Skip to main content

Litli Hver 2026. 09. tbl 8 bls

Page 1

Bls. 3 Hinn vinsæli þáttur, vissir þú á

vísum stað. vissir þú að ef framköllunarvökva… ...að maður sem hleypur aftur á bak

Bls. 6 Klúbbhúsamódelið samræmist

nýjum áherslum í geðheilbrigðisþjónustu og undirstrikar hlutverk þessara áherslna bæði í samfélagslegri nálgun og á sjúkrahúsum.

Litli Hver

Camille 10 km

Myndir frá Reykjavíkurmaraþoni 2026.

09. tbl. 2026

Amir 10 km

Helgi Dagur 3 km skemmtiskokk


2

Septemberpistill/gæla Er haustið eitthvað að kíkja innum glufur hugans að búa sig undir mildan vetur fagurra loforða? Samfélagið allt hljómar af þeim ómi sem eins og skapar bjarta framtíð allra Íslendinga og jafnvel alls heimsins. Veit ekki hvort þetta er bara ég eða hvort raunveruleikinn sé að lýsa því yfir að hann komist ekki með tærnar þar sem óráðið hefur hælana. Öfgar veðurfarsins endurspeglast stundum í óráðinu eða kannski skapar óráðið hliðstæðan veruleika veðurfarsins sem lítið á skylt við það sem daglega blasir við augum heldur nýtur ásta með ofurtúlkunaráráttunni sem fer fyrir vagni sem ferðast hraðar en alheimurinn þenst út. Nú þannig er það, hvort heldur líkar betur eða verr. Vindar blása mishratt og lognið getur þyrlað upp moldviðri. Sú óeiginlega merking að þyrla upp e-u er að vekja athygli, hleypa upp deilum jafnvel að skapa óeiningu milli ólíkra hópa og skoðana í samfélaginu. Þegar þessi gæla er komin í hendur lesenda Litla Hvers heldur lífið áfram eins og áður með nýjum fyrirheitum um fagra og frjóa framtíð okkar allra. Með framtíðarkveðju Benedikt Gestsson

Forsíðumyndirnar

Camille, Amir og Helgi Dagur

Myndirnar á forsíðu Litla Hvers eru af þátttakendum í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka sem hlupu til styrktar Klúbbnum Geysi. Við Camille leggur af kunnum þeim hinar stað og á hæla hennar kemur bestu þakkir fyrir velviljann og stuðninginn. vinkona henna Milla

Vissir þú ... ... að ef framköllunarvökva er hellt í tóma fötu framkallast botninn á fötunni og myndin birtist á Netflix. ...að maður sem hleypur aftur á bak í maraþoni kemur í mark á undan öllum öðrum, því eðlilega þarf hann að byrja þar sem áframhlauparar enda. ... Að til er staðalskref sem geimfarar þurfa að standast til þess að fá vinnu hjá NASA Þessir mannvitsbrekkufrasar eru birtir án ábyrgðar.

Litli Hver Útgefandi: Klúbburinn Geysir.

Framkvæmdastjóri: Benedikt Gestsson. Þeir sem unnu þetta blað: Fannar, Kjartan, Helgi Dagur, Gísli, Camille, Benni. Heimilisfang: Skipholt 29. Sími: 551-5166, tölvupóstur kgeysir@kgeysir.is Heimasíða:www.klubburinngeysir.is Facebook: Klúbburinn Geysir, Instagram: klubburinn_geysir #geysirclubhouse


3

Úr sagnabrunni Gísla Rich

Er það þessi ljóti? Einu sinni hringdi Siggi, skipstjórinn á Ottó N. Þorlákssyni RE 203 í mig og spurði hvort ég vissi hvar Frosti bróðir minn var því það vantaði mann í pláss. Ég sagði við hann að Frosti væri í meðferð, en ég ætti annan bróður. Siggi spurði hvað hann héti. „Hann heitir Hér er mynd af Vigga Viggi,“ sagði sem tekin er mörgum ég. árum síðar. Eins og sjá má er hann fagur sem Þá sagði Siggi. fyrr. „Já komdu með helvítið.“ Ég hafði svo samband við Vigga sem var til í tuskið. Þegar ég kem með honum um borð, sagði Siggi: „Er það þessi ljóti?“ Viggi móðgaðist ekkert við þetta ávarp og þáði bara plássið og varð lengi afleysingarmaður á Ottó ER.

