Skip to main content

100 ára afmælisblað Taflfélagsins

Page 1

100 ÁR A AFMÆLISBLAÐ TAFLFÉLAGS VESTMANNAEYJA

Fyrsta stjórn TV Á stofnfundi Taflfélags Vestmannaeyja 29. ágúst 1926 sem fram fór í húsinu Reyni við Bárustíg 5 voru eftirtaldir kosnir í fyrstu stjórn TV: Formaður Hermann Benediktsson, verkstjóri Godthaab, síðar Stóra -Bergholti Vestmannabraut 67, Kristinn Ólafsson, lögfræðingur, Reyni , þáv. bæjarstjóri í Eyjum, ritari og Magnús Bergsson, bakarameistari Tungu við Heimagötu, gjaldkeri. Stofnendur félagsins voru níu talsins, en en viku eftir stofnfundinn bættust ellefu í hópinn og voru félagsmenn 20 talsins þegar regluleg starfsemi félagsins hófst í byrjun september 1926.

Hermann Benediktsson, fyrsti formaður félagsins.

Íslandsmeistarar TV í úrvalsdeild á Íslandsmóti skákfélaga sem lauk í mars 2026 ásamt nokkrum lykilmönnum í félaginu. Neðri röð frá vinstri, Arnar Sigurmundsson, liðsstjóri b) sveitar og form. afmælisnefndar , Ólafur Hermannsson, liðsstjóri c) sveitar TV, Hallgrímur Steinsson form. TV og í afmælisnefnd, Karl Gauti Hjaltason, í afmælis- og fjáröflunarnefnd, Jóhann Ingvasson í úrvalsdeild, 2. röð f.v., Lúðvík Bergvinsson , fjáröflunarnefnd, Jaime Santos Latasa, úrvaldsdeild og Abihjeet Gupta, úrvalsdeild 3. röð f.v. Guðmundur Gíslason, úrvalsdeild, Helgi Ólafsson, úrvalsdeild, Skákmeistari Vm. 1972 &73, Þorsteinn Þorsteinsson liðsstjóri úrvalsdeildar TV, Örn Leó Jóhannsson, úrvalsdeild, og Jóhann Hjartarson úrvalsdeild. 4. röð frá vinstri, Auðunn Haraldsson stjórnarm. í TV og Björn Þorfinnsson í úrvalsdeildarliði TV. Myndin er tekin í Rimaskóla í mótslok 8. mars 2026 - ljósm. Tómas Tandri Jóhannsson.

Skákin er mögnuð hugaríþrótt Hallgrímur Steinsson formaður TV Nú í lok ágúst 2026 eru 100 ár liðin frá stofnun Taflfélags Vestmannaeyja. Það er erfitt að ímynda sér allar breytingar á samfélaginu og daglegu lífi fólks á síðustu 100 árum. Skákin er eins og með suma hluti, hún breytist ekkert í grunninn og manngangurinn er óbreyttur . Ég gekk í Taflfélagið fyrir um 10 árum þegar ég hætti á sjó, hafði teflt sem krakki og alltaf haft áhuga. Það var skemmtilegt að finna vettvang til að bæta sig og læra að tefla á nýjan hátt. Þetta er alveg sérstakur þjóðflokkur með sitt eigið tungutak í skákinni og talar um kóngsindverja, sikileyinga og fransmenn þannig að fólk sem þekkir ekki reglur og afbrigði í skák ætti erfitt með að skilja nokkurn skapaðan hlut. En það breytist fljótt. Netskákin var og er algjör bylting

Hallgrímur Steinsson, formaður Taflfélags Vestmannaeyja. í skákinni. Nú getur fólk nær fyrirvaralaust teflt við annað fólk hvar sem er í veröldinni sem hefur tengingu á netinu. Auk þess hefur aðgangur að skák og skákmönnum á netinu aukist gríðarlega. Þó að tímarnir hafi breyst þá finnur

áhuginn alltaf sinn farveg. En það er engu að síður skemmtilegast að tefla við skákborðið augliti til auglits. Við í Taflfélaginu höfum verið lánsamir með að fyrirtækin í bænum og bæjaryfirvöld hafa stutt myndarlega við starfsemi TV

í gegnum tíðina. Við höfum haldið úti skákkennslu fyrir skólakrakka í GRV í ákveðnum bekkjardeildum og í skákheimili TV þar sem þau hafa fengið tækifæri til að kynnast þessari mögnuðu hugaríþrótt. Við höfum síðustu áratugi tekið þátt í deildarkeppni taflfélaga - Íslandsmóti skákfélaga sem er í fimm deildum. TV er með átta manna sveit í úrvalsdeild auk liðsstjóra og varamanna og tvær sex manna sveitir í 4. deild auk liðstjóra og varamanna. Það var raunar ótrúlegt að sveit TV í úrvalsdeild varð Íslandsmeistari skákfélaga á 100 ára afmælisárinu í mars 2026 og var það í fyrsta skipti í sögu félagsins. Skákin brúar kynslóðabilið. Á Íslandsmóti skákfélaga sem fram árlega á haustin og vorin með samtals 350-400 keppendum á öllum aldri er örugglega breiðasta aldursbil keppenda á Íslandi. Þeir yngstu eru frá 6 ára og þeir elstu losa 90 árin. Flestir skákmenn hafa einhvern tímann á

ferlinum lent í að steinliggja í skák fyrir mjög ungum andstæðingi og skiptir litlu hvort tapið hafi stafað af augnabliks einbeitingarleysi eða meintri yfirsjón. Þannig er skákin - staðan er jöfn í upphafi og ekki spurt um aldur eða styrkleika. Við gefum út þetta 100 ára afmælisblað til að vekja athygli á starfinu. Skákin er frábært áhugamál til að styrkja einbeitingu, rökhugsun og það er alltaf hægt að bæta sig. Til að fagna 100 ára afmælinu verða einnig haldið sterkt atskákmót á afmælisdaginn 29. ágúst nk. og hraðskákmót sunnudaginn 30. ágúst nk. og fara bæði mótin fram á opna svæðinu í Þekkingarsetri Vestmannaeyja að Ægisgötu 2, 2. hæð. Þar hafa áður verið haldin þrjú fjölmenn atskákmót 2019, 2021 og 2023 og öll aðstaða til fyrirmyndar. Við hvetjum folk á öllum aldri til að taka þátt í starfinu en félagið býður upp á glæsilega aðstöðu í skákheimilinu að Heiðarvegi 9 jarðhæð.

Afmæliskveðja frá Skáksambandi Íslands Skáksamband Íslands óskar Taflfélagi Vestmannaeyja innilega til hamingju með 100 ára afmælið. Að halda úti öflugu og lifandi skákstarfi í heila öld er sannarlega merkilegur áfangi og vitnisburður um þann mikla áhuga, dugnað og fórnfýsi sem félagsmenn hafa sýnt í gegnum tíðina.

Á afmælisárinu náði félagið stórum áfanga þegar Taflfélag Vestmannaeyja varð Íslandsmeistari skákfélaga í fyrsta sinn í sögu félagsins. Það er einstaklega viðeigandi að þessi langþráði titill hafi komið á sama ári og félagið fagnar aldarafmæli. Taflfélag Vestmannaeyja hefur um áratugaskeið verið mikilvægur hluti af íslensku

skáklífi og lagt sitt af mörkum til að efla og þróa skákstarf í Vestmannaeyjum og á Íslandi. Við óskum félaginu og öllum félagsmönnum þess hjartanlega til hamingju með tímamótin og farsældar á komandi árum. Megi skákin halda áfram að blómstra í Vestmannaeyjum og Taflfélag Vestmannaeyja

standa sterkt næstu 100 árin. Til hamingju með 100 ára afmælið og Íslandsmeistaratitilinn! Fyrir hönd Skáksambands Íslands

Jóhanna Björg Jóhannsdóttir forseti Skáksambands Íslands


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
100 ára afmælisblað Taflfélagsins by Leturstofan - Issuu