Skip to main content

Hreiðrið-leikskrá

Page 1


Spói: Jóhann Axel Ingólfsson

Ungi: Ylfa Marín Haraldsdóttir

Leikstjórn: Agnes Wild

Höfundar: Agnes Wild, Jóhann Axel Ingólfsson, Ylfa Marín Haraldsdóttir, Nick Candy, Sigrún Harðardóttir og Eva Björg Harðardóttir

Leikmynd, búningar og brúður: Eva Björg Harðardóttir

Tónlist: Sigrún Harðardóttir

Hljóðmynd: Sigrún Harðardóttir og Aron Þór Arnarson

Lýsing: Jóhann Bjarni Pálmason

Sviðshreyfingar: Agnes Wild og Nick Candy

Aðstoðarleikstjóri: Nick Candy

Aðstoðarmaður leikstjóra: Hildur Kaldalóns Björnsdóttir

Sýningarstjórn: Egle Spaviciute, Leifur Eiríksson

Búningagerð: Þórhildur Sunna Jóhannsdóttir

Leikmyndar- og leikmunagerð: Eva Björg Harðardóttir og Heiðrún Ósk Ólafsdóttir

Smiður: Ingvar Guðni Brynjólfsson

Keyrslumaður á sýningum: Fannar Smári Sindrason og Gísella Hannesdóttir

Ljósmyndir í leikskrá: Eyþór Árnason

Forsíðumynd: Sváfnir Sigurðarson og Jorri

Sérstakar þakkir: Oddur, Fróði, Brynhildur Sigurrós, Þröstur Máni, leikgervadeild Þjóðleikhússins, Andri, Ingi, Haffi, Dóra, Brynhildur, Snorri og allt starfsfólk Þjóðleikhússins

Miðnætti í samstarfi við Þjóðleikhúsið

Frumsýning á litla sviði Þjóðleikhússins 28. febrúar 2026

Verkefnið var styrkt af Sviðslistasjóði

Hægt er að hlusta á tónlistina úr Hreiðrinu á streymisveitum

Þjóðleikhússtjóri: Magnús Geir Þórðarson

Prentun: Prentmet Oddi

Um Miðnætti

Leikhópurinn Miðnætti var stofnaður árið 2017 af leikkonunni og leikstjóranum Agnesi Wild, tónlistarkonunni Sigrúnu Harðardóttur og leikmynda- og búningahönnuðinum Evu Björgu Harðardóttur. Hópurinn hefur frá upphafi lagt áherslu á metnaðarfullt og vandað menningarefni fyrir börn og ungmenni og er í dag einn af leiðandi leikhópum landsins á því sviði.

Miðnætti hefur átt farsælt samstarf við Þjóðleikhúsið. Agnes, Eva Björg og Sigrún voru ráðnar þangað sem listrænt teymi og sköpuðu sýninguna Blómin á þakinu, sem hlaut Grímuverðlaunin sem Barnasýning ársins 2025. Barnasýningar Miðnættis, Geim-mér-ei og Á eigin fótum, hafa einnig verið sýndar í Þjóðleikhúsinu við góðar undirtektir. Auk þess leikstýrði Agnes Línu Langsokk og Eva Björg hannaði búningana.

Þetta er í annað sinn sem Miðnætti skapar leikhúsverk fyrir ungabörn. Áður setti hópurinn upp sýninguna Tjaldið í Borgarleikhúsinu, sem var sýnd þrjú leikár í röð og hlaut tvær tilnefningar til Grímunnar: annars vegar sem barnasýning ársins og hins vegar fyrir leikstjórn ársins.

Sýningar Miðnættis hafa verið settar upp víða um land, meðal annars í Þjóðleikhúsinu, Borgarleikhúsinu, Tjarnarbíói og í Samkomuhúsinu á Akureyri.

Hópurinn hefur jafnframt tekið þátt í alþjóðlegum sviðslistahátíðum og sýnt verk sín í Okinawa og Kyoto í Japan, í Nuuk á Grænlandi, í Tallinn í Eistlandi og í Szczecin í Póllandi.

Af öðrum sviðsverkum Miðnættis má nefna Jólaævintýri Þorra og Þuru í Tjarnarbíó, Allra veðra von í samstarfi við Hringleik sem sýnd var í Tjarnarbíói, víða um land og á sviðslistahátíðum erlendis, og Djáknann á Myrká í samstarfi við Menningarfélag Akureyrar. Einnig hefur Miðnætti gefið út þrjár barnabækur um Þorra og Þuru í samstarfi við Bókabeituna og nokkrar hljómplötur sem finna má á streymisveitum. Miðnætti hefur framleitt þrjár sjónvarpsþáttaraðir um álfana Þorra og Þuru fyrir RÚV, þar á meðal Jóladagatal sjónvarpsins árið 2024.

Með Hreiðrinu heldur Miðnætti áfram að þróa leikhús fyrir yngstu áhorfendurna og byggir á þeirri reynslu og þekkingu sem hópurinn hefur aflað sér á undanförnum árum í starfi sínu fyrir börn og fjölskyldur. Hlýlegt, hugmyndaríkt og metnaðarfullt leikhús fyrir yngstu áhorfendurna, þar sem listin, leikgleðin og ímyndunaraflið fá að njóta sín til fulls.

Þjóðleikhúsið

Miðasölusími: 551 1200

Netfang miðasölu: midasala@leikhusid.is www.leikhusid.is Hægt er að hlusta á tónlistina úr Hreiðrinu á streymisveitum.

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook