Skip to main content

Puffin Run 2026

Page 1


2. MAÍ 2026

Katrín Laufey Rúnarsdóttir

AÐ VERA HLUTI AF PUFFIN RUN

Kæru þátttakendur, Verið velkomin til Vestmannaeyja í The Puffin Run.

Ég hef síðustu níu ár tekið þátt í skipulagningu hlaupsins og hlakka alltaf til þessara helgar. Það hefur verið ótrúlegt að fylgjast með þróun hlaupsins frá því fyrsta, þegar þátttakendur voru 80, upp í að verða einn af stærri hlaupaviðburðum landsins. Þessi vöxtur segir meira en mörg orð um þann áhuga og gleði sem umlykur þetta hlaup.

Það sem stendur alltaf upp úr er stemningin. Brosin, samheldnin og gleðin hjá hlaupurum og sjálfboðaliðum gera þennan við-

burð svo skemmtilegan að lítið mál er að fá fólk til að taka þátt eða að starfa við hlaupið.

Við erum óendanlega þakklát öllum þeim sem leggja hönd á plóg og gera hlaupið mögulegt. Um 300 sjálfboðaliðar koma að framkvæmdinni og án þeirra væri þetta einfaldlega ekki hægt.

Við vonum að þið njótið hlaupsins, náttúrunnar og samverunnar.

Gangi ykkur vel. Hlökkum til að sjá ykkur!

Útgefandi: Leturstofan

Ábyrgðarmaður: Katrín Laufey Rúnarsdóttir

Umbrot og hönnun: Leturstofan

HEIMSKLASSA VÖÐVANÆRING

25 amínósýrur í frjálsu formi

Kollagen peptíð

Vítamín B12

Sink og selen

the puffin run

SKILMÁLAR FYRIR

ÞÁTTTAKENDUR

• Ég er í nægilega góðu ástandi bæði líkamlega og andlega til að taka þátt í og ljúka The Puffin Run.

• Ég staðfesti að ég hef áttað mig á erfiðleikastigi hlaupsins sem liggur hringin í kringum Vestmannaeyjar þar sem er misjafnt undirlag og á köflum bratt niður í sjó.

• Ég skil að hlutverk framkvæmdaaðila og starfsmanna hlaupsins felst ekki í að „bjarga“ þátttakendum sem ekki eru nægjanlega vel undirbúnir m.t.t. hlaupaþjálfunar, næringu eða hvort þá vanti viðeigandi útbúnað. Öryggi hvers hlaupara er á hans eigin ábyrgð og hann þarf að hafa færni til að takast á við óvæntar aðstæður.

• Ég hef lesið og skilið reglur The Puffin Run og samþykki þær.

• Ég samþykki að fara eftir þeim leiðbeiningum sem starfsmenn hlaupsins leggja til og þigg þá aðstoð sem þeir álíta að þurfi vegna öryggis míns og annarra.

• Sem þátttakandi í The Puffin Run afsala ég mér öllum rétti til skaðabóta frá skipuleggjendum The Puffin Run, starfsmönnum og öðrum samstarfsaðilum hlaupsins, vegna meiðsla, veikinda, slyss, eða annarra ófyrirsjáanlegra atvika sem ég gæti orðið fyrir í The Puffin Run.

Viðurlög

Þátttakendur sem ekki fara eftir reglum hlaupsins eiga á hættu að verða skráðir úr hlaupinu.

Þeir sem ekki fara eftir settum fyrirmælum verða ábyrgir fyrir þeim kostnaði sem til fellur við leit og/eða umönnun björgunarsveita og annarra starfsmanna.

Réttur skipuleggjenda The Puffin Run

Skipuleggjendur eru ekki ábyrgir fyrir utanaðkomandi áhrifum á hlaupara. Það á við um veður, náttúruhamfarir, umferð fólks og farartækja eða annað óvænt sem getur haft áhrif á þátttakendur.

Skipuleggjendur geta afskráð og stöðvað þátttakanda sem ekki er í fatnaði eða hefur yfir að ráða nauðsynlegum búnaði sem hæfir aðstæðum.

