Skip to main content

Árbók Slysavarnafélagsins Landsbjargar 2025

Page 1


Árbók 2025

Árbók 2025

Fyrir starfsárið 2025

Efnisyfirlit

Útgefandi: Slysavarnafélagið Landsbjörg

Umsjón: Gunnar Stefánsson

Ábyrgðarmaður: Kristján Þór Harðarson

Hönnun/umbrot: Birgir Ómarsson

Prentvinnsla: Pixel prentþjónusta

Kæru félagar,

Starfsemi félagsins árið 2025 bar skýr merki þess að starfið er öflugt og vaxandi sem áður þrátt fyrir að náttúran hafi verið nokkuð til friðs á árinu, bæði veðurfarslega og í öðru. Þá eru verkefnin næg. Björgunarsveitir hafa getað nýtt tímann í að eflast, bæta þjálfun, huga að endurnýjun og viðhaldi tækja og húsnæðis. Þá hafa kröfur til fagmennsku vaxið og umhverfið sem við störfum í orðið flóknara. Á sama tíma hefur kraftur grasrótarinnar, þekking og reynsla félagsfólks okkar sjaldan verið meiri.

Áhersla á öryggi hefur verið leiðarljós í starfi félagsins á árinu, hvort sem það er hjá stjórn, í nefndum, skrifstofu eða hjá sveitunum sjálfum. Unnið hefur verið markvisst að mótun heildstæðrar öryggisstefnu félagsins, sem nú er á lokametrunum. Sú vinna endurspeglar sameiginlegan skilning okkar á því að öryggi er ekki valkvætt heldur grunnforsenda alls starfs. Þótt við byggjum á sjálfboðaliðastarfi berum við sömu ábyrgð og aðrir viðbragðsaðilar – gagnvart okkar fólki og samfélaginu í heild.

Í aðgerðamálum hefur áfram verið lögð áhersla á skýrara skipulag, aukna samhæfingu og styrkari tengsl við aðra viðbragðsaðila. Landsstjórn hefur unnið að því að efla faglega umgjörð aðgerða, rýna viðbragðsáætlanir og tryggja að við séum vel undirbúin fyrir fjölbreytt og krefjandi verkefni.

Tæknibreytingar eru hraðar og kalla á skýra stefnu. Fjarskipta- og tæknimál eru á umbreytingarskeiði og mikil framþróun, það þýðir þó ekki að okkar gömlu og góðu kerfi séu að úreldast. Síður en svo og mikilvægt að viðhalda okkar öryggisfjarskiptum samhliða tækniþróun. Þar felast bæði áskoranir og tækifæri, ekki síst í því hvernig við tryggjum örugg og áreiðanleg samskipti í aðgerðum til framtíðar.

Menntun og þjálfun eru áfram hornsteinn í starfi félagsins. Endurskoðun námskrár, þróun fjarnáms og aukin áhersla á öryggismenningu í kennslu endurspegla þá kröfu að þekking og hæfni þróist samhliða breyttum verkefnum.

Í unglingastarfinu felast mikil tækifæri til framtíðar. Þar er mikil gróska í alþjóðlegu samstarfi og USAR verkefnin aftur að komast af stað. Hlökkum við til að fylgjast með þessum öflugu krökkum vaxa og dafna í starfi en unglingastarfið er einn mikilvægasti grunnur að áframhaldandi uppbyggingu félagsins.

Á sviði slysavarna hefur verið lögð aukin áhersla á forvarnir, fræðslu og sýnileika verkefna. Forvarnir vegna drukknana hafa verið áberandi og vel heppnuð myndbandsherferð sem beindist að auknu öryggi smábátasjómanna. Þessi fræðsluverkefni eru mikilvæg og efla öryggismenningu í samfélaginu ásamt því að viðhalda trausti almennings.

Mikilvægur árangur náðist á árinu með reglugerðarbreytingu er varðar réttindi á björgunarskipunum okkar og stór hluti þeirrar breytingar felur í sér að nú getur félagið sjálft séð um námskeið er tengjast réttindum á björgunarskipin okkar.

Stjórn félagsins hefur á árinu lagt sérstaka áherslu á að bæta rekstrarumhverfi björgunarsveita. Skýr krafa félagsins er að starfsemi björgunarsveita verði undanþegin virðisaukaskatti, enda er hún unnin í þágu almannaöryggis og byggir á sjálfboðavinnu.

Ákveðinn árangur hefur náðst í samtali við stjórnvöld á undanförnum árum þegar kemur að opinberum gjöldum, en ljóst er að enn er verk að vinna. Nú þarf að stíga næsta skref. Það er bæði eðlilegt og sanngjarnt að þeir sem sinna grunnstoð í viðbragðskerfi samfélagsins búi við traust rekstrarskilyrði og greiði ekki meira til hins opinbera en þau þiggja í styrkjum og endurgreiðslu.

Þá er áfram unnið markvisst að fjármögnun og endurnýjun björgunarskipaflotans. Þar hefur náðst mikilvægur árangur og skip 7 og 8 á leið til landsins á árinu 2026. Samtali við ríkið er haldið áfram og unnið er að samkomulagi um aðkomu ríkisins að síðustu þremur skipunum. Þá hefur félagið óskað eftir því að ríkið dansi í takt varðandi hraða endurnýjunar þar sem við höfum verið að fá 2 skip á ári til landsins en ríkið greiðir einungis 1 á ári og er félagið þar með að fjármagna hlut ríkisins vaxtalaust í allt að 16 mánuði.

Fram undan er áframhaldandi vinna við að þróa starf okkar, standa vörð um öryggi, efla menntun og tryggja að við séum tilbúin þegar á reynir. Það gerist ekki af sjálfu sér. Það krefst þess að hver og einn taki ábyrgð – á eigin þjálfun, á öryggi í starfi og á því að styðja við félaga sína. Það krefst þess að við séum opin fyrir breytingum, tilbúin að læra og viljug til að vinna saman þvert á einingar og hlutverk.

Styrkur félagsins liggur í fólkinu sem myndar það. Í reynslunni, samstöðunni og viljanum til að leggja sitt af mörkum þegar mest á reynir. Þjóðin treystir á þennan styrk eins og glöggt má sjá í könnun Gallup á trausti til félagsins í febrúar 2025. Þar mælast björgunarsveitirnar með 97% traust almennings. Þetta traust byggir á tæplega aldargamalli sögu félagsins þar sem almenningur hefur getað treyst á að björgunarsveitir komi til aðstoðar þegar á reynir. Á sama hátt treysta björgunarsveitir á stuðning almennings til að geta unnið sitt starf og því hefur samfélagið svo sannarlega staðið undir.

Höldum áfram að byggja á þessum grunni – með skýra sýn, metnað og sameiginlega ábyrgð.

Kveðja

Borghildur Fjóla Kristjánsdóttir, formaður Slysavarnafélagsins Landsbjargar

Skýrsla stjórnar 2021

Skýrsla stjórnar 2025

Eftirfarandi einstaklingar sátu í stjórn félagsins árið 2025

Stjórn fram að Landsþingi:

Borghildur Fjóla Kristjánsdóttir, formaður

Jón Ingi Sigvaldason, varaformaður

Þorsteinn Þorkelsson, gjaldkeri

Halldóra Hjörleifsdóttir, ritari

Meðstjórnendur:

Hildur Sigfúsdóttir

Guðjón Guðmundsson

Hafdís Einarsdóttir

Þór Bínó Friðriksson

Á landsþingi á Selfossi gengu úr stjórn Hildur Sigfúsdóttir, Hafdís Einarsdóttir og Þór Bínó

Friðriksson

Stjórn eftir Landsþing 2025

Borghildur Fjóla Kristjánsdóttir, formaður

Guðjón Guðmundsson, varaformaður

Þorsteinn Þorkelsson, gjaldkeri

Halldóra Hjörleifsdóttir, ritari

Meðstjórnendur:

Hrafnhildur Ævarsdóttir

Jón Ingi Sigvaldason

Kolbeinn Óttarsson Proppé

Magnús Einar Magnússon

Magnús Viðar Sigurðsson

Stjórn fundaði tuttugu og tvisvar sinnum yfir árið.

Heimsóknir og viðburðir

Stjórn heimsótti félagseiningar á Snæfellsnesi í mars og fundaði í húsi Björgunarsveitarinnar Berserkja í Stykkishólmi. Einingar sem heimsóttar voru auk Berserkja voru, Björgunarsveitin Heimamenn á svæði 8, Slysavarnadeild Dalasýslu, Björgunarsveitin Ósk, Slysavarnardeildin

Sumargjöf, Slysavarnardeild Helgu Bárðardóttur, Björgunarsveitin Lífsbjörg, Slysavarnarfélagið Snæbjörg, Björgunarsveitin Klakkur og Björgunarsveitin Elliði.

Í júní var skipasmíðastöðin Kewateck í Kokkola Finnlandi heimsótt. Skrifað var undir smíði á tveimur nýjum björgunarskipum. Sjóbjörgunarsamtök Finnlands í Helsinki voru heimsótt og fékk stjórn góðar móttökur og kynningu á starfsemi þeirra.

Fulltrúar stjórnar tóku þátt í sjómannadagshátíðarhöldum í Reykjavík og í Vestmannaeyjum og í lok árs voru nokkrar flugeldasölur heimsóttar eins og vanalega.

Auk þessa sóttu fulltrúar stjórnar ýmsa fundi og viðburði tengda starfi félagsins og ekki má gleyma afmælum eininga og vígslum húsa og móttöku skipa.

Í maí var Landsþing haldið á Selfossi þar sem málefni félagsins voru rædd og ný stjórn kosin.

Það var nokkur endurnýjun í stjórn félagsins og milliþinganefndum og þökkum við fráfarandi stjórnar og nefndarfólki kærlega fyrir þeirra störf fyrir félagið og bjóðum nýtt fólk velkomið til starfa.

Að landsþingi loknu var skipað í nefndir og var þó nokkur endurnýjun á nefndarfólki.

Samantekt á störfum stjórnar SL 2025

Á árinu 2025 vann stjórn Slysavarnafélagsins Landsbjargar að fjölbreyttum málefnum sem sneru að rekstri félagsins, fjármálum, uppbyggingu björgunargetu, öryggis- og forvarnarstarfi og áframhaldandi samskiptum við stjórnvöld og samstarfsaðila. Í heild var tímabilið markað af skýrum áherslum á styrkan grunn fjármögnunar, öryggismál í aðgerðum, styrkingu menntunar og endurmenntunar, og áframhaldandi samtali við stjórnvöld um framtíð björgunarstarfs á Íslandi.

Fjármál og rekstur skipa stóran sess í störfum stjórnar þar sem stjórn leggur mikla áherslu á styrka fjármálastjórn og öflugt utanumhald. Farið er yfir fjárhagsstöðu mjög reglulega þannig að stjórnarmenn séu meðvitaðir um stöðu mála og svo í lok árs er gefinn góður tími í að kafa í fjárhagsáætlun og tengja hana við stefnumörkun félagsins áður en hún er lögð fram til afgreiðslu á fulltrúaráðsfundi í lok nóvember. Stjórn fjallaði jafnframt um fjármögnun björgunarskipa, meðal annars í tengslum við samráð við ráðuneyti, þingflokka og vinnuhópa. Endurnýjun og fjármögnun björgunarskipa er stórt verkefni og tók það mikið til sín á árinu. Unnið var að því að tryggja fjármögnun næstu skipa og hefur verið skrifað undir smíði 8 skipa af 13. Ný björgunarskip komu í heimahöfn á Höfn í Hornafirði og á Ísafirði á árinu 2025. Stjórn hefur lýst yfir áhyggjum sínum af töfum ríkisins á greiðslum styrkja vegna kaupa á björgunarskipum félagsins en nú er staðan sú að félagið fjármagnar styrkveitingu ríkisins í allt að 16 mánuði vaxtalaust og telur félagið það ekki ásættanlegt.

Á árinu hófst stefnumótun í sjóbjörgun, þar sem framtíðarsýn félagsins í sjóbjörgun verður unnin í samstarfi við björgunarbátasjóði og aðrar einingar sem koma að sjóbjörgun.

Samskipti við stjórnvöld og hagsmunagæsluverkefni voru jafnframt stór hluti af störfum stjórnar. Fundir voru haldnir með fjármálaráðherra, ráðuneytisstjóra dómsmálaráðuneytisins og fjölda þingflokka. Meginmál voru virðisaukaskattsmál, fjármögnun björgunarskipa og rekstrarstuðningur við félagið. Stjórn fylgdist einnig með fyrirspurnum á Alþingi sem sneru að rekstri félagsins og skattamálum.

Samskipti við stjórnvöld og lykilstoðkerfi samfélagsins voru regluleg og markviss. Stjórn og framkvæmdastjóri áttu fundi með forsætisráðherra, dómsmálaráðuneyti, innviðaráðherra, Ríkislögreglustjóra, starfshópum ráðuneyta og fulltrúum sveitarfélaga. Málaflokkar voru m.a. fjármögnun skipa, viðbragðs- og húsnæðismál, samvinna í almannavörnum, virðisaukaskattur og löggjöf.

Aðgerðamál og Slysavarnir voru áberandi í störfum stjórnar. Samþykktar voru nýjar reglur um verkefni slysavarnadeilda í aðgerðum, sem skapar skýrari ramma um hlutverk og ábyrgð slysavarnadeilda í aðgerðum. Unnið var að stefnumótun á sviði öryggismála félagsfólks og áframhaldandi vinnu við uppfærða ferla um viðbrögð vegna óhappa eða slysa í starfi. Farið var í herferð á sviði sjóbjörgunar með því að hrinda úr vör á Landsþingi herferð um bætt öryggi sjófarenda þar sem Þröstur Leó Gunnarsson vann með félaginu að gerð fræðsluefnis.

Lögð var áhersla á öryggi barna og ungmenna og hvatt til notkunar endurskinsmerkja og hjálma. Jafnframt fylgdist stjórn með þróun í fjarskipta- og netöryggismálum og samþykkti áframhaldandi vinnu við stefnumótandi verkefni á þeim sviðum.

Í heild var árið 2025 tímabil stöðugleika í rekstri, hagsmunagæslu eininga og öryggi félagsmanna. Stjórn félagsins lagði áherslu á skýra forgangsröðun, sterka fjármálastjórn og að efla enn frekar þjónustu við einingar félagsins, félagsmenn og samfélagið í heild.

Fulltrúaráðsfundur 22. nóvember

Fulltrúaráðsfundur var haldinn í Háskólanum í Reykjavík 22. nóvember 2025. Fundurinn hófst að venju á ávarpi formanns, Borghildar Fjólu Kristjánsdóttur, sem fór yfir helstu áskoranir og verkefni félagsins, meðal annars öryggismál sjálfboðaliða, hlutverk björgunarsveita í almannavörnum og samstarf við aðra viðbragðsaðila. Fundurinn minntist sérstaklega minnst Sigurðar Kristófers McQuillan Óskarssonar sem lést í slysi á æfingu árið 2024 og einnig Hannesar Þ. Hafstein, sem hefði orðið 100 ára, en afkomendur hans færðu björgunarbátasjóð Suðurnesja eina milljón króna að gjöf til reksturs björgunarskipsins Hannesar Þ. Hafstein í Sandgerði.

Að venju var ársreikningur lagður fram og var hann samþykktur samhjlóða. Rekstur félagsins gengur ágætlega og fjárhagsstaða sterk. Fjárhagsáætlun ársins 2026 var lögð fram og samþykkt. Rætt var um áherslur stjórnar fyrir árið 2026, meðal annara að auka þátttöku í útköllum, efla skráningu atvika eða nærslysa og almenna fagmennsku í okkar störfum. Fram kom að samkvæmt könnun Gallup bæri 97% landsmanna mikið traust til félagsins og mikilvægt væri að viðhalda því.

Farið var yfir störf nefnda þar sem Fjárveitinganefnd fór yfir fyrirkomulag úthlutana og mögulegar breytingar á kerfinu. Laganefnd hvatti einingar til að yfirfara eigin lög og kosið var í nýja ráðgjafanefnd um landsþing. Flugeldanefnd kynnti stöðu flugeldamála, nýjar vörur og áherslur í öryggisfræðslu.

Landsstjórn fór yfir breytingar á stjórnun aðgerða, hlutverk bakvakta, þróun aðgerðagrunns og mikilvægi fagmennsku, öryggismenningar og samræmdrar rýni eftir aðgerðir. Einnig var fjallað um framtíð hálendisvaktarinnar, þar sem vaktaskipulagi verður breytt frá því að vera frá sunnudegi til sunnudags yfir í fimmtudag til fimmtudags.

Björgunarskólinn kynnti kjarnanámskeið sín og minnti á 50 ára afmæli skólans. Þá var farið yfir undirbúning fyrir 100 ára afmæli félagsins árið 2028, meðal annars ritun nýs sögubinds, gerð sjónvarpsþátta og sérstaka afmælisviðburði.

Undir liðnum önnur mál var rætt um fjarskiptaöryggi, stöðu unglingastarfs, slysavarnadeilda, fatamál, starfaauglýsingar án staðsetningar og mikilvægi þess að sjálfboðaliðar finni fyrir virðingu og góðum samskiptum innan félagsins.

Í lok fundar var samþykkt ályktun um öryggis- og fjarskiptamál. Þar lýsti fundurinn yfir áhyggjum af skertu farsímasambandi í dreifðari byggðum eftir lokun hluta 2G- og 3G-kerfa, lagði áherslu á mikilvægi VHF-kerfis Landsbjargar og skoraði á stjórnvöld að styðja við rekstur og viðhald þess.

Fjáröflunarverkefni

Bakverðir

Bakverðir styðja félagið með mánaðarlegu framlagi allt árið og standa þétt við bakið á björgunarsveitum og slysavarnadeildum um land allt. Stuðningur þeirra er bæði fjárhagslegur og mikilvæg viðurkenning á starfi sjálfboðaliða.

Verkefnið hófst árið 2013 og hefur vaxið jafnt og þétt. Í lok árs 2025 voru Bakverðir rúmlega 35

þúsund og lögðu að jafnaði rúmar 2.000 krónur á mánuði hver. Þetta er stærsti styrktarhópur

íslenskra félagasamtaka og nýtur verkefnið mikillar velvildar fólksins í landinu.

Árið 2025 jukust heildarframlög um 6%. Alls bættust 4.272 nýir Bakverðir í hópinn og 4.954 hækkuðu sitt framlag.

Félagið kynnir verkefnið víða, meðal annars á fjölförnum stöðum og með heimsóknum í hverfi á höfuðborgarsvæðinu og í nágrannasveitafélögum. Um 77% nýskráninga komu þannig til, um 14% eftir símtal, 2% í gegnum vefsíðu og 7% endurvirkjun.

Bakverðir fá reglulega tölvupósta með fréttum og sögum úr starfinu. Á árinu fengu þeir 8 pósta frá félaginu og voru þeir opnaðir að meðaltali af 50% viðtakenda, sem sýnir sterka tengingu hópsins við félagið.

Konur eru aðeins fleiri í Bakvarðahópnum eða 53%. Meðalaldur Bakvarða er 54 ár. Um 68%

Bakvarða búa á höfuðborgarsvæðinu, 9% á norðurlandi, 7% vesturlandi, 13% á suðurlandi og Reykjanesi og 3% á austurlandi.

Neyðarkall

Björgunarsveitarfólk var áberandi fyrstu helgina í nóvember þegar Neyðarkall björgunarsveitanna fór fram. Neyðarkall er stór hluti af fjáröflunum Björgunarsveita og þetta árið var tuttugasti kallinn seldur. Neyðarkall ársins var straumvatnsbjörgunarkall em heiðraði minningu Sigurðar Kristófers McQuillan Óskarssonar, formanns Björgunarsveitarinnar Kyndils sem lést haustið 2024 í slysi sem varð á æfingu í straumvatnsbjörgun.

Umræða skapaðist um litarhaft Neyðarkallsins og komu fram raddir þess efnis að sumir hygðust ekki kaupa hann af þeim sökum. Landsmenn létu það ekki yfir sig ganga, sýndu stuðningin sinn í verki og bættu í kaupin. Í kjölfarið seldust bæði lyklakippan og hinn svokallaði „stóri kall“, sem ætlaður er fyrirtækjum, upp í fyrsta sinn frá upphafi.

Okkur þykir afar vænt um að landsmenn hafi svarað kalli okkar jafn skýrt og raun bar vitni og þar með heiðrað minningu góðs félaga.

Flugeldasalan

Flugeldasala björgunarsveitanna gekk vel árið 2025 og flestir sölustaðir um land allt sýndu aukningu milli ára. Hagstæðir samningar við birgja, náið samstarf við flutningsaðila og gott skipulag á lager gerðu það að verkum að unnt var að lágmarka hækkun vöruverðs á milli ára. Hagstætt veður um áramót, markviss markaðssetning og jákvæð umræða um björgunarsveitir landsins studdi allt við góða vertíð.

Framleiðsla og flutningar við krefjandi aðstæður Í upphafi árs var líkt og áður, farið í vinnuferð til Kína þar sem farið var yfir verðlagningu, flutningsmál, vöruþróun og gæðamál með framleiðendum. Sérstök áhersla var lögð á að vinna samkvæmt framleiðsluplani og ljúka sem mestri framleiðslu áður en árlegar sumar-lokanir flugeldaverksmiðja hefjast í ágúst. Sú ákvörðun reyndist farsæl þar sem alþjóðlegar aðstæður höfðu áhrif á aðfangakeðjur.

Stríðið í Úkraínu og tolladeilur milli Bandaríkjanna og Kína settu mark sitt á alþjóðaviðskipti og aðfangakeðjur. Að auki varð stór sprenging í flugeldaverksmiðju í Jiangxi-héraði sem leiddi til tímabundinna lokana verksmiðja. Framleiðsla var þá færð yfir í Hunan-hérað og tókst með þeim ráðstöfunum að ljúka um 90% framleiðslunnar og flytja 20 gáma til landsins fyrir lok nóvember. Síðasti gámur ársins kom rétt fyrir jól og með góðu skipulagi og samvinnu tókst að koma öllum vörum til landsins og út til söluaðila í tæka tíð.

traustar

Fjölbreytt vöruúrval og vinsælar vörur

Að venju buðu flugeldamarkaðir björgunarsveitanna upp á fjölbreyttasta vöruúrval landsins, allt frá innidóti, stjörnuljósum og handblysum upp í rakettur og stórar skotkökur. Kaka ársins og Miðnæturtertan voru meðal vinsælustu vara ársins. Fjölskyldupakkar nutu áfram mikilla vinsælda, auk gosflugelda og stærri tertukassa sem bjóða upp á mikla ljósadýrð. Sérlínur eins og Tækjalínan og Kappaterturnar hafa fest sig í sessi og njóta vinsælda, auk Vígaterta sem eru stærstu og öflugustu vörurnar í vörulínu Landsbjargar.

Markaðsmál og fræðsla

Markaðsmál gengu vel þar sem framleiddar voru tvær nýjar auglýsingar um öryggisakademíuna og aukin áhersla lögð á vörumiðaðar auglýsingar sem kynna vörulínur Landsbjargar. Skilaboð fyrir samfélagsmiðla voru uppfærð og við tókum fyrstu skrefin á TikTok. Jafnframt var lögð áhersla á innri samstöðu og góða mönnun sölustaða.

Áhersla var áfram lögð á fræðslu, forvarnir og öryggi í öllum skilaboðum til almennings. Í auglýsingum og kynningarefni var sérstaklega minnt á örugga meðferð flugelda, notkun flugeldagleraugna fyrir alla fjölskyldumeðlimi og að fylgja leiðbeiningum á vörum. Einnig var almenningur hvattur til að virða leyfilegan skottíma og huga að gæludýrum á meðan mesta skothríðin gekk yfir.

þú þarft aÐ PrÓFa þESSar!

Umhverfismál

Samstarf við sveitarfélög varðandi losun notaðra flugelda hélt áfram með góðum árangri. Flugeldagámum var komið fyrir á völdum stöðum um land allt til að auðvelda almenningi að skila notuðum flugeldum strax á nýársdag. Samstarf við sorphirðuaðila á höfuðborgarsvæðinu, meðal annars í gegnum Sorpu, skilaði góðum árangri og mikið magn skilaði sér á móttökustaðina.

Flugeldasala hefur í áratugi verið stærsta og mikilvægasta fjáröflunarleið björgunarsveitanna á Íslandi og því mikilvægt að hlúa vel að henni til framtíðar. Sérstaklega var ánægjulegt að fá í lok árs hrós og þakklæti frá einingum fyrir gott skipulag og gott samstarf við starfsfólk skrifstofu og lager félagsins.

Rótarskot

Í október komu saman félagsmenn björgunarsveita á Snæfellsnesi og fulltrúar Skógræktarfélags Íslands og gróðursettu samtals 2.200 tré í hlíðum Drápuhlíðarfjalls. Á þessu svæði á Snæfellsnesi hefur verið skógrækt um árabil, og nú var bætt við og mun stafafura prýða hlíðarnar og umhverfið í framtíðinni.

Rótarskot er samstarfsverkefni Slysavarnafélagsins Landsbjargar og Skógræktarfélags Íslands. Fyrir hvert Rótarskot sem keypt er, er gróðursett eitt tré í samstarfi við Skógræktarfélag Íslands. Salan um jól og áramót var svipuð og fyrri ár. Gaman væri að þróa þetta verkefni áfram og stækka.

Landsbjargargjafir /Gæfumunir

Endurmörkun átti sér stað á Landsbjargargjöfum og er þessi fjáröflunarleið, sala á sýndargjöfum nú kölluð Gæfumunir. Gæfumunir Landsbjargar voru auglýstir skömmu fyrir jól en þróa þarf áfram þessa leið þar sem sala var aftur undir væntingum.

Aðalstyrktaraðilar

Vinnuveitendur björgunarsveitarfólks eru í raun meðal stærstu stuðningsaðila félagsins. Með því að heimila starfsfólki að bregðast við útköllum án tekjutaps leggja þeir ómetanlegt framlag til starfseminnar.

Fjölmörg fyrirtæki ganga enn lengra og styðja félagið beint með fjárframlögum og öflugu samstarfi.

Árið 2025 voru aðalstyrktaraðilar félagsins sex: Olís, Icelandair, Sýn, Sjóvá, Eimskip og Origo.

• Sjóvá hefur verið traustur styrktaraðili um árabil og sinnir tryggingavernd félagsins og björgunarsveitafólks.

• Olís hefur stutt félagið frá 2012, m.a. með sérstöku fjáröflunarátaki, Dæludögum þar sem hluti eldsneytissölu rennur til starfseminnar.

• Sýn hefur verið lykilaðili í fjarskiptamálum frá 2009 og tryggir félaginu aðgang að öflugri fjarskiptaþjónustu um land allt.

• Icelandair styður með fjárframlögum og flugstyrkjum innanlands og utan, auk samstarfs í forvörnum og upplýsingagjöf til ferðamanna.

• Eimskip kom inn sem aðalstyrktaraðili 2023 og styður m.a. með flutningum á búnaði og þátttöku í slysavarnaverkefnum.

• Origo bættist í hópinn 2024. Origo og Landsbjörg eiga það sameiginlegt að þurfa reglulega að leysa verkefni af ýmsum stærðum og gerðum og öryggi er alltaf í fyrirrúmi hjá báðum aðilum. Stundum eru krefjandi aðstæður og þá er þörf á nýsköpun og samvinnu.

Luminox

Luminox úraframleiðandinn hefur í gegnum tíðina sýnt starfi Slysavarnafélagsins Landsbjargar mikinn heiður með því að gefa út sérstaka línu úra, svokallaða ICE-SAR línu. Þessi vönduðu gæðaúr eru seld hjá félaginu og rennur allur hagnaður af sölunni til að styðja við björgunarstarf um land allt.

Íslandsspil

Slysavarnafélagið Landsbjörg á um þriðjungshlut í Íslandsspilum á móti Rauða krossinum. Upphaflega gerðu íslensk stjórnvöld ráð fyrir að happdrættisleyfi Íslandsspila myndi tryggja félaginu verulegar tekjur og standa undir stórum hluta rekstrar þess, og um langt skeið gekk það eftir. Hins vegar hafa tekjur af þessari starfsemi dregist saman á síðustu árum, að mestu vegna aukinnar samkeppni frá Happdrætti Háskóla Íslands.

Sjúkrakassar

Á árinu var annar þjónustu bíll félagsins endurnýjaður og eru nú báðir bílarnir í eigu félagsins. Salan um allt land gekk, þjónustusamningum fjölgaði og bjartir tímar framundan. Nýjar vörur voru kynntar á árinu en þar má nefna Barnakassann sem er með sérsniðnar sáraumbúðir fyrir leikskólabörn og síðan komum við með hliðartösku (Scout) sem meðfærileg og vel skipulögð hliðartaska sem tryggir skjótan aðgang að fyrstu hjálpar búnaði. Sérstaklega hentug í rútur eða vinnuvélar. Farið var í að uppfæra vefsöluna og gerum við okkur vonir um að sala í gegnum vefverslun muni aukast á næstu árum. Þátttaka á Iðnaðarsýningunni gekk vel, sala á básnum góð og nýir viðskiptavinir bættust við.

Vefverslun

Á árinu var aukin áhersla lögð á vefverslun og vöruframboð aukið verulega. Meðal nýrra vara í vefversluninni voru barnanáttföt í þremur stærðum ásamt ungbarnasamfellum. Þá bættist við ný ullarfatalína úr merínóull sem samanstendur af níu vörum, og fyrirhugað er að bæta enn frekar við línuna.

Sala á náttfötum fór vel af stað og ánægjulegt var að sjá myndir af upprennandi björgunarsveitafólki í náttfötunum á samfélagsmiðlum.

Á næstu árum verður áfram lögð rík áhersla á að efla vefverslunina og auka enn frekar fjölbreytni í vöruframboði.

Ársreikningur 2025 - útdráttur

Útdráttur úr ársreikningi 2024

Rekstrarreikningur

Rauð viðvörun

Rauð viðvörun um nánast allt land.

Þann fimmta febrúar gaf Veðurstofa Íslands út rauða veðurviðvörun fyrir nánast allt landið.

Veðurspáin að morgni þriðjudagsins 4. febrúar var svohljóðandi:

„Suðvestan 10-18 m/s og éljagangur, en þurrt að kalla norðaustanlands.

Bætir heldur í vind kvöld, víða vægt frost. Vaxandi sunnanátt með talsverðri rigningu eftir hádegi á morgun, víða 20-28 m/s um kvöldið en úrkomuminna norðaustanlands. Hlýnar í veðri.“

Í athugasemdum veðurfræðings með spánni sagði:

„Útlit fyrir all hvassa suðvestanátt og dimm él um vestanvert landið í dag. Sjá viðvaranir. Sunnan stormur eða rok víða um land annað kvöld.“

Óvissustigi Almannavarna var lýst yfir klukkan 12 á hádegi á öllu landinu utan Vestfjarða. Í kjölfarið sendi Ferðamálastofa tilkynningu á öll ferðaþjónustufyrirtæki til að hvetja til þess að ferðamenn yrðu upplýstir um hvað í vændum væri og að þeir haldi kyrru fyrir. Sérstök áhersla var lögð á að ná til þeirra sem höfðu leigt húsbíla og hvetja þá til að vera ekki á ferðinni.

Veðrið gekk inn á vesturhluta landsins þegar leið á miðvikudaginn og upp úr klukkan 14 fóru fyrstu boð á björgunarsveitir.

Veðrið færðist svo yfir landið og samhliða voru björgunarsveitir boðaðar út í öllum landshlutum utan Vestfjarða. Mikið hvassviðri fylgdi þessari lægð og staðbundnar vindhviður mældust yfir 50 metra á sekúndu. Nokkrar truflanir urðu á raforkukerfi landsins meðal annars vegna eldinga og voru farsímasendar keyrðir á varaafli á nokkrum stöðum, til dæmis í Meðallandi og Landbroti.

Talsvert var um verkefni björgunarsveita vegna veðursins og til að mynda höfðu Neyðarlínu borist um 900 símtöl frá miðnætti 5. febrúar þegar staðan var tekin seint á miðvikudagskvöldið.

Símtölum almennings til 112 fækkaði eftir því sem leið á nóttina og samhliða verkefnum björgunarsveita og á stöðufundi í Samhæfingarstöð Almannavarna klukkan 5 aðfaranótt fimmtudags, voru allar björgunarsveitir komnar í bækistöðvar.

Þegar leið á kvöld miðvikudagsins fór að lægja, fyrst suð-vestanlands, en von var á öðrum hvelli að morgni fimmtudagsins sjötta.

Rauðar viðvaranir voru því áfram í gildi fyrir mest allt landið þó aðeins hafi dúrað yfir hánóttina.

Ný lægð gekk upp að landinu að morgni fimmtudags og áhrif hennar urðu fyrst á Suðurnesjum og höfuðborgarsvæðinu. Lægðin gekk yfir landið með miklu hvassviðri og eldinga veðri.

Klukkan 14 aflýstu Almannavarnir hættustigi á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum, Vestmannaeyjum og Vesturlandi, en áfram var hættustig á Norðurlandi, Austurlandi og Suðurlandi. Hættustigi var svo aflýst í þessum landshlutum utan Austurlands þegar leið á daginn.

Lægðin gekk svo austur af landinu og upp úr klukkan 20, ríflega 30 klukkustundum eftir að Samhæfingarstöð Almannavarna var virkjuð, var hættustigi aflýst á Austurlandi og Samhæfingarstöð lokað.

Óhætt er að segja að veðrið reyndi verulega á viðbragðsaðila nánast um allt land og verkefni sem almenningur óskaði aðstoðar með skiptu hundruðum.

Í fréttatilkynningu Almannavarna þegar aðgerðum var lokið sagði meðal annars:

„Í ljósi þess hversu mikill fjöldi sjálfboðaliða kom að hundruðum verkefna á síðasta sólarhring – þar sem markmiðið var að takmarka tjón eins og kostur var – er ástæða til að hrósa og þakka öllum þeim sjálfboðaliðum sem komu að þessu langa og stranga verkefni út um allt land.

Það er ljóst að svona viðburðir minna okkur á mikilvægi þess að vera viðbúin fyrir það sem náttúran býður upp á og það að hafa svo öflugt net sjálfboðaliða og viðbragðsaðila sem geta brugðist hratt við á neyðarstund, er ómetanlegt fyrir íslenskt samfélag.“

Norðurland vestra

8 verkefni til 68 viðbragðsaðila

Norðurland eystra

27 verkefni til 121 viðbragðsaðila

Höfuðborgarsvæðið

41 verkefni til 100 viðbragðsaðila

Suðurnes

53 verkefni til 95 viðbragðsaðila

Vestmannaeyjar

4 verkefni til 39 viðbragðsaðila

Suðurland

56 verkefni til 195 viðbragðsaðila

Austurland

30 verkefni til 52 viðbragðsaðila

Samtals voru því 670 manns skráðir í aðgerðagrunn viðbragðsaðila þennan rúma sólarhring, bróðurpartur þess fjölda félagar í Slysavarnafélaginu Landsbjörg.

Björgunarskólinn

400

námskeið voru haldin árið 2025

84

námskeið í fjarnámi

4.060

nemendur sóttu námskeið árið 2024

Björgunarskólinn 2025

Árið 2025 markaði ákveðin tímamót í starfsemi Björgunarskólans. Eitt stærsta markmið síðustu ára náðist þegar öllum kjarnanámskeiðum skólans var komið inn í fjarnám. Með því hefur aðgengi að námi aukist verulega og félagsfólk Landsbjargar getur nú, óháð staðsetningu, sótt sér grunnþekkingu og endurmenntun með sveigjanlegum hætti. Þessi áfangi er afrakstur markvissrar og samfelldrar vinnu síðustu ára, þar sem stafrænar lausnir og uppbygging kennsluefnis hafa verið í forgrunni.

Jafnframt var áfram lögð rík áhersla á öryggismenningu innan skólans. Öryggismenning er hornsteinn alls björgunarstarfs og því var unnið skipulega að því að efla hana enn frekar í öllu starfi skólans, bæði í kennslu, samskiptum og skipulagi. Skólinn framleiddi fræðsluefni tengt öryggismenningu sem styður við sameiginlegan skilning á ábyrgð, verklagi og fagmennsku í starfi SL.

Starfið á árinu einkenndist áfram af stefnumiðaðri hugsun og skýrum forgangsverkefnum í takt við stefnuáherslur skólans; nálægð og tengsl, eftirsóknarvert nám, kennslu í fremstu röð og þekkingu og fagmennsku á öllum sviðum. Með samstilltu átaki starfsmanna, skólanefndar og sviðstjóra hefur Björgunarskólinn styrkt stoðir sínar og skapað traustan grunn fyrir áframhaldandi þróun.

Björgunarskólinn horfir björtum augum til framtíðar. Með öflugu fjarnámi, markvissri ræktun öryggismenningar og metnaði fyrir gæðum náms heldur skólinn áfram að þróast í takt við þarfir félagsins og þær kröfur sem gerðar eru til fagmennsku í störfum sem skipta samfélagið öllu máli.

Starfsmenn Björgunarskólans

Tveir fastir starfsmenn voru hjá skólanum árið 2025. Björgunarskólinn nýtur góðs frá öðrum starfsmönnum á skrifstofu sem meðal annars aðstoða við bókun á; flugi, bíl eða gistingu fyrir leiðbeinendur og aðrir aðstoða við framleiðslu á efni og markaðssetningu þess.

Starfsmenn Björgunarskólans árið 2025

Arna Björg Arnarsdóttir, skólastjóri Björgunarskólans

Viktor Örn Guðlaugsson, verkefnastjóri

Skólanefnd

Skólanefnd er skipuð sjö einstaklingum sem eru skipaðir til tveggja ára, eða út kjörtímabil

stjórnar ásamt skólastjóra Björgunarskólans sem er starfsmaður nefndarinnar. Hlutverk skólanefndar Björgunarskólans er að fjalla um menntunar- og þjálfunarmál félagsfólks. Ráðið stuðlar að þróun námsefnis Björgunarskólans, aukinni menntun og endurmenntun leiðbeinenda og auknu samstarfi við grasrótina um námsframboð skólans.

Skólanefnd árið 2025 skipuð eftir Landsþing félagsins 2025 sem haldið var á Selfossi

Hallgrímur Óli Guðmundsson, formaður nefndar

Ásgeir Örn Kristinsson

Einar Örn Jónsson

Elva Dögg Pálsdóttir

Guðný Jóna Guðmundsdóttir

Hrafnhildur Ævarsdóttir, stjórn

Arna Björg Arnarsdóttir, skólastjóri

Skólanefnd hittist fyrsta miðvikudag í hverjum mánuði og fundar með fjarfundabúnaði.

Árlegi staðfundur nefndarinnar og vinnufundur er haldinn að vori og í tengslum við staðfund sviðstjóra sem er á svipuðum tíma.

Sviðstjórar, fagstjórar og fagráð

Sviðs- og fagstjórar skólans eru sextán á fjórtán sviðum. Tveir fagstjórar eru í hópnum, einn á Fyrstu hjálparsvið fyrir Vettvangshjálp og annar á Sjóbjörgunarsviði fyrir skip. Það eru tveir sviðstjórar á Fyrstuhjálparsviði vegna stærð sviðsins sem er mjög yfirgripsmikið. Undir hverju sviði fyrir sig er fagráð og í fagráði sitja fjórir til sex einstaklingar auk sviðstjóra og fagstjóra viðkomandi sviðs.

Sviðstjóri

Sviðstjóri sviða Björgunarskólans er helsti stjórnandi þess sviðs sem hann veitir forstöðu og heyrir undir skólastjóra Björgunarskólans. Sviðstjóri skal hafa yfirgripsmikla faglega þekkingu á sínum málaflokki og hann ber ábyrgð á stefnumörkun, áætlanagerð og almennri stjórnun sviðs í samráði við skólastjóra. Auk þess ber sviðstjóri ábyrgð á því námsefni sem notast er við á hans sviði. Þar sem eðli og umfang verkefna krefst þess, er hægt að ráða sérstakan fagstjóra sem ber ábyrgð á ákveðnum hluta sviðsins og heyrir undir skólastjóra.

Fagráð

Lögð er áhersla á að fá í fagráð hóp einstaklinga með fjölbreytta þekkingu og reynslu er snýr að málefnum hvers sviðs fyrir sig. Fagráð sviða Björgunarskólans er þverfaglegur hópur fagfólks á hverju sviði fyrir sig. Sviðstjóri er formaður fagráðsins og heldur utan um starfsemi ráðsins. Eitt af hlutverkum fagráðs er að vera sviðstjóra og skólastjóra til ráðgjafar í uppbyggingu og þróun námskeiða og námsefnis á viðkomandi sviði og yfirfara kennsluáætlun og markmiðalýsingar áfanga sviðsins og gera tillögur að uppfærslu eftir því sem við á.

Vorfundur sviðstjóra er haldinn á hverju vori þar sem farið er yfir stöðu sviðanna af hverjum sviðstjóra, þá hvað var gert yfir veturinn. Skólinn kemur inn á fundinn með málefni sem eru rædd og áherslur, stefnur, breytingar og fleira sem stefnt er að fyrir næsta vetur og eða næstu árin.

Sviðstjórar og fagstjórar Björgunarskólans árið 2025

Aðgerðasvið Elva Tryggvadóttir adgerd@landsbjorg.is

Ferðamennskuog rötunarsvið Tómas Eldjárn Vilhjálmsson ferdamennska@landsbjorg.is

Félagssvið Björgunarskólinn skoli@landsbjorg.is

Fjallabjörgunarsvið Gunnar Agnar Vilhjálmsson fjallabjorgun@landsbjorg.is

Fjallamennskusvið Jónas G. Sigurðsson fjallamennska@landsbjorg.is

Fjarskiptasvið Lárus Steindór Björnsson fjarskipti@landsbjorg.is

Fyrstuhjálparsvið Unnur Kristín Valdimarsdóttir fyrstahjalp@landsbjorg.is

Fyrstuhjálparsvið Kristín Jóna Bragadóttir fyrstahjalp@landsbjorg.is

Fyrstuhjálparsvið

- Vettvangshjálp Axel Ernir Viðarsson - fagstjóri wilderness@landsbjorg.is

Hundasvið Þóra Jóhanna Jónasdóttir hundasvid@landsbjorg.is

Leitartæknisvið Rakel Ýr Sigurðardóttir leitartaekni@landsbjorg.is

Hamfarasvið Björgunarskólinn hamfarasvid@landsbjorg.is

Sjóbjörgunarsvið Hafliði Hinriksson sjobjorgun@landsbjorg.is

Sjóbjörgunarsvið - Skip Ómar Örn Sigmundsson - fagstjóri sjobjorgun@landsbjorg.is

Snjóflóðasvið Anton Berg Carrasco snjoflod@landsbjorg.is

Straumvatnsbjörgunarsvið Magnús Stefán Sigurðsson straumvatnsbjorgun@landsbjorg.is

Tækjasvið Arnar Ólafsson taekjasvid@landsbjorg.is

Námskeiðssókn

Námskeiðssókn var áfram góð á árinu 2025. Alls voru haldin um 400 námskeið og sóttu þau um 4.060 nemendur. Þar af voru 139 námskeið haldin innan eininga félagsins með þátttöku um 1.900 félaga.

Í fjarnámi voru haldin 84 námskeið og sóttu þau um 1.400 manns, sem sýnir að sveigjanlegir kennsluhættir halda áfram að skipta miklu máli fyrir félagsmenn. Þá hélt skólinn um 200 námskeið fyrir einingar félagsins og um 50 námskeið fyrir fyrirtæki og ferðaþjónustu.

Námskeið sem felld voru niður á árinu voru 19 talsins, sem er svipað og árið áður og staðfestir áframhaldandi jákvæða þróun í skipulagningu og þátttöku. Markmiðið er sem fyrr að halda þeirri tölu í lágmarki.

Skólinn leggur áfram áherslu á mikilvægi þess að einingar á sama svæði samræmi óskir sínar um námskeið og sameinist um framkvæmd þeirra. Með slíku samstarfi aukast gæði námsins, auðveldara er að ná lágmarksþátttöku og samstarf eininga styrkist, sem hefur jákvæð áhrif á samskipti og faglegt starf innan félagsins.

Til þess að komast á útkallsskrá hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörg þarf einstaklingur að hafa lokið Kjarnanámskeiðum. Öll námskeið í Kjarna eru gjaldfrjáls og eru í fjarnámi á þínum hraða eða með leiðbeinanda. Námskeið í Kjarna eru ætluð öllu félagsfólki, unglingadeildum, slysavarnadeildum og björgunarsveitum.

Fjöldi félagsmanna sótti námskeið í Kjarna á árinu 2025

• Félagsfólk í starfi 269 nemendur

• Fjarskipti kjarni 137 nemendur

• Fyrsta hjálp 1 bóklegt * 54 nemendur

• Rötun kjarni 133 nemendur

• Ferðamennska kjarni 166 nemendur

• Öryggi og forvarnir í starfi 150 nemendur

* 8 klst. verklegt. Þarf að klára til að fá staðist fyrstu hjálp 1

Á árinu 2025 eins og árin á undan var það

Fyrsta hjálp 1 sem lang flestir félagar sóttu.

• Fyrsta hjálp 1 452 nemendur

• Fjallamennska 1 185 nemendur

• Snjóflóð 1 142 nemendur

• Leitartækni 250 nemendur

• Áhafnir björgunarskipa 50 nemendur

156

nemendur sóttu Fagnámskeið 2025

391

nemendur sóttu fjarnám 2025

Um 156 nemendur sóttu Fagnámskeið árið 2025

506

nemendur sóttu fjarnám á þínum hraða

Um 38 nemendur sóttu endurmenntun Vettvangshjálp í óbyggðum árið 2025

Um 52 nemendur sóttu leiðbeinendanámskeið árið 2025

Um 391 nemendur sóttu fjarnám með leiðbeinanda á netinu árið 2025

Um 506 nemendur sóttu fjarnám á sínum hraða á netinu árið 2025

Um 43 nemendur sóttu námskeiðið Slöngubátur 1 árið 2025

Fræðslukvöld

Fræðslukvöld skólans hafa gengið vel og eru komin til að vera á hverju skólatímabili en fræðslukvöld er viðburður sem þátttakendur félagsins frá frítt inn á. Vanalega er haldið eitt fræðslukvöld að hausti og tvö að vori ef tími gefst til. Haldin voru fjögur fræðslukvöld árið 2025 sem öll voru vel sótt og heppnuðust vel. Fjöldi þátttakenda mætti bæði á staðinn og inn á beint streymi. En meðaltal fjölda þátttakenda þá bæði á staðnum og í streymi voru um 100 - 120 manns.

Fræðslukvöldin voru;

• Fræðslukvöld snjóflóð (vorönn)

• Fræðslukvöld hundar (vorönn)

• Fræðslukvöld Fjallabjörgun (haustönn)

• Fræðslukvöld sjóbjörgun (haustönn)

Ferðir

Björgunarskólinn styrkir sviðstjóra á ráðstefnur, námskeið eða annað en hlutverk sviðstjóra er að tryggja að kennsluefni viðkomandi fags sé uppfært reglulega í samræmi við þróun málaflokksins innanlands og á heimsvísu. Sviðstjórar/ fagstjórar eiga einnig að fylgjast með nýjungum í málaflokknum og vera í samskiptum við innlenda og erlenda samstarfsaðila í samvinnu við skólann

Árið 2025 fóru einstaklingar/hópar á eftirfarandi ráðstefnur;

• Heimsókn til RS í Noregi

• Fjarskiptasýning og fyrirlestrar í Brussel

• ICAR - International Commission for Alpine Rescue í USA

• World Extreme Medicine í Edinborg

ICAR

Ráðstefnan var haldin í Jackson Hole í Wyoming, Bandaríkjunum. Ferðin var löng og hófst frá Íslandi 3. október og lauk 12. október. Í aðdraganda ráðstefnunnar var farið í heimsóknir til björgunarsveita í Salt Lake City og Jackson Hole þar sem þátttakendur fengu innsýn í skipulag, nýliðun, búnað og rekstur bandarískra björgunarsveita. Sérstaka athygli vakti:

• Formlegt umsóknar- og viðtalsferli nýliða í bandarískum björgunarsveitum.

• Samþætting sjálfboðaliðastarfs við opinbert viðbragðskerfi (sheriff og lögregla).

• Öflug aðstaða, m.a. þyrla í eigu björgunarsveitar og sérhæfður búnaður.

ICAR var stofnað árið 1948 og er með aðsetur í Sviss og starfa samtökin undir lögum þar í landi. Samtökin starfa á heimsvísu og megin markmið þeirra er að fjallabjörgunarsamtök um allan heim hafi umræðuvettvang til að bæta aðferðir og auka öryggi í tengslum við starf sitt í fjallendi. Innan ICAR starfa núna 5 megin nefndir.

• Terrestrial Rescue Commission Fjallabjörgun

• Air Rescue Commission

• Avalanche Rescue Commission

Þyrlubjörgun

Snjóflóðabjörgun

• Alpine Emergency Medicine Commission Sjúkranefnd

• Dog-Handlers

Hundahópur

Verklegi dagurinn fór fram á skíðasvæði í fjalllendi Jackson Hole. Þátttakendur fóru með kláfi upp í allt að 2.700–2.800 m hæð þar sem verklegar sýningar, vinnustofur og æfingar fóru fram innan hvers sviðs.

Sameiginlegt þema ráðstefnunnar var: „Aukið öryggi í aðgerðum og við æfingar“

Með áherslu á:

• Samskipti í aðgerðum

• Skráningu og greiningu öryggisatvika

• Menningu innan björgunarteyma

• Gagnavernd og meðferð myndefnis úr aðgerðum

World Extreme Medicine

Ráðstefnan World Extreme Medicine(WEM) er haldin ár hvert í Edinborg í Skotlandi og hefur verið haldin um árabil. Að þessu sinni fóru sviðstjóri Fyrstuhjálparsviðs og fagstjóri Vettvangshjálparsviðs á ráðstefnuna ásamt skólastjóra Björgunarskólans og starfmanni skrifstofu. Hún leiðir saman fólk með áhuga á neyðarhjálp við afar erfiðar aðstæður, hverjar svo sem þær eru og eru fyrirlestrar og vinnustofur mjög fjölbreyttar.

Góð tengsl hafa myndast á milli eiganda WEM og sviðstjóra og starfsfólks SL.

Slysavarnaskóli sjómanna

148 námskeið árið 2025

70.222 nemendur frá upphafi

1.916 nemendur árið 2025

Slysavarnaskóli sjómanna var stofnaður árið 1985 og er í eigu Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Hlutverk skólans er að halda uppi öflugu fræðslustarfi handa sjómönnum og öðrum í haftengdri starfsemi Kennslan fer að mestu fram um borð í skólaskipinu Sæbjörg, sem er sérútbúið til verklegrar þjálfunar í raunverulegum aðstæðum. Þar fá nemendur hagnýta reynslu í sjóbjörgun, slökkvistörfum, skyndihjálp og öðrum öryggisviðbrögðum sem skipta sköpum á sjó.

Námskeiðshald á árinu

Slysavarnaskóli sjómanna stóð fyrir samtals 148 námskeiðum á árinu sem 1.916 nemendur sóttu. Þetta er nokkuð minna en undanfarin ár og þarf að horfa aftur til ársins 2019 til að fá sambærilegar tölur. Fækkunina er mest að finna á endurmenntunarnámskeiðum og er það eitthvað sem gerist reglulega. Taflan hér að neðan sýnir yfirlit yfir námskeið skólans árin 2024 og 2025.

