Skip to main content

Litli Hver 2026. 04. tbl 8 bls

Page 1


Bls.7 „Hreint frábærir tónleikar.

Maður var á einhverju bleiku skýi.

Takk Laufey Lín fyrir tónlistina, einlægnina, gleðina og hlýjuna sem þú gafst okkur.“ Helgi Dagur Halldórsson.

Litli Hver

Bls. 6 Ég var að skoða þetta rými þegar

það er tekið fast í hægri

öxl mína og ég dreginn aftur á bak svo ég féll í gólfið.

04. tbl. 2026

LOKAÐ YFIR PÁSKANA

Klúbburinn Geysir verður lokaður yfir páskana, frá 2. apríl skírdag til og með

með 6. apríl annan í páskum. Opnum á ný þriðjudaginn 7. apríl

Gleðilega páska

Marspistill/gæla

Dyramottur og aðrar mottur af ýmsu tagi eru til margra hluta nytsamar ekki

síst til að þurrka af skóm þann óæskilega skít sem iðulega safnast á fótabúnað fólks svo ekki berist inn á heimili þess eða aðra staði. Þetta eru oft fyrstu skilaboð og krafa um umgengi gesta og þeirra sem eiga erindi í annarra hús og stofnanir. Nú tíðkast ekki lengur að hafa bara mottu heldur þarf að skrifa einhverja kerskni eða umvandanir á hana viðkomandi til árettingar. Áletrunin: „Velkomin“ er næsta algeng og þykir fara mjúkum höndum um gestkomandi. Svo sá einhver um daginn á mottu hvar á stóð: „Vertu kurteis eða vertu úti“ sem er sannarlega tveir afarkostir sem komumaður stendur frammi fyrir. Eða þessi hvar á stendur: „Komdu aldrei aftur“ og er þó iðulega brottfararmegin hurðar. Flest svona skilaboð segja kannski meira um húsráðanda heldur en gestinn eða þann sem að garði ber. Líklega berast svona skilaboð úr hugum margvísra hönnuða sem vilja ná til almennings með því að létta honum lundina í litlu skensi og gríni. Við óvísindalega athugun virðist þessi mottuhúmor mjög svo ættaður úr hönnunar– og verkfærakistum almannatengla sem sjá jákvæð gildi þess að heimfæra mottur upp á hvers kyns áköll til samfélagslegrar ábyrgðar. Svo eru þeir sem vaða um allt á skítugum skónum í alls konar nafni.

MottukveðjurBenediktGestsson

Forsíðumyndin

Forsíðumyndina að þessu sinni tók

Helgi Dagur

Halldórsson félagi í Geysi. Náttúran vaknar til lífsins á ný með góðan vorboða í kjöltunni og

snjórinn hörfar undan geislum hækkandi sólar. Myndin er tekin í beðinu fyrir framan klúbbinn og er vonandi góður fyrirboði betri tíðar fyrir klúbbfélaga og aðra ástvini og velunnara klúbbsins.

Vissir þú ...

... að eftir losun blasir tómið við ... að samkvæmt rannsóknum á tóminu er ekki allt tóm svarthol

... að tómthúsmenn eru ekki endilega tómir og alls ekki alltaf fullir

... að tómthúsmenn eru alltaf þurrabúðarmenn en ekki endilega edrú

Athugið að fróðleikur þessi er birtur án ábyrgðar.

Litli Hver Útgefandi: Klúbburinn Geysir. Framkvæmdastjóri: Benedikt Gestsson. Þeir sem unnu þetta blað: Fannar, Kjartan, Helgi Dagur, Gísli, Benni. Heimilisfang: Skipholt 29. Sími: 5515166, tölvupóstur kgeysir@kgeysir.is Heimasíða:www.klubburinngeysir.is Facebook: Klúbburinn Geysir, Instagram: klubburinn_geysir #geysirclubhouse

Úr sagnabrunni Gísla Rich

Einu sinni

vorum við að

landa loðnu í Færeyjum á

Jóni Kjartans

syni SU 111.

Fimm lítra viskíflaskan

Mig minnir að Færeyingarnir hafi séð um löndunina, nema hvað að skipstjórinn

Sagnameistarinn sjálfur í stuði

gefur það út að allir verði að vera komnir um borð kl. 08.00 um morguninn.

Áður en við fórum í þennan túr vorum við á Siglufirði. Einn hásetinn átti fimmtíu ára afmæli þegar við vorum á

Sigló og var haldið upp á það með tilheyrandi fyllerí. Áhöfnin hafði gefið honum 5 lítra viskíflösku í afmælisgjöf.

Flaskan var í mjög flottum og viðeigandi stand með gálga svo hægt var að hella úr henni án þess að taka hana í fangið, en við höfðum látið hana ósnerta þangað til í Færeyjum. Þetta var eina áfengið sem var til um borð þegar til Færeyja var komið. Það var vont að kaupa áfengi í Færeyjum vegna undarlegra reglna um kaup á víni og einnig það að búið var að loka áfengisbúðinni þegar við komum. Þar sem ég drekk ekki vískí var ég eini edrú maðurinn um borð en hinir voru farnir að bragað á 5 lítra flöskunni. Skipstjóranum varð þá að orði að ég væri gamall kall að vilja ekki detta í það með þeim.

Mér var nú slétt sama um það. Menn settust við drykkju og viskíflaskan kláraðist og þá vildu menn fara í land að leita að meira fjöri. Segir svo ekki meira af áhöfninni nema morguninn eftir er ég ræstur kl. 08.00, því það þurfti að færa dallinn yfir á aðra bryggju. Þá voru allir mættir um borð nema skipstjórinn, svo ég fer og ætlaði að ræsa fyrsta stýrimann, en hann var þá brennivínsdauður fyrir utan klefann sinn. Það lenti því á mér að færa dallinn sem tókst vel.

Við vorum alltaf að bíða eftir

skipstjóranum sem sem hafði lent í einhverju kvennafari um nóttina. Félagar mínir hvöttu mig til þess að leggja úr höfn og skilja kallinn eftir, en ekki varð af því. Hann var hins vegar að koma um borð þegar við vorum búnir að ákveða að fara upp í bæ og fá okkur að borða. Skipstjórinn var eitthvað að mótmæla því en við hlustuðum ekkert á hann og héldum okkar striki með að fá eitthvað í svanginn. Skipstjórinn hins vegar skömmustulegur í ljósi fyrri yfirlýsinga.

Þetta er reyndar 4,5 lítra flaska og önnur tegund en áhöfnin drakk. Myndin er fengin af síðunni:https:// www.hellowcost.fr/en/ whiskey/570-grants-whisky-40 -45-litres-magnum10327200057.html

Matseðill fyrir apríl 2026

Matseðill er birtur með fyrirvara um breytingar

Hægt er að panta samlokur í hádeginu fyrir klukkan 10.00

Hefur þú tillögur að skemmtilegri matseld og hugmyndir um aukna fjölbreytni á matseðli Klúbbsins Geysis? Mættu þá á eldhúsfund kl. 10.30 síðasta mánudag hvers mánaðar og taktu þátt í að móta heilsusamlegan og fjölbreyttan matseðil. Hægt er að panta samlokur ef einhverjum hugnast ekki það sem er á matseðli

Mán. Þri.
Mið. Fim. Fös. Lau.

Fróðleiksmolar í

samvinnu við gervigreindina Chat GPT og Klúbbinn

Geysi

Af hverju voru mamútar loðnir?

Mamútar voru loðnir fyrst og fremst til að halda á sér hita í því kalda umhverfi sem

þeir bjuggu í á ísöld. Þessi mikli

Beinagrind af mamút. Myndin er fengin af vefnum: https:// nn.wikipedia.org/wiki/ Mammut#/media/ Fil:Columbian_mammoth .JPG

feldur var hluti af röð líffræðilegrar aðlögunar sem gerðu þeim kleift að lifa af í frosti sem gat farið niður í –50 °C.

Tvöfalt lag af hári: Feldurinn samanstóð af tveimur lögum. Innra lagið var þétt og krullað „ullarlag“ sem einangraði skrokkinn, á meðan ytra lagið var skipað löngum og grófum „hlífðarhárum“ (allt að einn metra á lengd) sem vörðu gegn vindi og snjó.

Fitukirtlar: Húð mamúta hafði sérstaka kirtla sem seyttu feiti í hárið. Þetta gerði feldinn vatnsfráhrindandi og kom í veg fyrir að dýrin kólnuðu ef þau blotnuðu í snjó eða rigningu.

Erfðafræðileg aðlögun: Rannsóknir á erfðamengi mamúta hafa sýnt fram á breytingar á geni sem nefnist TRPV3. Þessi erfðabreyting hafði áhrif á hvernig dýrin skynjuðu hita og stuðlaði að auknum hárvexti og fitusöfnun.

Vörn gegn hitatapi: Ásamt loðnum feldinum höfðu mamútar lítil eyru og stuttan hala (miðað við núverandi fíla) til að lágmarka yfirborð þar sem hiti gæti sloppið út eða kuldi komið í.

Hvað ætlar þú að gera um páskana?

Gísli Rich

Ég ætla til Húsavíkur.

Þorkell Ég myndi segja þér það ef ég vissi það.

Árni Heiðar Éta páskaegg og hafa það gott.

Björney Ég ætla að vera með fjölskydunni

Marteinn Már Ég ætla að fara í sumarbústað.
Siggi Björns Ég ætla að vera heima.

Er þá tekið fast í öxlina á mér

Galleries of justice var dómsalur og fangelsi sem á rætur til ársins 600 eftir Krist. (Kannski má nefna Hegningarhúsið við skólavörðustíg sem hliðstæða byggingu, sem gengdi hlutverki dómshúss og fangelsis um tíma.) Núna er byggingin safn um dómsögu í Nottingham og má geta þess að þjóðsagan um Hróa hött og fógetann í Nottingham varð til á þessu svæði.

Aðalinngangur Galleries of Justice.Myndin er fengin af vefsíðunni https://www.conferences-uk.org.uk/venue/ galleries-of-justice-museum

Galleries of Justice á sér langa og drungalega sögu og hefur verið dómsalur, fangelsi og aftökustaður glæpamanna frá 14. öld. Margir hafa verið dæmdir til dauða og teknir af lífi innan veggja GJ myrtir og dáið úr hungri. Ofbeldi pyntingar og miskunnarleysi réðu ríkjum í þessari stofnun í hundruði ára. Þar afleiðandi þarf enginn að vera hissa á því að þarna eru fastir margir ósáttir andar.

„Ég fór í heimsókn í GJ árið 2019. Ég var þarna snemma morguns og engir gestir fyrir utan mig fyrsta klukkutímann, þannig að mér gafst tími til að skoða allar vistarverur á fimm hæðum í einrúmi og dauðaþögn. Þetta var afskaplega drungalegt en þarna varð ég fyrir óhugnanlegri reynslu í kvennahluta fangelsisins. Í litlu rými voru konur neyddar til að vinna frá morgni til kvölds í hljóði og máttu ekki tala við neinn, pyntaðar, kúgaðar og misnotaðar af fangavörðum. Margar þessara kvenna létu lífið í ömurlegum

aðstæðum þegar þær afplánuðu dóm sinn. Ég var að skoða þetta rými þegar það er tekið fast í hægri öxl mína og ég dreginn aftur á bak svo ég féll í gólfið. Yfir mig heltist gífurlegur ótti, hræðsla og skelfing, þar sem enginn lifandi maður var þarna nema ég og vissi ekkert hvað vara að gerast. Við svo búið hleyp ég sem fætur toga út úr herberginu og út úr fangelsinu eins fljótt og ég get. Enn þann dag í dag er mér þetta í fersku minni vegna þessarar skelfingar og ótta sem ég fann fyrir. GJ er þekktur staður fyrir reimleika og mikið rannsakaður af vísindahópum og draugabönum. Mikið er til af frásögnum og upplifunum frá safngestum og starfsmönnum safnsins, þar sem fólk lýsir ítrekað ónotatilfinningu óþekktum hljóðum og sýnum.“

BenniskráðieftirKjartaniÞórIngþórssyni

Tónleikar Laufeyjar í Kórnum

Á bleiku skýji í Kórnum

Helgi Dagur félagi í Klúbbnum

fór á eina stórkostlegustu

tónleika með Laufey ásamt yngstu dóttir sinni í Kórnum.

Vá, vá þvílík upplifun.

Tónleikarnir voru á heimsmælikvarða. Og Laufey, takk takk! Hef ekki orð til að lýsa þessu kvöldi eins og allir í Kórnum.

Hreint frábærir tónleikar. Maður var á einhverju bleiku skýi. Takk Laufey Lín fyrir tónlistina, einlægnina, gleðina og hlýjuna

sem þú gafst okkur. Hef nú sjaldan upplifað aðra eins stemningu og tónleikagestir með

tár í augunum, þar á meðal ég.

Laufey hélt sína aðra og síðustu tónleika helgarinnar í Kórnum í Kópavogi og lauk þar með

Svipmyndir frá tónleikunum sem

Helgi Dagur tók. Sviðsmyndin og öll umgjörð á heimsmælikvarða

Þroskaþjálfanemar

í kynningu

Þessar mjög svo áhugasömu stúlkur eru 4. árs nemar í þroskaþjálfafræði við Háskóla Íslands. Þær komu í kynningu

í klúbbinn Geysi um miðjan mars að kynna sér starf Geysis og hugmyndafræðina að baki vel heppnuðum stuðningi klúbbsins við fólk með geðrænar áskoranir. Með þeim á myndinni er Gísli Richardsson lengst til vinstri og þá kemur Bjarkey Jóhannsdóttir og Helena Þórhallsdóttir. Við þökkum þeim kærlegar fyrir komuna og áhugavert spjall, og óskum þeim velfarnaðar í sínum störfum.

Geðheilsa er líka heilsa

Félagsleg dagskrá

fimmtudaginn 9. apríl

Listasafn Reykjavíkur: Kjarvalsstaðir

Sýning Guðrúnar Kristjánsdóttur „Leiðir“ með leiðsögn.

Lagt af stað frá Geysi kl.14.45

„Guðrún hefur skapað sér sérstöðu í íslenskri myndlist með verkum sem skoða samband náttúru og manns, mótað af veðri og birtu á Íslandi. Hún nálgast náttúruna sem lifandi afl, þar sem kyrrð og kraftur mætast og óvænt fegurð birtist í hógværum augnablikum,“ segir á heimasíðu safnsis: https://www.icelandicartcenter.is/

Dregið í Skjáfréttagetrauninni: Kjartan Þór var með rétta svarið í getraun Skjáfrétta í mars. Við óskum honum til hamingju með vinninginn sem er lítið kaffikort.

Hádegismóum

Þessi gönguglaði hópur tók stefnuna á Hádegismóa einn góðan dag í mars og fann þar ágæta lífsfyllingu. Frá vinstri: Hundur, Krissa, Gísli og Fannar. Myndina tók Benni.

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook