Skip to main content

Tígull 07.tbl 08. árg.

Page 1


MEÐAL EFNIS:

7. tbl. 09. árg. 11. - 19. mars 2026

GAMLA MYNDIN

Við höldum áfram að birta myndir eftir Hörð Sigurgeirsson sem starfaði sem ljósmyndari í Vestmannaeyjum um og eftir miðja síðustu öld.

Ef þú ert með nöfn eða sögu sem tengist myndunum væri gaman að heyra frá þér! Kíktu á Leturstofuna Vestmannabraut 38 eða sendu okkur tölvupóst á netfangið: tigull@tigull.is

Heimilisfólk Helgafellsbraut 18. Tekið 1950.

TÍGULL

DREIFING:

Dreifing fer fram á fimmtudögum og er blaðinu dreift inn á öll heimili í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is

Er mars þinn skoðunarmánuður?

Frumherji í Eyjum dagana 16. - 19. mars

Tímapantanir í síma 570 9090 Faxastígur 38 (Lokað í hádeginu)

Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir & Katrín Laufey Rúnarsdóttir Ljósmynd á forsíðu/Natali Osons.

Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is

Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is

Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.

FERMINGAR VIÐBURÐUR

sunnudaginn 15. mars

kl. 14:00 - 16:00

Næstkomandi sunnudag ætlum við í Heimadecor og Heimaraf að bjóða ykkur sem eruð að fara fermast að koma og kynna fyrir ykkur það fjölbreytta úrval sem við höfum uppá að bjóða.

Fermingin er stór og eftirminnilegur dagur í lífi hvers barns og undirbúningurinn getur verið bæði spennandi og krefjandi. Það er einfalt og þægilegt að hefja fermingarundirbuninginn í Heimadecor og Heimaraf, þar sem þú finnur nánast allt sem þarf fyrir stóra daginn á einum stað.

- Fermingarbörnin geta gert óskalista fyrir stóra daginn.

- Fræðsla á húðumhirðu fyrir ungt fólk og kynning á Erborian vörurunum

- Í Heimaraf verður kynning à raftækjum sem eru tilvalin í fermingarpakkann.

- Þórey Helga kynnir ljósmyndapakka

Skannaðu QR kóðann og sjáðu allar upplýsingar um viðburðinn - endilega meldaðu þig inn!

Hlökkum til að sjà ykkur.

FRAMBJÓÐENDUR Í PRÓFKJÖRI

SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS Í VESTMANNAEYJUM

Trausti Hjaltason - 1. sæti

Ég gef kost á mér til forustu í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins. Ég er fæddur 1982 og bý ásamt Unni Líf Ingadóttur kennara í austurbænum, við eigum tvær dætur sem eru 9 og 12 ára. Ég sótti nám í lögfræði og stjórnmálafræði. Í dag starfa ég sem áhættustjóri Lífeyrissjóðs Vestmannaeyja og hef starfað við það í um eitt og hálft ár eftir að hafa áður starfað hjá sjóðnum í fimm ár. Í um sjö ár starfaði ég sem framkvæmdastjóri Hafnareyrar og sat um leið í framkvæmdaráði VSV. Þar bar ég ábyrgð á rekstri og mannaforráði í fyrirtæki sem þjónustar sjávarútveginn. Auk þessa hef ég verið framkvæmdastjóri

Eyþór Harðarsson - 1. sæti

Það er forréttindi að hafa alist upp í Vestmannaeyjum. Hér hef ég byggt upp fjölskyldu mína, unnið mín störf og átt þátt í því samfélagi sem mér þykir svo vænt um. Ég er giftur, tveggja barna faðir og afi – og fjölskyldan er sú ástæða sem drífur mig áfram í pólitísku starfi eins og öllu öðru. Undanfarin ár hef ég starfað sem oddviti minnihlutans. Það hefur verið krefjandi hlutverk, en jafnframt mjög lærdómsríkt. Þar lærir maður hversu mikilvægt er að vinna málefnalega, hlusta á ólík sjónarmið og standa fastur á sannfæringu sinni. Það skiptir máli að einhver berjist fyrir hagsmunum bæjarbúa á hverjum degi, bæði opinberlega og bak við tjöldin. Prófkjör eru styrkur fyrir flokkinn og samfélagið. Þau hvetja til umræðu, virkja fólk og tryggja að

knattpyrnudeildar ÍBV og starfað í hinum ýmsu stjórnunar- og þjónustustörfum.

