Skip to main content

Vorulisti

Page 1

VÖRULISTI


Kjarnafæði er fjölskyldufyrirtæki sem stofnað var árið 1985 af þeim bræðrum Eiði og Hreini Gunnlaugssonum. Gildi Kjarnafæðis Starfsemi fyrirtækisins hefur frá stofnun vaxið og dafnað og hefur rík þjónustulund og lítil starfsmannavelta verið einn helsti styrkur þess. Með faglegum vinnubrögðum stuðlar gott og reynslumikið starfsfólk að helstu gildum Kjarnafæðis, sem leggur metnað sinn í að veita viðskiptavinum sínum gæða vöru, frábæra þjónustu og áreiðanleika. Gæða- og umhverfismál Stjórnendur Kjarnafæðis leggja sérstaka áherslu á gæðamál, með virðingu fyrir mönnum og umhverfi að leiðarljósi. Hefur öll uppbygging glæsilegrar vinnslu fyrirtækisins á Svalbarðseyri sem og uppfærsla tækjabúnaðar tekið mið af því. Lengi hefur verið unnið að vöruþróun á hreinum vörum án óþolsvalda, viðbætts sykurs og aukefna. Umhverfismál eru fyrirtækinu ofarlega í huga og er allur úrgangur flokkaður og nýttur áfram eins og kostur er. Vottanir eins og A-vottun Samtaka Iðnaðarins og alþjóðlegu ISO-9001 og ISO22000 vottanirnar eru staðfestingar þess. Samskipti er grunnur að góðu sambandi Starfsfólk Kjarnafæðis tekur fagnandi við pöntunum, fyrirspurn og ábendingum í síma 460 7400 eða á netfangið sala@kjarnafaedi.is. Ásamt því má nálgast mánaðartilboð, fjölmargar upplýsingar og uppskriftir á vefsíðu fyrirtækisins kjarnafaedi.is. Þá getur þú einnig fengið mánaðartilboð sent til þín með því að skrá þig á sala@kjarnafaedi.is.


Söludeild Aðalnúmer söludeildar: 460 7400 Netfang sölupantana: sala@kjarnafaedi.is Netföng og símar söludeildar Kjarnafæðis: Eggert Þór Ingólfsson, sölustjóri eddi@kjarnafaedi.is - Sími 840 7402 Ólafur Rúnar Ólafsson, sölustjóri olafur@kjarnafaedi.is - Sími 892 6076 Andrés Vilhjálmsson, markaðsstjóri andres@kjarnafaedi.is - Símar 460 7433 og 620 8300 Magnús Óskarsson, sölumaður stóreldhúsa magnus@kjarnafaedi.is - Sími 840 7437 Magnús Margeirsson, sölumaður stóreldhúsa maggi@kjarnafaedi.is - Sími 662 2662 Sigurður Sigurðsson, sölumaður stóreldhúsa siggi@kjarnafaedi.is - Sími 840 7400 Ásgeir Sigurgeirsson, sölumaður stóreldhúsa asgeirs@kjarnafaedi.is - Sími 460 7409 Egill Daði Angantýsson, sölumaður stóreldhúsa egilldadi@kjarnafaedi.is - Sími 460 7448 Grete Tove Hansen, sölumaður stóreldhúsa grete@kjarnafaedi.is - Sími 460 7412 Kristín Hjaltalín, sölumaður stóreldhúsa stina@kjarnafaedi.is - Sími 460 7404 Friðrik Magnússon, gæðastjóri Kjarnafæðis fm@kjarnafaedi.is - Sími 460 7423 Vöruafhending Flytjandi dreifir vörum Kjarnafæðis innanlands og eru vörur sendar til viðskiptavina án endurgjalds hvert á land sem er. Afhendingaröryggi eykst með meiri fyrirvara á pöntunum og því biðjum við ykkur að leggja inn pantanir með eins miklum fyrirvara og hægt er. Pantanir sem þið viljið fá inn á mánudögum þurfa í allra síðasta lagi að hafa borist til okkar fyrir kl. 11 á föstudögum. Pantanir sem berast fyrir kl 12 aðra virka daga geta verið afhentar daginn eftir - en svo það sé ítrekað þá tryggir meiri fyrirvari betra afhendingaröryggi.


Efnisyfirlit Lambakjöt. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 6 Lambalæri. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 7 Lambahryggur. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 8 Lambaframpartur. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 9 Lambakjöt - Ýmislegt. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 10 Hangikjöt. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 12 Kindakjöt. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 13 Grísakjöt. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 14 Grísalæri. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 14 Grísahryggur. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 15 Grísaframpartur . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 16 Grísakjöt - Ýmislegt . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 17 Nautgripakjöt. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 18 Nautgripaframpartur . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 18 Nautgripahryggur. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 19 Nautgripainnralæri. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 20 Nautgripakjöt - Ýmislegt. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 21 Hakk og hamborgarar. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 22 Hakk . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 22 Hamborgarar. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 23 Hrossa- og folaldakjöt . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 24 Hrossakjöt. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 24 Folaldakjöt . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 25 Fuglakjöt. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 26 Kjúklingur og kalkúnn. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 26 Álegg. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 28 Pylsur. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 32 Heimilismatur . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 34 Búðingar. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 34 Kjötfars. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 35 Bjúgu. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 35 Eldaðar vörur. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 36


Lambakjöt Það eru fáar ef einhverjar þjóðir sem geta boðið landsmönnum sínum upp á eins gott og heilnæmt lambakjöt og Ísland. Lambið ver sumrinu í náttúru Íslands sem er bæði krefjandi en jafnframt gjöful af ýmsum jurtum og fersku grasi. Einnig eru margar hreinar og tærar vatnslindir á heiðum og úthögum Íslands og það gerir kjötið eitt af því besta í heimi. Margir þættir hafa áhrif á bragð og gæði lambakjöts. Íslensk lömb eru yfirleitt 4-5 mánaða og farin að bíta gras, en ganga þó oftast enn undir mæðrum sínum, þegar kemur að slátrun. Þau hafa í flestum tilvikum gengið á heiðum, fjöllum eða í úthögum og étið villijurtir og það kemur fram í bragðinu; sumir segja að íslenska lambakjötið „kryddi sig sjálft”. Íslenskt lambakjöt þykir fremur bragðmilt og það er að hluta til vegna þess að víða erlendis eru lömbin orðin mun eldri þegar þeim er slátrað og kjötið af þeim er bragðsterkara - oft hálfgert „ullarbragð”, sem getur stafað bæði af aldri lambanna og því fóðri sem þau hafa fengið. Ekki má gleyma því að íslenskt lambakjöt er laust við hormóna og sýklalyf, öfugt við lambakjöt í ýmsum öðrum löndum. Allt kjöt er skoðað af dýralæknum og slátrun og kjötvinnsla er undir ströngu gæðaeftirliti. Kjötiðnaðarmeistarar Kjarnafæðis gera lambakjötinu hátt undir höfði og framleiða úr því hágæða vöru sem fyrirtækið er stolt af.

6


Læri Lambalæri er hægt að fá heilt með beini, úrbeinað og hálft eða mjaðmabeinið sagað af. Einnig er hægt að láta fylla það og/eða krydda með einhverri af þeim frábæru kryddblöndum sem kjötiðnaðarmeistarar Kjarnafæðis hafa þróað, með bragðið af íslenska lambakjötinu að leiðarljósi. Lambalæri er að sjálfsögðu hægt að fá þítt og frosið.

Frostnr.

Kælinr.

Vörulýsing

0050

0057

Lambalæri

0259

Lambalærissneiðar 1. fl.

