Skip to main content

Tígull 05. tbl 08. árg.

Page 1


05. tbl. 08. árg. 19. -25. febrúar 2026

LETURSTOFAN X TÍGULL 7 ÁRA

Þann 20. febrúar 2019 kom fyrsti Tígullinn út. Hugmyndin var einföld – að segja frá því sem er um að vera á Eyjunni, fanga augnablikin og halda utan um lífið á Eyjunni eins og það er. Ekki endilega stærstu fréttirnar, heldur fólkið, viðburðina og stemninguna. Planið var að einblína á viðburðina sem að boðið væri upp á Eyjunni hverju sinni. Það breyttist þó á nokkrum mánuðum og við ákváðum að fjalla um allt sem við kemur Vestmannaeyjum. Um málefni Vestmannaeyja og Vestmannaeyinga og leggja áherslu á jákvæðni. Tígull einblínir á umfjöllun um menningu, mannlíf, atvinnulíf og sögu bæjarins. Tígull er bæjarblað allra Vestmannaeyinga, ungra sem aldinna.

Síðan eru liðin sjö ár Á þessum tíma hefur Tígull fengið að fylgja Eyjunni í gegnum hversdagsleika og hátíðir, stór tilefni og litlar stundir. Við höfum verið á hlaupum með myndavélina á milli viðburða, hitt fólk á förnum vegi og reynt að sýna samfélagið okkar eins og það er –lifandi, fjölbreytt og jákvætt.

Það sem hefur kannski komið mest á óvart á þessum árum er hversu sterkt samband myndast á milli blaðs og samfélags.

Markmiðið hefur alltaf verið að vera hluti af bæjarlífinu. Að segja jákvæðar fréttir, gera því góð skil vel er gert og gefa rými fyrir það sem skiptir máli í nærumhverfinu.

Á sjö árum hafa safnast upp ótal ljósmyndir. Þær segja sögu sem orð ná ekki alltaf utan um. Þær minna okkur á að samfélag er fyrst og fremst fólk – og að það er margt gott að gerast, á hverjum degi. Við erum þakklátar fyrir traustið sem okkur hefur

TÍGULL

DREIFING:

Dreifing fer fram á fimmtudögum og er blaðinu dreift inn á öll heimili í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is

verið sýnt. Fyrir að fá að vera með á viðburðum, fyrir að fá að taka myndir.

Hvað gerum við á Leturstofunni?

Þegar við hófum samstarf fyrir sjö árum vorum við báðar með ýmis verkefni í okkar höndum – verkefni sem við höfum haldið áfram með og ef eitthvað er aukið verulega síðan þá.

Á Leturstofunni tökum við að okkur fjölbreytt störf sem tengjast útgáfu og kynningarefni. Við sinnum meðal annars ritstjórn, hönnun og umbroti,

Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir & Katrín Laufey Rúnarsdóttir

Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is

Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is

Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.

markaðssetningu og auglýsingasölu, auk þess sem við sjáum um innheimtu þeirra auglýsinga sem seljast. Við tökum passamyndir og setjum upp sálmaskrár. Við leitum einnig ávallt eftir hagstæðum tilboðum í prentun á verkum og sjáum til þess að útgáfur fari vel úr hendi.

Árið 2024 kom Eyjadreifing til sögunnar þegar Pósturinn hætti að dreifa í öll hús. Þar erum við með 12 frábæra krakka sem bera út fyrir okkur ýmsan fjölpóst – og Tígul auðvitað. Við sjáum að mestu sjálfar um bókhald, rekstur fyrirtækisins og allt sem því fylgir – þar á meðal þrif, viðhald og önnur verkefni sem þarf að sinna til að halda rekstrinum gangandi.

Stafræn prentun í Hafnarfirði og hafa þeir feðgar sem eru vel tengdir Vestmannaeyjum, Guðlaugur (Laugi) og Hlynur verið okkur innan handar með hvað sem er og einnig komið með góð ráð þegar þörf er á.

Addi London kom inn í teymið okkar og hefur verið að mynda ýmsa viðburði og lífið á eyjunni, sem hefur létt mikið undir hjá okkur.

Sæþór Vídó starfaði með okkur frá byrjun árs 2022 til september 2025.

Sjö ár.

365 útgáfur.

Óteljandi símtöl, kaffibollar, umbrot á kvöldin, auglýsingar sem þurfti að redda á síðustu stundu og prentsendingar sem þurfti að klára „í gær“.

Við höfum gengið í gegnum súrt og sætt – eins og öll góð sambönd gera. Það hefur ekki alltaf verið auðvelt, en við höfum alltaf staðið saman og komið sterkari út fyrir vikið.

Við elskum að vinna fyrir okkur sjálfar.

Við elskum að skapa.

Við elskum að taka áhættu.

Og við elskum að henda okkur út í djúpu laugina, aftur og aftur.

Það sem byrjaði á setningunni:

„Hey, það var að losna húsnæði niðrí bæ... væri ekki gaman að vinna saman?“ er í dag orðið að flottu fyrirtæki sem okkur þykir mjög vænt um.

