21. tbl. 03. árg. 8.júní - 14.júní 2022
SJÓ
MANN
2 A HELGIN 2 0
2
U DAGS KRÁIN ER Í BLAÐIN
óskar sjómönnum & fjölskyldum til hamingju með daginn!
TÍGULL
Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir & Katrín Laufey Rúnarsdóttir. Forsíðumyndina tók Friðrik Jesson af Binna í Gröf og Einari.
DREIFING:
ÚTGÁFA:
SKIL Á AUGLÝSINGUM:
Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is
Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is
Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.
Til hamingju með daginn sjómenn!
Fylgstu með lífinu á sjónum á tigull.is
Við hvetjum sjómenn til þess að senda okkur myndir & fréttir af sjónum Fylgstu með eyjaflotanum á rauntíma
TÍGULL tigull@tigull.is
B
estu árnaðaróskir og kveðjur til sjómanna og allra Vestmannaeyinga á sjómannadaginn!
SJÓMENN - YFIRHEYRSLAN
Fullt nafn: Gísli Matthías Sigmarsson Aldur: 30
Fullt nafn: Agnar Magnússon Aldur: 51
Hvenær byrjaðir þú á sjó og hvar: Ég man það nú ekki allveg, en ég var ungur þegar ég byrjaði að leysa af á sjó fyrst á hinum og þessum bátum í Eyjum. Fyrsta dagróður fékk ég að fara með Jonna á trébátnum Frú Magnhildi, þá líklega 12 ára og búinn að suða í pabba að fá að fara á sjó þar til hann gaf undan og talaði við Jonna. Ég lá nú að mestu bara eins og ónytjungur í netahrúgu úti á dekki ælandi.
Hvenær byrjaðir þú á sjó og hvar: Ég byrjaði á sjò 1990 hjá Vinnslustöði á bát sem hét Styrmir.
Hvað heillaði við sjómennskuna: Félagskapurinn er fyrst og fremst frábær svo er starfið fjölbreytt og skemmtilegt. Svo er þetta nú líklega eitthvað í genunum líka.. Mér hefur alltaf liðið vel á sjó en það getur þó verið önugt í miklum brælum og fjarveran frá fjölskyldu og vinum getur oft verið erfið. Eftirminnilegasti sjómaðurinn sem þú hefur róið með: Svenni útlendingur (Sveinn Garðarsson) Eftirminnilegasti túrinn: Það hefur verið einhver túrinn sem veiði hefur gefið vel. Það er alltaf gaman.
Hvað heillaði við sjómennskuna: Vinnan er gòð og góðir skipsfélagar. Eftirminnilegasti sjómaðurinn sem þú hefur róið með: Hrafn Oddsson og Bergvin Oddsson. Eftirminnilegasti túrinn: Þeir eru margir erfitt að taka einn ùt en alltaf stendur uppúr að rò með Glòfaxabræðrunum.
SJÓMENN - YFIRHEYRSLAN Nafn: Óskar Birgir sigurþórsson. Aldur: 53 ára Hvenær byrjaðir þú á sjó og hvar: Byrjaði á Gjafar ve. 1985 á innfjarða síld hún var veidd í nótt inn á Austfjörðum. Ég var sextán ára. Hvað heillaði við sjómennskuna: Var í raun ekki heillaður af henni hélt alltaf að eldri bróðir minn yrði sjómaður hann var að fara með pabba og afa á sjó. Svo fór vinur minn á Gjafar og ég elti hann. Þetta var erfitt ég var alltaf að berjast við sjóveiki en lét hana ekki sigra mig en það tók mig um tuttugu ár að sigra hana maður lærði að lifa með sjóveikinni. Í dag heillar sjómennskan mig það er gott að vera á sjó.. Eftirminnilegasti sjómaðurinn sem þú hefur róið með: Gestur breyðfjörð skipstjóri er mér alltaf efstur í huga mikill sjómaður og góður félag réri með houm á frysti togara fra Hafnafirði svo má ekki gleyma Grim frá felli einn sá allra skemmtilegasti sem ég hef verið með á sjó. Eftirminnilegasti túrinn: Eftirminnilegast er þegar ég var á Klakk VE þegar við fylltu skipið nokkrum sinnum af búra og þegar við á Huginn byrjuðum fyrstir að fiska makríl hér við land.
Nafn: Björgvin Þór Björgvinsson Aldur: 49 ára gamall Hvenær byrjaðir þú á sjó og hvar? Ísfélagi Vestmannaeyja Hvað heillaði þig við sjómennskuna? Launin Eftirminnilegasti sjóðmaðurinn sem þú hefur róið með? Magnús Örn Guðmundsson Eftirminnilegasti túrinn? Fullfermi á frystitogaranum Snorra Sturlusyni, 980 tonn upp úr sjó á 3 vikum.
BOLUR KR. 9.900 PÓLÓBOLUR kr. 12.900
BÝR Á HÁRSTOFU VIKTORS
kr. 34.900
SOKKA GJAFASETT kr. 9.000
kr. 37.000
SOKKA GJAFASETT kr. 7.500
SENDUM SJÓMÖNNUM OG FJÖLSKYLDUM BESTU KVEÐJUR Á SJÓMANNADAGINN
ÞRJÚ SOKKAPÖR kr. 4.900
VESTMANNABRAUT 35
MIKIÐ ÚRVAL AF ÚRUM
|
S. 481 2035
HVAÐ SEGJA BÖRNIN UM SJÓMENNSKUNA? Nafn & aldur: Sigrún Arna Baldvinsdóttir, 4 að verða 5 ára. Þekkir þú einhverja sjómenn? Pabbi Hinriks Daða, pabba minn og pabbi Óttar Þórs og Emil. Hefur þú farið á sjó? Nei Borðar þú fisk? Já, samt elska ég fisk mikið. Hvað gera sjómenn? Þeir veiða fisk og borða fiskinn. Hvað langar þig að vera þegar þú verður stór? Jafn stór og pabbi. Þekkir þú einhverja fiska? Nei, ég þekki enga fiska.
Nafn & aldur: Saga Margrét Sindradóttir, 5 ára Þekkir þú einhverja sjómenn? Afi Bjössi, Baldvin Þór frændi og Guðbjartur Logi. Hefur þú farið á sjó? Bara í Herjólf. Þekkir þú einhverja fiska? Ída, Lísa, Hákarl, Blómafiskur, Plokkfisk, fisk í raspi. Hvað gera sjómenn? Veiða fiskinn en Guðbjartur er að veiða hákarlinn. Hvað langar þig að vera þegar þú verður stór? Ég ætla að vinna í dótabúðinni, bakaríinu og nammibúðinni
Nafn & aldur: Katla Svava Karlsdóttir Þekkir þú einhverja sjómenn? Já Hallur og Palli. Hefur þú farið á sjó? Bara í Herjólf. Borðar þú fisk? Já. Hvað gera sjómenn? Veiða fisk. Veistu hvað fiskarnir heita.. nokkur dæmi? Ýsu, loðnu, skötusel og Hákarl. Hvað langar þig að vera þegar þú verður stór? Dýralæknir.
við Strandveg · Sími 481-1559
uís - Kúl l vé - ís í efur gðar a r b -
Til hamingju með daginn sjómenn & fjölskyldur ACAI SKÁL
- Sykurlaust granóla - ACAI GRUNNUR - GRÍSK JÓGÚRT - JARÐARBER, BLÁBER & BANANI - Kókosflögur, döðlur & eða súkkulaði - Hnetursmjög eða súkkulaði síróp
PRÓTEIN SKÁL
- Þeytt hindber, mangó & möndlumjólk - jarðarber, bláber & banani - granóla - Kókosflögur, döðlur og eða súkkulaði - hnetusmjör eða súkkulaðisíróp - próteinduft
Acai & Prótein heilsuskálar! FÁST HJÁ OKKUR
VIÐ ÓSKUM SJÓMÖNNUM & FJÖLSKYLDUM ÞEIRRA TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN!
