandið sykrinum við í smáum skömmtum.

Þekið ofnskú u (um það bil 30x40 cm) með bökunarpappír og dreifið deiginu jafnt í ofnskú una. Bakið í miðjum 175°C heitum ofni í 20 mínútur.

Kælið botninn í um það bil ½ til 1 klukkustund.

Súkkulaðikrem

Þeytið smjör og flórsykur saman. Þeytið eggjarauður saman við þar til verður úr mjúkt smjörkrem. Þeytið að lokum saman við kakó og vanillusykur eða vanilludropa. Smyrjið svo kreminu jafnt yfir botninn. Athugið að mikilvægt er að botninn sé orðinn alveg kaldur þegar súkkulaðikreminu er dreift yfir. Kælið vel í um 1 klukkustund.

Súkkulaðiglassúr

Bræðið smjörið og súkkulaðið saman. Dreifið blöndunni svo yfir kalda kökuna

í þunnu lagi. Kælið. Skerið að lokum í bita eftir smekk. Geymist vel í frysti.

COR N FLAKE S SM ÁKÖKUR

HRÁEFNI

4 eggjahvítur

200 g púðursykur

160 g Kellogg‘s Corn flakes

120 g kókosmjöl

100 g Konsum suðusúkkulaði

1 tsk vanilludropar

AÐFERÐ

Þeytið eggjahvítur og púðursykur vel saman. Blandið Corn flakes og kókosmjöli varlega saman við með sleif ásamt suðusúkkulaði og vanilludropum. Setjið síðan með teskeið á plötu með bökunarpappír, í smá toppa. Bakið í 150°C heitum ofni í um 15 mínútur.

Um það bil 20 stykki

K ÚLU G OTT

HRÁEFNI

260 g hnetusmjör

50 g Kellogg‘s Rice Krispies

300 g flórsykur

30 g smjör, brætt

300 g Konsum suðusúkkulaði

A ÐFERÐ

Látið öll hráefnin saman í hrærivél og hrærið þar til allt hefur blandast vel saman. Hnetusmjör hefur mismunandi áferð þannig að ef kúlurnar eru of blautar, bætið þá meiri flórsykri saman við, en bætið við meira hnetusmjöri ef þær eru of þurrar. Hnoðið litlar kúlur úr deiginu. Dýfið þeim í brætt súkkulaðið og geymið á ofnplötu með smjörpappír þar til súkkulaðið hefur harðnað. Geymið í kæli eða frysti.

Um það bil 35 litlar kúlur

NIZZA O S TAKAKA

HRÁEFNI

B otn

300 g hafrakex, mulið

3 msk smjör, brætt

3 msk sykur

Fylling

300 ml rjómi, þeyttur

340 g rjómaostur, mjúkur

100 g sykur

125 g Nizza súkkulaðismjör

Skraut

100 g hindber, fersk eða frosin

1 dl Nizza súkkulaðismjör, brætt

AÐFERÐ

B otn

Blandið saman muldu kexi, smjöri og sykri. Blandið vel saman og látið í 28 cm form. Frystið þar til fyllingin er tilbúin.

Fylling

Hrærið saman þeyttan rjóma og sykur og blandið vel saman. Blandið Nizza kreminu varlega saman við með sleif. Hellið blöndunni yfir botninn og frystið í að minnsta kosti 4 klukkustundir. Hellið bræddu Nizza súkkulaðismjöri yfir kökuna.

ÁVAXTABO M BA

með Síríus Pralín

HRÁEFNI

8 súkkulaðikexkökur

1 ½ dl rjómi

3 kíví

2 bananar

250 g jarðarber

200 g Síríus Pralín með karamellufyllingu

6 makkarónukökur, muldar

6 msk Baileys

AÐFERÐ

Myljið kexið og setjið ½ dl af rjóma saman við svo úr verði létt deig.

Skiptið niður í 4 glös. Skerið ávextina smátt og deilið jafnt í glösin.

Setjið 1 dl af rjóma í pott ásamt Síríus Pralín og hrærið þar til það er bráðið. Látið kólna lítillega áður en sósan er sett yfir. Bleytið makkarónurnar með Baileys og setjið yfir allt.

Fyrir 4

HRÁEFNI

B ollakökur

200 g hveiti

200 g sykur

200 g smjör, mjúkt

4 egg

1 tsk lyftiduft

100 g Síríus rjómasúkkulaði

með kremkexi, saxað

Krem

80 g smjör, mjúkt

1 tsk vanilludropar

250 g flórsykur

1 eggjarauða

1 msk vatn

150 g Síríus rjómasúkkulaði

með kremkexi, smátt saxað

B OLLAKÖKUR

með kremkexsúkkulaði

AÐFERÐ

B ollakökur

Hrærið hveiti, sykur, smjör, egg og lyftiduft vel saman. Bætið söxuðu

Síríus rjómasúkkulaði með kremkexi saman við deigið. Setjið deigið í mö nsform og bakið í 190°C heitum ofni í um 20 mínútur. Takið úr ofninum og kælið.

Krem

Hrærið smjör og vanilludropa saman. Bætið því næst eggjarauðu og

flórsykri saman við. Ef kremið er of þykkt er gott að bæta saman við 1 msk af vatni. Bætið Síríus rjómasúkkulaði með kremkexi varlega saman við með sleif. Setjið kremið í sprautupoka og setjið á bollakökurnar.

Skreytið með söxuðu rjómasúkkulaði.

Um það bil 24 stykki

R O C KY R OAD VEI S LUKAKA

H RÁEFNI

100 g smjör

100 g Konsum súkkulaði, saxað

3 egg

1 ½ dl púðursykur

½ dl ljóst síróp

2 dl hveiti

2 dl Konsum súkkulaðidropar

2 dl litlir sykurpúðar

2 dl salthnetur, gróflega saxaðar

Skraut

150 g Nóa Bismark, saxaður

1 dl salthnetur, saxaðar

1 dl litlir sykurpúðar

A ÐFERÐ

Bræðið smjör og saxað súkkulaði saman við vægan hita. Hrærið egg, sykur og síróp vel saman þar til blandan verður létt og ljós og bætið síðan hveitinu varlega saman við með sleif. Hellið súkkulaðismjörinu saman við. Bætið síðan súkkulaðidropum, sykurpúðum og hnetum varlega saman við. Smyrjið um það bil 23-26 cm form og hellið deiginu í formið. Bakið í 175°C heitum ofni í um 25-30 mínútur. Skreytið með muldum Bismark brjóstsykri, salthnetum, sykurpúðum og jafnvel súkkulaðisósu.

SÆL G ÆTI SS KÁL með piparmynturjóma og heitri súkkulaðisósu

HRÁEFNI

1 marengsbotn

150 g Nóa Kropp

250 ml rjómi

50 g Síríus Pralín með piparmyntu, saxað

250 g jarðarber, skorin í fernt

Piparmyntusúkkulaðisósa

150 g Síríus Pralín með piparmyntu

2 dl rjómi

2 msk síróp

AÐFERÐ

Setjið Nóa Kropp í botninn á skál og myljið marengsbotn yfir það. Þeytið rjóma og bætið piparmyntu Pralín varlega saman við með sleif. Setjið rjómann yfir Nóa Kroppið og síðan jarðarber yfir allt.

Setjið piparmyntu Pralín, rjóma og síróp saman í pott og hitið við vægan hita. Berið fram með sælgætisskálinni.

Fyrir 4

KÓKO S TO PPAR

HRÁEFNI

2 egg

2 dl sykur

5-6 dl kókosmjöl

1 tsk vanillusykur

50 g Síríus rjómasúkkulaði, saxað

50 g appelsínubörkur, rifinn

150 g Konsum súkkulaðidropar, bræddir

A ÐFERÐ

Þeytið egg og sykur saman. Bætið kókosmjöli, vanillusykri, rjómasúkkulaði og appelsínuberki vel saman við með sleif. Setjið deigið á plötu með teskeið.

Bakið í 180°C heitum ofni í 10-12 mínútur. Takið úr ofni og leyfið að kólna.

Bræðið Konsum súkkulaði, dýfið neðsta hluta kókostoppanna ofan í súkkulaðið og setjið á ofnplötu með smjörpappír þar til súkkulaðið hefur harðnað.

Um það bil 24 stykki

SÚKKULAÐIBRAUÐBOLLUR

HRÁEFNI

1 pakki þurrger (11 g)

2 dl volgt vatn

1 ½ tsk salt

3 msk sykur

2-3 tsk kardemommudropar

100 g smjör, mjúkt

4 dl sýrður rjómi (18%)

2 egg

200 g Konsum súkkulaðidropar

700 g hveiti

A ÐFERÐ

Setjið ger saman við volgt vatn og bætið salti, sykri og kardemommudropum. Bætið smjörinu saman við ásamt sýrðum rjóma og eggjum. Hnoðið síðan helmingnum af hveitinu og súkkulaðidropunum saman við deigið. Athugið að deigið á að vera aðeins klístrað. Látið hefast í skálinni undir volgum klút í um það bil 30-45 mínútur. Hnoðið og notið hveiti eftir þörfum. Mótið í um 16 bollur og setjið á ofnplötu með smjörpappír. Látið hefast í um 20 mínútur undir rökum klút. Penslið bollurnar með léttþeyttu eggi og bakið í 200°C heitum ofni í um 20 mínútur.

Um það bil 16 stykki

NÓA K RO PP S KYRKAKA

með hvítu súkkulaði og ferskum jarðarberjum

H RÁEFNI

200 g Nóa Kropp

500 ml rjómi

700 g vanilluskyr

300 g Konsum hvítir

súkkulaðidropar, bræddir

Skraut

250 g jarðarber, fersk

100 g Nóa Kropp

A ÐFERÐ

Myljið Nóa Kroppið gróflega og setjið í form. Þeytið rjómann.

Hrærið vanilluskyr og brædda, hvíta súkkulaðidropa varlega saman við með sleif. Hellið blöndunni yfir Nóa Kroppið. Skreytið með berjum og Nóa Kroppi. Geymið í kæli þar til kakan er borin fram.

K ARA M ELLUÍ S TERTA með salthnetumarengsbotni

HRÁEFNI

Marengsbotn

3 eggjahvítur

2 dl sykur

50 g salthnetur, saxaðar

K aramellukrem

3 eggjarauður

1 dl sykur

200 g Síríus rjómasúkkulaði með karamellu og sjávarsalti

4 dl þeyttur rjómi

Skraut

100 g Síríus rjómasúkkulaði með karamellu og sjávarsalti

AÐFERÐ

Marengsbotn

Gerið marengsbotninn. Þeytið eggjahvíturnar þar til þær eru orðnar stífar, setjið sykurinn smátt og smátt saman við og þeytið í um 5-10 mínútur eða þar til marengsinn er orðinn þéttur og glansandi. Blandið salthnetunum varlega saman við með sleif. Setjið deigið í form klætt með smjörpappír og bakið í 130°C heitum ofni í um eina klukkustund.

Krem

Þeytið eggjarauður og sykur vel saman eða þar til létt og ljóst. Saxið rjómasúkkulaðið og blandið saman við. Þeytið að lokum rjómann og bætið varlega saman við með sleif. Setjið kremið yfir botninn og frystið í að minnsta kosti 4 klukkustundir. Takið kökuna úr frysti 15 mínútum áður en hún er borin fram og skreytið með söxuðu Síríus rjómasúkkulaði með karamellu og sjávarsalti.

MARE NGSP I PARTO PPAR

HRÁEFNI

4 eggjahvítur

210 g púðursykur

100 g Nóa lakkrís piparperlur, saxaðar

200 g Pipar Nóa Kropp, saxað

AÐFERÐ

Þeytið eggjahvítur og púðursykur vel saman eða í um það bil 5-10 mínútur

þar til blandan er orðin þétt. Bætið piparperlum og Pipar Nóa Kroppi varlega saman við með sleif. Látið á plötu með teskeið. Bakið í 125°C heitum ofni í 30-40 mínútur.

Um það bil 30 stykki

D ÖÐLU G OTT M EÐ LAKKRÍ S KURLI

HRÁEFNI

500 g döðlur, saxaðar smátt

250 g smjör

120 g púðursykur

150 g Kellogg‘s Rice Krispies

400 g Síríus rjómasúkkulaði

2 pokar Nóa lakkrískurl

A ÐFERÐ

Döðlur og smjör brætt saman í potti. Púðursykurinn er bræddur með þangað til döðlurnar eru orðnar mjúkar. Blandið Rice Krispies og lakkrískurli saman við og setjið í form í frysti í 10 mínútur. Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði. Hellið yfir Rice Krispies blönduna og frystið í um það bil 30 mínútur. Skerið í bita, berið fram og njótið.

Um það bil 25 stykki

MARE NGS TO PPAR

með Nizza súkkulaðismjöri

HRÁEFNI

3 eggjahvítur, við stofuhita

Salt af hnífsoddi

100 g sykur

1 dl Nizza súkkulaðismjör

A ÐFERÐ

Þeytið eggjahvíturnar í nokkrar mínútur eða þar til þær eru vel freyðandi. Bætið salti saman við og síðan sykri, einni matskeið í einu. Þeytið við hæsta styrk í 5-10 mínútur eða þar til þykkur og glansandi marengs hefur myndast. Bætið nú súkkulaðismjöri varlega saman við með sleif þar til brúnar línur hafa myndast í hvítan marengsinn. Látið marengsinn með teskeið á ofnplötu með smjörpappír. Setjið inn í 175°C heitan ofn og lækkið hitann strax niður í 100°C. Bakið í um klukkustund eða þar til marengsinn er orðinn stökkur.

Um það bil 16 stykki

PRALÍ N KARA M ELLUBÚÐI NG UR

HRÁEFNI

250 g Síríus Pralín með karamellufyllingu

500 ml rjómi

2 eggjahvítur

2 msk mjólk

150 g Nóa Síríus karamellukurl

A ÐFERÐ

Skerið karamellusúkkulaðið í bita og setjið í pott ásamt mjólkinni.

Bræðið súkkulaðið við vægan hita þar til allt hefur blandast vel saman. Takið pottinn af hellunni, látið standa í 10-15 mínútur og

hellið síðan í skál. Þeytið rjómann og blandið varlega saman við súkkulaðiblönduna. Stífþeytið eggjahvíturnar og blandið þeim varlega saman við súkkulaðirjómann. Setjið búðinginn í skál og

látið í kæli í að minnsta kosti klukkustund. Stráið karamellukurli yfir allt áður en hann er borinn fram.

Fyrir 4

Nói Síríus mælir með

R I C E K RI SP IE S KAKA

með banana og karamellusósu

H RÁEFNI

B otn

100 g smjör

100 g Síríus 56% súkkulaði

100 g Síríus Pralín

með karamellufyllingu

4 msk síróp

5 bollar Kellogg‘s Rice Krispies

Rjómakrem

250 ml rjómi

2 bananar (þroskaðir)

K aramellusósa

150 g rjómatöggur eða rjómakúlur

½ dl rjómi

A ÐFERÐ

Bræðið smjör og súkkulaði saman við vægan hita í potti, hrærið

sírópi saman við og blandið svo Rice Krispies saman við að lokum.

Setjið blönduna í hringlaga form og kælið í að minnsta kosti 20-30 mínútur.

Rjómakrem

Þeytið rjómann og skerið bananana í bita. Einnig er hægt að

stappa bananana. Blandið saman og setjið á kökuna.

K aramellusósa

Bræðið karamellurnar með rjómanum við vægan hita, hrærið vel.

Kælið sósuna í smá tíma og setjið svo ofan á kökuna.

Vinningsuppskrift Sólveigar Guðmundsdóttur

í kökukeppni starfsmanna Nóa Síríusar

56% súkkulaði

Einstakt súkkulaðibragð

Síríus súkkulaði hefur fylgt íslensku þjóðinni síðan 1933. Þannig hafa Íslendingar

notið Síríus súkkulaðis á stórum sem hversdagslegri stundum lengur en þeir hafa

notið sjálfstæðis. Síríus 56% súkkulaði er með háu kakóinnihaldi og gefur kröftugt súkkulaðibragð með silkimjúkri áferð og ljúffengu eftirbragði. Það hentar mjög vel í bakstur, auk þess að vera einstaklega gómsætt eitt og sér.

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Bökunarbæklingur Nóa Síríus 2016 by Nói Síríus - Issuu