1
Leikskrá Ritstjórn: Melkorka Tekla Ólafsdóttir. Hönnun og uppsetning: Jorri. Ljósmyndir: Owen Fiene, Jorri Prentun: Prentmet Oddi. Útgefandi: Þjóðleikhúsið. Myndir í leikskrá eru teknar á æfingu og eru því ekki heimild um endanlegt útlit sýningarinnar. Sýningarlengd er fjórar klukkustundir og tuttugu mínútur. Tvö hlé. Fyrsti þáttur: 1 klst. 45 mín. Fyrra hlé: 20 mín. Annar þáttur: 1 klst. 10 mín. Seinna hlé: 10 mín. Þriðji þáttur: 55 mín. Vinsamlega athugið að ekki er hægt að hleypa gestum inn í salinn eftir að sýningin hefst. Óheimilt er að hafa veitingar með sér inn í sal. Í sýningunni eru blikkandi ljós og snöggar ljósabreytingar. Notað er gerviblóð sem getur mögulega borist út í sal, en það er auðvelt að þrífa það úr fatnaði. Fínmalað rúgmjöl er notað á sviði, það getur þyrlast upp og mögulega borist út í sal. Slíkt getur ert fólk með viðkvæm öndunarfæri. Í leikmynd er jafnframt gifs sem brotið er upp. Reykt er tóbakslaus sígaretta á sviðinu. Reykelsi er brennt.
Þjóðleikhúsið 77. leikár, 2025–2026. Frumsýning í Kassanum 26. desember 2025. Þjóðleikhússtjóri: Magnús Geir Þórðarson.
2
Óresteia
eftir Benedict Andrews Leikrit byggt á þríleik Æskílosar
Þýðing: Kristín Eiríksdóttir
Þjóðleikhúsið 2025 - 2026 3
Aðrir aðstandendur Hvíslari Eyja Sigríður Gunnlaugsdóttir
Teymisstjórn leikmyndagerðar Jasmina Luiza Wojtyla
Dramatúrgísk ráðgjöf Melkorka Tekla Ólafsdóttir
Yfirsmiður Arturs Zorģis
Yfirumsjón leikgerva Silfá Auðunsdóttir
Teymisstjórn leikmunagerðar Bjarni Þór Sigurbjörnsson
Yfirumsjón búninga Berglind Einarsdóttir
Yfirumsjón leikmuna Mathilde Anne Morant
Starfsfólk á sýningum Sýningarstjórn Guðmundur Erlingsson Leikmunavörður og aðstoðarsýningarstjórn Jara Hilmarsdóttir Tæknistjórn Signý Rós Ólafsdóttir
Sviðsdeild Alexandre M. Goncalves Ramalhete Eglé Sipaviciute Fíóna Rokk Steinunnardóttir Gregory G. Aenlle Falkenburg Hera Katrín Karlsdóttir Iuliia Vasileva Sigurður Hólm Lárusson
Annað starfsfólk við sýninguna Leikgervadeild Ingibjörg G. Huldarsdóttir Ása María Guðbrandsdóttir Hildur Ingadóttir Þóra Guðbjörg Benediktsdóttir Búningadeild Ásdís Guðný Guðmundsdóttir Eva Lind Weywadt Oliversdóttir Sólveig Spilliaert Þórhildur Sunna Jóhannsdóttir Smiður Ingvar Guðni Brynjólfsson
4
Sviðsdeild, vinna við leikmynd og áhorfendasvæði Alex John George Hatfield Alexandre M. Goncalves Ramalhete Ásdís Þórhallsdóttir Eglé Sipaviciute Fíóna Rokk Steinunnardóttir Haukur Hildarson Haukur M. Hrafnsson Hera Katrín Karlsdóttir Katie Page Kristján Thorlacius Finnsson Kristmundur Elías Baldvinsson Sigurður Hólm Lárusson Siobhán Antoinette Henry Steingrímur Viljar Stefánsson Tómas Sturluson Þorsteinn Muni Jakobsson
Leikarar Órestes / kór Ebba Katrín Finnsdóttir
Klítemnestra / Aþena / kór Nína Dögg Filippusdóttir
Kassandra / Elektra / kór Ásthildur Úa Sigurðardóttir
Varðmaður / hermaður/ Ægistos / kór Atli Rafn Sigurðarson
Agamemnon / Apollon / kór Hilmir Snær Guðnason
Listrænir stjórnendur Leikstjórn Benedict Andrews
Tónlist Bára Gísladóttir
Leikmynd Elín Hansdóttir
Hljóðhönnun Bára Gísladóttir Aron Þór Arnarsson
Búningar Filippía I. Elísdóttir Lýsing Björn Bergsteinn Guðmundsson
Aðstoðarleikstjóri og dramatúrg Melkorka Gunborg Briansdóttir
Framleiðslu- og sýningarstjórn Sýningarstjórn og umsjón Guðmundur Erlingsson
Framleiðslustjórn Máni Huginsson
5
Benedict Andrews Benedict Andrews hefur sett upp fjölda rómaðra og margverðlaunaðra sýninga í virtustu leikhúsum og óperuhúsum heims, meðal annars í Þýskalandi, Bretlandi, Ástralíu og Bandaríkjunum, og leikstýrt tveimur kvikmyndum í fullri lengd. Hann hefur jafnframt samið leikrit og sent frá sér ljóðabók. Benedict hefur meðal annars sett á svið leiksýningar hjá Young Vic, Donmar Warehouse, STC, St Ann’s Warehouse og Schaubühne Berlin, og leikstýrt óperum hjá Dutch National Opera, English National Opera, Komische Oper Berlin og Bayerische Staatsoper. Hann hefur leikstýrt heimsfrægu listafólki á borð við Cate Blanchett, Gillian Anderson, Nina Hoss, Adeel Akhtar, Vanessa Kirby og Isabelle Huppert. Benedict fæddist í Ástralíu árið 1972 og starfar víða um heim, en er nú búsettur á Íslandi og er íslenskur ríkisborgari. Fyrri uppfærslur hans við Þjóðleikhúsið, Ellen B., Ex, Lér konungur og Macbeth, hlutu fjölda Grímuverðlauna, m.a. sem leiksýning ársins, auk þess sem Benedict var valinn leikstjóri ársins fyrir Ellen B. og Lé konung. Nýjasta sviðsetning Benedicts Andrews, leikgerð hans af The Cherry Orchard eftir Tsjekhov hjá Donmar Warehouse árið 2024 í London og St Ann’s Warehouse árið 2025 í New York, hefur hlotið mikið lof. Meðal annarra rómaðra sýninga hans eru Cat on a Hot Tin Roof hjá Young Vic og Apollo Theatre á West End í London, A Streetcar Named Desire hjá Young Vic og St Ann’s Warehouse í New York, The Maids hjá Sydney Theatre Company og Lincoln Center Festival, Three Sisters hjá Young Vic, Groß und Klein hjá Sydney Theatre Company og á leikferð um Evrópu, og War of the Roses, átta tíma leikgerð af verkum Shakespeares, The City, The Season at Sarsaparilla, Julius Caesar, Far Away, Endgame, Life is a Dream, Old Masters, Three Sisters, La Dispute, Mr Kolpert, Attempts on Her Life og Fireface hjá Sydney Theatre Company. Meðal sýninga hans hjá Schaubühne am Lehniner Platz í Berlín eru Cleansed, Saved, A Streetcar Named Desire, The Dog, the Night, the Knife, Drunk Enough to Say I Love You, Stoning Mary, The Ugly One og Blackbird. Hjá Belvoir Street leikhúsinu í Sydney leikstýrði Benedict The Seagull, Who’s
