Skip to main content

Tígull 41. tbl 05. árg.

Page 1

41. tbl. 05. árg. 13. - 19. desember 2023


VIÐ ERUM ÖLL AÐ GEFA VINNUNA MEÐ GLEÐI Í HJARTA Jólahvísl eru tónleikar sem hafa verið haldnir nánast ár hvert síðan jólin 2016. Það er þéttur hópur sem elskar að spila og syngja saman sem mun sjá um Jólahvísl í ár en það er í höndum Elísabetar Guðnadóttur, Guðnýjar Emilíönu Tórshamar og Hjálmars Carls Guðnasonar að koma Vestmannaeyjingum og, hverjum þeim sem mætir, í alvöru kósý jólagír með ljúfum og huggulegum tónum. Núna í ár verða tónleikarnir lágstemmdir og það verður “unplugged” fílingur, eins og þau séu í stofunni heima. Bandið samanstendur af þeim þremur, Elísabetu, Guðnýju og Hjálmari, Helgi Tórshamar verður á gítar og Birkir Ingason á slagverki. Tónleikarnir verða haldnir, eins og oft áður, 21. desember að fimmtudagskvöldi kl 20:30. Dyrnar opna hálftíma fyrr, kl 20:00. Það er að sjálfsögðu frítt inn! „Við viljum gefa til baka í samfélagið okkar hérna í Eyjum og gefa öllum tækifæri til að njóta hugljúfra tónleika í aðventunni. Við erum öll að gefa vinnuna með gleði í hjarta, þetta er passion hjá okkur. Margar hendur vinna létt, en jafnframt mikilvægt verk. Tónleikagestum gefst tækifæri á að gefa til góðra málefna í Vestmannaeyjum. Peningagjafir renna til þeirra sem þurfa á að halda,“ segir Elísabet að lokum í viðtali við Tígul.

TÍGULL

Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir & Sæþór Vídó.

DREIFING:

ÚTGÁFA:

SKIL Á AUGLÝSINGUM:

Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is

Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is

Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.


KÆRI NÁGRANNI! SENDUM ÞÉR OG ÞÍNUM BESTU ÓSKIR UM GLEÐILEGA HÁTÍÐ Afgreiðslutími um jól og áramót

Vesturvegi 5 Sími 481 3900

22. des

9–20

23. des

10–15

24. des

LOKAÐ

25. des

LOKAÐ

26. des

LOKAÐ

27. des

10–18

28. des

9–18

29. des

9–18

30. des

10–15

31. des

LOKAÐ

1. jan

LOKAÐ

2. jan

10–18

apotekarinn.is Vestmannaeyjum


ÓVÆNT HEIMSÓKN Á LETURSTOFUNA Við fengum óvænta heimsókn á Letustofuna í síðustu viku þegar að Askasleikir og Trölli kíktu við. Við tókum þá í létt spjall og fengum þá saman í myndatöku. Það gekk nú ekki snuðrulaust fyrir sig þar sem að Trölli reyndi að stelpa jólatrénu okkar og varð smá barningur fyrir framan myndavélina. En Jólasveinninn kom okkur til bjargar og passaði upp á jólatréð okkar hér á Leturstofunni. Nafn: Grinch (Trölli) Aldur: Ég er 57 ára og bý í hellinum í Helgafelli. Hver er besti vinur þinn? Hundurinn minn Max er besti vinur minn. Hann er samt mjög pirrandi. Uppáhalds maturinn þinn? Glerbrot og lífrænt rusl. Hvað langar þig í jólagjöf? Lítinn grís. Ertu búinn að jólaskreyta? NEI! Hvað er skemmtilegast við jólin? Mér finnst ekkert skemmtilegt um jólin. Hvað gerir þú á jólunum? Ég hræði börn og reyni að stela jólunum. Ég mætti á Stakkó um daginn þegar kveikt var á jólatrénu... ég reyndi mitt besta til að slökkva á því en ég sé það er búið að kveikja á því aftur. Hvað er mesta prakkarastrikið sem þú hefur gert? Þegar ég reyndi að ræna Írisi Róbertsdóttur bæjarstjóra.

