1. MAÍ ALÞJÓÐLEGUR BARÁTTUDAGUR VERKALÝÐSINS Við fögnum 1. maí í Akóges og minnumst þess að í ár eru 50 ár liðin frá Kvennafrídeginum og mun dagurinn taka mið af því. Húsið opnar kl. 14:00 og verður tekið á móti börnum á öllum aldri með andlitsmálningu og blöðrum. Allir fá „Hölluklút“ um hálsinn. Ávarp, kaffi vöfflur og fleira á boðstólum.
Konur úr kvennakór Vestmannaeyja flytja nokkur lög. Tónlistarveisla frá Tónlistarskóla Vestmannaeyja sem sér að vanda um tónlistarflutninginn.
ALLIR VELKOMNIR OG AÐGANGUR AÐ SJÁLFSÖGÐU ÓKEYPIS.
Sendum launafólki hátíðar- og baráttukveðjur í tilefni dagsins STÉTTARFÉLAG VESTMANNAEYJUM FYRST STOFNAÐ 1917