0263

Lambaleggir Sous Vide

0266

0268

Lambaleggir

0303

0301

Lambalærissneiðar m/raspi

0350

0351

Lambalæri úrbeinað

0352

Lambalæri úrbeinað án innralæris

0353

Lambalæri úrbeinað heiðakryddað

0357

Lambalæri úrbeinað fyllt

0360

0361

Lambaþynnur úr læri

0380

0381

Lambagúllas úr læri

0449

0452

Lambamjaðmasteik úrbeinuð

0455

0453

Lambainnralæri

0458

0457

Lambainnralæri snyrt

0500

0501

Lambasnitsel m/raspi

0503

0502

Lambasnitsel án rasps

1517

Lambasirloin sneiðar heiðakryddaðar

1557

Lambamiðlærissteik

1601

Lambalærissneiðar 1. fl. heiðakryddaðar

1617

Lambainnralæri heiðakryddað

1634

Grafið lambainnralæri

1558

1623

7

Stolt íslenskrar náttúru er íslenskt heiðalamb frá Kjarnafæði. Heiðalambið er kryddað lambalæri en í kryddblöndunni eru villtar íslenskar kryddjurtir eins og blóðberg, birkilauf, aðalbláberjalyng og einir sem eiga einkar vel við íslenska lambakjötið. Lærið er eitt allra vinsælasta kryddlærið á Íslandi og skal engan undra. Það fæst í verslunum en einnig er hægt að panta það beint frá Kjarnafæði í mötuneyti og veitingastaði og þá hægt að fá það úrbeinað.

Lambalæri úrbeinað

Lambainnralæri

Lambaleggi er hægt að fá hjá Kjarnafæði þíða og frosna og þá er einnig hægt að fá þá reykta. Lambaleggirnir eru afar bragðmiklir og meyrir ef þeir eru eldaðir rétt og urðu fljótt mjög vinsælir á veitingastöðum. Lambaleggir eru sagaðir af lærinu og eru í raun neðsti partur þess.


Hryggur Lambahryggi má fá heila og hálfa, bæði þíða og frosna, pakkaða í lofttæmdar umbúðir eina og sér eða fleiri saman í poka. Þá er hægt að fá lambakórónu, úrbeinaða og fyllta og léttreykta. Þá má einnig fá lambahrygginn kryddaðan og þannig kláran beint í ofninn. Frostnr.

Kælinr.

Vörulýsing

0552 0559 0558 0561 0652 0653 0698 0752 0754 0769 0791

0555 0554

Lambahryggur

1403

8

Ath.

Lambahryggur hálfur Lamba t-bone kótilettur

0560

Lambakóróna Lambafille er hægt að fá bæði með og án fitu, heilt eða skorið í steikur og einnig þítt og frosið. Hægt er að fá lambafille, eins og nær allt okkar lambakjöt, kryddað með einni af okkar frábæru kryddblöndum.

Lambaþverkótilettur Lambakótilettur einfaldar

0699 0751 0753 0770 0790 0795 0800 0820 0858 1402

Lambakótilettur m/raspi Lambafille með fitu Lambafille með fitu stórt

ca. 500 g

Lambafille án fitu Lambalundir Lambalundir heiðakryddaðar Lambahryggur úrbeinaður Lambahryggur úrbeinaður fylltur Lambafille með fitu heiðakryddað Léttreyktur lambahryggur

Lambalundir er hægt að fá hjá Kjarnafæði bæði þíðar og frosnar, ókryddaðar eða kryddaðar með ýmsum kryddblöndum.


Lambakjöt - kjarnhiti

Fille, ribeye, kótilettur, læri m/beini og úrb. Blóðrautt (blue).................................. 49°C Miðlungs hrátt (medium rare).............. 57°C Miðlungs (medium)............................ 60°C Miðlungs vel (medium well)............65-66°C Vel eldað (well done).......................... 71°C Hvíla þarf kjötið eftir eldun. Stærri steikur allt að 20-25 mín, en styttra eftir því sem steikin er þynnri. Nánari upplýsingar um kjarnhita og Sous Vide eldun á heimasíðu Kjarnafæði www.kjarnafaedi.is/is/uppskriftir/sous-vide

Frampartur Lambaframpartur bíður upp á endalausa möguleika. Fyrir utan það að elda hann heilan með beini þá er hægt að fá hann úrbeinaðan, fylltan, sagaðan í súpukjöt, úrbeinaðan og skorinn í gúllas eða þynnur, hakkaðan eða léttreyktan. Allt þetta er að sjálfsögðu hægt að fá þítt og frosið. Frostnr.

Kælinr.

Vörulýsing

0951 0955 1052 1055 1060 1070 1071 1250 1266 1280 1303 1306

0871

Lambaframpartur heill

1444 1644

Lambabógur heill

1051

Lamba súpukjöt Lambasmásteik (kubbasteik) Lambasúpukjöt ódýrt

1072

Lambaframhryggjasneiðar Lambasúpukjöt valið

1251 1265

Lambaframpartur úrbeinaður Lambagúllas úrbeinað úr frampart Lambaframpartur úrbeinaður fylltur

1300 1305 1313 1442 1609 1650 1638

9

Ath.

Lambaribeye Lambaribeye stórt Lambaribeye heiðakryddað Londonlamb Lambaframpartur úrb. sneiðfastur fylltur Lambaframpartur úrb. sneiðfastur Lambaframpartur úrb. sneiðfastur heiðakryddaður

Lamba ribeye er líklega besti vöðvinn úr frampartinum eða í það minnsta sá vinsælasti. Hann færðu að sjálfsögðu hjá okkur í Kjarnafæði bæði þíðan, frosinn og kryddaðan með hinum ýmsu kryddlögum.


Lambakjöt - ýmislegt Í þessum flokki eru líklega undarlegustu bitarnir sem við borðum af skrokknum, sérstaklega í augum erlendra ferðamanna. Þeir eru margir hverjir ekki vanir að leggja sér lifur, slátur eða svið til munns. Það er þó aldagömul hefð hér á Íslandi rétt eins og verkunaraðferðin á Vopnafjarðarsviðunum. Margar af vörunum í þessum flokki þróuðust á Íslandi vegna geymsluaðferða hér á árum áður til að ná fram lengra geymsluþoli. Frostnr.

Kælinr.

0001 0003 0007 1074 1451 1453 1702

1718

10

Vörulýsing

Ath.

Lambaskrokk er hægt að fá heilan eða niðursagaðan. Þá er einnig hægt að fá ákveðna hluta hans úrbeinaða eftir þörfum og óskum hvers og eins.

Lambaskrokkur unnin að ósk D1-A sagaður D1-A skrokkur heill Lambasíðurbitar Lambaslög Lambabeikon

1457 1703 1706/53 1707/51 1708/52 1710 1709 1809 1829

Lambaslög úrbeinuð

Lambabeikonið er unnið úr lambaslögum og verkað á mjög svipaðan hátt og grísabeikon. Það er léttsaltað og reykt en er alveg án sykurs og inniheldur minna salt en venjulegt beikon. Við skorum á ykkur að prófa enda spennandi kostur með morgunverðinum, á hamborgarann eða bara sem snakk í veisluna. Við mælum með að lambabeikonið sé steikt þannig að það verði stökkt eða „crispy” en þannig nást fram mestu gæðin.

Saltkjötsgúllas lamba Saltkjöt lamba valið Saltkjöt lamba ódýrt Saltkjöt lamba blandað Saltkjöt lamba valið í lausu Saltkjötsrúllur lamba úrbeinaðar Lambasviðasulta ný form Svið soðin

Saltkjötið frá Kjarnafæði er kjöt sem við gerum afar hátt undir höfði í okkar framleiðslu. Saltkjöt hefur verið borið á borð landsmanna í áratugi enda gömul og góð geymsluaðferð. Þá er rík hefð meðal landsmanna að hafa salktjöt og baunir á sprengidaginn. Saltkjötið okkar er hægt að fá bæði með beini og úrbeinað í rúllum eða litlum gúllas bitum. Þá má velja um valið, blandað og 2. flokks saltkjöt og einnig síðuog hálsabita.


Lambalifur er hægt að fá þíða í kringum sláturtíð sem er í september og október en annars er hægt að fá hana frosna allt árið um kring. Þá er einnig hægt að fá hakkaða lifur en hún er aðeins seld frosin.

