Skip to main content

Dagur myndlistar

Page 1

1


WWW.MIR.IS - MIR@MIR.IS - 551 1990 2


EFNISYFIRLIT → 4-5 DAGUR MYNDLISTAR

→ 6-11 LITAÞRÍHYRNINGUR GOETHE

→ 12-15 GIFSAFSTEYPA

→ 16-19 FJARVÍDD

3


Markmið Myndlistaskólinn í Reykjavík hefur einsett sér að vera í fararbroddi í myndlistarkennslu á grunn- og framhaldsskólastigi, ekki eingöngu með því að bjóða nemendum á þessum skólastigum upp á gott nám í myndlist og tengdum greinum heldur einnig með því að bjóða kennurum upp á endurmenntun, veita þeim aðgang að verkefnum og kennsluefni.

4


→ Dagur Myndlistar Samtök myndlistarkennara í Danmörku hafa um árabil haldið upp á Dag myndlistar á miðvikudegi í 11. viku ársins. Síðastliðið haust sendu samtökin áskorun á norræna kollega sína um að taka þátt í verkefninu. Markmiðið með deginum er að minna á mikilvægi myndlistarinnar sem sérstakrar kennslugreinar í skólastarfi með nemendum á öllum aldri og öllum skólastigum. Að þessu sinni ber daginn upp á 16. mars. Barna- og unglingadeild Myndlistaskólans í Reykjavík ákvað að taka þátt að þessu sinni. Í ljósi markmiða Myndlistaskólans um að vera leiðandi í myndlistarkennslu varð úr að þátttaka skólans fælist í því að senda öllum leik- og grunnskólum á landinu þrjú myndlistarverkefni sem hægt er að vinna með nemendum á breiðum aldri.

5


Aðferð → Útbúið þríhyrning (sjá bls. 8) og prentið út á þykkan pappír → Notið þekjuliti til að mála með → Eingöngu er notast við grunnlitina gulan, rauðan og bláan, aðrir litir verða til með því að blanda þeim saman

6


→ Litaþríhyrningur Goethe Í þessu verkefni lærum um blöndun lita og hvernig við upplifum litina. Við veltum fyrir okkur hvaða litir séu kaldir og hverjir heitir og við skoðum hvaða merkingu litirnir hafa í daglegu lífi okkar, hvernig þeir geta haft áhrif á okkur.

Johann Wolfgang von Goethe var þýskur rithöfundur, ljóðskáld, vísindamaður og heimspekingur sem var uppi á 18 öld. Goethe þróaði meðal annars hugmyndir um litina, náttúruna, plöntur og dýr. Kenningar Goethe hafa verið innblástur bæði fyrir listamenn og vísindamenn í gegnum tíðina.

7


→ Litið þríhyrningsfletina Frumlitirnir þrír í hvert hornið; gulur blár og rauður 1. Gulum og bláum blandað jafnt saman = grænn 2. Bláum og rauðum blandað jafnt saman = fjólublár 3. Rauðum og bláum blandað jafnt saman = appelsínugulur X. Gulum, grænum og appelsínugulum blandað saman Y. Bláum, fjólubláum og grænum blandað saman Z. Rauðum, appelsínugulum og fjólubláum blandað saman

8


→ Klippið út þríhyrninginn sem þið voruð að lita, brettið saman og límið í þrívíðan þríhyrning → Strikalínurnar sýna hvernig þríhyrningurinn er brotinn saman

9


→ umræður Hvaða litir finnst okkur vera; Kaldir, heitir, dökkir, ljósir, sumar, vetur, haust, vor, jarðlitir, himinn, sjór, skærir, dimmir. Hvaða liti myndum við nota til að lýsa; Gleði, þunga, leyndardóm, hræðslu, öryggi, eldi, frosti, einsemd, hvíld, rólegheitum, sköpunargleði, eldgosi.

