Bls.7 Úr sagnabrunni Gísla Rich
Til dæmis slökkti ég eitt sinn öll ljósin í lestinni þegar menn voru á fullu við vinnu. Auðvitað varð allt vitlaust út af því.

![]()
Bls.7 Úr sagnabrunni Gísla Rich
Til dæmis slökkti ég eitt sinn öll ljósin í lestinni þegar menn voru á fullu við vinnu. Auðvitað varð allt vitlaust út af því.

05. tbl. 2026
Bls. 7 Nýtt merki CI
Með þessu nýja merki eru áréttuð tengsl við alþjóðlega viðurkennt samstarf um geðheilbrigðisbata.


Eitt sinn svaraði góður maður þegar hann var spurður að því hvort hann myndi hvað hann hafði dreymt þá um nóttina: „Lífið er nógu flókið svo maður fari nú ekki að muna drauma sína.“ Athyglisvert og um leið margbrotið svar við einfaldri spurningu. Sér í lagi vegna þess hve draumar eru margbrotnir hvort heldur í vöku eða svefni. Dagdraumar eru þó annars eðlis því þeir eru drifnir af meðvitund vökunnar og hægt að hafa vissa stjórn á þeim meðan draumar svefnsins eru drifnir af óræðari vitund. Það sem einnig er áhugavert við við þessa nálgun er hlutur lífsins í jöfnunni. Það er eins og annað útiloki hitt en endurspegli um leið, samanber ef þessu er snúið á haus „Draumar eru nógu flóknir svo maður fari nú ekki að muna allt sem maður lifir (líf sitt).“ Einhver sagði að lífið væri skapað úr draumum, án þeirra væri ekkert. Hvað er þetta ástand að dreyma sem er svona afgerandi í tilvist hvers manns en enginn veit einhlíta skýringu á hvaðan draumar koma, eða hvert þeir fara með okkur, hvort þeir eru í lit eða gráskala. En líklega er hægt að slá því föstu að draumar eru einstaklingsástand. Þar er maður sjálfur einn en ekki með öðrum. Ekki er vitað að tvo eða fleiri einstaklinga dreymi sama drauminn því enginn getur tekið þátt í draumi þínum með þér. Þú vaknar og kemst að því að lífið er bara draumur en þar er þá hægt að upplifa eitthvað með öðrum...eða hvað?

Fjöll heitir forsíðumyndina að þessu sinni. Benni tók hana þegar létti til eftir snjófarganið um miðjan apríl. Myndin er af Móskarðshnjúkum sem lúra eins og píramídarnir í Gísa einhvers staðar norðaustan við Esjuna og búa ekki síður yfir dulmögnum en píramídarnir.
Fjöll vísa með einum eða öllum tiltækum ráðum í menningarsöguna.
Vissir þú ...
... að til er fólk sem telur jörðina flata
... að sama fólk lætur þess ekki getið hvort þessi flötur er hringlaga ferkantaður eða á annan veg formaður
... að til er fólk sem segir að formið skipti ekki máli í þessu samhengi ... að allt öðru fólki er slétt sama hvort heldur er, svo fremi það dettur ekki fram af.
Litli Hver Útgefandi: Klúbburinn Geysir. Framkvæmdastjóri: Benedikt Gestsson. Þeir sem unnu þetta blað: Fannar, Kjartan, Helgi Dagur, Gísli, Camille, Benni. Heimilisfang: Skipholt 29. Sími: 551-5166, tölvupóstur kgeysir@kgeysir.is Heimasíða:www.klubburinngeysir.is Facebook: Klúbburinn Geysir, Instagram: klubburinn_geysir #geysirclubhouse

Einu sinni þegar ég var bátsmaður á Ásgeiri RE 60 fórum við á veiðar á stað sem ætíð var og er nefndur Fjöllin. Þegar ég var á Ottó N og var alltaf haft á orði að Fjöllin væru annað heimili Ottós N. En það er önnur saga og bíður betri tíma. Í
þetta sinn vorum við búinir að vera á veiðum í ágætis fiskeríi á Fjöllunum. Eitt fjallið var kallað Baujuhóll en þar vorum við að mokveiða ufsa. Þá veiktist ég og dreymdi að guð væri að ausa ufsanum upp í skipið. Í
framhaldi af því var ég farinn að gera alls konar vitleysur um borð og gekk svo lang að skipsfélagar mínir töldu mig út úr dópaðan og af því tilefni gerðu þeir leit í klefanum mínum að hugsanlegu dópi. Til dæmis slökkti ég eitt sinn öll ljósin í lestinni þegar menn voru á fullu við vinnu. Auðvitað varð allt vitlaust út af því. Í framhaldi af þessu var ákveðið að sigla með mig í land. Þegar ég hoppa í land hoppar bátsmaðurinn sem ég leysti af um borð og skipið hélt strax aftur á sjó. Pabbi var á kæjanum og vissi eiginlega ekkert hvað átti að gera við mig, en ákvað að fara með mig á löggustöðina þar sem ég var lokaður inni. Ég var alveg salírólegur

Gísl Richardsson sagnameistari við góða heilsu
í klefanum og lá þar í slökun eins og ekkert væri sjálfsagðara. Þeir sögðust ekki geta haldið mér og slepptu mér. Pabbi kom svo og náði í mig og skutlaði mér upp á Kleppsspítala. Hann sagði mér að sú ákvörðun hafi verið sú erfiðasta sem hann hefði tekið í lífinu. Ég var lagður inn á deild 12, sem þá hét og sprautaður niður. Ég var í hálfan mánuð á spítalanum og kominn á sjóinn
fljótlega aftur eftir það, eins og ekkert hefði í skorist.
Matseðill er birtur með fyrirvara um breytingar
Hægt er að panta samlokur í hádeginu fyrir klukkan 10.00
Hefur þú tillögur að skemmtilegri matseld og hugmyndir um aukna fjölbreytni á matseðli Klúbbsins Geysis? Mættu þá á eldhúsfund kl. 10.30 síðasta mánudag hvers mánaðar og taktu þátt í að móta heilsusamlegan og fjölbreyttan matseðil. Hægt er að panta samlokur ef einhverjum hugnast ekki það sem er á matseðli
Fróðleiksmolar í samvinnu við gervigreindina Chat GPT og Klúbbinn Geysi
Hvernig verður lífið á jörðinni árið 2090?
Það er freistandi að svara þessu eins og það sé ákveðin niðurstaða - en raunverulega er árið 2090 mjög háð ákvörðunum sem eru teknar núna. Samt er hægt að teikna upp líklegar sviðsmyndir byggðar á þróun í dag: Loftslag og umhverfi
Ef losun heldur áfram hátt gæti hlýnun vegna Loftslagsbreytingar orðið 2–4°C yfir fyririðnbyltingartíma. Það myndi þýða hærra sjávarmál, tíðari öfgaveður og breytingar á vistkerfum. Ef hins vegar tekst að draga verulega úr losun gæti heimurinn verið stöðugri, með meiri endurheimt náttúru og hreinni orku.
Tækni og daglegt líf
Þróun í Gervigreind gæti gert sjálfvirkni allsráðandi í mörgum störfum. Fólk gæti unnið minna í hefðbundnum skilningi og einbeitt sér meira að skapandi eða félagslegum verkefnum. Lækningar gætu orðið mun nákvæmari, jafnvel sérsniðnar að hverjum einstaklingi með hjálp erfðatækni.
Samfélög og borgir
Borgir gætu orðið „snjallar“ með sjálfkeyrandi samgöngum, orkunýtni og sjálfbærni í forgrunni. Sum svæði gætu orðið erfiðari til búsetu vegna hita eða vatnsskorts, sem gæti aukið fólksflutninga og spennu milli ríkja.
Orka og auðlindir
Mikil áhersla verður líklega á endurnýjanlega orkugjafa eins og sól og vind, og hugsanlega nýjar lausnir eins og kjarnasamruna ef kjarnasamruni verður hagkvæmur.
Daglegt líf fólks
Sumir gætu upplifað meiri lífsgæði, lengri lífslíkur og betri heilsu. Aðrir gætu staðið frammi fyrir auknum ójöfnuði, sérstaklega ef aðgangur að tækni og auðlindum verður misjafn.
Í stuttu máli: Árið 2090 gæti verið bæði mjög tæknivætt og mjög viðkvæmt blanda af miklum framförum og áskorunum.


Ásdís Björg
Það kemur út á Tene í sumar

Fannar Þór
Það er búið

Kristjana
Það kemur þegar það kemur
Það er búið

Hulda Ósk Á næsta ári

Camille Er það ekki hér nú þegar

Hópurinn stillti sér upp til ljósmyndunar
Hluti af sjálfboðasliðsstarfi AUS/ESC er að sjálfboðaliðarninr komi saman á námskeiði, bæði til að kynnast hver öðrum og læra um íslanska menningu og sögu.
Camille Kouache franski sjálfboðaliðinn í Geysi tók þátt í slíku námskeiði dagana 22. til 25. apríl á Brú Hótel í Grímsnesinu sem er um það bil 45 km akstur frá Reykjavík.
„Þessa fjóra daga hafði ég tækifæri til að hitta aðra sjálfboðalið sem eru starfandi um allt land. Við

deildum reynslu okkar og tókum þátt í fjölbreyttum verkefnum. Við fórum í fjallgaöngu og leiki, kveiktum varðeld og slökuðum á í heita pottinum.
Ég lærði mikið um íslenska menningu: Sagnir af ýmsu tagi, goðsögur og þjóðsögur. Við vorum einnig kynnt fyrir þjóðdansinum vikivaka og fengum að spreyta okkur í vikivakadansi.

Nemendur í Tómstundaog félagsmálafræði við HÍ
Nemendur í tómstunda- og félagsmálafræði við Háskóla Íslands komu kynningu í Geysi um miðjan apríl, en, hópurinn er á námskeiði sem fjallar um hópastarf. Nemendur í þessu námi hafa komið nokkuð reglulega í Geysi og alltaf ánægjulegt að fá ungt og vaskt fólk til að taka umræðuna og vonandi læra eitthvað í leiðinni.
Árni Guðmundsson starfar í deild Tómstunda- og félagsmálafræði í Háskóla Íslands og kom með hópnum í kynninguna.

Lækur liðast létt um gráa móa
Ég var mjög hrifin af umhverfinu þar sem við dvöldum, landslagið var fallegt með einstaka sléttum og hæðum umvafin fjarlægum fjöllum. Við dvöldum á gömlum sveitabæ sem breytt hafði verið í gistihús, þar sem einnig voru hundar, kettir og hestar.
Ég er mjög þakklát fyrir að hafa fengið þetta tækifæri til að kynnast dreifbýlinu, hitta vinalegt fólk fara í fjallgöngu og njóta íslensks snemmsumars.“
CamilleKouacheskráði/Bennisneri


Hér að ofan eru ný vörumerki/ lógó sem Clubhouse International var að taka í notkun til að vekja athygli á alþjóðlegu umhverfi klúbbhúsahreyfingarinnar og mikilvægi þess að klúbbhús um allan heim geti tengst, meðal annars gegnum vottunarkerfi og annað alþjóðlegt samstarf og sameignleg markmið um allan heim.
Með þessu nýja merki eru áréttuð tengsl við alþjóðlega viðurkennt samstarf um geðheilbrigðisbata.
Skapaður trúverðuleiki og samstarf við fjárveitingavaldið og hagsmunaaðila.
Merki sem vísar til og helgar sig viðurkenndu módeli byggðu á sjálfbærum niðurstöðum.

Camille t.v. og Kristín Björnsdóttir verkefnastjóri hjá AUS, Alþjóðlegum ungmennaskiptum
Camille Kouache er nýr sjálfboðaliði í Geysi. Hún er 24 ára og menntuð í sögu og stjórnmálafræði. Af hverju komstu til Íslands? Ég leitaði til AUS/Alþjóðleg ungmennaskipti á Íslandi sem þar sem ég frétti af Klúbbnum Geysi. Í framhaldi af því óx forvitnin og áhugi á Íslandi
Camille kemur frá litlum bæ Poitiers í Frakklandi. „Þetta er miðaldabær með köstulum og gömlum miðbæ og tveimur dómkirkjum frá 11. öld.“
Camille lýst vel á Ísland það sem af er. „Mér líst vel á Reykjavík, hún er mjög falleg og ég hlakka til að skoða borgina, fara í fjallgöngur og skoða landið.“
Sjöunda maí ætla
Geysisfélagar að hittast í Árbæjarsafni kl. 15.00.
Það hefur tíðkast nokkuð undanfarin ár að Geysisfélagar fari í Árbæjarsafnið á vorin. Nú er komið að því og að vanda verður leiðsögn um safnið.
Á eftir er hugsanlegt að fara á kaffihús ef vilji er til. Áhugasamir félagar eru beðnir um að skrá sig á skráningarblað á annarri hæð klúbbsins.
í Geysi 1. maí
Minnum á að alþjóðlegur baráttudagur verkalýðsins er 1. maí. Örugglega margt sem ágætlega launaðir fulltrúar alþýðunnar hafa planað til að hafa ofan af fyrir lýðnum þennan dag sem ekki sér fyrir endan á striti sínu til bættra lífskjara.
„Fram þjáðir menn í þúsund löndum sem þekkið skortsins glímutök.“
Til hamingju með daginn!
Dregið í Skjáfréttagetrauninni:
Fannar Þór var með rétta svarið í getraun Skjáfrétta í apríl. Við óskum honum til hamingju með vinninginn sem er lítið kaffikort.

Björk Hrafnsdóttir.
heimsóttir í félagslegri dagskrá
Geysisfélagar héldu á Kjarvalsstaði 9. apríl síðastliðinn til þess að fræðast um sögu íslenska landslagsmálverksins. Í austursalnum eru myndir sem sýna þróun íslenska landslagsmálverksins frá frumkvöðlunum en Guðrún Kristjánsdóttur sýnir í vestursalnum myndir sínar og sjá má hvernig arfleifð landslagsmálverksins endurspeglast í verkum hennar.
Hér á myndinni til hliðar eru Hulda Ósk og Camille að leggja dröginn að franskri súkkulaðiköku, sem byggir á fjölskylduuppskrift Camille. Baksturinn tókst vel og kakan var ljúffeng og borin fram með þeyttum rjóma á húsfundi 22. maí síðastliðinn.
