Sjómannadagsblað Vestmannaeyja var dreift frítt á öll heimili í Vestmannaeyjum í dag, líkt og undanfarin ár. Blaðið er undir nýrri ritstjórn Leturstofunnar, sem sér nú í fyrsta skipti um blaðið frá A til Ö. Hingað til hefur hún aðeins séð um umbrot og auglýsingasölu. Ritstjórn var að mestu í höndum Lindar Hrafnsdóttur sem einnig braut um blaðið.
Farið er um víðan völl í efnistökum líkt og vaninn er. Púlsinn er tekinn á nokkrum sjómönnum og sjómannskonum. Dætur sjómanna eru spurðar útí hvernig var að alast upp með pabba á sjó. Hörður Sævaldsson veltir fyrir sér hvernig vekja má áhuga unga fólksins á sjómennsku. Stefán Jónsson í Skipalyftunni er í léttu spjalli en hann hefur þjónustað skipaflota Vestmannaeyja í tugi ára. Þá er spjall við hjónin Einar Bjarnason og Ester Ólafsdóttur sem hafa helgað sig sjávarútveginum. Spjall við Gísla Val Gíslason sem réði sig á skemmtiferða skip, Eykyndill fagnar 90 ára afmæli og margt fleira.
Forsíðuna prýðir mynd úr safni Harðar Sigurgeirssonar.