Í pólitískinni hef ég setið í tvö kjörtímabil sem bæjarfulltrúi, verið varaþingmaður Suðurlands. Í raun hefur fólkið í Sjálfstæðisflokknum verið hluti af lífi mínu síðan ég kaus fyrst í prófkjöri 15 ára. Í störfum mínum hef ég alltaf þurft að vinna mikið með fólki, bæði í smáum og stórum hópum enda er það eitthvað sem mér þykir skemmtilegt. Ég hef aldrei veigrað mér við nýjum verkefnum og tel mig vera fljótan að sjá heildarmyndina og búa yfir fjölbreyttri reynslu sem á að nýtast vel í pólitísku starfi.

Ég sækist eftir þínum stuðningi í 1. sætið í prófkjörinu sem er nú hægt að kjósa í.

breiðari hópur taki þátt í ákvörðunum um framtíðina. Ég býð mig fram í 1. sæti vegna þess að mér liggur raunverulega á hjarta að Vestmannaeyjar dafni, og af því að ég trúi því að við getum tekið næstu skref saman. Fram undan liggja mikilvægar áskoranir og tækifæri: Þar ber

helst að telja frjármögnun á vatnsleiðslu milli lands og Eyja, koma verkefnum áfram sem snúa að Vestmannaeyjahöfn, stuðla að og styðja við nýsköpun í atvinnulífinu. Mikil tækifæri liggja einnig í kringum uppbygginguna við Íþróttamiðstöðina og mikilvægt að taka þá umræðu í breiðum hópi. Styðja við grunn- og leikskólana í Eyjum og tryggja að þar verði fagmennskan í fyrirrúmi, sem mun á endanum skila sér í öflugri útskriftarnemum.

Mikilvægast af öllu er að að skapa umhverfi þar sem ungt fólk vill setjast að, vinna og ala upp fjölskyldur.

Ég trúi á Vestmannaeyjar, og ég trúi á kraftinn sem býr í fólkinu okkar. Með skýrum áherslum og sameiginlegum vilja getum við tryggt að Eyjarnar verði áfram sterkt og líflegt samfélag – fyrir okkur og fyrir komandi kynslóðir.

Margrét Rós - 2. sæti

Ég býð mig fram í 2.sætið í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum. Flokkurinn hefur með ákvörðun sinni um prófkjör gefið Eyjamönnum gullið tækifæri til þess hafa áhrif á það hverjir munu skipa efstu sæti framboðslista flokksins í vor og það er von mín að sem flestir taki þátt.

Þegar kosið er í prófkjöri, erum við að velja einstaklinga sem við treystum til að taka ákvarðanir fyrir samfélagið okkar. Fólk sem vinnur af heilindum. Fólk sem mætir undirbúið á fundi. Fólk sem hlustar og fólk sem tekur hagsmuni heildarinnar fram yfir sína eigin.

Ég hef síðastliðin fjögur ár starfað sem bæjarfulltrúi með það að leiðarljósi að vera einmitt þannig fulltrúi. Ég hef lagt mig fram um að vanda til verka, hlusta á ólík

Aníta Jóhannsdóttir - 2. sæti

Ég er 34 ára viðskiptafræðingur og viðurkenndur bókari – stolt Eyjakona sem vill hvergi annars staðar vera.

Foreldrar mínir eru Jóhann Brimir Benónýsson, skipstjóri, og Lilja Rut Sæbjörnsdóttir, launafulltrúi.

Foreldrar pabba voru Arndís Björg Sigurðardóttir og Benóný Benónýsson frá Gröf. Foreldrar mömmu eru Sæbjörn Jónsson og Friðrikka Gústafsdóttir frá Bjarma.

Ég er gift Garðari Erni Sigmarssyni, húsasmíðameistara, og saman eigum við þrjú börn: Hilmar Gauta, Elvar Aron og Sunnu Líf. Ég á tvö systkini, tvíburasystur mína hana Andreu og yngri bróður okkar Sæbjörn Sævar.

Ég er eineggja tvíburi og það hefur mótað mig sem persónu. Ég lærði strax að deila og taka tillit.

sjónarmið og taka ákvarðanir sem byggja á rökum og ábyrgð. Ég hef fylgt minni sannfæringu, jafnvel þó stundum hafi þurft að synda gegn straumnum. Og það er þannig sem ég vil halda áfram, hljóti ég til þess stuðning.

Við þurfum að halda áfram að byggja upp sterkt samfélag þar sem fjölskyldur blómstra, atvinnu-

Það hefur fylgt mér alla tíð, bæði í námi, starfi og félagslífi. Ég vinn best með fólki í hóp, með samtali þar sem ólíkar á skoðanir á málefnum eru ræddar og sameiginleg niðurstaða fæst.

Áhuginn á bæjarmálum kviknaði fyrir átta árum þegar ég tók fyrst sæti í fræðsluráði. Síðan hef ég starfað sem formaður ráðsins

líf dafnar og samgöngur og opinber þjónusta er traust, skilvirk og aðgengileg. Samfélag þar sem öryggi og velferð fara saman við framsækni og þor. Þar sem tækifæri eru raunveruleg fyrir alla.