6
Afraid of Virginia Woolf?, The Chairs, A Midsummer’s Night Dream, The Threepenny Opera og Measure for Measure. Meðal annarra leikstjórnarverkefna Benedicts eru Moving Target (Malthouse/Adelaide Festival/Sydney Opera House), Eldorado (Malthouse), Ur/Faust (Weimar 99/Adelaide Festival), Closer (State Theatre South Australia), A Dream Play og Mojo (Brink Productions) og Wounds to the Face og Storm from Paradise (Blueprint). Benedict leikstýrði hér Ellen B. og Ex eftir Marius von Mayenburg, en hann hafði áður leikstýrt fimm leikritum eftir hann í leikhúsum í Ástralíu og við Schaubühne-leikhúsið í Berlín, Feuergesicht, Eldorado, Der Hund, die Nacht und das Messer, Der Häßliche og Freie Sicht / Moving Target sem þeir sömdu í sameiningu. Frumraun Benedicts sem kvikmyndaleikstjóra, kvikmyndin Una, sem byggð er á leikriti David Harrowers Blackbird, skartar Rooney Mara og Ben Mendelsohn í aðalhlutverkum, og var frumsýnd á Telluride kvikmyndahátíðinni árið 2016. Önnur kvikmynd hans, Seberg, var frumsýnd á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Feneyjum árið 2019. Í hlutverki Jean Seberg er Kristen Stewart. Kvikmyndir Benedicts hafa verið sýndar á alþjóðlegum kvikmyndahátíðum víða um heim. Benedict hefur leikstýrt rómuðum uppfærslum á óperum víða um heim. Má þar nefna Pique Dame eftir Tschaikowski og Così fan tutte eftir Mozart hjá Bayerisches Staatsoper, Medea eftir Reimann í Komische Oper, Fiery Angel eftir Prokofiev í Komische Oper og Opera de Lyon, Stiffelio eftir Verdi í Frankfurt, La Bohème eftir Puccini hjá Hollensku þjóðaróperunni og ENO, Caligula eftir Detlev Glanert hjá ENO og Teatro Colón í Buenos Aires, Macbeth eftir Verdi í Konunglegu dönsku óperunni og Óperu Valencia, Le Nozze di Figaro eftir Mozart hjá Óperuhúsinu í Sydney og The Return of Ulysses eftir Monteverdi hjá ENO / Young Vic. Benedict hefur m.a. hlotið Critics Circle-verðlaunin, Sydney Theatre-verðlaunin, Green Room-verðlaunin og Helpmann-verðlaunin þrívegis.
7
8
9
Nánd þar sem ekkert er falið og allt er afhjúpað Viðtal við Benedict Andrews, höfund leikritsins og leikstjóra sýningarinnar Hvað var það við þríleik Æskílosar Óresteiu sem heillaði þig og varð til þess að þig langaði að takast á við verkið? Ég heillaðist fyrst af hinum ofsaþrungna skáldskap í Óresteiu þegar ég las þýðingu Ted Hughes á verkinu fyrir tæpum þremur áratugum. Það má orða það svo að síðan þá hafi verkið alltaf dvalið hjá mér og beðið síns tíma. Á COVID-tímanum skapaðist skyndilega tómarúm — sá möguleiki virtist raunhæfur að leikhús yrði aldrei aftur hluti af veruleika okkar. Meðan þetta rof stóð yfir, rann upp fyrir mér að ef ég myndi yfir höfuð snúa mér að leikhúsi aftur, þá yrði ég að takast á við Grikkina. Eftir að hafa mátt þola það að glata leikhúsinu, þurfti ég að leita til uppruna þess, til hinnar djúpu uppsprettu, til sjálfrar undirstöðunnar. Óresteia er beinagrindin sem er grafin undir þeirri byggingu sem við getum kallað vestrænt leikhús. Í Óresteiu eru í brennidepli þau tímamót þegar leiklistin breytist frá því að vera fórnarathöfn yfir í að verða leikinn skáldskapur. Leikhúsið verður að dómstól, þar sem spurt er hvað réttlæti sé og hvernig samfélagið eigi að vera. Á þessum tíma uppgötvar leikhúsið klofningu sjálfsverunnar. Hjá leikskáldinu Æskílosi er hver persóna klofin í tvennt, líkt og með öxi. Leikhúsið þróast frá því að vera fórnarathöfn yfir í það að spyrja spurninga um sjálfa fórnina. Hreinsun fórnarathafnarinnar byrjar að víkja fyrir geðhreinsun eða kaþarsis — nokkurs konar djúpstæðri samkennd. Þetta er grunnur leikhússins. Efni Óresteiu á brýnt erindi núna, ekki síst umfjöllun verksins um hringrás ofbeldis, og þau áföll og þær hörmungar sem stríð hafa í för með sér. Þríleiknum til grundvallar liggur hugmyndin um óheiðarlega fórn og afbakaðar serimóníur. Fórnin á Ífigeníu á ströndinni í Ális bergmálar í leikritunum, líkt og morðin á börnum Þýestesar sem framin voru af bróður hans Atreifi einni kynslóð á undan. Í báðum tilvikum felur ofbeldið í sér að traust er fótum troðið: traust sem ætti að ríkja á milli bræðra, á milli gests og gestgjafa, á milli föður og dóttur. Trúnaðarbresturinn er eins og opið, vessandi sár í kjarna leikritanna. Trúnaðarbresturinn getur af sér önnur svik — hinar flærðarfullu móttökur sem Agamemnon fær hjá Klítemnestru, blekkingarleikinn sem Órestes spinnur til að komast inn í höllina og myrða móður sína. Ofbeldi dulbýr sig sem serimóníu; morð dulbýr sig sem réttlæti. Þetta er ein ástæða þess að leikritin tala með svo knýjandi hætti til samtíðarinnar. Við lifum á tímum þar sem lygum er tekið sem sannleika, þegar ýmsar formlegar athafnir í samfélaginu — sem tengjast stjórnmálum, lögum og rétti eða jafnvel mannúð — hafa holan hljóm, og þegar böndin sem halda borgaralegu lífi saman virðast sífellt veikari. Líkt og heimur persónanna í Óresteiu er okkar heimur gegnsýrður af sviknum loforðum og hræsnisfullum serimóníum, og af óttanum við það að þegar engu er treystandi, verði ofbeldi mögulega eini tjáningarmátinn sem eftir er.
