Skip to main content

Námsframboð Myndlistaskólans í Reykjavík

Page 1

WWW.MIR.IS - MIR@MIR.IS - 551 1990


NÁM Í BOÐI VIÐ MYNDLISTASKÓLANN Í REYKJAVÍK: → LISTNÁMSBRAUT → TVEGGJA ÁRA NÁM TIL STÚDENTSPRÓFS → EINS ÁRS FORNÁM

→ TVEGGJA ÁRA NÁM → KERAMIK → MÁLARALIST → TEIKNING → TEXTÍLL → NÁMSKEIÐ FYRIR BÖRN OG FULLORÐNA


Listnámsbraut → Tveggja ára nám til stúdentsprófs Ef þú hyggur á framhaldsnám í listgreinum eða störf á sviði skapandi greina er tilvalið að taka stúdentspróf af listnámsbraut. Námið er að mestu verklegt og byggir á klassískum grunnáföngum myndlistar, ásamt hugmyndavinnu og listasögu. Áhersla er lögð á tæknilega færni, skilning á sögulegu samhengi og sjálfstæði nemandans í hugmyndavinnu og útfærslu.

Nám í íslensku, ensku og stærðfræði tekur sérstakt mið af myndlist og hönnun og sjónræn miðlun er mikilvægur þáttur í verkefnavinnu nemenda. Meðal þess sem þú fæst við á brautinni er teikning, módelteikning, lita- og formfræði, ljósmyndun, vídeó, myndvinnsla í tölvu, bókagerð og verkstæðis-vinna af ýmsu tagi. Náminu lýkur með sjálfstæðu lokaverkefni sem sýnt er á vorsýningu skólans.


LIST NÁMS BRAUT

→ Stúdenstpróf af listnámsbraut er 200 einingar. → Inntökuskilyrði eru 60 einingar. (sjá nánar á mir. is) Við skólann eru kenndar 140 einingar. → Umsækjendur þreyta inntökupróf.


F O R N Á M → Fornám samanstendur af 64 einingum. → Inntökuskilyrði er stúdentspróf eða sambærilegt nám.


Listnámsbraut → Eins árs fornám Ef þú hefur þegar lokið stúdentsprófi af annarri braut og langar í nám í listgreinum eða starf á sviði skapandi greina er fornámið sniðugt fyrir þig. Námið er samsett af völdum verklegum áföngum af listnámsbraut. Á fyrri önninni ert þú að miklu leyti samferða nemendum á fyrra ári listnámsbrautar í ýmsum grunnáföngum, s.s. teikningu, form- og litafræði, ljósmyndun og myndvinnslu. Á síðari önninni fylgir þú síðara ári listnámsbrautar í ýmsum verkstæðisáföngum og við undirbúning fyrir lokaverk og útskrift.

FOUNDATION STUDIES - 2 PROGRAMMES → VISUAL ARTS - TWO-YEAR PROGRAMME TOWARDS MATRICULATION → VISUAL ARTS - ONE-YEAR FOUNDATION PROGRAMME CONSISTING OF SELECTED MODULES FROM THE TWO-YEAR PROGRAMME


Keramikbraut er tveggja ára nám þar sem þú lærir aðferðir og efnistök í vinnu með leir, gifs og postulín og öðlast fræðilega þekkingu á faginu. Rík áhersla er lögð á hugmyndavinnu og nemendur eru hvattir til fjölbreyttra rannsókna og tilrauna með miðilinn. Námið er að stærstum hluta verklegt en fræðilegt nám er u.þ.b. fjórðungur. Til fræðilegra áfanga teljast fagsaga, hönnunarsaga, listasaga og heimspeki auk viðskiptaáfanga og málstofu.

A TWO YEAR DIPLOMA PROGRAMME IN CERAMICS COMBINING PRACTICAL METHODS AND TECHNIQUES, CONCEPTUAL WORK AND THEORY.


KERA MIKB RAUT → Nám á keramikbraut er 120 einingar. → Inntökuskilyrði er stúdentspróf af listnámsbraut eða sambærilegt nám. → Umsækjendur skila inn möppu og skissubók. → Umsækjendur gætu átt von á því að vera boðaðir í inntökuviðtal.


→ Nám á listmálarabraut er 120 einingar. → Inntökuskilyrði er stúdentspróf af listnámsbraut eða sambærilegt nám. → Umsækjendur skila inn möppu og skissubók. → Umsækjendur gætu átt von á því að vera boðaðir í inntökuviðtal.

LISTM ÁLARA BRAUT


Listmálarabraut er tveggja ára nám þar sem þú lærir aðferðir og efnistök málaralistarinnar og öðlast fræðilega þekkingu á faginu. Rík áhersla er lögð á hugmyndavinnu og að hvetja nemendur til frekari rannsókna og tilrauna með miðilinn. Námið er að stærstum hluta verklegt en fræðilegt nám er u.þ.b. fjórðungur. Til fræðilegra áfanga teljast listfræði og heimspeki auk áfanga um starfsumhverfi listamanna og málstofu.