Við þurfum að halda áfram að byggja upp Vestmannaeyjar sem við getum verið stolt af.

Á næsta kjörtímabili verða a.m.k 6.nýir bæjarfulltrúar af 9. Þó endurnýjun sé af hinu góða þá er reynsla ekki síður mikilvæg. Ég hef þá reynslu.

Ég hef einlægan vilja til að leggja mitt af mörkum og taka ábyrgð á því samfélagi sem okkur öllum er svo kært og sjá það þróast vaxa og dafna okkur öllum til heilla.

Ég bið um traust ykkar og stuðning í 2.sætið í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins

og verið varabæjarfulltrúi. Þessi reynsla hefur aukið áhuga minn og vilja til að taka þátt í mótun samfélagsins.

Starfsreynsla mín síðustu tíu ár hefur verið í fjármálum og rekstri sjávarútvegsfyrirtækja. Þar hef ég byggt upp skilning á atvinnulífinu, bæði þeim áskorunum sem það stendur frammi fyrir og þeim fjölmörgu tækifærum sem bjóðast hér í Vestmannaeyjum. Ég veit að ábyrg stjórnun og stöðugleiki eru grunnstoðir þess að bæta hag samfélagsins þannig að Vestmannaeyjar geti áfram verið fyrirmynd annarra sveitarfélaga.

Ég býð mig fram því ég vil hafa áhrif og mér þykir vænt um samfélagið okkar. Ég vil leggja mitt af mörkum og vinna að því að móta næsta kafla í sögu Vestmannaeyja.

Ég óska eftir stuðningi í 2. sætið í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins.

Hildur Sólveig - 2. sæti

Ég flutti til Eyja fyrir rúmum 30 árum síðan, samfélagið tók okkur mömmu opnum örmum, hér eignaðist ég fjölskyldu og festi rætur.

Ég bý að mikilli reynslu í sveitarstjórnarmálum, sit á mínu þriðja kjörtímabili sem bæjarfulltrúi.

Ég hef verið þátttakandi í ýmsum verkefnum á mínum pólitíska ferli, allt frá útboði rekstur leikskóla, ná rekstri Herjólfs til Eyja, einu stærsta framfaraskrefi í samgöngum síðustu ára, barist fyrir stöðu sýslumanns í Vestmannaeyjum og eflingu embættisins. Vakið athygli á stöðu landsbyggðar í heilbrigðismálum omfl.

Ég hef einnig tekið hlutverki mínu í minnihluta að veita aðhald alvarlega.

Nýjasta hugðarefnið er fýsileikatillaga um sjúkrasundlaug sem var ánægjulega einróma samþykkt af

Óskar Jósúason - 3. sæti

Ég er fæddur og uppalinn í Vestmannaeyjum. Eyjarnar eru ekki bara staður á korti fyrir mig heldur samfélag sem hefur mótað mig frá unga aldri. Hér ólst ég upp, hér hef ég byggt mitt líf og hér vil ég leggja mitt af mörkum til framtíðarinnar.

Ég er faðir þriggja barna og daglegt líf mitt snýst að stórum hluta um það sama og líf margra annarra fjölskyldna í Eyjum –skóla, íþróttir, vinnu og samfélagið okkar. Í gegnum íþrótta- og barnastarf hef ég séð hversu mikilvægt það er að skapa umhverfi þar sem börn og ungmenni fá tækifæri til að vaxa, læra og finna sinn stað. Sterkt samfélag byggir á sterkum fjölskyldum.

Í gegnum lífið hef ég lært að hlutir gerast ekki af sjálfu sér. Þeir gerast vegna þess að fólk tekur ábyrgð, vinnur saman og er tilbúið að leggja sitt af mörkum. Sú sýn mót-

bæjarstjórn. Framfaraskref í samfélaginu byggja á samvinnu, framsýni og trú á samfélagið. Hlutverk kjörinna fulltrúa er að mörgu leyti að vera ekki fyrir, flækja ekki kerfið að óþörfu heldur skapa umhverfi og aðstæður fyrir fyrirtæki og atvinnulíf til að blómstra, Við eigum að veita bæjarbúum okkar öfluga þjónustu, gegn sanngjörnu gjaldi, halda álögum í lágmarki og grípa þá sem geta ekki

aðist snemma hjá mér, dugnaður, úrræðagæði og ábyrgð skipta meira máli en hvaða aðstæðum maður kemur úr.

Ég hef starfað í grunnskólaumhverfinu bæði sem kennari og stjórnandi og þar lærði ég hversu mikilvægt það er að hlusta, taka ákvarðanir og vinna með fólki. Í dag starfa ég í atvinnulífinu

sjálfir sér björg veitt og við eigum að hlúa einstaklega vel að þeim bæjarbúum sem ruddu brautina, svo við gætum alist hér upp.

Það er verk að vinna, við erum enn að sigla til Þorlákshafnar, það eru takmarkaðar flugsamgöngur í boði, stór og krefjandi verkefni eru framundan á borð við vatnsleiðsluna, málefni á borði ríkisins sem við þurfum að beita okkur í, en það eru líka verkefni í sveitarfélaginu þar sem þarf að bretta upp ermar.

Sex af níu bæjarfulltrúum halda ekki áfram í næstu bæjarstjórn, þar af allir 5 bæjarfulltrúar í meirihluta. Þó endurnýjun séu afar mikilvæg í bæjarmálunum er ekki síst mikilvægt að halda í reynsluna. Því vil ég bjóða mína krafta, mína þekkingu og reynslu fram fyrir Sjálfstæðisflokkinn og leggja mitt af mörkum fyrir sveitarfélagið.

Ég óska eftir þínum stuðningi í 2. Sætið.

sem upplýsingafulltrúi hjá einu mest spennandi fyrirtæki landsins. Þar hef ég fengið að taka þátt í uppbyggingu, sjá hvernig hugmyndir verða að raunveruleika og hversu miklu skiptir að hugsa til framtíðar.

Ég trúi á samfélag sem byggir á samvinnu, trausti og skýrri sýn. Eyjarnar hafa alla burði til að vera eitt besta samfélag landsins fyrir fjölskyldur til að búa í og til þess þarf fólk sem er tilbúið að taka þátt og leggja sitt af mörkum.

Þess vegna hef ég ákveðið að bjóða fram krafta mína fyrir Sjálfstæðisflokkinn í komandi sveitarstjórnarkosningum og sækist eftir 3. sæti á listanum í prófkjörinu. Ég geri það af einlægum áhuga á samfélaginu okkar og þeirri trú að við getum áfram byggt upp Eyjarnar með skynsemi, ábyrgð og samvinnu.

Jarl Sigurgeirsson - 3. sæti

Hvers vegna er ég að sækjast eftir sæti á lista Sjálfstæðisflokksins fyrir bæjarstjórnarkosningar?

Stutta svarið er, vegna áhuga míns á bæjarmálum og flokksstarfinu. Lengra svarið er að ég er fæddur og uppalinn í Vestmannaeyjum. Eins og svo margir Eyjamenn þá hef ég sterka tengingu við heimahagana. Við finnum það svo sterkt hversu mikil forréttindi það eru að alast upp hér.

Það er samfélagið, umhverfið og fólkið sem mótar mann frá fyrstu árum. Ég er einlæglega þakklátur fyrir að hafa fengið að upplifa æskuárin, stofna hér fjölskyldu og byggja upp líf mitt.

Þegar maður finnur þessi forréttindi og áttar sig á því hversu mikið samfélagið hefur gefið manni, þá vaknar eðlilega sú þörf að vilja leggja sitt af mörkum til baka. Fyrir mig hefur það þýtt

Kjartan Vídó Ólafsson

3. - 4. sæti

Ykkar er valið

Prófkjör er mikilvæg og lýðræðisleg leið þar sem flokksbundnum Sjálfstæðismönnum gefst tækifæri til að velja þá einstaklinga sem þeir treysta best til að vera fulltrúar flokksins í komandi kosningum. Það er ekki sjálfgefið að þessi leið sé farin, en í Vestmannaeyjum hefur Sjálfstæðisflokkurinn verið sá eini sem gefur bæjarbúum raunverulegt tækifæri til að hafa áhrif á val frambjóðenda.

Ég ákvað að taka þátt í prófkjörinu vegna þess að ég brenn fyrir því að leggja mitt af mörkum til að gera Vestmannaeyjar enn betra samfélag til framtíðar. Eyjarnar eru einstakur staður sem byggir á dugnaði, frumkvæði og sterkri samstöðu.

þátttöku í bæjarmálum og í starfi Sjálfstæðisflokksins.

Undanfarin tuttugu ár hef ég tekið þátt í bæjarmálunum í gegnum grasrót flokksins. Ég hef setið sem aðalmaður í Fjölskylduráði, Framkvæmda- og hafnaráði og sit nú í Umhverfis- og skipulagsráði. Þessi reynsla hefur aukið skilning minn á rekstri bæjarins og styrkt áhuga minn á að leggja enn meira af

Undanfarin ár hef ég fylgst náið með málefnum bæjarins úr fjarlægð, en nú er um eitt ár síðan ég flutti aftur heim til Eyja. Það hefur styrkt enn frekar vilja minn til að taka þátt og leggja mitt af mörkum til uppbyggingar samfélagsins. Ég tel mikilvægt að tryggja áfram öfluga atvinnuuppbyggingu í Vestmannaeyjum, skapa góð skil-

mörkum. Ég finn núna að ég hef meira að gefa.