Skipuleggjendur geta afskráð og vísað úr hlaupinu hverjum þeim sem skapar hættu fyrir sjálfan sig og/eða aðra eða fer ekki eftir reglum hlaupsins.

Skipuleggjendur eru ekki ábyrgir fyrir veikindum eða slysum þátttakenda, til og frá mótsstað og meðan á hlaupi stendur. Þátttakendur eru hvattir til að leita aðstoðar starfsmanna hlaupsins ef slys eða veikindi koma upp.

Þátttakendur eru alltaf á eigin ábyrgð þrátt fyrir að þeir þiggi aðstoð starfsmanna hlaupsins.

Skipuleggjendur áskilja sér rétt til að aflýsa hlaupinu með stuttum fyrirvara vegna veðurs eða annarra ófyrirsjáanlegra ástæðna sem geta skapað hættu fyrir þátttakendur.

NÝTUR AUGNABLIKSINS FREKAR EN TÍMANS

Guðni Th. Jóhannesson, fyrrum forseti Íslands, er einn af þeim sem hafa tekið þátt í The Puffin Run í gegnum árin og kann vel að meta bæði hlaupið og umgjörð þess. Þrátt fyrir að hafa gegnt æðsta embætti landsins segir hann upplifunina á hlaupadegi ekki breytast –þar sé hann einfaldlega einn af þátttakendum, að njóta hlaupsins eins og aðrir.

Við fengum Guðna til að svara nokkrum léttum spurningum um hlaupið, undirbúninginn og hvað gerir The Puffin Run svona sérstakt.

Hvað hefur þú oft tekið þátt í The Puffin Run?

Ég hreinlega man það ekki en það er alltaf eins gaman. Áttu uppáhalds stað í hlaupinu?

Já, svo sannarlega: Lokamarkið.

Ertu með plön um að taka þátt í mörgum hlaupum í sumar?

Mig langar til að ná Mýrdalshlaupinu og hálft maraþon í Reykjavík er fastur punktur í tilverunni. Svo væri gaman að ná eins og 1–2 víðavangshlaupum í viðbót.

Ertu með ráð fyrir þá sem eru að hlaupa í fyrsta skipti í Puffin Run?

Já, njóta útsýnisins, muna að bera höfuðið hátt og líta í kringum sig, njóta eyjunnar fögru.

Hvernig skóm hleypur þú í?

Ég keypti nýjustu skóna í útlöndum og veit bara ekki hvaða merki það er. Þar á undan var ég í skóm sem hlaupadrottningin Mari Järsk benti mér á og reyndust vel.

Hvaða fatnaði hleypur þú í?

Það fer alveg eftir veðri en ég er eiginlega alltaf með buffið mitt, merkt Alzheimer-samtökunum, sem hefur reynst mér vel frá því að ég fékk það að gjöf sumarið 2016.

Hver er rútínan þín á hlaupadegi?

Hún er nú ekkert sérstök. Maður reynir að borða skynsamlega og vera vel hvíldur fyrir hlaupið.

Hvernig er að taka þátt í svona hlaupi sem „venjulegur þátttakandi“ eftir forsetatíðina?

Það er bara alveg eins. Í embætti hefði maður kannski haldið að enginn myndi sýna þjóðhöfðingjanum þá óvirðingu að

taka fram úr honum. Þetta segi ég auðvitað í gamni en blessunarlega eru Íslendingar engir væsklar, sýna embættinu virðingu en eru um leið höfðingjadjarfir og vilja ekki að maður setji sig á háan hest. Hvað finnst þér gera The Puffin Run sérstakt miðað við önnur hlaup? Mér finnst svo gaman og gott hvað leiðin er fjölbreytt. Maður fer í gegnum bæinn, svo golfvöllinn og niður í fjöru, svo upp á Stórhöfða, aftur nærri ströndinni, meðfram flugvellinum, gegnum hraunið og svo í lokin niðri við innsiglinguna. Maður getur skipt leiðinni í kafla og um leið fær maður auka orku því að það er alltaf eitthvað nýtt og ægifagurt að sjá. Þar að auki finnur maður hvað það eru margir sem koma að hlaupinu, sjálfboðaliðar sem eiga svo sannarlega miklar þakkir skildar.

GANGI YKKUR

SEM ALLRA BEST

Eigendur og starfsfólk

Vinnslustöðvarinnar óskar

þátttakendum í The Puffin Run góðs gengis.

ELÍSA KRISTINSDÓTTIR

- HLAUP, HUGARFAR

OG ENDURHEIMT Í FÓKUS

Hvenær byrjaðir þú að hlaupa?

Byrjaði að æfa hlaup markvisst vorið 2023. Fyrir þann tíma var ég áhugaskokkari, hljóp kannski 2-3x í viku yfir þá mánuði þar sem veðrið var gott.

Einhver ráð fyrir byrjendur

Myndi alltaf ráðleggja byrjendum að skrá sig í hlaupahóp, mun skemmtilegra að æfa með góðan félagsskap í kringum sig. Einnig getur verið sniðugt að setja sér hlauptengd markmið, með því hefur þú eitthvað til þess að stefna að og ert líklegri til þess að sinna æfingum vel.

Hvað er í eyrunum á hlaupum – tónlist, hlaðvörp eða bara náttúran?

Það fer eftir því hvað ég er að gera. Ef ég er að taka róleg skokk er ég alltaf með eitthvað gott hlaðvarp í eyrunum og svo ef ég er að taka gæðaæfingar þá finnst mér betra að hafa peppandi tónlist. Svo er eitthvað við það þegar að ég er á fjöllum finnst mér oftast best að hafa ekkert í eyrunum og njóta náttúrunnar í kringum mig.

Áttu þér uppáhalds hlaupaleið sem þú mælir með?

Mér finnst skemmtilegast að hlaupa á Esjunni, Esjan býður upp á mikið úrval af leiðum sem skemmtilegt er að hlaupa. Frábært og fjöl-

breytt æfingarfjall.

Hvaða fatnaði og skóm hleypur þú í?

Ég hleyp í fatnaði og skóm frá ON. Mínir uppáhalds götuskór eru Cloudmonster Hyper og uppáhalds utanvegarskórinn er CloudUltra Pro

Hvað borðarðu yfirleitt fyrir stórhlaup eða erfiðar æfingar?

Annað hvort súrdeigsbrauð með smjöri, banana, hunangi og salti eða hrísgrjón með hunangi, banana og salti

Áttu þér einhverja fasta rútínu?

Fyrir keppnir byrja ég morguninn á því að vakna amk 3 tímum fyrir hlaupið og fæ mér morgunmat og 500ml af vatni með einni

Nuun töflu. Hef peppandi tónlist í gangi til þess að koma mér í gírinn, svo reyni ég alltaf að sjá fyrir mér brautina sem að ég er að fara að keppa í og hvernig ég ætla að hlaupa hana. Hvað finnst þér vera lykillinn að góðri endurheimt?

Endurheimt er í raun jafn mikilvæg og æfingin sjálf. Það má segja að svefn sé alltaf grunnurinn að góðri endurheimt og hefur mun meiri áhrif en flestir gera sér grein fyrir. Næring og vökvainntaka skipta einnig miklu máli, mikilvægt er að næra sig fljótlega eftir æfingu en það hjálpar líkamanum að byrja endurheimtina strax og heldur orkubúskapnum stöðugum. Það sem hefur einnig hjálpað mér mikið þegar að kemur að endurheimt er Unbroken. En það inniheldur amínósýrur og önnur efni sem líkaminn notar í viðgerðarferlinu eftir álag. Með því að taka inn Unbroken er ég að tryggja það að ég sé að fá nóg af þeim byggingarefnum sem vövarnir þurfa eftir erfiðar æfingar. Eftir krefjandi og erfiðar æfingar finnst mér gott að taka létta hreyfingu daginn eftir hvort sem að það sé rólegt skokk, göngutúr eða rólegt hjól. Það losar um stífleika og heldur blóðflæðinu gangandi.

ÁFRAM ÞÚ!

Drykkjastöðvar. Boðið er uppá vatn og Gatoraid.

Á drykkjarstöð er einnig boðið uppá banana.

the puffin run

ALLT SEM ÞÚ ÞARFT AÐ VITA

1 Herjólfsafgreiðsla.

2 Munavarsla og upplýsingar eru beint á móti Tanganum. Keppendur fá merkispjöld og skulu merkja farangur sinn með sömu tölu og hlaupanúmer sitt.

3 Stjórnstöð. Afhending gagna.

4 Inngangur fyrir keppendur.

5 Rásmark/Endamark verður á bryggjunni við FES.

Svæði þar í kring er lokað og má engin fara inn á svæðið án leyfis.

Allir keppendur skulu mæta við rásmark 5 kl. 12.00 og bíða eftir merki stjórnanda. Keppendur fara í hólf fyrir aftan rásmark samkvæmt númeri. 80 hlauparar verða ræstir í einu á 60 sek. fresti.

Rástímar:

Kl. 12:15 Rásmark. 5 Ræsing hefst.

Kl. 13:00 Hamar 5 Boðhlaup #2

Kl. 13:15 Stórhöfði 10 Boðhlaup #3 / Tvímenning #2

Kl. 14:00 Páskahellir 15 Boðhlaup #4

Rútuferðir:

Kl. 12:30 Rásmark – Hamar nr. 4001-Boðhlaup #2

Kl. 13:15 Hamar - Rásmark nr. 4001-Boðhlaup #1

Kl. 12:30 Rásmark – Stórhöfði nr. 2001-Tvímenning #2 /nr. 4001-Boðhlaup #3

Kl. 14:00 Stórhöfði - Rásmark nr. 2001-Tvímenning #1 /nr. 4001-Boðhlaup #2

Kl. 13:45 Rásmark – Páskahellir nr. 4001-Boðhlaup #4

Kl. 14:15 Páskahellir - Rásmark nr. 4001-Boðhlaup #3

kl.15:00 Verðlaunaafhending á Vigtartorgi

Keppendum bíðst að nota sturtuaðstöðu í Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja til kl. 18.00 á hlaupadegi án endurgjalds. Sýna þarf keppnis númer í afgreiðslu.

Tímamörk í The Puffin Run eru: Ef keppandi er ekki kominn frá Eldfelli að gatnamótum Eldfellsvegar fyrir klukkan 15:40 skal hann beygja til vinstri og síðan til hægri niður Skansveg. Þaðan inn á Skansinn og klárar hlaupið í endamarki.

VIGTARTORG

the puffin run

VERÐLAUN

Veitt eru peningaverðlaun til fyrstu þriggja karla og kvenna.

• Fyrsta sæti 220.000 kr.

• Annað sæti 165.000 kr.

• Þriðja sæti 110.000 kr.

Verðlaun frá

Einnig eru veitt 14 úrdráttarverðlaun sem eru gjafabréf frá eftirfarandi:

Aldursflokkaverðlaun fyrir fyrstu konu og karl.

Gjafabréf að upphæð kr. 20.000.-

Verðlaun frá

Fyrsta sæti í tvímenningslið karla, kvenna og blandað.

Gjafabréf að upphæð kr. 25.000.-

Verðlaun frá

Fyrsta sæti fjögurramannasveit karla, kvenna og blandað

Gjafabréf að upphæð 15.000.- kr

S: 830-0500 info@volcanoatv.is

Hlauparinn Ingólfur Ingólfsson

ÞVÍLÍK FEGURÐ OG ÞVÍLÍK GLEÐI

Ingólfur Ingólfsson, kírópraktor, er einn af þeim sem hafa heillast af The Puffin Run frá fyrstu þátttöku. Þó hann segi sjálfur að hann sé enginn hefðbundinn langhlaupari, lét hann til skarar skríða eftir hvatningu frá vini sínum – og hefur síðan snúið aftur ár eftir ár.

Hvað hefur þú oft tekið þátt í The Puffin Run?

Ég heyrði fyrst af The Puffin Run hjá Magnúsi Bragasyni, vini mínum og einum af skipuleggjendum mótsins. Hann sagði mér að þetta væri eitt fallegasta og skemmtilegasta hlaupið og að ég yrði að taka þátt. Ég er enginn langhlaupari en ákvað að prófa mig í 20 km hlaupinu og sé ekki eftir því. Þvílík fegurð og þvílík gleði. Hlaupið núna verður mitt fjórða og ég get ekki beðið.

Áttu uppáhalds stað í hlaupinu?

Ég á mér tvo uppáhaldsstaði í hlaupinu. Sá fyrri er parturinn þar sem hlaupið er í sandinum eftir ströndinni í Klaufinni í átt að Stórhöfða. Hinn er undir lokin þegar hlaupið er í nýja hrauninu í átt að Skansinum. Báðir þessir kaflar eru tæknilega krefjandi, mjúkir undir fótinn en einstaklega fallegir og útsýnið engu líkt.

Hvað finnst þér gera The Puffin Run sérstakt miðað við önnur hlaup?

Það er tvennt sem stendur upp úr fyrir mig: landslagið og stemningin. Þau skipti sem ég hef hlaupið hefur veðrið einhvern veginn alltaf verið gott á hlaupadeginum sjálfum.

Til dæmis fyrir fjórum árum þegar snjóaði daginn fyrir hlaup, en svo var sól og hiti á hlaupadegi og allur snjór farinn. Svo þegar maður kemur í mark og það er tónlist, næring og drykkir í boði og allir svo spenntir og ánægðir með viðburðinn– það er einstakt.

Þar sem þú ert kírópraktor, hvernig upphitun mælir þú með og hvaða teygjur eða annað eftir hlaup?

Ég hugsa upphitun meira sem fyrirbyggjandi gegn meiðslum heldur en fyrir þá sem ætla að hlaupa á persónulegu meti eða á miklum hraða.

Ég skokka 1–2 km og leita eftir þeirri tilfinningu þegar líkaminn hitnar og jafnvægi kemst á andardráttinn. Þegar það er komið legg ég áherslu á að teygja lærin, rassvöðvana og kálfana.

Að lokum liðka ég upp á ökklana, því á báðum mínum uppáhaldsstöðum í hlaupinu er undirlagið óstöðugt og maður getur misstigið sig ef maður passar sig ekki. Eftir hlaup fer ég í gegnum sömu teygjur og bæti við hryggvindu, þar sem bakvöðvarnir eiga það til að stífna eftir langt og gott hlaup.

VELKOMIN TIL VESTMANNAEYJA

SKEMMTIFERÐ

Skemmtiferðin er ein af vinsælustu ferðunum okkar og er fullkomin fyrir allar gerðir af hópum; vinahópa, saumaklúbba, vinnustaði, starfsmannaferðir o.s.frv.

Nú er tækifæri til að skoða Vestmannaeyjar

í þessari flottu djammferð og gera eins og á Þjóðhátíð – byrja snemma og taka daginn með trompi.

Í gistináttaferðinni sérsníðum við ferðina að þínum óskum og gerum eitthvað ótrúlega skemmtilegt saman eins og eyjamönnum er svo tamt.

kl: 8:00 | 9:30 | 11:00

Gangi ykkur vel í Puffin Run! Við tökum vel á móti ykkur!

Mætið úthvíld í hlaupið. Erum með hótelherbergi, íbúðir og hús.

Vestmannabraut 28 | 900 Vestmannaeyjar | Iceland Sími / tel: +354 481 2900 | hotelvestmannaeyjar.is booking@hotelvestmannaeyjar.is

FRÁ VESTMANNAEYJUM 07:00 17:00 9:30 19:30 12:00 22:00 14:30

Ef siglt er til Þorlákshafnar er áætlun sem hér segir: Brottför frá Vestmannaeyjum kl. 07:00 og 16:00 Brottför frá Þorlákshöfn kl. 10:45 og 19:45 08:15 18:15 10:45 20:45 13:15 23:15 15:45 FRÁ LANDEYJAHÖFN

Við höldum með þér

í Puffin Run

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Puffin Run 2026 by Leturstofan - Issuu