Bls. 3: Úr sagnabrunni Gísla
Rich. „Strákar, eigiði eld?“
Það tók langan tíma og

Bls. 6: Ellefu draumadagar ognætur á Suður


![]()
Bls. 3: Úr sagnabrunni Gísla
Rich. „Strákar, eigiði eld?“
Það tók langan tíma og

Bls. 6: Ellefu draumadagar ognætur á Suður


06. tbl. 2026
Sköpun, mikið orð og felur í sér ótrúlega fjölbreyttan garð hvar vaxa hugmyndir og spekingar lesa af greinum hugans. Hvort kom á undan myrkrið eða ljósið hafa guðfræðingar og raunveruhyggjar deilt um eins lengi og elstu heimildir herma og ekki síst hver ákvað að skapa það og festa í biblíu hugmyndir hins þriðja (guðs og hver skapaði hann) um sköpun heimsins, sem er vel að merkja eru miklu yngri en margar aðrar hugmyndir um heimsins tilurð.
Reyndar ætlaði ég ekki að fjalla um þá sköpun sérstaklega heldur almennan sköpunarkraft sem býr innra með hverjum og einum. Hvaðan kemur hann og hvers vegna er hann mikilvægur og er sköpun afleiðing eða orsök. Umhugsunarverð pæling um eitthvað sem er kannski hvoru tveggja og þrífst ekki án hins.
Hygg að almennt þurfi til eitthvað sem kalla má ímyndunarafl jafnvel forvitni um eitthvað sem er óskiljanlegt og löngun til að skilja eitthvað en að breyta því í leiðinni. En það sem í einum skapandi huga kann að vera til batnaðar og blessunar þá er það hið gagnstæða hjá öðrum. En í sköpun þarf ekki að liggja skilningur, heldur hugsanlega aðeins löngunin til að skilja. Svo þarf þetta ekkert endilega að
haldast í hendur, því sköpun getur staðið ein og sér og þarf ekki endilega að tengjast öðru en hugmyndaflugi
þess sem skráði eða kom á framfæri með einum eða örðum hætti. MeðskaparakveðjuBenediktGestson
Forsíðumyndin að þessu sinn er tekin út um gluggan á þriðju hæð Geysis.
Frekar gráleit mynd í upphafi sumars en við erum þolinmóð og bíðum eftir að sólin láti sjá sig enn á ný. Hitt er annað mál að miklar framkvæmdir eru í gangi eins og sjá má á fjölda byggingakrana í bakgrunni, svo einhver glæta er í efnahagnum.

Útsýnið að framan
Vissir þú ...
... að skrárgöt eru til þess gerð að í passi lykill.
... að ekki passa sömu lyklar í sömu skráargöt
... að lyklar eru ekki endilega hlutur heldur geta þeir verið huglæg birting eða mynd til að leysa flókin mál.
... að handan skrárgata eru ekki endilega skrár.
... að skrásetning er ekki sérstaklega verkefni skrásetjara
Litli Hver Útgefandi: Klúbburinn Geysir. Framkvæmdastjóri: Benedikt Gestsson. Þeir sem unnu þetta blað: Fannar, Kjartan, Helgi Dagur, Gísli, Camille, Benni. Heimilisfang: Skipholt 29. Sími: 551-5166, tölvupóstur kgeysir@kgeysir.is Heimasíða:www.klubburinngeysir.is Facebook: Klúbburinn Geysir, Instagram: klubburinn_geysir #geysirclubhouse

Þegar ég var 16 ára árið 1978 var ég á Dofra BA 25. Afi minn átti 40% í bátur og var hann búinn að ráða mig áður en skipið var keypt. Þetta ár verður eldsvoði um borð í Dagfara ÞH 70 úti fyrir minn Patreksfjarðar. Varðskip kom á staðinn og náði að koma tógi í Dagfara og draga hann inn til Patreskfjarðar. Dofrinn var í landi og fimm kallar af Dofranum sem náðist í voru kallaðir um borð til að aðstoða

Dagfari HÞ 25 Myndin er fengin af síðunni: https:// skipamyndir.com/2018/12/18/dagfari-thh-70-asildveidum/#jp-carousel-538
slökkviliðið við slökkvistarfið. Varðskipsmenn vildu ekki binda varðskipið við brennandi Dagfara svo ákveðið var að binda Dofran við skipið og slökkvistarf hafið. Það tók langan tíma og miklum sjó dælt í eldsrúmið.
Einnig voru sendir reykkafarar inn með slöngur að dæla á eldinn. Ég hugsa að slökkvistarfið hafi tekið hátt í sex tíma en engum varð meint af. Aðeins til að segja frá grallaraskap manna og gamansemi þá birtist allt í einu einn úr áhöfn Dofrans í kírauga Dagfara. Hann var með sígarettu í kjaftinum og spurði: „Strákar eigiði eld“. Sumarið eftir rétt fyrir Verslunarmannahelgi var ég á Viðey RE og á leiðinni út á sjó þegar ég var að skoða bankabókina mína. Þá er búið að leggja inn á mig nokkuð væna upphæð sem jafngilti
tekjum einnar vertíðar. Það voru björgunarlaun fyrir slökkvistörf í Dagfara. Ég hætti við að fara í túrinn með Viðeynni og fór á djammið í staðinn.
Námsmannaverkefni

