



![]()





Egill Ástráðsson, formaður körfuknattleiksdeildar KR
Kæru KR-ingar, Enn eitt árið er komið að því að við fylgjum liðinu okkar í bikarhelgi. Í þetta sinn eru það strákarnir sem komnir eru í undanúrslit í þessari skemmtilegu keppni og markmiðið er skýrt.
Ég stal upphafsorðunum af sjálfum mér úr blaðinu frá því í fyrra. Það er margt dásamlegt við að vera KR-ingur og það að fylgjast með liðinu berjast um titla er þar á meðal. Sem betur fer höfum við flest upplifað það oft og mörgum sinnum, en hvert skipti er samt einstakt. Í vægast sagt einkennilegu samkeppnisumhverfi íslensk körfubolta í dag eigum við KR-ingar tvö frábær keppnislið þar sem uppaldir leikmenn okkar eru í lykilhlutverki. Það er langt frá því að vera sjálfgefið og eitthvað sem við getum öll verið stolt af.
Nú í vikunni gefst strákunum tækifæri til þess að gera það sem KR gerir best. Með ykkar stuðningi eru þeim allir vegir færir. Sjáumst í Smáranum.
Áfram KR.
KR er það félag sem hefur oftast orðið bikarmeistari karla eða 12 sinnum, síðast 2017 en alls hefur félagið leikið 22 bikarúrslitaleiki í sögu bikarkeppninnar sem nær aftur til 1970. Félagið er einnig á toppnum yfir flest bikarsilfur.
KR hefur leikið rúmlega 160 bikarleiki og mætt í þeim 30 mismunandi liðum, oftast hafa andstæðingarnir verið Njarðvík eða 24 sinnum en næstir koma Valsmenn með 16 viðureignir. Þetta er í tíunda sinn sem að við KR-ingar mætum Tindastólsmönnum í bikarkeppninni.
Flestir bikarmeistaratitlar karla 1970–2024:
12 KR (1970, 71, 72, 73, 74, 77, 79, 84, 91, 2011, 16 & 17)
9 Njarðvík (1987, 88, 89, 90, 92, 99, 2002, 05, 21)
7 Keflavík (1993, 94, 97, 2003, 04, 2012, 2024)
6 Stjarnan (2009, 2013, 2015, 2019, 2020, 2022)
5 Grindavík (1995, 98, 2000, 06, 14)
4 Valur (1980, 81, 83, 2023)
3 Haukar (1985, 86, 96)
2 Ármann (1975, 76)
2 ÍR (2001, 07)
2 Snæfell (2008, 2010)
1 Tindastóll (2018)
1 ÍS (1978)
1 Fram (1982)
Andstæðingar KR í bikarleikjum, raðað eftir fjölda
viðureigna:
Njarðvík 24
Valur 15
Grindavík 12
Keflavík 12
Tindastóll 9
ÍS 8
Haukar 7 ÍR 7
Breiðablik 5
Hamar 5
Höttur 5
Snæfell 5
Ármann 3
Fram 3
ÍA 3
Laugdælir 3
Skallagrímur 3
Stjarnan 3
Þór Ak. 3
Þór Þ. 3
Hamar / Selfoss 2
Haukar b 2
ÍS b 2
KR b 2
Hrunamenn 1
ÍV 1
Fyrirliðar KR sem hafa lyft bikarnum:
Einar Bollason 3 sinnum (1970, 71, 79)
Kristinn Stefánsson 3 sinnum (1972, 73, 74)
Brynjar Þór Björnsson 2 sinnum (2016, 17)
Kolbeinn Pálsson 1 sinni (1977)
Garðar Jóhannsson 1 sinni (1984)
Guðni Guðnason 1 sinni (1991)
Fannar Ólafsson 1 sinni (2011)
Þjálfarar sem hafa gert KR að bikarmeisturum:
Einar Bollason 3 sinnum (1973, 74, 77)
Finnur Freyr Stefánsson 2 sinnum (2016, 17)
Jón Otti Ólafsson 2 sinnum (1971, 72)
Kolbeinn Pálsson 1 sinni (1970)
Gunnar Gunnarsson 1 sinni (1979)
Jón Sigurðsson 1 sinni (1984)
Páll Kolbeinsson 1 sinni (1991)
Hrafn Kristjánsosn 1 sinni (2011)
Einn leikmaðurinn í núverandi hóp KR hefur orðið bikarmeistari, Þórir Guðmundur Þorbjarnarson, sem varð bikarmeistari með KR 2016 og 2017.
Leiðin í undanúrslit VÍS-bikarsins 2026
32-liða úrslit
Fylkir - KR 70-130
Höttur-Tindastóll 97-125
16-liða úrslit
KR-Fjölnir 113-87
Tindastóll-Hamar 125-66
8-liða úrslit
KR-Breiðablik 102-72
Snæfell-Tindastóll 98-115


Þórir Guðmundur Þorbjarnarson, eða Tóti Túrbó, er fyrirliði okkar KR-inga. Tóti hefur tvívegis orðið bikarmeistari með
meistaraflokki KR, árin 2016 og 2017. Tóti hefur undanfarin tvö ár leikið til úrslita í bikarnum. Í fyrra með KR og þar á undan með
andstæðingum KR í undanúrslitum að þessu sinni, Tindastól. Við tókum fyrirliðann í lauflétt spjall.
Þú ert farinn að venja komur þínar í bikarhelgina, hvernig líst þér á komandi viku?
Já það er alltaf gaman að taka þátt í bikarhelginni og eitthvað sem maður tekur ekki sem sjálfsögðum hlut. Ég er mjög spenntur fyrir komandi viku og trúi ekki öðru en að KRingar séu það líka. Í fyrra myndaðist mikil stemning sem við í liðinu fundum vel fyrir. Markmiðið í ár er klárlega að gera betur en í fyrra og við erum klárir í þetta!
Þegar þú hugsar til baka, manstu sérstaklega eftir frammistöðu hjá leikmanni KR í bikarnum?
Það fyrsta sem kemur upp í hugann er leikurinn við Stjörnuna í fyrra. Þorri spilaði frábærlega í þeim leik og átti risa þátt í þeim sigri.
Hvernig finnst þér tímabilið hafa spilast hingað til hjá liðinu?
Tímabilið hefur hingað til verið hörku barátta eins og við mátti búast. Öll liðin í deildinni eru vel mönnuð og hver einasti leikur gríðarlega mikilvægur. Við byrjuðum vel og fórum svo í
gegnum nokkra krefjandi leiki sem hefðu getað spilast betur. En núna eftir áramót erum við að spila hörku vel - komnir með nýja menn sem hafa komið með mikil gæði inn í hópinn og liðið að smella vel saman. Við komum á góðum nótum inn í bikarvikuna og hlökkum til að spila fyrir framan okkar fólk í stúkunni.
Hvað þarf KR að gera til að vinna Tindastól í undanúrslitaleiknum?
Við þurfum að vera klárir frá fyrstu mínútu. Tindastóll er með hörku lið. Við þurfum að vera þéttir varnarlega og reyna stýra hraðanum. Bæði lið vilja spila hratt og ég býst við fjörugum leik.
Eitthvað að lokum? Áfram KR!

Jakob Sigurðarson er KR-ingum að góðu kunnur. Jakob spilaði
sinn fyrsta meistaraflokksleik með KR árið 1999 áður en hann hélt utan í atvinnumennsku. Spilaði hann í 13 ár í Evrópu áður en hann snéri aftur til að spila á Meistaravöllum árið 2019. Að auki spilaði Jakob 92 landsleiki á ferli sínum. 2021 lét hann skóna á hilluna en hefur verið í þjálfun síðan. Hann er nú með KR liðið á sínu þriðja tímabili og annað árið í röð í undanúrslitum VÍS-bikarsins.

Hvernig er að vera kominn aftur með KR í bikarhelgi?
Frábært að við séum aftur komnir í bikarvikuna! Þetta eru stórir leikir, mikið undir og gerir mikið fyrir liðið og tímabilið.
Hvernig finnst þér tímabilið hafa spilast hingað til hjá liðinu?
Heilt yfir hefur tímabilið verið gott. Við lentum í erfiðum kafla í nóvember þar sem vantaði leikmenn af ýmsum ástæðum.
Eftir áramót hefur verið mjög góður stígandi í liðinu og ég er spenntur því sem framundan er.
Hvað þarf KR að gera til að vinna Tindastól í undanúrslitum?
Tindastóll er gríðarlega vel mannað lið sem hefur spilað vel í vetur. Þeir vilja spila hratt og klárlega þurfum við að reyna að hægja á þeim og á sama tíma nýta okkur þeirra veikleika.
Eitthvað að lokum?
Það hefur verið mjög góð mæting á okkar leiki í vetur og hvet
ég alla KR-inga til þess mæta og styðja við bakið á okkur!
Jón Ormsson ættu allir KR-ingar að þekkja. Hann lék sinn
fyrsta meistaraflokksleik með KR tímabilið 1993-1994, þá aðeins
16 ára gamall og varð hann fljótt einn af burðarásum liðsins. Eftir að hafa misst úr heilt tímabil vegna erfiðra bakmeiðsla ákvað Óli að flytja á Ísafjörð og lék hann með KFÍ í tvö tímabil áður en hann kom aftur heim í KR fyrir tímabilið 1999-2000, en það tímabil leiddi Óli KR-liðið til Íslandsmeistaratitils. Óli lék alls 191 leik með meistaraflokki KR en lagði skóna á hilluna vegna meiðsla aðeins 26 ára gamall. Við fengum Óla Orms í smá spjall við bikarblaðið.

Það vita það kannski ekki allir, en dóttir þín, hún
Kristrún Ríkey, gekk til liðs við meistaraflokk kvenna
KR fyrir þetta tímabil. Hvernig kom það til og það hlýtur að hafa glatt gamla KR-inginn hann Óla?
Þetta var alfarið hennar ákvörðun. Hún hóf ferilinn
hjá Þór Akureyri, við bjuggum þar frá 2015-2020, spilaði sína fyrstu meistaraflokksleiki þar 14 ára
gömul í 1.deildinni. Við flytjum svo í Hafnarfjörð 2020 og þá fer hún að spila með meistaraflokki Hauka. Síðustu 2 ár spilaði hún með Hamar/ Þór, fyrst í 1.deildinni þar sem þær unnu sig upp í efstu deild og svo síðasta tímabil í efstu deild. Hún er búin að standa sig ótrúlega vel, hún er hörkudugleg og hefur mikinn metnað. Hún var svo valin í A-landsliðið í fyrra og er komin með nokkra landsleiki. Að hún skyldi velja KR var mjög skemmtilegt fyrir mig og fyrir vikið er “aðeins” skemmtilegra að fara á leiki, þó svo að maður styðji alltaf börnin sín sama hvar þau spila.
Sjálfur áttir þú frekar stuttan en glæsilegan feril sem leikmaður, leiddir KR til Íslandsmeistaratitils
árið 2000, körfuknattleiksleikmaður ársins 2000, úrvalslið ársins 2000 og 2001 og besti leikmaður deildarinnar árið 2001 ásamt landsleikjum á öllum stigum, til að nefna nokkur dæmi. Þegar þú lítur til baka, hvað stendur upp úr á ferlinum?
Það var klárlega þegar við urðum Íslandsmeistarar árið 2000, Ingi Þór var að þjálfa okkur, mér var sýndur sá heiður að vera fyrirliði þessa reynslumikla liðs aðeins 23 ára gamall. Þetta lið var magnað og metnaðurinn mikill hjá öllum í liðinu. Til að mynda þá þurfti Ingi nokkrum sinnum að leysa upp æfingarnar af því harkan og ákefðin var orðin of mikil fyrir hann, en auðvitað var hann að passa upp á okkur, þetta voru oftar en ekki síðustu æfingarnar fyrir leiki. Þetta var blanda af reynslumiklum leikmönnum og mjög ungum og efnilegum leikmönnum. Við enduðum í fjórða sæti deildarkeppninnar en stóðum uppi sem Íslandsmeistarar. Ég hætti ungur að spila, lenti í þrálátum meiðslum og átti erfitt með að vinna mig
út úr þeim, það var sem betur fer tiltölulega auðvelt að taka þessa ákvörðun því KR átti mikið af ungum og efnilegum leikmönnum, “ungu pungs”, sem ég treysti fyllilega til að taka við keflinu.
Nú hefur þú verið ansi duglegur að mæta á leiki í vetur, bæði karla og kvenna megin, hvernig finnst þér hafa gengið hjá okkar liðum?
Þetta er búið að vera mjög skemmtilegt, ég hef mætt á næstum alla kvennaleiki og ótrúlega gaman að sjá hvað þessar stelpur eru að standa sig vel. Skemmtileg blanda af ungum uppöldum efnilegum
stelpum og svo aðeins reynslumeiri leikmönnum, en samt ungir, ásamt góðri samsetningu af erlendum leikmönnum. Ég held að fæstir hafi leyft sér að dreyma um að liðið yrði á þessum stað á þessum tíma, Danni er að gera mjög góða hluti með þetta lið, frábær árangur. Ég hef séð flesta leikina með karlaliðinu og þeir eru líka að standa sig vel í mjög vel mannaðri deild. Það hefur sjaldnast ef einhvern tíma verið jafn margir góðir erlendir leikmenn í deildinni. Samsetningin er líka mjög góð karlamegin, gaman að sjá marga uppalda KR-inga í liðinu. Kobbi er líka að gera góða hluti. Ég hef fulla trú á mínum mönnum.
Þá að bikarnum karlamegin. Þér tókst því miður ekki að vinna bikarmeistaratitil með KR á sínum tíma, komst reyndar í bikarúrslit með KFÍ árið 1999. Hvernig líst þér á undanúrslitaviðureignirnar?
Nei, mér tókst ekki að vinna bikarmeistaratitil á ferlinum en stemmningin í bikarleikjum er mjög skemmtileg. Það er allt undir í einum leik og það verður alltaf mikil harka í þessum leikjum, sambærilegt við úrslitakeppni.”
Spá Óla Orms í undanúrslitunum
Stjarnan - Keflavík: Þetta verður hörkuleikur, það er búið að vera stígandi hjá Keflavík og Remy Martin kominn til þeirra aftur, hann er að koma til baka úr meiðslum og leikformið ekki komið tilbaka. Ég ætla engu að síður að spá Stjörnunni sigri, því að þeir er með sterkari lið og mikla breidd. Úrslit : 92-78. Tindastóll - KR: Ég ætla að spá því að þetta verði líka hörkuleikur og hraður, mikið skorað í þessum leik. Tindastóll spilaði ekki vel í síðasta leik á móti Keflavík og mögulega er leikjaálagið sem fylgir því að vera í Evrópukeppni farið að segja til sín, þeir virkuðu þreyttir. Ég held KR-ingar séu með ferskari fætur og tilbúnir í þennan leik. Mikilvægt að vörnin haldi og þá geta þeir unnið þennan leik. Úrslit : 94 - 99.
Bikarblað KR heyrði í nokkrum
Matthías Orri Sigurðarson fyrrum leikmaður KR

Tindastóll - KR. Með troðfulla stúku, lituð svört og hvít, nær KR að ýta sér í úrslit með 6 stiga sigri. Mikill hraði, mörg stig en fyrst og fremst alvöru skemmtun. Keflavík - Stjarnan. Keflavík tekur þennan með 8 stigum. Remy Martin tekur yfir í þriðja leikhluta og siglir Keflavík í úrslit. KR - Keflavík, spái ég fram og tilbaka leik í þrjá leikhluta. Okkar menn taka svo yfir í fjórða leikhluta og sækja titillinn með 5 stiga sigri. Kæru KR-ingar, fjölmennum í stúkuna og látum vel heyrast í okkur. Ég veit af eigin skinni hversu sérstakt það er þegar samfélagið okkar kemur saman í samhæfða rödd. Áfram KR!
úr KR körfuboltafjölskyldunni
og bað þau um spá fyrir bikarleikina.
Ólafur Már Ægisson fyrrum leikmaður KR

Tindastóll – KR. Þetta verður stál í stál og okkar menn þurfa að eiga frábæran leik varnarlega og frákasta vel.
Vonandi fáum við svo framlag frá sem flestum sóknarlega og bekkurinn komi inn með mikla baráttu og orku.
Við vinnum þennan leik í alvöru naglbít. Keflavík – Stjarnan. Stjarnan á mikilli siglingu upp á síðkastið en Keflavík
nær að kreista það besta úr sínu liði og sigra. KR – Kef verður alvöru úrslitaleikur sem fer í sögubækurnar eftir
þríframlengingu og sigur KR. Áfram KR!!!!
Daníel Andri Halldórsson þjálfar meistaraflokks kvenna KR

Viðureign KR og Tindastóls verður klárlega svakalegur leikur milli tveggja liða með gríðarlega öfluga stuðningsmenn. Tvö skilvirk sóknarlið eins og sást í eina deildarleik liðanna til þessa en KR tryggja sér miða í úrslitaleikinn með naumindum í hröðum og skemmtilegum leik. Keflavík fara með sigur af hólmi gegn Stjörnunni og mæta KR-ingum í úrslitum. Okkar menn munu þrífast á ótrúlegum stuðningi frá stúkunni í hægari leik. Í kjölfarið þarf svo bara að finna pláss fyrir enn einn bikartitilinn á Meistaravöllum!
Ray Yu, sjálfboðaliði körfuknattleiksdeildar 2024-2025