A TWO YEAR DIPLOMA PROGRAMME IN FINE ART PAINTING COMBINING PRACTICAL METHODS AND TECHNIQUES, CONCEPTUAL WORK AND THEORY.


Teiknibraut er tveggja ára nám þar sem þú kynnist öllum helstu aðferðum og tækni teiknarans og öðlast fræðilega fagþekkingu. Áhersla er lögð á tæknilega færni, skilning á sögulegu samhengi og sjálfstæði nemandans í hugmyndavinnu og útfærslu. Námið er að stærstum hluta verklegt en fræðilegt nám er u.þ.b. fjórðungur. Til fræðilegra áfanga teljast fagsaga, hönnunarsaga, listasaga og heimspeki

A TWO YEAR DIPLOMA PROGRAMME IN ILLUSTRATION COMBINING PRACTICAL METHODS AND TECHNIQUES, CONCEPTUAL WORK AND THEORY.


TEIKNI BRAUT

→ Nám á teiknibraut er 120 einingar. → Inntökuskilyrði er stúdentspróf af listnámsbraut eða sambærilegt nám. → Umsækjendur skila inn möppu og skissubók. → Umsækjendur gætu átt von á því að vera boðaðir í inntökuviðtal.


T E X T Í L

B R A U T → → → →

Nám á textílbraut er 120 einingar. Inntökuskilyrði er stúdentspróf af listnámsbraut eða sambærilegt nám. Umsækjendur skila inn möppu. Umsækjendur gætu átt von á því að vera boðaðir í inntökuviðtal.


Textílbraut er tveggja ára nám þar sem þú kynnist öllum helstu aðferðum og tækni í textílvinnu og öðlast fræðilega fagþekkingu. Áhersla er lögð á tæknilega færni, skilning á sögulegu samhengi og sjálfstæði nemandans í hugmyndavinnu og útfærslu. Námið er að stærstum hluta verklegt en fræðilegt nám er u.þ.b. fjórðungur. Til fræðilegra áfanga teljast fagsaga, hönnunarsaga, listasaga og heimspeki

A TWO YEAR DIPLOMA PROGRAMME IN TEXTILES COMBINING PRACTICAL METHODS AND TECHNIQUES, CONCEPTUAL WORK AND THEORY.


Myndlistaskólinn í Reykjavík býður upp á fjölbreytt úrval námskeiða fyrir byrjendur og lengra komna. Nemendur sækja námskeiðin af ýmsum ástæðum. Sumir gera það sér til hreinnar skemmtunar meðan aðrir nýta það til eininga í öðru námi. Fullorðinsnámskeiðin eru á framhaldsskólastigi og opin öllum sem hafa náð 16 ára aldri. Við mælum með því að byrja á grunnnámskeiði í teikningu því teiknikunnátta er undirstaða allrar frekari menntunar í myndlist. SINGLE VISUAL ARTS COURSES FOR CHILDREN AND ADULTS.


Skólinn býður uppá námsleið sem kallast Þrenna. Þrenna er samsett úr þremur námskeiðum á önn í eitt skólaár. Hún er ætluð fólki sem hefur hug á að fara í framhaldsnám í myndlist, hönnun, arkitektúr eða öðrum tengdum greinum en hefur ekki tök á að sækja undirbúningsnám í dagskóla. Myndlistaskólinn heldur einnig námskeið fyrir börn og unglinga á aldrinum 4 til 16 ára. Barna- og unglinganámskeið eru í boði bæði á haustönn, vorönn og yfir sumartímann


The Reykjavík School of Visual Arts is a non-profit organisation, operated by artists and designers. FULL TIME STUDIES → VISUAL ARTS - TWO-YEAR PROGRAMME TOWARDS MATRICULATION → VISUAL ARTS - ONE-YEAR FOUNDATION PROGRAMME CONSISTING OF SELECTED MODULES FROM THE TWO-YEAR PROGRAMME → CERAMICS - TWO-YEAR DIPLOMA COURSE → ILLUSTRATION - TWO-YEAR DIPLOMA COURSE → FINE ART PAINTING - TWO-YEAR DIPLOMA COURSE → TEXTILES - TWO-YEAR DIPLOMA COURSE The school offers a variety of courses for adults in drawing, life classes with a model, colour theory, oil and acrylic painting, watercolour painting, illustration and comic art, ceramics, textiles, photography and computer courses. These courses are evaluated at a secondary education level and are open for anyone over the age of sixteen. No prior study is required but students are advised to start with a drawing course as the basis for all further studies in art and design. With satisfactory completion of a course, 80% minimum attendance, students are awarded credits and grades. Much emphasis is also put on quality art courses for children and young people (ages four to sixteen). During the winter courses are held weekly but in the summer most courses are taught daily for one or two weeks.


HÖNNUN: GUNMAD PRENTUN: GUÐJÓNÓ

WWW.MIR.IS - MIR@MIR.IS - +354 551 1990


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Námsframboð Myndlistaskólans í Reykjavík by Myndlistaskólinn Í Reykjavík - Issuu