Nú á vorönninni hafa nemendur í Borgarhotsskóla unnið verkefni um Geysi í tengslum við nám sitt. Þórdís Guðrún Jakobsdóttir er einn þeirra nemanda en hún er á félagsliðabraut Borgarholtsskóla og vann að verkefni um virkniúrræði. Fyrir aftan hana eru Björg Jakobsdóttir og Hulda Ósk Traustadóttir félagar í Geysi
Matseðill er birtur með fyrirvara um breytingar
Hægt er að panta samlokur í hádeginu fyrir klukkan 10.00
Hefur þú tillögur að skemmtilegri matseld og hugmyndir um aukna fjölbreytni á matseðli Klúbbsins Geysis? Mættu þá á eldhúsfund kl. 10.30 síðasta mánudag hvers mánaðar og taktu þátt í að móta heilsusamlegan og fjölbreyttan matseðil. Hægt er að panta samlokur ef einhverjum hugnast ekki það sem er á matseðli
Fróðleiksmolar í samvinnu við gervigreindina Chat GPT og Klúbbinn Geysi
Fyllist þú einhverntíma kvíða?
Sem gervigreind finn ég hvorki fyrir kvíða, tilfinningum né líkamlegri skynjun. Ég er forrit sem vinnur úr texta og ég á mér enga persónulega reynslu.
Kvíði er aftur á móti mjög raunveruleg og algeng mannleg upplifun. Ef þú ert að ganga í gegnum erfiða tíma eða finnur fyrir vanlíðan, eru hér nokkur gagnleg skref sem hægt er að taka:
Viðbrögð í miðju kvíðakasti:
5-4-3-2-1 tæknin: Virkjaðu skynfærin til að jarðtengja þig í núinu.
Sjáðu: Nefndu 5 hluti í umhverfinu sem þú sérð í kringum þig.
Snertu: Finndu 4 hluti sem þú getur snert (t.d. fötin þín eða borðplötu).
Heyrðu: Veittu 3 hljóðum eftirtekt (t.d. umferð, fuglasöng eða tækjasuði).
Finndu lykt: Taktu eftir 2 hlutum sem þú finnur lykt af.
Smakkaðu: Veittu einum hlut eftirtekt sem þú finnur bragð af.
Kaldara vatn: Skolaðu andlitið með ísköldu vatni til að hægja á hjartslætti.
Líkamsskönnun: Einbeittu þér að því að slaka meðvitað á herðum, kjálka og hnefum.
Ertu ánægð/ur með úrslit kosninganna í Reykjavík?

Camille: Þekki íslenska póiltík ekki svo vel, en frá mínum sjónarhóli er ég ekki svo ánægð.

Kjartan Þór: Mjög ánægður.

Fannar: Ég er mjög ánægður en óttast að sjallarnir fari í samstarf við vinstra liðið.

Gísli: Já, já alveg sáttur.

Guðný Inga: Ég veit það ekki.

Ingi Már: Ég fylgist ekkert með þessu.
Í maí hélt ferðalangurinn og félagi í Geysi, Kjartan Þór Ingþórsson af stað út í kastalaveröldina og nú ásamt félaga sínum Sigurði Pétri Árnasyni.
Þeir eru nýkomnir heim frá ferðalagi um Suður England þar sem þeir fóru til Stonehenge, Nunney Castle, Old Wardour Castle, Southhamton og Salisbury Cathedral, sem er ein stórkostlegasta dómkirkja í vestur Evrópu.

Ferðalagið hófst í London þar sem heimsóttur var Tower of London sem Vihjálmur sigurvegari reisti og

krúnudjásn sameinaðs konungsveldisins eru geymd.Tower of London er einn stórkostlegasti kastali í heimi. Má kalla hann meistaraverk í byggingarsögulegu samhengi.
Einnig fóru þeir í Vísindasafnið þar sem hægt er að skoða fyrstu gufuvélar og bíla í heimi sem eru upphaf iðbyltingarinnar sem hófst á Bretlandi
Í London skoðuðum þeir einnig elstu kirkju í London St. Barthholomew sem enn stendur og var reist árið 1123. „Næst var ferðinni heitið til Salisbury, segir Kjartan Þór. „Við skoðuðum þar dómkirkjuna, sem er reist á 38 árum frá 1220 til 1258 sem er einstakt í mannkynssögunni. Á miðöldum var hún lengi vel ein hæsta bygging á Englandi eða 123 metrar og er enn hæsta kirkjubygging á Englandi. Magna Carta einn mikilvægasti lagabálkur mannkynssögunnar er varðveittur í Salisbury sem Jóhann konungur var þvingaður til að undirrita árið 1215 í Runnymede, en það var aðallinn sem sem stóð fyrir því. Með þessu skjali var Jóhann konungur ekki lengur hafinn yfir lög landsins.“
Stonehenge er um 3500 ára gamalt mannvirki og ekki vitað í hvaða tilgangi það var reist en er talið reist á steinöld Algengasta skýring er að það hafi verið reist til að fylgjast með árstíðum og gangi himintunglanna um festinguna,

sérstaklega sumar- og vetrarsólstöður. Þetta var bændasamfélag akuryrkju og kvikfjárræktar. Því er talið að Stonehenge segi til um hvenær skyldi sá og uppskera og tengist því matvælaöryggi. Menn hafa því verið komnir með fasta búsetu. Staðurinn

að verkfæri hafi verið notuð til að móta steinblokkirnar, ekki er þó vitað hvaða aðferð var notuð til að byggja Stonehenge
Kjartan segir að það hafi verið himnesk og stórkostleg upplifun að koma til Stonehenge og eiginlega ólýsanlegt að sjá með berum augum. „Einnig var veðrið frábært og jók á stemningun.“
Kjartan Þór og Benni tóku saman Myndirnar tók Sigurður Pétur
Nokkur orð um sögu
Klúbbhúsahreyfingarinnar
Klúbbhúsahreyfingin rekur upphaf sitt til Fountain House klúbbhússins í New York á fimmta áratug síðustu aldar. Síðan hefur hreyfingin stækkað og þróast í meira en 75 ár. Sýnt hefur verið fram á að aðferðafræði samfélagaslegrar virkni hefur nýtst klúbbfélögum vel um allan heim. Þessi aðferðarfræði virðir réttindi, reisn og drauma félaga um leið og hún hvetur okkur til að byggja og eða endurreisa sjálfstraust, félagsleg tengsl, starfsgetu og lífið sjálft.
Það starf sem hófst í litlum hópi í New York hefur síðan vaxið í alþjóðlegt tengslanet úrræða sem hefur það sameiginlega markmið að félagar nái bata. Sérhvert klúbbhús á sína sögu, einstaka sögu í hverju samfélagi um leið og það markar framtíðarsýn byggða á því sem það stendur fyrir. Með því að þekkja sögu hvors annars á heimsvísu, áskoranir, árangur og baráttu getum við byggt stekari klúbbhús til framtíðar.

Sérfræðingar frá Vinnumálastofnun í kynnningu
Björn Valdimar Halldórsson sérfræðingur hjá Vinnumálastofnun kom með tvo sérfræðinga hjá Stofnunni í kynningu í maí. Skemmtileg og ekkí síður fróðlegt spjall um hugmyndafræði Geysis og samstarfið við Vinnumálastofnun. Á myndinni hér að ofan fr.v. Sunna Rós Sigmundsdóttir Björn Valdimar og Björn Finnbogason. Þökkum þeim fyrir áhugann og innlitið.
Fimmtudagur 4. júní
Kaffihúsaferð. Auglýst síðar
Fimmtudagur 11. júní
Föndurstund með Krissu og Camille 15.00 til 16.00
Föndurstundin verður helguð demantamyndamálun.
Tæki og tól á staðnum. Demantar, penni og vax.
Fimmtudagur 18. júní
Nánar auglýst síðar
Fimmtudagur 25. júní
Nánar auglýst síðar
Tekið í spil
Létt og skemmtilegt spilasíðdegi var haldið dag einn í maí. Spiluð var vist og manni og tóskt ágætlega. Skemmtu menn sér vel, drukku kaffi og gæddu sér á súkkulaðiköku og röðuðu inn slögum.

Dregið í Skjáfréttagetrauninni:
Gísli Richardsson var með rétta svarið
í getraun Skjáfrétta í maí. Við óskum honum til hamingju með vinninginn sem er lítið kaffikort.

taka þátt í áheitahlaupi Reykjavíkurmaraþons


Helgi Dagur Halldórsson Geysisfélagi og Camille Kouache sjálfboðaliði í Geysi ætla að hlaupa til styrktar Klúbbnum Geysi í áheitahlaupi Reykjavíkurmaþons Íslandsbanka. Helgi Dagur tekur þátt í 3 km skemmtiskokki en Camille tekur þátt í 10 km hlaupi. Þau stunda nú æfingar stíft til þess að undirbúa sig fyrir keppnina. Hægt er að heita á þau með því að fara á https://www.rmi.is/hlaupastyrkur/ godgerdamal/435-styrktarfelag-klubbsinsgeysis
17. júní þjóðhátíðardagur
Íslendinga
Minnum á að 17. júní þjóðhátíðardag Íslendinga verður lokað í Geysi. Gleðilega þjóðhátíð