Frár VE
GRINDAVÍKURHÖFN
Starfsmannaferðir frá Vestmannaeyjum
Frábær ferð frá Eyjum - hentar vel fyrir vinahópa, saumaklúbba, áhafnir eða starfsmannafélög!
www.vikingferdir.is
BÓKAÐU FERÐ Í SÍMA 488 4800
Sendum sjómönnum og fjölskyldum þeirra bestu kveðjur í tilefni sjómannadagsins.
Ársfundur deildar VR í Vestmannaeyjum Ársfundur deildar VR í Vestmannaeyjum verður haldinn fimmtudaginn 9. júní 2022 kl. 12.00 á hádegi, í Þekkingarsetri Vestmannaeyja að Ægisgötu 2.
VIÐ ÓSKUM SJÓMÖNNUM & FJÖLSKYLDUM ÞEIRRA TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN!
Hefðbundin ársfundarstörf verða á dagskrá. Boðið verður upp á léttar veitingar Gestir fundarins Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR Stefán Sveinbjörnsson, framkvæmdastjóri VR
Sumaropnun Virka daga: 06.00 – 21:00 Helgar: 09:00 - 18:00 Hvítasunnudagur: 09:00 - 18:00 Annar í hvítasunnu: 09:00 - 18:00 Þjóðhátíðardagur Íslendinga - 17. júní: 09:00 - 17:00 Þjóðhátíð (fös-sun): 10:00 - 17:00 Frídagur verslunarmanna - fyrsti mánudagur í ágúst: 10:00 - 20:00
Sendum sjómönnum og fjölskyldum þeirra bestu kveðjur í tilefni dagsins.
BÁRUSTIG 1 | S. 481 3939
Við óskum sjómönnum & fjölskyldum þeirra til hamingju með daginn!
/midstodin Strandvegur 30 / 481 1475
www.midstodin.is / midstodin@midstodin.is
ÞRAUTIR
ORÐAÞRAUT
VEIÐARFÆRI KVÓTI SKIP
TROLL NET SJÓMAÐUR
BÁTUR ÚTGERÐ
FISKUR AKKERI
SJÓ
MANN
2 A HELGIN 2 0
2
DAGSKRÁ Sjómannadagshelgarinnar 2022 FIMMTUDAGUR 9. JÚNÍ Kl. 16.00 Sjómannablaði Vestmannaeyja dreift um bæinn Skátarnir dreifa Sjómannablaðinu frítt í öll hús í Vestmannaeyjum. Fimleikafélagið sér um merkjasölu. Takið vel á móti sölubörnunum. Kl. 10.00 Sjómannadagshelgin í söfnunum: - 17:00 Í Einarsstofu – myndlistasýning Villa á Burstafelli. Opið í Sagnheimum, byggðasafni í Safnahúsinu og Sagnheimum, náttúrugripasafni við Heiðarveg. Einnig er opið í Landlyst og Stafkirkjunni á sama tíma. Kl. 18.00 Ölstofa The Brothers Brewery Sjómannabjórinn 2022 – kynntur kl. 18:00. Kemur á dælu við hátíðlega athöfn. Opið 12.00 til 23.00.
FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ Kl. 08.00 Golfskálinn Opið Sjómannamót Ísfélags Vestmannaeyja í golfi. Skráning í síma 481-2363 og á golf.is. Vegleg verðlaun í boði. Mótið stækkar og stækkar á hverju ári og við mælum með að þið skráið ykkur snemma. Kl. 21:00 Tónleikar í Höllinni Classic Rock með Matta & Magna Húsið opnar kl. 20:00 Kl. 12.00 Ölstofa The Brothers Brewery - 24:00 Sjómannalög, létt og þægileg stemning. Opið frá 16.00 Frúin góða vínbar með opið alla helgina Opið frá 16.00 Lundinn með opið alla helgina.
LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ Kl. 11.00 Dorgveiðikeppni SJÓVE og Sjómannadagsráðs á Nausthamarsbryggju Vegleg verðlaun, stærsti fiskur, flestir fiskar og fleira. Svali og prins póló fyrir þátttaendur. Kl. 13.00 Sjómannafjör á Vigtartorgi: Séra Viðar blessar daginn. Kappróður, koddaslagur, tuðrukvartmíla, lokahlaup, sjómannaþraut, foosball völlur á staðnum, þurrkoddaslagur. Blöðrudýr fyrir krakkana. Hoppukastalar. Ribsafari býður ódýrar ferðir. ÍBV verður með poppkorn, og Kjörís í fjölbreyttu úrvali Blaðrarinn mætir á svæði og ýmsar þrautir. Kl. 23:00 Sjómannaball, Hreimur Viggi & hljómsveit. Veislustjórar Benni og Fannar úr Hraðfréttum. Sjómannabjórinn á uppboði! Á borðhald opnar húsið kl. 19:00, matur hefst kl. 20:00
SUNNUDAGUR 12. JÚNÍ Kl. 10.00 Fánar dregnir að húni Kl. 13.00 Sjómannamessa í Landakirkju Séra Viðar predikar og þjónar fyrir altari. Eftir messu sér Geir Jón um minningarathöfn við minnisvarða hrapaðra og drukknaðra, Lúðrasveit Vestmannaeyja leikur nokkur lög. Blómsveigur lagður að minnisvarðanum. Kl. 14.00 Eykindilskaffi - 17:00 Glæsilegar kræsingar Eykyndilskvenna í Akoges. Kl. 15.00 Hátíðardagskrá á Stakkó Lúðrasveit Vestmannaeyja leikur undir stjórn Jarls Sigurgeirssonar. Heiðraðir aldnir sægarpar. Valmundur Valmundsson stjórnar. Karlakór Vestmannaeyja flytur nokkur lög undir stjórn Þórhalls Barðasonar Ræðumaður sjómannadagsins er Kári Bjarnason. Verðlaunaafhending fyrir kappróður, koddaslag, lokahlaup, sjómannaþraut, dorgveiðimót og sjómannamótið í golfi. Leikfélagið, hoppukastalar, Kjörís, popp og svali.
SÝNINGAR & SÖFN
ELDHEIMAR 11:00 - 18:00 || EINARSSTOFA 10:00 - 17:00 || HVÍTA HÚSIÐ 14:00 - 18:00 LANDLYST, STAFKIRKJAN 10:00 - 17:00 || SAGNHEIMAR, BYGGÐASAFN 10:00 - 17:00 SJÓMINJASAFN ÞÓRÐAR RAFNS Laugardag og sunnudag 13:00 - 16:00
TILKYNNING FRÁ SJÓMANNADAGSRÁÐI
Þeir sem ætla að taka þátt í kappróðrinum og öðrum dagskráratriðum vinsamlegast hafið samband á facebook síðu Sjómannadagsráðs eða í neðangreinda síma ráðsins: 869-4449, 697-9695 eða 898-7567.