TÍMALÍNA

– SJÖ ÁR

2019

42 blöð gefin út.

Leturstofan og Tígull hefja göngu sína.

2020

43 tölublöð.

Verkefnum fjölgar og útgáfan festir sig í sessi.

2021

42 blöð.

Samstarf og þjónusta við fleiri aðila eykst.

2022

45 blöð.

Sæþór Vídó gengur til liðs við Leturstofuna.

2023

42 blöð.

Fjölbreytt mótsblöð og sérútgáfur styrkja starfsemina.

2024

44 blöð. Eyjadreifing stofnuð þegar Pósturinn hættir dreifingu í öll hús. 12 frábærir krakkar sjá um útburð.

2025

33 blöð. Sæþór lýkur störfum í september eftir gott og farsælt samstarf.

2026

5 blöð komin út.

Samtals 296 tölublöð af Tígli og um 365 útgáfur alls með öðrum verkum. Að meðaltali 52 útgáfur á ári. Ein útgáfa á viku í sjö ár.

Við þökkum öllu okkar góða fólki sem hefur í gegnum tíðina lagt okkur lið, innilega fyrir. Takk fyrir að lesa, taka þátt og vera hluti af Tígli & Leturstofunni.

PERLAÐ AF KRAFTI Í HÖLLINNI

myndasyrpa frá Adda í London

NÝFÆDDIR VESTMANNAEYINGAR

Tígull óskar fjölskyldunum innilega til hamingju!

DRENGUR ANDRASON

Fæðingardagur: 03. febrúar 2026.

Foreldrar:

Birta Líf Jóhannsdóttir og Andri Kristinsson

Þyngd: 4294 g Lengd: 52 cm

ARNÓR KRUMMI ARNARSSON

Fæðingardagur: 10. júní 2025

Foreldrar: Andrea Rún Magnúsdóttir og Arnar Geir Gíslason

Þyngd: 4425 g Lengd: 53,5 cm

Systkini: Andri Hrafn Arnarsson

Móður afi og amma: Guðrún Sigríður Kristjánsdóttir og Magnús Jón Björgvinsson

Föður afi og amma: Elísabet Hrefna Sigurjónsdóttir og Gísli Gunnar Geirsson

Systkini: Einar Karel 5 ára og Beitir Blær Andrason 3 ára

Móður amma og afi: Elva Björk Einarsdóttir

Hörður Þór Harðarsson Jóhann Ágúst Tórshamar

Föður amma og afi: Birgitta Karen Guðjónsdóttir og Kristinn Guðmundsson

DRENGUR ILIYANSSON

Fæðingardagur: 04. febrúar 2026.

Foreldrar: Kristín Ingólfsdóttir og Iliyan Damyanov

Þyngd: 3442 g Lengd: 48 cm

Systkini: Leon Arnar Iliyansson

2,5 ára.

Móður afi og amma: Ingólfur Arnar Arnarsson og Betsý Kristmannsdóttir

Föður afi og amma: Nikilay Damyanov og Evelina Damyanov

SÁLMASKRÁR

Tökum að okkur gerð sálmaskráa. Panta þarf tíma í síma 694 7999

eða senda tölvupóst á leturstofan@leturstofan.is

PASSA MYNDIR

TÖKUM PASSAMYNDIR FYRIR ÖKUSKÍRTEINI OG

ÖNNUR SKÍRTEINI

PANTA ÞARF TÍMA

SÍMA: 694 7999 (LIND)

Viltu minnast látins ættingja eða vinar?

Hægt er að senda okkur minningargrein á netfangið tigull@tigull.is og við birtum fyrir þig greinina á útfarardegi, þér að kostnaðarlausu.

Einnig er hægt að panta hjá okkur andlátstilkynningu og tilkynningu á vef.

Verð: 18.600 kr.

Sælkeri vikunnar ERLENDUR ÁGÚST STEFÁNSSON

GRILLUÐ BEIKONVAFIN SKÖTUSELSSPJÓT

Ég þakka Jóhanni Inga fyrir kærlega fyrir þann heiður að tilnefna mig sem sælkera þessara viku. Ég hef mjög gaman að því að leika mér í eldhúsinu og að bjóða fólki í mat. Grilluð beikonvafin skötuselsspjót eru í miklu uppáhaldi hjá mér. Þess má til gamans geta að þennann rétt eldaði ég fyrir tengdar fjölskylduna í fyrstu heimsókn minni til eyja fyrir 5 árum. Það er lyginni líkast að ekki hafi þurft nema 15 mínútur á grillinu til þess að heilla tengdamóður sína upp úr skónum.

