Skip to main content

Litli Hver 2026. 07. tbl 4 bls

Page 1


Bls. 3: Richard Castle og Stephanie Birck voru í heimsókn á Íslandi í júní, en þau eru bæði félagar í Fountain Houes klúbbnum í New York.

Litli Hver

07. tbl. 2026

Bls. 4: Styrkjum

Klúbbinn Geysi á hlaupastyrkur.is. Helgi og Camille ætla að hlaupa til styrktar Geysi.

Klúbburinn Geysir verður lokaður frá 22. júní til 27. júlí. Njótið sumarsins

Stepanie og Richard í Geysi
Helgi og Camille

Júlípistill/gæla

Hvar byrjar jaðarinn og hvar endar hann. Margt er skrafað um jaðar þetta og jaðar hitt og ef skoðað er þá þurfa allir sem vilja ná máli í umræðunni að nudda sér upp við hann. Að vera í góðum tengslum við einhverja eða einhvern sem skiptir máli; er opinber persóna og hefur þau áhrifaríku gen að geta stjórnað umræðunni og tekið upp á sína arma. Þannig þrífst hvorutveggja á hinu og getur ekki án hins verið. Þannig liggur jaðarinn beggja vegna hryggjar. Jaðarsetningar telja sig iðulega hlunnfarna og niðurlægða af samtíðinni og hafa jafnvel dröslast með slíka byrði margra kynslóða. Jaðarinn vill fá viðurkenningu og hjálp kúgarans í þeirri von að þurfa ekki að tilheyra jaðrinum. Þess vegna er leynt og ljóst verið að viðhalda kerfi og valdahlutföllum í samfélaginu sem í raun lifir á jaðarsetningunni og öfugt eins og fyrr var getið.

Eitt sinn er mér sagt, var knattspyrna jaðaríþrótt í þeirri mynd sem við nú þekkjum, stunduð sem dægrastytting af almúganum. Svo kemur að því að valdastéttin finnst að sér vegið og sér hag sinn í því að ná betri stjórn á fólki með því að gera fótbolta að draumi um frama og auð. Í dag má sjá að árangur þessarar fjárfestingar í meðhöndlun stórkapitalsins. Mikið fé og ekkert til sparað, og fjöldi fólks leiddur í múgæsingu inn á stóra íþróttavelli og fyrir framan skjái af ýmsum stærðum og gerðum þar sem stóra fixið róar alla til meðvitundarleysis.

MeðjaðarkveðjuBenediktGestson

Forsíðumyndin

Forsíðumyndina að þessu sinni tók sjálfboðaliðinn okkar Camille

Kouache. Hún var á ferðalagi um

Snæfellsnes í júní og tók þessa mynd af Kirkjufelli við Grundarfjörð. Þetta fell /fjall er líklega eitt af mest ljósmynduðu fjöllum á Íslandi, end er það ósköp fótógenískt/ ljósmyndavænt. Camille var á ferð með vini sínum Lucas og nutu þau ferðarinnar í hvívetna.

Norsk heimsókn

Magnus Grave Mathiesen er maður norskur, sem kom til ísland í júní til þess að stunda íslenskunám í sumar -háskóla HÍ. Hann er félagi

í Norska klúbbhúsinu Oslo

Sud sem er jú hluti af suður Osló. Hann hafði samband við Klúbbinn

Magnús stillti sér upp fyrir ljósmyndarann

Geysi og hefur verið að mæta í klúbbinn. Hann sagði námið nokkuð strembið, en reyndi að gera sitt besta. Við óskum honum velfarnaðar í Íslandsdvölinni

Litli Hver Útgefandi: Klúbburinn Geysir. Framkvæmdastjóri: Benedikt Gestsson. Þeir sem unnu þetta blað: Fannar, Kjartan, Helgi Dagur, Gísli, Camille, Benni. Heimilisfang: Skipholt 29. Sími: 551-5166, tölvupóstur kgeysir@kgeysir.is Heimasíða:www.klubburinngeysir.is Facebook: Klúbburinn Geysir, Instagram: klubburinn_geysir #geysirclubhouse

Kirkjufell

Heimsókn frá

Bandaríkjunum

Richard Castle og Stephanie Birck voru í heimsókn á Íslandi í júní, en þau eru bæði félagar í Fountain Houes klúbbnum í New York. Richard hefur og tekið viðtöl og skrifað um klúbba sem hann hefur heimsótt víða um heim fyrir Fountain House Times. Þau voru hér á eign vegum en langaði að skoða Klúbbinn Geysi í leiðinni. Þeim leist vel á klúbbinn og húsnæðið, og voru mjög áhugasöm að ræða við félaga. Þau dvöldu í klúbbnum vel á fjórða tíma og sátu meðal annars húsfund sem var á dagskrá þennan dag. Þeim þótti áhugavert hvernig hann fór fram og hvaða mál voru rædd. Samt rímaði það allt við það sem þau höfðu séð í öðrum klúbbhúsum. Við þökkum þeim heimsóknina og góða viðkynningu.

Richard og Stephanie stilltu sér upp fyrir ljósmyndarann í skrifstofudeildinni

Myndin er frá húsfundinum. Fremst á myndinni er Aðalheiður að lesa fundargerð síðasta húsfundar með son sinn Viktor í fanginu, þá Stephanie, Richard og Gðmundur Kristjánsson

Hvað ætlar þú að gera í sumarfríinu þín?

Tommi: Það er alltaf sumarfrí hjá mér.

Krissa: Ég veit það ekki ennþá.

Gísli: Hvíla mig og fara til Patró.

Helgi: Horfa á fótbolta, fara á völlinn og ljósmynda, og djamma svolítið.

Guðmundur: Njóta útiverunnar, synda og ganga.

Vegna sumarleifa verður Geysir lokaður frá

22. júní til 27. júlí 2026

Geðheilsa er líka heilsa

Klúbburinn

Geysir

verður lokaður

22. júní fram til 27. júlí vegna sumrfría.

Sjáumst aftur mánudaginn

27. júlí hress eftir sumarfríið

Góð heimsókn

Duc Trung

Dung Vuong

hefur verið félagi í Geysi frá 2011. Hann

hefur fengið vinnu með aðstoð Geysis, bæði ráðningu til reynslu og atvinnu með stuðningi. Núna er hann að vinna hjá Grænum skátum og líkar vel. Hann kom við í Geysi í tilefni þess að hann átti afmæli 6. júní og vildi fagna með okkur. Hér er hann á mynd fyrir utan Geysi.

Helgi Dagur og Camille

taka þátt í áheitahlaupi

Reykjavíkurmaraþons

Helgi Dagur Halldórsson Geysisfélagi og Camille Kouache sjálfboðaliði í Geysi ætla að hlaupa til styrktar

Klúbbnum Geysi í áheitahlaupi Reykjavíkurmaþons og Íslandsbanka.

Helgi Dagur tekur þátt í 3 km skemmtiskokki en Camille tekur þátt í 10 km hlaupi. Þau stunda nú æfingar stíft til þess að undirbúa sig fyrir keppnina. Hægt er að heita á þau með því að fara á https://www.rmi.is/ hlaupastyrkur/godgerdamal/435styrktarfelag-klubbsins-geysis

Dregið í Skjáfréttagerauninni

Enn vinnur Gísli Richardssosn í getraun Skjáfrétta og nú í júní. Við óskum honum til hamingju með vinninginn sem er lítið kaffikort.

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook