Skip to main content

arsskyrsla_2025_a4

Page 1


Ragnheiður I. Þórarinsdóttir

rektor fer yfir áherslur á starfsárinu 2025

Rannsókna- og alþjóðastarf

Á undanförnum árum hefur Landbúnaðarháskóli Íslands staðið í örum vexti og þróun. Við höfum eflt rannsóknir og nýsköpun, og aukið alþjóðlegt samstarf. Alþjóðlegt samstarf hefur aldrei verið öflugra, með nýjum verkefnum og verulegu fjármagni frá Erasmus, Horizon og LIFE sjóðum Evrópusambandsins. LIFE verkefnið Peatland LIFEland.is, sem hófst formlega í september 2025, er stærsta verkefnið sem Landbúnaðarháskóli Íslands hefur stýrt, en heildarupphæð þess er um 8 milljónir evrur þar af koma 6 milljónir evrur eða um milljaður íslenskra króna frá Evrópusambandinu. Landbúnaðarháskólinn fær um þriðjung þess fjármagns sem dreifist á fimm og hálft ár. Styrkhlutfall umsókna sem við sendum til Rannís var einnig gott á síðasta ári og fengum við þrjú ný verkefni styrkt af Rannsóknasjóði.

Við höfum tekið virkan þátt í evrópska háskólanetinu UNIgreen, þar sem átta evrópskir háskólar á sviði lífvísinda og landbúnaðar leggja saman krafta sína. Samningur var gerður um sameiginlegt doktorsnám fjögurra háskóla í UNIgreen samstarfinu og hefur fyrsti doktorsneminn við LBHÍ hafið nám sitt byggt á þeim

samningi. Unnið var að sameiginlegu dýralæknanámi með Lífvísindaháskólanum í Varsjá í Póllandi, en að þeirri vinnu komu einnig Háskóli Íslands, Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði á Keldum og Háskólinn á Hólum.

Fulltrúar fjölmargra landa hafa heimsótt okkur á starfsárinu og finnum við fyrir auknum áhuga á samstarfi við okkur. Vil ég sérstaklega nefna hér áhuga í Tékklandi á auknu samstarfi og vísíndaferð starfsfólks til Tékklands í mars 2026. Einnig vil ég nefna gott samstarf við sendiráð Bretlands sem styrkti m.a. ferð framkvæmdastjórnar til Skotlands í mars 2025. Þá hefur samstarf við sendiráð Bandaríkjanna einnig verið náið og styrkti sendiráðið ráðstefnu um auðgandi landbúnað sem haldin var að frumkvæði bænda á Hótel Hilton Reykjavík Nordica í apríl 2025.

Þessi þróun endurspeglar þá vinnu sem við höfum lagt af mörkum á undanförnum misserum og sem styður við þá skuldbindingu okkar að vera leiðandi í þekkingarsköpun og miðlun á sviði skipulags, lífvísinda, landbúnaðar og matvælaframleiðslu.

Gæði kennslu

Sérstök áhersla er lögð á gæði og þróun kennslu í stefnu Landbúnaðarháskólans.

Ráðið var í nýtt starf kennsluforseta og í starf deildarforseta sameinaðrar deildar.

Það er ánægjulegt að fjölgað hefur í hópi starfsfólks sem lokið hefur viðbótarmenntun í kennslufræði og nokkrir starfsmenn stunda nú námið við Háskóla Íslands.

Einnig hafa starfsmenn verið hvattir til að sækja um í kennsluakademíu opinberu háskólanna og fékk Landbúnaðarháskólinn sinn fyrsta fulltrúa samþykktan í akademíuna í byrjun árs 2025.

Búnaður til kennslu og rannsókna hefur verið endurbættur og ber þar hæst kaup á tveimur nýjum drónum og tilheyrandi búnaði. Unnið er að því að fleiri starfsmenn fái réttindi til að fljúga þeim.

Nemendur hafa tekið virkan þátt í gæða- og umbótastarfi og lögð er áhersla á rekjanleika þannig að unnt sé að sýna fram á hvernig brugðist er við ábendingum og tillögum. Það er gaman að fá jákvæða endurgjöf frá nemendum um að þeim finnist jafnan að brugðist sé hratt við ábendingum þeirra.

Nýir drónar keyptir með styrk frá Samstarfssjóði háskólanna

Uppbyggingar- og viðhaldsframkvæmdir

Unnið var að ýmsum viðhalds- og uppbyggingarframkvæmdum á árinu. Má þar nefna viðgerðir á Ásgarði, áfram var unnið að endurbótum á Gamla skóla og Skólastjórahúsi, og gengið var frá sundlaugargarði við Ásgarð með heitum pottum.

Nýju loftræstikerfi var komið upp á Hestbúinu og traktor þar endurnýjaður. Þá var keyptur fóðrunarbúnaður á Hestbúið fyrir styrk frá Minningarsjóði Halldórs Pálssonar. Á Mið-Fossum var unnið að því að koma útireiðvellinum í gott ástand og var hann tekinn í notkun í byrjun maí.

Hvanneyrarbúið ehf.

Ákvörðun var tekin um að færa Hestbúið undir Hvanneyrarbúið ehf. frá og með 1. janúar 2025, en Hestbúið hefur á undanförnum árum verið rekið sem hluti af háskólanum meðan Hvanneyrarbúið hefur verið rekið sem fyrirtæki í 100% eigu Landbúnaðarháskólans. Við þessa breytingu

var fjölgað úr þremur í fimm fulltrúa í stjórn Hvanneyrarbúsins, samþykktum breytt og nýr þjónustusamningur undirritaður. Á aðalfundi félagsins 2025 var skipaður faghópur Hvanneyrarbúsins með fulltrúum starfsmanna og unnið að enn frekari eflingu rannsókna og tilraunaaðstöðu á búunum.

Jarðræktarmiðstöð og rannsóknagróðurhús

Áfram var unnið að undirbúningi Jarðræktarmiðstöðvar og rannsóknagróðurhúss í samstarfi við FSRE. Verkið hefur gengið hægt, FSRE sendi rannsóknagróðurhúsið í útboð í apríl 2025, sem síðan var dregið tilbaka vegna galla. Ekki náðist að ganga frá útboðsgögnum vegna fyrirhugaðrar jarðræktarmiðstöðvar á árinu, né heldur að senda útboð vegna rannsóknagróðurhússins aftur af stað. Fyrirhugaðar jarðvegsframkvæmdir urðu því ekki að veruleika á árinu. Tímalína verkefnisins hefur því seinkað um enn eitt ár.

Reiðvöllurinn á Mið-Fossum lagfærður og kynbótasýningar haldnar þar

Tilraunafóðrunarbúnaði komið upp á Hesti með styrk frá Minningarsjóði Halldórs Pálssonar

Kynningarstarfsemi og samvinna

við hagaðila

Áfram hefur verið lögð áhersla á að kynna starfsemi Landbúnaðarháskólans í fjölmiðlum og efla samstarf við hagaðila. Samningur við atvinnuvegaráðuneytið um kornkynbætur var endurnýjaður, en verkefnið er til fimm ára og byggir á

tillögum úr skýrslunni Bleikir akrar sem kom út í mars 2023. Samningur um Orkideu var framlengdur til þriggja ára (2025-2027), samstarfssamningur var undirritaður við ON og samningur endurnýjaður við RML.

Framtíðin er björt

Í þessari stuttu samantekt hef ég stiklað á stóru enda ógjörningur að fara yfir öll þau fjölmörgu verkefni sem unnið er að við Landbúnaðarháskóla Íslands. Við höfum byggt upp sterkari innviði, aukið sýnileika Landbúnaðarháskólans og eflt hlutverk okkar á innlendum sem og alþjóðlegum vettvangi. Þá höfum við einnig horft inn á við, rætt hvernig við getum bætt innra starf

okkar, samvinnu og samskipti. Við sjáum árangur af stefnu okkar og vinnu, og með þátttöku allra, nemenda, starfsfólks og samstarfsaðila, erum við að taka stór skref í átt að nýjum fjölbreyttum verkefnum.

Ég þakka starfsfólki, nemendum og öðrum hagaðilum kærlega fyrir samstarfið á árinu 2025.