Uppskrift fyrir 4-5 fullorðna

Hráefni:

1kg skötuselur

1 bréf beikon

1 pakki af sveppum

1 rauðlaukur

1 rauð paprika

200 gr. Jasmín hrísgrjón

Hvítlauks sósa

Hvítlauks salt, salt og pipar Ólífuolíu

4-5 hvítlauksgeirar

Aðferð:

Skerið skötuselinn niður í temmilega bita og setið í skál, hellið dass af ólífuolíu yfir skötuselinn og hrærið bitunum saman. Kryddið vel með salti, pipar og hvítlaukssalti. Blandið vel saman og skellið selnum svo í kæli í 4-5 tíma. Ég byrja á því að skera rauðlauk og papriku í frekar stóra bita. Þá næst tek ég beikon bréfið í sundur þannig að auðvelt sé að grípa í beikonið. Ég byrja svo að hlaða á grillspjótin, papriku, sveppum, rauðlauk og beikonvöfðum skötuselsbitum. Ég vef beikoninu þvert yfir bitana jafnóðum og ég hleð þeim á spjótin.

Hvað hrísgrjónin varðar þá mæli ég með að vera með Jasmín grjón og elda þau í hrísgrjónapotti. Skola grjónin vel áður og setja þau í pottinn a.m.k. 30 mín áður en byrjað er að grilla. Þá fá grjónin að vera í smá tíma í pottinum eftir að þau klára að eldast og verða meira sticky.

Gott er að hita grillið vel áður en spjótin eru sett á. Á með grillið er að hitna græja ég svo hvítlauksolíu sem ég pensla yfir spjótin á grillinu. Ég set ólífuolíu í skál og kreisti út í það 4-5 hvítlauksgeirum.

Erlendur er sælkeri vikunnar.

Næst set ég spjótin á heitt grillið og pensla þau með hvítlauksolíunni. Gott er að snúa spjótunum eftir 5-7 mínútur, pensla, og snúa svo aftur eftir svipaðan tíma og pensla. Ég miða við rúmar 15 mínútur á grillinu. Það fer þó aðeins eftir þykkt skötusels bitanna líka.

Mér finnst svo best að nota hvítlaukssósuna frá E.Finnsson, en það er hægt að nota hvaða hvítlaukssósu sem er með þessu.

Að lokum langar mig að hvetja fólk til þess að prufa þessa uppskrift, hún hefur ekki klikkað enn þá og mun sennilega aldrei gera það hjá mér. Ég mæli með að kíkja inn á Tiktokið mitt, Erlendur Ágúst, þar efst er hægt að sjá myndband af því hvernig ég geri þessa uppskrift alveg frá grunni.

Mig langar að skora næst á Arndísi Maríu Kjartansdóttur. Hún hlýtur að hafa verið Michelin kokkur í fyrralífi því hún eldar/bakar stulaðan mat. Hún leggur gjörsamlega allt í sölurnar þegar kemur að bjóða í mat/veislu. Þú finnur ástríðuna hennar fyrir matargerðinni í hverjum einasta munnbita.

GAMLA MYNDIN

Við höldum áfram að birta myndir eftir Hörð Sigurgeirsson sem starfaði sem ljósmyndari í Vestmannaeyjum um og eftir miðja síðustu öld.

Ef þú ert með nöfn eða sögu sem tengist myndunum væri gaman að heyra frá þér! Kíktu á Leturstofuna Vestmannabraut 38 eða sendu okkur tölvupóst á tigull@tigull.is

Jónas Sigurðsson og fjölskylda í Skuld. Ljósmynd tekin 1950.

Systurnar á

Bólstaðarhlíð 1951.

í kviku virka daga milli klukkan 13:00 - 14:00

Kírópraktorstöðin.pdf

Við komum þér til betri heilsu. Tímabókanir hjá kírópraktor í síma 588-8085.

Við verðum á The Brothers Brewery á

laugardaginn 21. febrúar

frá klukkan 10:00

Er febrúar þinn skoðunarmánuður?

Frumherji í Eyjum

vikuna 23. - 26. febrúar

Lokað í hádeginu

Tímapantanir í síma

570 9090

Faxastígur 38

VANTAR MYND AF ÞÍNU BARNI? Sendu okkur endilega mynd og upplýsingar á tigull@tigull.is

Sjáðu alla nýjustu Vestmannaeyingana

ÞÚ FÆRÐ DÝRAFÓÐRIÐ HJÁ OKKUR

Fyrir hunda, ketti, hvolpa og kettlinga

50 afsláttur % afsláttur af Sonax bílavörum!

Hvítur á leik og vinnur!

Skákæfingar ungmenna í Vestmannaeyjum: laugardögum kl. 10:30 fyrir byrjendur & kl. 11:00 fyrir framhaldshópa

Fyrirtækið sérhæfir sig í öllum almennum pípulögnum, hvort sem um er að ræða nýlagnir, viðhald, viðgerðir, snjóbræðslulagnir, skipta um dren og skólplagnir í eldra húsnæði eða fóðringar á skólplögnum.

Starfsfólk fyrirtækisins leggur mikinn metnað í góða þjónustu, fagleg vinnubrögð og ánægða viðskiptavini.

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook