

![]()


Er pirringur lífsstíll var ég spurður að á dögunum. Ég áttaði mig ekki á því hvernig pirringur gæti verið lífsstíll eins og til dæmis einhvers konar átak til framræslu illra vessa úr sál og líkama, eða að nýta sér ýmsa viðburði daglegs lífs svo megi verða öðrum til eftirbreytni og nytsemdar í lífinu, nú eða til öfundar. Kannski getur lífstíll getið af sér pirring sérstaklega í ljósi þess að markmiðum hans er ekki náð eða vegna þess að innan hans er iðulega einhvers konar andlegt kapphlaup háð metingi um hvort réttum stíl sé fylgt. Þetta er þá orðið tíska, sem er held afleiðing af einhvers konar lífstílskreppu; „ergo þetta er ekki vinna þetta er lífstíll“ eins og margur lætur hafa eftir sér opinberlega.
Oft birtist pirringur í skipulagshugmyndum ýmissa yfirvalda um hvað sé hverjum hollt og hverjum óhollt. Hverju þarf pirraður fjöldinn að kyngja til þess að annar pirraður fjöldi/hópur geti unað glaður við sinn pirring og sinn lífsstíl. Kannski eru bara skipuleggjendur upphaf alls pirrings, sem endar iðulega með svokölluðum viðurkenndum fjöldapirringi sem hangir eins og ský yfir leikum og lærðum að pirra sjálfa sig og aðra. Ef allir eru pirraðir og njóta þess; er það bara ekki allt í lagi og jákvætt
Jú, hygg það gangi upp sem lífstíll og tíska og allir una glaðir í pirringi sinnar eigin vitundar og juða á sínum pirringi um ýmis konar tilfinningalandslag um leið og annarra pirringur fær að njóta sín í því að pirrast út í aðra og sjálfa sig. Mátulegur pirringur er betri en óviðráðanlegt óþol er haft eftir ónafngreindum greinanda og má kannski til sanns vegar færa.
MeðlífstílskveðjumBenediktGestsson
Stillur og frost hafa einkennt
janúar í upphafi árs, en svo koma
gamla góða slagveðrið um miðjan mánuðinn
með rigningu og slyddu og hvassviðri.
Forsíðumyndina tók Benni eitt stillu og norðuljósakvöldið í Reykjavík í janúar þegar ótrúlegur norðuljósadans gladdi íbúa Suðvestulandsins.

... að tilgangsleysi getur haft djúpstæðan tilgang
... að djúpstæður tilgangur getur verið tilgangslaus
... að djúpstætt getur verið grunnstætt ... djúpstætt tilgangsleysi er ekki endilega vel ígrundað
... að ígrundaður djúpstæður tilgangur verður ekki til endilega til í tilgangsleysi
Athugið að fróðleikur þessi er birtur án ábyrgðar
Litli Hver Útgefandi: Klúbburinn Geysir. Framkvæmdastjóri: Þórunn Ósk Sölvadóttir. Þeir sem unnu þetta blað: Fannar, Gísli, Benni, Sigurður Heimilisfang: Skipholt 29. Sími: 551-5166, tölvupóstur kgeysir@kgeysir.is Heimasíða:www.klubburinngeysir.is Facebook: Klúbburinn Geysir, Instagram: klubburinn_geysir #geysirclubhouse

Eitt sinn á Dofranum þegar við vorum að klára að draga línuna og á leið í land þegar allt í einu skellur brot á bátnum stjórnborðsmegin. Það var haki utan á lunningunni til þess að haka fiskinn sem dettur af króknum. Ég var að taka hakann um borð þegar brotið ríður yfir. Þá skiptir engum togum að ég lendi á kafi í sjó og veit ekkert hvar ég er í svolítinn tíma. En þegar fjaraði út var ég staddur í stakkageymslunni , en sjó hafði flætt alveg inn eldhús og ég lent í stakkageymslunni þegar fjaraði undan. Þetta tók nú ekkert á mig en hugsaði að ekki hafi ég verið feigur í þetta sinn.
Ryðlitað vatn og ódrykkkjarhæft
Dofrinn fór líka á síld, eða reyndar bara eina ferð. Skipstjórinn á þessari síldarvertíð hét Hrólfur og var mikill aflakóngur. Okkur gekk mjög vel að fiska, en ég var alveg að skíta á mig því þetta var svo erfið vinna þar sem allt var gert á höndum. Aðstaða um borð var ekki góð. Vatnið ryðlitað og ódrykkjarhæft. Það var heldur ekki hlaupið að því að komast í bað um borð og man ég eftir því að fara í sturtu úti á Granda. Um kvöldið duttum við svo í það. Forstjórinn bauð okkur svo á Grillið á Sögu um kvöldið og máttum drekka brennivín eins og við gátum. Allir

Myndin er af Dofra BA 25 í slipp en ekki er víst hvaða slipp, en trúlega í hHafnarfirði. Myndin er fengin af vefsíðunni: https:// www.shipsnostalgia.com/media/ dofri.159274/
orðnir blindfullir og fórum þá í partí heim til Hrólfs, en forstjórinn keypti nokkrar flöskur á barnum til að hafa með í partíið.

Þessir heiðursmenn hittust á Kaffivagninum úti á Granda einn góðviðrisdaginn í febrúar. Þeir fengu sér veitingar og spjölluðu um lífsins gang í fortíð og nútíð. Frá vinstri Ingi Már, Sigurður Bjarni, Gísli Rich. og Gunnar Gestsson.
Afmælisveisla félaga sem eiga afmæli í febrúar verður haldin þriðjudaginn 24. febrúar 2026 kl. 14.00
Matseðill er birtur með fyrirvara um breytingar
Hægt er að panta samlokur í hádeginu fyrir klukkan 10.00
Hefur þú tillögur að skemmtilegri matseld og hugmyndir um aukna fjölbreytni á matseðli Klúbbsins Geysis? Mættu þá á eldhúsfund kl. 10.30 síðasta mánudag hvers mánaðar og taktu þátt í að móta heilsusamlegan og fjölbreyttan matseðil. Hægt er að panta samlokur ef einhverjum hugnast ekki það sem er á matseðli
Fróðleiksmolar í samvinnu við gervigreindina Chat GPT og Klúbbinn Geysi


vinnur EM 2026 ?
Það er enn ekkert öruggt svar við því hvaða handboltalið mun vinna
Evrópumeistaramótið (karla, EHF EURO 2026) það ræðst af komandi leikjum og útsláttarkeppni. Núverandi spár og líkindareikningar benda eindregið til þess að ákveðin lið séu í betri stöðu, byggt á frammistöðu, veðmálalíkum og mati sérfræðinga:
Helstu sigurstranglegustu lið EHF EURO 2026
Danmörk: Talið sigurstranglegasta liðið til að vinna Evrópumeistaramótið 2026 samkvæmt mörgum veðmálaspám og líkum. Danmörk hefur mjög sterkar líkur og glæsilegan feril að baki að undanförnu (Ólympíugull, sterk frammistaða á heimsmeistaramótum), sem gerir liðið að líklegasta sigurvegaranum. Tölfræðilegar hermilíkön mótsins sýna að Danmörk hefur mun meiri líkur á sigri en önnur lið.
Frakkland: Oft sett í annað sæti hvað sigurhorfur varðar, á eftir Danmörku, í forspám fyrir mótið. Þeir eru núverandi Evrópumeistarar og búa yfir úrvalsleikmönnum og mikilli reynslu. Þeir hafa því titil að verja.
Aðrir sterkir keppinautar:
Svíþjóð hýsir hluta mótsins og hefur staðið sig vel í upphafsriðlum, sem gefur þeim raunhæfa möguleika.
Spánn hefur hefur náð góðum árangri á alþjóðavettvangi að undanförnu og samkvæmt veðmálastofum eru líkur þeirra sterkar.
Ísland: Íslenska liðið hefur komið á óvart með sterka frammistöður hingað til og gæti orðið svarti hesturinn ef liðið heldur dampi.
árið 2026 í þig?





Dregið í

Skjáfréttagetrauninni: Gísli Richardsson var með rétta
lausn í síðustu getraun. Svarið er Janus.Óskum honum til hamingju.

Á mínum yngri
árum og ég nýbúinn að fá bílpróf vorum við vinirnir á fyllerí og auðvitað með tvær gellur sem við drógum með okkur. Ég var á á gömlu
Mözdunni 323 hans pabba með 1300 eða 1400 vél árgerð1987 sem ég fékk til umráða, ef ég sæi um hana. Einum okkar datt í hug að við gætum klifrað yfir girðinguna um hverfis Rockvillestöðina á

Rockvillestöðin um 1983
Myndin er tekin á af slóðinni: https://ferlir.is/wp-content/ uploads/2023/05/rockville-24.jpg
Miðnesheiði og halda partý þar.
Við byrjuðum vettvangsferðina á því að fara inn í aðra af tveimur ratsjárstöðvunum, þessar stóru kúlubyggingar. Við urðum að brjóta upp hurðina sem gekk vel, enda með kúbein í bílnum. Félagi minn var með það sem þá var kallað boombox, stórt kassettutæki með öflugum hátölurum. Honum fannst það sniðug hugmynd að blasta það í botn inni í kúlunni. Ég
varaði við því að það gæti verið áhætta að blasta þarna inni. Við myndum missa heyrnina útaf bergmálinu, en hann lét
vaða á meðan ég opnaði neyðarútganginn til að hljóðið hefði
einhvern stað að leita út. Þetta átti að vera tónlist sem við spiluðum en varð hljóðsprenging og skerandi hávaði, eins og zonic boom eða þota að rjúfa hljóðmúrinn í hausnum á manni. Við hlupum öll út í skelfingu og skipuðum honum að fara inn aftur til að slökkva á tækinu. Hann gerði það að lokum og með puttana í eyrunum hljóp hann inn og tókst að slökkva á tækinu.
Eftir þetta hurfu stelpurnar eða þær stungu af svo við vorum tveir eftir og fórum að skoða svæðið. Við brutumst inn í herskála, stálum einhverjum jökkum úr þvottakörfu og fórum svo í aðal skrifstofubygginguna og bíóið.
Vinur minn vildi taka hátalara með sem hann aftengdi í bíóinu og dröslaði með
sér að girðingunni. Ég var orðin uppgefinn eftir þetta og vildi ekki taka hátalarana með.
Við yfirgáfum því staðinn og ég skutlaði honum heim og fór sjálfur heim að sofa.
Nokkrum vikum seinna náði ég að plata annan vin minn til að fara aftur í stöðina og vorum báðir vel í því.

https://www.carsguide.com.au/mazda/323
Tilgangur ferðarinnar var ránsferð. Við náðum í nokkra jakka og stórann og þungan skrifborðsstól. Þegar við vorum komnir með góssið inn í bílinn og að leggja af stað sjáum við stóran herjeppa koma á fullri ferð í áttina til okkar. Jeppinn neglir niður og út kemur kona í fullum herklæðum með MP-merki á handleggnum. Hún tekur upp skammyssu miðar á okkur og hrópar:
„Freeze, put your hands on your head and get down on the ground now!“
Við vorum svo skelkaðir að við hlýddum fyrirmælunum umsvifalaust og sögðumst bara hafa verið að leika okkur. Hún trúði okkur ekki og sagði að við hefðum verið að brjótast inn, því svæðið væri vaktað með myndavélum.

Myndin er tekin af slóðinni:https://www.vf.is/ mannlif/vf-i-40-ar-rockville a-midnesheidi
Hún sagði okkur að keyra á undan henni að lögreglustöðunni Grænás í Njarðvík og skyldi okkur eftir þar hjá varðstjóranum.
Við iðruðumst gjörða okkar og vældum í varðstjóranum að sleppa okkur. Eftir samtal við varðstjórann skiluðum einhverju af góssinu en ég komst undan með skrifborðsstólinn og einn jakka, því það var aldrei leitað í skottinu.
Þess má geta að nokkrum mánuðum áður þetta gerðist var búið að leggja niður alla starfsemi í Rockville og í reynd búið að taka allt verðmæti í burtu.
BenniskráðieftirFannariBergssynifélagaí Geysi Mazda 323 Sedan 1987

Myndin er tekin af slóðinni:https://ferlir.is/wpcontent/uploads/2023/05/rockville-29.jpg

Uppruna Clubhouse Europe má rekja til samkomulags sem var gert árið 2005 milli ICCD (International Center for Clubhouse Development, nú Clubhouse International CI) og STAKES sem er rannsóknarstofnun og þróunarsetur fyrir velferð og heilsu í Finnlandi. Klúbbhúsasamtökum Evrópu var svo formlega ýtt úr vör í Stokkhólmi árið 2011. Upphaflegu hugmyndirnar voru og eru enn eftirtaldar:
1. Að stuðla að og styðja við nýja þróun Clubhouse um alla Evrópu til að bæta félagslega þátttöku, menntun, vinnumarkaðsþátttöku og þátttöku fólks með geðsjúkdóma og sál- félagslega erfiðleika.
2. Að auka tækifæri notenda geðheilbrigðisþjónustu og fyrrverandi notenda í Evrópulöndum til að taka þátt í valdeflandi og stuðningsríku klúbbhúsasamfélagi.
3. Að tryggja að félagarnir í Klúbbhúsinu séu hjarta allrar starfseminnar.
4. Að gera Klúbbhúsin sýnileg og auka vitund um Klúbbhúsamódelið meðal fólks um alla Evrópu
4. Að auðvelda og styðja Klúbbhúsin og félaga til að hittast og hjálpa hver öðrum og fá þjálfun fyrir lykilleiðtoga Klúbbhúsa
5. Að stuðla að og samræma evrópskar rannsóknir á Klúbbhúsamódelinu, safna niðurstöðum rannsókna og miðla á alþjóðavettvangi.

6. Að efla samstarf og taka þátt í ólíkum samskiptaleiðum
7. Að afla fjár fyrir samtökin
8. Að styrkja og auka samskiptanet Clubhouse International, evrópskra klúbbhúsa og annarra hagsmunaaðila við að þróa starf Evrópusamtakanna.
9. Að vera aðal samstarfsaðili Clubhouse International varðandi starfsemi klúbbhúsa í Evrópu.
Tímabundin
lokun Klúbbsins
Geysis frá 6. febrúar til 19. febrúar n.k.
Því miður er óhjákvæmilegt að loka klúbbnum Geysi tímabundið frá 6. febrúar til 19. febrúar n.k eða um tveggja vikna skeið vegna veikinda starfsmanns og manneklu.
Stjórn Klúbbsins Geysis biður félaga og hlutaðeigandi afsökunar á þessari tímabundnu tveggja vikna lokun.
Sjá nánar á heimasíðu: klúbburinngeysir.is og fésbók klúbbsins.
Geysir verður opnaður að nýju föstudaginn 20. febrúar n.k.
Þá hefur stjórn Klúbbsins Geysis ákveðið að boða til opins félagafundar 4. mars n.k. kl.14.30 til þess að ræða starfsemi Klúbbsins Geysis.
Stjórn Klúbbsins Geysis