Bls. 3 Jól í Rússlandi: Fjöl-
skyldur skreyta stór furutré, elda mikinn kvöldverð, horfa á klassískar kvikmyndir og hlusta á miðnæturræðu forsetans.
Litli Hver
Bls. 7 „Ég veit ekki hvað
verður í matinn en jólin 2024 var hamborgarhryggur sem smakkaðist mjög vel.“ segir Kristján Kristjánsson í viðtali.
01. tbl. 2026
Gleðilegt nýtt ár 2026
2
Janúarpistill/gæla Hermt er að til sé fólk sem lifir í hólfum og unir sé best þar og ekki síður á sér enga aðra ósk heitari en að aðrir lifi í þeim hólfum sem hólfafólkið lifir fyrir og í. Hvers vegna skyldi standa á því. Ekki gott að segja, en birtingarmyndir þessa lífsháttar eru óteljandi eða mjög illteljandi. Eins athyglisvert og það nú er þá segja sumar heimildir að hólfanotkun sé til þess að hægt sé að hafa yfirsýn og þannig veitt ýmsa þjónustu á ígrundaðri hátt og ekki síst faglegan hátt. Á meðan þessi hólfastefna er iðkuð jafnt hjá opinberum aðilum og einstaklingum, þá opnast farvegur fyir enn eina mótsögnin. Sum sé hólf þar sem einstaklingar vilja ekki vera flokkaðir á einn né neinn hátt, og hitt svokölluð samhólfun. Öll erum við á sömu kúlunni, nema það henti umræðunni hverju sinni, ef t.d. einhver jaðarsettur vekur athygli á málstað þá er hólfið gott en ef hólfun nær yfir stærra þýði þá skyndilega glatast athyglin og viðkomandi hverfur úr umræðunni inn í hólf ósýnileikans. Þannig er samfélagið meira og minna hólfanauðung hvort hún heldur er til góðs eða ills en umfram allt mun samfélagið merkja þá sem þurfa athygli, njóta hennar, lifa samkvæmt henni og brjótast undan henni og lenda þá örugglega í allt öðru hólfi vélarinnar en til stóð. Hvað svo sem hólfaspeki líður, mun hjarðhegðunin móta samfélagslandslagið þessi jólin sem önnur og allir njóta sín í henni með einum eða öðrum hætti. Þeir sem ekkert eiga halda því áfram og hinir sem eiga allt munu halda því áfram hvað sem líður kærleika og mildi sem felst í kenningunni um fæðingu lausnara heimsins. Þar er jú líka eitt hólfið að fara í þó menn séu ekki á eitt sáttir um hvernig sú hólfun er metin á vogarásum réttlætis annars vegar og óréttlætis hins vegar, enda hvoru tveggja álíka fyrirferðamikið og verkfærin sem í þeim hólfinum leynast hvort heldur það er kross eða skotvopn. Með gleðilegum hólfamótakveðjum Benedikt Gestsson
Forsíðumyndi Myndin á forsíðu Litla Hver er af nýárstunglinu 2026 hvar það sigldi eins og eldkeila úr framandi sókerfi yfir Esjunni fyrstu helgina í janúar. Mikilfengleg sjón að fylgjast með og sólina að verma efstu hlíðar Esjunnar. Hækkandi sól og fyrirheit um gott ár og með það í huga óskar ritstjórn Klúbbsins Geysis dyggum lesendum Litla Hvers gleðilegs árs og friðar. Myndina tók Benni.
Vissir þú ...
... að afleiðing er ekki endilega afleiðing heldur hugsanlega undan-leiðing ... að keldusvín er ekki svín ... að stundum er betra að taka krókinn svo þú hittir ekki svínið ... Að stundum er betra að hitta svínið en lenda í keldunni ... að mörgu samanlögðu er útkoman ekki endilega í + Athugið að fróðleikur þessi er birtur án ábyrgðar
Litli Hver Útgefandi: Klúbburinn Geysir. Framkvæmdastjóri: Þórunn Ósk Sölvadóttir. Þeir sem unnu þetta blað: Fannar, Gísli, Benni, Sigurður, Steindór J. Erlingsson Heimilisfang: Skipholt 29. Sími: 551-5166, tölvupóstur kgeysir@kgeysir.is Heimasíða:www.klubburinngeysir.is Facebook: Klúbburinn Geysir, Instagram: klubburinn_geysir #geysirclubhouse
3
Áramót í Rússland og Lettlandi
Myndin er tekin af Polinu í Rússlandi um áramótin 2024 með rússneskri áramótastemningu í bakgrunni
Fyrir marga sem búa í Lettlandi og Rússlandi eru áramótin mikilvægasta hátíð vetrarins. Jafnvel þó að hefðirnar séu svipaðar hefur hvort land um sig sínar sérstöku hlýju áherslur. Í Rússlandi eru ármótin nokkuð lík jólunum. Fjölskyldur skreyta stór furutré, elda mikinn kvöldverð, horfa á klassískar kvikmyndir og hlusta á miðnæturræðu forsetans. Þegar klukkan slær 12 á miðnætti óska allir sér einhvers og flugeldar lýsa upp himininn Í Lettlandi eru hátíðarhöldin dálítið lágstemdari en samt mjög töfrandi. Fólkið hittir vini sína og fjölskyldur, njóta hefðbundins matar, ganga um skreytt strætin eða horfa á flugeldana handan árinnar. Mörgum Lettum finnst einnig gaman að fara í friðsama vetrargöngu í náttúrunni á nýársmorgun. Hvað mig sjálfa varðar finnst mér áramótin í báðum löndunum töfrum líkust; það er augnablikið þegar fólk hægir aðeins á sér, rifjar upp árið sem er að líða og vonar að árið sem í vændum er verði bjartara.
Úr sagnabrunni Gísla
Botnfestan og Atlavík „Narfi RE 13 var smíðaður sem botnvörpungur í Rensburg í Þýskalandi 1960. Yfirbyggður 1974 og RE 13 áður en honum var skráður sem nóta- Narfinn breytt. Myndin er fengin af vefsíðunni: https:// skip 1978. Nöfn ljosmyndasafn.akranes.is/is/ index/view?id=36056 sem hann hefur borið: Narfi RE 13, Jón Kjartansson SU 111, Guðrún Þorkelsdóttir SU 211 og Lundey NS 14.“ (https://ljosmyndasafn.akranes.is/ is/index/view?id=36056)
Á Narfanum gátum við verið á loðnu, grálúðu og rækju. Lestin var bara gúanólest og inní í henni var búin til lítil frystilest, sem tók 60 tonn. Einu sinni vorum við á rækjuveiðum á Héraðsflóanum. Við vorum búnir að vera á veiðum í viku og dregið í tólf tíma, ekkert við að vera og lítið fiskerí. Okkur vantaði 6 tonn í lestina og hillti undir verslunarmannahelgi. Skipstjórinn sagði að það yrði ekki farið í land fyrr en lestin væri full. Ég var fyrsti stýrimaður í túrnum og strákarnir vou að spyrja mig hvort ég gæti ekki rifið trollið svo við kæmumst í land. Eina nóttina festist trollið í botni, svo ég hífði svolíitð harkalega í þeirri vona að losa trollið. Nú þegar ég hífði svo trollið inn var það allt í henglum og ekki annað að gera en að halda í land. Strákarnir vildu nú meina að ég hefði gert þetta viljandi svo þeir kæmust á útihátíðina í Atlavík, og annað að kona skipstjórans þakkaði mér séstaklega fyrir, sem reynar kom svo síðar í ljós að var frænka mín. Þá fóru sögur á kreik um það að ég hefði fengið plássið í gegnum klíku, sem var tómt bull. Og svo sannleikanum sé haldið til haga þá var þessi umrædda botnfesta algert slys og tilviljun.
4
Matseðill fyrir janúar 2026 Matseðill er birtur með fyrirvara um breytingar Hægt er að panta samlokur í hádeginu fyrir klukkan 10.00 Mán.
Þri.
Mið.
Fim.
Fös.
Lau.
Hefur þú tillögur að skemmtilegri matseld og hugmyndir um aukna fjölbreytni á matseðli Klúbbsins Geysis? Mættu þá á eldhúsfund kl. 10.30 síðasta mánudag hvers mánaðar og taktu þátt í að móta heilsusamlegan og fjölbreyttan matseðil. Hægt er að panta samlokur ef einhverjum hugnast ekki það sem er á matseðli
5 Fróðleiksmolar í samvinnu við gervigreindina Chat GPT og Klúbbinn Geysi
Hvernig verður árið 2026 ? Árið 2026 mun líklega verða blanda af framþróun, breytingum og nýjum áskorunum. Hér er almennt yfirlit, án þess að fullyrða neitt of nákvæmt:
•
•
•
•
•
Spurning mánaðarins Strengir þú áramótaheit?
• Tækni ⚙ ️Gervigreind, sjálfvirkni og stafrænar lausnir verða enn algengari í námi, vinnu og daglegu lífi. Fleiri verk verða auðveldari – en fólk þarf líka að læra nýja færni. • Skóli og vinna Meiri áhersla verður á sveigjanleika, skapandi hugsun og stafræna færni. Netnám og blandað nám verða líklega algengari.
Benni
Gísli
Gunnar
Kristján
Polina
Kjartan
• Umhverfi og loftslag Umræða og aðgerðir í loftslagsmálum halda áfram að skipta miklu máli. Meiri áhersla verður á sjálfbærni og umhverfisvænar lausnir. • Samfélag og lífsgæði Fólk leggur sífellt meiri áherslu á andlega heilsu, jafnvægi milli skóla/vinnu og frítíma, og að finna tilgang. • Daglegt líf Hraðinn heldur áfram að aukast, en á sama tíma vilja margir hægja á og einfalda hlutina.
Í stuttu máli: 2026 verður ekki fullkomið ár, en fullt af tækifærum – sérstaklega fyrir þá sem eru opnir fyrir að læra og aðlagast.
Dregið í Skjáfrétta getrauninni: Vinninginn hlýtur: Ingi Már
6
Myndir úr starfi Geysis 2025
Skákkempur mætast
Jóla- og áramótahvatning frá Helga Degi
Þessi mynd var tekin á Kjarvalsstöðum. Þarna eru þeir Gunnar Gestsson skákkempa og Jóhann Hjartarson stórmeistari í skák og sá íslenski skákmaður sem náð hefur hvað lengst og mestum frama í skákheiminum að Friðriki Ólafssyni undanskildum. Gunnar og Jóhann hittust á Kjarvalsstöðum sunnudaginn 14. desember síðastliðinn fyrir tilviljun og var þessi mynd tekin við það tækifæri Myndina tók Agnes starfsmaður á Flókagötunni.
Mér er efst í huga þakklæti til félaga og starfsfólks sem hafa sýnt seiglu og jákvæðni og unnið að því að leysa þær áskoranir sem hafa komið upp. Takk fyrir liðnar stundir og megi þær verða gleðilegar og miklu fleiri á nýju ári. Það getur alltaf verið smá erfitt að pakka jólunum niður sem líða alltof hratt og léttir að taka skrautið niður og jafnvel hvetjandi að taka nýárstiltekt og skipulag í leiðinni og byrja nýja árið með stæl.
7
Áramótamaðurinn
Kristján Kristjánsson Kristján Kristjánsson hefur verið félagi í Klúbbnum Geysir síðan í september 2025. Hann er einstakt ljúfmenni og á nokkur áhugamál. Þar skal fyrst telja nýjabíla, útivist og að vera innan um skemmtilegt fólk. Hvernig finnst þér að vera alnafni tónlistarmannsins KK? Mér líkar það ágætlega þó að ég hlusti ekki mikið á hann, en annars hlusta ég mikið á tónlist? Hvers Konar tónlist þá? Pálmi Gunnarsson, Björgvin Halldórsson og Friðrik Dór eru í miklu uppáhaldi. Einnig finnst mér Baggalútur mjög skemmtileg hljómsveit. Finnst þér þá ekki gaman að dansa? Já en ekki í miklum hávaða, þannig að tónlistin verður að vera lágt stillt. Mér líkar ekki hávaði. Kristján er mikill áhugamaður um bíla og sérstaklega Kia en einnig má nefna Benz, Nissan, Mitsubishi og Skoda Octavia. Þá er rétt að spyrja Kristján hvernig bíl hann eigi núna. Ég á Kia Stonic. Þetta er bensínbíll ljósgrár á litinn og er mjög góður í akstri. Þetta er annar Kia sem ég á en áður átti ég Kia rio. Keyrir þú mikið? Nei ekki get ég sagt það. Kannski svona 10.000 km á ári sem er ekki mikil keyrsla. Ég fer stundum út á land og þá helst til Selfoss og kannski Hvolsvöll. Einnig hef ég ekið til Þingvalla og Laugarvatns. Kristján er í sambúð með Sigurbjörgu Harðardóttur og hafa þau búið saman í 23 ár. Lætur hann vel af þeirri sambúð og segir að þau fari mikið á kaffihús og í bíó. Áttu einhverja uppáhaldsbíómyndir? Já mér finnst skemmtilegast að horfa á gamanmyndir og léttar rómantískar
Kristján á góðum degi í Geysi
myndir.“ En áttu einhvern uppáhalds lit? Ljósgrár og rauður koma fyrst upp í hugann. Aðspurður hvernig jólin séu hjá honum segir hann að þau hjónaleysin fari í mat til systur konunnar. Ég veit ekki hvað verður í matinn en jólin 2024 var hamborgarhryggur sem smakkaðist mjög vel. Gefurðu margar jólagjafir? Já ég gef þrjár gjafir. Auðvitað konunni, systur hennar Steinu og Dóra. Eitthvað sem þú vilt segja að lokum? Já ég er jákvæður og hress og finnst gamana að lifa lífinu og óska öðrum þess sama, sérstaklega Einari frænda mínum sem er smiður. Hann smíðar ruggustóla.
Benni skráði
8
Polina kynnti Geysi hjá Rannís
Geðheilsa er líka heilsa
Polina glæsileg í kynningunni fyrir miðri mynd
Rannís hefur umsjón með helstu samkeppnissjóðum á sviði rannsókna og nýsköpunar, menntunar og menningar á Íslandi, auk samstarfsáætlana ESB og norrænna áætlana sem veita styrki til samstarfsverkefna, náms og þjálfunar. Þar á meðal er ESC– sjálfboðaliðaverkefnið European Soliderity Corps sem Klúbburinn Geysir hefur verið hluti af. Polina sem er sjálfboðaliði í Geysi kynnti starfið í Geysi fyrir sjálfboðaliðum sem eru í öðrum verkefnum á Íslandi og starfsfólki Rannís.
Afmælisveisla félaga sem eiga afmæli í desember og janúar verður haldin þriðjudaginn 27. janúar 2026 kl. 14.00
Sjálfboðaliðar í heimsókn Polina okkar góði sjálfboðaliði hefur verið ötul við að bjóða örðum sjálfboðaliðum í heimsókn í Geysi. Kunnum við henni góðar þakkir fyrir það. Á myndunum eru að ofan Milla frá Finnlandi og vinnur hjá Rauða Krossinum, Monica frá Mexico/Spánn, er hjá ABC barnahjálp og neðst er Martha frá Austurríki og er hjá ABC barnahjálp