Námskeið Nemendur Námskeið Dagar Nemendur Námskeið Dagar

Öryggisfræðsla STCW A-VI/1-1, 1-2, 1-3 & 1-4 3592412033623115

Endurmenntun öryggisfræðslu STCW A-VI/1558367277653106

Framhaldsnámskeið eldvarna STCW A-VI/3 162733312

Líf- og léttbátar a.e. hraðskr. léttb. STCW A-VI/2-119243736

Hraðskreiðir léttbátar STCW A-VI/2-2 2324000

Endurmenntun STCW A-VI/1, A-VI/2-1, A-VI/3897211431030

Framhaldsskyndihjálp STCW A-VI/4-1 7892165412

Sjúkrahjálp í skipum STCW A-VI/4-1 og 4-2 13212241531531

Hóp- og neyðarstjórnun STCW A-V/2 17611172371524

Mannauðsstjórnun (GRM/BRM/ERM) STCW 31219312

Verndarfulltrúi ISPS 262528510

Verndarskylda ISPS 110,51922

Hafnargæslumenn ISPS 000911

Öryggisfræðsla smábáta 59446655

Endurmenntun öryggisfræðslu smábáta 1056328584

Vinnubátar undir 6m 18331022

Öryggisfræðsla flugliða 37632273

Ýmis sérnámskeið 2172013250148

Samtals: 19161483242545176385

Frá stofnun Slysavarnaskóla sjómanna árið 1985 til loka árs 2024 hafa því verið haldin 4.473 námskeið sem 70.222 manns hafa sótt.

Fjarnám og kennsluhættir í þróun Á árinu 2025 hélt Slysavarnaskóli sjómanna áfram markvissri þróun fjarnáms með það að markmiði að draga úr viðverutíma nemenda án þess að slaka á gæðum kennslu. Fjarnám hefur fest sig í sessi sem mikilvægur hluti af námsframboði skólans og mælst vel fyrir meðal nemenda.

Sjö námskeið eru nú alfarið kennd í rauntíma í gegnum fjarfundabúnað, þar sem kennari fer yfir námsefni og leiðir nemendur í verkefnavinnu. Þessi kennsluaðferð hefur reynst afar vel og endurspeglast það í jákvæðum niðurstöðum kennslu kannana.

Vefnám hefur jafnframt verið í stöðugri þróun. Námsefni á vefnum hjá LearnCove hefur verið endurnýjað með aukinni áherslu á aðgengi í snjall tækjum, auk þess sem nemendur geta nú nýtt sjálfvirka þýðingu efnis á fjölmörg tungumál. Tvö námskeið eru nú alfarið netnámskeið þar sem nemendur lesa námsefni og vinna verkefni á netinu án staðnáms.

Þrjú námskeið eru kennd í blandaðri námsleið, þar sem fræðilegur hluti fer fram í vefnámi með verkefnavinnu en verklegar æfingar fara fram um borð í skólaskipinu Sæbjörgu. Þá hefur vefnámið einnig verið nýtt til að senda nemendum stutta upprifjun fyrir námskeið, sem gerir kleift að leggja meiri áherslu á nýjungar og verklega þætti þegar kennsla hefst.

Samhliða þessari þróun hóf Samgöngustofa á síðasta ári að senda nemendum áminningar þegar skírteini eru að renna út innan þriggja mánaða, með hvatningu um að hafa samband við skólann innan þess tíma. Í kjölfarið hefur verið unnið markvissar að námskeiðaáætlun skólans með það að markmiði að tryggja að öll skyldunámskeið séu ávallt í boði.

Alþjóðasamstarf og fagleg tengsl

Slysavarnaskóli sjómanna tók þátt í Erasmus+ starfsmenntaáætlun Evrópusambandsins á árinu. Þrír starfsmenn skólans heimsóttu skóla norsku sjóbjörgunarsamtakanna, en aðrir þrír heimsóttu slysavarnaskóla á Álandseyjum. Slíkar starfsheimsóknir eru mikilvægur þáttur í faglegri þróun starfsmanna, þar sem gefst tækifæri til að bera saman starfshætti, aðstöðu og búnað við aðra sambærilega skóla og nýta þá reynslu til áframhaldandi þróunar kennslu.

Skólastjóri sótti fundi Alþjóðasiglingastofnunarinnar þar sem meðal annars var unnið að endurskoðun STCW samþykktarinnar. Jafnframt tók hann þátt í fundum IASST, alþjóðasamtaka slysavarnaskóla, hverra Slysavarnafélagið Landsbjörg er aðili að.

Starfsmenn skólans tóku þátt í ráðstefnum, málþingum og fagráðum sem tengjast öryggi, forvörnum og siglingum. Þar má nefna þátttöku í fundum með Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi og Landssambandi smábátaeigenda og ýmsum ráðstefnum þar sem öryggi sjómanna var í brennidepli.

Árið einkenndist jafnframt af fjölbreyttum heimsóknum frá innlendum og erlendum aðilum. Fulltrúar menntastofnana, eftirlitsaðila, björgunarsveita og fyrirtækja heimsóttu skólann til að kynna sér starfsemi hans, aðstöðu, búnað og kennsluaðferðir. Þessar heimsóknir endurspegla áhuga á starfsemi skólans og hlutverki hans í menntun og þjálfun sjómanna.

Stuðningur og endurnýjun búnaðar

Á árinu hlaut Slysavarnaskóli sjómanna afar myndarlegan stuðning, svo vægt sé til orða tekið. Sjómannasamband Íslands færði skólanum 14 milljónir króna að gjöf og til viðbótar lögðu Félag skipstjórnarmanna og Félag vélstjóra og málmtæknimanna fram 5,5 milljónir króna hvort. Samtals nam stuðningurinn 25 milljónum króna og var honum ætlað að standa undir kaupum á nýjum léttabáti og kennslubúnaði. Kaup á léttabáti hafa þegar gengið í gegn og er jafnframt unnið að undirbúningi fyrir frekari endurnýjun kennslubúnaðar, þar á meðal möguleg kaup á nýjum eldæfingagámi við skólaskipið.

Faxaflóahafnir héldu áfram að styðja skólann með niðurfellingu hafnargjalda, eins og þeir hafa gert frá upphafi skólastarfsins í Reykjavíkurhöfn. Tryggingafélagið VÍS færði skólanum tíu flotvinnubúninga að gjöf. Viking Björgunarbúnaður gaf skólanum gúmmíbjörgunarbáta, Landstjarnan færði skólanum skyndihjálparbúnað. Að auki fékk skólinn ýmsan annan búnað frá útgerðum og einstaklingum, sem mun nýtast vel í kennslu og þjálfun.

Slökkviæfingahúsið Elja var fullklárað á árinu og verður vígt formlega á árinu 2026. Þetta er æfingahúsnæði í hæsta gæðaflokki sem Slysavarnafélagið Landsbjörg á til helminga með Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. Að utan er það sem hús en að innan sem skip. Reynslan sem komin er á æfingar í Elju hafa gefið mjög góða raun og lofar aðstaðan áframhaldandi þróun í verklegri kennslu og þjálfun sjómanna.

Til viðbótar þessum stuðningi var nokkuð um endurnýjun á kennslubúnaði á árinu, mestmegnis endurnýjun sökum hefðbundins slits, helst mætt nefna nýja kerru til að flytja búnað milli skólaskips og slökkviæfingasvæðis. Skólinn er vel tækjum búinn, þökk sé góðum styrktaraðilum. Óskalistinn er þó langur enn.

Stefnumótun og þarfagreining

Á árinu var farið í stefnumótunarvinnu. Haldnir voru fundir með utanaðkomandi hagaðilum ásamt stjórn, framkvæmdarstjórn, skólanefnd og starfsmönnum skólans. Umræður beindust meðal annars að framtíðarstaðsetningu skólans, framtíðarhlutverki skólans og nýjum kennslulausnum.

Samhliða stefnumótunarvinnu hefur verið í gangi þarfagreining fyrir framtíðarhúsnæði og aðstöðu fyrir skólann, Sæbjörgin er ekkert að yngjast og því þarf að huga að hvað skuli taka við. Þetta er spennandi vinna sem verður eflaust kynnt nánar á árinu.

Skólanefnd og starfsmannahald

Skólanefnd Slysavarnaskóla sjómanna hélt einn fund á árinu en nefndina skipa Gunnar Tómasson formaður, Árni Sverrisson, Valmundur Valmundsson, Margrét Gunnarsdóttir og Hilmar Snorrason. Á fundinum var farið yfir starfsemi skólans á árinu, framtíðarsýn og árangursmarkmið.

Í árslok voru starfsmenn eftirfarandi: Bogi Þorsteinsson skólastjóri, Bjarni Þorbergsson kennari, Fróði Jónsson kennari, Stefán Smári Skúlason kennari, Kjartan Thor Pálsson kennari, Ingimundur Valgeirsson verkefnastjóri, Sigríður Tómasdóttir skrifstofumaður, Pétur Ingjaldsson yfirvélstjóri og Vidas Kenzgaila ræstingar.

Auk fastra starfsmanna komu sérfræðingar að kennslu á sérsviðum. Hjúkrunarfræðingur kenndi námskeiðin í Sjúkrahjálp um borð í skipum. Sigmenn LHG kenndu þyrlubjörgun.

Slökkviliðsmenn SHS aðstoðuðu við verklegar æfingar á slökkviæfingasvæðinu Elju, sem skólinn deilir með slökkviliði höfuðborgarsvæðisins.

Björgunarsveitir
Slysavarnadeildir
Unglingasveitir

Aðgerðamál

Aðgerðir á landi og sjó 2025 F1-F4 með hálendisvakt

Aðgerðir á landi og sjó 2025 F1-F4 með hálendisvakt

Mynd 1 – Yfirlit yfir aðgerðir björgunarsveita 2025 – með hálendisvakt og þjónustuverkefnum.

Árið 2025 var í rólegra kantinum í sögulegu samhengi. Aðgerðir björgunarsveita félagsins voru samtals 904 sem er talsvert undir meðaltali áranna 2005 – 2024. Þær tölur sem hér eru settar fram hér eiga eingöngu við um F1-F4 aðgerðir björgunarsveita sem boðaðar voru af Neyðarlínu. Alls voru skráð 126 þjónustuverkefni á árinu á lægsta forgangi (F4). Flest þeirra eru lokanir fjallvega fyrir Vegagerðina til að koma í veg fyrir óþarfa ófærðarútköll.

Aðgerðir Slysavarnafélagsins Landsbjargar 2005 -2025

Mynd 2 - Yfirlit yfir aðgerðir björgunarsveita 2005 - 2025.

Allar aðgerðir Meðaltal

Aðgerðir á landi og sjó 2025 F1-F3 án Hálendisvaktar

Aðgerðir á landi og sjó 2025 F1-F3 án hálendisvaktar

Mynd 3 – Yfirlit yfir útköll björgunarsveita 2025 án Hálendisvaktar.

Mynd 4 – Yfirlit yfir þjónustuverkefni björgunarsveita 2024.

Alls fóru björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar í 776 F1, F2 og F3 aðgerðir á árinu 2024. F1 útköll eru forgangsútköll þar sem líf liggur við og F2 útköll eru brýn útköll þar sem bregðast þarf fljótt við. Algengt er að t.d. leitir að fólki séu boðaðar út sem F2. Önnur verkefni björgunarsveita þar sem viðbragðshraði er ekki nauðsynlegur eru boðuð út á F3.

Mynd 5 - Yfirlit yfir F1-F3 aðgerðir björgunarsveita 2005 – 2025.

Slysavarnaverkefni á hálendisvakt björgunarsveita eru ekki talin með í ofangreindum tölum enda er sérstök grein gerð fyrir þeim verkefnum að undanskildum útköllum (F1-F3) sem björgunarsveitir á hálendisvakt sinntu. Þau eru talin með enda hefði þurft að boða björgunarsveitir út vegna þeirra ef hópar hefðu ekki þegar verið á hálendinu. Lægsti forgangur í boðunum björgunarsveita er F4, en slík verkefni eru oft kölluð þjónustuverkefni.

Áhrif ferðamanna á fjölda útkalla

Ferðamenn og útköll

Mikil fjölgun ferðamanna á Íslandi virðist ekki hafa mikil áhrif á heildarfjölda útkalla.

Vissulega hafa ferðamenn haft mikil svæðisbundin áhrif til skamms tíma, en með mótvægisaðgerðum og slysavörnum hefur á flestum stöðum tekist að milda áhrifin. Fjöldi útkalla segir þó ekki alla söguna. Björgunarsveitir eru í dag að kljást oftar við hörð útköll á borð við umferðaslys, slys í vetrarferðum yfir hálendið, sjálfheldur og fall í fjalllendi, slys í ám og vötnum og sjávarháska í fjörum. Dettifoss, Reynisfjara, Brúará, Rauðafellsgjá, Hvítá, Svartifoss og Stuðlagil eru að mati Slysavarnafélagsins Landsbjargar sérstakir heitir reitir sem þarf að huga að vegna slysatíðni.

Eftirfarandi graf sýnir fylgni fjölda ferðamanna í samhengi við fjölda útkalla og er ljóst að tíðarfarið hefur mun meiri áhrif á fjölda útkalla heldur en fjöldi ferðamanna. Sýna árin 2015 og 2016 og svo aftur 2020-2022 glögglega að fjöldi ferðamanna hafa ekki afgerandi áhrif á fjölda útkalla.

útkalla vs fjöldi ferðamanna

Mynd 7 – Samanburður á fjölda ferðamanna og fjölda útkalla björgunarsveita 2001 – 2025.

Einnig er forvitnilegt að skoða fjölda útkalla yfir sumartímann í samanburði við fjölda ferðamanna allt árið.

Fjöldi

Mynd 8 – Samanburður á fjölda ferðamanna og fjölda útkalla björgunarsveita 2001 – 2025.

Fylgni veðurfars og fjölda ferðamanna má einnig sjá á eftirfarandi grafi sem sýnir fjölda þjónustuverkefna fyrir Vegagerð þar sem björgunarsveitir hafa aðstoðað við lokum helstu heiða mest á þjóðvegi 1.

Lokanaverkefni björgunarsveita fyrir Vegagerð

Maí - Ágúst (vinstri ás) Fjöldi ferðamanna - allt árið (hægri ás) 0 500.000 1.000.000 1.500.000 2.000.000 2.500.000 3.000.000

Mynd 9 – Samanburður á fjölda ferðamanna og vegalokana fyrir Vegagerðina 2014 – 2025.

Þjónustuverkefni

Mynd 10 - Þjónustuverkefni eftir svæðum björgunarsveita.

Til viðbótar við útköll sinna björgunarsveitir ýmsum greiddum þjónustuverkefnum þar sem sérþekking, þjálfun og sérhæfður búnaður nýtast. Almennt séð eru þessi verkefni leyst af nauðsyn þar sem engum öðrum er til að dreifa til að leysa þau.

Löng hefð hefur verið fyrir því að björgunarsveitir þjónusti t.d. útgerðir, raforkufyrirtæki og sveitarfélög gegn greiðslu. Einnig aðstoða björgunarsveitir tryggingarfélög oft við verðmætabjörgun. Í dreifbýlinu aðstoða sumar björgunarsveitir starfsfólk kirkjugarða við að taka grafir. Árið 2014 gerðu Slysavarnafélagið Landsbjörg og Vegagerðin með sér samkomulag um lokun vega og hefur það gengið vel. Aukinn ferðamannastraumur að vetrarlagi á árunum eftir hrun hefði getað leitt til mikils álags hjá björgunarsveitum ef þetta verkefni hefði ekki komið til. Ljóst að forvarnir með lokun vega þegar líkur eru að færð muni spillast hefur fækkað útköllum björgunarsveita umtalsvert. Veður og færð hafa mikil áhrif á fjölda þjónustuverkefna milli ára.

Briem Bs Hannes Þ Hafstein Bs Oddur V. Gíslason TFNF Bs Björg TFSL Bj Vörður II TFPT Gunnar Friðriksson TFIO Bs Gsli Jóns TFIL Bs Húnabjörg TFSA

Mynd 11 - Sjá má að aðgerðum björgunarskipa er misdreift yfir landið, en til samans mynda þau þéttriðið öryggisnet kringum landið.

Vettvangsliðar björgunarsveita

Um árabil hafa björgunarsveitir sinnt vettvangsþjónustu í sínu nærumhverfi sem sjúkrabílar sinna allra jafna. Um er að ræða viðbragð við bráðaveikindum og slysum þar sem langt er í næsta sjúkrabíl eða lækni. Ekki er að sjá að fjölgun ferðamanna hafi marktæk áhrif á fjölda útkalla vettvangsliða nema helst á 200 km kafla milli Kirkjubæjarklausturs og Hornafjarðar þar sem björgunarsveitir hafa á undanförnum árum sinnt umferðaslysum sem fyrsta viðbragð. Engum öðrum björgum er þar til að dreifa og ljóst að hraðakstur á bágbornum vegum og slæm færð færa björgunarsveitum mörg verkefni sem ættu að vera utan verksviðs þeirra.

Framlag sjálfboðaliðans árið 2024

Alls voru2.129 björgunarmenn skráðir í aðgerðir á árinu 2025 og mættu þeir 9.109 sinnum.

Meðalfjöldiaðgerðaáeinstaklinga

Einstaklingar (vinstri ás) Meðaltalsmæting (hægri ás)

Mynd 13 – Fjöldi einstaklinga sem mæta í útköll og meðal fjöldi útkalla á einstakling.

Að meðaltali er hvert útkall um 3 klst. Miðað við fjölda mætinga má því áætla að framlag sjálfboðaliðans hafi verið að lágmarki um 27.000 klukkustundir í útköllum á árinu. Að baki hverri klukkustund í útköllum eru síðan um 8,5 klst í viðhaldi búnaðar, þjálfun, æfingum og félagsstarfi. Varlega áætlað má því búast við að heildarframlag björgunarsveitafólks hafi verið vel rúmlega 300.000 klukkustundir á árinu.

Mæting sjálfboðaliðans

Mynd 14 – Fjöldi sem tekur

(vinstri ás) Fjöldi mætinga

(Einstaklingar (vinstri ás))

Björgunarsveitarstarf virðist höfða meira til karla en kvenna. Kynjaflutföllin eru þó hægt og bítandi að skríða í rétta átt, en langt er í land þar til að kynjahlutföllin verði jöfn í björgunarsveitunum.

Fjöldieftirkyni

Mynd 15 – Fjöldi sem tekur þátt í útköllum.

Fjöldieftirkyni-hlutfall

Karlar Konur

Mynd 16 – Hlutfall eftir kyni - þau sem taka þátt í útköllum.

Konurnar virðast vera að sækja í sig veðrið hvað varðar hlutfallslega þátttöku í útköllum eins og má sjá á grafinu hér fyrir neðan.

Útkölleftirkyni

Karlar, útköll Konur, útköll

Mynd 17 – Hlutfall eftir kyni eftir fjölda útkalla.

Karlar Konur

Eldgos í Grindavík 2024-2025

Eldgosahrinan á Reykjanesskaga og áhrif hennar á Grindavík á undanförnum árum hefur orðið eitt umfangsmesta verkefni sem almannavarnakerfið hefur tekist á við á síðari árum.

Frá fyrstu merkjum um aukna jarðskjálftavirkni og fram að endurteknum eldgosum reyndi á samhæfingu viðbragðsaðila og getu kerfisins til að halda úti viðbragði yfir mjög langt tímabil.

Þegar umfang verkefna sem hið daglega viðbragð sinnir allra jafna vex úr hófi fram eru sjálfboðaliðar Slysavarnafélagsins Landsbjargar kallaðir til.

Frá 19. mars 2021 hefur öflugur hópur sjálfboðaliða Slysavarnafélagsins Landsbjargar staðið vaktina í Grindavík, oft við krefjandi aðstæður. Í fyrstu stóðu sjálfboðaliðar Slysavarnafélagsins Landsbjargar vaktina nótt sem nýtan dag með hinu daglega viðbragði en þegar verkefnið fór að dragast á langinn þá þurfti nýja nálgun. Íslensku björgunarsveitir eru í eðli sínu öflugt skammtímaviðbragð. Sjálfboðaliðarnir treysta á velvild og umburðarlyndi fjölskyldu og atvinnurekenda. Allir skilja samfélagslegt mikilvægi þess að til sé hópur sjálfboðaliða sem er tilbúinn til að kasta öllu frá sér til að koma með borgurum sínum til bjargar. Þegar aðgerðir dragast á langinn þá er mikilvægt að gripið sé til mótvægisaðgerða hratt og örugglega til að losa sjálfboðaliðana frá verkefninu.

Eldvirknin við Grindavík er um margt einstakur atburðir eða réttara sagt röð atburða. Áskoranir viðbragðsaðila hafa breyst aðallega eftir staðsetningu hvers eldgoss.

Geldingadalir (2021-2022)

Eldgosið í Geldingadölum var um margt auðveldasta eldgosið að eiga við eftir að búið var að auðvelda aðgengi að gosstöðvunum. Mikil mannfjöldi fór á gosstöðvarnar og í fyrstu voru björgunarsveitir uppteknar við að koma slösuðu fólki til hjálpar og sinna hefðbundinni mannfjöldastjórnun. Leita þurfti fulltingis björgunarsveita af öllu landinu til að styðja við heimasveitirnar. Þegar lagðir voru góðir göngustígar fækkaði slysum og þar með verkefnum björgunarsveita. Undir lok eldgossins í Geldingadölum voru útköll það fá að heimasveitirnar sinntu þeim verkefnum og þurftu ekki utanaðkomandi stuðning. Þetta eldgos stóð yfir í lengstan tíma af öllum eldgosum í þessari yfirstandandi hrinu á Reykjanesi.

Meradalir (2022)

Eldgosið í Meradölum var ekki eins aðgengilegt og eldgosið Í Geldingadölum. Lengri ganga var á gosstöðvarnar og var fjöldi ferðamanna talsvert minni heldur en var í Geldingadölum. Það jákvæða var að gangan í Meradali var ekki eins krefjandi og voru slys þar af leiðandi ekki eins tíð og í Geldingadölum.

Litli Hrútur (2023)

Eldgosið við Litla Hrút var ekki umfangsmikið en var á mjög óheppilegum stað. Þykkur mosi var á svæðinu og kviknuðu gróðureldar á stóru svæði. Björgunarsveitir voru kallaðar út með sín sérhæfðu tæki sem nýttust vel í baráttunni við gróðureldana. Stórir vörubílar sem allra jafna eru notaðir til að flytja stóra snjóbíla eða þvera stór straumvötn tóku að sér að flytja vatn í stórum tönkum til slökkviliða sem börðust við eldinn. Einnig voru sérhæfð minni tæki notuð til að ferja minni vatnstanka og mannskap yfir úfið hraunið.

Mun lengra var á eldsstöðvarnar en í fyrri eldgosum en tiltölulega greiðfært. Eitthvað var um slys á ferðamönnum.

Eldvirkni við Sundhnúkagíga (2023-)

Gosin urðu í nágrenni við Grindavík og mikilvæga innviði á svæðinu, þar á meðal vegakerfi, raforku- og fjarskiptalínur og ferðaþjónustu. Aðstæður kröfðust viðvarandi viðbúnaðar og samhæfðra aðgerða margra viðbragðsaðila, þar sem björgunarsveitir gegndu lykilhlutverki í framkvæmd aðgerða á vettvangi.

Eftir að jarðskjálftahrinur hófust nálægt Grindavík síðla árs 2023 var ljóst að aukin gosvirkni gæti orðið á svæðinu. Í kjölfarið var almannavarnastig hækkað og umfangsmikill undirbúningur hafinn.

Þegar eldgos hófust við Sundhnúkagíga varð ljóst að um stóran og flókinn viðburð var að ræða. Gosin komu í hrinum og hraun rann ítrekað í átt að innviðum og byggð. Verkefni björgunarsveita voru fjölbreytt og breyttust eftir því sem aðstæður þróuðust. Eitt mikilvægasta hlutverk þeirra var að tryggja öryggi á svæðinu með lokunum, eftirliti og leiðbeiningum til almennings. Þúsundir ferðamanna og áhugafólks um eldgos sóttu svæðið heim og því var nauðsynlegt að stýra umferð fólks og koma í veg fyrir að einstaklingar færu inn á hættusvæði.

Rýmingar og öryggisaðgerðir voru einnig meðal helstu verkefna björgunarsveita. Þegar hætta skapaðist fyrir íbúa Grindavíkur eða starfsfólk á svæðinu tóku björgunarsveitir þátt í framkvæmd rýminga, auk þess að aðstoða við lokanir og umferðastjórnun. Þessi verkefni kröfðust mikillar samhæfingar og góðrar samvinnu við lögreglu og aðra viðbragðsaðila.

Auk þess sinntu björgunarsveitir fjölmörgum öðrum verkefnum eins og í fyrri eldgosum sem tengdust breyttu landslagi og nýjum hættum. Þar má nefna viðbrögð við gróðureldum, aðstoð við vísindamenn og sérfræðinga sem störfuðu á svæðinu.

Verkefnið við hefur reynt á þrautseigju sjálfboðaliða, skipulag aðgerða og getu almannavarnakerfisins til að halda úti samfelldu viðbragði yfir langan tíma. Þrátt fyrir krefjandi aðstæður tókst með samstilltu átaki viðbragðsaðila að tryggja öryggi almennings og styðja við stjórnun aðgerða á svæðinu.

Þegar eldgos hófst í febrúar 2024 jókst umfang verkefnisins verulega og kallaði á skipulagða aðgerðastjórn, stöðuga vöktun og víðtæka samvinnu margra aðila innan almannavarnakerfisins. Í því fólst meðal annars að tryggja fjarskipti við viðbragðsaðila á vettvangi, skráningu atvika, móttöku vísindamanna, sérfræðinga hagaðila og gesta, framkvæmd öryggiskynninga, samráð við íbúa og daglega samhæfingu verkefna. Þar sem þörf var á daglegri viðveru aðgerðastjórnenda björgunarsveita þá var ljóst að langtímaviðbragð væri ekki heppilegt fyrir sjálfboðaliðana en nauðsynlegt væri að sérþekking björgunarsveita væri í hjarta stjórnunar í Grindavík. Var því brugðið á það ráð að auglýsa eftir reyndum aðgerðastjórnendum úr ranni björgunarsveita til að sinna verkefnum í Grindavík. Svo heppilega vildi til að fjórir reyndir aðgerðastjórnendur og félagar í Slysavarnafélaginu Landsbjörg voru í leit að nýju starfi þegar kallið kom. Voru þeir ráðnir sérstaklega til starfa hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörg og samningur gerður við Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra um þeirra verkefni. Einnig var reynt björgunarsveitafólk ráðið beint til Almannavarnadeildar í ýmis gostengd verkefni annað hvort í fullt starf eða verktöku.