Öflugt tengslanet, sterkari niðurstaða Í ársskýrslu Clubhouse International 2025 kennir ýmissa jákvæðra grasa jafnt fyrir klúbbhúsahreyfinguna sem og geðVottunarmerki heilbrgiðisþjónustu á Clubhouse International heimsvísu. Hér gluggum við aðeins í skýrsluna. Náð var nýjum áfanga þar sem 262 Klúbbhús uppfylltu kröfur um faggildingu/vottun, sem er það hæsta í sögu klúbbhúsahreyfingarinnar. Í dag eru meira en 70% klúbbhúsa faggild, sem endurspeglar ríka skuldbindingu og ábyrgðarskyldu, framúrskarandi starfs innan alþjóðlega tengslanetsins. Vottunin byggir á alþjóðlegum viðmiðum fyrir starfsemi Klúbbhúsa (International Standards for Clubhouse Programs™) og er strangt jafningjarýniferli sem er nauðsynlegt til að viðhalda gæða árangri fyrir félaga klúbbhúsanna. Vottunarheimsóknir eru framkvæmdar af fagráði Clubhouse International, sem telur 117 félaga og starfsfólk klúbbhúsa frá 13 löndum, en tæplega helmingur þeirra býr yfir persónulegri reynslu af geðsjúkdómum. Vottuð klúbbhús halda áfram að ná einhverjum besta árangri í atvinnumálum innan geðheilbrigðisþjónustu í samfélaginu og hjálpar félögum að byggja upp innihaldsrík tengsl innan sinna klúbba samhliða því að stefna að þýðingarmiklum og varanlegum bata. Benni sneri


4

Matseðill fyrir september 2026 Matseðill er birtur með fyrirvara um breytingar Hægt er að panta samlokur í hádeginu fyrir klukkan 10.00 Mán.

Þri.

Mið.

Fim.

Fös.

Lau.

Hefur þú tillögur að skemmtilegri matseld og hugmyndir um aukna fjölbreytni á matseðli Klúbbsins Geysis? Mættu þá á eldhúsfund kl. 10.30 síðasta mánudag hvers mánaðar og taktu þátt í að móta heilsusamlegan og fjölbreyttan matseðil. Hægt er að panta samlokur ef einhverjum hugnast ekki það sem er á matseðli


5 Fróðleiksmolar í samvinnu við gervigreindina Chat GPT og Klúbbinn Geysi

Er maraþon öfgasport/íþrótt? Hefðbundið maraþonhlaup er almennt ekki skilgreint sem öfgasport, heldur flokkast það sem þolíþrótt (e. endurance sport). Öfgasporti fylgir yfirleitt mikil slysahættu, adrenalínflæði og ófyrirsjáanlegar aðstæður, á meðan maraþon byggir á skipulögðum og stýrðum æfingum. Hins vegar getur álagið á líkamann verið gríðarlegt og landamærin á milli þolíþrótta og öfgasports geta orðið óskýr þegar farið er út í lengri vegalengdir. Af hverju er maraþon ekki öfgasport? Stýrt umhverfi: Borgarmaraþon eins og Reykjavíkurmaraþonið fer fram á lokuðum og öruggum malbiksvegum með drykkjarstöðvum og sjúkragæslu. Lág bráðahætta: Slysahætta er lítil samanborið við íþróttir eins og fallhlífarstökk, svifflug eða jökulklifur þar sem tækjabúnaður eða náttúruöfl ráða úrslitum. Fjöldaíþrótt: Maraþonhlaup eru hönnuð fyrir breiðan hóp fólks, allt frá afreksfólki til áhugafólks og byrjenda. Af hverju maraþon er þolíþrótt en ekki öfgaíþrótt? Lág dánartíðni og slysahætta: Öfgaíþróttir (e. extreme sports) einkennast oft af beinni lífshættu eða mikilli hættu á alvarlegum slysum (t.d. fallhlífarstökk eða klettaklifur án línu). Í maraþoni eru meiðsli algeng (t.d. álagshlutar eða vöðvatognanir), en alvarleg heilsuspillandi tilvik eru mjög sjaldgæf. Skipulagt og öruggt umhverfi: Flest stór hlaup, eins og Reykjavíkurmaraþonið eða stóru hlaupin í New York og London, fara fram á lokuðum malbikuðum götum þar sem mikið öryggis- og sjúkralið er til taks meðfram allri leiðinni. Almenningsíþrótt: Maraþonhlaup eru opin fólki á öllum aldri og með mismunandi getustig. Þúsundir áhugamanna ljúka slíkum hlaupum á hverju ári með réttum undirbúningi.