10
Leikritin í þríleik Æskílosar fela í sér fyrstu mikilvægu tilraunina til að gera réttlæti að umfjöllunarefni, þau tímamót þegar tiltekin siðmenning reynir að rjúfa hringrás hefnda og innleiða lög, nýjan tjáningarmáta og lýðræði. En Æskílos sá þegar glitta í sprungurnar. Nýtt fyrirkomulag er ávallt byggt á rústum þess sem áður var við lýði. Hvert réttarkerfi ber í sér vofu þess glæps sem það segist ætla að útrýma. Í þríleiknum er sú spurning sett fram hvort nokkurn tíma sé raunverulega hægt að útrýma ofbeldi, eða hvort það sé einfaldlega sett í nýtt samhengi og fundin yfir það ný heiti svo sem réttlæti, lög eða nauðsyn. Tímarnir sem við lifum á eru líka tímar uppgjörs. Heimur okkar, líkt og heimur persónanna í þríleiknum, er markaður af sprungum sem hafa orðið til vegna stríða, feðraveldisins, hruns vistkerfa, ofbeldis yfirvalda og reiði almennings. Gegnum fjölmiðla fylgjumst við daglega með ofbeldi sem á sér stað á fjarlægum stöðum, oft og tíðum sitjandi með hendur í skauti. Guðirnir kunna að vera horfnir, en dómar ákvarða enn líf okkar. Þeir eru einfaldlega orðnir kuldalegri, vélrænni. Nú er það algóritminn sem ákveður hvað er sýnilegt, hvað gleymist, hvað skiptir máli. Við erum að setja upp þessi leikrit núna vegna þess að heimurinn hefur borist á ný að sömu siðferðislegu brúninni — milli hefndar og fyrirgefningar, milli minninga og gleymsku, milli eyðileggingar og endurnýjunar. Og vegna þess að leikhús, líkt og lýðræðið, getur einungis þrifist þegar við komum saman, horfum í sameiningu á það sem við höfum gert og spyrjum okkur að því hvers konar heim við getum byggt næst. Af hverju ákvaðstu að skrifa þína eigin gerð af þríleik Æskílosar? Og í því ferli, hvað fannst þér mikilvægast að varðveita og hvað vildir þú endurhugsa eða fella út? Að sviðsetja leikrit felur alltaf í sér einhvers konar endursköpun, einhvers konar „þýðingarvinnu“ ef svo má segja. Leiktexti er í eðli sínu síkvikur, hann er lifandi vera. Jafnt sem höfundur og leikstjóri leitast ég ávallt við að þýða texta yfir í nútíð, að draga hann sparkandi og öskrandi inn í núið. Í þessu tilviki á veran sem við erum að grafa upp uppruna sinn í vöggu hins vestræna leikhúss. Spurningin snýst ekki um það hvernig á að varðveita þessa veru, heldur hvað talar enn til okkar, hvaða sár eru enn opin, hvaða ráðgátur eru óleystar. Af hverju krefjast þessir skemmdu einstaklingar — Klítemnestra, Órestes, Elektra — þess að snúa aftur? Að skrifa mína eigin gerð af verkinu er líka mín leið til að spyrja: Hvað ef þetta væri nýtt leikrit, skrifað í dag? Ég hef ekki áhuga á leikhúsi sem einhvers konar safni — ekki bara vegna andúðar minnar á svokallaðri sögulegri nákvæmni í sviðsetningu eða sagnfræðilega réttri endursköpun, heldur vegna þess sem gerist þegar form stirðnar. Þegar leikverk er meðhöndlað sem fullbúið eða endanlegt, þá er það ekki lengur hættulegt og óútreiknanlegt. Ofbeldið verður fagurfræðilegt fyrirbæri frekar en lifandi afl, eitthvað til að dást að frekar en eitthvað sem getur enn ögrað eða komið fólki úr jafnvægi. Ég hef áhuga á því hvort þessir textar geti enn hrist upp í okkur, frekar en að þeim sé tryggilega pakkað inn. Um leið neita ég að draga tennurnar úr Óresteiu. Í þessum goðsögnum búa furður og ofbeldi fortíðarinnar; það er hluti af kraftinum í þeim. Sumar samtímagerðir af þeim fletja út allt það undarlega sem verkin búa yfir og breyta efni þeirra í eitthvað auðþekkjanlegt og sálfræðilega snyrtilegt. Ég vil varðveita tilfinninguna fyrir því að eitthvað fornt, órökrétt og hættulegt ólgi enn undir yfirborðinu. Ég leitast við að fanga þróttmikið, sviðslegt tungumál — ljóðlist á hreyfingu — sem er hlaðið hinni samþjöppuðu, hvítglóandi, seiðmögnuðu og ritúalísku orku sem býr í verkum Æskílosar, en er samt frumlegt og á eigin forsendum. 11
Á meðan ég skrifa er ég líka að móta grunnhugmyndir sviðsetningarinnar. Textinn er þá þegar farinn að leggja til hvernig hann vill vera holdgerður á sviðinu. Ákvörðunin um að þjappa þríleiknum saman í verk fyrir fimm manna leikhóp var tekin við skrifin. Þetta er ekki bara einhvers konar sparsemi heldur yfirlýsing um hvar goðsögnin býr nú. Hjá Æskílosi eru kórinn, höllin, borgin, guðirnir og hinir dauðu fyrirferðarmikil ytri öfl. Hér er þessu öllu þjappað saman í fimm lifandi líkama. Kórinn hverfur ekki heldur færist inn í leikendurna. Hver leikari ber í sér margar raddir — foreldri, barn, guð, borgara, draug — og skiptir stöðugt á milli þeirra. Mörkin milli hlutverks og sjálfsins byrja að mást út, og goðsögnin hættir að virðast fjarlæg frásögn og byrjar að virka eins og eitthvað sem þróast inni í einu taugakerfi. Erkitýpur skarast og það skapar núning og orku. Persónur búa í öðrum persónum; andlit flysjast af. Kassandra býr innra með Elektru. Persónueinkenni breytast og ummyndast, rétt eins og þegar fólkið sem við elskum — fólkið sem ásækir okkur — birtist okkur með ný andlit í