Skip to main content

Undir sömu stjörnu - leikskrá

Page 1

1


Leikskrá Ritstjórn: Melkorka Tekla Ólafsdóttir og Finnur Bjarnason. Hönnun og uppsetning: Jorri. Ljósmyndir: Jorri. Prentun: Prentmet Oddi. Útgefandi: Þjóðleikhúsið - Óperan Myndir í leikskrá eru teknar á æfingu og eru því ekki heimild um endanlegt útlit sýningarinnar. Sýningarlengd er um tvær og hálf klukkustund. Eitt hlé.

Þjóðleikhúsið 78. leikár, 2026–2027. Frumsýning í Hofi á Akureyri 18. október 2026. Sýningar á Eskifirði, í Reykjanesbæ, Skálholti og Þjóðleikhúsinu í kjölfarið. Viðburðurinn er haldinn í samstarfi við Menningarfélag Akureyrar. Óperustjóri: Finnur Bjarnason. Þjóðleikhússtjóri: Magnús Geir Þórðarson.

2


Þjóðleikhúsið - Óperan 2026 - 2027 3


Flytjendur á öllum sýningum Einsöngvarar Óperunnar Gunnar Björn Jónsson, tenór Hildigunnur Einarsdóttir, mezzo-sópran Kristín Einarsdóttir Mäntylä, sópran Kristján Jóhannesson, baritón Leikarar Ólafía Hrönn Jónsdóttir Örn Árnason

Listrænir stjórnendur Tónlistarstjórn Richard Schwennicke

Búningar Eva Björg Harðardóttir

Handrit og leikstjórn Ólafur Egill Egilsson

Aðrir aðstandendur sýningarinnar Framleiðslu- og sýningarstjóri Jara Hilmarsdóttir Rannsóknarvinna og ráðgjöf Árni Heimir Ingólfsson Aðstoðarsýningarstjóri í Hofi Elísa Erlendsdóttir Starfsnemi, LHÍ Þorbjörg Þóroddsdóttir Yfirumsjón með búningum Helga Lúðvíksdóttir Búningavörður á sýningum Þórhildur Sunna Jóhannsdóttir Umsjón með leikmunum Jara Hilmarsdóttir Eva Björg Harðardóttir

4

Búningadeild Þjóðleikhússins Sólveig Spilliaert Ásdís Guðný Guðmundsdóttir Eva Lind Weywadt Oliversdóttir Berglind Einarsdóttir Leikgervadeild Þjóðleikhússins Birna Magnea Sigurðardóttir Elín Hanna Ríkarðsdóttir Ása María Guðbrandsdóttir Silfá Auðunsdóttir Þóra Benediktdóttir Ingibjörg G. Huldarsdóttir Aðstoð við leikgervi í Hofi og á Eskifirði Arney Ágústsdóttir Leikmunadeild Þjóðleikhússins Ásta Sigríður Jónsdóttir Valur Hreggviðsson Eyrún Arna Ingólfsdóttir Sturla Magnússon


Efnisskrá Fyrri hluti 1. Monteverdi: L’Orfeo. Forleikur (Toccata). 1607. 2. Monteverdi: L’Orfeo. „Dal mio permesso amato“, Ég er tónlistin sjálf (La Musica, forleikur / Prologo). 1607. 3. Corteccia: „Vera mátt góður“. 16. öld. 4. Purcell: Dido and Aeneas. „Thy Hand, Belinda ... When I Am Laid in Earth“ (Dídó) / „With Drooping Wings“. 1689. 5. Handel: Alcina. „Di’, cor mio“ (Alcina). 1735. 6. Beethoven: Fidelio. „Mir ist so wunderbar“ (kvartett). 1805. 7. Mozart: Töfraflautan. „Der Vogelfänger bin ich ja“, Við fuglasnörun fæst ég hér (Papageno). 1791. 8. Mozart: Töfraflautan. „Dies Bildnis ist bezaubernd schön“, Hve myndin undrafögur er (Tamino). 1791. 9. Mozart: Töfraflautan. „Das klinget so herrlich“, Hve klukkur blítt hringja/ Gæti sérhver sveinninn knár (Pamina og Papageno). 1791. 10. Wagner: Lohengrin. „Treulich geführt“ (Brúðarkórinn). 1850.

Hlé Síðari hluti 11. Bizet: Carmen. Forleikur. 1875. 12. Bizet: Carmen. Habanera, „L’amour est un oiseau rebelle“ (Carmen). 1875. 13. Wagner: Tannhäuser. „Wie Todesahnung ... O du mein holder Abendstern“ (Wolfram). 1845. 14. Verdi: Nabucco. „Va, pensiero“. 1841. 15. Verdi: Rigoletto. „Bella figlia dell’amore“ (kvartett). 1851. 16. Dvořák: Rusalka. „Měsíčku na nebi hlubokém“ (Rusalka). 1900. 17. Jórunn Viðar: Snær konungur. „Nú er nýfallinn snjór“ (Fjalar og Fönn). 1944-45. Útsetning: Þórður Magnússon. 2026 18. Jón Ásgeirsson: Þrymskviða. „Ek em Óðins sonur“ (Þór og kór). 1974. 19. Gunnar Þórðarson: Ragnheiður. „Herra, þekkið þér ei ást“ (Ingibjörg). 2013. Orfeo. Þýðing eftir Steinunni Arnbjörgu Stefánsdóttur. Töfraflautan. Þýðing eftir Þorstein Gylfason, Gunnstein Ólafsson o.fl.

5


Hof á Akureyri

Frumsýning 18. október 2026 Hljómsveitarstjóri Richard Schwennicke Hljómsveit Sinfóníuhljómsveit Norðurlands Kórstjórn Þorvaldur Örn Davíðsson

Þjóðleikhúsið Stóra sviðið

15. nóvember 2026 Hljómsveitarstjóri og kórstjóri Richard Schwennicke

6

Kórar Kór Akureyrarkirkju Kammerkór Norðurlands Gestasöngvari Jónína Björt Gunnarsdóttir, sópran Í samstarfi við Menningarfélag Akureyrar. Framleiðandi: Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson, tónlistarstjóri MAk og forsvarsmaður SinfoniaNord.

Hljómsveit Sinfóníuhljómsveit Norðurlands Kór Kór Óperunnar


Tónlistarmiðstöð Austurlands á Eskifirði

25. október 2026 Hljómsveitarstjóri Richard Schwennicke

Hljómsveit Sinfóníuhljómsveit Austurlands

Kórstjórn Hlín Pétursdóttir Behrens Kórar Óperukór Austurlands Kammerkór Norðurlands Gestasöngvari Hlín Pétursdóttir Behrens, sópran Í samstarfi við Menningarstofu Fjarðabyggðar og Sinfóníuhljómsveit Austurlands.

Hljómahöllin í Reykjanesbæ 1. nóvember 2026

Hljómsveitarstjóri og kórstjóri Jóhann Smári Sævarsson

Kór Hátíðarkór Norðuróps

Hljómsveit Hljómsveit Norðuróps og Tónlistarskóla Reykjanesbæjar

Gestasöngvari Martyna Patrycja Gesella, sópran Í samstarfi við Norðuróp og Tónlistarskóla Reykjanesbæjar.

Skálholtsdómkirkja 8. nóvember 2026

Hljómsveitarstjóri og kórstjóri Guðmundur Óli Gunnarsson Hljómsveit Sinfóníuhljómsveit Suðurlands

Kórar Kammerkór Norðurlands Skálholtskórinn Kammerkór Rangæinga Gestasöngvari Gunnlaugur Bjarnason, baritón

Kórstjórn Guðmundur Óli Gunnarsson Jón Bjarnason Guðjón Halldór Óskarsson Í samstarfi við Sinfóníuhljómsveit Suðurlands.

7


Ópera allra landsmanna Kæru gestir, Stofnun Óperu innan Þjóðleikhússins markar tímamót í íslensku menningarlífi. Í fyrsta skipti er komin skýr lagaumgjörð um óperustarfsemi á Íslandi sem tryggir stöðugleika og starfsöryggi listafólks og skapar jafnframt mikilvæg tækifæri til að nýta þá innviði sem þegar eru til staðar. Saga óperustarfsemi er ekki löng á Íslandi. Talið er að fyrsta óperan hafi verið sett upp í Iðnó árið 1937 en eftir að Þjóðleikhúsið opnaði árið 1950 varð það helsti vettvangur óperuflutnings. Það var þó ekki fyrr en við stofnun Íslensku óperunnar undir forystu eldhugans Garðars Cortes og fleiri listamanna árið 1980 að regluleg og markviss óperustarfsemi hófst hér á landi. Fyrsta sýning Íslensku óperunnar í Gamla bíói var óperettan Sígaunabaróninn eftir Johann Strauss árið 1982. Sú sýning markaði upphaf að starfsemi sem átti eftir að skipta sköpum fyrir íslenskt menningarlíf næstu áratugi. Sú Ópera sem nú lítur dagsins ljós sprettur því ekki úr tómarúmi heldur byggir á starfi þeirra sem á undan gengu og á þrotlausri vinnu brautryðjenda sem með hugsjón og ástríðu lögðu grunninn að öflugri óperustarfsemi á Íslandi. Öllu þessu fólki ber að þakka fyrir þá arfleifð sem það skilur eftir sig. Ópera er listform þar sem margar listgreinar mynda heillandi og margslungna heild. Hlutverk hinnar nýstofnuðu Óperu er m.a. að sinna frumsköpun innan óperulistar og vera vettvangur framþróunar og nýsköpunar í óperulistum á Íslandi. Einnig er henni ætlað að glæða áhuga landsmanna á þessu einstaka listformi og tryggja að óperan verði aðgengileg sem flestum. Það er því einkar viðeigandi að ný Ópera sigli úr vör frá Akureyri með óperudagskrá sem verður í kjölfarið flutt víðs vegar um landið. Óperan sýnir þannig með táknrænum hætti að hún verður ekki aðeins staðsett í einni byggingu eða á einum stað. Með virku samstarfi við sinfóníuhljómsveitir, kóra og einsöngvara um land allt verður Óperan sannkölluð þjóðarópera - ópera sem tilheyrir allri þjóðinni og sem allir geta tekið þátt í og notið. Ég óska okkur öllum til hamingju með Óperuna. Megi hún vaxa og dafna sem mikilvæg stoð í íslenskri menningu um ókomna tíð. Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra

8


Samstarf og samhengi Kæru gestir, Verið hjartanlega velkomin í nýju Óperuna. Með opnunarviðburðinum Undir sömu stjörnu fögnum við því að langþráður draumur sé orðinn að veruleika og varanlegur grundvöllur sé loks tryggður óperulistinni á Íslandi. Hlutverk hinnar nýju stofnunar verður margþætt. Hún mun setja mikilvæg verk óperubókmenntanna á svið með það fyrir augum að bæði nýir áhorfendur og gamalkunnir megi njóta þessa merka menningararfs í nútíma samhengi. Einnig mun hún leggja áherslu á þróun nýrra óperuverka og kanna erindi óperuformsins við samtímann, auk þess að styðja við öflugt grasrótarstarf sem sprottið hefur upp á Íslandi á síðustu árum. Frá upphafi verður leitast við að styrkja og byggja undir það gróskumikla sviðslista- og tónlistarstarf sem á sér stað utan Reykjavíkur með fjölbreyttum samstarfsverkefnum. Þá verður mikið lagt upp úr fræðslustarfi fyrir börn til að þau fái frá unga aldri hlutdeild í þessu kraftmikla listformi. Síðast en ekki síst er með stofnun Óperunnar verið að styrkja starfsgrundvöll söngvara á Íslandi, en fastur söngvarahópur gegnir lykilhlutverki í því samfellda starfi sem mun marka Óperunni sess í menningarlífi landsmanna. Hér fögnum við því sannarlega þjóðaróperu í þeim skilningi að Óperan ætlar að mæta áhorfendum á forsendum samfélagsins en einnig í þeim skilningi að hún mun vinna í nánu samstarfi við aðrar lykilstofnanir menningarlífsins. Þar ber hæst Sinfóníuhljómsveit Íslands, Menningarfélag Akureyrar og tónlistarhúsið Hörpu, þar sem Óperan hefur aðsetur sitt, en samstarfið mun ná til margra annarra aðila. Sem hluti af Þjóðleikhúsinu nýtur Óperan góðs af mannauði og þekkingu okkar öflugustu sviðlistastofnunar auk þeirra dýrmætu innviða sem þar hafa verið byggðir upp um áratuga skeið. Ég hlakka til að leggja upp í þessa vegferð með þjóðinni og óska henni til hamingju með hina nýju stofnun sem mun án vafa auðga menningu okkar í framtíðinni. Finnur Bjarnason óperustjóri

9


10


11


Velkomin í ferðalag um óperusöguna Þó svo að ævaforn brot af nótum hafi varðveist úr fornöld eru fyrstu heillegu heimildir tónlistarsögunnar frá því í kringum árið 800 að telja. Vísast hefur þó tónlistin ætíð fylgt mannkyninu. Það elsta sem varðveist hefur tengist kirkjunni og raunar er óperan býsna ung í þessu tilliti. Tónlistarformið sem slíkt kom ekki fram fyrr en mjög seint á 16. öld, þá á Ítalíu og dreifðist þaðan smám saman norður um álfuna. Orðið sjálft, ópera, merkir „verk“ á ítölsku, dregið af latneska orðinu opus en það er aftur oft notað til þess að númera verk tónskálda. Miðöldum í tónlistarsögunni lauk í kringum árið 1420 en þá tók endurreisnartímabilið við. Það stóð yfir óslitið fram til aldamótanna 1600 þegar barokkið kom til sögunnar. Það er einmitt tilurð óperunnar um og upp úr aldamótunum 1600 sem markar upphaf barokktímabilsins í sögu vestrænnar tónlistar. Frumflutningur á fyrstu óperunum þykir með öðrum orðum til merkis um svo veigamiklar breytingar í tónlistarsögunni að nýtt tímabil hefst. Óperuformið féll ekki fullskapað af himnum ofan. Hópur menntamanna í Flórens, nefndur Camerata de’ Bardi (eða þá Camerata Fiorentina), einsetti sér að smíða nýtt tónlistarform seint á 16. öld sem átti að líkjast því sem tíðkaðist í Grikklandi til forna. Þetta voru í besta falli getgátur því enn í dag er lítið vitað með vissu um hvernig tónlistarflutningi var háttað í fornöld. Eftir sem áður þróaði hópurinn nýjan stíl sem nefnist söngles (recitativo) en vissulega voru fleiri sem létu sig varða framgang tónlistarinnar. Eitt af því sem varð einnig til nefnist mónódía (einsöngslag) en þar fékk fjölröddun endurreisnarinnar að víkja fyrir einsöng við bassalínu. Í kringum aldamótin 1600 voru óperur einkum samdar til flutnings í stórum veislum, svo sem brúðkaupum, og það var Jacopo Peri (1561–1633), félagi í Camerata de’ Bardihópnum, sem varð fyrstur manna til þess að semja verk í hinum nýja stíl, óperuna Dafne sem frumflutt var í Flórens árið 1598. Af henni hefur lítið varðveist en elsta óperan sem enn er til er líka eftir Peri, samin eftir forngrísku sögninni um Orfeus og Evridís. Þegar hún var frumflutt árið 1600 var ítalska tónskáldið Claudio Monteverdi (1567–1643) meðal áheyrenda. Fáeinum árum seinna samdi hann sjálfur óperu við sömu forngrísku sögnina og afraksturinn varð Orfeus (L’Orfeo, 1607). Þetta er elsta óperan sem enn er sett reglulega á svið í óperuhúsum nú til dags. Margir kannast eflaust við stefið sem hljómar í forleik óperunnar (Toccata) en það er einkennisstef Sambands evrópskra útvarpsstöðva (EBU) og hljómar í upphafi útvarpsútsendinga sambandsins. Orfeus er í fimm þáttum en strax á eftir forleiknum hljómar arían „Ég er tónlistin sjálf (Dal mio permesso Amato)“ og þjónar sem nokkurs konar formáli að verkinu. Hér er það Tónlistin (La musica) sem syngur og býður áheyrendum að hlýða á frásögnina af Orfeusi. Það var Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir sem snaraði textanum yfir á íslensku. Rigoletto, Þjóðleikhúsið 1951. Ljósmyndir: Sigurhans Vignir. Guðmundur Jónsson (Rigoletto), Stefán Íslandi (hertoginn af Mantua), Else Mühl (Gilda), Sigurður Ólafsson (Ceprano greifi).

12


13


Þó svo að aldir ættu eftir að líða uns óperan lagði leið sína með formlegum hætti til Íslands má með sanni segja að næsta verkið á efnisskránni hafi ferðast um langan veg. Napólísöngurinn (villanella) „Madonn’io t’haggi amat’et amo assai“, eftir ítalska endurreisnartónskáldið Francesco Corteccia (1502–1571), kom fyrst út á prenti árið 1545. Hann var síðar sunginn í Þýskalandi við latneskan texta („Ecco bonum licet“) en í þeirri gerð barst hann til Íslands og var meðal annars lesinn af skólapiltum í Skálholtsskóla á 17. öld. Svo vill til að þessi Napólísöngur er varðveittur í handriti sem nefnist „Melódía“ (Rask 98, frá um 1660–1670) og er þar við íslenska textann „Vera mátt góður“ (kór). Frá Ítalíu barst óperuformið norður um álfuna, fyrst til Frakklands og svo Þýskalands. Það nam einnig land á Englandi en framan af nutu þó ítalskar óperur takmarkaðra vinsælda meðal enskra. Áhöld eru um hver sé fyrsta enska óperan en flestir eru þó á því að það sé Dídó og Eneas eftir Henry Purcell (1659–1695). Þó er talið víst að hann hafi leitað fyrirmyndar í verkinu Venus og Adonis eftir kennara sinn, John Blow (1649–1708). Purcell samdi Dídó og Eneas við fjórðu bók Eneasarkviðu Virgils þar sem segir frá ástum Dídóar drottningar í Karþagó og Trójuverjans Eneasar. Textahöfundurinn, írska skáldið Nahum Tate, hafði unnið sér til frægðar að semja gamanendi á leikrit Shakespeares um Lé konung. Frægasti og mest flutti hluti verksins er lokaaría Dídóar, „Thy hand, Belinda ... When I am laid in Earth“, en kórinn sem fylgir í kjölfarið, „With drooping wings“, er líka gullfallegur. Dídó og Eneas hefur nokkrum sinnum verið færð upp á Íslandi, þar á meðal árið 1990 í uppfærslu Íslensku hljómsveitarinnar, þá af Sumaróperu Reykjavíkur í Borgarleikhúsinu árið 2002 og loks á Sumartónleikum í Skálholti 2025. Litlum sögum fer af öðrum óperutónskáldum á Englandi eftir daga Purcells uns Þjóðverjinn Georg Friedrich Händel (1685–1759) ferðaðist til Englands til þess að stýra frumflutningi á fyrstu óperu sinni fyrir Lundúnasviðið, Rinaldo, árið 1711. Händel settist fljótlega að á Englandi og samdi hverja óperuna á fætur annarri fyrir Lundúnabúa sem nutu mikilla vinsælda. Alls samdi Händel 35 óperur fyrir Englendinga, þar á meðal Alcinu (1735). Þar syngur titilpersónan meðal annars gullfallega aríu, „Di’, cor mio, quanto t’amai“. Purcell og Händel tilheyrðu barokktímabilinu en á því klassíska hélt óperuformið áfram að þróast og var áfram metnaðarfyllsta tónlistarformið eftir miðja 18. öld. Ludwig van Beethoven (1770–1827) samdi að vísu ekki nema eina óperu, Fidelio, og smíði hennar reyndist tónskáldinu mikil þrautarganga. Henni var illa tekið í upprunalegri gerð árið 1805 (nefndist þá Leonore) og það var raunar ekki fyrr en Beethoven hafði endurskoðað verkið tvívegis að Fidelio sló rækilega í gegn árið 1814. Eitt fallegasta atriði óperunnar er kvartettinn „Mir ist so wunderbar“. Wolfgang Amadeus Mozart (1756–1791) er frægasta undrabarn sögunnar og er sá maður „sem næst hefur komist hinum efri loftum“ eins og Halldór Laxness orðaði það í Atómstöðinni. Hann samdi 22 óperur en síðasta ópera hans, Töfraflautan (1791), er í hópi þeirra allra vinsælustu í veröldinni í dag og hefur lengi notið gríðarlegra vinsælda á Íslandi. Hún hefur margoft verið færð upp hér á landi, fyrst í Þjóðleikhúsinu árið 1956. Hér heyrum við þrjú atriði úr verkinu, fyrst söng fuglafangarans Papagenos, „Við fuglasnörun fæst ég hér (Der Vogelfänger bin ich ja)“, þá aríu Taminos, „Hve myndin undrafögur er (Dies Bildnis ist bezaubernd schön)“ og loks dúett Paminu og Papagenos, „Hve klukkur blítt hringja (Das klinget so herrlich)“. Þýðingar eru meðal annars eftir Þorstein Gylfason og Gunnstein Ólafsson.

14


Nítjánda öldin er oft auknefnd „gullöld óperunnar“ og það ekki að ófyrirsynju. Þar bera þó tveir menn höfuð og herðar yfir önnur tónskáld, jafnaldrarnir Verdi og Wagner, þó ekki væri nema sökum frægðar. Leitun er hins vegar að ólíkari mönnum og þeir hittust raunar aldrei. Þjóðverjinn Richard Wagner (1813–1883) var að mestu sjálfmenntaður. Hann sneri að vissu leyti baki við þýskri tónlistarhefð en hæfileikar hans voru ekki eingöngu bundnir við tónlistarsviðið. Hann var gott skáld og samdi texta við óperur sínar sjálfur. Eftir hann liggja risavaxin verk, þar á meðal Niflungahringurinn, en óperan Lohengrin var fyrst færð upp í Weimar árið 1850 undir stjórn Franz Liszt. Sjálfsagt hafa flestir heyrt eitthvað eftir Wagner, kannski án þess að gera sér grein fyrir að um eitthvað úr Wagner-óperu sé að ræða. Brúðarkórinn, „Treulich geführt ziehet dahin“, úr Lohengrin er gott dæmi um slíkt en einnig má nefna „Kvöldstjörnuna (Wie Todesahnung ... O du mein holder Abendstern“) úr Tannhäuser (1845), sem er gullfalleg barítónaría. Giuseppe Verdi (1813–1901) er frægasta tónskáld Ítala. Öfugt við Wagner sýndi hann festu í fjármálum og bjó yfir mikilli þolinmæði. Framan af mátti hann þó þola andstreymi en það var þriðja ópera hans, Nabucco (1842), sem gerði hann frægan, þá ekki hvað síst þrælakórinn, „Va, pensiero“, sem varð skjótt óopinber þjóðsöngur Ítalíu. Verdi-þrenningin Rigoletto, Il trovatore og La traviata er meðal mest fluttu ópera veraldar og Ísland er þar engin undantekning. Sem dæmi má nefna að Rigoletto (1851) var fyrst færð upp í Þjóðleikhúsinu árið 1951 og aftur 1960. Þá sýndi Íslenska óperan verkið tvívegis, 1990 og 2010, bæði skiptin í Gamla bíói. Hér hljómar kvartettinn úr lokaþætti óperunnar, „Un dì, si ben rammentomi ... Bella figlia dell’ amore“. Vissulega sömdu fleiri tónskáld óperur á 19. öld en risarnir tveir, Verdi og Wagner. París mátti til dæmis kalla óperuhöfuðborg Evrópu á 19. öld og þangað flykktust tónskáld víða að. Í krafti nýrra laga sem tóku gildi í Frakklandi árið 1806 fékk Parísaróperan (Opéra de Paris) einkaleyfi á flutningi á óperum sem voru sungnar frá upphafi til enda en OpéraComique fékk leyfi til þess að flytja sviðsverk þar sem söng og töluðu máli var fléttað saman. Frægasta óperan sem frumflutt var við síðarnefnda húsið er Carmen (1875) eftir franska tónskáldið Georges Bizet (1838–1875). Ekki tókst hins vegar frumsýningin vel því óperan olli hneykslan. Áheyrendur í Opéra-Comique voru hreint ekki vanir dramatík af þessu tagi. Óperan þótti líka ósiðleg en Pjotr Tsjajkovskíj (1840–1893), sem sá Carmen í París árið 1876, lýsti óperunni aftur á móti sem meistaraverki og kvað upp þann dóm að innan tíu ára yrði hún vinsælasta ópera veraldar. Hann reyndist býsna sannspár. Hér hljómar fjörugur forleikur verksins og fræg aría titilpersónunnar, „L’amour est un oiseau rebelle (Habanera)“, en hana byggði Bizet á dansi frá Kúbu. Þjóðleikhúsið færði Carmen upp árið 1975 og Íslenska óperan bæði 1984 og 2013. Óperan fór ekki varhluta af vaxandi þjóðerniskennd í Evrópu á 19. öld. Tónskáld víða leituðu í auknum mæli í þjóðararfinn, svo sem í þjóðlög og þjóðdansa, og upp spratt „þjóðarópera“ í hverju landi fyrir sig. Bedřich Smetana reið á vaðið í Tékklandi en þekktari er samlandi hans, Antonín Dvořák (1841–1904). Utan Tékklands er Dvořák kannski kunnastur fyrir hljómsveitarverk sín en hann samdi einnig tíu óperur. Rusalka (1901) er þeirra þekktust en arían „Měsíčku na nebi hlubokém (Söngurinn til mánans)“ er afbragð.

15


Snemma varð vart við skilning á mikilvægi óperuflutnings á Íslandi. Árið 1957 lögðu til að mynda fjórir þingmenn undir forystu Ragnhildar Helgadóttur fram þingsályktunartillögu á Alþingi þar sem skorað var á ríkisstjórnina að beita sér fyrir því að ráðnir yrðu 5–10 einsöngvarar að Þjóðleikhúsinu í ljósi þess að Íslendingar ættu nú „álitlegum hópi einsöngvara á að skipa, hvort sem litið er á stærð hans eða hæfni.“ Þolinmæði þrautir vinnur allar segir máltækið en stofnun Óperunnar með samþykkt nýrra sviðlistalaga árið 2020 rak smiðshöggið á, enda segir þar að hlutverk óperunnar sé „að sviðsetja óperuverk af háum listrænum gæðum“ og „glæða áhuga landsmanna á þeim.“ Íslensk tónskáld hafa líka verið iðin við óperusmíð. Hér hljómar til dæmis í fyrsta sinn opinberlega dúett úr Snæ konungi eftir Jórunni Viðar (1918–2017) við texta systur hennar, Drífu Viðar (1920–1971). Drög verksins eru frá því um 1943–1945 og fyrst um sinn átti það að vera „tragi-kómísk tilraun til söngleiks í einum þætti“. Jórunn og Drífa dvöldu um þetta leyti í New York og þar sóttu systurnar meðal annars óperusýningar. Í kjölfarið kviknaði hugmyndin um umfangsmeira verk en því miður auðnaðist systrunum ekki að ljúka við óperuna. Við heyrum hér dúett elskendanna Fjalars og Fannar, „Nú er nýfallinn snjór“. Þrymskviða eftir Jón Ásgeirsson (1928–2025) er fyrsta óperan í fullri lengd sem samin var við íslenskan texta, byggðan á samnefndu gamankvæði úr Eddukvæðum og segir af því er Þór neyddist til þess að dulbúa sig sem Freyju til þess að endurheimta hamar sinn úr Jötunheimum. Verkið var frumsýnt í Þjóðleikhúsinu árið 1974 í tilefni af 1100 ára afmæli Íslandsbyggðar en það var sýnt aftur í nokkuð breyttri mynd á Óperudögum árið 2018. Hér syngja Þór og kórinn „Ek em Óðins sonur“. Ragnheiður eftir Gunnar Þórðarson (1945–2026) er samin við texta Friðriks Erlingssonar (f. 1962) og segir af Ragnheiði Brynjólfsdóttur (Sveinssonar biskups) og ástarsambandi hennar við Daða Halldórsson. Óperan var frumflutt í konsertuppfærslu í Skálholtskirkju í ágúst 2013 en sviðsetning Íslensku óperunnar var frumsýnd í mars 2014 í Hörpu. Ragnheiður naut gríðarlegra vinsælda en hátt í tuttugu þúsund manns sóttu sýningarnar í Hörpu og komust færri að en vildu. Hér hljómar aría þjónustustúlkunnar Ingibjargar, „Herra, þekkið þér ei ást?“ Það var árið 1937 að ópera var fyrst sett á fjalirnar á Íslandi þegar Franz Mixa stjórnaði flutningi á Systurinni frá Prag eftir austurríska tónskáldið Wenzel Müller (1767–1835). Íslendingar fengu svo að njóta gestasýningar Konunglegu óperunnar í Stokkhólmi á Brúðkaupi Fígarós eftir Mozart í Þjóðleikhúsinu árið 1950 en ári síðar færði Þjóðleikhúsið sjálft upp Rigoletto eftir Verdi eins og áður var getið. Það liðu um þrjátíu ár frá stofnun Þjóðleikhússins uns Íslenska óperan tók til starfa en á þeim tíma setti leikhúsið reglulega upp óperusýningar. Íslenska óperan færði svo fyrst upp Pagliacci eftir Ruggero Leoncavallo árið 1979 og átti á næstu tæpu fimmtíu árum eftir að setja á svið tugi verka, jafnvel stórvirki eins og Aidu eftir Verdi í Gamla bíói og La traviata eftir sama tónskáld fjórum sinnum. Sinfóníuhljómsveit Íslands hefur einnig annað slagið flutt konsertuppfærslur af óperum og er þar skemmst að minnast stórkostlegs flutnings á Otello eftir Verdi í Háskólabíói árið 1996. Hér eru enn ótaldir sjálfstæðir hópar á borð við Norðuróp, Kammeróperuna og Óð og svo hátíð eins og Óperudaga. Er þá fátt eitt talið. Magnús Lyngdal Magnússon

16


Undir sömu stjörnu á Akureyri Þann 20. nóvember 2020 leiddist mér, eins og flestum í heiminum. Þá rakst ég á minnisblað um hugsanlega stofnun þjóðaróperu á Íslandi. Ok — þá varð aftur gaman! Gæti Hof verið heimili hennar? Ég bjó til lógóið „Óperan á Akureyri – HOF“ og spurði á alnetinu: „Hvað á hún að heita?“ Viðbrögðin voru rosaleg. Tillögum rigndi inn. Sama kvöld hringdi síminn. Djúp rödd sem ég þekki frá barnæsku spurði: „Þorvaldur, hvað eruð þið að pæla þarna fyrir norðan?“ Þetta var formaður fyrstu undirbúningsnefndar þjóðaróperunnar. Eftir símtalið var Menningarfélag Akureyrar komið með rödd inn í undirbúning sem hefur leitt okkur hingað: að risastóru skrefi í íslenskri menningarsögu, í Hofi á Akureyri. Söngurinn á sér djúpar rætur á Akureyri. Skipulagt sönglíf nær aftur á 19. öld. Hér risu öflugir kórar, Tónlistarfélag Akureyrar var stofnað 1943 og Tónlistarskólinn á Akureyri 1946. Úr þessum jarðvegi spratt Sinfóníuhljómsveit Norðurlands. Menning verður nefnilega til þar sem fólk skapar hana og þorir að vinna saman. Hún þarf ekki alltaf að berast úr miðjunni út á jaðarinn. Fyrir mig er þetta líka persónulegt. Ég er ekki sérfræðingur í óperu, en hef alltaf elskað dramatíska söngtónlist sem segir sögu. Kannski hefur Andrea Gylfadóttir, söngkona og ljóðskáld, þess vegna verið minn nánasti samstarfsmaður í tónlist í áratugi. Nú skrifar og leikstýrir frændi minn, Ólafur Egill Egilsson, þessum fyrsta stóra viðburði nýrrar Óperu. Það er sérstakt gleðiefni fyrir Menningarfélag Akureyrar og SinfoniaNord / Sinfóníuhljómsveit Norðurlands að vera meðframleiðendur opnunarviðburðarins Undir sömu stjörnu. Fyrsta ríkisrekna Óperan á Íslandi er að hefja sína sögu. Til hamingju, Ísland! Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson Tónlistarstjóri Menningarfélags Akureyrar Listrænn stjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands

17


Gunnar Björn Jónsson

tenór, fæddist í Reykjavík en ólst upp á Svalbarðseyri við Eyjafjörð. Hann hóf söngnám við Tónlistarskólann á Akureyri og hélt síðar til Reykjavíkur þar sem hann stundaði áfram söngnám og útskrifaðist frá Söngskóla Sigurðar Demetz. Að loknu námi þar hélt hann til Mílanó á Ítalíu þar sem hann stundaði frekara söngnám við Civica Scuola di Musica Claudio Abbado og útskrifaðist þaðan. Gunnar hefur komið fram á sviði bæði hérlendis og erlendis og meðal annars sungið í Þýskalandi, Austurríki og á Ítalíu. Meðal helstu hlutverka hans eru Alfredo í La traviata, Nemorino í Ástardrykknum, Edgardo í Lucia di Lammermoor, Pinkerton í Madama Butterfly og Roberto í Le Villi. Gunnar er nú ráðinn við Óperuna. Á þessu fyrsta starfsári Óperunnar kemur Gunnar fram sem Fenton í óperunni Falstaff sem sýnd verður í Hörpu. Þá kemur hann einnig fram á opnunarviðburði Óperunnar, Undir sömu stjörnu.

18

Hildigunnur Einarsdóttir

mezzósópran, er fædd og uppalin í Reykjavík. Hún var umvafin tónlist í æsku og lærði á hljóðfæri og söng í kór. Hún lauk burtfararprófi frá Söngskólanum í Reykjavík og stundaði í kjölfarið einkanám í Berlín og Utrecht. Samhliða söngnum hefur hún lagt áherslu á skapandi og fjölbreytt tónlistarstarf og hún lauk B.A.-prófi í skapandi tónlistarmiðlun frá Listaháskóla Íslands. Fjölbreyttur ferill Hildigunnar spannar allt frá kirkjutónlist og barokktónlist til samtímatónlistar og óperu og hefur hún einnig sungið bakraddir hjá þekktum dægurlagasöngvurum og inn á teiknimyndir. Hún hefur sungið einsöngshlutverk í helstu óratoríum Bachs og Händels og sungið reglulega með kammerkórum á borð við Cantoque Ensemble og Schola Cantorum. Sem einsöngvari hefur hún meðal annars komið fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, Barokksveitinni Brák, Caput og Kammersveit Reykjavíkur. Hún hefur einnig tekið þátt í frumflutningi fjölda nýrra verka eftir íslensk og erlend tónskáld. Hún hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin árið 2023 sem söngkona ársins í flokki sígildrar og samtímatónlistar. Hildigunnur var í haust ráðin við hina nýstofnuðu Óperu og mun meðal annars syngja á opnunarviðburðinum Undir sömu stjörnu og fara með hlutverk Quickly í Falstaff í mars.


Kristín Einarsdóttir Mäntylä

sópran, flutti átta ára gömul til Íslands eftir að hafa alist upp í Uppsölum í Svíþjóð. Tónlistarlegt uppeldi sitt fékk hún í kórastarfi Langholtskirkju og síðar við Söngskólann í Reykjavík. Að loknu burtfararprófi hélt hún til Leipzig í Þýskalandi, þar sem hún lauk bæði meistaranámi og Meisterklasse-námi í óperusöng við Tónlistarháskólann Felix Mendelssohn Bartholdy. Kristín hefur sungið við fjölmörg óperuhús í Þýskalandi, meðal annars í Würzburg, Dessau, Leipzig, Bonn og Altenburg. Meðal hlutverka hennar eru Marie í Wozzeck eftir Alban Berg, Elle í La voix humaine eftir Francis Poulenc og Milica í Svadba eftir Önu Sokolović. Hún hefur jafnframt komið fram sem einsöngvari á tónlistarhátíðum og í tónlistarhúsum á borð við Konzerthaus Berlin og Bachfest Leipzig. Eftir tólf ár í Þýskalandi er Kristín nú flutt heim til Íslands og hefur hlotið ráðningu við hina nýstofnuðu Óperu. Á þessu starfsári kemur hún meðal annars fram á opnunarviðburðinum Undir sömu stjörnu og syngur hlutverk Alice í Falstaff eftir Verdi. Hún mun fara með sópranhlutverkið í sýningunni M.A.R.S. við óperuhúsið í Bonn síðar í vetur.

Kristján Jóhannesson

barítón, fæddist í Reykjavík árið 1992, en rekur rætur sínar vestur á firði. Hann hóf söngnám við Söngskóla Sigurðar Demetz árið 2008, kennarar hans þar voru Sigrún Hjálmtýsdóttir, Kristján Jóhannsson og Keith Reed. Árið 2014 fluttist hann til Vínar til framhaldsnáms við Konservatoríið þar í borg. Á námsárunum söng Kristján m.a. í óperum Mozarts með Sumarakademíu Vínarfílharmóníunnar, í uppfærslum Neue Oper Wien, og hérlendis söng hann hlutverk Nautabanans í Carmen eftir Bizet hjá Íslensku óperunni. Árið 2017 hóf Kristján störf við Theater an der Wien. Af helstu verkefnum hans þar má nefna Niflungahring Wagners og Tristan og Ísold, Salome eftir Richard Strauss, Don Carlos eftir Verdi, Faust eftir Gounod, Mærina frá Orleans eftir Tchaikovsky og Ofviðrið við tónlist eftir Purcell. Kristján fluttist svo til St. Gallen í Sviss árið 2021, þar sem hann var fastráðinn til ársins 2025. Af verkefnum hans þar má nefna Requiem Verdis og Ernani, Elektru eftir Richard Strauss, Guillaume Tell eftir Rossini, Leðurblökuna eftir Johann Strauss yngri og Töfraflautu Mozarts. Þá hefur hann verið viðriðinn tónlistarhátíðina í Aix-en-Provence. Kristján er ráðinn við Óperuna. Kristján kemur fram á opnunarviðburði Óperunnar, Undir sömu stjörnu, og fer jafnframt með hlutverk Ford í Falstaff á þessu starfsári. Samhliða söngnum leggur Kristján stund á guðfræðinám við Háskóla Íslands.

19


Fyrsti söngvarahópur Óperunnar Fyrstu söngvararnir sem ráðnir hafa verið að Óperunni eru þau Kristín Einarsdóttir Mäntylä, sópran, Hildigunnur Einarsdóttir, mezzósópran, Gunnar Björn Jónsson, tenór og Kristján Jóhannesson, barítón, og taka þau öll fjögur þátt í Undir sömu stjörnu. Um áramót munu þau Harpa Ósk Björnsdóttir, sópran og Ragnar Pétur Jóhannsson, bassi, bætast í hópinn.

20


21


Richard Schwennicke

er tónlistarstjóri Óperunnar. Hann er hljómsveitarstjóri og píanóleikari með víðtæka reynslu sem hefur starfað við leiðandi óperuhús í Evrópu. Undanfarin ár hefur hann starfað sem æfingapíanisti, söngþjálfari og hljómsveitarstjóri við Vínaróperuna, eitt virtasta óperuhús heims. Richard lauk einleikaraprófi í píanóleik og síðar B.A.-prófi í hljómsveitarstjórn með áherslu á óperu frá Hochschule für Musik, Theater und Medien Hannover. Hann starfaði sem aðstoðarkórstjóri og hljómsveitarstjóri í Kassel og Hannover, auk þess að gegna stöðu yfirmanns tónlistardeildar við Staatstheater Darmstadt, þar sem hann bar ábyrgð á skipulagi tónlistardeildar og undirbúningi söngvara. Richard hefur sinnt fjölbreyttum verkefnum sem stjórnandi og hefur meðal annars stjórnað Sinfóníuhljómsveit Íslands. Hann samdi óperuna Wüstinnen sem var frumflutt í Berlín árið 2024 og hefur unnið með tónskáldum á borð við Báru Gísladóttur, Chaya Czernowin og Lucia Ronchetti. Richard talar fjölda tungumála, þar á meðal íslensku, og hefur jafnframt aflað sér mikillar þekkingar í samstarfi við fremstu stjórnendur Evrópu á sviði óperu.

Ólafur Egill Egilsson

útskrifaðist úr leiklistardeild LHÍ árið 2002. Hann hefur starfað sem leikari, handritshöfundur, leikskáld og leikstjóri í fjölda verkefna í leikhúsi, sjónvarpi og kvikmyndum. Leikstjórnarverkefni hans í Þjóðleikhúsinu eru Ásta, sem hann skrifaði handritið að, Nokkur augnablik um nótt og Ör (eða Maðurinn er eina dýrið sem grætur), auk þess sem hann hefur leikið þar í fjölmörgum sýningum. Hann gerði leikgerð af Karitas og Sjálfstæðu fólki ásamt öðrum fyrir Þjóðleikhúsið. Í Borgarleikhúsinu leikstýrði hann hinum geysivinsælu sýningum Þetta er Laddi og Níu líf sem hann samdi jafnframt handrit að, auk þess sem hann leikstýrði Hystory, Brot úr hjónabandi, Kartöfluætunum og Tvískinnungi. Hann skrifaði jafnframt handritið að Ellý ásamt Gísla Erni Garðarssyni og gerði leikgerðir af Fólkinu í kjallaranum og Svari við bréfi Helgu. Meðal kvikmynda- og sjónvarpshandrita sem hann hefur unnið að eru Ófærð, Katla og Eiðurinn. Hann skrifaði einnig ásamt Benedikt Erlingssyni sjónvarpsseríuna Dönsku konuna og handrit kvikmyndarinnar Kona fer í stríð.

22


Ólafía Hrönn Jónsdóttir

útskrifaðist úr Leiklistarskóla Íslands árið 1987. Hún hefur leikið fjölda hlutverka á sviði og í kvikmyndum og komið fram sem tónlistarmaður. Hún er fastráðin við Þjóðleikhúsið og í vetur leikur hún í opnunarsýningu Óperunnar, Undir sömu stjörnu, og Ormstungu. Af öðrum sýningum hér má nefna Yermu, Línu Langsokk, Jólaboðið, Frost, Eddu, Sjö ævintýri um skömm, Rómeó og Júlíu, Kardemommubæinn, Einræðisherrann, Lé konung, Utan gátta, Taktu lagið, Lóa! og Sjálfstætt fólk. Hún lék m.a. í Litlu hryllingsbúðinni hjá LA og Hannesi og Smára í Borgarleikhúsinu. Meðal kvikmynda og sjónvarpsþátta sem hún hefur leikið í eru True Detective, Black Mirror, Ófærð, Svörtu sandar, Brúðguminn, Perlur og svín, Mýrin og Sumarlandið. Hún hlaut Grímuverðlaunin fyrir leik sinn í Heimsljósi og Pétri Gaut og var tilnefnd fyrir Sjö ævintýri um skömm, Beðið eftir Godot, Lé konung, Utan gátta, Ívanov, Sólarferð, Stórfengleg og Þetta er allt að koma. Hún hlaut Edduverðlaunin fyrir Brúðgumann. Hún var valin leikkona ársins á Íslensku sjónvarpsverðlaununum fyrir Svörtu sanda II.

Örn Árnason

lauk námi frá Leiklistarskóla Íslands árið 1982. Hann er fastráðinn leikari við Þjóðleikhúsið en starfaði um árabil sjálfstætt sem leikari, framleiðandi, leikstjóri og höfundur. Í vetur leikur hann í opnunarsýningu Óperunnar, Undir sömu stjörnu, og í Afi-einn á báti, sem hann semur ásamt Agnesi Wild. Hann er jafnframt einn höfunda og leikara í Morð skulu standa – Harrý og Heimir, sem sýnt er í Kjallaranum. Harrý og Heimir var upphaflega útvarpsefni en hefur orðið efni í leiksýningar og kvikmynd. Í Þjóðleikhúsinu lék hann nýlega í Jólagjöf Skruggu, Blómunum á þakinu, Jólaboðinu, Frosti, Sem á himni, Rómeó og Júlíu, Kardemommubænum, Nashyrningunum og einleik sínum Sjitt, ég er sextugur. Örn hefur haft umsjón með aðventustundum Þjóðleikhússins í samstarfi við velferðarsvið Reykjavíkur. Hann hefur unnið við sjónvarpsþáttagerð um árabil, og má þar nefna þætti hans Með Afa og Imbakassann. Örn er einn af meðlimum Spaugstofunnar, sem setti svip sinn á íslenskt sjónvarp um áratugaskeið. Hann hefur jafnframt talsett fjölda teiknimynda, var einn af stofnendum Hljóðsetningar og hefur komið fram í fjölmörgum kvikmyndum og sjónvarpsverkefnum. Hann lék aðalhlutverk í kvikmyndinni Víkinni. 23


Hljómsveitarstjórn: Alexander Joel Leikstjórn: Brynhildur Guðjónsdóttir

FALSTAFF eftir Giuseppe Verdi Libretto: Arrigo Boito Frumsýning 6. mars 2027

Þýðing: Sólveig Sigurðardóttir og Þórhallur Auður Helgason Leikmynd: Börkur Jónsson Búningar: Helga I. Stefánsdóttir Lýsing: Björn Bergsteinn Guðmundsson Tónlistar- og kórstjórn: Richard Schwennicke

Frumflutningur á meistaraverki Verdis á Íslandi Ólafur Kjartan Sigurðarson fer með titilhlutverkið, en hann er einn ástsælasti söngvari þjóðarinnar og hefur um árabil farið með burðarhlutverk á óperusviðum víða um heim. Í öðrum hlutverkum er fastur hópur söngvara hinnar nýju Óperu ásamt fleiri framúrskarandi söngvurum og kór. Óperan verður flutt á íslensku í nýrri þýðingu eftir Sólveigu Sigurðardóttur og Þórhall Auð Helgason, en þýðingar þeirra fyrir óperusýningar Óðs hafa vakið mikla athygli. Sýningin er sett upp í Eldborg í Hörpu í samstarfi við Sinfóníuhljómsveit Íslands og mun fullskipuð hljómsveit sjá um hljóðfæraleik.

„Þá var ég grannur, þá var allt í blóma. Þetta var áður en ég kynntist rjóma.“ Söngvarar: Ólafur Kjartan Sigurðsson, Kristján Jóhannesson, Kristín Einarsdóttir Mäntylä, Álfheiður Erla Guðmundsdóttir/Harpa Ósk Björnsdóttir, Hildigunnur Einarsdóttir, Karin Björg Torbjörnsdóttir, Gunnar Björn Jónsson, Þorsteinn Freyr Sigurðsson, Eggert Reginn Kjartansson, Ragnar Pétur Jóhannsson og kór. 24

Getur bragðarefurinn Falstaff mögulega haft betur gegn þessum klóku konum?

Fyrsta stóra uppfærsla hinnar nýju Óperu verður gamanóperan Falstaff eftir Giuseppe Verdi og er það í fyrsta sinn sem þetta meistaraverk er sýnt á Íslandi. Verkið er byggt á persónum úr leikritum eftir William Shakespeare og fjallar um spaugilegar tilraunir aðalsmannsins Falstaffs til að draga tvær efnaðar konur á tálar og hafa síðan fé af eiginmönnum þeirra. Þær sjá fljótt í gegnum blekkingar kauða og taka til sinna ráða. Falstaff er fjörug og leiftrandi ópera um breyskleika og blekkingar, afbrýðisemi og hégómagirnd.


GIUSEPPE VERDI 25


Óperuakademían Óperan og söng- og tónlistarskólar landsins taka höndum saman um að skapa öflugan vettvang þar sem ungt tónlistar- og sviðslistafólk getur öðlast reynslu af óperuuppsetningu og kynnst þeim faglegu vinnubrögðum sem tíðkast í óperu og sviðslistum. Hér gefst nemendum einstakt tækifæri til að taka þátt í fullmótaðri óperuuppfærslu, hvort heldur á sviðinu eða í hljómsveitinni. Verkefnið er hugsað til að gefa ungu tónlistarfólki úr sem flestum tónlistarskólum landsins tækifæri til að stíga sín fyrstu skref í faglegu óperuumhverfi, vinna með reyndu listafólki og öðlast dýrmæta reynslu af samvinnu í skapandi ferli. Akademían er opin öllum umsækjendum.

Námskeið um óperur Í samstarfi við Endurmenntun Háskóla Íslands

Óperur – hlustun og saga

Á námskeiðinu verða þátttakendur leiddir í gegnum sögu óperunnar, allt frá aldamótunum 1600 og fram á 20. öld. Magnús Lyngdal Magnússon stýrir námskeiðinu. 17. nóvember til 8. desember 2026.

Á slóðum Verdis og Falstaff

Skyggnst á bak við tjöldin við uppsetningu gamanóperunnar Falstaff eftir ítalska meistarann Giuseppi Verdi. Brynhildur Guðjónsdóttir og Magnús Lyngdal Magnússon stýra námskeiðinu. 8. febrúar til 4. mars 2027.

Sjá nánar: www.endurmenntun.is

26


Starfsfólk Þjóðleikhússins Magnús Geir Þórðarson, þjóðleikhússtjóri Tinna Lind Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri skipulags, framleiðslu og ferla Jón Þ. Kristjánsson, framkvæmdastjóri samskipta, markaðsmála og upplifunar Þóra Gréta Þórisdóttir, framkvæmdastjóri fjármála Finnur Bjarnason, óperustjóri Melkorka Tekla Ólafsdóttir, leiklistarráðunautur Melkorka Gunborg Briansdóttir, listrænn ráðunautur Richard Schwennicke, tónlistarstjóri Óperunnar Sváfnir Sigurðarson, markaðsfulltrúi Sonja M. Scott, mannauðsstjóri Einar Aðalsteinsson, verkefnastjóri fræðslu - og samfélagsmála Vala Fannell, verkefnastjóri fræðslu - og samfélagsmála - í leyfi Hans Kragh, þjónustustjóri Björn Bergsteinn Guðmundsson, yfirljósahönnuður Ilmur Stefánsdóttir, leikmynda- og búningahöfundur Leikarar Almar Blær Sigurjónsson Atli Rafn Sigurðarson Birta Sólveig Söring Þórisdóttir Björn Thors Ebba Katrín Finnsdóttir Edda Arnljótsdóttir Eygló Hilmarsdóttir Guðjón Davíð Karlsson Hallgrímur Ólafsson Hilmar Guðjónsson Ilmur Kristjánsdóttir Jakob van Oosterhout Jónmundur Grétarsson Kjartan Darri Kristjánsson Kristín Þóra Haraldsdóttir Kristinn ÓIi S. Haraldsson Oddur Júlíusson Ólafía Hrönn Jónsdóttir Pálmi Gestsson Selma Rán Lima Sigurbjartur Sturla Atlason Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, í leyfi Unnur Ösp Stefánsdóttir Vigdís Hrefna Pálsdóttir, í leyfi Þröstur Leó Gunnarsson Örn Árnason Söngvarar Gunnar Björn Jónsson Hildigunnur Einarsdóttir Kristín Einarsdóttir Mäntylä Kristján Jóhannesson Framleiðslu- og verkefnastj. Óperunnar Jara Hilmarsdóttir Sýningarstjórn Elín Smáradóttir Elísa Sif Hermannsdóttir María Dís Cilia Máni Huginsson, framleiðslustjórn

Hljóð Kristján Sigmundur Einarsson, deildarstjóri Aron Þór Arnarsson Þóroddur Ingvarsson Bragi Fannar Berglindarson Brett Smith Þóroddur Ingvarsson Leikgervi Ingibjörg G. Huldarsdóttir, deildarstjóri Ása María Guðbrandsdóttir Hildur Ingadóttir Silfá Auðunsdóttir Þóra Guðbjörg Benediktsdóttir Búningar Berglind Einarsdóttir, deildarstjóri Ásdís Guðný Guðmundsdóttir Eva Lind Weywadt Oliversdóttir Sólveig Spilliaert Þórhildur Sunna Jóhannsdóttir Ljós Kjartan Þórisson - deildarstjóri Haraldur Leví Jónsson Hermann Karl Björnsson Jóhann Bjarni Pálmason Ýmir Ólafsson Leikmyndaframleiðsla Jasmina Wojtyla, teymisstjóri Arturs Zorģis, yfirsmiður Matija Mihaljenovic Stefán Örn Stefánsson Leikmunaframleiðsla Bjarni Þór Sigurbjörnsson, teymisstjóri - í leyfi Valur Hreggviðsson, málari Ásta Sigríður Jónsdóttir Mathilde Anne Morant, í leyfi

Þjóðleikhúsið er sameign íslensku þjóðarinnar. Allt frá árinu 1950 hefur leikhúsið skapað ógleymanlega leikhústöfra. Árlega setur leikhúsið upp fjölda nýrra sýninga, stendur fyrir fræðslustarfi, nýsköpun og tilraunastarfsemi, heldur í leikferðir um landið og sinnir höfundastarfi, auk óperustarfsemi á vegum hinnar nýstofnuðu Óperu.

Upplifun, þjónusta, miðasala og móttaka Friðdóra Haukdal Magnúsdóttir, miðasölustjóri Fanney Edda Felixdóttir Halla Eide Kristínardóttir Svið Kjartan Þórisson, deildarstjóri Ásdís Þórhallsdóttir, umsjón minni sviða Guðmundur Erlingsson, umsjón minni sviða Alex John George Hatfield , yfirmaður sviðstækni Eglé Sipaviciute Siobhán Antoinette Henry Jón Stefán Sigurðsson Kristmundur Elías Baldvinsson Sigurður Hólm Lárusson Tómas Sturluson Bókhald og laun Aðalheiður Arna Rafnsdóttir, fjármálastjóri Sigurveig Sólmundsdóttir, bókhaldari Tina Einarsson, launafulltrúi Eldhús Karolina Zielaskowska, matreiðslumaður Anna Powazka, aðstoðarmaður Umsjón fasteigna Sveinbjörn Helgason, húsvörður Ina Selevska, ræsting Jurate Zofija Gliaudeliene, ræsting Margarita Albina, ræsting Riina Kaunio, bakdyravörður Björn Jónsson, bakdyravörður Ofangreindir starfsmenn eru fastráðnir við Þjóðleikhúsið eða starfa þar samkvæmt árssamningi á yfirstandandi leikári, en auk þeirra vinna fjölmargir aðrir starfsmenn í leikhúsinu.

Þjóðleikhúsráð Halldór Guðmundsson, formaður Þóra Einarsdóttir, varaformaður Erling Jóhannesson Katrín Gunnarsdóttir Kristinn Sigmundsson Valgerður G. Halldórsdóttir Vigdís Jakobsdóttir

27


Þjóðleikhúsið Miðasölusími: 551 1200 Netfang miðasölu: midasala@leikhusid.is www.leikhusid.is 28


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Undir sömu stjörnu - leikskrá by Þjóðleikhúsið - Issuu