11
06 / 2022
SJÓMANNA DAGSBALLIÐ BENNI & FANNAR ÚR HRAÐFRÉTTUM VEISLUSTJÓRAR
MATSEÐILL FYRIR SJÓMANNADAGINN 2022
HREIMUR, VIGGI & HLJÓMSVEIT MEÐ BALL GULLÖLDIN SKEMMTIR Á BORÐHALDI
HÚSIÐ OPNAR KL. 19 & MATUR HEFST KL. 20 HÚSIÐ OPNAR FYRIR ALMENNING Á BALL KL.
GLÆSILEGUR VEISLUMATUR FRÁ EINSA KALDA FÖSTUDAGUR 10/6 CLASSIC ROCK MEÐ MATTA & MAGNA
MOLDA HITAR UPP MEÐ EYJAROKKI HÚSIÐ OPNAR KL. 20 & BYRJAR KL. 21
MIÐASALA Á TIX.IS
FORRÉTTIR VIÐ INNKOMU: Nobashi rækjur í tempura Wakame salat, ristaður hvítlaukur, yuzu-majó Belgísk vaffla Létt reykt jöklableikja, dill-krem, granatepli Hrefnu tataki Græn epli, piklað chili, wafu-dressing Andasalat Stökk andalæri, spínat, mandarínur, mynta, kóriander vinagretta Soðbrauðs smáborgari „Chimichurri“ 23 Hægelduð nautakinn, trufflu-krem, lauksulta, blaðkál AÐALRÉTTIR STEIKARHLAÐBORÐ: Nautalundir Kalkúnabringur Brakandi purusteik MEÐLÆTI: Ferskt salat new style, Rómin kál, brauðteningar, parmesan, sesardressing Sætkartöflusalat, Kasjúhnetur, trönuber, döðlur, vorlaukur, Svepparagú Kastaníusveppir, skarlottlaukur, cantarellur Kremað kartöflusmælki, Dill, kryddsmjör, sjávarsalt, Villisveppasósa, Bernaisesósa
EFTIRRÉTTAHLAÐBORÐ: Súkkulaði brownies, saltkaramellukrem, sjávarsalt Snickers Pavlóva, Karamella, ástaraldin, Toblerone mús, Þurrkað jógúrt, bláber, Mini cupcakes
OPIÐ FRÁ 16 ALLA VIRKA DAGA TIL 02 FÖS OG LAU TIL 04 KOMDU OG KÍKTU VIÐ!
TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN KÆRU SJÓMENN OG FJÖLSKYLDUR!
MINNING UM MANN: BINNA Í GRÖF
Binni í brúarglugganum á Gullborgu Ve. Ljósmynd: Friðrik Jesson.
Hann kemur oft í huga minn þegar líður að sjómannadegi. Blessuð sé minning hans. Benóný Friðriksson var fæddur 7. janúar 1904 að gröf í Vestmannaeyjum og ólst þar upp hjá foreldrum sínum. Við húsnafnið Gröf var hann kendur til æviloka og nefndur Binni í Gröf. Binni var ekki gamall, þegar hann fór að draga fisk úr sjó. Innan fermingaraldurs fór Binni að róa á smábát hjá Jakob Tranberg ( Faðir Valdimars Tranbergs). Kom þá fljótt í ljós hjá honum framúrskarandi áhugi og fisksæld á handfærakrókinn. Fimmtán ára gamall byrjaði Binni formensku að sumri til með árabát, sexæring. Voru þeir 4 á bátnum og voru hásetarnir jafnaldrar hans. Þeir fiskuðu vel og þarna kom strax í ljós yfirburða skipstjórnarhæfileikar hans, sem seinna gerði hann landsfrægan aflaskipstjóra sem varð alla tíð jafnvígur á öll veiðarfæri sem
hann notaði til veiða. Vertíðina 1954 varð hann skipstjóri á Gullborg RE 38 og það varð hans mesta happa- og aflaskip, því á því skipi varð hann Aflakóngur Eyjanna vetrarvertíðina 1954. eða til vertíðarloka 1959 eða sex vertíðir í röð og sjö urðu þær vetrarvertíðir alls sem hann varð aflakóngur í Vestmannaeyjum og margar þeirra hæstur yfir landið. Gullborg RE 38 Benóný var dáður af sínum samstarfsmönnum og alveg sérstaklega af hans stéttarfélögum og þeim sjómönnum sem voru svo heppnir að fá að vera með honum á sjó og kynnast honum. Ég undirritaður þekkti Binna nokkuð vel, var með honum á sjó og er alinn að nokkru leiti upp hjá Sjöfn ( Bobbu) dóttir hans og manni hennar frænda mínum Gísla Sigmarssyni heitnum. Ég upplifði Benóný sem mjög skap-
góðann mann. Hann gat reyndar orðið snöggillur ef ekki var farið að skipunum hans á sjónum, en það var búið um leið, gleymt og grafið. Hann er einn af þessum mönnum sem maður hugsar til með hlýhug og þótti vænt um og er stoltur af að hafa verið með til sjós. Hann gat stundum verið skemmtilega sérstakur í háttum og tilsvörum. Þegar slæmt var veður og við kallarnir á bátnum spurðum hann hvort það yrði farið á sjó? Þá svaraði Binni ætíð: ‘Það er alveg á nippinu’. Þetta var svona orðatiltæki sem hann notaði oft og þá vissum við að það yrði örugglega farið á sjó. Á nippinu þýddi einfaldlega Já – því þó hann væri varkár í sjósókn sótti hann sjóinn fast, enda afburðugóður sjómaður í alla staði. Aldrei hallmælti hann mat þó stundum hafi það komið fyrir um borð að matur var ekki alveg upp á það besta enda stundum óvanir menn eða konur að kokka. Þegar hann var spurður hvernig maturinn væri svaraði hann ávalt með þessari setningu: " þetta er alveg sallafínt hjá þér,, Einar vélstjóri Einar Sigurðsson sem var mjög lengi vélstjóri hjá Binna benti mér eitt sinn á að hægt væri að sjá á Binna hvort eitthvað væri í trollinu eða ekki. Þetta var þegar ég var með honum á Elliðaey. Þannig háttaði að Binni notaði handþokulúður til að ræsa okkur til að hífa. Þegar hann blés í lúðurinn áttu allir að koma upp á dekk og hífa inn trollið. Einar var búinn að taka eftir því að ef Binni hékk áhugalaus með höfðið út um stýrishúsgluggann og með lúðurinn í hangandi hendinni, þá var ekkert í trollinu. Ef hann kom út á brúarvænginn með báða þumalputtana í buxnavösunum, þá var smá möguleiki að það væri eitthvað í trollinu. En ef hann kom út á brúarvæng, hélt í handriðið með báðum höndum og iðaði allur,
Maður hélt stundum að hann væri sofandi á bekknum en hann hafði einhvern veginn alltaf andvara á sér því hann var endalaust að spyrja: Lóðar hérna ? hvað er dýpið ? hvað er langt í land ? dýpkaðu aðeins á þér. Þannig var hann alltaf meðvitaður um það hvar báturinn var hverju sinni, þó hann legði sig á bekkinn og væri þar milli svefns og vöku. Benóný var sæmdur Fálkaorðunni 1971 fyrir störf sín á sjónum. Ég hef áður lýst á bloggi mínu veru minni á Gullborg RE 38 þegar ég réði mig þar sem II. vélstjóra og ætla því ekki að endurtaka þær sögur hér. Binni og Kata Kona Benónýs Friðrikssonar var Katrín Sigurðardóttir frá Þinghóli í Hvolhreppi og áttu þau saman 8 börn. Blessuð sé minning hennar. Benóný lést 12. maí 1972. Skáldin kunna að segja hlutina í færri orðum en við hin, Hafsteinn Stefánsson skipasmiður, skipstjóri og skáld orti um vin sinn Binna eftirgarandi ljóð sem hann nefndi; Útför Binna í Gröf:
Binni og Einar við löndun. Ljósmynd: Friðrik Jesson.
þá var víst að það var mikið í trollinu. Eftir að hafa fylgst með þeim gamla sá ég að þetta var rétt hjá Einari. Eitt er mér mjög minnistætt í fari hans og það er hvað hann notaði mikinn sykur í kaffið, maður hélt stundum að hann væri búinn að gleyma sér þegar hann var að moka sykrinum í könnuna í það minsta 8 til 10 teskeiðar. Binni var ótrúlega glöggur maður, það var eins og hann vissi alltaf nákvæmlega hvar hann var á sjónum þó hann hefði ekki öll siglingatækin í lagi. Það lýsir honum vel þegar eitt sinn bilaði ratarinn hjá honum. Skipstjórar í dag og engu að siður þá, vildu ekki vera radar lausir á sjó, en hann var ekkert að æsa sig yfir þessu, þetta virtist ekki há honum hið minnsta. Hann lét ekki laga radarinn fyrr en mörgum mánuðum seinna. Hann þekkti sjávarbotninn kringum Eyjar og víðar eins og buxnavasana sína og einhvern veginn gat hann
einnig staðsett sig eftir sjólaginu kringum bátinn. Ég var um tíma stýrimaður hjá Binna á Elliðaey RE sem Binni kallaði aldrei annað en Ellirey, ég spurði hann einu sinni afhverju hann kallaði Eyjuna og bátinn Ellirey, og hann svaraði ; Af því að hún heitir Ellirey. Við vorum á trolli og vorum oftast þrjá sólarhringa úti í hverjum róðri, allan þann tíma svaf Binni ekki eins og við hinir á bátnum. Binni var eiginlega vakandi allan tímann, en svaf þess meira þegar hann var heima hjá sér í landi. Skipstjóraklefinn var fyrir neðan brúnna einungis stigi úr brúnni og niður í skipstjóraklefann. En þangað fór hann yfirleitt aldrei, nema þegar verið var að stíma lengri leiðir milli veiðisvæða. Einstaka sinnum lét hann leysa sig af á toginu, en þá lagði hann sig á bekk sem var í stýrishúsinu, bekkurinn var svo þröngur að hann lá þar í hnipri.
Útför Binna í Gröf Út siglir fley í aftan skini eilífðarstefnu velur sér. Kveðjuna senda kærum vini klettarnir, drangur, flúð og sker. Regnský frá auga ægir strýkur ávarpar stillt sín breiðu höf. Nú fá ekki dæturnar leikið lengur við litla skipið hans Binna í Gröf. Þjóð sinni drjúgan færði fenginn fórnaði kröftum lífi og sál. Þeir vissu best sem þekktu drenginn að þrek hans var mest ef syrti í ál. Um ókomna tíma alltaf verður ósk vors harðbýla föðurlands að synir þess megi flestir feta í fótspor hins mikla afreksmanns. Hafsteinn Stefánsson
Það er gaman að halda minningu þessara manna á lofti, manna sem settu svo sannarlega svip sinn á sína samtíð, alla vega finnst mér að þeir eigi það skilið af okkur sem enn munum eftir þeim, Binni er einn af þeim. - Sigmar Þór Sveinbjörnsson
HVAÐ SEGJA BÖRNIN UM SJÓMENNSKUNA? Nafn & aldur: Hörður Kári Ísfjörð Pálmason, 4 ára Þekkir þú einhverja sjómenn? (hverja þá) Afi Gummi. Hefur þú farið á sjó? Bara í Herjólf. Borðar þú fisk? Já, steiktur fiskur er góður. Hvað gera sjómenn? Sigla og veiða fisk. Hvað langar þig að vera þegar þú verður stór? Slökkviliðsmaður. Þekkir þú einhverja fiska? Nei ég þekki enga fiska. Nafn & aldur: Kristófer Daði 8 ára Þekkir þú einhverja sjómenn? Já, Hallur pabbi, Bjössi, pabbi hans Breka og pabbi hans Elías, og pabbi hans Svenna Hefur þú farið á sjó? Já í Herjólf auðvitað Borðar þú fisk? Nei mér finnst hann ekki góður. Hvað gera sjómenn? Fara út á sjó og veiða fiska og fá svo pening í staðinn. Þekkir þú einhverja fiska? já Þorskur, Steinbítur, Ýsa, hákarl, höfrungar, Loðna, Kolmuni, Makríll og Síld og Skata Hvað langar þig að vera þegar þú verður stór? Ég veit það ekki, en held mig langi að vera lögga. Nafn & aldur: Rúnar Vignir Skæringsson Þekkir þú einhverja sjómenn? Afi Halldór Hefur þú farið á sjó? Nei en samt vil ég fara með afa í fiskaskipið að veiða fisk Borðar þú fisk? Nei, en stundum borða ég fiskinn minn. Hvað gera sjómenn? Veiða fisk. Veistu hvað fiskarnir heita.. nokkur dæmi? Já, hákarla og hvali Hvað langar þig að vera þegar þú verður stór? Ég vill vera maður sem vinnur í Eimskip eins og pabbi minn og keyra lyftara og stóru bílana.
Verslun Skipalyftunnar MIKIÐ ÚRVAL AF: PALLAEFNI VERKFÆRUM VINNUFATNAÐI
HJÓL FYRIR BÖRNIN VEIÐARFÆRAVÖRUM BOLTUM, RÓM OG SKÍFUM STRAUB TENGJUM LEGUM OG PAKKDÓSUM
SUÐU OG SLÍPIVÖRUM HOSU- OG PARIKLEMMUM SMURKOPPUM TRILLU ZINKI VIFTUREIMUM
Skipalyftan ehf. óskar sjómönnum og fjölskyldum þeirra innilega til hamingju með daginn!
Skipalyftan ehf. l Eiðinu l 900 Vestmannaeyjum l Sími 488 3550 l 481 1493
YFIRHEYRSLAN
GUÐRÚN KRISTÍN SIGURÐARDÓTTIR SVARAR:
SPURNINGAR
SKANNAÐU INN QR KÓÐANN TIL AÐ SJÁ MYNDBANDIÐ AF ÞEIM HJÓNUM SVARA
SIGURÐUR ÞÓR SÍMONARSON SVARAR:
Ég
Hvort ykkar er betri bílstjóri?
Ég
Ég
Hvor elskar meira að dansa?
Ég
Siggi
Hvort ykkar eyðir meiri pening
Ég
Ég
Hvort ykkar eldar betri mat?
Ég
Siggi
Hvort ykkar er meira utan við sig?
Gunna Stína
Ég
Hvort ykkar er líklegra til að týna bíllyklunum?
Ég
Ég
Hvort ykkar hefur betri tónlistarsmekk?
Ég
Siggi
Hvor er meiri djammari?
Gunna Stína
Ég
Hver átti frumkvæðið í sambandinu?
Ég
Ég
Hver sér mest um heimilisverkin?
Gunna Stína
Ég
Hvort ykkar elskar hundurinn ykkar meira?
Gunna Stína
Ég
Hvort eyðir meiri tíma fyrir framan spegilinn?
Gunna Stína
Ég
Hvort er skemmtilegra?
Ég
Ég
Hvort sér um að innrétta heimilið?
Gunna Stína
Áttatíu bátar úr Eyjavör, áttahundruð kempur í hverri för, stundum í roki og stórum sjó, stundum í logni og sléttum sjó. Sjómenn, sjómenn glaðir, súpum nú heillaskál. Þannig hefjast Formannavísur Ása í Bæ. Á sjómannadaginn árið 1957 kom Siggi Vídó til Ása og bað hann um vísur fyrir ballið eða „heimtaði“, að sögn Ása. Ekki þorði Ási að neita þessum 300 kílóa skrokki þegar hann reyndi að koma koníaki ofan í hann fyrir hádegi til að fá sitt fram, eins og Ási gantaðist með. Því hélt hann upp í hraun með koníakið og samdi vísurnar þar. Ljósmyndina tók Jói Myndó af styttu Ása í Bæ sem gerð var af Áka Gränz að beiðni Árna Johnsen. Ísfélag Vestmannaeyja annaðist uppsteypu verksins í kopar og frágang með dyggri aðstoð starfsmanna fiskimjölsverksmiðju félagsins. Þannig höldum við minningu þessara kappa lifandi.
Við sendum sjómönnum og fjölskyldum þeirra heillaóskir í tilefni dagsins.
40 ÁR SÍÐAN PELAGUS STRANDAÐI VIÐ EYJAR
Skipstjórinn á Pelagus var hætt kominn á leiðinni í land, og sveiflaðist upp og niður allt að því tíu metra. Ljósmynd: Sigurgeir Jónasson
Belgíski togarinn Pelag us strandaði við Vestmannaeyjar aðfaranótt 21. janúar 1982. Hann rak upp í fjöru og lá undir 12-15 metra háum hamravegg í foráttubrimi. Þetta var fyrir 40 árum, þar sem fjórir menn fórust, er frásagn arefnið í Útkallsbók Óttars Sveinsson ar. Með góðfúslegu leyfi Óttars er hér stuttlega gripið niður í þá örlagaríku atburðarás sem greint er frá í bókinni: Um klukkan 03.40 Máttvana í briminu Skipverjarnir fjórir á Lóðsinum höfðu ekki orðið þess varir þegar gúmbát urinn frá Pelagusi var sjósettur í myrkrinu. Nú ræddu þeir það sín á milli að sigla bátnum að Pelag usi og láta stefnið, sem var klætt hjólbörðum, stuðpúðum, nema við Pelagus. En sjólagið virtist vera of þungt til þess að það gæti gengið með góðu móti og Lóðsinn gæti eitt hvað athafnað sig. Veiðarfæri og laust dót frá Pelagusi flaut um allt á sjónum. Einar skip stjóri hafði ákveðið að bakka bátn um frá strandstaðnum til að vera
ekki of nálægt og eiga á hættu að fá veiðarfærin í skrúfuna. Hann ætlaði því að láta skip sitt liggja fyrir utan strandstaðinn, fylgjast vel með, vera í sambandi við björgunaraðila og lýsa svo Pelagus upp eins vel og hægt væri þegar björgunarsveitir kæmu á slysstað. Klukkan 03.48 bað Einar um sam band í gegnum talstöð við Kristin Sigurðsson slökkviliðsstjóra og bað hann að sjá til þess að Hjálparsveit skáta yrði ræst út. Einar sagðist telja að best væri fyrir björgunarmenn að fara leiðina með fram „Haugunum“ og þaðan niður á klappir með fram Eldfelli. Bart velktist enn um í sjónum og var orðinn vonlítill um að hann héldi þetta út miklu lengur: „Ég sá að félagar mínir stóðu inni undir hvalbaknum. Þeirkölluðu í mig og nú kom enn ein stór alda – ég hélt dauðahaldi í bandið á bátnum. Það skipti svo engum togum, þessi risaalda skolaði gúmbátnum og mér
inn að þilfarinu, stjórnborðsmegin á Pelagusi, alla leið að tæki sem þvoði fiskinn áður en hann var settur niður í lest. Ég sleppti takinu á bátnum og lá nú máttvana í sjónum á þilfarinu. Gustaaf skipstjóri kom strax og togaði mig til sín inn undir hvalbakinn. Mér létti mikið við að vera kominn aftur til skipsfélaga minna og bað Redgy háseta að lána mér hnífinn sinn til að skera frá mér björgunar vestið. Patrick var hvergi sjáanlegur – ég óttaðist að við ættum ekki eftir að sjá hann aftur á lífi. Þetta var mjög sorglegt, hann var aðeins nítján ára, átti kærustu og þau ætluðu að fara að gifta sig. Hann hafði sagt okkur það.“ Klukkan 03.50 var búið að hafa sam band við Kristin Sigurðsson, slökkviliðsstjóra og formann Björgunarfé lags Vestmannaeyja. Hann lét konu sína, Guðrúnu Bjarnýju Guðjónsdótt ur, hafa samband við Elías Baldvins son varaslökkviliðsstjóra og biðja um að lögreglan kallaði út bæði og A- og B-flokka slökkviliðsins.
Björgunarfélagsmenn yrðu beðnir um að koma niður í Bása á Bása skersbryggju í aðalstöðvar Björgun arfélagsins þar sem tæki fyrir sjó björgun voru geymd. Jafnframt hafði verið óskað eftir því að Hjálparsveit skáta yrði kölluð út. Lögreglumaður hafði sótt Jón Ísak Sigurðsson hafnsögumann og þeir óku austur á hraun, eins langt og hægt var að komast akandi, að norðurenda Prestavíkur, beint austur af Eldfelli. Einar á Lóðsinum var áfram í sam bandi við skipstjóra Amandine. Hann vildi árétta þau skilaboð til hans að biðja áhöfn Pelagusar að halda kyrru fyrir um borð uns hjálp bærist frá björgunarmönnum úr landi. Áhöfn Lóðsins fannst mjög hart að geta ekkert annað aðhafst til að koma belgísku skipbrotsmönnunum til bjargar.
