

LISTIN AÐ ELDAST VEL – NÁMSKEIÐ Í VISKU

Dagana 10., 12., 17. og 19. febrúar, kl. 13–14, verður haldið námskeiðið Listin að eldast vel í Visku. Námskeiðið er ætlað öllum sem hafa náð 65 ára aldri og vilja efla heilsu sína og líðan á jákvæðan og uppbyggilegan hátt.
Á námskeiðinu verður fjallað um algengar heilsufarsáskoranir á efri árum, svo sem háþrýsting, beinþynningu og þvagfærasýkingar, auk þess sem rætt verður um mögulegar leiðir til að bæta heilsu og vellíðan. Þá verður einnig farið yfir svefnvanda, lyfjanotkun og bætiefni, auk kynningar á þeirri þjónustu sem stendur eldri íbúum Vestmannaeyja til boða.
Boðið verður upp á lífsmarkamælingar ásamt fræðslu tengda þeim. Lögð er áhersla á að námskeiðið sé bæði fræðandi og skemmtilegt, í notalegu umhverfi, og verða léttar veitingar í boði Visku.
Umsjón með námskeiðinu hafa Arna Hrund Baldursdóttir Bjartmarz og Ragnheiður Perla Hjaltadóttir, hjúkrunarfræðingar hjá HSU í Vestmannaeyjum, sem jafnframt halda úti Instagramsíðunni @hjukkuraeyju þar sem fjallað er um heilsu og hjúkrun á aðgengilegan og jákvæðan hátt.
Við hlökkum til að sjá sem flesta!
TÍGULL
DREIFING:
Dreifing fer fram á fimmtudögum og er blaðinu dreift inn á öll heimili í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is




afsláttur af
FESTINGUM
GARÐVERKFÆRUM
HANDVERKFÆRUM
HREINLÆTISTÆKJUM
KÍTTI & FRAUÐI
MÁLNINGARÁHÖLDUM
ÚTGÁFA:
Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is
Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is

SPREYI
OPNUNARTÍMI

afsláttur af
LISTMÁLARAVÖRUR
Virkir dagar frá 8:00-17:00 laugardagar 10:00-14:00
Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir & Katrín Laufey Rúnarsdóttir Forsíðumynd: Natali Osons
SKIL Á AUGLÝSINGUM:
Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.

15:00
17:00 - 18:00
Hressingarganga
í Herjólfshöllinni alla daga kl. 08:00 - 12:00
Púttsalurinn pútt í kviku virka daga milli klukkan 13:00 - 14:00

Við komum þér til betri heilsu.










Sælkeri vikunnar ÞÓRIR HELGI
SKÖTUSELUR Í UXAHALA MEÐ PIPAROSTASÓSU
Ég þakka Hjölla frænda fyrir áskorunina og ég bíð enn spenntur að hann bjóði mér í þennan pastarétt sem hann getur ekki hætt að tala um. Flestir sem mig þekkja myndu halda að ég kæmi með eitthvað grillmeti í þessum dagskrárlið en ég ætla að bjóða ykkur upp á vinsælasta fiskréttinn í minni fjölskyldu sem hægt er að reiða fram þegar þú býður í mat sem og á grámygluðum mánudegi í febrúar.
Hráefni:
Skötuselshali 1kg
Uxahalasúpuduft
Piparostur 1stk
Matreiðslurjómi 500ml
Hrísgrjón
Salatblanda
Hunangsmelóna
Furuhnetur
Parmesan ostur
Sítróna eða balsamik gljái
Aðferð:
Ef þú færð skötuselinn ekki hreinsaðan þá viltu byrja á því að fjarlægja alla himnu utan af honum. Skerðu halann svo niður í bita og passaðu að hafa þá ekki of þykka, 2-3cm. Svo næst viltu taka uxahalasúpu duftið og þynna það út með hveiti, segjum tveir af hveiti á móti einum af súpudufti eða svo, þá veltirðu svo blautum fiskbitunum upp úr þessari fágætu kryddblöndu og steikir þá á pönnu, gott er að salta og pipra örlítið en passa sig að steikja ekki of lengi því skötuselurinn er svo viðkvæmur fyrir því.
Sósan er svo sáraeinföld en þar tekurðu heilan piparost og rífur niður í pott, bætir hálfum líter af matreiðslurjóma út í, sýður niður og hrærir þangað til osturinn er allur bráðinn og sósan orðin passlega þykk. Hrísgrjónin ættu svo að vera sjóða í öðrum potti. Út í salatblönduna viltu skera hunangsmelónuna í hæfilega bita, bæta furuhnetunum við, rífa parmesan ostinn fínt út á og kreista svo annaðhvort sítrónu yfir eða balsamik gljáa.
Þegar rétturinn er borinn svona fram mun hann vinna hug og hjörtu allra þeirra sem þú bauðst í mat. En það má líka alveg nota aðrar fisktegundir þó svo skötuselurinn sé bestur í þennan rétt, að þá mæli ég líka með þorskhnakka ef hann er nógu þéttur í sér.

Þórir er sælkeri vikunnar.
En ef fólk vill "comfort food" útgáfuna af þessu þá tekurðu þessa salat uppskrift og hendir henni í ruslið og færð þér strangheiðarlegt stjörnuhrásalat í staðinn og skiptir svo hrísgrjónum út fyrir ofnsteiktar franskar, þessi útfærsla gerir alla mánudaga tífalt betri.
Nú ætla ég að svara gagnrýnisröddunum strax, svo að innhólfið mitt fyllist ekki af brjáluðu fólki sem hefur ekki séð uxahalasúpuduftin í búðinni í áraraðir, en ég hafði samband við heildverslun Kalla Kriss og þau sögðust eiga nóg af þessu fágæta dufti þar á bæ. Einnig hef ég rekist á þetta í nokkrum Nettó verslunum í Reykjavík sem og pólsku búðinni við Smiðjuveg (minimarket), þar þarf maður ekki að kunna meira í tungumálinu en "sycaca ogonowa" og þau leiða þig fyrirheitna duftinu. Bonus tip: þarna er einnig að finna Prince Polo í fimm mismunandi bragðtegundum.. svona fyrir þau sem vilja upplifa það menningarsjokk
Nóg um það en ég ætla að skora á mág mig hann Jóhann Inga Óskarsson, sem nú hefur opinberað að ætli að gefa kost á sér í næstu sveitarstjórnarkosningum og held ég að fólk vilji fyrst og fremst dæma hann út frá því hvaða rétt hann býður upp á sem sælkeri vikunnar.
SÁLMASKRÁR
Tökum að okkur gerð sálmaskráa.
Panta þarf tíma í síma 694 7999
eða senda tölvupóst á leturstofan@leturstofan.is

PASSA MYNDIR


TÖKUM PASSAMYNDIR FYRIR ÖKUSKÍRTEINI OG
ÖNNUR SKÍRTEINI
PANTA ÞARF TÍMA
SÍMA: 694 7999 (LIND)

Viltu minnast látins ættingja eða vinar?
Hægt er að senda okkur minningargrein á netfangið tigull@tigull.is og við birtum fyrir þig greinina á útfarardegi, þér að kostnaðarlausu.
Einnig er hægt að panta hjá okkur andlátstilkynningu og tilkynningu á vef.
Verð: 18.600 kr.
Tígull óskar fjölskyldunum innilega til hamingju!

MÓEY MARÍN HJÖRLEIFSDÓTTIR
Fæðingardagur: 16. júlí 2025
Foreldrar:
Hjörleifur Davíðsson og Elínborg Friðriksdóttir
Þyngd: 18 merkur
Lengd: 51 cm
Móður afi og amma: Friðrik Rúnar Friðriksson Jónína Gunnarsdóttir
Föður afi og amma: Davíð í Tölvun Aðalheiður Jensdóttir
STÚLKA SINDRADÓTTIR
Fæðingardagur: 12. janúar 2026.
Foreldrar:
Sirrí Sæland og Sindri Þór Sigurðsson
Þyngd: 2865 g
Lengd: 50 cm
Systkini: Amelía Ýr, 8 ára
Móður afi og amma: Hulda Sæland og Óðinn Kristjánsson
Föður afi og amma:
Margrét Esther Erludóttir og Sigurður Helgason



NÝFÆDDIR VESTMANNAEYINGAR

STÚLKA HILMARSDÓTTIR
Fæðingardagur: 13. janúar 2026
Foreldrar:
Guðrún Benónýsdóttir og Hilmar Björnsson
Þyngd: 3215 g
Lengd: 49 cm
DRENGUR ANTONSSON
Fæðingardagur: 19. janúar 2026
Foreldrar:
Guðný Ósk Jónsdóttir og
Anton Darri Linden Pálmarsson
Þyngd: 4290 g
Lengd: 50 cm
Móður afi og amma: Jón Óli Daníelsson og Sigríður Bjarnadóttir
Föður afi og amma: Pálmar Linden Edvardsson og Alma Sif Stígsdóttir

Systkini: Aron Ingi, 10 ára og Elvar Ágúst, 5 ára.
Móður afi og amma: Benóný Gíslason og Jóna Helgadóttir
Föður afi og amma: Björn Elíasson og Emilía María Hilmarsdóttir



GAMLA MYNDIN
Við höldum áfram að birta myndir eftir
Hörð Sigurgeirsson sem starfaði sem ljósmyndari í Vestmannaeyjum um og eftir miðja síðustu öld.
Hann skildi eftir sig merkilegt safn bæði mannamynda og mynda úr daglega lífinu. Sonur hans Friðrik hefur haldið utan um safnið og oft hefur hann farið m.a. á Hraunbúðir og verið með myndasýningu fyrir íbúana. Sjálfur byrjaði Friðrik ungur að taka myndir og grunnurinn er það sem hann lærði af föður sínum.
Gaman verður að heyra hvort að fólk kannist við þá sem eru á myndunum eða staðsetninguna.


Við birtum nöfnin í næsta tölublaði Tíguls.

ÞRAUTIR VIKUNNAR



KAUPFÉLAG
ÞORPSMIÐJA HAFNARKANTUR
SAMKOMUHÚS LEIKVÖLLUR KIRKJUTURN
BAKARÍ GÖNGUSTÍGUR RÁÐHÚS LAUG FRYSTIHÚS HVERFISBÚÐ
Ágúst Ómar

Svartur á leik og vinnur!


Skákæfingar ungmenna í Vestmannaeyjum:
laugardögum kl. 10:30 fyrir byrjendur & kl. 11:00 fyrir framhaldshópa