Vestmannaeyjar eru frábær staður til að búa á og hér eru mikil tækifæri til áframhaldandi uppbyggingar. Stöðnun má aldrei vera ásættanleg, hvorki í samgöngum, menningu, atvinnumálum né nokkru öðru.

Ég vil taka þátt í því verkefni að halda áfram að þróa bæinn okkar, styrkja samfélagið og tryggja að Vestmannaeyjar verði áfram góður staður fyrir fjölskyldur og atvinnulíf.

Ég elska Vestmannaeyjar. Þess vegna gef ég kost á mér til setu í bæjarstjórn.

Ég óska eftir 3. sæti

yrði fyrir fjölskyldur með sterkum leik- og grunnskólum og halda áfram að byggja upp innviði sem styðja við vöxt og lífsgæði í bæjarfélaginu.

Ef við viljum fjölga íbúum og laða ungt fólk heim að námi loknu verðum við að tryggja raunveruleg atvinnutækifæri. Fólk velur sér búsetu þar sem bæði eru spennandi störf og gott samfélag. Vestmannaeyjar hafa marga styrkleika, öflugt samfélag, stuttar vegalengdir, gott skólastarf og sterka sjálfsmynd en án starfa nýtast þeir ekki til fulls

Ég býð fram krafta mína, hugmyndir og vilja til að vinna með öðrum að framgangi mála sem skipta Vestmannaeyjar máli. Ég vona að ég fái stuðning ykkar í prófkjörinu og hlakka til að taka þátt í þeirri mikilvægu vinnu sem framundan er fyrir sveitarfélagið okkar.

Aðalfundur Krabbavarnar

verður haldinn þriðjudaginn 24. mars 2026

kl. 19.00 í Arnardrangi.

- Hressing í byrjun fundar

- Venjuleg aðalfundarstörf

Stjórnin

Deiliskipulag við Rauðagerði

Vestmannaeyjabær auglýsir tillögu að Deiliskipulagi

við Rauðagerði á reit sem afmarkast af Hásteinsvegi, Boðaslóð, Bessastíg og Heiðarvegi.

Við Boðaslóð 8-10 þar sem áður stóð leikskólinn Rauðagerði, er gert ráð fyrir fjórum fjölbýlishúsum fyrir samtals 16-18 íbúðir. Gert er ráð fyrir bílakjallara í norðurenda lóðarinnar fyrir allt að 16 bíla auk skástæða við götuna.

Tillagan gerir einnig ráð fyrir viðbyggingu við jarðhæð Hásteinsvegs 43 og bílskúr við Boðaslóð 7.

Auk þess eru settir eru fram almennir skilmálar fyrir deiliskipulagssvæðið.

Skipulagsgögn má finna á Skipulagsgátt Skipulagsstofnunar, mál nr: 1147/2025 (https://skipulagsgatt.is/issues/2025/1147) og á útprentuðu formi í afgreiðslu í Ráðhúsi.

Umsagnir skulu berast í gegnum Skipulagsgátt Skipulagsstofnunar, frestur er til og með 7. apríl 2026.

Rannveig Ísfjörð - 4. sæti

Ég er 38 ára byggingarverkfræðingur með meiru.

Ég flutti til Vestmannaeyja árið 2011. Planið var að vera í þrjá mánuði í foreldrahúsum og klára að skrifa B.Sc. ritgerðina mína í tæknifræði. En hér er ég enn, 15 árum síðar. Á þessum tíma hef ég fest rætur, byggt heimili og tekið virkan þátt í samfélaginu.

Ég er gift Eyjamanninum Pálma Harðarsyni, verkefnastjóra hjá Deloitte, og saman eigum við fimm börn. Með fimm börn á heimilinu hef ég fengið góða þjálfun í samningaviðræðum, forgangsröðun og krísustjórnun, eiginleikar sem ættu að nýtast vel í sveitarstjórnarmálum.

Að vera móðir og taka þátt í samfélaginu mótar mína sýn. Ég vil sýna börnunum mínum að ábyrgð, heilindi og samvinna skipta máli. Að

maður situr ekki hjá þegar maður getur lagt eitthvað af mörkum því í litlu samfélagi verður ábyrgðin að vera okkar allra.

Í störfum mínum hef ég vanist því að greina stöðu, meta áhættu, skipuleggja og framkvæma. Menntun og reynsla í byggingariðnaði hefur kennt mér að góð uppbygging byggist á traustum grunni og nám í forystu og stjórn-

un hefur kennt mér að engin áætlun gengur upp nema fólkið sé haft með.

Undanfarin átta ár hef ég kynnst stjórnsýslunni frá ýmsum hliðum og sú reynsla hefur styrkt mig í þeirri trú að fagmennska, langtímahugsun og raunverulegt samtal skipta máli þegar við tökum ákvarðanir. Ég tel mikilvægt að halda áfram að vera samstíga í stórum ákvörðunum eins og núverandi bæjarstjórn hefur verið.

Ég er tilbúin að leggja mitt af mörkum og býð fram krafta mína til að gera gott samfélag enn betra því í litlu samfélagi, eins og við búum í, þá skiptir máli hvernig hlutirnir eru gerðir og það er þess vegna sem ég vil taka þátt og gera gagn.

Ég óska eftir stuðningi í 4. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum.

Hannes Kristinn Sigurðsson 4. - 5. sæti

Það er bara ein fylking og hún heitir sjálfstæðisflokkurinn

Mikið hefur verið rætt um fylkingar í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum.

Mér finnst sú umræða ekki uppbyggileg. Hún dregur athyglina frá því sem raunverulega skiptir máli, þeim 14 öflugu einstaklingum sem hafa ákveðið að gefa kost á sér.

Sjarminn við prófkjör er einmitt sá að þar mætast nýir og reynsl-

umiklir sjálfstæðismenn, fólk með ólíka sýn og bakgrunn en sameiginleg gildi. Þegar umræðan snýst um örfáa einstaklinga eða meintar

fylkingar, þá týnist fólkið sjálft í skugganum.

Stígum upp úr því.

Sameinumst um málefnin, kraftinn og fólkið.

Látum prófkjörið snúast um jákvæða samkeppni, hugmyndir og framtíð Vestmannaeyja.

Ég vil hafa allt þetta fólk á mínum lista.

Það er bara ein fylking og hún heitir Sjálfstæðisflokkurinn.

Frambjóðandi í 4.-5. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins.

LÍNUDANS MEÐ MARÍUS SIGURBJÖRNS

15:00

kl. 17:00 - 18:00

EYGLÓ

kl. 10:00

& HITTINGUR

17:00 - 18:00 18

kl. 16:00 - 17:00

í Herjólfshöllinni alla daga kl. 08:00 - 12:00

Púttsalurinn pútt í kviku virka daga kl. 13:00 - 14:00

Tígull Kírópraktorstöðin.pdf 1 27.10.2025 23:07:17

Við komum þér til betri heilsu.

Tímabókanir hjá kírópraktor í síma 588-8085.

OPIÐ ALLA DAGA FRÁ KL. 11:30 VERIÐ VELKOMIN Í

Ragnheiður Lind Geirsdóttir

5. - 6. sæti

Framtíðarsýn í málefnum eldri borgara í Vestmannaeyjum

Ég stíg nú mín fyrstu skref á vettvangi stjórnmálanna. Þótt það hafi ekki alltaf verið á stefnuskránni, finn ég að með auknum þroska og lífsreynslu, trúi ég því að ég geti lagt mitt af mörkum fyrir samfélagið okkar. Sem sjúkraliði til margra ára, með brennandi áhuga á velferð aldraðra, tel ég mig hafa mikið fram að færa.

Heildstæð þjónusta undir einu þaki

Framtíðarsýn mín fyrir Vestmannaeyjar eru skýr: Við þurfum að efla þjónustu og félagsstarf aldraðra með því að hugsa hlutina upp á nýtt. Mitt hjartans mál er bygging nýs hjúkrunarheimilis og er það samtal og hagsmunamál sem þarf að bera aftur uppá borð við ríkið.

Ég sé fyrir mér öfluga þjónustumiðstöð þar sem fjölbreytt þjón-

usta er samþætt undir sama þaki: - Dagdvöl og stuðningsþjónusta. - Félagsstarf og félagsleg samvera. - Skammtíma- og langtímarými. -Sérhæfð þjónusta: Sjúkra- og iðjuþjálfun, fótsnyrting og hárgreiðsla. - Aðgengilega mötuneytisþjónustu.

Baráttan gegn félagslegri einangrun

Með því að miðstýra þjónustunni á þennan hátt vinnum við gegn

helstu áskorunum sem fylgja hækkandi aldri, svo sem kvíða, vannæringu og hreyfingarleysi. Algengasti vandinn er þó félagsleg einangrun, en henni má mæta með öflugu starfi líkt og við gerum í dagdvölinni Bjargið, þar sem ég starfa sem deildarstjóri.

Starfsemin á Bjarginu er mikilvægt forvarnarstarf sem rýfur einangrun, stuðlar að virkni og gerir fólki kleift að búa lengur heima við góð lífsgæði. Þörfin fer hins vegar vaxandi og við verðum að mæta framtíðinni með því að tryggja nægilegt rými og fjölbreytta valkosti.

„Ég trúi því að framtíðin sé björt. Með elju og þrautseigju vil ég leggja mitt af mörkum til að gera þessa framtíðarsýn að veruleika fyrir íbúa Vestmannaeyja.“

Þóra Guðný Arnarsdóttir

6. - 8. sæti

Nýjar raddir skipta máli Vestmannaeyjar eru einstakt samfélag. Hér ríkir kraftur, samheldni og dugnaður sem hefur byggt upp öflugt samfélag í gegnum tíðina. Það er samfélag sem ég er stolt af að hafa alist upp í og vil leggja mitt af mörkum til að styrkja enn frekar.

Ástæðan fyrir því að ég gef kost á mér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar er einföld: Ég vil taka þátt í að móta framtíð samfélagsins okkar. Ég tel mikilvægt að nýjar raddir fái að taka þátt í umræðunni og að ólíkar kynslóðir komi að borðinu þegar ákvarðanir um framtíð bæjarins eru teknar.

Sem ung móðir finn ég sterkt fyrir því hversu mikilvægt er að skapa gott samfélag fyrir fjölskyldur og börn. Við viljum öll að Vestmannaeyjar séu áfram staður þar sem gott er að búa, starfa og ala upp börn. Til þess þarf að hlúa að öfl-

ugu atvinnulífi, góðri þjónustu og tækifærum fyrir ungt fólk sem vill byggja líf sitt hér í Eyjum.

Sterkt atvinnulíf er ein af grunnstoðum samfélagsins okkar. Menntun mín í sjávarútvegsfræði hefur gefið mér góða innsýn í mikilvægi þeirra atvinnugreina sem standa undir lífsgæðum í Eyjum og hversu mikilvægt er að horfa til framtíðar þegar kemur að uppbyggingu og þróun atvinnulífs.

Ég trúi því að með samvinnu, metnaði og jákvæðni getum við haldið áfram að þróa Vestmannaeyjar sem frábæran stað til að búa á, fyrir okkur sem búum hér í dag og fyrir komandi kynslóðir.

Ármann Jensson 6. - 8. sæti

Kæru Eyjamenn, kæru sjálfstæðismenn.

Ég stend hér í dag 33 ára gamall, eiginmaður og faðir. Ég á litla dóttur sem minnir mig á á hverjum degi hvers vegna við eigum að berjast fyrir betra samfélagi.

Samfélagi þar sem tækifærin eru til staðar, þar sem fólk getur byggt sér líf og þar sem framtíðin er björt.

Ég elska Vestmannaeyjar. Þetta er ekki bara staður á korti – þetta er heimili. Hér er samheldni, dugnaður og kraftur sem hefur alltaf einkennt okkur Eyjamenn.

Ég býð mig fram fyrir hönd Sjálfstæðisflokkurinn vegna þess að ég trúi á þessi gildi: frelsi, ábyrgð og tækifæri fyrir alla. En við verðum líka að hafa hugrekki til að tala um það sem má betur fara. Við þurfum samfélag þar sem enginn situr eftir.

Málefni fatlaðs fólks eru mér sérstaklega mikilvæg. Fólk með fötlun á ekki að þurfa að berjast við kerfið til að fá þá þjónustu, aðgengi og virðingu sem það á rétt á. Samfélag mælist nefnilega ekki

Guðbjörg Sól Sindradóttir

6. - 8. sæti

Ég er 21 árs, fædd og uppalin í Vestmannaeyjum og býð mig fram í 6.- 8.sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins. Foreldrar mínir eru Fríða Hrönn Halldórsdóttir, kvænt Ágúst Sævari Einarssyni og Sindri Óskarsson, kvæntur Ragnheiði Borgþórsdóttur. Undan þeim á ég samanlagt átta systkini á aldursbilinu 6 - 35 ára. Halldór Sveinsson og Guðbjörg Hrönn Sigursteinsdóttir, Óskar Þórarinsson og Ingibjörg Jóhanna Andersen eru amma mín og afi.

eftir því hvernig því gengur þegar allt er auðvelt – heldur hvernig það styður við þá sem þurfa mest á því að halda.

Við eigum að gera betur. Við getum gert betur.

Við þurfum að tryggja: - betra aðgengi - sterkari stuðning við fjölskyldur - raunveruleg tækifæri til þátttöku í samfélaginu

Því samfélag sem nýtir styrkleika allra verður alltaf sterkara samfélag.

Vorið 2023 lauk ég stúdentsprófi og sat í nemendaráði meirihluta ára minna í Framhaldsskólanum Í Vestmannaeyjum, eitt ár sem formaður og eitt ár sem varaformaður. Á þessum tíma sat ég einnig í stjórn Eyverja og kynntist þar af leiðandi hugmyndum og stefnu Sjálfstæðisflokksins. Ég tel reynslu mína úr hinum ýmsu ráðum og

En það er líka annað sem skiptir máli fyrir framtíð Vestmannaeyja. Við þurfum að tryggja að ungt fólk sjái framtíð hér. Við þurfum öflugt atvinnulíf. Við þurfum húsnæði sem fólk hefur efni á.

Við þurfum sterka skóla, íþróttir og tækifæri fyrir fjölskyldur.

Sem maður sem elskar útivist, náttúruna og fjallahjólreiðar veit ég líka hversu dýrmætar eyjarnar okkar eru. Náttúran okkar er hluti af því hver við erum – og við eigum að vernda hana og njóta hennar á skynsaman hátt.

Kæru vinir.

Vestmannaeyjar hafa alltaf byggst á fólki sem þorir að standa upp, taka ábyrgð og vinna saman.

Ég vil vera hluti af þeirri forystu.

Ég vil vinna fyrir samfélagið okkar. Ég vil hlusta á ykkur.

Og ég vil berjast fyrir því að Vestmannaeyjar verði enn betri staður til að búa á.

mars veljum við framtíðina.

Ef þið viljið nýjan kraft, metnað og rödd sem stendur með Eyjamönnum – þá bið ég um stuðning ykkar. Kjósum fyrir sterkari Vestmannaeyjum.

störfum geta komið að góðum notum. Ég hef innsýn í starfsemi fata- og gjafavöruverslana, þjónað í öllum þremur veitingar flokkunum og hef einnig starfað á bæði fyrsta og öðru skólastigi menntakerfisins. Í dag starfa ég í íbúðarkjarna þar sem ég aðstoða einstaklinga með sérstakar þarfir við daglegar athafnir, ásamt því starfa ég að hluta til við afgreiðslu og þjónustustörf.

Það vantar fulltrúa ungs fólks inn í bæjarmálin, mig langar að leggja mitt af mörkum í að gera góðan bæ enn betri. Því óska ég eftir trausti sjálfstæðismanna fyrir 6.- 8. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum þann 13. mars næstkomandi.

Innritun í grunnskóla skólaárið 2026-2027

Opnað hefur verið fyrir innritun barna í 1. bekk fyrir skólagöngu haustið 2026.

Innritun fer fram rafrænt á island.is og biðjum við foreldra/forráðamenn að ganga frá innritun sem fyrst.

Foreldrar/forráðamenn bera ábyrgð á að innrita barn sitt á réttum tíma. Foreldrar sem geta ekki sótt um innritun rafrænt geta fengið aðstoð þjónustufulltrúa á skrifstofu Fjölskyldu- og fræðslusviðs, Kirkjuvegi 23.

Lokadagur fyrir skráningu er 27. mars 2026

Skannaðu QR kóðann fyrir frekari upplýsingar

Tilnefningar til Hvatningarverðlauna fræðsluráðs

Veistu af áhugaverðum verkefnum í GRV, leikskólum, Tónlistarskóla eða Frístund sem vert er að vekja athygli á?

Nú er tækifæri til að tilnefna kennara, kennarahópa, leiðbeinendur og starfsfólk í leikskólum, Grunnskóla Vestmannaeyja, Tónlistarskóla og Frístund.

Fræðsluráð velur þrjú framúrskarandi verkefni sem verða öðrum til eftirbreytni.

Lokadagur til að skila inn ábendingum er 23. mars 2026

Nánari upplýsingar og aðstoð við umsóknir:

Helga Sigrún Í. Þórsdóttir, deildarstjóri fræðslu- og uppeldismála.

Sími: 488-2000. Netfang: helgasigrun@vestmannaeyjar.is

HEILDARLAUSNIR Í UMBÚÐUM

KASSAR - POKAR - ÖSKJUR - MILLIARKIR

LÍMBÖND - PÖKKUNARVÉLAR - PÖKKUNARFILMUR

STREKKIFILMUR - REKSTRARVÖRUR OG MARGT FLEIRA

Skannaðu QR kóðann fyrir frekari upplýsingar

FLÍSA- & PÍPULAGNIR

Flísalagnir

Almennar pípulagnir

Drenlagnir Gólfhitalagnir

Fyrirtækið sérhæfir sig í öllum almennum pípulögnum, hvort sem um er að ræða nýlagnir, viðhald, viðgerðir, snjóbræðslulagnir, skipta um dren og skólplagnir í eldra húsnæði eða fóðringar á skólplögnum.

Starfsfólk fyrirtækisins leggur mikinn metnað í góða þjónustu, fagleg vinnubrögð og ánægða viðskiptavini.

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Tígull 07.tbl 08. árg. by Leturstofan - Issuu