Síðasti leikur var mikil stigaveisla þar sem Stólarnir stjórnuðu teignum. KR hefur hins vegar vaxið mikið í janúar;
Toms styrkir hópinn og bekkurinn hefur verið sjóðheitur fyrir utan þriggja stiga línuna. Á meðan KR fókuserar á skotnýtingu, þarf Tindastóll að finna taktinn hjá sínum stóru mönnum aftur, en þeir hafa átt erfitt uppdráttar fyrir utan í janúar. Ég tel að Toms og breiddin hjá KR muni gera gæfumuninn í hörkuleik þar sem sóknin verður í fyrirrúmi.
KR kemst því aftur í úrslitaleikinn, annað árið í röð!
Spá: KR 120 - 115 Tindastóll
Kristrún Ríkey Ólafsdóttir leikmaður meistaraflokks kvenna KR

Keflavik vs Stjarnan verður að ég held jafn og spennandi í byrjun en ég held að Stjarnan sígi fram úr á lokametrunum og taki sigurinn. Í leiknum KR vs Tindastóll verður mikil harka og hátt stigaskor en ég segi að KR tekur þetta eftir framlengingu. Úrslitaleikurinn KR vs Stjarnan verður svo hin mesta skemmtun sem mun enda með 7 stiga sigri KR og bikarmeistaratitillinn i hús!
Guðbjörg Norðfjörð, fyrrum leikmaður KR og formaður KKÍ

Tindastóll – KR verður hörkuleikur, algjör draumaviðureign þar sem ekkert verður gefið eftir. Gamla góða dagsformið verður það sem skiiur liðin að og ég hef trú á mínu liði og spái því KR sigri eftir dramatískan leik og mögulega framlengingu. Keflavík – Stjarnan verður aftur á móti held ég ekki eins dramatískur þar sem Stjarnan mun sigla þægilegum sigri. Við fáum svo skemmtilega viðureign í úrslitunum KR – Stjarnan þar sem allt verður í járnum framan af leik en mínir menn, styrktir af fjölmörgum stuðningsmönnum, munu fara með sigur af hólmi og það verður stuð í vesturbænum á laugardagskvöldið. Ég skora á alla KR inga að fjölmenna í Smárann.

● Leka á hliðarskrúfu / Skutpípu
● Bilanir í gírum
● Óhreinn glussi
● Óhreint eldsneyti / Smurolía


Hefurðuupplifað Annarbúnaður
● Stöðuleikauggar ●
● Lúgu - og farmdælukerfi ● Lek stimpilstangarþétti


Sunnudagur 8. febrúar kl. 16:45

flokkur stúlkna
Fimmtudagur
febrúar kl. 17:30 11. flokkur drengja

Hver þekkir það ekki að fá harðsperrur til dæmis þegar mætt er í ræktina eftir langan tíma, fyrstu dagarnir á skíðum eða í golfferðum. Einnig eftir erfiða æfingu sérstaklega þegar um styrkingaræfingar og lengri hlaup er að ræða. Harðsperrur verða til þegar smáskemmdir myndast í vöðvaþráðum við álag. Þessar skemmdir setja af stað bólgusvar sem „gerir við vöðvann“. Það bólgusvar er sársaukinn og stirðleikinn sem við finnum. Harðsperrur koma yfirleitt fram 1–2 dögum eftir álag og ná hámarki eftir 2–3 daga.

