Skip to main content

Tígull 42. tbl 05. árg.

Page 1

42. tbl. 05. árg. 20. - 31. desember 2023


JÓLIN OKKAR ALLRA Þegar ég var lítil stúlka þótti mér tíminn frá einum jólum til þeirra næstu vera óralangur. Þegar ein jól voru búin fannst mér svo langt í þau næstu að þau voru eiginlega óraunveruleg. Núna finnst mér alltaf eins og að síðustu jól hafi bara verið í síðasta mánuði og örstutt síðan tréð og skrautið var sett upp. Alltaf eru jólin samt jafn dýrmæt til samveru við fjölskyldu og vini. Árið sem nú er að líða er merkisár í sögu okkar Eyjamanna. Fimmtíu ár voru liðin frá gosinu hér á Heimaey og við minntumst þess með ýmsum hætti. Það var áhrifamikið 23. janúar þegar farin var blysför frá Landakirkju í Eldheima, þar sem m.a. forseti Íslands og forsætisráðherra voru viðstödd hátíðlega minningarstund. Af þessu tilefni heiðruðu forsætisráðherrar Norðurlandanna og Kanada okkur með því að halda fund sinn hér í aðdraganda Goslokahátíðar og hátíðin sjálf var óvenju glæsileg. Setningarathöfnin var á Skansinum að viðstöddum m.a. sendiherrum þeirra ríkja sem mest lögðu af mörkum til að hjálpa okkur í gosinu og við uppbygginguna í kjölfar þess. Þátttaka í hátíðarhöldunum var mikil og tókust þessir viðburðir allir afar vel og voru okkur öllum til sóma. Ýmislegt hefur gengið á hjá okkur hér í Eyjum undanfarnar vikur. Miklar truflanir á samgöngum og stórskemmd vatnsleiðsla. Hættustig Almannavarna sett á og Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra komin á vaktina og í vinnuna með okkar besta fólki. Við sem samfélag höfum fengið í fangið margar stórar áskoranir í gegnum tíðina og hefur okkur tekist að leysa þær saman. Vatnsleiðslan sér okkur enn fyrir því vatni sem við þurfum til að lifa eðlilegu lífi þegar þetta er ritað og vonandi breytist það ekki. Það er nauðsynlegt fyrir okkur öll að treysta okkar færustu sérfæðingum og fagfólki fyrir lausn þessara mála. Við íbúarnir eigum að halda áfram okkar daglega lífi og reyna að láta

TÍGULL

þessa stöðu sem upp er komin ekki hafa áhrif á okkur fyrr en ef og þegar nauðsyn krefur. Við klárum okkur af þessu verkefni eins og öðrum. Við getum lagt okkar af mörkum með því að sýna náungakærleik í verki og vera góð hvert við annað. Ég óska Vestmannaeyingum öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Ég vil líka þakka fyrir árið sem er að líða og saman horfum við bjartsýnum augum til ársins 2024. Hátíðarkveðja Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri

Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir & Sæþór Vídó.

DREIFING:

ÚTGÁFA:

SKIL Á AUGLÝSINGUM:

Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is

Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is

Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.


Við sendum Vestmannaeyingum nær og fjær okkar bestu óskir um

Gleðileg Jól og farsælt komandi ár með þökk fyrir það liðna.


HVAÐ SEGJA BÖRNIN UM JÓLIN? Blaðamaður Tíguls heyrði í nokkrum börnum á leikskólaaldri og kannaði hvað þau segja um jólin.

RÖKKVI Hvað heita mamma þín og pabbi? Thelma Hrund og Daði Ólafsson Hver er uppáhalds jólasveinninn þinn? Kertasnykill Hvað er mamma best í að gera fyrir jólin? Pakka inn pökkum Hvað er pabbi bestur í að gera fyrir jólin? Líka pakka Hvað langar þig í jólagjöf? Ninja dreka, risaeðlu Af hverju eru jól haldin? Útaf því, ég veit það eiga að vera jól, fyrst litlu jólin svo stóru jólin Hvað finnst þér skemmtilegast að gera um jólin? Leika með drekann og fá mér piparköku

MIA MEKKIN Hvað heita mamma þín og pabbi? Rósa og Valgeir Hver er uppáhalds jólasveinninn þinn? Það er svoldið Stekkjastaur Hvað er mamma best í að gera fyrir jólin? Setja piparkökur í gluggann minn, hún alltaf gefa mér jóla kjól fyrir kvöldin Hvað er pabbi bestur í að gera fyrir jólin? Stundum gefur pabbi mér svolítið nammi, alltaf að græja gardinurnar upp og stundum niður Hvað langar þig í jólagjöf? Kastala Af hverju eru jól haldin? Þá fáum við að skreyta húsið Hvað finnst þér skemmtilegast að gera um jólin? Mér finnst skemmtilegast að búa til snjókarl


Við látum allt snúast um jólin Við sendum öllum landsmönnum óskir um gleðilega hátíð. Megi gangverk jólanna vera taktfast og framleiða óstöðvandi hamingju og frið á heimilum og vinnustöðum um allt land.

www.hd.is


ORÐAÞRAUT

GLEÐILEG JÓLIN JÓLAMATUR PAKKAR

SAMVERUSTUNDIR FJÖLSKYLDA GLEÐI HAMINGJA

ÞORLÁKSMESSA AÐFANGADAGUR JÓLADAGUR GAMLÁRSDAGUR

NÝÁRSDAGUR ÞRETTÁNDINN TRÖLLIN JÓLASVEINAR


Ð

OPI

TIL

M

A

JÓL

18 10-

aÐ Lok

FRlt aÍðT10Tkg Al

g ada

g

fan

aÐ

SENDU

Léttari og nettari Slim 2023 útgáfan

NÚ MEÐ

Verð frá

89.990

a PS5 Slim leikjatölv

1TB SSD

9.990

Let’s Sing 2024

ALLT FYRIR

L Ó J U J GRÆ K Í TÖLVUTE

20. desember 2023 • Birt með fyrirvara um breytingar, innsláttarvillur og myndabrengl

Verð frá

490

Verð frá

Tækifærisgjafir

19.990

JÓLA TILBOÐ Verð frá Verð frá

7.992

r

vu Evercade leikjatöl

52.990 Nintendo Switch

a

Úrval myndaramm

14.990

Krakka spjaldtölva


Jólahefd í 80 ár

LAUFABRAUÐSGERÐ HJÁ VARMADALSÆTTINNNI Sunnudaginn 26. nóvember hittist Varmadalsættin í húsnæði Prófastsins og viðhéltu 80 ára gamalli hefð ættarinnar. Laufabrauðsgerð sem er stór hluti af jólaundirbúningnum. Það var hún Eva frá Varmadal sem tók upp þessa hefði en hún kynntist laufabrauðsgerð hjá Kristjáni Jónssyni bakara á Akureyri þegar hún var 18 ára gömul. Blaðamaður Tíguls kíkti í laufabrauðsfjörið á Prófastinum og tók spjall við Aldísi Atladóttur en Eva frá Varmadal er amma Aldísar . Hvað hafið þið verið mörg að hittast svona síðustu ár? Í ár vorum við 53. En stundum hafa fjölskyldurnar hist hver á sínu Steikingameistararnir. Þorsteinn og bræðurnir Sævaldur og Sigurður Elíassynir. heimili. Er eitthvað sem hefur breyst í gegnum árin? Já til dæmis skurðurinn á laufabrauðinu en í gamla daga var eingöngu notaðir vasahnífar og gaman að segja frá því að nokkrir hnífarnir eru enn notaðir. Annað er að í gamla daga bakaði amma öll laufabrauðin og það var heilög stund hjá Evu ömmu, enginn mátti trufla hana. Í dag eru laufabrauðin keypt tilbúin til skurðar. Og eru notuð í dag sérstök laufabrauðar járn. Hver er elsti og yngsti meðlimur ættarinnar sem að mætti í ár og hver er aldur þeirra? Elsti er Sigurður Elíasson (Siggi Ella) 87 ára og ynsta er Sandra Rós Daníels og Þórdís Rán Þórbergsdóttir þær eru 2 ára.

Eygló og Ester

Hvernig er verkaskiptingin? Siggi Ella og Valli hafa séð um að steikja síðustu ár og aðrir eru í að skera út. Það eru ýmis hlutverk sem þarf að huga að sem dæmi þarf að salta og pressa. Aldís og Hlynur Már


Aldís Freyja Magnúsdóttir og dóttir hennar Þórdís Rán.

Joao Carmo og Hildur.

Ragnar og Elín Þóra.

Lea, Hrafn Mikael og Rómeó Máni.

Það vantar ekkert upp á kræsingarnar í þessari ætt.

Mæðgurnar Jóný og Esther.

Tanja Björt og Sandra Rós Daníelsdóttir.

Anna Lilja, Guðfinna og Margrét.

Kiddi pressar laufabrauðin.

Elísa og Þóra Sif skera út laufabrauðin.

Diljá, Elísa og Þóra Sif.

Þeir feðgar Breki Georg og Atli Freyr.

Hér er hluti af Varmadalsættinni sem hittust við laufabrauðsskurð að Suðurgerði 2 fyrir jólin 1995. Frá vinstri; Magnea Bergvinsdóttir, Svanbjörg Oddsdóttir, Hildur Sævaldsdóttir, Kristín Frímannsdóttir, Aldís Feyja Magnúsdóttir fyrir frama, Aldís Atladóttir, Elín Björk, Atli Elíasson, Eva í Varmadal fyrir aftan Atla, Elías Atlason, Freyr Atlason og Hlynur Már Jónsson.


UPPSKRIFT VIKUNNAR Rommkúluterta Það er alltaf hægt að baka marengs með góðum fyrirvara svo ef það er helgi eða veisla framundan má vel gera þessa ljúffengu rommtertu fram í tímann og geyma í frysti. Svo er hún tekin út 2 klukkustundum áður en hún er borin fram á veisluborðið.

Hráefni: 2 Marensbotnar 24 cm 1 box rommkúlur 5 dl rjómi 100g rjómasúkkulaði 2 eggjarauður 1 banani Marengs 3 eggjahvítur 2 dl sykur 3 bollar Rice Crispies 1 tsk lyftiduft Aðferð: Þeytið eggjahvítur, setjið sykur út í og stífþeytið. Mylja rice og blanda varlega saman ásamt lyftidufti. Skipta í 2 hluta, baka á plötu. Ekki smyrja alveg út í kantana því marengsinn lekur örlítið út í kantana. 150° hiti í klst. Kremið 1 dl rjómi 110 g kúlur (22 stk) 100 g Rjómasúkkulaði 2 eggjarauður Hitið rjómann, bræðið kúlurnar og mykljið í heitum rjómanum. Bætið rjómasúkkulaðinu út í og bræðið. Bætið rauðunum saman við, þegar súkkulaðið hefur bráðnað. Samsetning Setja annan marengsbotninn á fat. Skerið 10 kúlur varlega í sundur látið vökvann leka á botninn. Fínsaxa kúlurnar og strá yfir. Skera banana í sneiðar og raðið ofaná. Dreifið hluta af kreminu yfir. Þeytið 4 dl af rjóma með ca. 1 msk af flórsykri og pínulítið af vanilludropum. Rjóminn settur yfir. Seinni botninn yfir rjómann og afgangurinn af kreminu yfir botninn. Næst setti í frysti. Tertan er tekin út 2 klst áður en hún er borin fram.


SUDOKU

Við óskum bæjarbúum

Gleðilegra jóla

og farsæls komandi árs. Þökkum viðskiptin á árinu.


Gleðileg Jól Við óskum ykkur gleði og friðar um jólin og gæfu á nýju ári. Þökkum fyrir viðskiptin á árinu sem er að líða.


Gjafakort Landsbankans Með gjafakortinu er ekkert mál að velja réttu jólagjöfina. Þú ákveður upphæðina og sá sem þiggur velur gjöfina. Þú færð gjafakort í næsta útibúi eða á landsbankinn.is.


HVAÐ SEGJA BÖRNIN UM JÓLIN? Blaðamaður Tíguls heyrði í nokkrum börnum á leikskólaaldri og kannaði hvað þau segja um jólin.

INGA MARGRÉT Hvað heita mamma þín og pabbi? Leifa og Daníel Hver er uppáhalds jólasveinninn þinn? Kertasníkir Hvað er mamma best í að gera fyrir jólin? Að búa til piparkökur Hvað er pabbi bestur í að gera fyrir jólin? Að klæða sig á jólunum Hvað langar þig í jólagjöf? Nýja dúkku og tússliti og tréliti Af hverju eru jól haldin? Af því að okkur langar það Hvað finnst þér skemmtilegast að gera um jólin? Leika í snjónum

AUÐUNN ANGANTÝR Hvað heita mamma þín og pabbi? Gísli og Hafdís Hver er uppáhalds jólasveinninn þinn? Hurðaskellir Hvað er mamma best í að gera fyrir jólin? Setja upp jólatréð Hvað er pabbi bestur í að gera fyrir jólin? Að gera mat, svín, á jólunum borða ég svín Hvað langar þig í jólagjöf? Allt ofurhetju Af hverju eru jól haldin? Útaf því bara Hvað finnst þér skemmtilegast að gera um jólin? Að skreyta jólatré


Sendum Eyjamönnum öllum bestu óskir um

Gleðileg jól og farsælt komandi ár með þökk fyrir viðskiptin á árinu sem er að líða!

sent sótt

PIZZUTILBOÐ 12” PIZZA með 3 áleggjum

+ 9” hvítlaksbrauð eða brauðstangir + gosdós [ 4.590 kr. ]

9” PIZZA

með 3 áleggjum [ 2.290 kr. ]

12” PIZZA

með 3 áleggjum + 9” hvítlaksbrauð eða brauðstangir + gosdós [ 4.090 kr. ]

12” PIZZA

16” PIZZA

16” PIZZA

TVENNUTILBOÐ

með 3 áleggjum [ 2.790 kr. ]

OPIÐ

Mán-fim 17-21 Fös og lau 12-22 Sun 12-21

með 3 áleggjum [ 3.390 kr. ]

með 3 áleggjum + 16” hvítlaksbrauð eða brauðstangir + 2L gos [ 5.790 kr. ]

Alla sóttSTÓR PIZZA af matseðli miðvikudaga [ 2.790 kr. ] aðeins á miðvikudögum

Sjáumst á

16” PIZZA með 3 áleggjum + 16” hvítlaksbrauð eða brauðstangir + 2L gos [ 6.290 kr. ]

Tvær 16” pizzur + stórar brauðstangir

[ Greitt er fyrir dýrari pizzuna og brauðstangir ]

Alla HÁDEGIS föstu- HLAÐBORÐ daga á föstudögum kl. 12-13

Sendum heim alla daga ( 481-1567


Við óskum ykkar gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári

Sjómannadagsráð

Bílaverkstæði

HARÐAR & MATTA

VM Félag vélstjóra og málmtæknimanna www.vm.is


Lundinn pöbbinn í Eyjum Við óskum ykkur gleðilegra jóla og farsæls komandi árs með þökk fyrir það liðna!


HVAÐ SEGJA BÖRNIN UM JÓLIN? Blaðamaður Tíguls heyrði í nokkrum börnum á leikskólaaldri og kannaði hvað þau segja um jólin.

SARA ÓSK Hvað heita mamma þín og pabbi? Rakel og Hannes Hver er uppáhalds jólasveinninn þinn? Stekkjastaur Hvað er mamma best í að gera fyrir jólin? Skreyta piparkökur Hvað er pabbi bestur í að gera fyrir jólin? Skreyta piparkökur Hvað langar þig í jólagjöf? Hafmeyjudúkku Af hverju eru jól haldin? Þá er ég búin að eiga afmæli Hvað finnst þér skemmtilegast að gera um jólin? Skreyta piparkökur

BALTASAR ÞÓR Hvað heita mamma þín og pabbi? Birna Vídó og Davíð Þór Hver er uppáhalds jólasveinninn þinn? Leppalúði Hvað er mamma best í að gera fyrir jólin? Skreyta Hvað er pabbi bestur í að gera fyrir jólin? Setja jólatréð Hvað langar þig í jólagjöf? Nýjan bolta Af hverju eru jól haldin? Af því Hvað finnst þér skemmtilegast að gera um jólin? Að leika með jóladót Hvað helduru að þú fáir í skóinn? Súkkulaði.


OPNUNARTÍMAR UM HÁTÍÐARNAR SUNNNUDAGAR ERU FRÍDAGAR Við vekjum athygli á að lokað er á aðfangadag og gamlársdag þar sem óheimilt er að hafa Vínbúðir opnar á sunnudögum.

Vínbúðin Vestmannaeyjum Fimmtudagur

21. desember

11-18

Fimmtudagur

28. desember

11-18

Föstudagur

22. desember

11-19

Föstudagur

29. desember

11-19

Laugardagur

23. desember

11-16

Laugardagur

30. desember

11-16

Sunnudagur

24. desember

Lokað

Sunnudagur

31. desember

Lokað

Mánudagur

25. desember

Lokað

Mánudagur

1. janúar

Lokað

Þriðjudagur

26. desember

Lokað

Þriðjudagur

2. janúar

11-18

Miðvikudagur

27. desember

11-18

Nánari upplýsingar um opnunartíma er að finna á vinbudin.is

Við minnum á að áfengiskaupaaldurinn á Íslandi er 20 ár og biðjum fólk að hafa skilríki meðferðis.


Við óskum ykkar gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári NÝJA TANNLÆKNASTOFAN

FRÁR VE 78

STAVEY


Gleðilega hátíð og farsælt komandi ár Starfsfólk og nemendur FÍV

Við óskum ykkur gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða.


Ingveldur Theodórsdóttir ÞEGAR ÉG FÆ FYRSTU STÓRU KERTAPÖNTUNINA Í VINNUNNI ÞÁ KVIKNAR Á JÓLAANDANUM Hvað er í jólamatinn? Hingað til höfum við verið voðalega hefðbundin og haft hamborgarhrygg. En þessi jólin ætlum við að breyta út af vananum þar sem að við erum með skiptinema hjá okkur. Unga stúlku frá Austurríki sem er grænmetisæta. Þannig að auk þess að hafa hamborgarhrygg ætla ég að spreyta mig á því að búa til bæði sveppa Wellington og oumph Wellington. Eitthvað sérstakt meðlæti? Ég er ekki alveg búin að hugsa meðlætið með Wellington „steikunum“ en hugsa að ég skelli allavega í sætkartöflumús. Með hamborgarhryggnum hef ég, rauðbeður, maís, aspas, brúnaðar kartöflur og mína útgáfu af waldorf salati. Eftirminnilegasta jólagjöfin? Ég bara hreinlega get ekki munað neitt sem stendur í fljótu bragði upp úr, en ég er alltaf mjög ánægð með það sem ég fæ, en það var þó mjög gaman þegar ein jólin að nánast allt sem ég fékk var prjónatengt það var eins og allir í kringum mig hefðu tekið sig saman. En ég er mikil prjónakona og fannst mér þetta frábært.

Hafið þið skapað nýja hefð hjá ykkur? Hverja þá ef já? Ég fer alltaf á Aðfangadegi upp í kirkjugarð með ljós til látinna vina. Ég er alveg ómöguleg ef ég kemst ekki í það og finnst þá eitthvað vanta hjá mér.

Er einhver hefð sem þú hefur tekið frá foreldrunum? Og hver þá ef já? Nei, eða ekkert svona sem ég get greint að sé spes frá þeim.

Spilar þú mikið fyrir jólin? og ef já, áttu þá e-ð uppáhalds? Mér finnst mjög gaman að spila en geri því miður of lítið af því.

Vonandi næ ég að bæta úr því þessi jólin. Hvað kemur þér jólaskap? Eins skrýtið og það er að segja það að þegar ég fæ fyrstu stóru kertapöntunina í vinnunni (Heimaey) þá kviknar á jólaandanum. Svo eftir það þá laumast ég til að byrja að hlusta á eitt og eitt jólalag og þá er þetta bara komið.

Við óskum ykkur gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða.


KÆRI NÁGRANNI! SENDUM ÞÉR OG ÞÍNUM BESTU ÓSKIR UM GLEÐILEGA HÁTÍÐ Afgreiðslutími um jól og áramót

Vesturvegi 5 Sími 481 3900

22. des

9–20

23. des

10–15

24. des

LOKAÐ

25. des

LOKAÐ

26. des

LOKAÐ

27. des

10–18

28. des

9–18

29. des

9–18

30. des

10–15

31. des

LOKAÐ

1. jan

LOKAÐ

2. jan

10–18

apotekarinn.is Vestmannaeyjum


Dorla ksmessa

09:00-17:00

Aofangadagur

08:00-11:00

23. desember

24. desember

J61adagur

25. desember

LOKAO

Annar f j61um

11:00-16:00

Gamlarsdagur

08:00-11:00

26. desember 37. desember

Nyarsdagur

LOKAO

Prettandinn

06:30-17:00

l.januar

5.januar

Aarir dagar fra 18. desember til 2. januar: Virkir dagar - 06:30 - 21:00 Helgar - 09:00-18:00 Starfsf6Ik fpr6ttamiost6ovarinnar 6ska ollum sundlaugargestum gleoilegra j6Ia og farsceldar a nyju ari. Pokkum fyrir g6oar stundir a arinu.

�

*


Gleðileg Jól Sendum starfsfólki okkar, viðskiptavinum og landsmönnum öllum okkar bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár. Með þökk fyrir samfylgdina í gegnum árin.

Elskulegi eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi

SVANUR JÓNSSON Sólhlíð 19, Vestmannaeyjum lést þann 13. desember á HSU í Vestmannaeyjum. Útför hans fer fram frá Landakirkju í Vestmannaeyjum fimmtudaginn 28. desember kl. 13:00. Útförinni verður streymt á landakirkja.is Ingibjörg Þórðardóttir Jón Ólafur Svansson Hafdís Magnúsdóttir Þórður Svansson Aníta Sif Vignisdóttir barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn

Viltu minnast látins ættingja eða vinar? Hægt er að senda okkur minningargrein á netfangið tigull@tigull.is og við birtum fyrir þig greinina á útfarardegi. Einnig er hægt að panta hjá okkur andlátstilkynningu og tilkynningu á vef. Verð: 12.400 kr.


Óli & Heba

ALVEG ÓMISSANDI Á ÞORLÁKSMESSU AÐ HLUSTA Á KVEÐJURNAR - ÞÁ ERU JÓLIN ALVEG AÐ KOMA Blaðamaður Tíguls fékk þau Hebu Dögg Jónsdóttur og Ólaf Björgvin Jóhannesson í létt jólaspjall. Hvað er í jólamatinn? Léttreyktur lambahryggur og/eða svínahamborgarahryggur. Eitthvað sérstakt meðlæti? Sinnepskartöflunar hennar mömmu / ömmu Svönu. Rauðrófusalat og laufabrauð fyrir Hebu. Eftirminnilegasta jólagjöfin? Óli: Þegar mamma (Svana) pakkaði að mig minnir sokkum í tóman ipad kassa. Heba Dögg: Þetta er erfitt val. Fyrir ein jólin fórum við yfir á krókinn í Kaupfélagið og ég sá þar fallega sparipeysu sem mig langaði svo ósköp mikið í. Rétt fyrir jól bað afi mig um að pakka inn gjöf sem var í snyrtivörukassa. Ég hélt að hún væri handa ömmu og pakkaði honum samviskusamlega inn. Þegar við opnuðum svo pakkana á aðfangadagskvöld var mér réttur þessi pakki og þar var fallega sparipeysan sem mig langaði svo í. Svo fyrir önnur jól hafði ég séð Baby born dúkku í kassanum heima hjá vinkonu mömmu minnar. Ég hugsaði með mér hvað sú stúlka sem fengi hana væri heppin. Og nokkrum dögum síðar var það ég sem var svo heppin, þá hafði mamma fengið að geyma hana þar því hún tók auðvitað svo mikið pláss. Er einhver hefð sem þið hafið tekið frá foreldrunum ykkar? Og hver þá ef já? Óli: Ganga frá fyrir pakka opnun. Heba: Við mamma kveiktum alltaf á aðventukertunum, hverju fyrir sig, á slaginu 6 á sunnudögum og kúrðum yfir stundinni okkar. Nú gerum við fjölskyldan þetta

saman. Við stórfjölskyldan komum alltaf saman fyrir norðan og skárum út laufabrauð. Ég var svo heppin að fá laufabrauðsjárn að gjöf um daginn og get því skorið út í ár, viðhaldið hefðinni og hugsað heim. Hafið þið skapað nýja hefð hjá ykkur? Hverja þá ef já? Jói okkar er bara að halda sín önnur jólin núna svo við erum enn að þreifa okkur áfram í því hvað við viljum gera. Eruð þið spilafólk / er mikið spilað? Og eigið þið eitthvað uppáhalds? Við elskum að spila og í dag er það partners duo. Hvað kemur ykkur í jólaskap?

