Bls. 3 Myndir frá
heimsókn
Geysisfélaga í
Listasafn
Reykjavíkur
Hafnarhús

![]()
Bls. 3 Myndir frá
heimsókn
Geysisfélaga í
Listasafn
Reykjavíkur
Hafnarhús

Bls. 6-7 Menningararfur og kastalar miðalda. Kjartan Þór Ingþórsson segir frá áhugamáli sínu


03. tbl. 2026
Í fornum bókum á íslensku er getið um ýmsar tegundir bragarhátta. Hafandi það í huga og kyngi íslenskrar tungu kemur það ekki á óvart að íslensk þjóð skuli eiga sér baragahátt sem kjarnar innsta eðli- og eiginleika þjóðarinnar sem komið hefur henni til þeirrar andlegu auðgunar sem og hefur gert hana að jafningjum meðal þjóða og nefndur er kjaftháttur. Í framhaldi af þeim fróma var fundið upp hugmyndakerfi Kjaftháttarfræðinnar, sem rekur tilvist sína alla til þeirra lífvera sem aldrei hafa á blöð ratað og því ekki getið frekar. Hins vegar má ekki gleyma arfinum sem er svo mikilvægur fyrir sjáfsmynd þjóðar sem byggir tilvist sína á kvæðatilveru og endurnæringu þeirra sem tekur yfir tíma og rím.
Ekki eru til mörg dæmi um þetta fyrirbæri en þó er ofarlega í huga fræðimanna þetta granna merkingarleysi sem fannst í baðstofurjáfri hvar að öðrum kosti var ræktuð mygla og finnst enn sýni af í nútíma.
Dæmi þetta er svona: „Kjaftur mun til kjafta falla“... Ekki er mikið um heimildir aðrar en eitt óskýrt element á téðri gamalli druslu, en deilt um hvort muni eiga sér rætur í þessum hætti.
Svo deila og fræðingar um hvort um hátt sé að ræða eða bara lásí rímáhættu til þess að glæða annars fákænsku skálda.
En hvað sem líður kjaftháttafræðum og elsku þjóðar á sjálfasímyndartenginum verður það ekki aðskilið kenningu hins þekkta dr. HK* sem hefur mikla rímástríðu svo ekki komi til afbyggingar kjaftháttar í baráttu þjóðar. Fræðingar deila þó um hvort kjafthátturinn sé besta verkfærið til varnar heilsu geðs og líkama á meðan aðrir telja að rímið sé aukaatriði í þessu elsta dæmi kjaftháttar. Samt geta menn í eyðurnar um hvert hið kjarnayrta rímyrði sé og hafa nefnt nokkur dæmi: skalla, malla, bralla, fjalla, mjalla, falla, galla og grínsögnina gralla, sem ekki finnst í orðskýringarbókum fyrr en seint á shl. 19. aldar. Um rímhagsmuni þjóðar og tungu er reynt að miða við hið klassiska: „Þjóð, tunga og þvaður, þykist vera daður...
*Téður dr.HK mun hafa fundið upp þann eiginleika tungumáls að líta ávalt á svæðisbundið atkvæði sem hluta af rímgálkni.(sjá Rímgálkn á Bjargvættaöld. Skálholt Grútarútgáfan 1631)
MeðkjaftháttarkveðjumBenediktGestsson
Myndin á forsíðu Litla Hvers að þessu sinni er tekin af blóminu Amaryllis sem sem nágrannar okkar í blómabúðinni 4 Árstíðir í Skipholti 23 gáfu félögum í