heppni að bátnum skyldi skola aftur um borð. En Patrick Maes, nítján ára háseti, hafði drukknað. Allir í áhöfn inni vissu nú að hann kæmi ekki aft ur um borð á lífi. Skipbrotsmennirnir voru miður sín, en verst leið Roland Billiaerd stýri manni því að móðir Patricks hafði beðið Roland sérstaklega að gæta hans áður en þeir sigldu að heiman frá Ostende. Skipstjórinn hafði greinilega tekið ranga ákvörðun þegar hann skipaði mönnum sínum að sjósetja gúmbát inn. Bart skalf á beinunum á feysknu þilfari Pelagusar: „Ég var gegndrepa og kaldur inn að beini enda var ég bara í peysu, inn
Sig urður Þórir Jóns son var 32 ára starfsmaður hjá Vestmannaeyjahöfn, slökkviliðsmaður og í stjórn Hjálpar sveitar skáta á eynni: „Þegar við mættum niður á slökkvistöð um nóttina fengum við að vita hvað hefði gerst. Við vorum ekki vissir um það hvort útkallið væri verkefni fyrir slökkviliðið eða björg unarsveitir, en þar sem Björgunarfé lagið var heldur fáliðað var ákveðið að fara á strandstað með þeirri sveit og með þau tæki sem til þurfti. Ég ákvað að renna upp í bækistöð Hjálparsveitarinnar og sækja VHFtalstöð og galla mig upp. Við ókum svo eins langt austur á Urðir og unnt var.“ Bart var að niðurlotum kominn. Hann taldi, eins og fleiri um borð, að í
Hvaða leið á að fara á strandstað? Vestmannaeyjaradíó hafði tilkynnt Kristni slökkviliðsstjóra að hafnsögu báturinn kæmist ekki að Pelagusi og að strandstaðurinn væri fyrir sunnan Prestabót: „Ég vissi nú hvers kyns var, að skipið væri strandað á mjög slæmum stað þar sem erfitt yrði að koma björgun artækjum á strandstað. Ég hraðaði mér nú að Básum en konan mín hélt áfram að hringja í menn til aðstoðar. Þegar ég kom að Básum voru nokkrir menn komnir þangað. Þá voru öll tæki sett á bíla og haldið suður að Prestabót. Við höfðum fengið þær upplýsingar að besta leiðin á strandstað væri um Haug ana og austur fyrir nýja hraunið. Þrátt fyrir það taldi ég mig vita um bestu leiðina á strandstað og valdi hana. Björgunarsveitir höfðu haft æf ingu á þessum stað og þá kynntumst við staðháttum. Enn fremur hafði ég fylgst með þegar þetta hraun varð til og taldi mig því þekkja það.“ Bart Gulpen hafði bjargast með naumindum – það var einskær
Fimm skipbrotsmannanna, frá vinstri: Redgy Calcoen, 26 ára, Bart Gulpen, 17 ára, Marcel Anseeuw, 51 árs, en þetta var í annað sinn sem hann komst af í skipskaða við Ísland, Daniel Rouzee vélstjóri og Roland Billiaert stýrimaður, sem sýndi mikið þrek í baráttu skipverjanna fyrir lífi sínu. Ljósmynd: Sigurgeir Jónasson.
anundirbuxum og á sokkunum. Ég fékk öðru hverju sjó yfir mig þegar brimið skall á skipinu, lá þarna á þilfarinu fyrir framan dyrnar að bakk anum, þar sem veiðarfærageymslan var inni í hvalbaknum. Ég fór að huga að því að forða mér frá ágjöfinni og komast í skjól.“
þessum aðstæðum gæti ekkert orðið þeim til bjargar nema kannski þyrla. Þeir þekktu ekki starfshætti íslenskra björgunarmanna sem voru vanir að skjóta línu út í skip á strandstað og nota björgunarstóla til að bjarga skipbrotsmönnum í land.
inu og Slökkviliði Vestmannaeyja. Ég lagði af stað á strandstað þegar öll tæki voru farin nema síðasti kassinn, en í honum var tildráttartaugin.“ Sigurður Þ. Jónsson var á leið á slysstaðinn: „Við klöngruðumst í myrkrinu yfir nýja hraunið. Það var erfitt yfirferðar og við héldum á línubyssum, björg unarstól og öðrum búnaði. Við vorum ekki vel búnir ljósum en þegar við nálguðumst slysstað sást ljósgeisli frá lóðsbátnum fyrir utan. Áhöfnin virtist vera að lýsa upp strandstaðinn. Okkur gekk sæmilega að finna leið og mér fannst við vera með vel skipað og þjálfað lið.
Fleiri tugir björgunarmanna komu að slysinu þessa örlagaríku nótt. Ljósmynd: Sigurgier Jónasson
Sjö menn úr átta manna áhöfninni voru enn á lífi. Daniel Rouzèe, 27 ára vélstjóri, og Roland Billiaerd, 34 ára stýrimaður, sem var mjög vel á sig kominn líkamlega, ákváðu að klifra upp lóðréttan stiga upp á hvalbak skipsins bakborðsmegin, sem sneri næst landi, og var sá staður þar sem brimið gekk minnst yfir. Gustaaf Brys skipstjóri, 41 árs, ákvað að fara inn í veiðarfæra geymsl una undir hvalbaknum og með honum fóru fjórir aðrir skipverjar, þeir Gilbert Stevel inck, sautján ára, Bart Gulpen, sautján ára, Redgy Calcoen, 26 ára og Marcel Anseeuw, 50 ára. Bart var loks ins að komast í skjól: „Mér var óskaplega kalt og nú fór ég inn í veiðarfærageymsluna und ir hvalbaknum. Ég var veikur, hafði gleypt mikið af söltum sjó þegar ég var næstum drukknaður stuttu áður, og var kaldur og skjálfandi, í gegn blautri peysu, buxum og á sokka
leistunum. Gustaaf skipstjóri var fyrst inni í bakkanum hjá mér, Gilbert, Redgy og Marcel, en Daniel vélstjóri og Roland stýrimaður fóru upp á hvalbakinn til að kanna hvort björg unarmenn gætu verið á leiðinni. Roland var einstaklega góður sjómaður, sterkur og traustur.“ Um klukkan 4.30 Klöngrast yfir stórgrýtisurð Um þrjátíu björgunar- og slökkviliðsmenn frá Heimaey höfðu skipt með sér tækjum og búnaði til að bera á slysstað. Kristinn slökkviliðsstjóri var kominn þangað sem bílarnir staðnæmdust: „Þegar komið var á Prestabót var tækjum skipt niður á mennina sem báru þau áleiðis á strandstað, um 700 metra leið yfir stórgrýtisurð og brunahraun. Í þessum fyrsta leiðangri tel ég að um 30 menn hafi verið mættir, félagar úr Björgunarfélag
Það hafði tekið tíma að gera allt klárt í bænum og komast út eftir. Við sáum að stefni skipsins var komið upp í urðirnar en afturendinn sneri út á haf. Heldur meira sást í bak borðssíðuna úr landi. Það var myrk ur og fremur hvasst, rigning blönduð særoki og nær engin lýsing um borð – við sáum mönnum bregða fyrir við brúarvæng togarans bakborðsmeg in.“ Um borð í Lóðsinum höfðu menn aldrei komið auga á gúmbátinn sem áhöfn Pelagusar hafði sjósett. Ágúst Bergsson vélstjóri rýndi í gegnum myrkrið og ágjöfina út að strandstaðnum: „Við hefðum örugglega reynt að ná gúmbátnum ef við hefðum séð hann. Þarna voru sjómenn í bráðri lífs hættu og við vorum mest að hugsa um hvað við gætum mögulega gert. Auðvitað leið okkur illa yfir því að geta ekki komið til hjálpar en okk ur létti dálítið þegar við vissum að björgunarsveitin væri komin og þeir væru að byrja að koma fluglínutækj um fyrir. En Guð minn almáttugur – maður var svo ráðalaus! Það eina sem við gátum gert var að lýsa upp slysstaðinn með kösturunum okkar.“ Grillir í menn á hvalbaknum Guðmundur Ólafsson var 23 ára slökkviliðsmaður sem starfaði á verkstæði í Vinnslustöðinni í Vest
