Skip to main content

Augnablik

Page 1

1


Kafli. 1 Von á bakvið óvissu Augnablik, er skrásetning umbreytinga í listaverkum sem gerð eru á tímum veirunnar. Leirkerasmiður, Antonía Berg og málari, Íris María Leifsdóttir vinna saman að bókverki og tvinna saman leir og málningu. Við viljum ná augnablikum verkanna sem við vitum að breytast óðfluga í streymi náttúrunnar. Með ljósmyndun viljum við að fanga brot af uppáhalds augnablikum í gerð listaverka. Með því náum við að rýna betur í nærmynd, taka efnin úr samhengi, velta þeim fyrir okkur og mynda nýjar tengingar. Ferlið er stöðugt og því engin niðurstaða. Við erum ólíkar, en nú opnum við á báða heima og samrýmum hið gagnstæða. Við vörpum fram þekkingu okkar og vinnum saman að listaverki. Við viljum bjóða áhorfendum að skyggnast í hugarheim okkar og fá að njóta augnablikanna sem birtast og hverfa með tímanum. Við rýnum inn í heiminn í garðinum okkar og reynum að komast nær verkunum, en upplifun okkar á nærmyndinni er að hún býr til nýtt landslag. Við fylgjumst með umbreytingum í verkum okkar sem gerast með tímanum. Verkin eru lifandi og eru í stöðugri þróun.

2


3


4


5


Kafli. 2 Einveran kveikir hugarró Hver dagur býður upp á breytingar Gips dregur í sig vatn en með tímanum mun vatnið gufa upp. Hér er fylst með hvernig tíminn hefur áhirf á litabreytingum á einni gipsplötu. Gipsið hefur þann eiginleika að draga í sig, smita frá sér og verða undir áhrifum efnanna með tímanum. Gips er náttúrulegt efni og má finnast á hitaveitusvæðum á Íslandi. Vinnuferli er merkmingarbær þáttur þar sem fylgst er með veðrun efna. Notast er við mismunandi efni í nærumhverfinu og skoðað er hvernig náttúran brýtur niður verkið.

6


7


8


9


10


11


12


13


14


15


Kafli. 3 Ónæmiskerfi jarðar Gróska Hér fylgjumst við með áhrif tímans uppsrettu nýs lífs hvort sem það er mygla eða fræ plantað í leirinn. Með innblæstri frá listamanni Dieter Roth sem vann með mygluð verk, bjóðum við myglunni heim. Eins og Roth hrífumst við af myglunni og umbreytingunum sem hún verður fyrir. Myglan er hryllingurinn í málverki. Hún reynir á skynfæri með vondri lykt og verkin verða loðin. Myglan eykst með tímanum og lyktin magnast. Það myndast nýtt líf innan þessa heims sem er að gróa. Við leyfum því að vaxa. Því er tíminn lykilatriði þar sem myglan yfirgnæfir verkið en á sama tíma er hreint líf að spretta upp úr fræunum sem eru að vaxa í leirnum.

16


17


18


19


20


21


22


23


Kafli. 4 Andlit leirsins Samkvæmt Jung, er skugginn þeir óþroskaðuðu hæfileikar sem hafa ekki verið þróaðir. Skugginn er birtingamynd andhverfu þinnar. Þú þroskast með því að finna jafnvægi til að uppfylla sjálfið. Þú finnur skuggann í leirnum og ljótleika hans. Manneskjan reynir oft að fanga sem það er lita palleta, form, Við notumst við ljósmyndir í ga þessi augnablik sem eiga sér

24

frumefni jarðar í list, hvort efniskennd eða tilfinning. verkinu okkar til að fanstað í litla heiminum okkar.


25

g

rh efti

ring eftir hring eftir

hri n


r ring efti hring eftir

hri ng e

fti r

r efti ing

ng e

hr

ft

h ir

rh efti g rin

hring

eftir hring e ft ir

hr

r fti

i

hr i n ge

26

hr

rh efti ing

ring eftir hring eftir h r i ng e

fti r


27


28


29


30


31


Kafli. 5 Formleysa frumefna Jörð | Eldur | Vatn | Loft Hvernig tengingu eigum við við frumefni jarðar, allt eru augnablik. Ferlið er stöðugt og þessvegna er engin niðurstaða. Útkoman er sú að við getum skráð ákveðin augnablik í ferlinu. Tíminn er formfesta en allt innan hans er formleysa. Stöndum saman á tímum endurskoðunar þegar breytingar vekja upp hræðslu við óvissuna. Samfélagsbreytingar hafa áhrif á listsköpun. Því endurspeglar listin samtímann. Samtímalist er sundurlaus og einkennir tímann. Tímabil veirunnar tekur á, en veitir tækifæri til að taka nýja stefnu og aðlagast. Við leitum að undankomuleið. Þegar allt fer á hvolf er merkingarbært að skoða nánar litlu hlutina í nærumhverfi sem vekja gleði. Í okkar tilfelli liggur gleðin í garðinum heima í Vesturbænum þar sem við höfum komið upp vinnuaðstöðu fyrir listsköpun. Við tökum eftir umbreytingum í garðinum, fylgjumst með snjónum bráðna og páskaliljunum blómstra. Við viljum grípa augnablikin í náttúrunni og rýna í formleysu frumefnanna.

32


33


34


35


36


37


38


ANTONÍA BERG Leirkerasmiður að útskrifast úr Myndlistarskólanum í Reykjavík. Hún hefur áhuga á sjálfbærni, nýsköpun utan af landi, nærumhverfi og möguleikar þess, ljósmyndun, listsköpun, tónlist og samfélaginu. Hefur tekið þátt í viðburðastjórnun bæði hérlendis og í Frakkland og Grænlandi. Hún vinnur mikið með jaðarhópum, sprotafyrirtækjum, einstaklingum og listamönnum. Hún fékk tvo norræna styrki til að finna leir í nærumhverfi Nuuk, halda tvö námskeið í leirkerasmiðju í Illorput menningarsetri í Nuussuaq og halda samsýningu með tónlistarkonunni Zaar (Sara Flindt) á listahátíðinni Nuuk. Nordic Culture Festival. Næsta verkefni í Grænlandi verður haustið 2020 þar sem hún skoðar nýjar leiðir til að skapa með leir úr nærumhverfi til að efla starfsemi, aðgengi og kunnáttu listafólks á þessum slóðum.

ÍRIS MARÍA LEIFSDÓTTIR Listamálari að útskrifast úr Myndlistaskólanum í Reykjavík. Hún leyfir ósamrýmanleg efni móta form á myndfletinum. Úr tilraunum birtist óreiða og náttúra sem verður lífræn. Íris María er næm fyrir sársauka sem hefur ekki fengið á sig mynd. Næmni hennar nýtist með því að varpa ljósi á það sem er falið í málverki. Listheimurinn hefur samfélagsleg áhrif og hún vill rannsaka það sem er falið eða þaggað niður. Íris María lærði félagsfræði við Háskóla Íslands til þess að skilja hegðunarmynstur fólks. Í gegnum námið þróaði hún með sér gagnrýna hugsun. Hún hefur auglýst, leiðbeint og skipulagt reglulega vatnslita viðburði seinustu þrjú ár. Þar sá hún fólk blómstra með því að taka upp pensil og margir hverjir töluðum um að mála veiti hugarró.

39


Efnisyfirlit Kafli 1 - Von á bakvið óvissu

Forsíða | Samansett mynd af verkum

Bls. 3 - 4 | Berunesleir, olía, vax, vatn, vatnslitir á striga Kafli 2 - Einveran kveikir hugarró, hver dagur býður uppá breytingar

Bls. 5 | Veðrað verk, olía, rigning, snjór á striga

Bls. 7 - 12 | Akríll, Berunesleir, vatnslitir á gipsplatta

Bls. 13 - 14 | Kakó, blek, krydd, negull, papríka, túrmerik á gipsplatta Kafli 3 - Ónæmiskerfi jarðar, Gróska

Bls. 15 - 21 | Berunesleir, basilíku fræ, grár steinleir, minta, mosi, papríka, poppy, rósablöð, súrmjólk, túrmerik á gipsplatta

Bls. 22 | Berunesleir, basilíku fræ, grár steinleir, minta, mosi, papríka, poppy, rósablöð, súrmjólk, túrmerik á striga Kafli 4 - Andlit leirsins

Bls. 23 - 26 | Berunesleir á líkama sem og gipsplatta

Bls. 27 | Postúlín blandað með Berunesleir

Bls. 28 | Berunesleir blandaður við mosa og súrmjólk á gipsplatta

Bls. 29 - 30 | Berunesleirinn og Postúlín brennt í 2040c Kafli 5 - Formleysa frumefna

Bls. 31 | Veðrað verk, Berunesleir blandað við mosa og súrmjólk, mosi, vatnslitir á gipsplatta

Bls. 33 | Berunesleir blandaður við mosa og súrmjólk á brenndum striga

Bls. 34 | Vatnslitur, Timbur í garðinum

Bls. 35 - 36 | Berunesleir, grár steinleir, timbur brennt í garðinum í eldstæði

Bls 37 - 38 | Vatnslitir, túlípanar í garðinum

40


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Augnablik by Myndlistaskólinn Í Reykjavík - Issuu