draumum okkar. Í heimi sem er markaður af hugmyndum Freuds er hús Atreifs í senn höll og bygging sköpuð úr sálrænum þáttum. Það sem hjá Æskílosi eru guðleg lögmál, sem standa utan við manneskjuna, upplifum við nú sem innri lögmál: sektarkennd, áráttu, bælingu. Órestes þarf ekki Apollon til að stjórna sér, því öflin sem stjórna honum búa nú þegar innra með honum. Refsivættirnar eru ekki lengur verur undirheimanna; þær taka á sig form undirmeðvitundarinnar sem brýtur sér leið í gegnum varnir skynseminnar. Að vinna með fimm leikurum gefur áhorfendum færi á að upplifa goðsögnina á mannlegum skala — sem eitthvað nákomið, síkvikt og óútreiknanlegt — þar sem mörkin á milli sektar og sakleysis eru ekki fyllilega skýr. Þú hefur lýst Óresteiu sem ljóði í töluðu máli og lagðir í upphafi æfinga sérstaka áherslu á þá athöfn að tala og tengslin milli hugsunar og þess sem sagt er. Hvaða þýðingu hefur það fyrir þessa uppsetningu? Tungumálið í þessum leikritum hagar sér eins og óþægilegar og óreiðukenndar hugsanir. Þegar persónurnar byrja að tala, nær orðræða þeirra valdi yfir þeim. Þær berast áfram með straumnum; þær æla tali. Þetta þarf að koma fram í textanum með hljómfalli og byggingu, ekki bara með inntakinu. Þegar hægist á orðræðunni er það vegna þess að það hægist á einhverju innra með persónunni eða eitthvað innra með henni brotnar. Þegar hraðinn eykst er það vegna þess að taugaboð leiftra í höfuðkúpunni, adrenalín flæðir um líkamann. Við þurfum að finna efnafræðilegu virknina á bak við talið. Að flytja þetta leikrit er ákveðin íþrótt. Það er eins og að stökkva fram af kletti. Þú þarft að dýfa þér ofan í tungumálið og röksemdirnar, tileinka þér kraft þess og þunga án mótstöðu. Þú hefur talsverða reynslu af því að setja á svið sýningar á tungumáli sem er ekki þitt eigið. Margir myndu líta á þetta sem hindrun, en finnst þér þetta efla þig sem listamann? Í leikritinu Lé konungi er Gloucester, sem er nýorðinn blindur, spurður að því hvernig hann sjái heiminn og hann svarar „I see it feelingly“, sem vísar til þess að maður öðlist ekki skilning með færni eða yfirsýn, heldur með líkamanum. Að missa tungumálið
12
getur virkað á svipaðan hátt: það sviptir mann vissu og neyðir mann til að þreifa sig áfram í átt að sannleikanum frekar en að skilgreina hann. Að vinna á íslensku er svolítið eins og að sjá „svo sem í skuggsjá, í ráðgátu“. Ég hef öðlast þekkingu á tungumálinu núna, þótt ég kunni það ekki til hlítar. Ef hljómfallið er stirt, finn ég það líkamlega. Fyrir mér snýst leikhús alltaf um það að tungumálið holdgerist, orð verður lifandi hold — það sem Herbert Blau kallar hugsun af holdi og blóði. Það felur í sér að hugsa undir álagi, þar sem hugmyndir eru ekki abstrakt eða hreinsaðar heldur prófaðar í líkamanum: í andardrætti, þreytu, ótta, þrá, ofbeldi, mistökum. Það felur í sér ákveðna berskjöldun að leikstýra á tungumáli sem er ekki mitt móðurmál, en það býður líka upp á tækifæri til að tengjast taugakerfi leikritsins á óvæntan og beinan hátt. Hvernig hefur nándin í Kassanum mótað nálgun þína? Þessi uppfærsla staðsetur aðalspurningar þríleiksins í einu, hráu rými: á risastórri steinhellu sem er sett saman úr minni hellum, og þjónar sem altari, grafreitur, réttarsalur og rúst. Þessi stóra hella er sett saman og tekin í sundur af leikurunum sjálfum, í rauntíma.. Hver hella sem er lyft ber vitni um erfiði og allur vökvi sem er úthellt er merki um flekkun. Í lokin verður leikhúsið sjálft að rústum, vettvangur rannsóknar. Við Elín vildum að áhorfendur sætu í kringum sviðið baðaðir sömu óvægnu birtu og leikararnir. Við vildum að áhorfendur og leikhópurinn deildu sama rými, önduðu að sér sama loftinu. Áhorfendur verða kviðdómur, neyddir til að úrskurða, til að taka ábyrgð. Markmiðið var að skapa ágenga, stundum óþægilega nánd, þar sem ekkert er falið og allt er afhjúpað. Allir leikmunir hafa sína virkni á sviðinu, jafnvel leikmyndin sjálf. Allt sem er á sviðinu er efniviður sem leikararnir nota til að framkvæma ritúalið í verkinu, án nokkurs konar blekkinga. Sú staðreynd að áhorfendur sitja hringinn í kringum sviðið á þátt í að skapa þennan lifandi, síbreytilega skúlptúr. Það verða til margir skúlptúrar, í bókstaflegum skilningi, fyrir tilstilli þess hvernig leikararnir hreyfa steinhellurnar á sviðinu og þess hvernig þróttmiklir en lúnir líkamar þurfa að beita sér á ófyrirséðan hátt. Myndirnar sem skapast á sviðinu eru ekki óbreytanlegar eða fyrir fram ákveðnar. Þær verða til á staðnum. Þær spretta af nauðsyn, og af gjörðum leikaranna. Útkoman er röð af skýrum, einstökum samsetningum sem virðast hversdagslegar því þær verða til fyrir framan áhorfandann, en á sama tíma er áhorfandinn meðvitaður um það litla kraftaverk að þær taka á sig form án þess að vera fyrir fram skipulagðar. Hvar fólk stendur skiptir minna máli en hvers vegna það hreyfir sig — hvað er að gerast innra með því eða í samskiptum þess. Síkvikt innra líf hvers leikrits liggur í drifkrafti þess, gjörðum persónanna. Staðsetning líkama og hluta kann að virðast að öllu leyti ákveðin fyrir fram, en ekkert af þessu er niðurnjörvað, og getur breyst frá sýningu til sýningar — eins og járnflögur sem eru hreyfðar af segli. Af hverju snýrð þú alltaf aftur í leikhúsið? Jafnvel þótt ég hverfi frá um hríð til að leikstýra kvikmynd eða óperu, þá er leikhúsið þegar allt kemur til alls mín andlegu heimkynni. Leikhúsið er einhvern veginn svo fallega nakið listform. Þar er ekki þörf á neinu nema leikara, texta og einhverjum sem er vitni að því sem fram fer. Þetta er staður sannrar samveru og eitt af fáum rýmum þar sem
13
við getum leitað skjóls frá skjám og stöðugu flóði mynda. Á tímum sem eru undirlagðir fjölmiðlum og samskiptamiðlum af öllu tagi verður leikhúsið að vera einlægt, viðkvæmt, algjörlega list augnabliksins og algjörlega mannlegt. Þetta leiðir okkur að ákveðnu grundvallaratriði varðandi leikhúsið sjálft. Í Hamlet spyr Hóras: „Birtist fyrirbærið enn í kvöld?“ Leikhús er staðurinn þar sem líkami leikritsins þarf að snúa aftur á hverju kvöldi, eins og draugur, líkt og um reimleika sé að ræða. Leikarinn þarf að vekja Elektru til lífsins á hverju kvöldi, draga hana aftur fram sparkandi og öskrandi eins og í fyrsta sinn. Þetta verkefni leikarans sem snýst um nýja upprisu á hverju kvöldi er stórkostlegt, stórfurðulegt og dularfullt. Mér finnst magnað að vera viðstaddur þegar leikararnir umbreytast. Ég dáist að dirfsku þeirra, hvað þau eru opin, áhættunni sem þau taka, hvernig þau berskjalda sig fyrir okkar hönd. Þau leggja allt að veði á hverju kvöldi svo við, á hinum tímalausu augnablikum leikhússins, eigum þess kost að komast í nánara samband við okkur sjálf. Hugmyndin um endurkomu er þegar fyrir hendi í upphafi Óresteiu, í árdaga vestræns leikhúss, þar sem varðmaður horfir inn í myrkrið og bíður eftir fjarlægu ljósmerki. Eins og sú persóna sitjum við í leikhúsinu og bíðum eftir neista — af sannleika, tilfinningum, einhverju andlegu eða frumspekilegu. Við snúum alltaf aftur í leikhúsið vegna þess að þegar þessi neisti kviknar, þá er það algjörlega einstakt. Ég er enn að reyna að eygja loga varðmannsins — finna hina sjaldgæfu tilfinningu fyrir einhverju yfirskilvitlegu þegar frumspekileg vídd leikrits kemur í ljós en heldur þó áfram að vera hrá, sönn og mannleg, þegar það fer fiðringur um taugakerfið af því að ég veit ekki til fullnustu hvað ég er að horfa á en finnst samt að það sé eitthvað sem ég hef þekkt alla tíð. Við erum öll varðmaðurinn, bíðum eftir uppljómun. Melkorka Gunborg Briansdóttir tók viðtalið. Þýðing: Melkorka Tekla Ólafsdóttir.
14
15
„Maður hefur rétt svo náð að gera sér skýra mynd af tiltekinni goðsögu þegar hún opnast eins og blævængur með þúsund fellingum. Hér gildir að sérhver gerð er hið upprunalega. Allt sem gerist, gerist á einn hátt, eða á annan hátt, eða á einhvern enn annan hátt. Og í hverri þessara ólíku sagna endurspeglast allar hinar, allar strjúkast þær við okkur eins og hlutar af sama klæði. Ef, sökum einhverra duttlunga hefðarinnar, aðeins ein útgáfa af einhverjum goðsögulegum atburði hefur varðveist fram á okkar tíma, þá er hún eins og líkami án skugga, og við verðum að gera okkar besta til að draga upp mynd af þessum ósýnilega skugga í huga okkar.“ Úr The Marriage of Cadmus and Harmony eftir Roberto Calasso. Þýðing á ensku Tim Parks. Ísl. þýðing MTÓ. „Harmleikurinn sýnir það sem er hverfult, það sem er brothætt og það sem ekki er auðbreytanlegt við tilvist okkar. Í heimi sem einkennist af miskunnarlausum hraða og sífellt örara upplýsingaflæði, sem ýtir undir minnisleysi og óslökkvandi þorsta eftir því sem framundan er í nálægri framtíð og tilbeiðsla hinna nýju gerviguða tækninnar á að tryggja okkur, er harmleikurinn leið til að taka í neyðarhemilinn. Harmleikurinn hægir á hamaganginum með því að láta okkur horfast í augu við það sem við vitum ekki um okkur sjálf: óþekktan kraft sem skekur okkur reglulega, oft viðstöðulaust. Nærvera fortíðarinnar getur stundum verið þess háttar ógnvekjandi afl, sem við reynum kannski að afneita en mun að lokum sigra, að minnsta kosti sökum þess að við erum dauðleg. Við gætum haldið að við hefðum afgreitt fortíðina, en fortíðin er ekki búin að afgreiða okkur. Með því hvernig harmleikurinn umsnýr gæfunni skyndilega og gengst með ofsa við sannleikanum um uppruna okkar, gefur hann okkur færi á því að horfast í augu við það sem við vitum ekki um sjálf okkur en gerir okkur engu að síður að því sem við erum. Harmleikurinn kallar fram það sem skapar hindranir í tilveru okkar, snörur og gildrur fortíðarinnar sem við í blindni hrösum um í ofsafenginni en brösóttri sókn okkar fram á við. Þetta er það sem fornþjóðirnar kölluðu „örlög“, og til þess að það nái tökum á okkur verðum við að vera samsek.“ Úr Tragedy, The Greeks, And Us eftir Simon Crichley. Ísl. þýðing MTÓ.
16
17
Ebba Katrín Finnsdóttir
útskrifaðist af leikarabraut Listaháskóla Íslands 2018. Ebba leikur í Línu Langsokk í Þjóðleikhúsinu í vetur. Hún lék hér m.a. í einleiknum Orð gegn orði, Ellen B., Rómeó og Júlíu, Meistaranum og Margarítu, Nokkrum augnablikum um nótt, Ást og upplýsingum og Atómstöðinni. Hún lék í Temple of Alternative Histories í Staatstheater Kassel í Þýskalandi. Hún lék í Dúkkuheimili 2. hluta, NÚNA 2019, Hamlet litla og Matthildi í Borgarleikhúsinu. Ebba lék aðalhlutverkið í sjónvarpsþáttaröðinni Húsó og leikur aðalhlutverkið í sjónvarpsþáttaröðinni Hildur sem verður frumsýnd í ársbyrjun 2026. Meðal kvikmynda og sjónvarpsmynda sem hún hefur leikið í eru Danska konan, King & Conqueror, 112 Reykjavík, Vigdís, Nokkur augnablik um nótt, Mannasiðir, Agnes Joy og Venjulegt fólk. Ebba Katrín hlaut Grímuverðlaunin fyrir leik sinn í Atómstöðinni og var tilnefnd fyrir Orð gegn orði, Rómeó og Júlíu, Ellen B. og Matthildi, og fyrir tónlist ársins í Rómeó og Júlíu. Ebba var bæjarlistamaður Hafnarfjarðar árið 2024 og hlaut Stefaníustjakann árið 2025.
18
Ásthildur Úa Sigurðardóttir
útskrifaðist af leikarabraut Listaháskóla Íslands 2019. Óresteia er fyrsta verkefni hennar í Þjóðleikhúsinu. Í Borgarleikhúsinu lék hún m.a. í Ketti á heitu blikkþaki, Emil í Kattholti, Macbeth, Svartþresti, Deleríum búbónis og Lúnu. Hún lék í The Last kvöldmáltíð í Tjarnarbíói. Hún leikur í sjónvarpsþáttunum Bless bless Blesi sem frumsýndir verða á næsta ári. Hún hefur fimm sinnum verið tilnefnd til Grímuverðlaunanna.
Hilmir Snær Guðnason
útskrifaðist frá Leiklistarskóla Íslands 1994 og hefur leikið í fjölmörgum leiksýningum og kvikmyndum, íslenskum sem erlendum, auk þess sem hann hefur leikstýrt fjölda sýninga. Meðal verkefna hans hér eru Sjö ævintýri um skömm, Nashyrningarnir, Efi, Horft frá brúnni, Eldraunin, Macbeth, Með fulla vasa af grjóti, Ríkarður þriðji, Veislan, Dagleiðin langa, Fávitinn, Hamlet, Horfðu reiður um öxl, Ívanov og Listaverkið. Hann lék m.a. nýlega í Hamlet og Ketti á heitu blikkþaki í Borgarleikhúsinu. Hann hefur hlotið fjölmargar tilnefningar til Grímunnar og hlaut verðlaunin fyrir leik í Ketti á heitu blikkþaki, Sjö ævintýrum um skömm, Vanja frænda, Hver er hræddur við Virginiu Woolf?, Veislunni og Ég er mín eigin kona og fyrir leikstjórn á Fjölskyldunni. Hann hlaut Menningarverðlaun DV fyrir Hamlet og Listaverkið og Edduverðlaunin fyrir Brúðgumann, Mávahlátur og Dýrið.
Nína Dögg Filippusdóttir
útskrifaðist úr leiklistardeild LHÍ 2001 og hefur leikið fjölda hlutverka á sviði, í kvikmyndum og sjónvarpi. Hún er einnig handritshöfundur og kvikmyndaframleiðandi. Hún er meðal stofnenda Vesturports og lék m.a. í Rómeó og Júlíu, Hamskiptunum og Faust hérlendis sem erlendis. Hún leikur í Íbúð 10B í Þjóðleikhúsinu í vetur. Hér hefur hún m.a. farið með burðarhlutverk í Yermu, Ex, Jólaboðinu, Óþelló, Tímaþjófnum, Sporvagninum Girnd og Fjalla-Eyvindi, og í Borgarleikhúsinu í Fólk, staðir og hlutir og Fjölskyldunni. Hún var einn framleiðenda, höfunda og leikara í sjónvarpsþáttaröðunum Verbúðinni og Föngum og fer með titilhlutverkið í sjónvarpsþáttaröðinni Vigdísi. Hún hefur hlotið fjölda tilnefninga til Grímunnar og Eddunnar og hlaut Grímuna fyrir Ex og Fólk, staðir og hlutir og Edduna fyrir Verbúðina, Villibráð, Brim og Hjartastein. Nína Dögg hefur hlotið fálkaorðuna og Stefaníustjakann, og var valin bæjarlistamaður Seltjarnarness. Hún var valin Shootingstar á Berlinale Film Festival.
19
Atli Rafn Sigurðarson
útskrifaðist frá Leiklistarskóla Íslands árið 1997. Hann hefur farið með fjölda hlutverka í Þjóðleikhúsinu, Borgarleikhúsinu, hjá leikhópum, í sjónvarpi og kvikmyndum. Hér í Þjóðleikhúsinu hefur hann m.a. leikið í Eddu, Múttu Courage, Rómeó og Júlíu, Framúrskarandi vinkonu, Englinum, Sjálfstæðu fólki, Englum alheimsins, Macbeth, Svörtum hundi prestsins, Dagleiðinni löngu, Lé konungi, Öllum sonum mínum, Gerplu, Legi, RENT, Draumi á Jónsmessunótt, Laufunum í Toscana, Pabbastrák, Dýrunum í Hálsaskógi og Halldóri í Hollywood. Atli Rafn var meðal handritshöfunda í Sjálfstæðu fólki og Djöflaeyjunni. Hann leikstýrði Djöflaeyjunni, Heimkomunni og Frida ... viva la vida í Þjóðleikhúsinu. Hann hefur hlotið sex tilnefningar til Grímuverðlaunanna og hlaut Grímuna fyrir Lé konung. Hann hlaut Edduverðlaunin fyrir Mýrina og Menningarverðlaun DV fyrir Engla alheimsins.
20
21
22
23
Kristín Eiríksdóttir
er myndlistarmenntaður rithöfundur. Hún hefur sent frá sér fimm ljóðabækur, smásagnasafnið Doris deyr og skáldsögurnar Hvítfeld – fjölskyldusaga, Elín, ýmislegt og Tól. Hún samdi leikritið Karma fyrir fugla ásamt Kari Ósk Grétudóttur fyrir Þjóðleikhúsið en leikrit hennar Skríddu og Hystory voru sýnd í Borgarleikhúsinu. Sögur og ljóð Kristínar hafa verið þýdd yfir á erlend tungumál. Hún hefur m.a. hlotið Íslensku bókmenntaverðlaunin, Fjöruverðlaunin og Verðlaun bóksala, og verið tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Kristín vinnur ásamt Mazen Maarouf að leikverki fyrir Gula dregilinn í Þjóðleikhúsinu.