Verkefni aðgerðastjórnenda félagins sem ráðnir voru, voru afar fjölbreytt og oft ófyrirsjáanleg. Auk hefðbundinna verkefna sem tengjast eldgosum og rýmingum þurftu aðgerðastjórnendur að bregðast við margvíslegum hættum og aðstæðum sem mynduðust í kringum nýtt hraun og breytt landslag. Þar má nefna elda í nýju hrauni, hættulegar aðstæður vegna gufu og núll skyggnis á hraunvegum, ferðamenn sem fóru inn á hættusvæði, hraun sem rann yfir vegi og varnargarða, verkefni tengd hraunkælingu, viðbrögð við hættum á gömlum sprengjusvæðum frá hernum, ófærð innan bæjar og rafmagnsleysi. Slík verkefni urðu hluti af daglegu verklagi um tíma og kröfðust sveigjanleika og stöðugrar aðlögunar að breytilegum aðstæðum.

Vorið 2025 dró nokkuð úr virkni á svæðinu og var þá ákveðið að föst viðvera aðgerðastjórnenda væri ekki lengur nauðsynleg. Slysavarnafélagið Landsbjörg mun tryggja að félagið útvegi mannskap þarf í Grindavík í aðgerðastjórnun komi aftur upp þörf á daglegri viðveru og langtíma viðveru í Grindavík.

Mikilvægt var að viðhalda viðbúnaði og þekkingu á svæðinu. Viðbragðsaðilar sinna enn þá reglulegu eftirliti með svæðinu, fylgjast með breytingum á varnargörðum og girðingum. Milli atburða eru viðbrögð æfð og hugað að áætlunum og undirbúningi til að tryggja að viðbragðsaðilar séu ætíð tilbúnir að bregðast hratt við.

Aðgerðirnar í Grindavík hafa reynt mjög á íslenska almannavarnakerfið, bæði hvað varðar mannafla, skipulag og úthald til lengri tíma. Með skipulagðri aðgerðastjórn og samstilltu átaki tókst þó að tryggja samfellu í viðbragði og halda uppi virkri stjórnun verkefnisins þrátt fyrir síbreytilegar aðstæður.

Reynslan sem safnaðist í Grindavík er afar dýrmæt. Hún hefur aukið þekkingu á því hvernig reka má aðgerðir samkvæmt skipulagi almannavarna og SÁBF-kerfisins yfir langan tíma undir miklu álagi, auk þess að sýna mikilvægi náinnar samvinnu milli viðbragðsaðila, vísindasamfélagsins, stjórnvalda og íbúa. Slík reynsla styrkir viðbragðsgetu samfélagsins í heild og mun nýtast þegar næsta stóra áskorun kallar á samstillt viðbrögð.

904 aðgerðir voru skráðar 2025

1.166 aðgerðir voru skráðar 2024

Nafn aðgerðar

Leit að konu í Kópavogi

Leit að manni við Kirkjusand í Reykjavík

Týndur drengur Ölfusborgum

Leit í Esju

Grandi - örmagna sundmaður - leit

Óveður á Höfuðborgarsvæðinu

Óveður höfuðborgarsvæðið

Suðurland - rauð viðvörun 5.-6.feb

Hafnarfjörður - leit

14.6 Höfuðborgarsvæðið

Höfuðborgarsvæðið

Höfuðborgarsvæðið

29.5 Höfuðborgarsvæðið

28.10 Höfuðborgarsvæðið

5.2 Höfuðborgarsvæðið

5.2 Suðurland

176 3.12 Höfuðborgarsvæðið

AST-VST Eldgos Grindavík 1. Apríl 2025 F1 138 1.4 Suðurnes

Appelsínugul og rauð viðvörun F1 121 5.2 Norðurland-eystra

Bíll í Hvítá F1 116 28.5 Suðurland

Týndur einstalingur í sjálfsvígshættu F2 116 3.4 Höfuðborgarsvæðið

Breiðholt - Leit að kk F2 115 15.4 Höfuðborgarsvæðið

Rauð viðvörun - Höfuðborgarsvæðið F2 100 6.2 Höfuðborgarsvæðið Óveður-AST-Rauð og Appelsínugul veðurv.

Slæm veðurspá vesturland RAUÐ viðvörun

Eyjafjörður, tilk. um bát á hvolfi

Mosfellsbær - Týndur einstaklingur

Eldgos Grindavík

Týnd stúlka - Akranes

Slys á fjalli við Dalvík

Leit Kópavogur / Garðabær

Bátur strandaður

Appelsínugul veðurviðvörun 5-6 feb.

Reynisfjara-Fólk í sjónum

Vesturland

Höfuðborgarsvæðið

Suðurnes

Vesturland

Norðurland-eystra

Höfuðborgarsvæðið

20.5 Sjór

Norðurland-vestra

Suðurland

Nafn aðgerðar

Rýmingar Neskaupst. v. snjóflóðahættu

Grafarvogur - leit að unglingsstúlku

Einstaklingur í Brúará

Bátur vélarvana

Hættustig Rauður Keflavíkurflugvöllur

Forgangur Fjöldi Hófst Svæði

Leit að rekaldi-Mögulega kayak Norðan við Viðey

Bílslys neðribyggð

Leit að einstaklingi við Úlfarsfell

Tveir menn í sjálfheldu í Rauðskarðsá

Fjölskylda í sjálfheldu á Siglufirði

Hættustig - Rauður Keflavíkurflugvöllur

Leit í Borgarnesi

Óveður á Austurlandi

Vor í Vaglaskógi - Tónleikar

Uppgefinn einstaklingur í gíg Eyjafj.jökuls

Óvissustig og appelsínugul veðurviðvörun

Leit að vistmanni frá Fellsenda

Óveður á höfuðborgarsvæði

Hættustig Rauður Keflavíkurflugvöllur

Týndur einstaklingur Þykkvabæ

Leit Landmannalaugar Hrafntinnusker

Ferðamenn í sjálfheldu í Búlandstindi

Akranes, týnd stúlka

Leit Seyðisfirði / Loðmundarfirði

SST Bílslys á Fjarðarheiði

Leit Varmahlíð

Hættustig vegna eldgoss í/við Grindavík

Ísafjörður týnd stúlka

Bíll í sjónum

Einstaklingur í Ölfusá

Reka hvalavöðu úr höfninni á Ólafsfirði

Hvalabjörgun Gorvík Grafarvogi

Rauð veðurviðvörun svæði 18

Verkefni björgunarsveita tengd óveðri

Leit á Hjallahálsi

Slasaður göngumaður á Súlum ofan Akureyrar

Ljós á Hólmatindi

Týndur einstaklingur við Sundhnúka

Snjóflóð Snæfellsbæ Enni

Ófærð á suðurnesjum

Veik rjúpnaskytta

Sjálfhelda á Skessuhorni

Týnd kona í Landmannalaugum

1.11 Höfuðborgarsvæðið

9.8 Sjór Norð-Austur

25.6 Sjór Suð-Vestur

Höfuðborgarsvæðið

10.6 Höfuðborgarsvæðið

Vestmannaeyjar

Norðurland-eystra

2.3 Austurland

Vesturland

Nafn aðgerðar

Týnd kona í Kerlingafjöllum

Reykjavík leit

Kleifarvatn menn í vatninu

Ófærð á suðurnesjum

Bíll í krapa við Laufafell

Sækja bíl á Langjökul

Leit innanbæjar Akureyri

Leit á Siglufirði

Bátur strandaður

Göngumenn í vanda á Brimnesdal Ólafsf.

Seyðisfjörður bátur veltur

Eftirgrennslan í Mosfellsbæ

Mögulega bátur á hvolfi Kollafirði

Leit að 13 ára stúlku - Borgarnes

Slasaður einstaklingur ofan Hamra

Neyðarboð Tetra sv.3

Óveður/ófærð á Suðurnesjum 28.10.25

Jökuldalur 7 ára viðskila við föður

Týnt barn Djúpalónssandur

jökulsá - Meðvitundarleysi

Meðvitundarleysi - Hrafntinnusker

Vélsleðaslys í Skallárdal

Leit á höfuðborgarsvæðinu

Bíll í sjónum- Akraneshöfn

Cospas Sarsat- neyðarboð Reykjanes

2.12 Vesturland

21.5 Sjór Suð-Vestur

Sjór Suð-Austur

Höfuðborgarsvæðið

Sjór Hópslysaáætlun Austurlands virkjuð

Leit, Týndur drengur - Reykholt Borgarfj. F3

Bátur - Eldur í brú

Meðvitundarleysi á Fimmvörðuhálsi F2

4.9 Sjór Norð-Austur

6.8 Suðurland Óveðursaðstoð í Herjólfsdal F2 24 1.8 Vestmannaeyjar

Slasaður hestamaður í Kelduhverfi F2 24 26.6 Norðurland-eystra

Slasaður einstaklingur Grímkelsstaðir

Bátur slys um borð

Ófærð og óveður frá Egilsst. að Biskupsh. F2

AST-VST Óvissustig v. jarðhr. í Grindavík

AST-Appelsínugul veðurviðvörun

Bátur með í skrúfunni

Siglufjörður:Eldsvoði á Tjarnargötu

Eftirgrennslan Hellisfjörður

Meðvitundarleysi - Kerlingarfj. TF-GRO 31

Sjór Norð-Vestur

16.4 Austurland

Sjór Norð-Vestur

Land Suð-Vestur

Slasaður einstaklingur í Reykjadal

SST - óveður um allt land

Meðvitundarleysi - Miðfjörður

slys á fimmvörðuhálsi

Slösuð göngukona á gönguleið upp á Súlur

Bátur - vatn í vélarrúmi

Bátur - Úr ferilvöktun

Göngumaður við Hnöttóttuöldu, Sprengis.

Eftirgrenslan í Heiðmörk

Akureyri:Vélavana bátur í miðjum Eyjafirði

Einstaklingur í sjálfheldu á Snæfellsnesi

Týnd rjúpnaskytta í Hörðudal, Dölum

Hópslys Seljafjörður

Bátur dottinn úr ferilvöktun

Bátur - eldur um borð

Gönguhópur í vandræðum í Kerlingafj.

Týndur einstaklingur Svínafelli, Öræfum

Leit - Þverárhlíð - bílvelta

Bátur með í skrúfunni

Bátur stýrislaus

Lokun Hellisheiði og Þrengsli

Kaldur ferðamaður Nesjavallaleið

Fastir bílar Siglufjarðarvegur

Sækja sjúkling í skemtiferðaskip

Þrír í sjálfheldu í Hvannárgili

Leit að kajakmanni í Ísafjarðardjúpi

Örmagna ferðamaður langihryggur

Bátur að sökkva í Norðfjarðarhöfn - óveður

Sjávarflóðavarnir í Grindavík

Bátur vélarvana á leið inn höfnina

Bíll útaf við Þorgautsstaði Hvítársíðu

8.6 Suðurland

Sjór

Höfuðborgarsvæðið

Suð-Vestur

Sjór Norð-Vestur

Sjór

Suðurnes

Nafn aðgerðar

Svæði 6

Björgunarsveitin Blakkur

Björgunarsveitin Bræðrabandið

Björgunarsveitin Kópur

Björgunarsveitin Tálkni

Hjálparsveitin Lómfell

Svæði 5

Björgunarsveitin Berserkir

Björgunarsveitin Elliði

Björgunarsveitin Heimamenn

Björgunarsveitin Klakkur

Björgunarsveitin Lífsbjörg Snæfellsbæ

Björgunarsveitin Ósk

Svæði 4

Björgunarfélag Akraness

Björgunarsveitin Brák

Björgunarsveitin Heiðar

Björgunarsveitin Ok

Svæði 1

Björgunarhundasveit Íslands

Björgunarsveit Hafnarfjarðar

Björgunarsveitin Ársæll

Björgunarsveitin Kjölur

Björgunarsveitin Kyndill - Mosf.

Flugbjörgunarsveitin í Reykjavík

Hjálparsveit skáta Garðabæ

Hjálparsveit skáta Kópavogi

Hjálparsveit skáta Reykjavík

Leitarhundar SL

Svæði 2

Björgunarsveitin Ægir Garði

Björgunarsveitin Sigurvon

Björgunarsveitin Skyggnir

Björgunarsveitin Suðurnes

Björgunarsveitin Þorbjörn

Svæði 7

Björgunarfélag Ísafjarðar

Björgunarsveitin Björg Suðureyri

Björgunarsveitin Dýri

Björgunarsveitin Ernir

Björgunarsveitin Kofri

Björgunarsveitin Sæbjörg Flateyri

Björgunarsveitin Tindar

Svæði 8

Björgunarsveitin Björg Drangsnesi

Björgunarsveitin Dagrenning - Hólmavík

Björgunarsveitin Strandasól

Svæði 9

Björgunarfélagið Blanda Björgunarsveitin Húnar

Björgunarsveitin Strönd

Svæði 3

Björgunarfélag Árborgar

Björgunarfélagið Eyvindur

Björgunarsveit Biskupstungna

Björgunarsveitin Björg Eyrarbakka

Björgunarsveitin Ingunn

Björgunarsveitin Mannbjörg

Björgunarsveitin Sigurgeir

Hjálparsveit skáta Hveragerði

Hjálparsveitin Tintron

Svæði 18

Björgunarfélag Vestmannaeyja

Svæði 10

Björgunarsveitin Grettir

Björgunarsveitin Skagfirðingasveit

Björgunarsveitin Strákar

Flugbjörgunarsveitin í Varmahlíð

Svæði 11

Björgunarsveitin Ægir Grenivík

Björgunarsveitin Dalvík

Björgunarsveitin Jörundur

Björgunarsveitin Sæþór

Björgunarsveitin Tindur

Björgunarsveitin Týr

Hjálparsveitin Dalbjörg

Súlur - Björgunarsveitin á Akureyri

Svæði 12

Björgunarsveitin Garðar

Björgunarsveitin Hafliði

Björgunarsveitin Núpar

Björgunarsveitin Pólstjarnan

Björgunarsveitin Stefán

Björgunarsveitin Þingey

Hjálparsveit skáta Aðaldal

Hjálparsveit skáta Reykjadal

Svæði 13

Björgunarsveitin Gerpir

Björgunarsveitin Ársól

Björgunarsveitin Bára

Björgunarsveitin Brimrún

Björgunarsveitin Eining

Björgunarsveitin Geisli

Björgunarsveitin Hérað

Björgunarsveitin Ísólfur

Björgunarsveitin Jökull

Björgunarsveitin Sveinungi

Björgunarsveitin Vopni

Svæði 15

Björgunarfélag Hornafjarðar

Björgunarsveitin Kári

Svæði 16

Björgunarsveit Landeyja

Björgunarsveitin Bróðurhöndin

Björgunarsveitin Dagrenning - Hvolsvöllur

Björgunarsveitin Kyndill Kbkl.

Björgunarsveitin Lífgjöf

Björgunarsveitin Stjarnan

Björgunarsveitin Víkverji

Flugbjörgunarsveitin Hellu

Björgunarsveitir

Málefni sjóbjörgunar

Árið 2025 var viðburðaríkt, krefjandi og afar lærdómsríkt í sjóbjörgunarstarfi félagsins. Endurnýjun flotans hélt áfram af miklum krafti, útköll voru fjölmörg og verkefnin margslungin, en fyrir sögu hlutanna eru hér rituð orð um vinnu, útköll, stefnur, verkefni, innkaup og fleira sem snýr að sjóbjörgun.

Þjálfun, samstarf og alþjóðleg tengsl efldust verulega, auk þess sem mikilvæg skref voru tekin í þróun búnaðar, kennslu og reglugerðarmála. Hér er stiklað á helstu atriðum ársins – án þess að um tæmandi lista sé að ræða.

Samstarfið við Landhelgisgæslu Íslands er með miklum ágætum og ljóst er að samstarfið er lykillinn að farsælu sjóbjörgunarstarfi.

Endurnýjun björgunarskipaflotans

Endurnýjun allra 13 björgunarskipa félagsins er eitt stærsta verkefni félagsins á tæpum hundrað árum ef ekki það stærsta. Á árinu 2025 náðist sá áfangi að verkefnið telst nú nánast hálfnað þegar skip númer 6 í röðinni kom til landsins og fór til Ísafjarðar. Þar fékk það nafnið Guðmundur í Tungu eftir happasælum skipstjóra úr Tungudal í Skutulsfirði.

Fyrr á árinu kom Ingibjörg 3055 sem kom til landsins í byrjun júlí og fór til Hornafjarðar og leysti þar af hólmi Arun class skip með sama nafni. Nú eru tvö ný skip sitt hvoru megin við hafnlausa svæðið á suðurströndinni, í Vestmannaeyjum og á Höfn.

Í kjölfar komu skipanna voru haldin vel sótt áhafnanámskeið á báðum stöðum og áfram sýnir það sig að ný skip laða að sér fleiri sem vilja verða hluti af áhöfnum þeirra.

Á árinu var einnig skrifað undir samning við finnska skipasmiðinn um smíði á næstu tveimur skipum:

• Skip 7 – Sveinbjörn Sveinsson 3053 TF-FB Vopnafjörður, áætluð afhending vor 2026

• Skip 8 – Patreksfjörður, afhending haust 2026

Endurnýjun flotans er eitt stærsta öryggisverkefni félagsins til langs tíma og áfram þarf að tryggja fjármagn fyrir síðustu áfanga verkefnisins. Við sjáum til lands með átta skip, en enn er ósamið við íslenska ríkið um síðustu 3 skipin og fjármögnun níunda og tíunda skipsins af hálfu félags og heimamanna er ólokið.

Í árslok 2025 eru því komin 6 ný skip í notkun en fyrir voru:

• Þór 3023 Vestmanneyjum

• Sigurvin 3024 Siglufirði

• Jóhannes Briem 3049 Reykjavík

• Björg 3049 Rif.

Af eldri Arun class skipum eru þá Gunnbjörg á Raufarhöfn enn í notkun, Húnabjörg á Skagaströnd, Oddur V. Gíslason í Grindavík og Hannes Þ. Hafstein í Sandgerði. Björgunarbátasjóðnum á Suðurnesjum barst á árinu höfðingleg gjöf frá börnum Hannesar heitins, er þau afhentu sjóðnum eina milljón króna á fulltrúaráðsfundi haustið 2025 í minningu föður síns Hannesar Þ. Hafstein fyrrverandi forstjóra Slysavarnafélags Íslands, sem hefði orðið 100 ára 29. Nóvember 2025.

Útköll ársins 2025

Fjöldi útkalla björgunarskipa félagsins stóð nokkuð í stað milli áranna 2024 og 2025, en ljóst er að fjöldi þeirra hefur aukist talsvert með nýrri skipum. Í ár voru björgunarskip félagsins kölluð út 126 sinnum. Flest útkallana voru í kringum strandveiðar en einnig eru orðin áberandi útköll þar sem skipin eru að aðstoða og jafnvel taka í tog mun stærri fiskiskip en þau eldri réðu vel við.

• Fjölmörg útköll vegna vélarvana báta og minni háttar bilana.

• Fjölgun aðstoðarbeiðna í tengslum við smáskipaútgerð

• Stærri skip aðstoðuð.

• Leitir að týndum einstaklingum voru nokkrar og umfangsmiklar.

• Álag jókst við upphaf strandveiða eins og síðustu ár.

Á grafinu hér á síðunni má sjá hvernig útköll björgunarskipa skiptast á milli þeirra og greinilegt að flest útkalla eru þar sem strandveiðisókn er hvað mest.

Hörmulegt sjóslys varð þegar strandveiðisjómaður fórst í Patreksfirði sumarið 2025. Slysið hafði mikil áhrif á samfélagið og á björgunarfólk sem sinnti aðgerðinni af fagmennsku og virðingu.

Búnaður og öryggi

Félaginu barst á árinu veglegur styrkur frá Kirkju Jesú Krists hinna síðari daga sem var nýttur til að kaupa sjálfvirka neyðarsenda og björgunarvesti. Áform eru um að allar áhafnir björgunarskipa og harðbotna björgunarbáta félagsins verði með slík vesti.

Eftir þarfagreiningu og ítarlega skoðun á vörum á markaði, varð íslenski framleiðandinn Multitask fyrir valinu. Neyðarsendir og vesti þeirra ganga undir nafninu Sjókall, í fyrstu voru keypt 114 slík vesti ásamt sendum og eru þau þegar komin í notkun.

Þetta eru ein stærstu kaup félagsins á öryggisbúnaði til sjós í mörg ár og eykur öryggi áhafna og sjálfboðaliða verulega enda fer neyðarsendir björgunarvestisins í gang falli áhafnarmeðlimur fyrir borð og staðsetning kemur upp á siglingtölvum nærstaddra skipa og reyndar allra skipa sem fylgjast með AIS staðsetningarkerfinu.

Stór björgunaræfing.

Glæsileg og stór sjóbjörgunaræfing var haldin í Ísafjarðardjúpi af LHG og Almannavarnardeild Ríkislögreglustjóra á vormánuðum með þáttöku allra sveita við Djúp. Þar tóku þátt ásamt varðskipi LHG, björgunarskipin Gísli Jóns, Kobbi Láka og Svanurinn. Æfingin gekk vel en líkt var eftir viðbragði við óhappi varðandi skemmtiferðaskip.

Alþjóðlegt samstarf

IMRF áhafnaskipti 2025

Að venju tóku félagsmenn virkan þátt bæði innanlands og erlendis. Fimm fulltrúar félagsins tóku þátt af okkar hálfu í áhafnaskiptum og fóru til Frakklands, Eistlands, Svíþjóðar, Finnlands og Skotlands. Okkar fólk kom úr röðum ýmissa sveita en allar eiga þær sameiginlegt að hafa aðkomu að sjóbjörgunarmálum. Kristján Lár kom frá Berserkjum Stykkishólmi. Fannar Reykjalín frá Garðari Húsavík, Haraldur frá Björgunarbátasjóði Grindarvíkur/Reykjavík, Björn Ásgeir frá Berserkjum Stykkishólmi og afar ánægjulegt var að senda konu aftur í áhafnaskipti, en úr áhöfn Kobba Láka í Bolungarvík fór Martha Karen Guðrúnardóttir Hún hélt erindi á fræðslukvöldi um sjóbjörgun í tengslum við fulltrúaráðsfund í nóvember 2025 og er það erindi aðgengilegt á Vimeo síðu félagsins.

Það liggur í hlutarins eðli að áhafnaskipti þýðir að það kemur í okkar hlut að taka á móti hópi erlendis frá og hingað kom öflugur hópur frá meðal annars systursamtökum okkar í Noregi, Svíþjóð, Finnlandi, Frakklandi, Hollandi og Póllandi. Þetta voru 6 áhafnarmeðlimir í heildina og félagið bauð upp á ýmis konar fræðslu og æfingar þessa viku sem þau voru hér. Hópurinn tók þátt í sjóbjörgunar æfingu með bátaflokkum á Svæði 1 og varðskipinu Þór. Farið var með hópinn í heimsókn til Grindavíkur og höfðu allir gaman af. Vikunni var svo lokað með góðri æfingu og heimsókn um borð í skólaskipið Sæbjörg, þar sem kennarar Slysavarnaskóla sjómanna tóku vel á móti hópnum og hristu duglega upp í honum.

Mass Rescue at Sea

Á vegum félagsins fóru 27 manns á stóra alþjóðlega ráðstefnu IMRF í Gautaborg 15. til 20 júní. Yfir 140 þátttakendur frá 20 löndum tóku þátt. Ráðstefnan hófst á æfingu á sjó þar sem æft var að bjarga fólki úr rafknúinni ferju.

Fjöldi áhugaverðra fyrirlestra fylgdu svo í kjölfarið þar sem áherslan var á stór slys á sjó, samþættingu björgunarkerfa, samskipti við yfirvöld og alþjóðastofnanir og öryggismál stórra farþegaskipa.

Félagið var nokkuð áberandi á ráðstefnunni, því auk fjölda þátttakenda var nýja björgunarskipið Ingibjörg 3055 einnig til sýnis á ráðstefnunni og vakti mikla athygli. Ingibjörg tók einnig þátt í stórri æfingu, mönnuð af okkar fólki.

Rescue Runner þjálfun – Noregur

Félagið sendi hópa í notkunar- og rekstrarnámskeið á Rescue Runner (jet-ski) til Redningsselskapet í Noregi. Þetta er þáttur í uppbyggingu léttbáta- og strandbjörgunar þekkingar.

Heimsókn frá RS

Þá komu tveir leiðbeinendur frá RS í heimsókn til okkar síðla árs. Þeir funduðu með björgunarskólanum og sjóbjörgunarsviði, ásamt því að taka þátt í æfingum.

RS hafa gefið félaginu aðgang að öllu þeirra námsefni til þjálfunar áhafna björgunarskipa RS og var heimsóknin hluti af þeirri góðu gjöf.

Á sama hátt hafa RNLI í Bretlandi gefið félaginu aðgang að öllu þeirra þjálfunar og námsefni.

IMRF hefur einnig heitið áframhaldandi stuðningi við félagið til þróunar okkar námsefnis, en IMRF gaf það út á haustfundi sínum að námsefni RS og RNLI yrði grunnur að stöðluðu námsog þjálfunarefni sjóbjörgunar.

Þetta er mikið framfaraskref í þjálfun áhafna björgunarbáta og skipa félagsins og afar mikilvægur liður í þeim áformum að þjálfun innan félags verði grunnur að réttindum, eins og skipstjórnar björgunarskipa ásamt vélsgæslu. Rétt fyrir þinglok 2025 samþykkti Alþingi svo breytingar á lögum um áhafnir skipa og þar með er komin lagastoð fyrir félagið að setja upp námsleiðir til að mennta eigið réttindafólk.

Samhliða umfjöllun Alþingis áttu starfsmenn félagsins fundi með ráðuneyti og Samgöngustofu til að undirbúa nýja reglugerð á grundvelli þessarar lagabreytingar, sem uppfærði þær undanþágur sem í gildi voru samkvæmt eldri reglugerð, en voru settar þegar Arun Class skipin komu. Þegar ný skip komu dugðu þessar undanþágur ekki þegar kom að vélgæslu, þar sem nýju skipin eru búin stærri vélum.

Framundan er svo vinna við að staðfæra og þýða þetta námsefni, hluta af því í samvinnu með Samgöngustofu. Niðurstaðan er vonandi ný og öflug þjálfunar áætlun, þar sem hægt verður að velja leiðir t.d. að skipstjórn eða vélgæslu. Að sjálfsögðu þurfa ekki allir að fara þá leið, en almenn þjálfun áhafna, hvort sem er smærri gúmbáta (Zodiac), harðbotna báta eða stærri björgunarskipa, verður mun markvissari og mun stuðla að meira öryggi í störfum okkar á sjó.

Patreksfjörður

Vörður II Smíðaár: 1987

Ganghraði: 14-16 sml/klst.

Nýtt skip væntanlegt haustið 2026

Ísafjörður

Guðmundur í Tungu

Afhent í júní 2025

Skagaströnd

Húnabjörg

Ganghraði: 14-16 sml/klst.

Áhöfn: 5-6 manns

Smíðaár: 1987

Rif

Björg

Afhent í október 2024

Sandgerði

Hannes Þ. Hafstein

Reykjavík

Jóhannes Briem

Afhent í september 2023

Ganghraði: 14-16 sml/klst.

Áhöfn: 5-6 manns

Smíðaár: 1982

Grindavík

Oddur V. Gíslason

Ganghraði: 14-16 sml/klst.

Áhöfn: 6 manns

Smíðaár: 1985

Vestmannaeyjar Þór

Afhent í október 2022

Raufarhöfn

Gunnbjörg

Ganghraði: 14-16 sml/klst.

Áhöfn: 4-6 manns

Smíðaár: 1986

Siglufjörður

Sigurvin

Afhent í mars 2023

Vopnafjörður

Sveinbjörn Sveinsson

Smíðaár: 1987

Nýtt skip væntanlegt

sumarið 2026

Norðfjörður

Hafbjörg

Ganghraði: 18-22 sml/klst.

Áhöfn: 5 manns

Smíðaár: 1996

björgunarskip

Þetta verkefni hefur gengið vonum framar, nú þegar eru komin 6 ný og öflug björgunarskip og 2 önnur á leiðinni á næsta ári.

Höfn í Hornafirði

Ingibjörg

Afhent í júní 2025

Skipsskaðar

Slysavarnafélagið Landsbjörg gegnir lykilhlutverki í sjóbjörgun við Ísland. Þótt sjóslysum hafi almennt fækkað á síðustu árum, meðal annars fyrir tilstuðlan Slysavarnaskóla sjómanna, eru sjóbjörgunarsveitir áfram ómissandi hluti af öryggisneti sjófarenda. Með því að kynna sér skýrslur Rannsóknarnefndar samgönguslysa (RNSA) má draga lærdóm af fyrri atvikum og styrkja viðbrögð við útköllum. Hér að neðan er stutt yfirlit yfir nokkur atvik frá árinu 2025. Ýtarlegri skýrslur má finna á www.rnsa.is.

| Bilun

Huginn VE 55

Þann 30. janúar 2025 varð fiskiskipið Huginn VE 55 vélarvana þegar það var á leið til hafnar í Vestmannaeyjum. Skipið stöðvaðist skammt frá innsiglingunni og varpa þurfti akkeri. Björgunarskip kom fljótlega á vettvang og var skipið síðan dregið til hafnar með aðstoð dráttarbáts. RNSA segir orsök atviksins hafa verið óvænta bilun í stjórnbúnaði skrúfustjórnunar sem olli því að aðalvélin stöðvaðist.

| Strand

Gunna Valgeirs ÍS

Þann 20. maí 2025 strandaði hvalaskoðunarskipið Gunna Valgeirs vestan við Ögurrif í Ísafjarðardjúpi þegar skipið var á leið í hvalaskoðun. Veður var stillt en mikil þoka. Skipstjóranum tókst að bakka skipinu af rifinu fyrir eigin vélarafli. Farþegar voru fluttir yfir í björgunarskip og skipið síðan dregið til hafnar. RNSA bendir á að orsök strandsins hafi verið að skipstjóri vissi ekki af grynningum á svæðinu og hafði ekki fullnægjandi sjókort til að styðjast við.

| Banaslys

Ormurinn langi AK 64

Þann 30. júní 2025 sökk strandveiðibáturinn Ormurinn langi AK 64 vestur af Blakki við Patreksfjörð. Skipverji á nálægum fiskibát gerði stjórnstöð Landhelgisgæslunnar viðvart um að bátur hefði sokkið og að einn maður væri í sjónum. Björgunarskip og þyrla Landhelgisgæslunnar voru kölluð út auk þess sem skip á svæðinu voru beðin um að halda tafarlaust á staðinn. Áhöfn björgunarskips náði manninum úr sjónum og flutti hann til Patreksfjarðar þar sem hann var úrskurðaður látinn. Landhelgisgæslan hífði bátinn síðar upp af hafsbotni og var hann fluttur til rannsóknar. Rannsóknarnefnd samgönguslysa hefur ekki lokið rannsókn á atvikinu.

| Eldur

Álfsnes RE

Þann 23. júlí 2025 kom upp eldur í vélarrúmi fiskiskipsins Álfsnes RE þegar skipið var statt skammt undan landi. Áhöfn skipsins brást skjótt við brunaviðvörun, lokaði loftristum og hurðum að rýminu og undirbjó notkun slökkvikerfis. Með þessum aðgerðum tókst að kæfa eldinn og takmarka skemmdir. Björgunarskip var kallað til og dró skipið til hafnar. RNSA bendir á mikilvægi reglubundins eftirlits með vélbúnaði og eldsneytiskerfum skipsins.

| Aukaskýrslur

Einar Guðnason ÍS 303

Þann 24. mars 2025 var fiskibáturinn Einar Guðnason ÍS 303 að veiðum um 8,5 sjómílur ANA af Hornbjargsvita þegar stýri bátsins varð óvirkt. Orsökin var olíuleki í háþrýstikerfi bátsins þegar slanga gaf sig og kerfið tæmdist. Þar sem stýristjakkurinn var knúinn af sama háþrýstikerfi hætti stýrið að virka. Björgunarskip var kallað til og dró bátinn til hafnar. RNSA telur að orsök atviksins hafi verið bilun í háþrýstikerfi stýrisbúnaðar.

Ólafur GK 133

Þann 20. mars 2025 strandaði báturinn Ólafur GK 133 skammt austan við Suðureyrarhöfn. Skipstjóri, sem var nýbúinn að taka við bátnum, hafði siglt stutta stund þegar hann beygði fyrir mistök í rangt borð og fór á grynningar við Hólmann austan við höfnina. Við strandið missti báturinn skrúfu og stýri og sjór komst í vélarrými. Björgunarskip kom fyrst að bátnum og dró hann til hafnar. Annað björgunarskip var einnig sent á vettvang en sneri til baka þegar ljóst var að hætta var liðin hjá. RNSA telur orsök strandsins hafa verið ókunnugleika skipstjóra á staðháttum og mannleg mistök við brottför úr höfn.

Svæði 7

Slysavarnadeild kvenna Bolungarvík - Bolungarvík

Slysavarnadeild Hnífsdals - Hnífsdalur

Slysavarnadeildin Hjálp - Bolungarvík

Slysavarnadeildin Iðunn - Ísafjörður

Svæði 6

Slysavarnadeildin Gyða - Bíldudalur

Slysavarnadeildin Unnur - Patreksfjörður

Svæði 5

Slysavarnadeild Dalasýslu - Búðardalur

Slysavarnadeildin Helga Bárðardóttir - Hellissandur

Slysavarnadeildin Sumargjöf - Ólafsvík

Slysavarnafélagið Snæbjörg - Grundarfjörður

Svæði 4

Slysavarnadeildin Líf - Akranes

Slysavarnadeild Þverárþings

Svæði 1

Slysavarnadeildin í Reykjavík - Reykjavík

Slysavarnadeild FBSR - Reykjavík

Slysavarnadeildin Hraunprýði - Hafnarfjörður

Slysavarnadeildin Varðan - Seltjarnarnes

Slysavarnadeild Kópavogs - Kópavogur

Svæði 2

Slysavarnadeildin Dagbjörg - Reykjanesbær

Slysavarnadeildin Þórkatla - Grindavík

Slysavarnadeildin Una - Garður

Svæði 3

Slysavarnadeildin Björg - Eyrarbakka

Slysavarnadeildin Tryggvi Gunnarsson - Selfoss

Svæði 10

Slysavarnadeildin Drangey - Sauðárkrókur

Slysavarnadeildin Harpa - Hofsós

Svæði 18

Slysavarnadeildin Eykyndill

Svæði 11

Slysavarnadeildin Vörn - Siglufjörður

Slysavarnadeild kvenna Ólafsfirði - Ólafsfjörður

Slysavarnadeildin á Akureyri - Akureyri

Slysavarnadeildin Dalvík - Dalvík

Eykyndill - Vestmannaeyjar

Svæði 12

Slysavarnadeildin Hringur - Mývatn

Svæði 13

Slysavarnadeildin Hafdís - Fáskrúðsfjörður

Slysavarnadeildin Hafrún - Eskifjörður

Slysavarnadeildin Rán - Seyðisfjörður

Slysavarnadeildin Sjöfn - Vopnafjörður

Svæði 15

Slysavarnadeildin Framtíðin - Höfn

Slysavarnadeildir

Slysavarnir

Slysavarnir og öryggismál

Slysavarnafélagið Landsbjörg er leiðandi afl í slysavörnum og öryggismálum á Íslandi. Starf félagsins byggir á þekkingu, reynslu og ómetanlegu framlagi sjálfboðaliða í slysavarnadeildum og björgunarsveitum um land allt. Sameiginlegt markmið okkar er skýrt: að fækka slysum og draga úr afleiðingum þeirra.

Forvarnarstarfið tekur til alls samfélagsins. Barna og ungmenna, eldri borgara, fjölskyldna, sjófarenda og þeirra sem eru á ferðinni um landið, hvort heldur sem er innlent eða erlent ferðafólk. Með markvissri greiningu áhættu, fræðslu og sýnilegum aðgerðum vinnur félagið að því að efla öryggismenningu og auka viðbúnað samfélagsins.

Öflugt samstarf við stjórnvöld, fyrirtæki, stofnanir og félagasamtök er hornsteinn starfsins.

Með virkri þátttöku í nefndum og ráðum og í gegnum fjölbreytt verkefni á landsvísu og í heimabyggð tryggir félagið að rödd forvarna heyrist þar sem ákvarðanir eru teknar.

Heimili og nær samfélag

112 dagurinn: Neyðarlínan hélt 112 daginn þann 11. Febrúar. Að þessu sinni var þemað „Börn og öryggi“ til þess að vekja fólk til vitundar um að hafa öryggi barna framar öllu. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins bauð í heimsókn í Skógarhlíð 12 og félagið var með kynningarbás á svæðinu og gaf endurskinsmerki ásamt því að kynna verkefni félagsins sem líta að heimilisöryggi og þá sérstaklega öryggi barna. Einingar félagsins víða um land tóku þátt í deginum að venju.

Eldvarnabandalagið: Eldvarnabandalagið var stofnað árið 2010 sem samstarfsvettvangur um auknar eldvarnir á Íslandi. Markmið bandalagsins er að vernda líf, heilsu og eignir almennings og fyrirtækja með öflugu og samræmdu forvarnastarfi. Slysavarnafélagið Landsbjörg á aðild að bandalaginu ásamt eftirtöldum aðilum: Brunabótafélagi Íslands, Félagi slökkviliðsstjóra, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS), Landssambandi slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, Sjóvá, Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, TM, Vátryggingafélagi Íslands og Verði tryggingum.

Á árinu 2025 hélt bandalagið áfram að þróa og miðla samræmdu fræðsluefni um eldvarnir fyrir heimili og vinnustaði með áherslu á skýr skilaboð og aðgengilegt efni.

Málþing um eldvarnir: Eldvarnabandalagið stóð fyrir málþingi á árinu 2025 þar sem fjallað var um stöðu og þróun eldvarna á Íslandi. Slysavarnafélagið Landsbjörg tók virkan þátt í skipulagningu og framkvæmd málþingsins ásamt öðrum aðildaraðilum bandalagsins.

Á málþinginu var meðal annars fjallað um nýjar áskoranir í brunavörnum, mikilvægi forvarna í heimahúsum og hlutverk fræðslu og vitundarvakningar til að draga úr slysum og tjóni.

Sérstök áhersla var lögð á samhæfingu aðgerða og samstarf milli stofnana, tryggingafélaga og viðbragðsaðila.

Þátttaka félagsins í málþinginu er liður í því að styrkja faglegt samtal um eldvarnir og tryggja að sjónarmið forvarna og reynsla úr vettvangi nýtist við stefnumótun og fræðslu.

Dagur reykskynjarans: Á degi reykskynjarans 1. desember minnti félagið landsmenn á mikilvægi þess að yfirfara reykskynjara, skipta um rafhlöður og tryggja öruggar flóttaleiðir. Félagseiningar um allt land tóku þátt með dreifingu fræðsluefnis og víða voru reykskynjarar afhentir í heimabyggð.

Flugeldaforvarnir: Í tuttugu og tvö ár hefur félagið dreift gjafabréfum fyrir flugeldagleraugum til allra barna á aldrinum 10 –15 ára. Árið 2025 fór fræðsluefni um eldvarnir fyrir jól og áramót inn á rúmlega 30.000 heimili. Verkefnið var unnið í samstarfi við Sjóvá, Blindrafélagið og Póstinn. Í fræðsluefninu var lögð áhersla á notkun hlífðargleraugna, mikilvægi slökkvitækja, reykskynjara og öruggar flóttaleiðir. Einnig var minnt á ábyrgð fullorðinna við meðferð flugelda.

Sjór, ár og vötn - Forvarnir gegn drukknun

Árlega drukkna yfir 300 þúsund manns í heiminum eða um 30 manneskjur á hverjum einasta klukkutíma. Á Íslandi drukknuðu 68 manns á tíu ára tímabili frá 2013-2023. Drukknun er algengari en flestir halda og stundum er talað um hinn þögla faraldur. Á landsþingi 2025 var ákveðið að Slysavarnafélagið Landsbjörg héldi áfram að leggja ríka áherslu á samhæfðar og markvissar forvarnir gegn drukknun - bæði á sjó, við ár og vötn og í nærumhverfi fólks.

Áherslur ársins 2025 voru: aukin fræðsla til foreldra og forráðamanna, sýnileg viðvörunarskilti við hættusvæði, aðgengilegur björgunarbúnaður á bryggjum og við vinsæla viðkomustaði og einföld og sjónræn skilaboð í forvarnarherferðum.

Björgunarbúnaður og varúðarskilti: Félagseiningar um allt land sinna eftirliti og viðhaldi björgunarbúnaðar á bryggjum og við hafnarsvæði. Á fjölmörgum stöðum hafa verið settar upp kistur með björgunarvestum fyrir frístundaveiðimenn.

Björgvinsbelti hafa um árabil verið staðsett á vinsælum viðkomustöðum víðs vegar um landið og félagið heldur áfram að hanna og framleiða staðlað útlit viðvörunarskilta. Skiltin eru sérsniðin að aðstæðum hverju sinni í samstarfi við viðkomandi félagseiningar. Markmiðið er skýrt: Að draga úr viðbragðstíma, auka meðvitund og tryggja að einfaldur búnaður sé til staðar þegar hann skiptir mestu máli.

Strandveiðar og smábátar: Því miður er það svo að öryggisvitund og öryggisstjórnunarkerfi um borð í strandveiðibátum er enn nokkuð frumstæð. Á árinu framleiddi félagið forvarnarefni með leikaranum Þresti Leó Gunnarssyni um öryggi smábáta og strandveiðimanna og birtum á samfélagsmiðlum og í sjónvarpi. Verkefnið verður áfram forgangsmál. Lögð er áhersla á að björgunarbátar og búnaður sé í lagi, notkun björgunarvesta, mikilvægi fjarskipta og mikilvægi þess að vera við stýrið á stíminu.

Alþjóðleg samvinna og þekkingarmiðlun: Á Evrópuráðstefnunni EU-Safety 2025 var forvörnum gegn drukknun gerð sérstök skil undir yfirskriftinni “Preparedness for the Unexpected”. Þar var lögð áhersla á einföld, sjónræn og endurtekin skilaboð til almennings, sem og markvissa markaðssetningu forvarna. Sú nálgun fellur vel að stefnu félagsins og verður áfram höfð að leiðarljósi í íslensku samhengi þar sem náttúra landsins býður bæði upp á einstaka upplifun og raunverulega áhættu.

Umferð – Örugg á ferðinni

Markmið íslenskra stjórnvalda í umferðaröryggismálum eru skýr: að fjöldi látinna í um-

ferðinni á hverja 100 þúsund íbúa verði ekki meiri en það sem lægst gerist meðal annarra þjóða fyrir árið 2034 og að látnum og alvarlega slösuðum fækki að jafnaði um 5% á ári til sama tíma. Þróun síðustu ára sýnir að enn er verk að vinna. Á árinu 2024 létust þrettán í umferðarslysum á Íslandi og hátt í tvö hundruð slösuðust alvarlega. Þessar tölur minna á að þrátt fyrir framfarir í ökutækjatækni og vegabótum er mannlegi þátturinn enn lykilatriði. Slysavarnafélagið Landsbjörg leggur því ríka áherslu á fræðslu og vitundarvakningu í umferðaröryggi.

Sérstök áhersla er lögð á notkun öryggisbelta, öryggi barna í bílum, sýnileika gangandi og hjólandi vegfarenda og viðhorf og ábyrgð ungra ökumanna.

Veltibíllinn: Veltibíllinn er eitt sýnilegasta og áhrifaríkasta forvarnarverkefni félagsins í umferðaröryggi. Markmið hans er að vekja athygli á mikilvægi öryggisbelta með því að gefa þátttakendum raunhæfa upplifun af veltu í stýrðu og öruggu umhverfi. Á árinu 2025 fór

Veltibíllinn í 42 verkefni og náði þar með markmiði ársins (40 verkefni). Bíllinn heimsótti 19 grunnskóla, fór á 17 bæjarhátíðir um land allt, auk fjölskylduhátíða og forvarnardaga fyrirtækja. Alls fengu rúmlega 11.000 manns að prófa Veltibílinn á árinu, en 83,6% þátttakenda voru yngri en 14 ára. Hlutfall þátttakenda á aldrinum 16 – 24 ára var einungis 9,2%, sem undirstrikar þörfina á markvissari nálgun gagnvart ungum ökumönnum.

Áhersla næstu ára verður því að ná betur til framhaldsskólanema og ungs fólks, meðal annars með skipulögðum heimsóknum í framhaldsskóla á höfuðborgarsvæðinu í samstarfi við Samgöngustofa og Neyðarlínan.

Allir öruggir heim: Verkefnið Allir öruggir heim miðar að því að auka sýnileika barna í umferðinni, sérstaklega á dimmum árstíma. Félagið hélt áfram að afhenda endurskins vesti til leikskóla og grunnskóla sem þess óskuðu. Vestin eru nýtt í vettvangsferðum og göngum í nærumhverfi leikskóla og stuðla að auknu öryggi yngstu vegfarendanna.

Reiðhjól og hjálmar: Fræðsla um örugga notkun reiðhjóla og hjálma er fastur liður í forvarnarstarfi félagsins. Áhersla er lögð á rétta notkun hjálma, viðhald hjóla og ábyrgð foreldra og forráðamanna.

Félagseiningar nýta viðburði í heimabyggð, skólaheimsóknir og opna daga til að fræða börn og ungmenni um mikilvægi hjálmanotkunar.

Endurskinsmerki: Félagseiningar Slysavarnafélagsins Landsbjargar dreifðu og gáfu um 8.000 endurskinsmerki á árinu 2025. Í október hófst auglýsingaherferð á samfélagsmiðlum og í sjónvarpi þar sem almenningur var hvattur til að nota endurskinsmerki.

8.000

endurskinsmerki voru gefin á árinu

Alþjóðlegur minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa: Alþjóðlegur minningardagur var haldinn sunnudaginn 16. nóvember og tóku 26 félagseiningar þátt í að skipuleggja minningarstundir víðs vegar um landið. Minningarathafnir voru haldnar í Reykjavík og víða um land, þar sem fjölskyldur, viðbragðsaðilar og almenningur komu saman til að minnast þeirra sem látist hafa í umferðinni og ítreka sameiginlega ábyrgð okkar allra. Að baki minningardeginum standa auk Samgöngustofu, innviðaráðuneytið, Sjálfsbjörg, Slysavarnafélagið Landsbjörg, Neyðarlínan, Lögreglan og Vegagerðin.

Göngum í skólann: Verkefninu Göngum í skólann lauk haustið 2025 og tóku 64 grunnskólar þátt að þessu sinni. Markmið verkefnisins er að hvetja börn og foreldra til að nýta virkan og öruggan ferðamáta til og frá skóla með áherslu á hreyfingu, umferðaröryggi og sjálfbærni.

Göngum í skólann er alþjóðlegt verkefni sem nær til milljóna barna um allan heim og stuðlar að bættri lýðheilsu, minni umferðarþunga við skóla og aukinni umhverfisvitund.

Slysavarnafélagið Landsbjörg er bakhjarl verkefnisins ásamt Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands, Samgöngustofu, Ríkislögreglustjóra, Embætti landlæknis og Landssamtökunum Heimili og skóli.

Fagráð um umferðaröryggismál: Innviðaráðherra skipar fulltrúa Slysavarnafélagsins Landsbjargar í fagráð um umferðaröryggismál. Hlutverk ráðsins er að vera vettvangur samráðs og upplýsingaskipta um umferðaröryggi og beita sér fyrir bættum umferðarháttum. Ráðið starfar í umboði Innviðaráðuneytið og fundar reglulega yfir árið. Þar eiga fulltrúa fjölmargar stofnanir og hagsmunaaðilar, þar á meðal Samgöngustofa, Ríkislögreglustjóri og Vegagerðin.

Með þátttöku í fagráðinu tryggir félagið að sjónarmið forvarna og reynsla úr vettvangi nýtist við stefnumótun og þróun aðgerða í umferðaröryggismálum.

Alþjóðlegt samstarf og stefnumótun

Slysavarnafélagið Landsbjörg tók þátt í Evrópuráðstefnunni EU-Safety 2025, sem haldin var í Heraklion á Krít dagana 1.–2. október 2025. Ráðstefnan er skipulögð af EuroSafe í samstarfi við World Health Organization (WHO), European Public Health Association og fleiri lykilstofnanir á sviði lýðheilsu og forvarna. Þema ráðstefnunnar árið 2025 var “Preparedness for the Unexpected” — viðbúnaður gagnvart hinu óvænta. Þar var fjallað um öryggi barna og ungmenna, heimilis- og frístundaslys, forvarnir gegn drukknun, umferðaröryggi og félagslegan stuðning eftir slys og áföll.

Þátttaka í ráðstefnunni styrkir tengsl félagsins við evrópska samstarfsaðila og tryggir að íslenskt forvarnarstarf byggi á nýjustu þekkingu og alþjóðlegum viðmiðum. Jafnframt gefur hún tækifæri til að miðla reynslu af íslenskum lausnum á sviði slysavarna.

Félagseiningar og forvarnir í heimabyggð

Félagseiningar Slysavarnafélagsins Landsbjargar vinna árlega að fjölbreyttum forvarnarverkefnum í sínum heimabyggðum með það að markmiði að fækka slysum og auka öryggisvitund í nærumhverfi fólks.

Verkefnin taka til allra aldurshópa og má þar nefna nýbura gjafir með fræðsluefni, dreifingu endurskins vesta og endurskinsmerkja, afhendingu reykskynjara og hjólahjálma, uppsetningu og viðhald björgunarbúnaðar, þátttöku í 112 deginum og alþjóðlegum minningardegi um fórnarlömb umferðarslysa.

Vinsælar gönguleiðir, leiksvæði og hafnarsvæði eru reglulega skoðuð með „slysavarnagleraugum“ og bent á úrbætur þegar þörf krefur. Árlega taka allar félagseiningar þátt í einhvers konar forvarnarverkefnum á vegum félagsins. Sem dæmi má nefna að 102 félagseiningar dreifðu endurskinsmerkjum í sinni heimabyggð á árinu.

Innleiðing félagsgrunns slysavarnadeilda: Á árinu 2025 var unnið markvisst að innleiðingu sameiginlegs félagsgrunns fyrir slysavarnadeildir. Markmið hans er að skýra hlutverk deildanna, styrkja stjórnskipulag og samræma verklag innan félagsins. Félagsgrunnurinn skapar sameiginlegan ramma um skipulag og ábyrgð innan deilda, tengsl við aðgerðarsvið félagsins, fræðslu og hæfniviðmið, samskipti og upplýsingamiðlun. Innleiðingin er liður í því að efla fagmennsku, gagnsæi og samræmi í starfi slysavarnadeilda um land allt og styður við langtímastefnu félagsins um sterkar og virkar félagseiningar.

Nýjar reglur um þátttöku deilda í útköllum og aðgerðum: Á árinu voru jafnframt samþykktar og innleiddar nýjar reglur um þátttöku slysavarnadeilda í útköllum og aðgerðum. Reglurnar skilgreina betur hlutverk deildanna gagnvart björgunarsveitum og aðgerðarsviði félagsins. Markmið breytinganna er að tryggja öryggi sjálfboðaliða, skýra ábyrgð og verkaskiptingu, samræma viðbrögð á landsvísu og tryggja að þátttaka sé í samræmi við þjálfun og hæfni.