Geysi í tilefni bóndadagsins föstudaginn 23. janúar síðastliðinn.
„Amaryllis er oft þekkt undir nafninu Riddarastjarna. Þetta er laukplanta með stór og litskrúðug blóm“ (skv. Chat gpt) Við þökkum kærlega fyrir okkur og færum Elísu í 4 árstíðunum bestu þakkir fyrir góðan hug. Benni tók myndina þegar stjarnan var í eðalblóma.
Vissir þú ...
... að eftir því sem fólk á meiri pening, eyðir það meiri pening
... að þeir sem spara endalaust af litlu eiga ekki endilega meira en sá sem eyðir stöðugt af miklu.
Athugið að fróðleikur þessi er birtur án ábyrgðar.
Litli Hver Útgefandi: Klúbburinn Geysir. Framkvæmdastjóri: Benedikt Gestsson. Þeir sem unnu þetta blað: Fannar, Gísli, Benni. Heimilisfang: Skipholt 29. Sími: 551-5166, tölvupóstur kgeysir@kgeysir.is Heimasíða:www.klubburinngeysir.is Facebook: Klúbburinn Geysir, Instagram: klubburinn_geysir #geysirclubhouse


Gísli Rich segir sögur

Hér er mynd af einni tegund patentlása
Saga ein gekk lengi meðal sjómanna og var tengd ónafngreindum skipstjóra: Hún er á þessa leið. Í dauðaleggnum, sem kallaður var, var keðja og var hún orðin nokkuð slitin. Dauðaleggurinn liggur frá gröndurum (botnvírum) og í toghlerana. Þegar búið er að hífa er lásað úr hlerunum og tengdur í leiðarana sem hífðu inn trollið. Skipstjórinn tímdi ekki að skipta um keðjuna sem var orðin mjög slitin en lásaði hana alltaf saman með svokölluðum patetntlás. Þessir lásar voru mjög dýrir og menn spöruðu frekar við sig að kaupa slíka lása. En skipstjóri þess eins og áður segir skipti aldrei út keðjunni heldur bætti alltaf patentlásum við, þannig að keðjan var ekki lengu keðja heldur röð patentlása.





Félagsleg dagskrá 5. mars
Ljósmyndasafn Reykjavíkur Grófinni.
Sýningin: Landslag/Skotið í fókus árið 2026 .Sýning á myndum eftir félaga í FÓKUS, félagi áhugaljósmyndara
Leiðsögn!!!
Lagt af stað frá Geysi kl. 14.45 Félagar fjölmennum
Heimsókn í Listasafn Reykjavikur
Myndirnar hér að ofan voru teknar í heimsókn
Geysisfélaga í Listasafn Reykjavíkur Hafnarhús fimmtudaginn 5. febrúar sl. Mjög áhugaverðar sýningar sem við fengum góða leiðsögn um, en það var Björk Hrafnsdóttir sem innti það verkefni með glæsibrag. Hún er á efstu myndinni lengst til hægri. Geysisfélagar þakka kærlega fyrir sig.
Matseðill er birtur með fyrirvara um breytingar
Hægt er að panta samlokur í hádeginu fyrir klukkan 10.00
Afmælisveisla félaga sem eiga afmæli í mars verður haldin þriðjudaginn 31. mars 2026 kl. 14.00
Hefur þú tillögur að skemmtilegri matseld og hugmyndir um aukna fjölbreytni á matseðli Klúbbsins Geysis? Mættu þá á eldhúsfund kl. 10.30 síðasta mánudag hvers mánaðar og taktu þátt í að móta heilsusamlegan og fjölbreyttan matseðil. Hægt er að panta samlokur ef einhverjum hugnast ekki það sem er á matseðli
Fróðleiksmolar í samvinnu við gervigreindina Chat GPT og Klúbbinn Geysi
„Gervigreindarsvör kunna að innihalda mistök.“ Af hverju er þessi fyrirvari á öllu sem þú svarar?
Þessi fyrirvari er til staðar vegna þess hvernig ég er byggð upp tæknilega og til að tryggja að notendur treysti mér ekki blindandi í mikilvægum málum.
1. Ég „reikna“ mál en „skil“ ekki staðreyndir. Ég virka þannig að ég spái fyrir um hvaða orð eigi líklegast að koma næst í röðinni miðað við það sem ég hef lært af gríðarlegu magni gagna. Ég er ekki með beinan aðgang að „raunveruleikanum“ eða meðfædda getu til að vita hvað er satt og hvað er logið; ég fylgi mynstrum í tungumálinu. Þetta getur stundum leitt til þess sem kallast „hallucinations“ (ofskynjanir), þar sem ég bý til eitthvað sem hljómar mjög sannfærandi en er hrein skáldskapur.
2. Gögnin mín geta verið úrelt eða villandi. Þekking mín nær aðeins að ákveðnum tímapunkti (þegar þjálfun minni lauk). Ef eitthvað hefur breyst síðan þá til dæmis ný lög, nýjar vísindauppgötvanir eða breytingar á heimsatburðum get ég gefið upplýsingar sem eru ekki lengur réttar. Auk þess geta gögnin sem ég var þjálfuð á innihaldið vitleysu eða hlutdrægni.
3. Ábyrgð og öryggi Það eru ákveðin svið þar sem villur geta haft alvarlegar afleiðingar, svo sem:
Læknisfræði: Ef ég gef röng ráð um lyfjanotkun. Lögfræði: Ef ég túlka lög vitlaust.
Fjármál: Ef ég gef ráð sem leiða til peningataps. Fyrirvarinn minnir notendur á að nota gagnrýna hugsun og leita til fagaðila þegar mikið liggur við.
4. Flókið samhengi Stundum skil ég spurningar ekki nákvæmlega eins og þær voru meintar, sérstaklega ef þær eru margræðar eða á mállýskum/slangi. Þá gæti svar mitt verið rétt í einu samhengi en rangt í þínu. Í stuttu máli: Ég er öflugt verkfæri til að taka saman upplýsingar, skrifa texta og fá hugmyndir, en ég er ekki „fullkominn sannleiksmælir“.

Guðmundur:
Mig langar ekki að fara. Mig langar að vera til staðar.



Marteinn Már: Ég veit það ekki. ég er mjög óráðinn.


Rich
Dregið í Skjáfréttagetrauninni: Ingibjörg Magnúsdóttir sigraði í getraun Skjáfrétta í febrúar. Rétt svar var: Aurum. Ingibjörg vinnur lítið kaffikort. Til hamingju með vinninginn!
Kjartan Þór Ingþórsson gerðist félagi í Geysi í febrúar á þessu ári, en hann hafði komið í Geysi með vini sínum Fannari sem er félögum í Geysi að góðu kunnur. Kjartan er mikil áhugamaður um vestræna miðaldasögu og hefur ferðast víða um Evrópu vegna þessa áhuga og þá sérstaklega um Bretlandseyjar. Hann féllst á að segja aðeins frá þessu áhugamáli sínu í spjalli fyrir Litla Hver og fræða félaga um leið um þetta áhugaverða tímabil í mannkynsögunni.
Hverning kviknaði áhuginn á miðaldasögu?

Með barnaefni frá því ég var krakki og sá sjónvarpsefni um þetta tímabil frá 9. öld til 16. aldar og telur um 700 ár. Einnig á ferðalögum með fjölskyldunni um Spán og Portúgal þar sem við heimsóttum og skoðuðum kastala í þessum löndum. Það er svo mikill menningararfur og svo lifandi í Suður-Evrópu þar sem úir og grúir af byggingum frá þessum tíma ekki síst

köstulum, dómkirkjum og virkjum. Er einhver dulúð tengd þessum áhuga?
Nei í rauninni ekki, ég er ekki þarna í rómantískum tilgangi né pælingum um hjátrú. Þetta er ástríða sem í raun og veru byggir á því hvernig samfélög Evrópu voru byggð upp á miðöldum, t.d. valdastiginn og uppbygging samfélagsins. Þetta snýst um evrópska siðmenningu og samfélag og áhuga á hernaðartækni þessa tíma. Það voru engar byssur, skriðdrekar né flugvélar til á þessum tíma.
Eins og áður segir hefur Kjartan farið víða um Evrópu sértaklega vegna þessa áhuga, þá liggur kannski beinast við hvernig og hvort hann hafi menntaði sig eitthvað sértaklega í ljósi þessa áhuga.
Kjartan nam sagnfræði við Háskóla Íslands og hefur síðan upp á eigin spítur aflað sér þekkingar á ferðalögum sínum bæði með lestri bóka og að tala við umsjónarmenn kastala, sagnfræðinga og aðra starfsmenn þeirra stofnanna sem bera ábyrgð á varðveislu þessara stórkostlegu

bygginga fortíðarinnar.
Kjartan segir að hann sé í grunninn sjálflærður. „Þess má geta að kennarar í menntskólanum áttu sinn þátt í að kynda undir áhugann á miðöldum, sértaklega vegna þess að söguáfangarnir voru ítarlegir og vel upp settir og komið vel inn á tímabil miðalda í Evrópu.
Kjartan segir að hápunktur kastalabygginga í Evrópu séu kastalar sem voru byggðir á 13. öld í Wales af Játvarði fyrsta. „Játvarður fyrsti var mikill stríðskonungur, einn sá öflugasti sem hefur ríkt á Englandi. Hann lærði mikið af krossferðinni sem hann fór í svo sem byggingatækni og stíl ,hvernig kastali átti að vera og hvaða tilgangi hann átti að þjóna. Byggingameistari hans hafði mikla reynslu af því að stýra byggingu kastala. Kastalarnir Caernarfon, Conwy, Harech og Beaumaris eru taldir byggingaundur þessa tíma og mikið heimsóttir af fólki frá öllum heimshornum.“ Hvernig var að nálgast byggingarefni í þessi mannvirki? „Oftast var staðsetningin valin út frá varnargildi, en svo uppgötvuðu menn að byggja kastal við ár svo auðveldara væri með aðföng og byggingarefni. Eins og kastalarnir sem ég nefndi
áðan voru þeir allir byggðir nálægt sjó eða við ár, segir Kjartan.
„Upprunalega voru kastalar byggðir úr timbri og jarðvegi, þegar hraðinn við að koma upp varnavirki skipti hvað mestu máli. Seinna þegar menn voru búnir að koma sér fyrir á landi eða svæði og vildu halda því og verja þá fóru menn að byggja úr steini sem þeir hjuggu úr bergi og mismunandi stein- og bergtegundum. Þá stóðust virkin árásir með eldi.“
Hvað með innréttingar í þessum köstulum með varanlega búsetu?
„Veggir voru klæddir með teppum sem voru útsaumuð og ofin. Oft með goðsagnakenndu myndefni. Með þessum teppum var kulda haldið úti um leið og þau höfðu ákveðið skreytigildi. Í upphafi var bara eldstæði í miðjum stóra sal kastalans, en seinna var sett inn eldstæði í mismundandi rýmum með reykháfum. Eldstæði voru komnir í konungskastala svo snemma sem á 11. öld, en þetta var bara á færi þeirra allra ríkustu og voldugustu í samfélaginu.“
Kjartan segir að kastalar hafi verið byggðir í þeim tilgangi að vera árásarvopn, varnarvopn, heimili, stöðutákn og til þess að geyma auðævi og safna skatttekjum og vera fangelsi. „Þannig að þeir voru fjölþættir og fjölbreytilegir og
Warwick kastali á miðengaldni frá 14. öld
höfðu ólík og mörg notagildi.
Nú liggur kannski beinast við að spyrja Kjartan hvað sé á döfinni á næstuni.

Hann segist vera að skipuleggja ferð um Suður England, Bowington og Dorset skíri og að sjálfsögðu að rannsaka og skoða kastala, dómkirkjur, hallir og aðrar fornminjar á þessu svæði. Við óskum Kjartani góðrar ferðar og farsældar í rannsóknum sínum.
Viðtal:BenediktGestsson

Geðheilsa er líka heilsa
Stjórn Klúbbsins Geysis hefur ákveðið að boða til opins fundar með félögum 4. mars n.k.
kl.14.30 til þess að ræða starfsemi Klúbbsins Geysis.