Melkorka Gunborg Briansdóttir
útskrifaðist af sviðshöfundabraut Listaháskóla Íslands í september 2025. Hún er einnig með B.A. próf í bókmenntafræði frá Háskóla Íslands og University College London. Melkorka hefur tekið þátt í ýmsum sýningum í sjálfstæðu sviðslistasenunni sem höfundur, meðhöfundur, aðstoðarleikstjóri og leikstjóri, meðal annars í samstarfi við sumarleikhúsið Afturámóti sumarið 2024. Nýverið starfaði hún sem aðstoðarleikstjóri í Borgarleikhúsinu við Þetta er Laddi og Moulin Rouge. Melkorka skrifar verk fyrir Gula dregilinn í Þjóðleikhúsinu í vetur. Hún hefur starfað við dagskrárgerð í útvarpi fyrir Rás 1 og verið með innslög í Lestinni, Tengivagninum og Víðsjá.
Elín Hansdóttir
lauk BA-prófi frá myndlistardeild Listaháskóla Íslands árið 2003 og Magisterprófi frá KHB-Weißensee í Berlín árið 2006. Hún gerir leikmynd og búninga fyrir Nýtt eldhús eftir máli ásamt Filippíu I. Elísdóttur í Þjóðleikhúsinu í vetur. Elín hefur haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í samsýningum víða um heim, meðal annars í KW Institute for Contemporary Art í Berlín, Schering Stiftung Berlin, Listasafni Íslands, Listasafni Reykjavíkur, Den Frie í Kaupmannahöfn, Frieze Projects og á tvíæringnum í Marrakesh. Þverfagleg listsköpun Elínar sameinar skúlptúr, ljósmyndun og innsetningar til að skapa staðbundin verk þar sem áhersla er lögð á skynjun einstaklingsins á umhverfi sínu. Elín gerði leikmynd fyrir Saknaðarilm og Vertu úlfur í Þjóðleikhúsinu. Hún hlaut Grímuverðlaunin fyrir Vertu úlfur og var tilnefnd fyrir Saknaðarilm. Hún hefur einnig hannað leikmyndir fyrir Burgtheater, Kampnagel og Borgarleikhúsið. Elín hlaut Bjartsýnisverðlaunin árið 2017 og árið 2022 var útilistaverk hennar Himinglæva afhjúpað við Hörpu tónlistarhús.
Filippía I. Elísdóttir
hefur starfað við á annað hundrað sýninga sem búninga- og sviðsmyndahönnuður, listrænn ráðgjafi og höfundur gjörninga. Sem búninga- og sviðsmyndahönnuður hefur hún unnið við leiksýningar, óperur og kvikmyndir, jafnt á Íslandi sem erlendis, og hlotið fjölda viðurkenninga fyrir störf sín. Í vetur gerir hún hér leikmynd og búninga fyrir Nýtt eldhús eftir máli ásamt Elínu Hansdóttur. Meðal nýlegra verkefna hennar hér eru Heim, Taktu flugið, beibí!, Ást Fedru, Mútta Courage, Saknaðarilmur, Aspas, Sem á himni, Vertu úlfur, Framúrskarandi vinkona, Nashyrningarnir, Súper og Húsið. Hún gerði nýlega leikmynd og búninga fyrir Hamlet og búninga fyrir Ungfrú Ísland í Borgarleikhúsinu. Hún hlaut Grímuna fyrir Ungfrú Ísland, Ást Fedru, Ríkharð III, Töfraflautuna, Ofviðrið, Sweeney Todd, Virkjunina, Woyzeck, Engla alheimsins og Dúkkuheimili. Hún hlaut Stefaníustjakann árið 2010 og Fálkaorðuna árið 2016. 24
Björn Bergsteinn Guðmundsson
hefur lýst fjölda sýninga hjá Þjóðleikhúsinu, Borgarleikhúsinu, Íslenska dansflokknum, Leikfélagi Akureyrar, Hafnarfjarðarleikhúsinu, Íslensku óperunni, Badisches Staatstheater og ýmsum leikhópum. Hann starfaði eitt leikár í Konunglega leikhúsinu í Kaupmannahöfn. Hann hannaði lýsingu í mörgum sýningum þegar hann var fastráðinn í Þjóðleikhúsinu á árunum 1982-2005. Hann er nú yfirljósahönnuður Þjóðleikhússins. Björn hannar lýsingu fyrir Íbúð 10B og Nýtt eldhús eftir máli í Þjóðleikhúsinu í vetur. Meðal nýjustu verkefna hans eru Heim, Saknaðarilmur, Mútta Courage, Ellen B., Ex, Ekki málið, Draumaþjófurinn, Sem á himni, Framúrskarandi vinkona, Rómeó og Júlía, Nashyrningarnir og Vertu úlfur í Þjóðleikhúsinu og Ríkharður III og Níu líf í Borgarleikhúsinu. Hann hefur hlotið fjölda viðurkenninga og margoft hlotið Grímuverðlaun fyrir lýsingu ársins, nú síðast fyrir Vertu úlfur.
Bára Gísladóttir
er tónskáld og kontrabassaleikari búsett í Kaupmannahöfn. Tónlist hennar snýst að miklu leyti um að nálgast hljóð sem lifandi veru en verk hennar hafa verið flutt af hljómsveitum og einleikurum víða um heim á borð við Barokkbandið Brák, DR Symfoniorkester, Ensemble InterContemporain, Ensemble Recherche, Orchestre Philharmonique de Radio France, Riot Ensemble, Sinfóníuhljómsveit Íslands, Solistenensemble Kaleidoskop, DR Vokalensemblet og WDR Sinfonieorchester. Verk hennar hafa verið valin á hátíðir á borð við Ars Electronica, MaerzMusik, Myrka músíkdaga, Darmstädter Ferienkurse, Festival Musica, Huddersfield Contemporary Music Festival, SPOR Festival, Ultima Festivalen, Warsaw Autumn og Wittener Tage für neue Kammermusik. Bára hefur hlotið fjölda verðlauna, meðal annars æðstu tónlistarverðlaun Danmerkur, heiðursverðlaun Carl Nielsen og Anne Marie Carl-Nielsen, og ein virtustu verðlaun sem veitt eru fyrir samtímatónlist, Ernst von Siemens tónskáldaverðlaunin. Bára hefur gefið út fjölda platna, nú síðast Orchestral Works (Dacapo). Bára leikur gjarnan eigin tónlist en er einnig kontrabassaleikari í Kammersveitinni Elju. Þá hefur hún komið fram sem einleikari með fjölda hljómsveita, m.a. Copenhagen Phil og Sinfóníuhljómsveit Íslands við flutning eigin kontrabassakonserts, Hringlu, en í febrúar n.k. leikur hún konsertinn með BBC Symphony Orchestra.
