Gjöf sem gefur áfram
verslun.solheimar.is
Langar þig að gefa jólagjöf frá Sólheimum sem gefur áfram? Í rösk 90 ár hefur starfsemi Sólheima snúist um að hlúa að og efla þá sem þar búa og njóta þjónustu þessa sjálfbæra litla samfélags. Starfsemi Sólheima hefur blessunarlega notið mikillar velvildar hjá einstaklingum, fyrirtækjum og stofnunum til fjölda ára. Sá stuðningur sem Sólheimar hefur notið er ein helsta forsenda þess að íbúar þess hafa fengið að vaxa og dafna í samfélagi sem einkennist af gróskumiklu lista-, menningar og umhverfisstarfi, þar sem hver og einn einstaklingur fær að þróa hæfileika sína og sinna verkefnum við sitt hæfi.
Afrakstur listsmíði fólksins á Sólheimum gæti átt erindi í jólapakkann frá þér þessi jólin. Við hvetjum þig til að kynna þér fjölbreytt vöruúrval okkar í meðfylgjandi hugmyndum að jólagjöfum. Með gjöf frá Sólheimum styrkir þú samfélag okkar og gerir okkur kleift að halda áfram þróun þessa fallega samfélags. Jafnframt hvetjum við þig og þína til að heimsækja Sólheima við fyrsta tækifæri, þangað eru allir velkomnir. Með jólakveðju íbúar Sólheima
Listamennirnir okkar Einar Baldursson Einar Baldursson „EB“ sem fluttist ungur til Sólheima hefur skapað sér nafn sem einn af eftirsóttari listamönnum samtímans. Einar hefur fengið mikla umfjöllun og viðurkenningu fyrir verk sín og var hann valinn listamaður Listar án landamæra 2009. Einar teiknar mjög mikið og hefur hann mótað með sér sterkan persónulegan stíl. Hann teiknar fast og ákveðið og verða teikningar hans sem ávallt eru fígúratívar nær geometrískar ásýndar og eru þær lifandi, litaglaðar og tærar. Afsteypur af listaverkum hans eru framleiddar í takmörkuðu upplagi og mótaðar eftir teikningum listamannsins.
Erla Björk Sigmundsdóttir Erla Björk Sigmundsdóttir fæddist árið 1973 og býr og starfar á Sólheimum. Erla vinnur markvisst að list sinni í listasmiðjum Sólheima. Útsaumsverk hennar njóta sérstakrar athygli og hrifningar auk þess sem leirgerð verk eftir teikningum Erlu Bjarkar hafa notið mikillar hylli. Erlu Björk hefur verið boðið að taka þátt í fjölmörgum sýningum og var valin listamaður Listar án landamæra árið 2016. Verk Erlu endurspegla kraftinn sem í henni býr, hún tjáir sig í ólíkum formum og listsköpun hennar býr yfir sterkum persónulegum stíl. Verk hennar eru annað hvort fígúratíf eða óhlutbundin formgerð, en ætíð einlæg, kraftmikil, tjáningarík og fögur.
Kristján Atli Sævarsson Listamaðurinn Kristján Atli Sævarsson (K.A.S) er fæddur 1994 og býr og starfar á Sólheimum. Kristján Atli er fjölhæfur listamaður sem stundar list sína markvisst í listasmiðjum Sólheima auk þess sem Kristján er virkur þátttakandi í Leikfélagi Sólheima. Rjúpan hans Doppa hefur notið mikillar hylli og ítrekað selst upp í öllum sínum ólíku myndum. Sterkt stílbragð Kristjáns leynir sér ekki í verkum hans. Örmjór pensill hans skilur eftir sig agaðar og nákvæmar pensilstrokur í einstökum hrynjanda sem er rísandi eða hnígandi eftir áherslum listamannsins.
3
Doppa Höfundarverk Kristjáns Atla Sævarssonar Hæð 18 cm
Verð 11.900 kr
Doppa - brú
n/mött
Doppa - appelsínugul
Doppa - svört
Doppa - svört/mött
Doppa - brún
Doppa - gráblá
Doppa - grá
Ást Verð 19.900 kr.
Skjalda - mosagræn
Skjalda - bleik
Ást - 1
4
Ást - 2
Svala “Svala” er innblásin og sköpuð í listasmiðjum Sólheima unnin undir handleiðslu fagstjóra þeirra. Hæð 11 cm.
Verð 9.900 kr
Svala - bleik
Svala - doppó
tt svört
Svala - blá
Svala - hvít
Svala - svört
Svala - doppótt hvít
5
Lína & Doppulína Lína er höfundarverk Erlu Bjarkar Sigmundsdóttur en Doppulína er höfundarverk Erlu Bjarkar Sigmundsdóttur
og Kristjáns Atla Sævarssonar. Hæð 18 cm.
Verð 11.900 kr
Lína - bleik Lína - s
vört 1
Lína - svört 2
a - svört
Doppulín
Doppulína er til svört, mosagræn og brún
6
Lífið á haus Höfundarverk Erlu Bjarkar Sigmundsdóttur. Hæð 20,5 cm.
Verð 13.900 kr
Lífið á haus - brún
Lífið á haus - appelsínugul
Lífið á haus
- rauð
Lífið á haus - dökk rauð
7
Sólríkur &Gæfuríkur Höfundarverk Erlu Bjarkar Sigmundsdóttur. Hæð 24 cm. .
Verð 14.900 kr
Ástríkur
Sólríkur í röndóttri peysu
Gæfuríkur
Sólríkur í gulri lopapeysu
8
uxum
í svörtum b
Gæfuríkur í lopapeysu
Uglur “Góa svört” er höfundarverk Kristjáns Atla Sævarssonar. Hæð 13 cm.
Verð 7.900 kr
Góa - stór svört Góa - stór brún
“Lítil Ugla” er innblásin og sköpuð í listasmiðjum Sólheima. Litla uglan er samstarfsverkefni vinnustofa Sólheima unnin undir handleiðslu fagstjóra þeirra. Hæð 7 cm
Verð 5.900 kr Góa - lítil ugla
Lítil ugla - 1
Lítil ugla - 2
Lítil ugla - 3
9
Gleðigjafinn Höfundarverk Einars Baldurssonar Hæð 24 cm.
Verð 13.900 kr
finn eðigja
Gl
Gleðigjafinn - rauður
10
rtur
- sva
Gleðigjafinn - svarthvítur
Fiskhaus & Gróska Höfundarverk Einars Baldurssonar Hæð 20 cm.
Verð 12.900 kr
Fiskhaus - 2
Fiskhaus - 1
Fiskhaus - 3
Fiskhaus - 4
Fiskhaus - 5
Gróska 12.900 kr
11
Hæð 24 cm
Karlarnir hans Einars Höfundarverk Einars Baldurssonar Hæð 36 cm.
Verð 26.900 kr
Einar
Magnús
Strákur
Þorgrímur
Aron
Eiríkur
12
Kostaríkur Verð 14.900 kr
Kostaríkur - svartur Hæð 22 cm
Kostaríkur - rauður Hæð 22 cm
Karlinn Verð 19.900 kr
Hænuhaus Verð 22.900 kr Hæð 30 cm
Tryggur Verð 14.900 kr
Skrautskál Verð 9.900 kr Tryggur - appelsínugulur Hæð 26,5 cm
Tryggur - ljós Hæð 26,5 cm
13
Bollar Bollar Verð 4.400 kr Thermobollar Verð 4.900 kr Bollar með undirskál Verð 6.900 kr Bollar með myndskreytingu eftir Einar Baldursson Vinir
Leirbolli svartur
Leirbolli brúnn
Thermobolli EB 1
Thermobolli EB 2
Thermobollar halda vel heitu og hitna ekki í gegn.
Thermobolli EB 3
Hæna
Bollar með myndskreytingu eftir Kristján Ara Sævarsson
Thermobolli KAS 1
Thermobolli KAS 2
Thermobolli KAS 3
Bolli með undirskál Myndskreyting eftir Erlu Björk Sigmundsdóttur Doppubolli svartur
Doppubolli brúnn
14
Thermobolli KAS 4
Kerti, servéttur og kaffi Í kertagerð Sólheima er áhersla lögð á notkun náttúrulegs hráefnis og endurvinnslu.
Bývax dýfð kerti Kr. 1.990
Bývax dýfð kerti Kr. 1.990
Bývax rúlluð kerti Kr. 1.800
Bývax tveggja loga Kr. 2.400
Bývax epli Kr. 1.600
Bývax köngull Kr. 2.600
Bývax jólatré Kr. 2.500
Bývax jólatré Kr. 2.200
Bývax bæna kerti Kr. 1.400
Bývax skrautkúlur Kr. 2.600
Bývaxdúkur Kr. 2.200
Útikerti - Kr. 1.600
Servíettur Verð 1.190 kr
Útikerti - niðursuðudós stór Kr. 1.500 Útikerti - niðursuðudós lítil Kr. 1.100
3ja laga, klórfríar servíettur með teikningum eftir listamennina okkar. 20 stk 33x33cm
Kaffi Kaffibrennsla Sólheima. Lífrænt vottað úrvalskaffi. Kaffibaunir frá El Salvador, Brasilíu og Eþíópíu. 250 g.
Einar Baldursson
Einar Baldursson
Einar Baldursson
Einar Baldursson
Ruth Hjaltadóttur.
Helga Alfreðsdóttir.
15
Malað Kr. 1.690 Baunir Kr. 1.590
Jurtastofa Baðsölt
Jurtabaðsölt Sólheima eru úr náttúrulegum steinefnum, handtíndum jurtum úr blómaog jurtagarði Sólheima og lífrænt vottuðum ilm- kjarnaolíum. Þau innihalda öll Epsom salt sem mýkir húðina um leið og það skolar burtu uppsöfnuðum eiturefnum.
Verð 2.290 kr
Rósir
Dásamlegur ilmur rósa.
Piparmynta og blóðberg
Jurtabaðsalt sem framkallar ríkandi fegurð! Þekkt er að piparmynta örvar blóðrásina og vekur öll skilningarvit. Þetta jurtabaðsalt hentar því sérlega vel þeim sem þurfa að hreinsa öndunarveginn vegna sýkinga. Annað sem ýtir undir öfluga virkni þessarra blöndu eru birki sem mýkir og er vekjadeyf andi, blóðberg sem sótthreinsar og haugarfi sem kælir og mýkir. Piparmyntu jurtabaðsaltið er litað með lífrænt vottaðri graskersolíu.
Lofnarblóm
Dásamlegur ilmur lofnarblóms (lavender) Sólheima gefur róandi yl, djúpa slökun og losar um streitu og kvíða. Vegna þess hve djúpt lofnarblómið nær inn í líkamsvitundina er gjarnan sagt að það losi okkur undan ótta og skerpi sjötta skilningarvitið.
Handsápur
Handgerðu Sólheima jurtasápurnar eru sex. Þær eru í grunninn lífrænt vottaðar jurtaolíur og handtíndar jurtir af okkar hreina og ómengaða landsvæði.
Verð 1.690 kr Lofnarblóm
Sítrónugras
Piparmynta
Rósir
16
Kanill
Fljótandi handsápur
Fljótandi jurtahandsápur Sólheima eru eingöngu úr lífrænt vottuðu hráefni. Uppistaðan í þeim eru lífrænar jurtir og blóm úr jurtagarði Sólheima en undirstaðan hrein kaldpressuð olífuolíusápa frá Castile héraðinu á Spáni.
Verð 1.990 kr
Ilmvíðir og haugarfi
Sítrónugras
Lofnarblóm og birki
Varasalvi Sólheima
Krem sem mýkja og næra Verð 3.990 kr Jurtagræðir Sólheima er
töfrandi gæðissmyrsl fyrir þurra og sprungna húð, útbrot og mar. Segja má að allt okkar úrvals hráefni sameinist af krafti í þessu fjölhæfa smyrsli sem samanstendur af hágæða olíum og handtíndum jurtum úr blómaog jurtagarði Sólheima. Jurtagræðir getur því sannarlega hjálpað þeim sem glíma við margskonar húðvandamál.
Jurtamýkir er náttúrulegt húðsmyrsl sem heldur húðinni vel nærðri og heilbrigðri án þess að skilja eftir fitulag. Jurtamýkir verndar húðina í köldu loftslagi og er líka heillandi næturkrem. Þetta krem inniheldur lífrænt vottaðar gæðaolíur eins og þistilolíu, kókosolíu og blágresisolíu sem hentar viðkvæmri húð og einnig húð við viðkvæmar aðstæður. Lækningajurtirnar í jurtamýki úr blóma- og jurtagarði Sólheima eru lofnarblóm sem sótthreinsar, baldursbrá sem róar húðina, hugarafl sem er græðandi og morgunfrú sem hentar viðkvæmri húð afar vel.
17
er sérlega mýkjandi og græðandi og frásogast vel inní viðkvæmt varasvæðið. Varasalvinn inniheldur kókosolíu, olífuolíu, nývax, hunang og rósmarín úr blóma og jurtagarði Sólheima. Rósmarín er bæði bólgueyðandi og bakteríudrepandi en olíurnar og vaxið gefa næringu og mýkt.
Verð 690 kr.
Jurtanudd Sólheima er lúxus
nuddolía fyrir allan líkamann. Jurtanudd er milt fyrir húðina og þótt um olíu sé að ræða þornar hún fljótt eftir notkun og skilur eftir sig næringu og mýkt og notalegan ilm. Jurtanudd er gert úr heilsusamlegum lífrænt vottuðum olíum sem eiga sér langa sögu innan náttúrulækninganna. Þetta er mönduolía sem er einstaklega rakagefandi, þistilolía sem er mýkjandi, sólblómaolía sem stuðlar að endurnýjun húðar, jajobaolía sem dregur úr öramyndun og hreinar kjarnaolíur eins og morgnfrúarolía sem gefur raka, birkiolía sem er græðandi og lavender-, sítrus- og blágerisolía sem eru hver á sinn hátt mjög heilandi olíur; djúpvirkar, bólgueyðandi, slakandi og hreinsandi og góðar fyrir skilningarvitin, ekki síður en líkamann.
Verð 1.990 kr
Gleðileg jól
verslun.solheimar.is