Fullt nafn: Askasleikir Leppalúðason Aldur: Ég hætti að telja þegar ég var 7 ára sem er líklega fyrir 500 árum. Foreldrar: Grýla og Leppalúði. Systkini: Þið þekkið bræður mína jólasveinana svo eru það tröllin og Leiðindaskjóða. Hver er uppáhalds bróðir þinn? Stúfur, ég er svo hávaxinn við hliðina á honum. Hver er besti vinur þinn? Ekki Grinch (Trölli). Allir bræður mínir eru mínir bestu vinir. Uppáhalds maturinn þinn? Allur matur sem kemst í askinn minn. Hvað langar þig í jólagjöf? Nýjan ask, minn er orðinn 200 ára gamall. Ertu búinn að jólaskreyta? Já við bræðurnir gerum það í apríl. Hvað er skemmtilegast við jólin? Að gefa börnunum í skóinn. Fá jólasveinar jólagjafir? Auðvitað! Hvernig er að vera jólasveinn? Alveg eins og að vera þú nema skemmtilegra, fyndnara og jólalegra. Hvenær kemur þú til byggða? Ég er kominn! En ég gef í skóinn 17. desember - ég er númer 6. Eitthvað að lokum? Já passið askana ykkar þessi jólin, mig vantar nýjan. Ef þið þurfið á mér að halda þá er hægt að hafa samband við mig á facebook: Jólasveinn á Heimaey.


OR ÐA ÞR AU T

BJÖLLUR KERTI SPIL PARTÝ HREINDÝR NORÐURPÓLLINN

JÓLASVEINN ÁLFAR TRÖLL JÓLASTJARNA JÓLAFRÍ SLEÐI

KERTASNÍKIR GILJAGAUR STEKKJASTAUR STÚFUR ÞVÖRUSLEIKIR POTTASKEFILL

ASKASLEIKIR HURÐASKELLIR SKYRGÁMUR BJÚGNAKRÆKIR GLUGGAGÆGIR KETKRÓKUR


sími: 488 3550 / skipalyftan.is

Opnunartími virkir dagar: 07:30 - 18:00 og laugardaga 10:00 - 12:00

Falleg lukt á leiðið fyrir friðarkertin Kertalukt

verð: 18.000 kr.

Gæðavörur í jólapakkann fyrir hann!


HVAÐ ER UM AÐ VERA Í DESEMBER? 14-21 DESEMBER

21

DESEMBER

JÓLASVEINAKLÚBBUR Bókasafns Vestmannaeyja. Fyrir öll börn.

16

DESEMBER

Jólahvísl

JÓLAFÖNDUR

á bókasafni Vestmannaeyja

14-17 DESEMBER

PAKKAJÓL

á bókasafninu á opnunartíma! Koma með pakka og merkja ca. aldrur og kyn. (fyrir 0-18 ára)

14-23

23

DESEMBER

DESEMBER

STAFARATLEIKUR

ÞORLÁKSMESSURÖLT!

á Beluga Whale Sanctuary frá klukkan 12:00 - 16:00

Bárustígur lokaður að minnsta kosti að kvöldi til.

22

30

DESEMBER

DESEMBER

KRISTÓ OG ELVAR BRAGI Á HÁALOFTINU

Tónleikarnir hefjast stundvíslega kl. 21:00 Forsala er hafin á tix.is - 3.000 kr.


þú færð

JÓLAgjöfina

hjá okkur!

Sony 1000XM5 Framúrskarandi noise cancel HEYRNARTÓL með Bluetooth.

Sony Bluetooth HÁTALARI SRSXE200 X-Seria. Vatns og rykvarinn.

Sony LinkBuds S HEYRNARTÓL með Noise Cancel

Strandvegur 30 / 481 1475 / www.mistodin.is / midstodin@midstodin.is


UPPSKRIFT VIKUNNAR Einföld & jólaleg marengsbomba Það er alltaf hægt að baka marengs með góðum fyrirvara svo ef það er helgi eða veisla framundan má vel gera marengsinn nokkrum dögum fyrr og geyma bara í köldum ofninum. Þá er svo lítið mál að þeyta rjóma og raða ofan á hann deginum áður. En ef tíminn er naumur þá má hann bara kólna aðeins niður með ofninum og svo taka hann út og leyfa honum að kólna alveg áður en rjóminn er settur ofan á.

Marengs og toppar uppskrift 5 eggjahvítur 350 g púðursykur Hitið ofninn í 140°C. Þeytið saman eggjahvítur og púðursykur þar til topparnir halda sér vel. Teiknið um 25 cm hring í þvermál á bökunarpappír og útbúið vænan marengsbotn (út um ¾ af blöndunni) og sprautið marengstoppa á aðra bökunarplötu úr restinni. Bakið toppana í 40 mínútur og takið þá út úr ofninum en bakið marengsinn áfram í 20 mínútur til viðbótar eða samtals í eina klukkustund. Leyfið honum að kólna niður með ofninum. Fylling & skraut 500 ml þeyttur rjómi Litlar kókosbollur Snjóboltar frá Kólus, í öllum litum Hindber og rifsber Marengstoppar Smyrjið rjómanum yfir marengsbotninn. Raðið öðrum hráefnum að vild ofan á rjómann! Uppskrift og myndir frá vefsíðunni gotteri.is


SUDOKU


Viltu minnast látins ættingja eða vinar? Hægt er að senda okkur minningargrein á netfangið tigull@tigull.is og við birtum fyrir þig greinina á útfarardegi. Einnig er hægt að panta hjá okkur andlátstilkynningu og tilkynningu á vef. Verð: 12.400 kr.