Aron Þór Arnarsson
starfar við hljóðdeild Þjóðleikhússins og hefur hannað hljóðmynd fyrir ýmsar leiksýningar. Meðal verkefna hans hér eru Íbúð 10B, Heim, Eltum veðrið, Saknaðarilmur, Edda, Ekki málið, Ellen B., Ex, Nokkur augnablik um nótt, Aspas, Sem á himni, Ásta, Framúrskarandi vinkona og Kafbátur. Hann hefur unnið sem upptökustjóri og hljóðmaður í rúma tvo áratugi. Meðal þeirra tónlistarmanna og hljómsveita sem hann hefur unnið með eru Björk, Of Monsters and Men, GusGus, John Grant, The Brian Jonestown Massacre, Hjaltalín, HAM, Stuðmenn, Valdimar, Leaves, Trabant, Apparat Organ Quartett, Singapore Sling, Kimono, Úlpa, Jóhann Jóhannsson, Barði Jóhannsson, Hljómar, Mannakorn, KK, Magnús Eiríksson og RASS. Hann hlaut ásamt öðrum Grímuverðlaunin fyrir hljóðmynd í Einræðisherranum, og var tilnefndur ásamt öðrum fyrir Ellen B., Kafbát og Atómstöðina.
25
26
27
28
Starfsfólk Þjóðleikhússins Magnús Geir Þórðarson, þjóðleikhússtjóri Tinna Lind Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri skipulags, framleiðslu og ferla Jón Þorgeir Kristjánsson, framkvæmdastjóri samskipta, markaðsmála og upplifunar Þóra Gréta Þórisdóttir, framkvæmdastjóri fjármála Melkorka Tekla Ólafsdóttir, leiklistarráðunautur Matthías Tryggvi Haraldsson, listrænn ráðunautur Sváfnir Sigurðarson, markaðsfulltrúi Vala Fannell, verkefnastjóri fræðslu - og samfélagsmála Aðalheiður Arna Rafnsdóttir, fjármálastjóri Hans Kragh, þjónustustjóri Björn Bergsteinn Guðmundsson, yfirljósahönnuður Ilmur Stefánsdóttir, leikmynda- og búningahöfundur
Leikarar Almar Blær Sigurjónsson Atli Rafn Sigurðarson Birta Sólveig Söring Þórisdóttir Björn Thors Ebba Katrín Finnsdóttir Edda Arnljótsdóttir Eygló Hilmarsdóttir Guðjón Davíð Karlsson Hallgrímur Ólafsson Hilmar Guðjónsson Ilmur Kristjánsdóttir Jakob van Oosterhout Kjartan Darri Kristjánsson Kristín Þóra Haraldsdóttir Kristinn ÓIi S. Haraldsson Nína Dögg Filippusdóttir Oddur Júlíusson Ólafía Hrönn Jónsdóttir Pálmi Gestsson Selma Rán Lima Sigurbjartur Sturla Atlason Sigurður Sigurjónsson Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, í leyfi Unnur Ösp Stefánsdóttir Vigdís Hrefna Pálsdóttir, í leyfi Þröstur Leó Gunnarsson Örn Árnason Sýningarstjórn Elín Smáradóttir Elísa Sif Hermannsdóttir María Dís Cilia Máni Huginsson, framleiðslustjórn Hljóð Kristján Sigmundur Einarsson, deildarstjóri Aron Þór Arnarsson Þóroddur Ingvarsson Brett Smith
Leikgervi Ingibjörg G. Huldarsdóttir, deildarstjóri Ása María Guðbrandsdóttir Silfá Auðunsdóttir Þóra Guðbjörg Benediktsdóttir Hildur Ingadóttir Búningar Berglind Einarsdóttir, deildarstjóri Ásdís Guðný Guðmundsdóttir Sólveig Spilliaert Þórhildur Sunna Jóhannsdóttir Eva Lind Weywadt Oliversdóttir Ljós Björn Bergsteinn Guðmundsson, yfirljósah. Garðar Borgþórsson, deildarstjóri Ásta Jónína Arnardóttir Haraldur Leví Jónsson Jóhann Bjarni Pálmason Ýmir Ólafsson Leikmyndaframleiðsla Jasmina Wojtyla, teymisstjóri Arturs Zorģis, yfirsmiður Michael John Bown Leikmunaframleiðsla Bjarni Þór Sigurbjörnsson, teymisstjóri Ásta Sigríður Jónsdóttir Mathilde Anne Morant Valur Hreggviðsson
Svið Ásdís Þórhallsdóttir, leiksviðsstjóri Guðmundur Erlingsson, umsjón minni sviða Eglé Sipaviciute, umsjón Litla sviðsins Siobhán Antoinette Henry, yfirumsjón á Stóra sviðinu Alex John George Hatfield , yfirmaður sviðstækni Jón Stefán Sigurðsson, í leyfi Tómas Sturluson Sigurður Hólm Lárusson Bókhald og laun Guðrún Ingólfsdóttir, bókhaldari Steinunn Þorsteinsdóttir, launafulltrúi Eldhús Marian Chmelar, matreiðslumaður Karolina Zielaskowska, aðstoðarmaður Umsjón fasteigna Sveinbjörn Helgason, húsvörður Ina Selevska, ræsting Jurate Zofija Gliaudeliene, ræsting Margarita Albina, ræsting Riina Kaunio, bakdyravörður Björn Jónsson, bakdyravörður Ofangreindir starfsmenn eru fastráðnir við Þjóðleikhúsið eða starfa þar samkvæmt árssamningi á yfirstandandi leikári, en auk þeirra vinna fjölmargir aðrir starfsmenn í leikhúsinu.
Upplifun, þjónusta, miðasala og móttaka Friðdóra Haukdal Magnúsdóttir, miðasölustjóri Anna Karen Eyjólfsdóttir Halla Eide Kristínardóttir
Þjóðleikhúsið er sameign íslensku þjóðarinnar. Allt frá árinu 1950 hefur leikhúsið skapað ógleymanlega leikhústöfra. Árlega setur leikhúsið upp fjölda nýrra sýninga, stendur fyrir fræðslustarfi, nýsköpun og tilraunastarfsemi, heldur í leikferðir um landið og sinnir höfundastarfi.
Þjóðleikhúsráð Halldór Guðmundsson, formaður Þóra Einarsdóttir, varaformaður Erling Jóhannesson Katrín Gunnarsdóttir Kristinn Sigmundsson Valgerður G. Halldórsdóttir Vigdís Jakobsdóttir
29
30
31
Þjóðleikhúsið Miðasölusími: 551 1200 Netfang miðasölu: midasala@leikhusid.is www.leikhusid.is 32