Bjartur

Rólegur

Alvarlegur

Friðsæll

Máttugur

Depurð

→ aukaverkefni Kennari spilar ýmis hljóð eða tónlist. Gæti verið dýrahljóð, sjávar og vindhljóð, klassísk tónlist, þungarokk osfrv. Börn velja liti út frá því sem þau upplifa og mála liti útfrá tónlistinni. Hægt er að nota þekju eða vatnsliti og stór blöð, jafnvel að vinna á pappírsrenninga af rúllu. 10


Orð og hugtök þessar litasamsetningar; depurð, vansæld, þungi, óframfærni Orð og hugtök þessar litasamsetningar; alvarlegur, þungbúinn, alvörugefinn, ábúðarfullur, einlægur

Orð og hugtök þessar litasamsetningar; bjartur, ljós, skýr, gagnsær, skær, auðskilinn

Orð og hugtök þessar litasamsetningar; æðrulaus, friðsæll, heiðríkur, kyrrlátur, rólegur

Orð og hugtök þessar litasamsetningar; Máttugur, afl, kraftur, voldugur, sterkur, kröftugur

Orð og hugtök þessar litasamsetningar; íhugull, endurspeglun, hugsandi, rólegur, endurkast ljóss/hita 11


Markmið → Kynnast afsteypu → Fá tilfinningu fyrir ólíkum efnum, leir og gifsi

12


→ Leirþrykk og afsteypa Byrjað er með sléttan leirflöt u.þ.b. 12X15 sm á stærð og 3 sm á þykkt. Búin er til áferð á sléttan flötinn með því að þrýsta ofan í hann skeljum, plastdýrum eða öðrum fundnum hlutum og mynda með þeim teikningu í leirflötinn. Síðan er byggður veggur kringum leirflötinn þannig að til verði form.

Gifs er blandað í fötu og hellt í formið. Þegar gifsið er orðið hart má fjarlæga vegginn varlega og fletta leirmyndinni af gifskubbnum. Þá birtist afsteypan sem myndar form, mynstur og teikningu í gifsið.

13


→ Efni og áhölD 1. Rauðleir í plötu og veggi (rauður leir gefur litatón í gifsið en hægt er að nota hvaða leir sem er) 2. Allskonar hlutir sem hægt er að þrýsta ofan í leirinn, s.s. skeljar, smádýr úr plasti og aðrir fundnir smáhlutir 3. Gifs, plastfata, sleifar og kanna til að hella gifsi í formin

14


ÞRYKK, TEIKNING, AFSTEYPA

15


Markmið → Læra að mynda fjarlægð eða dýpt í myndflöt → Vinna með fjarvíddartækni út frá einum punkti.

16


17


Teikning er spunnin áfram út frá ljósritinu með misdökkum blýöntum og áhersla lögð á að línurnar sem mynda dýpt í ljósmyndinni haldi áfram út í teikningunni svo ljósmyndin og teikningin skapi eina heild. Síðan er hægt að lita myndina t.d. með trélitum eða vatnsuppleysanlegum litum. Mikilvægt er að lita líka ljósritið til að myndin verði ein heild. Einnig má krydda myndina með úrklippum, t.d. af dýrum, fólki og gróðri.

→ Ítarefni Skoða einföld myndbönd á YouTube um fjarvídd (perspektíf). 18


FJARVÍDD, DÝPT Í MYNDFLETI, STÆRÐARHLUTFÖLL

→ Efni og áhölD 1. Hvítur pappír 180 -200 gr, jafnvel vatnslitapappír 2. Svarthvít ljósmynd (ljósrit) 3. Límstifti og reglustika 4. Blýantar, t.d. 2H, HB, 2B, 4B, 6B 5. Litir, t.d. trélitir eða vatnsuppleysanlegir litir 6. Allskonar tímarit eða blöð til að klippa myndir út úr 19


20


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Dagur myndlistar by Myndlistaskólinn Í Reykjavík - Issuu