HÖNNUN &PRENTUN

Á HINU OG ÞESSU Setjum upp og seljum auglýsingar í blöð fyrir hina ýmsu einstaklinga og félagasamtök t.a.m. • Afsláttarbók LEB • LEB blaðið • Sjómannadagsblað Vestmannaeyja • Þjóðhátíðarblað Vestmannaeyja • Sjómannablaðið Víkingur • Heima er bezt • VM blaðið • Blað Rafiðnaðarsambandsins • Tímaritið Úti • Vikublaðið Tígull

900 Vestmannaeyjar // Vestmannabraut 38 leturstofan@leturstofan.is // s. 481 1161

leturstofan

leturstofan


Athafnasvæði við Ofanleitisveg (AT-4) - Skipulagslýsing Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti 30. nóvember 2023 að kynna skipulagslýsingu fyrir fyrirhugaðar breytingar á Aðalskipulagi Vestmannaeyja 2015-2035 og gerð deiliskipulags á landnotkunarreit athafnasvæðis AT-4. Helstu breytingar sem fyrirhugaðar eru, er að gert er ráð fyrir breyttum skipulagsmörkum landnotkunarreits AT-4 þar sem lóð við Ofanleitisveg 26 og syðsti partur Landbúnaðarsvæði L-4 færast yfir á landnotkunarreit AT-4. Skipulagsgögnin eru til sýnis í afgreiðslu Ráðhúss Vestmannaeyja og má finna á skipulagsgátt á vefsíðu sveitarfélagsins. Ábendingum og athugasemdum við tillöguna þarf að skila skriflega eigi síðar en 29. desember 2023 í afgreiðslu Ráðhúss eða á netfangið dagny@vestmannaeyjar.is

GETUR ÞÚ HJÁLPAÐ JÓLASVEININUM AÐ FINNA GJAFIRNAR?


TIL SÖLU

13 DES

Kviku kl. 13:00 - 16:00

13

SÖNGDÍFUR SIGURRÓSAR

DES

Nissan NV 200 árg 2018 // Diesel // Heilsárs dekk og sumar dekk fylgja. Verð 1.850.000 eða tilboð // Upplýsingar í síma 868-4539 (Óli Már)

13 DES

14 DES

Auglýsingasími Tíguls: 481-1161 tigull@tigull.is

HANDVERK & HITTINGUR

14 DES

15

Vinaminni/Kviku kl. 16:00 - 17:00

SÖNGHÓPUR LALLA

Kviku kl. 17:00 - 18:00

DRENGJARADDIR LALLA

Vinaminni/Kviku kl. 17:00 - 18:00 SPILAVIST

KVIKU kl. 19:30

LEIKFIMI MEÐ EYGLÓ EGILS

DES

Íþróttahús kl. 10:00 - 11:00

19

Sundlaug Vestmannaeyja kl. 14:00 - 15:00

DES

SUNDLEIKFIMI

Hressingarganga í Herjólfshöllinni alla daga kl. 08:00 - 12:00

ERT’AÐ BREYTA?

BAÐHERBERGINU? ELDHÚSINU? INNRÉTTINGUM? PARKETLEGGJA?

A lm e n n t v ið h a ld & s m íð i!

NÝJA

TANNLÆKNASTOFAN

EyjarDýr er ný netverslun sem er með fría heimkeyrslu fyrir íbúa í Vestmannaeyjum sem panta hjá okkur!

Flötum 29 Tímapantanir í síma: 481-1012 Neyðarsíminn: 844-5012 tannsi@eyjar.is

s. 772-1771 / 772-7175 / ggsmidir@gmail.com

eyjadyr.is


HERGILSEY Sherpa ullarkápa 22.990kr,-

www.icewear.is


Gjafakort Landsbankans Með gjafakortinu er ekkert mál að velja réttu jólagjöfina. Þú ákveður upphæðina og sá sem þiggur velur gjöfina. Þú færð gjafakort í næsta útibúi eða á landsbankinn.is.


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Tígull 41. tbl 05. árg. by Leturstofan - Issuu