Með þessum breytingum er stigið mikilvægt skref í átt að aukinni fagmennsku og skýrari verkferlum, án þess að draga úr þeirri samfélagslegu virkni og forvarnarhlutverki sem einkennt hefur slysavarnadeildir frá upphafi.

Veggspjöld, skilti, bæklingar o.fl: Nokkrar tegundir af veggspjöldum, sem flest tengjast fólki á ferðinni á einn eða annan hátt, hafa verið notuð í forvarnarstarfi félagsins. Félagið býður áfram uppá þessi veggspjöld en þau eru um viðbrögð við drukknun, stillingu reiðhjólahjálma, öryggi reiðhjóla, rafhlaupahjóla og einnig áminning um rétt festa bílstóla barna. Einnig fást á skrifstofu bæklingarnir „Öryggi barna á heimilum“, „Örugg efri ár“. Félagið hefur einnig látið hanna útlit viðvörunarskilta til að setja niður við bryggjur, ár og vötn sem eru svo framleidd fyrir félagseiningar með viðbótum eftir aðstæðum hverju sinni.

Slysavarnir útivistarfólks og ferðamanna

Eins og fyrri ár höldum við á lofti forvörnum og slysavörnum og með því er stuðlað að auknu öryggi allra ferðamanna, erlendra sem innlendra. Þetta ár hefur nokkur tími farið í að skoða ferðamannastaði, greina hættur, vinna áhættumat og finna út hvaða mótvægisaðgerðum er hægt að beita á hverjum stað. Þetta er gert í samvinnu við landeigendur ásamt öðrum hagsmunaaðilum á hverjum stað. Þetta er eins og önnur forvarnarvinna, þarf stöðugt að vera í gangi. Við vitum heldur aldrei hvaða staður verður “aðalstaðurinn” á morgun. En við þurfum að standa klár að stökkva til þegar nýir staðir komast á kortið. Það er ekki verk eins aðila, það þarf samstarf og það er einmitt sem það sem knýr verkefni eins og Safetravel.

Markmiðið er að allir komi heilir heim.

Tekjur í ferðaþjónustu skipta íbúa landsins miklu máli. Þar af leiðir að öryggi þeirra er líka mál okkar allra. Eins og staðan er núna er Ísland með þann stimpil að vera „öruggasta land“ í heimi til að heimsækja. Að sjálfsögðu viljum við vera þar og hafa metnað fyrir því að vera fremst í því að tryggja sem mest og best öryggi þeirra sem ferðast um landið.

Til að nálgast okkar ferðafólk og koma skilaboðum til sem flestra bjóðum við upp á sem fyrr vefsíðu, upplýsingaskjái, samfélagsmiðla, smáforrit í síma og svo ekki síst rekstur upplýsingamiðstöðvar.

Vefsíðan, safetravel.is.

Vefsvæðið safetravel.is er ennþá okkar megin vettvangur til að deila upplýsingum. Það sem við höfum séð er að mest sótta síðan er „Travel condition“ Þar erum við að reyna auka við þær upplýsingar sem þar koma inn. Þarna hafa verið dregnar sjálfvirkt saman upplýsingar frá Veðurstofu Íslands og Vegagerðinni sem birtast myndrænt á korti. Ennfremur höfum við sett handvirkt inn sérstakar viðvaranir s.s. erfið vöð á hálendi, sprungusvæði á Reykjanesi ofl. Og þetta er að þróast í að vera þá krækja í meiri upplýsingar eins og með jarðhræringarnar á Reykjanesi, en við höfum haft mikinn metnað í því að vera með uppfærðar upplýsingar frá þeim opinberu aðilum sem gefa út upplýsingar eins og Lögreglu og Veðurstofu.

Í viðbót við það höfum við nú sett upp sér undirsíðu fyrir Reynisfjöru. Það sem liggur fyrir á næsta ári er að koma upp fleiri undirsíðum með svipuðu sniði fyrir aðra fjölsótta ferðamanna staði þar sem öryggisatriði eru útlistuð og hvað beri að hafa í huga á hverjum stað á hverjum tíma.

Safetravel appið (símasmáforritið)

Á þessu ári höfum við verið að teikna upp og gera áætlanir um hvernig við kynnum þennan miðil fyrir þeim ferðamönnum sem heimsækja landið. Á hverjum degi eru notendur smáforritisins á bilinu 1600 til 2500 talsins. Það eru mjög svipaðar tölur og við sáum á síðasta ári. Þannig að það er klárt að það eru sóknarfæri og við viljum sjá aukingu. En það er einmitt það sem við þurfum að finna, galdraformúluna sem kynnir málstaðinn. Á árinu var, með stuðningi Isavia, sett upp auglýsing við farangursbeltin í Leifsstöð þar sem ferðamenn eru hvattir til að ná í appið og við verðum með átak í að kynna appið á samfélagsmiðlun í byrjun næsta árs.

Á ferðum okkar um þá ferðastaði eins og nefnt var hér í byrjun þá voru ferðamenn teknir tali og gerð óformleg könnun á þrem stöðum. Það var mjög ánægjulegt að þeir sem höfðu notað appið voru mjög ánægð með það og fannst það mjög gagnlegt verkfæri til sjá stöðu á vegum og veðri á sama stað.

Upplýsingaskjáir Safetravel

Einn af þessum sýnilegu póstum út um landið á bensínstöðum, upplýsingamiðstöðum, hótelum og víðar eru upplýsingaskjáirnir. Upplýsingar um færð, veður og viðvaranir ef þess er þörf. Það fjölgar enn þeim stöðum þar sem skjáirnir eru. Síðustu tölur sem við vorum með töldu

100 skjái. En þeir eru mun fleiri núna þar sem það þarf ekkert sérstakan búnað til að birta þessar upplýsingar. Þetta er vefslóð sem auðvelt er að fá hjá okkur. Við gefum út vefslóðir fyrir landshluta eða bara fyrir ákveðna staði eins og Skaftafell o.fl. Núna er búið að gefa út slóðir fyrir um 30 svæði á Íslandi. Það sem er gott við svona miðlun að þetta er alltaf til staðar fyrir ferðamanninn á þessum stöðum og er orðið þekkt hjá íslenska ferðamanninum og er auðvelt að vísa hinum erlendu gestum á skjáinn þegar maður er staddur á bensínstöðinni.

Upplýsingamiðstöð Safetravel.

Eins og áður, alla daga, allt árið um kring er Safetravel á vaktinni. Við söfnum og dreifum upplýsingum. Við veitum ráðgjöf í gegum tölvupóst og vefspjall og tökum á móti ferðaáætlunum. Söfnun upplýsinga fer þannig fram að það er hringt vikulega í fólk af löngum og góðum lista. fólks sem getur gefið upplýsingar um ástand á ferðamannastöðum víða um land. Einnig eru margir sem senda reglulega tölvupóst, eða skilaboð ef það er eitthvað sem þarf sérstaklega að benda á. Auk þessa fáum við upplýsingar beint frá Veðurstofu, Vegagerðinni og Almannavörn-

um. Þessar upplýsingar rata svo áfram út í okkar vikulega upplýsingapóst sem fer á ríflega 4500 netföng. Ef upplýsingarnar eru þess eðlis að það þurfi að senda út viðvörun strax þá er skráð viðvörun á vefsvæðið sem speglast út í appið og líka beint út á upplýsingaskjáina. Þetta er mjög mikilvægur þáttur í starfsemi Safetravel. Þarna er beinn snertiflötur bæði við ferðamennina sjálfa og ekki síður við stóran hluta þeirra sem starfa við að þjónusta ferðamenn.

Hálendisvakt Slysavarnarfélagsins Landsbjargar sumarið 2025

Hálendi Íslands heldur áfram að heilla ferðamenn, bæði fyrir okkur sem hér búum en ekki síst þá erlendu gesti sem okkur heimsækja. Þetta svæði er krefjandi að því leyti að vegir eru oft illfærir, óbrúaðar ár og veðrátta hálendisins getur verið óblíð á móti töfrum þess á góðu dögunum. Þeir sem koma í fyrsta skiptið eða koma sjaldan eru eðlilega ekki á heimavelli á þessu svæði og geta því lent í vandræðum. Þar kemur Hálendisvaktin sterk inn ásamt fleiri aðilum sem vinna á hálendinu við að fræða, leiðbeina og bregðast við ef illa fer. Þarna ber að nefna Ferðafélag Íslands, Ferðafélag Akureyrar, Ferðafélagið Útivist, Landverði Náttúruverndarstofnunar, Vegagerðina og hinia ýmsu ferðaþjónustuaðila á hálendinu. Þetta eru nokkrir af þeim fjölmörgu sem mynda hina styrku stoð að baki Safetravel. Samstarf margra aðila úr ýmsum áttum sem leiða af sér meira öryggi fyrir ferðafólk.

Eitt af því sem oft hefur valdið vandræðum er stopult og lítið netsamband. Í sumar settum við upp tæknilausn í Þorsteinsskála og Landmannalaugum sem að leysti þetta vandamál og meira til. Með Starlink búnaði og aukabeini var bæði komið á tryggu netsambandi og líka hægt að nýta sér það til að koma á símasambandi.

Líkt og undanfarin sumur fóru björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar af stað í lok júní og stóðu vaktina fram í september.

Megin hlutverk Hálendisvaktarinnar er að halda uppi fræðslu og forvörnum til ferðamanna. En þó svo að við séum alltaf að læra og finna betri leiðir til að koma upplýsingum til skila, þá má aldrei slaka á. Stöðugt koma nýir ferðamenn og vegir og ár breytast. Því er það svo að okkar verkefni eru síbreytileg og við þurfum stöðugt að vera á varðbergi vegna breyttra aðstæðna, hvar og hvernig okkar vakt nýtist sem best.

Aðal vaktstaðirnir hjá okkur þetta sumarið voru við Öskju, Herðubreiðarlindir og í Landmannalaugum. Sumarið 2025 var tekið í notkun smáforrit fyrir síma til að einfalda skráningar á þeim viðfangsefnum sem hálendisvaktin er að leysa. Þegar verkefni er skráð, skráist staðsetning símans sjálfkrafa með. Flestallir hópar tóku þetta í notkun og fengust gagnlegar upplýsingar og miðað við viðbrögð þeirra sem nýttu sér þessa tækni, munum við án efa halda

áfram að nýta okkur hana við skráningu. Helsti kosturinn er að með einföldum hætti er hægt að nýta sér upplýsingar um staðsetningu og fá upp kort sem sýnir hvar verið var að sinna verkefnunum. Það verður því fróðlegt að sjá hvort það verður marktæk breyting á því hvar viðfangsefnin munu raðast inn á komandi árum.

Hálendi Íslands er víðfeðmt og auðvitað ekki hægt að vera með vakt um allt það svæði. Við reynum að vera þar sem þörfin er mest á hverjum tíma. Eitt af því sem við gerum er að keyra um hina ýmsu slóða hálendisins. Ekki bara þegar ferðamenn lenda í vandræðum heldur ekki síður að skoða ástand, meta vöð og skapa reynslu og þekkingu þeirra sem eru að aka tækjum sveitanna. Óhjákvæmilega felur þetta í sér að það rúllast inn margir kílómetrar á hverri vakt þar sem er keyrt um hægfarna vegi og oft langur tími sem fer í hvern ekinn km. Dæmi um svona akstur er rúntur á Mælifellssand frá Landmannalaugum og jafnvel tvær ferðir á einum sólarhring. Sveitirnar á vaktinni hafa skráð þessa kílómetra í gegnum árin, sjá töflu hér að neðan. Þá eru reyndar ekki taldir með kílómetrar þeirra sveita sem koma neðan úr byggð til aðstoðar, eins og oft er raunin við útköll eins og við þær aðstæður sem hafa ríkt á Mælifellssandi nú tvö síðastliðin sumur.

Síðastliðinn vetur var unnið nokkuð í að skoða og meta hvað væri hægt að gera með þær hugmyndir sem komu fram á Formannafundi SL árið 2024. Meðal annars var rætt um hvort við ættum að vera með viðveru í friðlandinu á Hornströndum. Við fórum í skoðun á því og spjölluðum við ferðaþjónustuaðila, landverði og okkar björgunarsveitarfólk fyrir vestan. Þar hékk einnig á spýtunni hvort hægt væri að vera með afleysingar á björgunarskipið sem er staðsett á Ísafirði. Þessari vinnu er ekki lokið. Hornstrandir eru víðfeðmt svæði og ekki neinn einn staður umfram annan sem væri hentugur fyrir fólk á fæti að staðsetja sig. Hugmyndin

fyrir síðasta sumar var sú að skipið gæti farið yfir á Jökulfirði og verið til taks í skamman tíma ef það yrðu líkur á að veður gæti komið ferðafólki í háska og Djúpið verið þungt í sjó á sama tíma eins og raungerðist sumarið 2024.

Sú staða kom ekki upp þetta sumarið og reyndi því ekki á þetta viðbragð. Verkefnið er því áfram í skoðun með þeim hagsmunaaðilum sem vinna á svæðinu, hvað er fýsilegt til að tryggja öryggi þeirra sem heimsækja náttúruperluna Hornstrandir.

Stefna Slysavarnafélagsins Landsbjargar varðandi Hálendisvakt.

Á haustdögum sendum við út tvær kannanir. Annars vegar könnun til þeirra félaga sem sinntu Hálendisvakt og hins vegar til allra félaga SL. Í þeirri fyrri vorum við að skoða aðstöðu, samstarf hóps og ýmsa aðra hluti sem snúa að því hvernig við vinnum og hvað þurfi til þess. Í þeirri seinni var leitast við að kanna viðhorf félagsfólks SL til Hálendisvaktarinnar. Báðar þessar kannanir komu mjög jákvætt út. Þeir sem fóru á Hálendisvakt síðastliðið sumar

voru annað hvort ánægð eða mjög ánægð með sína dvöl og aðkomu að Hálendisvakt. Í hinu

tilvikinu voru félagar almennt á því að Hálendisvakt væri jákvæð fyrir félagið og halda bæri því starfi áfram.

Slysavarnafélagið Landsbjörg mun áfram, ásamt okkar fjölmörgu samstarfsaðilum kappkosta að stuðla að auknu öryggi ferðafólks með fjölbreyttri þjónustu og öflugu viðbragði þegar líf og heilsa er í húfi eða vá steðjar að.

Svæði 7

Unglingadeildin Ernir

Unglingadeildin Hafstjarnan

Unglingadeildin Tindar

Unglingadeildin Sæunn

Unglingadeildin Björg

Svæði 6

Unglingadeildin Vestri

Svæði 5

Unglingadeildin Dreki

Unglingadeildin Heimalingar

Unglingadeildin Óskar

Unglingadeildin Pjakkur

Svæði 4

Unglingadeildin Arnes

Unglingadeildin Litla Brák

Svæði 3

Unglingadeildin Bogga

Unglingadeildin Bruni

Unglingadeildin Greipur

Unglingadeildin Strumpur

Unglingadeildin Ungar

Unglingadeildin Vindur

Svæði 2

Unglingadeildin Hafbjörg

Unglingadeildin Klettur

Unglingadeildin Rán

Unglingadeildin Tígull

Unglingadeildin Von

Svæði 8

Unglingadeildin Sigfús

Svæði 1

Unglingadeildin Árný

Unglingadeildin Björgúlfur

Unglingadeildin Kyndill

Unglingadeildin Stormur

Unglingadeildin Ugla

Svæði 9

Unglingadeildin Skjöldur

Unglingadeildin Blanda

Svæði 18

Unglingadeildin Eyjar

Svæði 10

Unglingadeildin Lambi Akureyri

Unglingadeildin Smástrákar

Unglingadeildin Glaumur

Unglingadeildin Trölli

Svæði 16

Unglingadeildin Hellingur

Unglingadeildin Ýmir

Svæði 11

Unglingadeildin Bangsar

Unglingadeildin Dasar

Unglingadeildin Djarfur

Svæði 12

Unglingadeildin Mývargar

Unglingadeildin Náttfari

Unglingadeildin Núpar

Unglingadeildin Þór

Svæði 15

Unglingadeildin Brandur

Svæði 13

Unglingadeildin Ársól

Unglingadeildin Gerpir

Unglingadeildin Héraðsstubbar

Unglingadeildin Logi

Unglingadeildin Særún

Unglingadeildin Vopni

Unglingadeildir

Unglingastarfið

858 13-18 ára

48

unglingadeildir

205 umsjónarmenn

Unglingastarfið

Unglingastarfið hefur á undanförnum árum sýnt mikla grósku og þróun og árið 2025 var þar engin undantekning. Starfið hefur eflst jafnt og þétt, meðal annars með stofnun nýrra unglingadeilda og aukinni þátttöku ungmenna víðs vegar um landið. Umsjónarmenn gegna lykilhlutverki í þessari uppbyggingu, þar sem þeir móta fjölbreytta og markvissa starfsemi sem sameinar fræðslu, verklega þjálfun og félagslega upplifun.

Á árinu 2025 voru starfandi 48 unglingadeildir með um 858 unglinga á aldrinum 13–18 ára og 205 umsjónarmenn. Þótt starfsemi deildanna sé ólík að umfangi og skipulagi, hvort sem litið er til fundafjölda, tímasetninga eða aldursskiptingar, eiga þær það sameiginlegt að vinna markvisst að því að efla áhuga ungmenna á slysavarna- og björgunarstörfum.

Á sama tíma urðu töluverðar breytingar á unglingastarfinu, bæði hvað varðar starfsmannahald og mótun dagskrár fyrir unglingadeildirnar. Unnið var að endurskipulagningu og uppfærslu starfsins með það að markmiði að styrkja faglegt innihald og auka samræmi milli deilda. Námsefnisgerð er nú í fullum gangi og miðar að því að styðja við umsjónarmenn og tryggja markvissa framvindu í starfi unglingadeilda. Ljóst er að frekari breytingar eru fram undan og að þróun unglingastarfsins heldur áfram af krafti á næstu árum.

Viðburðir og sameiginleg verkefni hafa verið burðarás í unglingastarfinu og stuðlað að samheldni, reynslumiðlun og aukinni þátttöku. Samhliða hefur verið unnið að því að horfa til framtíðar og þróa starfið enn frekar. Í því samhengi hefur verið rætt um aukið alþjóðlegt samstarf og möguleika á að taka upp að nýju þátttöku í USAR-verkefnum, með það að markmiði að hefja slíkt starf á ný á árinu 2026.

Í framhaldinu verður fjallað nánar um helstu viðburði og verkefni sem mótuðu unglingastarf félagsins á árinu 2025, sem og þá þróun og framtíðarsýn sem liggur til grundvallar starfinu.

Landsmót unglingadeilda

Landsmót unglingadeilda Landsbjargar fór fram á Snæfellsnesi í lok júní 2025 og var einn af hápunktum ársins í unglingastarfi félagsins. Mótið var haldið í Ólafsvík og á Hellissandi og sóttu það tæplega 400 ungmenni úr unglingadeildum víðs vegar að af landinu.

Dagskrá mótsins var fjölbreytt og metnaðarfull, þar sem áhersla var lögð á hópefli, samvinnu og verklega þjálfun. Unglingarnir tóku þátt í fjölmörgum hópaverkefnum og póstavinnu, meðal annars í fyrstu hjálp, leitartækni, klifri og sigi, böruburði og öðrum þáttum sem tengjast slysavarna- og björgunarstörfum. Auk þess var haldið landsþing unglinga, sem hefur verið fastur liður í tengslum við landsmótin frá árinu 2005. Þar fengu unglingarnir tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri og taka þátt í umræðu um málefni sem snúa að starfi og framtíð unglinga innan Landsbjargar.

Skipulag mótsins var í höndum Unglingadeildarinnar Dreka í Snæfellsbæ og Unglingadeildarinnar Óskar í Búðardal, með dyggri aðstoð björgunarsveita og slysavarnadeilda á svæðinu. Framlag fjölmargra sjálfboðaliða skipti sköpum fyrir farsæla framkvæmd mótsins og sáu slysavarnadeildir meðal annars til þess að þátttakendur fengju góða og nærandi máltíðir alla helgina.

Veður lék við þátttakendur og ríkti afar góður andi á mótinu. Í lok móts voru veitt verðlaun fyrir ýmis afrek og keppnir sem fóru fram samhliða dagskrá. Í Umsjónarmannaleikum bar Ingólfur Jón Ágúst Óskarsson, umsjónarmaður Unglingadeildarinnar Árnýjar, sigur úr býtum. Í reiptogi sigraði Unglingadeildin Trölli og hlaut farandbikar sem deildin fær að varðveita fram að næsta landsmóti. Þá sigraði grái hópurinn í björgunarleikunum með öruggum hætti og fögnuðu þátttakendur innilega þegar úrslitin lágu fyrir. Sigurvegararnir hlutu að launum leiðsögn um Vatnshelli fyrir framúrskarandi árangur.

Landsmótið á Snæfellsnesi var afar vel heppnað og staðfesti mikilvægi þess sem samveru- og lærdómsvettvangs fyrir unglingastarf Landsbjargar. Að lokum var litið til framtíðar og hlakkað til næsta landsmóts, sem fram fer á Norðurlandi árið 2027.

Landsfundur umsjónarmanna unglingadeilda

Hinn árlegi Umsjónarmannafundur unglingadeilda félagsins fór fram á Akureyri helgina 26.–28. september 2025. Fundinn sóttu 89 umsjónarmenn alls staðar að af landinu, frá 24 unglingadeildum, sem var metþátttaka og undirstrikar aukinn kraft og áhuga innan unglingastarfsins. Til viðbótar voru tveir starfsmenn skrifstofu og fimm nefndarmenn auk formanni félagsins ásamt gestum. Í heildina voru yfir 100 manns á árshátíðinni á laugardagskvöldinu.

Fundurinn var haldinn í Brekkuskóla og var dagskráin bæði fjölbreytt og vönduð, þar sem fræðsla og samvera fóru hönd í hönd. Farið var yfir helstu verkefni liðins sumars, þau verkefni sem fram undan eru í unglingastarfinu, sem og hlutverk, skyldur og ábyrgð umsjónarmanna. Sérstök áhersla var lögð á mikilvægi faglegra vinnubragða og ábyrgðar sem fylgir því að starfa með börnum og unglingum. Nefnd um unglingamál kynnti jafnframt störf sín og áherslur. Björgunarskólinn kynnti jafnframt starfsemi skólans, með sérstakri áherslu á námsefni fyrir unglingastarf og aðgengi umsjónarmanna að því. Arna Björg Arnarsdóttir kom fyrir hönd skólans og fjallaði um hvernig námsefnið er uppbyggt, þátt fagstjóra í því og hvaða möguleikar eru til frekari þróunar. Í erindinu var einnig lögð áhersla á mikilvægi samráðs við umsjónarmenn, og hvatt til þess að þeir kæmu með hugmyndir og ábendingar um námsefni sem nýtist í starfi unglingadeildanna. Umsjónarmenn tóku vel undir það og skiluðu fjölmörgum góðum og gagnlegum hugmyndum, sem munu nýtast í áframhaldandi þróun námsefnis fyrir unglingastarf Landsbjargar.

Gestir fundarins voru tveir að þessu sinni. Annars vegar var Bogi Hallgrímsson frá Kvan, sem hélt líflegan og skemmtilegan fyrirlestur sem vakti mikla athygli og umræðu. Hins vegar var Þorbjörg Sveinsdóttir frá Verndum þau, sem flutti mikilvægt erindi um eðli og birtingarmyndir ofbeldis og vanrækslu gagnvart börnum. Erindið er talið afar mikilvægt fyrir umsjónarmenn unglingastarfs og er stefnt að því að slíkt efni verði fastur liður á umsjónarmannafundi á um það bil þriggja ára fresti, þannig að allir umsjónarmenn sæki slíka fræðslu snemma á ferli sínum.

Fundurinn fór fram á föstudegi og laugardegi og naut góðs af einstaklega góðu veðri á Akureyri. Á laugardagskvöldi var haldin árshátíð umsjónarmanna, þar sem ríkuleg áhersla var lögð á samveru og tengslamyndun. Kvöldið einkenndist af mikilli gleði og góðum anda, með frábærum mat frá Bautanum. Að auki komu gestir frá Þýskalandi til okkar, sérstaklega til þess að kveðja Helenu Dögg, fráfarandi starfsmanns unglingamála hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörg til yfir 20 ára.

Umsjónarmannafundurinn er einn mikilvægasti vettvangur unglingastarfsins fyrir faglega umræðu, reynslumiðlun og tengslamyndun. Fundurinn árið 2025 staðfesti enn frekar mikilvægi hans sem sameiginlegs grundvallar fyrir áframhaldandi þróun og eflingu unglingastarfs félagsins um land allt.

Miðnæturíþróttamót

Árið 2025 var ekkert Miðnæturíþróttamót haldið í Vatnaskógi líkt og árin áður. Var ákvörðunin tekin af nefnd um unglingamál eftir samtal við mótshaldara og umsjónarmenn. Vinna við mótið var ekki hafin þegar málin voru skoðuð í byrjun október og á umsjónarmannafundi, sem og landsmóti unglinga um sumarið, var vilji til þess að breyta framkvæmd mótsins, sem haldið hefur verið af fyrirtækinu Reddum því ehf. í samvinnu við Slysavarnafélagið Landsbjörg.

Umsjónarmenn kölluðu helst eftir því að mótið yrði lengra, m.t.t. þeirra sem koma langt að fyrir stuttan tíma, á nýjum stað þar sem Vatnaskógur bæri ekki fjöldann lengur og að dagskrá

yrði endurnýjuð að hluta. Þó var mikill áhugi fyrir því að halda í hefðir mótsins, hafa íþróttaþema með skemmtilegum og fjölbreyttum greinum í bland við björgunarmiðaðri dagskrárliði.

Mikill vilji var fyrir því hjá nefndarfólki að nýta reynslu og hugmyndaflug Reddum því ehf. til stefnumótunar og verður farið í þá vinnu árið 2026.

Erlent samstarf

Undanfarin ár hefur samstarf við erlend björgunarsamtök verið mjög gott. Félagið hefur verið í góðu samstarfi við þýsku björgunarsamtökin THW og norsku samtökin Norsk Folkehjelp.

Samstarf félagsins við erlend björgunarsamtök geta skipt miklu máli fyrir félaga okkar og ekki síður unglingana. Það eykur þekkingu unglinganna sem og veitir þeim meiri víðsýni og reynslu í reynslubankann sinn.

THW

Unglingadeildin Árný hefur átt í farsælu samstarfi við vinasveit sína, Technisches Hilfswerk (THW) í Bocholt í Þýskalandi, frá árinu 2016. Samstarfið byggist á gagnkvæmum heimsóknum, vinnubúðum og fræðslu þar sem ungmennin kynnast björgunarstörfum, menningu og aðstæðum í báðum löndum. Sumarið 2025 tók Árný á móti 17 manna hópi frá THW í 14 daga heimsókn með það að markmiði að efla faglega þekkingu, styrkja alþjóðlegt samstarf og byggja upp vináttu og sjálfstraust með sameiginlegum verkefnum og upplifunum.

THW eru samtök í Þýskalandi sem sérhæfa sig í hamfarabjörgun og neyðaraðstoð, bæði innanlands og á alþjóðavettvangi. Þema heimsóknarinnar til Íslands var „Eldur og ís“ með áherslu á eldfjallasögu Íslands og hlutverk viðbragðsaðila. Ungmennin fengu innsýn í störf íslenskra neyðar- og björgunaraðila, og er þeim þakkað kærlega fyrir fræðslu og móttökur. Ferð hópsins á Reykjanesskaga var einnig sérstaklega áhrifarík, en þar kynntist hópurinn áhrifum eldgosa á innviði og samfélag. Heimsókn til Þorbjarnar, björgunarsveitarinnar í Grindavík, veitti dýrmæta innsýn í raunverulegar afleiðingar

náttúruhamfara. Á meðan dvölinni stóð voru haldnar fjölbreyttar æfingar á sjó og landi, meðal annars í leit, sjúkraþjálfun, línuvinnu og lausn verkefna án hefðbundins búnaðar.

Hópurinn ferðaðist víða um landið og upplifði íslenska náttúru, meðal annars í Þórsmörk, á Sólheimajökli og í Vestmannaeyjum þar sem saga eldgossins í Heimaey 1973 var skoðuð. Að lokinni ferð voru Bessastaðir heimsóttir, sem þótti sérstaklega viðeigandi í ljósi tengsla forseta Íslands við Landsbjörg.

Samstarfið við THW hefur reynst ungmennum afar lærdómsríkt og styrkjandi. Þau öðlast ekki aðeins faglega þekkingu á björgunarstörfum heldur einnig traust, vináttu og alþjóðlegt tengslanet. Heimsóknin sumarið 2025 var því bæði vel heppnuð og minnisstæð í alla staði.

Að lokum má nefna að á Landsmót unglingadeilda, sumarið 2025, kom hópur umsjónarmanna frá THW, víðsvegar að frá Þýskalandi, til landsins í þeim tilgangi að mynda betri tengsl við fleiri unglindadeildir á landinu og koma upp álíka samstarfi og er á milli unglingadeildarinnar Árnýjar og Bocholt.

Norske folkehjælp

Fundur með Norske Folkehjælp var áætlaður í maí 2025 en frestaðist vegna fyrirhugaðrar heimsóknar þeirra til Íslands sem síðar varð ekki að veruleika. Þrátt fyrir það er mikilvægt að viðhalda og efla samstarfið við Norske Folkehjælp, með það að markmiði að styrkja alþjóðlegt unglingastarf og skapa ungmennum áfram tækifæri til fræðslu, reynsluskipta og sameiginlegra verkefna.

Nefnd um unglingamál

Nefnd um unglingamál er faghópur sem fer með unglingamál félagsins fyrir hönd félagsins

Stjórn felur nefndinni þau verkefni sem hún telur þarfnast umsagnar, framkvæmda eða lokameðferðar. Nefnd um unglingamál er valin / kosin til tveggja ára í senn.

Haldnir voru fjórir fjarfundir á árinu auk óformlegra staðfunda á Landsmóti á Snæfellsnesi og á Umsjónarmannafundinum á Akureyri.

Í nefndinni sitja nú:

Bragi Jónsson frá Unglingadeildinni Bruna, Hveragerði

Elísabet Finnbjörnsdóttir, frá Unglingadeildinni Vindi, Flúðum (kosin inn í september 2025)

Jens Olsen frá Unglingadeildinni Brandi, Höfn í Hornafirði

Jón Sigmar Ævarsson frá Unglingadeildinni Árnýju, Reykjavík og

Karín Óla Eiríksdóttir frá Unglingadeildinni Hafbjörgu, Grindavík

Hera Margrét Guðmundsdóttir frá Unglingadeildinni Dösum, Dalvík

Frá stjórn kemur Halldóra Hjörleifsdóttir og starfsmaður nefndarinnar var hluta árs Helena Dögg Magnúsdóttir og hluta Sandra Ýr Andrésdóttir.

Úr nefndinni fór í september Jón Hjörvar Valgarðsson frá Unglingadeildinni Arnes, Akranesi

Ungmennaráð

Innan unglingadeilda félagsins er starfandi hópur áhugasamra og metnaðarfullra ungmenna sem vilja taka virkan þátt í mótun þess starfs sem þeim stendur til boða. Með starfsemi ungmennaráðs er unglingum tryggður formlegur vettvangur til að koma hugmyndum sínum, sjónarmiðum og tillögum á framfæri við viðeigandi aðila innan félagsins. Jafnframt veitir þátttaka í ungmennaráði fræðslu og reynslu í lýðræðislegum vinnubrögðum, þar sem ungmennin fá tækifæri til að efla hæfni sína í samráði, ábyrgð og þátttöku í skipulögðu félagsstarfi.

Verkefni ungmennaráðsins voru margskonar. Á þessu ári þeim bauðst að taka þátt í ungmennaráðstefnunni Ungt fólk og lýðheilsa sem haldin var á vegum ungmennaráðs UMFÍ dagana 12.-14. september á Reykjum í Hrútafirði. Fimm ungmenni úr ráðinu tóku þátt og voru þau félaginu til sóma. Ungmennaráðið mætti á fulltrúaráðsfundinn sem haldinn var í Reykjavík 232. nóvember og sátu þar sem áheyrnarfulltrúar. Það var mjög lærdómsríkt fyrir unglingana að sjá hvað fer fram á fundum félagsins. Þess má geta að ungmennaráðið steig í pontu undir liðnum önnur mál og minnti á mikilvægi unglingastarfsins og þess að hafa ungmennaráðið með í ráðum þegar málefni unglinga eru rædd innan stjórnar og skrifstofu.

Frábært hjá þeim að minna á mikilvægi sitt.

Í ungmennaráðinu 2025 starfa:

Benedikt Júlíus Duerholt, Unglingadeildin Vindur, Flúðum

Brynja Sif Jónsdóttir, Unglingadeildin Árný, Reykjavík

Emelía Karen Gunnþórsdóttir, Unglingadeildin Vindur, Flúðum

Davíð Þór Friðjónsson, Unglingadeildin Dasar, Dalvík

Lára Sigurðardóttir, Unglingadeildin Trölli, Sauðárkróki

Jensína Rendall, Unglingadeildin Ernir, Bolungarvík

Pálína Ósk Jónsdóttir, Unglingadeildin Hafbjörg, Grindavík

Í lok árs 2025 var farið að huga að skiptingu í ungmennaráðið og fá nýja meðlimi inn í ráðið þar sem mörg eru að fara út úr ráðinu. Val á nýjum meðlimum í ungmennaráð fer fram í janúar 2026.

Ungmennaráðið eru mjög mikilvægur hlekkur í að halda uppi unglingastarfi félagsins þar sem þar verða til framtíðar leiðtogar þessa félags.

Æskulýðsvettvangurinn

Æskulýðsvettvangurinn er samstarfsvettvangur Bandalags íslenskra skáta, KFUM og KFUK á Íslandi, Slysavarnafélagsins Landsbjargar og Ungmennafélags Íslands. Vettvangnum er ætlað að efla samráð og samstarf aðildarfélaganna, meðal annars á sviði leiðtogaþjálfunar, fræðslumála, kynningar- og útbreiðslustarfs, sem og á öðrum sviðum eftir því sem þörf krefur.

Verkefnastjóri unglingamála tekur þátt í störfum vettvangsins og sátu starfsmenn alls tvo fundi á árinu með fulltrúum Æskulýðsvettvangsins auk fundar með verkefnastýru ÆV. Verkefni vinnuhópsins voru fjölbreytt og endurspegluðu þá stöðugu þróun sem á sér stað í fræðslumálum fyrir starfsfólk og sjálfboðaliða í íþrótta- og æskulýðsstarfi, sem starfa með börnum og ungmennum og bera ríka ábyrgð í því hlutverki.

Starfsemi skrifstofu

Skrifstofa Slysavarnafélagsins Landsbjargar vinnur að mörgum verkefnum sem eru þvert á félagið ásamt að sjá um og styðja við þá viðburði sem félagið og einingar standa fyrir. Starfsfólk félagsins styður í starfi sínu við björgunarsveitirnar, slysavarnadeildirnar og unglingadeildir, sér um samskipti við félagsmenn og samstarfsaðila, utanumhald æfinga og landsmóta, ásamt því að sinna daglegum verkefnum sem snúa að fjármálum, mannauðsmálum, markaðsmálum, fjáröflun, ráðstefnuhaldi og skipulagi verkefna. Þá rekur skrifstofan Björgunarskólann sem og Slysavarnaskóla sjómanna.

Starfsfólk skrifstofu 2025

Ari Freyr Steindórsson, sölumaður sjúkravöru

Arna B. Arnarsdóttir, skólastjóri Björgunarskólans

Ásta B. Björnsdóttir, ræstingar

Rún Rúnarsdóttir, verkefnastjóri

Björn J Gunnarsson, verkefnastjóri sjóbjörgunar

Drífa Þorgeirsdóttir, sölumaður sjúkravöru

Einar Daníelsson, verkefnastjóri slysavarna ferðamanna, Safetravel

Guðbrandur Ö. Arnarsson, verkefnastjóri aðgerðamála

Gunnar Stefánsson, skrifstofustjóri

Haraldur Helgi Hólmfríðarson, aðgerðastjórnandi í AST/VST hætti á árinu

Helen Rut ástþórsdóttir, bókari

Helena D. Magnúsdóttir, verkefnastjóri unglingamála hætti á árinu

Sandra Ýr Andrésdóttir, verkefnastjóri unglingamála hóf störf á árinu

Hildur Bjarnadóttir, verkefnastjóri fjáröflunar

Hinrik Wöhler, sérfræðingur í markaðsmálum hóf störf á árinu

Hjalti Haraldsson, kvikmyndagerðarmaður hætti á árinu

Óskar Kristinn Vignisson, kvikmyndagerðarmaður hóf störf á árinu

Ingunn Ósk Árnadóttir, starfsmaður Safetravel í hlutastarfi

Jón Trausti Sæmundsson, verkefnastjóri innkaupa og sölu

Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi

Kristín Jóna Bragadóttir, starfsmaður Safetravel í hlutastarfi

Kristján Þór Harðarson, framkvæmdastjóri

Margrét Gunnarsdóttir, fjármála- og mannauðsstjóri

Oddur E. Kristinsson, verkefnastjóri tölvumála

Ólafur Jón Jónsson, sérfræðingur í aðgerðamálum hóf störf á árinu

Sigurbjörg Metta Sigurjónsdóttir, sérfræðingur í innri markaðsmálum

Svanfríður Anna Lárusdóttir, verkefnastjóri slysavarna

Unnur K Valdimarsdóttir, starfsmaður Safetravel í hlutastarfi

Viktor Örn Guðlaugsson, sérfræðingur í Björgunarskólanum

Þorbjörg Petrea Pálsdóttir, var fastráðin í aðgerðamál á árinu

Slysavarnaskóli sjómanna

Bogi Þorsteinsson, skólastjóri

Ingimundur Valgeirsson, verkefnisstjóri

Sigríður Tómasdóttir, skrifstofumaður

Bjarni Þorbergsson, kennari

Fróði Jónsson, kennari

Stefán Smári Skúlason, kennari

Kjartan Thor Pálsson, kennari

Pétur Ingjaldsson, vélstjóri

Vidas Kenzgaila, ræstingar

Skólanefnd Slysavarnaskóla sjómanna

Gunnar Tómasson, SL

Hilmar Snorrason, SL

Margrét Gunnarsdóttir, SL

Valmundur Valmundsson, SSÍ

Árni Sverrisson, FS

Bjarni Þorbergsson, kennari, háseti

Bogi Þorsteinsson, kennari, skólastjóri

Fróði Jónsson, kennari

Nefndir og ráð

Nefndir og ráð 2025-2027

Milliþinganefndir eftir Landsþing 2025

Félagslegir skoðunarmenn reikninga

Caroline Lefort

Leonard Birgisson

Ásgerður Halldórsdóttir - til vara

Fjárveitinganefnd

Kristinn Bjarnason - Formaður

Hildur Sigfúsdóttir

Sunna Axelsdóttir

Vilhjálmur Halldórsson

Þórir Guðmundsson

Ólafur Jón Jónsson - Starfsmaður

Laganefnd

Arna Björk Gunnarsdóttir - Formaður

Íris Lind Sæmundsdóttir

Reimar Viðarsson

Helen Rut Ástþórsdóttir - Starfsmaður

Uppstillingarnefnd

Adolf Þórsson - Formaður

Björk Guðnadóttir

Margrét L. Laxdal

Svanfríður Anna Lárusdóttir - Starfsmaður

Almannavarna- og öryggisráð

Smári Sigurðsson

Þjóðaröryggisráð

Smári Sigurðsson

Fulltrúar í Fjarskiptaráði

Borghildur Fjóla Kristjánsdóttir

Gunnar Stefánsson

Flugeldanefnd

Gísli S. Þráinsson - Formaður

Baldur Árnason

Birgir Ómarsson

Jón Ingi Sigvaldason

Jón Trausti Sæmundsson – Starfsmaður

Fulltrúar SL í SST

Gunnar Stefánsson

Guðbrandur Örn Arnarson, varamaður

Landsstjórn björgunarsveita

Bjarni K Kristjánsson - Formaður

Arnar Steinn Elísson

Dagbjartur Kr. Brynjarsson

Elva Tryggvadóttir

Friðfinnur Freyr Guðmundsson

Friðrik Jónas Friðriksson

Hafdís Einarsdóttir

Magnús Viðar Sigurðsson - Stjórn

Smári Sigurðsson

Steingrímur Jónsson

Guðbrandur Örn Arnarson- Starfsmaður

Nefnd um fjarskipti

Lárus Steindór Björnsson - Formaður

Daníel Eyþór Gunnlaugsson

Helgi Haraldsson

Jóhann Jóhannsson

Rebekka Sif Gunnþórsdóttir

Guðjón Guðmundsson - Stjórn

Guðbrandur Örn Arnarson - Starfsmaður

Nefnd um slysavarnir

Gísli Vigfús Sigurðsson - Formaður

Hrefna Ingólfsdóttir Melsteð

Kristrún Ósk Pálsdóttir

Linda Rós Björgvinsdóttir

Magnús Einar Magnússon - Stjórn

Svanfríður Anna Lárusdóttir - Starfsmaður

Einar Daníelsson - Starfsmaður

Nefnd um sjóbjörgun

Björn Bjarnarson - Formaður

Ómar Örn Sigmundsson

Einar Örn Jónsson

Guðjón Örn Sigtryggsson

Stefán Jón Pétursson

Magnús Einar Magnússon - Stjórn

Björn J Gunnarsson - Starfsmaður

Nefnd um unglingamál

Jón Sigmar Jóhönnu Ævarsson - Formaður

Bragi Jónsson

Hera Margrét Guðmundsdóttir

Jens Olsen

Jón Hjörvar Valgarðsson

Karín Óla Eiríksdóttir

Halldóra Hjörleifsdóttir - Stjórn

Ingibjörg Lára F Óskarsdóttir – Starfsmaður

Siðanefnd

Bjarni Karlsson - Formaður

Hildur Ýr Viðarsdóttir – Formaður

Auður Yngvadóttir

Hannes Frímann Sigurðsson

Margrét Laxdal

Margrét Gunnarsdóttir – Starfsmaður

Skólanefnd Björgunarskólans

Hallgrímur Óli Guðmundsson - Formaður

Ásgeir Örn Kristinsson

Einar Örn Jónsson

Elva Dögg Pálsdóttir

Guðný Jóna Guðmarsdóttir

Hrafnhildur Ævarsdóttir - Stjórn

Arna Björg Arnarsdóttir – Starfsmaður

Skólanefnd Slysvarnaskóla sjómanna

Gunnar Tómasson

Hilmar Snorrason

Margrét Gunnarsdóttir

Fulltrúar SL í stjórn Íslandsspila

Þorsteinn Þorkelsson

Kristján Þór Harðarson

Margrét Gunnarsdóttir, varamaður

Guðjón Guðmundsson, varamaður

Stjórn Æskulýðsvettvangsins

Gunnar Stefánsson

Nefnd um öryggi félagsfólks

Pálmi Aðalbjörn Hreinsson - Formaður

Barbara Olga Hild

Bogi Þorsteinsson

Halldóra Hjörleifsdóttir - Stjórn

Viktor Örn Guðlaugsson - Starfsmaður

Framkvæmdastjórn Björgunarbátasjóða

Hafliði Hinriksson - Formaður

Heiðar Hrafn Eiríksson

Örn Smárason

Kolbeinn Óttarsson Proppé - Stjórn

Björn Jóhann Gunnarsson - Starfsmaður

Áttavitinn og viðurkenningar

Áttavitinn.

Félagsfólki í Slysavarnafélaginu Landsbjörg er það ljóst að án öflugs stuðnings, mætti starf sjálfboðaliða félagsins sín lítils. Hugsjón sjálfboðaliðans nærist þannig með stuðningi og aðkomu margra ólíkra aðila samfélagsins, enda er félagið þjóðareign og sennileg ein sú mikilvægasta. Á landsþingum sínum hefur félagið notað tækifærið og þakkað fyrir stuðning og samstarf. Viðurkenning félagsins heitir „Áttavitinn“ og er afhentur einstaklingum, fyrirtækjum og stofnunum sem átt hafa með félaginu náið samstarf og sýnt því mikilvægan stuðning og var fyrst veittur árið 2011.

2011 Sjóvá

2011 Neyðarlínan

2013 Íslandsbanki

2013 ISAVIA

2015 Olís

2017 Icelandair Group

2017 Ölgerðin

2019 Vodafone

2019 Landsbankinn

2019 Landhelgisgæslan

2019 Óttar Sveinsson

2019 Steinar J. Lúðvíksson

2021 Samgöngustofa

2023 Sjóvá

2025 Eimskip

Hilmar Snorrason kvaddur.

Á Landsþingi 2025 kvöddum við formlega Hilmar Snorrason skólastjóra Slysavarnaskóla

sjómanna frá stofnun hans, með virktum. Hilmar fékk að starfslokum hluta af stýri Sæbjargarinnar. Á stýrið hefur verið letrað: „Traustum höndum hefur þú haldið um stjórnvölinn á Slysavörnum sjófarenda í rúma þrjá áratugi og í þannig stýrt þúsundum sjófarenda heilum í höfn. Hafðu heila þökk fyrir“.

Það var formaður félagsins, Borghildur Fjóla Kristjánsdóttir sem afhenti viðurkenninguna.

Skjöldurinn

Skjöldurinn er viðurkenning félagsins til félaga sem hafa lagt hjarta sitt og sál í starfið í lengri tíma. Skjöldurinn var fyrst veittur árið 2009.

2009 Ólafur Proppé

2009 Gunnar Tómasson

2011 Kristbjörn Óli Guðmundsson

2011 Jón Gunnarsson

2011 Jón Hermannsson

2011 Sigurður Harðarson

2011 Valur Haraldsson

2011 Snorri Magnússon

2013 Þorsteinn Þorkelsson

2013 Gunnar Þorgeirsson

2013 Sigurgeir Guðmundsson

2015 Bryndís Harðardóttir

2017 Hörður Már Harðarsson

2017 Hannes Frímann Sigurðsson

2017 Þórhallur Ólafsson

2023 Petrea Ingibjörg Jónsdóttir

2023 Anna Lyck Filbert

2025 Friðfinnur Freyr Guðmundsson

Lög félagsins

Lög Slysavarnafélagsins Landsbjargar

1. gr. Heiti félagsins

Félagið heitir Slysavarnafélagið Landsbjörg. Lögheimili og varnarþing þess er í Reykjavík.

2. gr. Hlutverk

Hlutverk félagsins er að reka öflugt björgunar- og slysavarnastarf.

3. gr. Einkenni

Merki félagsins er gulur kross og björgunarhringur umhverfis hann. Undir tákninu er nafn félagsins ritað. Stjórn setur reglugerð um nánari útfærslur og notkun á merki félagsins.

4. gr. Orðskýringar

4.1 Félagið: Slysavarnarfélagið Landsbjörg.

4.2 Félagseining: Björgunarsveit eða slysavarnadeild sem þegar hefur hlotið aðild að félaginu og hefur eigin kennitölu.

4.3 Fullgildur félagi: er sá sem er skráður í félagatal félagseiningar í gagnagrunni félagsins.

4.4 Fulltrúaráðsfundur: Æðsta ákvörðunarvald félagsins á milli landsþinga og er haldinn í nóvember ár hvert.

4.5 Landsstjórn: er samræmd stjórn björgunarsveita á landsvísu sem fer með tæknilega stjórn björgunarsveita við aðgerðir.

4.6 Landsþing: Æðsta ákvörðunarvald félagsins og kemur það saman í maí annað hvert ár.

4.7 Sakamál: mál sem eru til meðferðar hjá lögreglu og ákæruvaldi og, eftir atvikum, fyrir dómi vegna ætlaðrar refsiverðrar háttsemi.

4.8 Svæðisstjórn: fer með tæknilega stjórn björgunarsveita í aðgerðum á tilteknu svæði.

5. gr. Skipulag

5.1 Samstarf.

Félagið starfar í tengslum við önnur félagasamtök og stofnanir sem starfa að björgunarog slysavarnamálum.

5.2 Stjórnun félagsins.

Ákvörðunar- og framkvæmdavald félagsins er í höndum landsþings, fulltrúaráðsfundar og stjórnar, samkvæmt því sem nánar segir í lögum og reglugerðum félagsins.

6. gr. Aðild

6.1 Réttur til aðildar.

Allar einingar sem hafa björgunar og/eða slysavarnarmál á stefnuskrá sinni geta sótt um aðild að félaginu.

6.2 Umsókn um aðild.

Eining sendir inn umsókn til stjórnar félagsins ásamt lögum hinnar nýju einingar, félagatali, kennitölu og rökstuðning fyrir aðild. Lög einingarinnar þurfa að vera í samræmi við lög og reglugerðir félagsins. Ef eining uppfyllir þessar kröfur vísar stjórn umsókn um inngöngu til landþings.1

6.3 Brottvikning.

Gerist félagseining eða stjórn hennar sek um brot á lögum þessum er landsþingi félagins heimilt að víkja henni úr félaginu, að því tilskildu að 2/3 hlutar þingfulltrúa greiði því atkvæði.

6.4 Úrsögn.

Úrsögn félagseiningar úr félaginu er því aðeins gild að hún hafi verið samþykkt á lögmætum aðalfundi hennar og að stjórn félagsins hafi verið tilkynnt með 2ja mánaða fyrirvara að tillaga um úrsögn komi til afgreiðslu á fundinum. Úrsögn tekur gildi frá lokum þess reikningsárs félagsins er hún hlýtur samþykki. Félagseining, sem vikið hefur verið úr félaginu eða hefur sagt sig úr því, á ekki tilkall til sjóða þess eða annarra eigna, en veita má henni aðild að nýju.

1. Reglugerð nr. 1/ 2017.

7. gr. Réttindi og skyldur félagseininga

7.1 Sjálfstæði.

Hver félagseining félagsins er sjálfstæð gagnvart félaginu, bæði hvað varðar störf sín og fjármál. Í aðgerðum lúta félagseiningar tæknilegri stjórn Landsstjórnar og svæðisstjórna eins og íslensk lög og reglugerðir kveða á um hverju sinni.1

7.2 Réttindi.

Allar félagseiningar eiga jafnan rétt á þeirri þjónustu sem félagið getur látið í té.

7.3 Skyldur.

Félagseiningar skulu árlega senda starfsskýrslu, áritaða ársreikninga og staðfesta fundargerð aðalfundar félagseiningarinnar til skrifstofu félagsins.

Félagseining skal taka afstöðu siðanefndar, er varðar félaga þeirra, til umræðu á stjórnarfundi og  ákveða viðbrögð við henni innan þriggja mánaða frá því hún liggur fyrir.

Siðanefnd skal jafnframt upplýst um niðurstöður og viðbrögð.

Að uppfylltum þessum skilyrðum öðlast félagseining rétt til úthlutunar úr sameiginlegum sjóðum félagsins og atkvæðisrétt á fulltrúaráðsfundi og landsþingi, ella teljast félagseiningar óvirkar.2

7.4 Virkni.

Verði félagseining óvirk um lengri eða skemmri tíma skal stjórn félagsins ráðstafa eigum hennar samkvæmt lögum félagseiningarinnar og í samráði við heimamenn.

7.5 Unglingastarf.

Velji félagseining að starfrækja unglingadeild eða hefur félagsfólk yngra en 18 ára innan sinna vébanda, verður hún að tryggja börnum sem taka þátt í starfinu þá vernd sem velferð þeirra krefst.

1. Lög um almannavarnir 82/2008 og reglugerð 71/2011, lög um björgunarsveitir 43/2003, reglugerð um leit og björgun á landi og samstarf lögreglu og björgunarsveita 289/2003 og reglur félagsins um aðgerðastjórnir, 2. Rgl nr. 1/ 2019, 3. Rgl nr. 1/ 2020

8. gr. Fjármál

8.1 Fjáröflun.

Félagið aflar fjár á þann hátt sem fulltrúaráðsfundur í nóvember ákveður. Breytingar sem samþykktar eru á fundinum taka gildi um næstu áramót.

8.2 Ársreikningur.

Ársreikningur félagsins skal afgreiddur á fulltrúaráðsfundinum.

8.3 Fjárhagsáætlun.

Fjárhagsáætlun félagsins fyrir næsta ár skal lögð fyrir fulltrúaráðsfund til afgreiðslu.

8.4 Reikningsár.

Reikningsár félagsins er almanaksárið. Fyrir lok apríl ár hvert sendir stjórnin félagseiningunum endurskoðaða reikninga félagsins með rafrænum hætti.

8.5 Sameining félagseininga.

Sameinist félagseiningar, tvær eða fleiri, halda þær óbreyttri fjárúthlutun úr sameiginlegum fjáröflunum í tvö almanaksár frá sameiningu.

9. gr. Landsþing

9.1 Valdheimildir.

Landsþing félagsins fer með æðsta vald í málefnum félagsins og skal það haldið í maí mánuði, annað hvert ár.

9.2 Boðun.

Til landsþings skal boða skriflega með rafrænum hætti, með fimm vikna fyrirvara. Þremur vikum fyrir landsþing skal stjórnin senda félagseiningunum dagskrá þingsins, tillögur um lagabreytingar, niðurstöður fjárveitinganefndar, tillögur uppstillingarnefndar og innsendar tillögur félagseininga og félagsfólks.1

9.3 Skráning.

Félagseiningar skulu skrá þingfulltrúa eigi síðar en fimm virkum dögum fyrir landsþing.

9.4 Aukalandsþing.

Stjórn félagsins getur boðað til aukalandsþings með sama hætti og boðað er til landsþings. Einnig skal boða til aukalandsþings ef ¾ virkra félagseininga óska þess og skal stjórn félagsins boða til aukalandsþings eigi síðar en tveimur vikum frá því beiðnin kom fram. Skal aukalandsþing haldið innan tveggja vikna frá boðun.2 Á aukalandsþingi skal einungis taka fyrir mál samkvæmt útsendri dagskrá en að öðru leyti gilda almenn þingsköp.3

9.5 Dagskrá.

Eftirfarandi mál skulu tekin fyrir á landsþingi:

9.5.1 Formaður setur þingið og stýrir kjöri þingforseta, varaþingforseta og regluvarðar.

9.5.2 Þingforseti skipar tvo fundarritara og stýrir kjöri kjörnefndar, sem skal skipuð þremur þingfulltrúum, og allsherjarnefndar, sem skal skipuð fimm þingfulltrúum.

9.5.3 Starfsskýrsla stjórnar og fjármál

9.5.4 Inntaka nýrra félagseininga

9.5.5 Niðurstöður milliþinganefnda

9.5.6 Ýmis þingmál

9.5.7 Lagabreytingar

9.5.8 Kosning:

9.5.8.1. formanns félagsins, varaformanns, gjaldkera og formanna milliþinganefnda

9.5.8.2. sex meðstjórnenda til stjórnar

9.5.8.3. tveggja skoðunarmanna reikninga og eins til vara

9.5.8.4. nefndarmanna fjárveitinganefndar, laganefndar og uppstillingarnefndar

9.5.8.5. annarra nefnda

9.5.9 Önnur mál

9.6 Kjörnefnd.

Kjörnefnd skal hafa eftirlit með undirbúningi og framkvæmd kosninga, skera úr um kjörgengi og kosningarétt, hafa yfirumsjón með talningu atkvæða og skera úr um gildi vafaatkvæða. Ef ágreiningur er innan þingnefndar við ákvarðanatöku ræður meirihluti nefndarmanna og er ákvörðun þingnefndar endanleg.

9.7 Allsherjarnefnd.

Allsherjarnefnd skal vinna úr og samræma álitamál sem upp kunna að koma á þinginu og fundarstjóri vísar málum til. Ef ágreiningur er innan þingnefndar við ákvarðanatöku ræður meirihluti nefndarmanna og er ákvörðun þingnefndar endanleg. Kosið er skv. gr. 9.5.8. í þeirri röð sem þar er ákveðin.

9.8 Kosningar.

Kosning skal ávallt vera rafræn. Kjörseðill er því aðeins gildur að kosnir séu jafnmargir og kjósa skal hverju sinni. Falli atkvæði jafnt skal varpa hlutkesti til að skera úr um hver frambjóðenda hefur náð kjöri. Séu framboð jafnmörg og fjöldi þeirra sem kjósa skal teljast sjálfkjörið og kosning fer ekki fram. Þeir sem ekki ná kjöri samkvæmt gr. 9.5.8.1. verða sjálfkrafa í kjöri samkvæmt gr. 9.5.8.2. og 9.5.8.4. eftir því sem við á, nema frambjóðandi óski annars.

9.9 Kjörgengi.

Kjörnir fulltrúar skulu vera lögráða einstaklingar sem eru fullgildir félagar og sem uppfylla skilyrði 1. mgr. 4. gr. laga nr. 24/2000 um kosningar til Alþingis.

Gjaldkeri félagsins skal hafa reynslu og þekkingu af fjármálum.

10. gr. Réttindi á landsþingi

10.1 Þingfulltrúi.

Rétt til setu á landsþingi félagsins eiga allir fullgildir félagar félagseininga.

10.2 Atkvæðisréttur.

Hver félagseining fer með tvö atkvæði á þingi að uppfylltum skilyrðum ákvæðis 10.3. Enginn þingfulltrúa fer nema með eitt atkvæði. Þingfulltrúi skal vera lögráða.

10.3 Kjörbréf.

Kjörbréf, undirritað af formanni eða stjórnarmanni hverrar félagseiningar, skal hafa borist skrifstofu félagins eigi síðar en fimm virkum dögum fyrir landsþing. Kjörnefnd tekur afstöðu til breytinga á framkomnum kjörbréfum og úrskurðar um gildi þeirra. Allir fullgildir félagar félagseininga á landsþingi hafa kosningarétt samkvæmt gr. 9.5.1 og gr. 9.5.2.

11. gr. Stjórn

11.1 Kjörtímabil.

Landsþing kýs félaginu stjórn til tveggja ára í senn.

11.2 Starfsemi stjórnar.

Í stjórn félagsins sitja formaður, varaformaður, gjaldkeri, ritari og fimm meðstjórnendur. Stjórn félagsins fylgir eftir samþykktum landsþings og fulltrúaráðs. Stjórnin er í fyrirsvari fyrir félagið og ber ábyrgð á fjárreiðum þess. Afl atkvæða ræður úrslitum á stjórnarfundum. Séu atkvæði jöfn ræður atkvæði formanns.

11.3 Vinnulag.

Formaður boðar stjórn til fundar. Stjórnarfundur er löglegur ef meirihluti stjórnarmanna sækir fund. Stjórn kemur að jafnaði saman mánaðarlega. Varaformaður gegnir skyldum formanns í forföllum hans. Fundargerðir skulu ritaðar. Stjórn boðar til landsþings og annarra funda, þar á meðal funda fulltrúaráðs og formanna. Hún undirbýr fundarmálefni, framfylgir fundaráætlunum og annast störf milli funda.

11.4 Skyldur stjórnar.

Á fyrsta fundi stjórnar skiptir stjórn með sér verkum og skal gera verklagsreglur, fyrir lok þess árs sem hún er kosin, sem vera skulu félagsfólki aðgengilegar. Stjórn félagsins er í fyrirsvari fyrir félagið gagnvart einstaklingum, lögaðilum eða ríkisvaldi í sameiginlegum málefnum félagsins. Stjórnin ræður framkvæmdastjóra félagsins.

11.5 Stjórnskipaðar nefndir.

Stjórn er heimilt að skipa nefndir sér til aðstoðar og ákveður verksvið þeirra. Í upphafi starfstímabils stjórnar skal skipa ráðgjafanefnd vegna undirbúnings fyrir landsþing. Í ráðgjafanefndinni sitji formenn milliþinganefnda ásamt framkvæmdastjóra. Nefndarfólk skal uppfylla skilyrði gr. 11.7. þessara laga.

11.6 Fjármál.

Stjórnin ber ábyrgð á að starfsemi félagsins sé innan ramma fjárhagsáætlunar, samþykkta landsþings og fulltrúaráðsfunda.

11.7 Hæfi.

Stjórnarmaður skal uppfylla skilyrði gr. 9.9. þessara laga á meðan kjörtímabili hans stendur. Nú sætir stjórnarmaður rannsóknar vegna sakamáls og ber honum þá að víkja sæti á meðan rannsókn stendur eða ef ákæra hefur verið gefin út á hendur honum.

12. gr. Skýrsla stjórnar

12.1. Stjórn félagsins skal á hverju ári fyrir lok maí gefa út ársskýrslu um starfsemi félagsins.

13. gr. Milliþinganefndir

13.1 Kosning.

Í fjárveitinganefnd skal kjósa formann, auk fjögurra fulltrúa.

Í laganefnd skal kjósa formann, auk tveggja fulltrúa og eins varafulltrúa. Í uppstillingarnefnd skal kjósa formann, auk tveggja fulltrúa og eins varafulltrúa.

13.2 Hlutverk og skyldur.

Milliþinganefndir skulu gera verklagsreglur, fyrir lok þess árs sem hún er kosin, sem vera skulu félagsmönnum aðgengilegar.

13.2.1 Fjárveitinganefnd skal sjá um endurskoðun á úthlutunarkerfi félagsins og leggja fram tillögu til fulltrúaráðsfundar til samþykktar haustið fyrir landsþing. Tillögur skal senda með fundarboði fyrir fulltrúaráðsfundinn. Nefndin skilar niðurstöðu um skiptingu fjármagns til félagseininga á landsþingi.

13.2.2 Laganefnd skal annast endurskoðun á lögum félagsins, hafa eftirlit með því að þau standist rétt íslenskt málfar, brjóti ekki í bága við íslensk lög og vera öðrum nefndum og stjórn til ráðgjafar um lög og reglugerðir félagsins. Laganefnd tekur afstöðu til breytinga á framkomnum kjörbréfum á fulltrúaráðsfundi og úrskurðar um gildi þeirra.

13.2.3 Uppstillingarnefnd skal tryggja að fram komi að minnsta kosti eitt framboð til hvers embættis innan stjórnar og þeirra nefnda sem getið er í gr. 9.5.8. Komi fram tvö eða fleiri framboð til embættis skal uppstillingarnefnd raða frambjóðendum eftir stafrófsröð. Uppstillingarnefnd skal leitast við að stjórn endurspegli breidd félagsins og skal jafnræðis gætt við kynningu á frambjóðendum.

13.3 Aðrar nefndir.

Ef landsþing skipar aðrar milliþinganefndir en að framan greinir skal það vera ákvörðun landsþings hver fjöldi og hvernig uppbygging nefndarinnar skuli vera hverju sinni. Nefndirnar skulu skila tillögum sínum til stjórnar eigi síðar en fjórum vikum fyrir landsþing.

13.4 Starfstími.

Milliþinganefndir skulu taka til starfa að þingi loknu og starfa fram til loka þess næsta.

13.5 Hæfi.

Nefndarfólk skal uppfylla skilyrði gr. 11.7. þessara laga.

14. gr. Siðanefnd

14.1 Hlutverk.

Hlutverk siðanefndar er að taka til skoðunar ábendingar um brot á siðareglum félagsins, að taka afstöðu til þess hvort um brot á siðareglum er að ræða og hver grófleiki brotsins er.

14.2 Skipan.

Stjórn skipar fimm aðila í nefndina, þrjá lögráða fullgilda félaga ásamt tveimur sérfræðingum sem standa utan félagsins og veita nefndinni formennsku. Nefndin er skipuð til 2ja ára í senn.

14.3 Hæfi.

Félagi skal uppfylla skilyrði gr. 11.7. þessara laga. Sérfræðingarnir skulu hafa menntun og reynslu sem nýtist við úrlausn mála sem nefndin tekur fyrir.

14.4 Starfsemi.

Nefndin skal gera verklagsreglur, fyrir lok þess árs sem hún er kosin, sem vera skulu félagsfólki aðgengilegar.1

1. Vinnureglur Siðanefndar félagsins

15. gr. Landsstjórn

15.1. Hlutverk.

Hlutverk Landstjórnar er að fara með tæknilega stjórn liðsafla félagsins í aðgerðum eða aðgerðatengdum verkefnum. Landsstjórn fjallar um erindi og ágreiningsmál er varða aðgerðamál og er tengiliður félagsins við Ríkislögreglustjóra varðandi aðgerðir á landsvísu, ásamt því að vera tengiliður við Landhelgisgæsluna.1 Í aðgerðum fer Landsstjórn einnig með samhæfingu milli svæðisstjórna þegar aðgerðir ná yfir fleiri en eitt lögregluumdæmi.

15.2. Skipan.

Stjórn félagsins skipar formann Landsstjórnar og nefndarfólk í Landsstjórn fyrir 1. september það ár sem Landsþing er haldið. Nefndin er skipuð til 2ja ára í senn.2

15.3. Hæfi.

Félagi skal uppfylla skilyrði gr. 11.7. þessara laga ásamt því að hafa menntun og reynslu í aðgerðarmálum. 2

15.4 Starfsemi.

Landstjórn ber faglega ábyrgð á öllum aðgerðum félagsins. Landsstjórn fjallar um aðgerðamál og kemur með tillögur til stjórnar um skipan aðgerðamála. Landsstjórn hefur eftirlit með því að svæðisstjórnir starfi faglega og eftir reglum félagsins. Landsstjórn er svæðisstjórnum til aðstoðar í aðgerðum og tryggir hratt og öruggt viðbragð og tæknilega stjórnun aðgerða. Landsstjórn skal setja sér verklagsreglur, fyrir lok þess árs sem hún er skipuð, sem vera skulu félagsfólki aðgengilegar.

1. reglugerð nr. 289/2003 um leit og björgun á landi og samstarf lögreglu og björgunarsveita og samanber reglugerð um stjórnun leitar- og björgunaraðgerða á leitar- og björgunarsvæði Íslands vegna sjófarenda og loftfara nr. 71/2011. 2. Reglur um aðgerðastjórnendur og stjórnun aðgerða hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörg, gr. 3.1.

16. gr. Varasjóður

16.1 Tilgangur.

Félagið skal eiga varasjóð. Varasjóði félagsins er ætlað:

a) að vera tryggingarsjóður vegna áfalla sem félagið kann að verða fyrir.

b) að fjármagna önnur verkefni sem fulltrúaráðsfundir eða landsþing ákveða.

16.2 Fjármögnun.

Stjórn félagins skal árlega leggja fyrir fulltrúaráðsfund tillögu að upphæð varasjóðs.

16.3 Ráðstöfun.

Ráðstöfun fjár úr varasjóði er aðeins heimil með samþykki fulltrúaráðsfunda eða landsþinga. Veðsetning varasjóðs, eða lántaka úr honum til skemmri eða lengri tíma, er óheimil nema með samþykki fulltrúaráðsfundar eða landsþings. Allt að 50% varasjóðs má að tryggja með veðböndum í fasteign en ekki minna en 50% skal varðveita í banka eða hjá löggiltu verðbréfafyrirtæki. Meginstefna við vörslu skal vera öryggi frekar en há ávöxtun.

17. gr. Fulltrúaráð

17.1 Fundir.

Fulltrúaráðsfundir fara með æðsta vald félagsins milli landsþinga og þar sitja fulltrúar hverrar félagseiningar, ásamt stjórn félagsins.

Fulltrúaráð kemur saman til fundar í nóvember ár hvert, svo og þegar tíu félagseiningar óska þess eða stjórn félagsins ákveður. Ársreikningur félagsins skal tekinn til afgreiðslu á fundinum ásamt fjárhagsáætlun félagsins.

17.2 Boðun.

Stjórn félagsins boðar fundi rafrænt og skal það gert með minnst tíu daga fyrirvara. Með fundarboðum skal fylgja dagskrá fundarins, ásamt ársreikningi félagsins, fjárhagsáætlun félagsins og öllum öðrum tillögum sem leggja á fyrir fundinn.

Ef tíu félagseiningar hafa óskað eftir fulltrúaráðsfundi skal stjórn félagsins boða til fundarins eigi síðar en fjórum vikum frá því fundarbeiðnin kom fram.

17.3 Skráning.

Félagseiningar skulu skrá þátttöku eigi síðar en einum virkum degi fyrir fund.

17.4 Atkvæði.

Hver félagseining fer með eitt atkvæði á fulltrúaráðsfundi að uppfylltum skilyrðum ákvæðis.

17.5. Fulltrúi skal vera lögráða.

17.5 Kjörbréf.

Kjörbréf, undirritað af formanni eða stjórnarmanni hverrar félagseiningar, skal hafa borist skrifstofu félagsins eigi síðar en þrem virkum dögum fyrir fulltrúaráðsfund.

Laganefnd tekur afstöðu til breytinga á framkomnum kjörbréfum og úrskurðar um gildi þeirra.

17.6 Fundarsköp.

Formaður félagsins setur fundi fulltrúaráðs og stýrir kjöri fundarstjóra. Meirihluti atkvæða ræður úrslitum mála, nema annars sé getið í lögum félagsins.

17.7 Endurskoðun úthlutunarkerfis.

Fjárveitinganefnd leggur fram tillögu af endurskoðun á úthlutunarkerfi á fundinum.

Sé breytingatillögu hafnað þá haldast fyrri úthlutunarreglur óbreyttar.

18. gr. Formannafundir

18.1 Boðun.

Stjórn félagsins skal boða til fundar með formönnum félagseininga það ár sem landsþing er ekki haldið.

Stjórn félagsins boðar fundi rafrænt og skal það gert með minnst tíu daga fyrirvara.

Með fundarboðun skal fylgja dagskrá fundarins, ásamt öllum gögnum.

18.2 Skráning.

Félagseiningar skulu skrá þátttöku eigi síðar en einum virkum degi fyrir fund.

18.3 Efni fundarins.

Formannafundur er vettvangur umræðna um þau mál sem snerta starf félagseininga. Í stað eins sameiginlegs formannafundar allra félagseininga má boða til funda eftir starfsvettvangi þeirra.

Ætli fjárveitinganefnd að leggja til breytingar á úthlutunarkerfi félagsins þá skal hún kynna þær á formannafundi til umræðu.

Formannafundir hafa ekki ákvörðunarvald í málefnum félagsins.

19. gr. Endurskoðun

19.1 Skoðun reikninga.

Reikningar félagsins skulu skoðaðir ár hvert af löggiltum endurskoðanda.

19.2 Félagslegir skoðunarmenn.

Félagsleg endurskoðun reikninga er í höndum tveggja manna sem landsþing félagsins kýs til tveggja ára í senn. Skoðunarmenn reikninga mega ekki sinna öðrum störfum fyrir félagið sem snerta fjármál. Þeir bera ábyrgð fyrir fulltrúaráðsfund, þeir skulu eiga greiðan aðgang að öllu bókhaldi félagsins og er stjórninni skylt að veita þeim allar nauðsynlegar upplýsingar um fjármál og reikningshald þess.

19.3 Yfirskoðun.

Felli fulltrúaráðsfundir reikninga félagsins fer fram yfirskoðun óháðs aðila sem er löggiltur endurskoðandi. Að þeirri yfirskoðun lokinni skal boðað til framhalds fulltrúaráðsfundar sem tekur nánari ákvörðun um reikninga.

20. gr. Reglur – reglugerðir

20.1 Setning.

Stjórn setur reglur og reglugerðir er varða starfsemi félagsins, að undangenginni umsögn laganefndar og endurskoðar þær eftir því sem þurfa þykir.

20.2 Hlutverk.

Hlutverk reglna og reglugerða er að kveða nánar á um skipulag einstakra þátta í starfsemi félagsins og þær verða ávallt að eiga sér stoð í lögum félagsins.

21. gr. Lagabreytingar og framboðsfrestur

21.1 Lagabreytingar.

Lögum þessum verður ekki breytt nema á landsþingi og þarf 2/3 hluta greiddra atkvæða til að breyting nái fram að ganga.

21.2 Framboðsfrestur.

Tillögum til lagabreytinga og yfirlýsingu um framboð til embættis innan stjórnar eða nefnda sem greinir í gr. 9.5.8. skal beint til skrifstofu félagsins eigi síðar en sex vikum fyrir landsþing.

22. gr. Óviðráðanleg ytri atvik (Force Majeure)

22.1 Force Majeure.

Reynist slíkt nauðsynlegt til þess að tryggja hagsmuni félagsins og/eða félagseininga og starfsemi þeirra er heimilt að víkja frá lögum þessum ef upp koma ófyrirséð óvænt atvik eða aðstæður sem hvorki félagið eða félagseiningar geta haft áhrif á eða stýrt, svo sem, en ekki einangrað við, náttúruhamfarir, styrjaldir, óeirðir, verkföll, farsóttir eða önnur sambærileg atvik.

22.2 Afgreiðsla.

Tillaga um frávik á grundvelli 21.1 skal borin undir alla fulltrúa stjórnar og formenn félagseininga á fundi sem boðaður er með tveggja daga fyrirvara, eða skemur reynist slíkt nauðsynlegt.

Fundur telst lögmætur ef hann er sóttur af að minnsta kosti helmingi boðaðra fulltrúa. Tillaga telst samþykkt ef 2/3 fundarfólks greiða henni atkvæði sitt.

23. gr. Slit félagsins

23.1. Slit félagsins.

Slysavarnafélagið Landsbjörg verður einungis lagt niður sé tillaga þess efnis samþykkt á landsþingi. Verði félagið lagt niður skal fjármunum þess og eigum varið í þágu slysavarna og björgunarstarfs á Íslandi í samræmi við ákvörðun landsþings sem ákvörðun tekur um slit, þó ekki fyrr en að ár er liðið frá landsþingi.

23.2 Meðferð.

Um meðferð og afgreiðslu tillögu um slit félagsins skal fara eftir sömu reglum og gilda um lagabreytingar.

24. gr. Gildistaka

Lög þessi öðlast gildi þegar að loknu landsþingi. Lög þessi voru samþykkt á landsþingi félagsins á Selfossi þann 10. maí 2025.

Siðareglur

Siðareglur Slysavarnafélagsins Landsbjargar

Slysavarnafélagið Landsbjörg eru landssamtök þar sem sjálfboðaliðar og starfsmenn félagsins vinna að björgun, slysavörnum og unglingastarfi. Í slíkum samtökum er mikilvægt að allir taki siðferðislega ábyrgð á störfum sínum með hagsmuni skjólstæðinga, félaga og félagsins að leiðarljósi. Til þess að þetta megi takast vill félagið skapa umhverfi þar sem samskipti og vinnubrögð einkennast af virðingu, samvinnu, forystu og fagmennsku. Siðareglurnar gilda um alla félaga félagseininga og starfsmenn félagsins.

Markmið reglnanna er að stuðla að því að hegðun þeirra sem starfa innan félagsins uppfylli ýtrustu siðferðiskröfur hvers tíma. Þær eru leiðbeinandi um samband og samvinnu skjólstæðinga og félagsmanna og er ætlað að vernda orðspor félagsins, ímynd þess og trúverðugleika.

Vilji félagseining setja sínum félagsmönnum ítarlegri reglur er það heimilt svo lengi sem siðareglur félagsins liggi til grundvallar.

Verðum við þess áskynja að siðareglurnar hafi verið brotnar ber að vekja athygli á því með tölvupósti til siðanefndar. Skipan og starfsreglur siðanefndar má finna á heimasíðu félagsins.

1. Góðir starfshættir

Við virðum landslög og reglugerðir settar samkvæmt þeim. Við virðum gildi, lög og reglugerðir félagsins, vörumerki þess og einkennisfatnað.

2. Hegðun

Við virðum þá sem starfa innan félagsins, skjólstæðinga þess og náttúruna í daglegu starfi, aðgerðum og æfingum. Við komum fram við hvert annað af virðingu og gætum trúnaðar gagnvart skjólstæðingum og hverju öðru.

3. Áreiti

Við komum í veg fyrir að innan félagsins viðgangist hvers konar óréttlæti, svo sem einelti, ofbeldi, kynferðisleg áreitni eða mismunun byggð á óviðkomandi þáttum svo sem kynferði, aldri, trú, þjóðerni, kynþætti, fötlun eða kynhneigð, hvort heldur sem er gagnvart hverju öðru eða skjólstæðingum félagsins.

4. Þekking

Við þekkjum skyldur okkar og takmörk. Við viðhöldum þekkingu okkar og hæfni á vettvangi starfsins.

5. Samskipti

Við förum að réttmætum fyrirmælum og tökum þátt í æfingum og starfi af fullum heilindum.

6. Framkoma

Við virðum eignir og verðmæti annarra, náttúruna, mannvirki og sögulegar minjar og forðumst að valda spjöllum á þeim.

7. Aðstæður

Við leggjum okkur fram um að koma félögum okkar ekki í aðstæður sem þeir ráða ekki við.

8. Útkallslisti

Við gætum að því að félagar á útkallslista björgunarsveita séu fullra 18 ára og hafi hlotið viðhlítandi þjálfun.

9. Hagsmunir

Við gætum þess að okkar eigin hagsmunir eða hagsmunir aðila okkar nákomnum hafi ekki áhrif á ákvarðanir okkar á vettvangi félagsins.

10. Viðurlög

Við gerum okkur ljóst að ef félagar gerast brotlegir við reglur þessar má vísa þeim úr starfi á vegum félagsins, tímabundið eða að fullu.

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Árbók Slysavarnafélagsins Landsbjargar 2025 by Slysavarnafélagið Landsbjörg - Issuu