Rannsóknin sýndi fram á verulegan ávinning af aukinn próteinmyndun (MPS) með EAAamínósýrum, bæði hjá heilbrigðum einstaklingum og fólki sem glímir við skerta vöðvavirkni, t.d. vegna aldurs eða sjúkdóma.
EINNIG KOM FRAM AÐ EAA Í FRJÁLSU FORMI:
1. Stuðla að endurnýjun vöðvapróteina (Muscle Protein Turnover – MPT).
Stöðug endurnýjun á skemmdu próteini er nauðsynleg til að viðhalda styrk og vöðvamassa. Ónóg inntaka einstakra EAA getur hægt á
þessu ferli og valdið skorti — og þannig aukið harðsperrur.
Meiri líkur eru á harðsperrum eftir eccentrichreyfingar, t.d. niðurleið í hnébeygju, hlaup niður brekku eða þegar lóð/líkami eru látin síga hægt niður. Einnig aukast líkurnar við nýjar æfingar og óvenjulegt eða mikið álag. Allt sem er nýtt, óvænt eða „of mikið“ eykur líkur á harðsperrum. Margir hafa prófað hitt og þetta til að draga úr brjáluðum harðsperrum: heitan pott, kaldan pott, ýmis hlífar, léttan göngutúr, nudd og jafnvel verkjalyf eða bólgueyðandi lyf (sem geta jafnvel gert illt verra). Vandamálið er að flest þessara úrræða miða að því að draga úr skaðanum eftir á. Miklu betra væri að koma í veg fyrir eða minnka harðsperrurnar áður en þær koma… því þú tryggir ekki eftir á!
Sem betur fer er til lausn. Unbroken, tekið í kringum æfingar, getur dregið verulega úr harðsperrum með því að næra vöðva og líkama með lífsnauðsynlegum amínósýrum í frjálsu formi á meðan á átökum stendur.
Það eru ekki bara notendur Unbroken sem finna þennan mun – vísindin sýna líka að allar lífsnauðsynlegu amínósýrurnar (EAA) í frjálsu formi draga verulega úr niðurbroti vöðva og þar með harðsperrum eftir líkamlegt álag.
Ástæðan er einföld: vöðvar eru byggðir úr amínósýrum. Ef framboðið er gott, koma á réttum tíma og í réttu magni minnka skemmdirnar og viðgerðin verður skilvirkari.
Hvað gera lífsnauðsynlegar amínósýrur?
EAA (Essential Amino Acids) eru nauðsynlegar til að örva vöðvapróteinmyndun (Muscle Protein Synthesis - MPS) líkamans. Líkaminn getur ekki framleitt þær sjálfur, þannig að þær verða að koma úr fæðu m.a. til að byggja upp, gera við og endurnýja vöðvavef.
Kjarninn í virkni Unbroken eru einmitt þessar níu
EAA-amínósýrur í frjálsu formi sem vinna saman að
því að:
• hámarka endurheimt
• styðja vöðvauppbyggingu
• minnka harðsperrur.
NÝ VÍSINDARANNSÓKN FRÁ ISSN
Nýlega birti ISSN (International Society of Sports Nutrition) ítarlega yfirlitsgrein: „Áhrif lífsnauðsynlegra amínósýra á líkamsrækt og frammistöðu.“
2. Tryggja hraða upptöku og hátt hlutfall amínósýra per gramm.
EAA í frjálsu formi og í di-/tripeptíðum (tvær og
þrjár amínósýrur tengdar saman) frásogast mjög hratt og krefjast lítillar meltingar.
Þetta tryggir skjótan flutning til vöðva og getur jafnvel aukið próteinmyndun/vöðvavöxt í hvíld.
3. Aukin próteinmyndun samhliða æfingu Þegar EAA eru tekin rétt fyrir eða á meðan á æfingu stendur, auka þær próteinmyndun meira en æfingar einar og sér.
Samspilið styrkir vöðva, flýtir endurheimt og minnkar harðsperrur.
4. Rétt tímasetning skiptir máli – EAA fyrir æfingu Inntaka EAA í rétt fyrir æfingu leiðir til allt að þrefalds framboðs amínósýra til vöðva.
Þetta skiptir miklu fyrir frammistöðu, endurheimt og minni harðsperrur. Til að hámarka árangur ætti því að taka Unbroken fyrir æfingu — en auka inntaka á meðan og eftir æfingu skilar einnig góðum ávinningi.
UNBROKEN - HÁÞRÓUÐ VÖÐVANÆRING GEGN HARÐSPERRUM
Unbroken inniheldur allar níu lífsnauðsynlegu amínósýrurnar og er um 80% í frjálsu formi. Það gerir líkamanum kleift að nýta EAA á skilvirkan hátt fyrir:
• minni harðsperrur
• betri endurheimt
• aukinn styrk og massa
• almenna vellíðan
Hvort sem þú ert afreksíþróttamaður, einstaklingur að byggja upp styrk eða eldri borgari sem vill halda virkni, sýna vísindin að Unbroken skilar raunverulegum árangri.



Ár hvert stendur KR fyrir Alvotech mótinu.
Um minniboltamót er að ræða þar sem 6 til
9 ára börn taka mörg hver þátt í sínu fyrsta móti. Í október sl. öttu tæplega 150 lið kappi í tæplega 300 leikjum á Meistaravöllum.
Mikil leikgleði, frábærir taktar leikmanna og barátta einkennir spilamennsku liðanna.
Og allir á hliðarlínunni eru til fyrirmyndar.
Við þökkum styrktaraðila mótsins, Alvotech, og öllum sjálfboðaliðum félagsins fyrir þeirra ómetanlega framlag.