mannaeyjum. Hann var með fyrstu mönnum á strandstað: „Lóðsbáturinn lónaði fyrir utan, þeir höfðu kallað og sagt að það væri mjög erfitt og vonlítið að athafna sig við strandstaðinn. Við þurftum að ganga yfir nýja hraunið í kolsvarta myrkri. Þegar við komum á strandstaðinn sáum við að skipið var mjög stutt frá landi og það gaf mikið yfir það. Ég sá nú grilla í menn uppi á hvalbaknum, eina hluta skipsins sem fór ekki algjörlega í kaf þegar brotin riðu yfir skipið.“ Sigurði Þ. Jónssyni fannst erfitt að at hafna sig á strandstað: „Þetta var blautt og svart og erfitt að fóta sig í hrauninu. Við komum nú búnaðinum fyrir á klettum sem stóðu hærra en framendi togarans, um fimmtán metra fyrir ofan sjávar mál. Ég kallaði í Lóðsinn í talstöðinni og þeir lýstu í áttina að okkur. Það hjálpaði, en við fengum auðvitað geislann beint í augun.“ Kristinn Sigurðsson slökkviliðsstjóri hafði lagt af stað frá bílnum áleiðis að strandstað þegar öll tækin sem nota átti við björgunina voru komin af stað með mönnunum yfir hraunið, nema síðasti kassinn, með tildráttartaug inni. Björgunarmenn sem komnir voru á strandstaðinn voru í óða önn að setja upp búnaðinn sem þangað var kominn. Slökkviliðsstjórinn var nú einnig kom inn á strandstað: „Skipbrotsmennirnir voru bundnir við hvalbakinn og kölluðu stöðugt á hjálp. „Guð almáttugur. Komið fljótt og bjargið okkur!“ Þetta var hrika leg aðkoma – sjö til átta vindstig og álandsvindur. Við biðum nú eftir síðasta kassanum og undruðumst hvað tefði hann. Þá komu menn með þau skilaboð að kassanum hefði verið snúið við samkvæmt skipun frá mönnum á hafnsögubátnum, sem töldu að þessi leið væri ófær en þeir gætu komist Haugaleiðina. Þess vegna hafði verið farið með hann aftur að birgðabílnum og þar var beðið frekari skipana. Nú var
ekkert annað að gera en að senda hraðboða að bílnum, þar sem kass inn var, enda ekki tök á að koma boðum öðruvísi til mannanna þar sem ekkert talstöðvarsamband var á milli. Hraðboðinn fór með þau skila boð að koma ætti þegar í stað með kassann þá leið sem í upphafi var áformuð. Meðan á þessu stóð var allt undirbúið sem hægt var, meðal ann ars voru tvær línubyssur útbúnar til að skjóta úr ef ekki tækist að hæfa í fyrsta skoti.“ Sigurður Þ. Jónsson, sem starfaði hjá Vestmannaeyjahöfn, þekkti vel áhöfn ina um borð í hafnsögubátnum: „Lóðsinn hafði gefið þær upplýsingar í gegnum loftskeytastöðina að betra væri að fara fyrir sunnan Eldfell og þar niður yfir Páskahraun og svo þaðan niður eftir. Þau skilaboð bár ust aldrei til okkar. Hjálparsveit skáta og fleiri komu því seinna á strandstað en þessi fyrsti hópur. Þeir lentu í bölvuðu klöngri á þessari leið, sem var langtum snúnara að fara. Nú fóru menn úr Björgunarfélagi Vestmanna eyja að gera sig klára til að skjóta línunni um borð. Þrífótur fyrir stólinn var settur upp og gerður klár. Guðjón Jónsson var sá sem átti að skjóta línu um borð.“ Fjórir í miskunnarlausri ágjöf Strandstaðurinn var við svokallaða Prestabót, milli flugvallarins og Urðarvita. Það voru fimm til sex vindstig, rigning og sunnanog suðaust anbrim, og það braut jafnt og þétt á skipinu. Það rétt grillti í belgísku skipbrotsmennina sem stóðu á hval baknum, eina hluta skipsins sem virt ist ekki fara algjörlega í kaf í brot unum. Mennirnir hurfu annað slagið sjónum björgunarmanna sem voru uppi á þverhníptum klettunum. Þegar þrír menn voru komnir upp á hvalbakinn, þeir Roland, Daniel og Redgy, reyndi Marcel Anseeuw, elsti maðurinn um borð, fimmtugur, að komast upp stigann bakborðsmegin. Þetta var mikið hættuspil við þessar aðstæður því að Marcel var þungur, stirður og óttasleginn. Þegar hann
var kominn úr skjólinu í veiðarfæra geymslunni og út á þilfarið kom þung alda sem kastaði honum til baka. Marcel brá illilega við þetta. Hann var nú að upplifa sitt annað sjóslys við Ísland. Tuttugu og sex árum áður hafði hann verið skipverji á Vand erweyden, sem fórst við Suðurland. Allri áhöfninni, átján manns, hafði þá verið bjargað. Nú kraflaði Marcel sig til baka og fór aftur inn í veiðarfærageymsl una. Gustaaf skipstjóri var kominn út úr veiðarfærageymslunni. Hann var nú að missa skip í annað sinn á skipstjóraferli sínum. Tólf árum áður hafði hann misst skip við Skot land, en þá hafði allri áhöfninni, tólf manns, verið bjargað. Gustaaf fór að stiganum, orðinn mjög kaldur og þrekaður, og las sig upp eftir honum. Marcel hafði hins veg ar brostið kjark og ákveðið að fara hvergi. Honum stóð slík ógn af öld unum og ólögunum. Ungu drengirnir, Bart og Gilbert, urðu eftir í bakkan um með Marcel. Þegar skipstjórinn var kominn upp á hvalbakinn kölluðu hann og þre menningarnir sem þar voru fyrir niður til þeirra sem eftir urðu í bakk anum og hvöttu þá til að koma upp, björgunarmenn væru komnir. Belgarnir stóðu nú uppi á hvalbakn um og biðu þess að hægt yrði að skjóta línu um borð. Þarna uppi var í raun engan veginn stætt og brimið barði mennina miskunnarlaust svo að þeir voru orðnir gegndrepa og mjög þrekaðir. Slökkviliðsmanninum Guðmundi Ólafssyni leið ekki vel þar sem hann horfði á skipbrotsmennina uppi á hval baknum: „Mér fannst skelfilegt að bíða þarna þangað til hægt yrði að fara að gera eitthvað til bjargar mönnunum. Þetta var heil eilífð.“
SJÓMAÐUR ÁRSINS NET HF og lærði þar netagerð. Fór fullt af afleysingum til sjós á meðan ég starfaði þar, aðallega á loðnuvertíð. Ég byrjaði svo aftur á sjó 2008 þegar mér bauðst pláss á Smáey VE. Var þar með fullt af góðum mönnum, m.a. öðlingnum Nonna heitinum Loga, þar til hún var seld frá Eyjum. Eftir það fór ég á Guðmund VE, frystiskips frá Ísfélaginu, þar til hann var seldur en fékk þá ráðningu á nýsmíði Ísfélagsins Sigurð VE og starfa þar enn í dag.“
Finnsi á Sigurði VE.