4

Fjórir nemendur verja doktorsritgerðir sínar

DIGI-rangeland – Horizon verkefni

Vettvangskennsla

Verkefnakynningar

Lagfæringar á gömlu torfunni og bílastæði við Ásgarð

LIFE verkefnið Peatland LIFEline.is hefst

Verkleg kennsla

Met sett í umfangi styrkja úr samkeppnissjóðum árið 2025

671.000.000

2024 > 354.000.000 kr 2023 > 398.000.000 kr

JAN

Starfsemi Háskólaráðs

LBHÍ 2025

Breyting á háskólaráði samþykkt

Nýr varaforseti háskólaráðs

Málstefna uppfærð

Verklagsregla um stjórnskipulag og

stjórnarhætti samþykkt

Verklagsregla um hlutverk og ábyrgð samþykkt

Greiðslur vegna rannsóknamissera uppfærðar

Tillögur um sparnaðaraðgerðir

Umræða um dýralæknanám

FEB Starfsáætlun LbhÍ 2025-2026 samþykkt

Kynning frá kennslustjóra

Ný námsleið MSc – Sustainable agriculture and rural development

Kynning framkvæmdastjóra Orkideu

Starfsþróunarstefna uppfærð

Hlaðan í Halldórsfjósi

Uppbygging á Hesti

MAR

Fjármál

Starfsánægja – niðurstöður Sameykiskönnunar

Traustmæling Gallup

Hugverkastefna

Doktorsnámssjóður LIFE verkefni

Kynning frá hæfisnefnd

Kynning frá deildarforseta R&F

Ársreikningur 2024

Efling starfsánægju

Hugverkastefna

Samstarf við hagaðila

Jarðræktarmiðstöð og gróðurhús

MAÍ Kynning frá deildarforseta N&S

Ársfundur

Háskólafundur

Ráðning aðstoðarrektors samþykkt

Gjaldskrá 2025-2026 samþykkt

Hugverkastefna

Starfsáætlun háskólaráðs 2025-2026

Jarðræktarmiðstöð og rannsóknagróðurhús

Framkvæmdir við LBHÍ

Framkvæmdir við bú LBHÍ

Kaup á drónum og búnaði

Starfsánægjuúttekt og næstu skref

Framtíðarsýn og innleiðing á breyttu skipulagi

Samningur við RML

Samningur við ON

LARK í Feneyjum

Nýir doktorsnemar

Ráðunautafundur LBHÍ og RML

Peatland LIFEline.is kickoff fundur

Sendiherra Evrópusambandsins í heimsókn

Dýralæknanám

Fundur rektora með ráðherra háskólamála

Samstarf við hagaðila

Alþjóðastarf

Nýr fulltrúi í öryggisnefnd

Fjármál og innviðauppbygging

Örnám

Rannsóknir og nýsköpun

Rannsóknahópar

Rannsóknamisseri samþykkt

Fundur með fulltrúum ráðuneytis háskólamála

Reiknilíkan

Breytingar á lögum um háskóla

Heimsókn frá NABU

Vinnufundur DIGI-Rangeland

Jafnlaunaúttekt

Skoðunarferð háskólaráðs um Ásgarð

Heimsókn háskólaráðs í bú LBHÍ

Gamla torfan og Landbúnaðarsafnið

Fundir með starfsfólki um framtíðarsýn LBHÍ

Jólagleði LBHÍ

Fjárlagafrumvarp, staða og rekstraráætlun 2026

Umbun til starfsmanna

Dýralæknanám - samstarf við SGGW

Framtíðarsýn - starfsmannafundur

Jarðræktarmiðstöð og rannsóknagróðurhús

– hækkun áætlunar FSRE

Gervigreindarstefna

Umsóknir í Sóknarsjóð Rannís

LIFE umsókn og umsóknir í Horizon

Breytingar í UNIgreen

Háskólaráð 2025-2026

Ragnheiður I. Þórarinsdóttir

Rektor

Birgir Þór Haraldsson Fulltrúi Háskóla-, iðnaðarog nýsköpunarráðherra

Haukur Þórðarson Fulltrúi starfsmanna

Guðmundur Fertram Sigurjónsson

Valinn af háskólaráði

Jóhanna GísladóttirFulltrúi starfsmanna

Þóranna Jónsdóttir Valin af háskólaráði

Bragi Geir Bjarnason Fulltrúi nemenda

Áshildur Bragadóttir Fulltrúi starfsmanna/Tók við af Hauki á vorönn

Varamenn

• Áshildur Bragadóttir

• Isabel Barrio

• Ingiberg Daði Kjartansson

• Jón Bjarnason, oddviti Hrunamannahrepp

• Guðrún Sigríður Tryggvadóttir, bóndi Svartárkoti og umsjónarkennari Stórutjarnaskóla Þingeyjarsveit

Brautskráning

Framúrskarandi árangur við brautskráningu 2025

Salka Einarsdóttir stóð efst á B.S. prófi heilt yfir með einkunina 9,02 en hún var að brautskrást úr skógfræði.