Spurning mánaðarins Hvernig var upplifun þín af sólmyrkvanum 12. ágúst síðastliðinn?

Gísli Richhardsson

Ladislav

Fannar

Helgi Dagur

Benni

Guðný


6

Viðhorf félaga til samfélagslegs geðheilbrigðisstuðnings: Eigindleg rannsókn með það að markmiði að efla skilvirkni og stækka rannsóknargrunninn

Myndin er fengin af heimasíðu Mosaic klúbbsins í London. https://www.mosaic-clubhouse.org/ employment education

Geðsjúkdómar eru áfram alþjóðlegt vanda- ferðislegar kröfur. Fjögur þemu komu fram mál og úrræði til meðferðar innan samfésem endurspegluðu upplifun þátttakenda af lagsins eru takmörkuð. Til að bregðast við bata: „Tilfinning fyrir stöðugleika og velþví hefur átt sér stað breyting í átt að samfé- líðan“ (bætt dagleg færni vegna skipulagðs lagslegum nálgunum, eins og hinu alþjóðstuðnings), „Tilfinning fyrir tilgangi“ (að lega Klúbbhúsamódeli (e. Clubhouse model), finna tilgang með því að leggja sitt af sem byggir á skipulögðum vinnudegi (e. mörkum til samfélags Klúbbhússins), work-ordered day). Þessi rannsókn skoðar á„Tilfinning fyrir árangri“ (persónulegur hrif Klúbbhúss í London á Englandi á vel- vöxtur í gegnum færniþróun og sjálfræði) og líðan og bata félaga, með það að markmiði „Tilfinning fyrir að tilheyra“ (félagsleg að efla geðheilbrigðisþjónustu. tengsl og samþykki innan klúbbsins). Eigindleg frumrannsókn var gerð í Þátttakendur sögðu að þeim liði „síður illa“ Mosaic Klúbbhúsinu með 16 þátttakendum. með sjálfa sig, að líf þeirra hefði „lifnað við Gögnum var safnað með hálfstöðluðum á ný“ og að innlögnum á sjúkrahús hefði viðtölum og rýnihópaviðræðum, og þau í fækkað. framhaldinu þemagreind í samræmi við siðMeðal áskorana sem taldar voru upp voru


7

starfsmannavelta, endurtekin verkefni og færri möguleikar í stjórnun klúbbsins. Rannsóknin dregur fram mikilvægi þess að mæta grundvallarþörfum mannsins í geðheilbrigðisúrræðum. Hún styður samfélagsleg batamódel sem leggja áherslu á samvinnu, valdeflingu og það að tilheyra. Klúbbhúsamódelið samræmist nýjum áherslum í geðheilbrigðisþjónustu og undirstrikar hlutverk þessara þarfa bæði í samfélagslegri nálgun og á sjúkrahúsum. Framtíðarrannsóknir gætu skoðað hvaða tilteknu verkefni innan Klúbbhúsa draga helst fram árangur sem tengist bata, og hvernig hægt er að stækka slík úrræði til að brúa eyður í þjónustu. Áhugasamir geta nálgast rannsóknina hér: https://link.springer.com/ article/10.1007/s40737-026-00542-x Benni snaraði með aðstoð Chat GBT

Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka 2026

Helgi Dagur félagi í Geysi tók þátt í 3 km skemmtiskokki og Camille Kouache sjáfboðaliði í Geysi tók þátt í 10 km hlaupi án tímatöku. Einnig hljóp Amir Maron Ninir fyrir Geysi í 10 km hlaupi með tímatöku.

