Árs nám í myndlist
mynd list
→ Inntökuskilyrði eru að umsækjandi hafi lokið starfsbraut framhaldsskóla eða sambærilegu námi. → Að auki eru umsækjendur boðaðir í viðtal hjá inntökunefnd. → Umsóknarfrestur er til og með 22. maí.
Hefur þú áhuga á skapandi greinum? Þá gæti nám í listgreinum verið sniðugt næsta skref. Myndlistaskólinn í Reykjavík býður upp á eins árs nám í myndlist sérsniðið fyrir þau sem lokið hafa starfsbraut eða sambærilegu námi. Í náminu er lögð áhersla á að nemandinn kynnist fjölbreyttum vinnuaðferðum, tækni og hugtökum sem notuð eru um myndlist og hönnun og öðlist innsýn í listasögu og samtímalist.
Skólagjöld fyrir námsárið 2022-2023 eru 174.000,-kr. eða 87.000,-kr.fyrir hvora önn.
Myndlist → Árs nám fyrir nemendur sem lokið hafa starfsbraut Nám í myndlist er að mestu verklegt en nemendur taka einnig áfanga í listasögu og starfsumhverfi myndlistar og hönnunar. Á fyrri önninni er lögð áhersla á teikningu, formfræði, litafræði, listasögu, hugmyndavinnu og ljósmyndun. Á síðari önninni er einnig unnið með bæði videó og hljóð. Til fræðilegra áfanga teljast listfræði og heimspeki auk áfanga um starfsumhverfi listamanna og málstofu.
Rík áhersla er lögð á valdeflingu og að námið sé ánægjulegt fyrir nemendur.
→ Myndlist skiptist í tvær annir; haustönn og vorönn. → Námið samanstendur af 30 einingum, 15 einingar eru teknar fyrir á hvorri önn. → Til að ljúka hverjum áfanga þarf skólasókn nemanda að vera minnst 80%. → Um er að ræða hálft nám en kennt er fyrir hádegi alla virka daga.
Náminu lýkur með áfanga þar sem nemendur vinna sjálfstætt að eigin verkum til sýningar á útskriftarsýningu skólans.
Að loknu námi skal nemandi hafa hæfni til að: → → → → →
nota margskonar aðferðir og miðla myndlistarinnar. umgangast helstu verkfæri og tæki sem notuð eru í myndlist. vinna að eigin listsköpun, sjálfstætt eða með stuðningi. tjá sig um eigin verk og annarra á skilmerkilegan hátt, miðað við færni og tjáningarmáta. tjá sig um áhugamál sín á skilmerkilan hátt, miðað við færni og tjáningarmáta.
mynd list
Námsmat byggir á þeim námsmarkmiðum sem sett eru fram í áfangalýsingu en þar sem námið er mjög einstaklingsmiðað er fyrst og fremst tekið mið af færni hvers og eins. Námið veitir engin formleg réttindi en það gefur nemendum möguleika á að skapa sér starfsvettvang á sviði listsköpunar, á eigin spýtur eða með stuðningi.
SMellið á myndina til að sjá fleiri útskriftarverk eftir fyrrum nemendur.
Mörg þúsund manns á öllum aldri hafa notið leiðsagnar hjá Myndlistaskólanum í Reykjavík undanfarin 75 ár. Í dag bjóðum við bæði upp á fullt nám í dagskóla á ýmsum námsstigum ásamt fjölbreyttum námskeiðum fyrir börn og fullorðna í vikulegum tímum. Grunnur að starfi Myndlistaskólans í Reykjavík var lagður vorið 1946 þegar Félag íslenskra frístundamálara var stofnað. Kennsla hófst síðla árs 1947 og strax árið 1948 voru barnanámskeið skólans orðin eftirsótt, auk þess sem boðið var upp á fjölbreytt námskeið fyrir fullorðna.
Smellið á myndina til að sjá kynningarmyndband um skólann.