Maríanna Ósk Mikaelsdóttir stóð efst fyrir B.S. lokaverkefni og brautskráðist úr landslagsarkitektúr. Verkefni hennar fjallaði um Náttúruperluna Kjarnaskóg, greining á þáttum sem stuðla að vinsældum útivistarsvæða.

Kristín Ólafsdóttir fékk veðlaun fyrir frábæran árangur á búfræðiprófi

Ingiberg Daði Kjartansson hlaut viðurkenningu LBHÍ fyrir vel unnin störf í þágu félags-, kynningarog framfaramála skólaárið 2024-2025 við brautskráningu 2025

Styrkveitingar

Styrkir úr Framfarasjóði Ingibjargar

Guðmundsdóttur og Þorvaldar

Guðmundssonar í Síld of Fisk 2025

Tilgangur sjóðsins er að styrkja nemendur

Landbúnaðarháskóla Íslands til framhaldsmenntunar og að styrkja rannsóknir nemenda á fagsviði Landbúnaðarháskólans.

Að þessu sinni eru tveir nemendur sem hljóta styrk, annar er í doktorsnámi og hinn í meistaranámi.

Geirlaug Þorvaldsdóttir t.v. veitir Gunnhildi og Önnu Guðrúnu styrki við brautskráningarathöfn í júní 2025.

Erfðaleg aðlögun byggs að krefjandi umhverfisskilyrðum

Anna Guðrún Þórðardóttir hlýtur styrk frá Framfarasjóði til doktorsverkefnis síns þar sem meginmarkmið verkefnisins er að stuðla að úrvali byggplantna sem eru aðlöguð kaldtempruðum umhverfisskilyrðum líkt og þekkjast á Íslandi.

Í verkefninu verða þróuð tölfræðilíkön sem nýta arfgerðargreiningar byggyrkja, ættartölutengsl og veðurfarsgögn til að spá fyrir um kynbótagildi byggyrkja með sem nákvæmustum hætti, svo velja megi fyrir aukinni uppskeru að gæðum og magni við íslenskar aðstæður.

Anna Guðrún er stúdent frá Fjölbrautaskóla Suðurlands, lauk BSc prófi í búvísindum frá Landbúnaðarháskóla Íslands árið 2019 og tók þá til starfa sem búfræðikennari við Landbúnaðarháskóla Íslands. Árið 2023 lauk hún meistaranámi í búvísindum frá Landbúnaðarháskólanum og tók síðan til starfa sem aðjúnkt og námsbrautarstjóri. Á síðasta ári hóf hún síðan doktorsnám sitt við Landbúnaðarháskólann.

Uppruni íslenska byggsins, skyldleiki og erfðafræðileg þróun í aðlögun byggs að íslenskum umhverfisaðstæðum

Gunnhildur Gísladóttir hlýtur styrk frá Framfarasjóði til meistaraverkefnis síns sem snýr að því að skoða uppruna íslenska byggsins og hvernig það hefur erfðafræðilega aðlagað sig að íslenskum umhverfisaðstæðum. Með því að skoða stofnbyggingu og erfðablöndun er hægt að leggja mat á uppruna íslenska stofnsins og hversu blandaður hann er við aðra stofna. Niðurstöður verkefnisins verður hægt að nota til að auka erfðaframfarir enn frekar sem skilar sér í meiri og betri uppskeru korns í ökrum bænda.

Gunnhildur útskrifaðist frá Fjölbrautaskóla Suðurlands 2014 og er búfræðingur frá Landbúnaðarháskóla Íslands 2019. Árið 2023 lauk hún BSc prófi í búvísindum frá Landbúnaðarháskóla Íslands og hóf meistaranám sitt við skólann í fyrra. Gunnhildur hefur á undanförnum misserum starfað við Landbúnaðarháskólann sem aðstoðarmaður í rannsóknum og við kennslu.

Ársreikningur

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
arsskyrsla_2025_a4 by Landbúnaðarháskóli_Íslands - Issuu