„Reykjavíkurmaraþonið 2026 er fyrsta hlaup sem ég hef tekið þátt í (þá er ekki tekið með utanvegahlaup sem var skylda þegar ég var í skóla og þoldi ekki) en maraþonið var nokkuð skemmtilegt,“ segir Camille og bætir við:

„Ég byrjaði að hlaupa þegar ég var blankur námsmaður, það var leiðinlegt en ódýrt. Nú þegar Helgi Dagur byrjaði að tala svo mikið um Reykjavíkur maraþonið fyrr á þessu ári hugsaði ég að það væri frábært tækifæri að nýta margar klukkustundir af þjáningarfullu hlaupi til góðra verka. Nýtt land, nýtt tungumál, nýtt starf…einnig fannst mér ný áskorun á þessu ári hið rétta í stöðunni. Ég verð að viðurkenna að ég æfði ekki mikið fyrir hlaupið. Ég taldi Helgi í stuði fyrri hlaup mig nógu þrjóska til þess að klára hlaupið og það gerði ég á 1 klst. og átta mínútum! Hlaupið var skemmtilegt. Venjulega þegar ég hleyp hlusta ég á Taylor Swift, en að hlaupa með 4284 öðrum hlaupurum og svo marga til að hvetja mann áfram gerði þetta miklu skemmtilegra. Ég er ekki viss um að ég geri Camille peppuð fyrir hlaup þetta aftur, en mér leið stórkostlega að hlaupa fyrir Klúbbinn Geysi. Einnig er ég mjög hreykin af Helga Degi og Amir og sjálfri mér fyrir að safna góðri upphæð fyrir jafn góðan stað og Geysir er og allt góða fólkið sem sækir staðinn. Þetta var allt þess virði þrátt fyrir svita, blöðrur og sára fætur.“ Camille


8

Geðheilsa er líka heilsa Félagsleg dagskrá í september Fimmtudagur 3. september Borgarsögusafnið-Ljósmyndasafni Grófinni. Sýning Þórdísar Erlu Ágústsdóttur / Hjartaþræðir. Með leiðsögn Lagt af stað frá Geysi kl. 14.45 Fimmtudagur 10. september Helgi Dagur á afmæli og ætlar að mæta með köku í Geysi Þriðjudagur 11. september. Dálítið afmælisboð í tilefni 27 ára afmælis 6. sept Klúbbsins Geysis. Fimmtudagur 17. september Nánar auglýst síðar

Fimmtudagur 24. september Nánar auglýst síðar

Dregið í Skjáfréttagetrauninni: Enginn skilaði inn réttum lausnum í síðustu skjáfréttagetraun. Ný getraun komin á skjáinn. Takið þátt!

Þessi mynd birtist á heimsíðu ruv.is Hér er Camille með Andres sem er sjálfboðaliði hjá Rauða krossinum og Margaret vinkonu sinni í Hafnarhúsinu á menningarnótt að halda blöðru á lofti Birt með góðfúslegu leyfi Ara Pálls Karlssonar ljósmyndara á RÚV.

Breytingar á útgáfu Litla Hvers Litli Hver hefur komið út á prenti frá því að klúbburinn var stofnaður. Hverinn hefur verið settur upp í publisher foritinu sem hefur fylgt office-pakkanum, en nú eru blikur á lofti því Windows ætlar að hætta með þetta forrit að uppfæra og styðja við publisherinn. Verið að tékka á öðrum forritum sem eru ókeypis, en lítið framboð á slíku. Þetta 9. tbl. sem þú hefur nú í höndunum eða lest á skjánum er því síðasta blaðið sem unnið er í publisher. Verðum vonandi komin með annað forrit sem 10. tbl. verður unnið í.


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Litli Hver 2026. 09. tbl 8 bls by klubburinngeysir.is - Issuu