Óli: Jólalögin og jólaljósin. Heba: Ég á svo mikið jólaskap í hjartanu að ég þarf bara að rétt hugsa um jólin og þá fara fiðrildin í maganum af stað. En ég elska öll jólaljósin, jólalögin og að sitja við að skrifa á jólakort og pakka inn jólagjöfunum. Svo finnst mér alveg ómissandi á Þorláksmessu að hlusta á kveðjurnar, þá eru þau alveg að koma. Hvernig skiptið þið verkum yfir jólin? (Pakkainnkaup / innpökkun / eldun o.s.frv) Sjáumst í Krónunni kveðja Óli :D Heba: Já einmitt, Óli kaupir jólagjöfina mína og pakkar henni inn. Annars er hann bara niðrí Krónu og ég græja hitt. Svo hjálpast allir að við matseldina.


Gleðileg Jól

Vinnslustöðin óskar landsmönnum öllum gleðilegra jóla VINNSLUSTÖÐIN HF

HAFNARGATA 2

900 VESTMANNAEYJAR

VSV#VSV"IS

VSV"IS


Theó & Carlos

ÞAÐ KOMA EKKI JÓL NEMA AÐ HAFA LONDON LAMBIÐ Blaðamaður Tíguls fékk þau Theodóru Ágústsdóttur og Carlos Guaní í létt jólaspjall. Hvað er í jólamatinn? Heimaléttreykt lambalæri að hætti pabba. Það koma ekki jól nema að hafa London lambið Eitthvað sérstakt meðlæti? Sveppasósan hennar mömmu, rósakál og brúnaðar kartöflur Eftirminnilegasta jólagjöfin? Ég á tvær mjög sterkar minningar. 6 ára fékk ég dúkkuvagn. Við systur horfðum útum gluggann þegar pabbi sótti pakkann til Fríðu og Didda á móti. Fór ekki á milli mála hvað væri undir pappírnum. 7 ára fengum við systur saman Nintendo og Fríðu og dýrið á VHS. Það var ekki mikið um gjafir hjá Carlosi en þegar hann var 9 ára fengu hann og frændi hans Power rangers. Mikið leikið sér þau jólin. Hvaða hefðir eru hjá fjölskyldunni? Carlos er alinn upp í stórri fjölskyldu hjá afa sínum og ömmu í kalþólskri trú. Ég er kristin og eigum við það sameiginlegt að fara alltaf í kirkju. Okkur finnst mikilvægt að minnast jólanna og hvers vegna við höldum jólin. Eruð þið spilafólk / er mikið spilað? Ég elska að spila. Spilaði mikið við ömmu mína og frænku Rommí, Casinu, Manna og fleiri borðspil. Carlos er eitthvað minna fyrir það, því miður. Þó að vikulega væri spilavist á hans heimili sem afi hans hélt. Þá kom fólk úr kirkjunni eða samstarfsmenn og oft mikil læti og æsingur.

Hvað kemur ykkur í jólaskap? Jólaljósin, hlusta á boðskapinn og fara í kirkju, jólaplata Ellýar og Villa Vilhjálms, finna stað fyrir föndrið sem Ísafold hefur gert í gegnum árin, mandarínur og piparkökur. Hvernig skiptið þið verkum yfir jólin? (Pakkainnkaup / innpökkun / eldun o.s.frv)

Ég byrja tímanlega að hugsa fyrir jólagjöfum, við Ísafold eigum notalega stund saman og pökkum inn. Carlos sér alfarið um eldhúsið sem er mikill léttir. Nægur er hausverkurinn. Hvað er það besta við jólin? Samvera vina og fjölskyldna. Vera þakklát fyrir hvað við höfum. Gleðilega hátíð


Við óskum bæjarbúum

Gleðilegra jóla

og farsæls komandi árs. Þökkum viðskiptin á árinu. Afgreiðslutími um jól og áramót Laugardagur 23.desember 10:00 - 16:00 Sunnudagur 24.desember Lokað Mánudagur 25.desember Lokað þriðjudagur 26.desember Lokað 27. - 29. desember 10:00 - 18:00

Laugardagur 30. desember 10:00-16:00 Sunnudagur 31. desember Lokað Mánudagur 1. janúar Lokað Þriðjudagur 2. janúar 10:00 - 18:00


Sigrún Gyda MEST AÐ GERA Í DESEMBER OG MARGIR Á BIÐLISTA TIL AÐ KOMAST Í JÓLASNYRTINGUNA Blaðamaður Tíguls kíkti á Sigrúnu Gyðu Þórarinsdóttur en hún hefur undanfarin tvö ár verið að bjóða upp á hundasnyrtun. Sigrún Gyða er einnig að vinna í eldhúsi spítalans. Hvað hefur þú verið lengi í að snyrta hunda? Ég hef verið að klippa hundana mína í 8 ár en byrjaði að klippa hunda fyrir aðra fyrir um það bil 2 árum. Hvað ertu að bjóða uppá? Ég býð uppá bað, blástur, snyrtingu, burstun á feld og aðklippa neglur. Er mikið að gera í þessu? Það hefur verið ágætlega mikið að gera og meira en ég átti von á. Hvenær er mest að gera? Það er einmitt mest að gera í desember og margir á biðlista til að komast í jólasnyrtinguna. Hvaða hundategund er erfiðast / auðveldast að snyrta og afhverju? Ég myndi segja að Cocker Spaniel tegundin sem auðveldust er að klippa því að feldurinn er allur rakaður með vél. Annars er erfitt að segja til um hvað er krefjandi eða létt. Það fer að miklu leyti líka eftir eigendum og hversu vel þeir hugsa um feld hundarins, bæði að fara með reglulega á stofu eða gera heima. Þannig að engin ein hundategund er eitthvað sérstaklega erfið heldur er það ástandið á feldi hundsins sem segir til um hversu krefjandi snyrtingin er, en ég hef alltaf gaman af góðri áskorun. Uppáhalds tegund? Púðlan er í miklu uppáhaldi hjá mér. Átt þú hund eða hunda og hvaða tegund? Ég á 2 hunda, þeir eru báðir púðlur og eru feðgar. Ertu komin í jólaskap? Svolítið. Hvað er í jólamatinn? Aspassúpa, Hamborgarahryggur ala mamma og ís og frómas ala amma Sigrún í eftirrétt. Eitthvað sérstakt meðlæti? Ég hef aldrei verið mikið fyrir meðlæti nema kannski kartöflur. Eftirminnilegasta jólagjöfin? Það var sennlega þegar ég fékk fyrsta hundinn minn hann Skjöld þegar ég var 12 ára.

Er einhver hefð sem þú/þið hafið tekið frá foreldrunum ykkar? Og hver þá ef já? Það er alltaf aspassúpa og súpubrauð í forrétt á aðfangadag. Hefur þú eða þið skapað nýja hefð hjá ykkur? Hverja þá ef já? Við förum alltaf fjölskyldan og höfum gert síðan ég man eftir mér með ömmu og afa í bæinn og fáum okkar að borða á Þorláksmessu. En því verður ekki af því þetta árið þar sem flestir veitingastaðir eru lokaðir. En ætlum í Smörrebröd hjá Einsa Kalda 22. desember, hann klikkar aldrei. Eruð þið spilafólk / er mikið spilað? Og eigið þið eitthvað uppáhalds? Höfum í mörg mörg ár hist stórfjölskyldan og spilað á jóladag eftir hangikjötið og alltaf stelpur á móti strákum. Vil ekki endilega tjá mig um hver hefur oftar unnið en í ár verður nýja útgáfan af Bezzerwizzer spiluð. Svo höfum við fjölskyldan mjög gaman Clue og það verður pottþétt spilað þessi jól. Hvað kemur ykkur í jólaskap? Góð jólatónlist, baka piparkökur og skreyta með yngri kynslóðinn, hjálpa mömmu og ömmu í vanilluhringjunum og negrakossunum og svo auðvitað að fara í bæinn á Þorláksmessu.


Við sendum landsmönnum öllum hugheilar jólaog nýárskveðjur með þökk fyrir árið sem er að líða.

Við óskum heimilisfólki, aðstandendum, starfsfólki og velunnurum Hraunbúða gleðilegra jóla, farsæls nýs árs og guðs blessunar. HRAUNBÚÐIR


HVAÐ SEGJA BÖRNIN UM JÓLIN? Blaðamaður Tíguls heyrði í nokkrum börnum á leikskólaaldri og kannaði hvað þau segja um jólin.

ARNALDUR SÆR Hvað heita mamma þín og pabbi? Arndís Bára og Vignir Hver er uppáhalds jólasveinninn þinn? Stekkjastaur Hvað er mamma best í að gera fyrir jólin? Skreyta piparkökur Hvað er pabbi bestur í að gera fyrir jólin? Alltaf að setja jólaskraut Hvað langar þig í jólagjöf? Playmo jetsky Af hverju eru jól haldin? Til að setja jólatré upp og svo jólasveinninn komi Hvað finnst þér skemmtilegast að gera um jólin? Að smíða með pabba

ARON DAGUR Hvað heita mamma þín og pabbi? Leifur og Gígja Hver er uppáhalds jólasveinninn þinn? Hurðakellur Hvað er mamma best í að gera fyrir jólin? Skreytar piparkökur með kremi Hvað er pabbi bestur í að gera fyrir jólin? Að setja ljósin upp svo ljós fyrir húsið svona yfir Hvað langar þig í jólagjöf? Stóran trukk til að setja gáma og til að opna fyrir aftan Af hverju eru jól haldin? Útaf því bara Hvað finnst þér skemmtilegast að gera um jólin? Leika við stóru bílana mína


Við getum ekki án þeirra verið!

Salan er hafin um allt land

Allar upplýsingar eru á flugeldar.is


Óskað er eftir tilnefningum til Menntaverðlauna Suðurlands 2023

Skata til sölu Fiskvinnsla VE Eiði 12

Samtök sunnlenskra sveitarfélaga óska eftir tilnefningum til Menntaverðlauna Suðurlands 2023. Frestur til tilnefninga er til miðnættis sunnudaginn 4. febrúar nk. og þær skal senda á netfangið: menntaverðlaun@ sudurland.is. Veitt verður viðurkenning sem og peningaverðlaun. Nánari upplýsingar má nálgast á heimasíðu SASS: sass.is.

Viðar Elíasson 895-1965 narfive@simnet.is

Auglýsingasími Tíguls: 481-1161 tigull@tigull.is

ERT’AÐ BREYTA?

BAÐHERBERGINU? ELDHÚSINU? INNRÉTTINGUM? PARKETLEGGJA?

A lm e n n t v ið h a ld & s m íð i!

NÝJA

TANNLÆKNASTOFAN

EyjarDýr er ný netverslun sem er með fría heimkeyrslu fyrir íbúa í Vestmannaeyjum sem panta hjá okkur!

Flötum 29 Tímapantanir í síma: 481-1012 Neyðarsíminn: 844-5012 tannsi@eyjar.is

s. 772-1771 / 772-7175 / ggsmidir@gmail.com

eyjadyr.is


EYJAFJALLAJÖKULL Dúnúlpa 48.990kr,-

www.icewear.is


FÖNDURDAGUR Í HAMARSSKÓLA Föndurdagurinn í Hamarsskóla var fimmtudaginn 14. desember. Hefðubundið skólastarf var lagt til hliðar og blönduðust nemendur milli föndurstöðva sem voru um allan skóla. Foreldrum var boðið að koma og taka þátt í deginum, börnunum til mikillar gleði. Nemendur fengu að fara á þrjár föndurstöðvar og var margt í boði. Sem dæmi var boðið upp á kókoskúlugerð, perla jólamyndir, lita og teikna, búa til snjókarl úr sokk, sauma, kertagerð og margt fleira. Blaðamaður Tíguls kíkti við og smellti af nokkrum myndum af fjörinu.


branding

Vigtin Bakhús

Við óskum ykkur gleðilegra jóla og þökkum fyrir viðskiptin á líðandi ári. Hlökkum til að halda áfram að taka á móti ykkur á nýju ári. 14.08.2019

ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA

Við munum halda áfram að selja íslenska framleiðslu eins og frá Pestó og brjóstsykur frá Kandís einnig munum við bjóða upp á konfekt fyrir jólin sem Biggi býr til.

/vigtin

/vigtinbakhus


Anton Örn & Hildur Rún ÞAÐ ER MIKIÐ SPILAÐ UM JÓLIN OG KEPPNISSKAPIÐ NÆR NÝJUM HÆÐUM

Hvað er í jólamatinn? Við höfum undanfarin ár verið bæði með hamborgarhrygg og hangikjöt á aðfangadagskvöld. Sú hefð að hafa hangikjöt á aðfangadag kemur úr fjölskyldunni hans Antons og við höfum haldið okkur við hana. Í ár eru báðar fjölskyldur heima hjá okkur svo það verða þrír aðalréttir, hamborgarhryggur, hangikjöt og léttreyktur lambahryggur. Eitthvað fyrir alla. Eitthvað sérstakt meðlæti? Alltaf sykurbrúnaðar kartöflur og eplasalat! Eftirminnilegasta jólagjöfin? Við erum voða lítið fyrir gjafir og gerum frekar eitthvað skemmtilegt saman. Í ár erum við að taka þetta alla leið og börn fá einungis gjafir og við fullorðnu ætlum að eiga fleiri samverustundir saman á nýju ári í staðinn. Fara í leikhús, sumarbústað eða eitthvað sem skilur eftir sig minningar. Er einhver hefð sem þið hefur tekið frá foreldrunum? Og hver þá ef já? Já, hangikjötið á aðfangadag og sú hefð að Kertasníkir gefur öllu heimilisfólki í skóinn á aðfangadag. Alltaf jafn gaman. Hafið þið skapað nýja hefð hjá ykkur? Hverja þá ef já? Við eigum svo lítil börn svo

Við óskum ykkar gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári!

við erum svona að byrja okkar fjölskylduhefðir en í ár erum við með samverudagatal sem er að ganga mjög vel og skemmtilegt að gera eitthvað lítið saman daglega t.d. lita jólamyndir, fara á bókasafnið, lesa jólabók. Spilið þið mikið fyrir jólin? og ef já, eigið þið þá uppáhalds spil? Já það er mikið spilað um jólin og keppnisskapið nær nýjum hæðum hver jól. Pöbbkviss spilin eru mjög skemmtileg. Hvað kemur ykkur í jólaskap?

Allir litlu hlutirnir í desember. Samveran með nánustu fjölskyldu, jólaljósin í skammdeginu, jólaföndur með stelpunni okkar og upplifa jólin í gegnum börnin. Hvernig skiptið þið verkum yfir jólin? Við skiptum þessu bróðurlega á milli okkar eða svona... Anton sér um að elda því annars yrði ekki jólamatur og Anton pakkar inn með dyggri verkstjórn frá mér. Annars gerum við margt af þessu saman eins og að velja jólagjafir og versla í matinn.


Er janúar þinn skoðunarmánuður?

Frumherji í Eyjum

vikuna 22. - 25. janúar Lokað í hádeginu

Tímapantanir í síma

570 9090

Við óskum Vestmannaeyingum

Gleðilegra jóla

og farsæls komandi árs. Þökkum viðskiptin á árinu.

Þú færð vörur frá okkur í:

Eyjagallerý / Sea Life Trust / Gott / Frystikista og á hjá okkur á Instagram


2023

Gleðileg jól og farsælt komandi ár! Við hjá Landsvirkjun þökkum góð samskipti á árinu sem er að líða. Hlökkum til að hittast uppfull af endurnýjaðri orku á nýju ári.


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Tígull 42. tbl 05. árg. by Leturstofan - Issuu