Í ár ætlar Tígull að taka upp þá nýjung á sjómannadaginn að velja Sjómann ársins. Að þessu sinni er það 47 ára Eyjapeyinn Sigurfinnur Viðar Sigurfinnsson eða Finnsi, eins og hann er kallaður. Í dag starfar hann sem kokkur og háseti á Sigurði VE15 sem Ísfélag Vestmannaeyja gerir út.
„Ég byrjaði til sjós í september 1992 þá 17 ára gamall á frystitogaranum Vestmannaey VE-54. Mig langaði að prufa að fara á sjó en sá ekki fyrir mér að verða sjómaður alla ævi. Ég var þar fram í mars 1997,“ sagði Finnsi aðspurður um hvenær hann hóf sjómannsferilinn. „Þá fór ég að vinna í landi í nokkur ár á netaverkstæðinu
Heppin með félagsskap Finnsi segir margt heillandi við sjómennskuna „en sennilega er söknuðurinn og þá um leið eftirvæntingin að koma heim eftir langar fjarverur það sem heillar mest. Og að geta verið til staðar öllum stundum þegar maður er heima. Ákveðinn sjarmi að vera að koma heim eftir kannski 3-5 vikur í burtu frá fjölskyldu og vinum og vera að koma heim í gott frí,“ Hann sagði þó margt annað hægt að telja fram sem heilli, eins og þegar vel gengur á veiðum. Þegar Finnsi er inntur eftir eftirminnilegasta sjómanninum sem hann hafi verið til sjós með segist hann ómögulega geta gert upp á milli þeirra. „Ég hef verið heppinn með félaga í gegnum tíðina og í dag er ég að róa með úrvals áhöfn og er svo heppinn að ég lít á þá alla sem vini mína. Það væri hreinlega ósanngjarnt að taka einn út. Ég hreinlega get ekki gert upp á milli vina minna. Einna helst væri þó að nefna Nonna heitinn Loga. Hann var skipstjóri hjá mér á Smáey þegar ég reri þar, var rétt eldri en ég og því algjörlega einn af okkur peyjunum. Góður drengur sem féll allt of snemma frá,“ sagði Finnsi. Sýnd veiði en ekki gefin Það er ekki alltaf tekið út með sældinni að vera til sjós og oft þarf að fórna einhverju í landi á meðan. „Eftirminnilegasti túrinn minn er sennilega þegar ég fór á frystitogaranum Vestmannaey í Barentshafið
yfir þjóðhátíðina 1995. Við vorum í 6 vikur í burtu og á þessum tíma voru fjarskipti ekki eins og í dag. Maður náði litlu sem engu og lélegu sambandi heim, nema þá helst með að senda símskeyti,“ sagði Finnsi og rifjaði upp að túrinn hafi gengið nokkuð vel og landað fullfermi við heimkomuna. Finnur var þó ekki aðeins spenntur yfir góðum afla þegar í land var komið því annað nokkuð beið hans, sem betur fer. „Ég hafði byrjað með stelpu stuttu fyrir túrinn sem ég náði lítið að vera í sambandi við á meðan á túrnum stóð og átti ég ekki von á að hún nennti svona sambandi, hún beið þó og er konan mín í dag,“ sagði Sigurfinnur Viðar Sigurfinnsson, sjómaður ársins, að lokum.
HVAÐ SEGJA FORELDRARNIR UM FINNSA? Hvernig var Finnsi sem barn? Finnsi var ótrúlega gott barn, lang yngstur af 3 systkynum og sennilega komist upp með meira en hin tvö. Hvernig myndir þú lýsa Finnsa? Afskaplega ljúfur og geðgóður þvílík hjálparhella með einstaka nærveru og alltaf gleði í kringum hann. Er einhver minning eða eitthvað eftirminnilegt um Finnsa sem þið viljið segja frá? Hann var þvílíkur snyrtipinni að það mátti aldrei sjá neitt á honum, var þetta oft til vandræða t.d. vorum við á leið í leikskólann þeagr hann dettur og kom smá kusk á buxurnar hans. Það var ekki sjens að fá hann svona á leikskólann heldur þurftum við að snúa við og fara í hreinar buxur, mamman var nú ekki mjög glöð með þetta. Hann spurði alltaf hvenær væri sunnudagur því þá fór hann í spariföt sem var búið að finna til á stól kvöldinu áður. Hann óskaði eftir að fá að vera brúðarsveinn í brúðkaupi frænku sinnar og hafði hann sterka skoðun á hverju hann vildi vera í. Kjólföt eða smoking sem auðvitað var saumað á hann 10 ára gamlan. Síðst af öllu grunuðu okkur foreldrana að hann færi á sjó. Við reyndum að telja hann inn á að gerast rakari svona miðað við hans snyrtimennsku. En honum langaði að verða gullsmiður en vildi ekki fara erlendis til að læra það en það þar ekki kennt á Íslandi á þeim tíma. Svo var það þegar við foreldrarnir fórum eitt skiptið í frí að þegar við komum til baka þá hafði Finnsi ráðið sig á Vestmannaey og þar með varð sjómennskan ævistarfið.
Finnsi hafði sterkar skoðanir á fatavali og hér er hann í Smóking 10 ára gamall.
„I want someone to look at me the way I look at pizza”
PIZZUTILBOÐ
sent sótt
12” PIZZA með 3 áleggjum + 9” hvítlaksbrauð eða brauðstangir + gosdós [ 3.990 kr. ]
9” PIZZA
með 3 áleggjum [ 1.990 kr. ]
12” PIZZA
með 3 áleggjum + 9” hvítlaksbrauð eða brauðstangir + gosdós [ 3.590 kr. ]
Sjáumst á OPIÐ
Mán-fim 17-21 Fös og lau 12-22 Sun 12-21
16” PIZZA með 3 áleggjum + 16” hvítlaksbrauð eða brauðstangir + 2L gos [ 5.490 kr. ]
12” PIZZA
með 3 áleggjum [ 2.390 kr. ]
16” PIZZA
með 3 áleggjum + 16” hvítlaksbrauð eða brauðstangir + 2L gos [ 5.090 kr. ]
16” PIZZA
með 3 áleggjum [ 2.890 kr. ]
TVENNUTILBOÐ
Tvær 16” pizzur + stórar brauðstangir
[ Greitt er fyrir dýrari pizzuna og brauðstangir ]
Sendum heim alla daga ( 481-1567
við óskum sjómönnum & fjölskyldum til hamingju með daginn! by lovisa
Heimadecor
Hilmisgata 4
heimadecor.is
heimadecor
heimadecor