Frostnr.

Kælinr.

1857 1858

Lambalifur

1868 1869

Lifrarpylsa soðin

455 g stk

Lifrarpylsa soðin lengjur Lifrarpylsa ósoðin Lifrarpylsa ósoðin lengjur

1871 1872

Blóðmör soðinn Blóðmör soðinn lengjur Blóðmör ósoðinn lengjur

490 g stk

Lifrarpylsuna er hægt að fá þíða og frosna, ósoðna og soðna og bæði í keppum og í lengjum sem vega um 2 kg. Lifrarpylsan er sannkölluð ofurfæða og orkumikil, hún reynist því fólki sem stundar mikla hreyfingu mjög vel. Einnig er hún afskaplega góð með hverskonar grautum og þá sérstaklega mjólkurgraut. Lifrarpylsan frá Kjarnafæði er gerð eftir gamaldags uppskrift og inniheldur aðeins lambalifur. Lifrarpylsuna má svo að sjálfsögðu fá súra í kringum Þorra.

Blóðmör ósoðinn Lifrarpylsa án mjólkur ósoðin lengjur Svið verkuð í lausu Vopnafjarðar

Vopnafjarðarsviðin eru sérverkuð og eru seld frosin. Þau koma í pokum sem innihalda tvo kjamma eða einn haus. Mikilvægt er að fara að öllu eftir leiðbeiningum á pokanum en varast ber helst að blóðvökvi úr sviðunum komist í snertingu við fulleldaða vöru. Mikilvægt er að þrífa vel öll áhöld sem notuð voru til eldunar á sviðunum. Munið að sjóða sviðin í að minnsta kosti 90 mínútur.

11

Ath.

Lambalifur hökkuð

1863 1865

1874 1875 1884 1891

Vörulýsing

Blóðmör má fá bæði frosinn og þíðan, soðinn eða ósoðinn. Þá má einnig kaupa hann í hefðbundnum keppum eða lengjum sem vega í kringum 2 kg. Í kringum Þorra má einnig fá súran blóðmör. Blóðmör er sannkölluð ofurfæða og mikilvægt fyrir matarmenningu Íslands að honum sé haldið að yngstu kynslóðinni sem leikskólar og skólar hafa verið duglegir við. Það er fátt sem kemur í stað ósvikins blóðmörs.


Húskarlahangikjöt (tvíreykt)

Hangikjöt (lamba) Hangikjötið frá Kjarnafæði er allt taðreykt á gamla mátann með þurrkuðu íslensku taði, eins og gert hefur verið í sveitum landsins allt frá því þessi frábæra geymsluaðferð var notuð fyrst. Kjötiðnaðarmeistarar Kjarnafæðis leggja mikinn metnað í rétt reykhlutfall og að ná fram því besta með reyknum og þessu frábæra hráefni sem lambakjötið er. Þess vegna hefur hangikjötið unnið til margra verðlauna í bragðprófunum og er eitt vinsælasta og mest selda hangikjötið á Íslandi. Hægt er að fá það bæði úrbeinað og með beini, hvort sem um er að ræða læri eða frampart. Þá er einnig hægt að fá það þítt og frosið, allt eftir þínum þörfum. Frostnr.

Kælinr.

Vörulýsing Hangilæri m/beini

1657 1660 1676 1679 1675

1654 1658 1697 1667 1668 1691

12

Hangiframpartur m/beini bitar Hangilæri úrbeinað Húskarla hangilæri m/beini (tvíreykt) Húskarla innralæri (tvíreykt) Hangiframpartur úrbeinaður

Ath.


Kindakjöt Í rauninni er allt kindakjöt kjöt af sauðfé, einnig lömbum, en nú á tímum er orðið kindakjöt líklega fyrst og fremst notað um kjöt af fullorðnu fé eða ærkjöti. Það er dekkra og bragðmeira en lambakjöt. Mörgum finnst af þeim sökum kjöt af eldra fé betra. Í flestum tilvikum þegar gefið er upp lamb í uppskriftum er hægt að skipta því út fyrir kindakjöt. Við hvetjum ykkur til að prófa þann möguleika.

Frostnr.

1197 1199 1622 1901 1903 1905 1906 1909

13

Kælinr.

Vörulýsing Kindasnitsel m/raspi Kindasnitsel án rasps Grafið kindafille Kindavöðvar

1902

Kindagúllas Kindafille Kindainnralæri Kindalundir

Ath.


Grísakjöt Kjarnafæði býður upp á flestar þær afurðir úr grísakjöti sem þekkjast á íslenskum neytendamarkaði. Eins og í öðrum vörum er leitast við að fækka óþolsvöldum og aukefnum. Í flestum tilvikum er hægt að fá grísakjötið bæði ferskt og kryddað og hafa kjötiðnaðarmeistarar Kjarnafæðis fundið mjög svo bragðgóða kryddlegi sem henta einstaklega vel með grísakjöti.

Læri Grísalæri má fá heilt, úrbeinað, nýtt, reykt, saltað, í sneiðum eða niðurskorið að óskum hvers og eins. Þá má einnig fá innralæri sér - og allt þetta fæst að sjálfsögðu bæði þítt og frosið. Frostnr.

Kælinr.

Vörulýsing

2130

2124

Grísainnralæri

2126

2127

Grísalæri úrb.

2135

2134

Grísavöðvar

2139

2138

Grísagúllas

2144

2145

Grísastroganoff

2154

2155

Grísasnitsel m/raspi

2158

2157

Grísasnitsel án rasps

Ath.

2163

Grísasnitsel m/raspi stærri

200g/stk

2167

Grísasnitsel án rasps stærri

200g/stk

2180

14

2181

Grísaþynnur

2874

Bayonneskinka

Grísagúllas eru grísavöðvar skornir í teninga, vanalega um 4 mm á hlið og hægt er að fá gúllasið bæði þítt og frosið. Einnig er hægt að fá grísastroganoff sem eru lengri og aðeins þynnri bitar og grísaþynnur sem eru enn þynnri en svipaðar að lengd og stroganoffið.

Grísasnitsel fæst bæði með og án rasps. Um er að ræða hreinan úrbeinaðan vöðva sem getur verið hulinn raspi ef þess er óskað. Grísasnitsel kemur yfirleitt í 5 kg kössum. Bayonneskinka er bæði léttreykt og söltuð. Hana er hægt að fá bæði þíða og frosna og er hún afgreidd bæði í um 1 kg rúllum sem og stærri fyrir mötuneyti. Einnig er hægt að fá hana soðna.


Hryggur Grísahrygg má fá heilan, úrbeinaðan, nýjan, reyktan, kryddleginn, í sneiðum eða niðurskorinn að óskum hvers og eins. Þá má einnig fá lund og fille sér - og allt þetta fæst að sjálfsögðu bæði þítt og frosið. Frostnr.

2280 2284 2327 2333 2337

Kælinr.

Vörulýsing

2226 2228 2281

Grísahryggur án puru

Grísalundir getur þú fengið bæði þíðar og frosnar. Þá hafa kjötiðnaðarmeistarar okkar þróað frábæra kryddlegi með grísakjöti sem reynist afar vel á lundirnar. Það er því vel hægt að fá grísalundir klárar á grillið, pönnuna og/eða í ofninn.

Grísahryggur með puru Grísakótilettur Grísakótilettur m/raspi

2326 2332 2335 2336 2730 2852 2853

Grísalundir Grísafille án puru Grísafille heilt orange Grísafille með puru Grísakótilettur reyktar Svínahamborgarhryggur úrb. Svínahamborgarhryggur Grísakótilettur má fá bæði þíðar og frosnar og með eða án rasps. Nýjar grísakótilettur er einnig hægt að fá kryddaðar með kryddlegi eftir uppskrift kjötiðnaðarmeistara Kjarnafæðis. Eldið á pönnu, í ofni eða á grilli. Hamborgarhryggurinn er afar ljúffengur þar sem reyk- og saltbragði er haldið í góðu jafnvægi af kjötiðnaðarmeisturum fyrirtækisins. Hrygginn má fá úrbeinaðan og með beini og einnig þíðan og frosinn. Þá er að sjálfsögðu hægt að fá svínahrygg nýjan bæði þíðan og frosinn úrbeinaðan og með beini.

15


Grísakjöt - kjarnhiti Miðlungs vel (medium well)................ 65°C Vel eldað (well done).......................... 75°C Hvíla þarf kjötið eftir eldun. Stærri steikur allt að 20-25 mín, en styttra eftir því sem steikin er þynnri. Nánari upplýsingar um kjarnhita og Sous Vide eldun á heimasíðu Kjarnafæði www.kjarnafaedi.is/is/uppskriftir/sous-vide

Frampartur Grísaframpart (bógur og hnakki) má fá heilan, hringskorinn (bógur), úrbeinaðan, nýjan, reyktan, í sneiðum, niðurskorinn að óskum hvers og eins, kryddleginn - og allt þetta fæst að sjálfsögðu bæði þítt og frosið. Frostnr.

Kælinr.

Vörulýsing

2200

2204

Grísahakk

2476

Grísabógur hringskorinn

2485

Grísahnakki sneiðar (Brasilíu)

2527

Grísahnakki úrbeinaður

2528

Grísahnakki sneiðar úrb. nýjar

2531

Grísahnakki úrb (Brasilía)

2754

Grísabógur hálfur

2866

Grísabógur úrb. reyktur

2525

2867 Purusteik

2 kg úrbeinaður ferskur svínabógur m/puru 1-2 msk gróft salt Lárviðarlauf ef vill og/eða negulnaglar Laukur og kjötkraftur (svína-) Aðferð Skerið ræmur í puruna með u.þ.b. 1½ cm millibili, niður að kjötinu, en varast skal þó að skera í kjötið. Nuddið saltinu á puruna og í skurðinn. Stinga má negulnöglum eða lárviðarblöðum í skurðinn. Þessu næst er steikin sett á bökunargrind og ofnskúffa höfð undir. Ef puran á að verða stökk og fín þarf steikin að liggja sem láréttust. Gott að stilla hana af með því að hnoða saman álpappír og setja undir ef þarf. Laukur og kjötkraftur settur í ofnskúffuna ásamt vatni. Ofninn stilltur á 200°C og grindin sett í miðjan ofninn. Látið steikjast í 1½ klst. Steikina má taka úr ofninum þegar kjarnhitinn í þykkasta hlutanum er a.m.k. 65°C. Hellið soðinu í gegnum sigti í pott (til sósugerðar). Ef puran er ekki nógu stökk má setja steikina aftur í ofnin við 250°C eða stilla ofninn á grill, ef það er til staðar, og steikja í 5-10 mínútur. Passa þarf vel að puran brenni ekki. Eftir að steikin hefur verið tekin úr ofninum er hún látin jafna sig í 15-20 mínútur. Þá ætti kjarnhitinn að vera um 70°C og steikin þá tilbúin til að vera borin á borð. Sósa (5-6 dl) Ef bæta þarf vatni í soðið er það gert núna og umfram fita fleytt ofan af. Það gæti þurft að bæta meiri kjötkrafti út í. Sósan er þykkt með hveitijafningi (1½ msk hveiti á móti ½ dl vatni) eða sósujafnara. Smakkað til með salti og pipar og látið sjóða í nokkrar mínútur eða þar til hveitibragðið er horfið. Hægt er að nota sósulit og eins er gott að setja smá rjóma út í sósuna áður en hún er borin fram. Annað meðlæti Sykurbrúnaðar kartöflur, grænar baunir, rauðkál, steikt rótargrænmeti og gott hrásalat - eða annað eftir smekk.

16

Grísahnakka má fá bæði úrbeinaðan heilan, sneiddan og þíðan og frosinn. Þá bjóðum við hann einnig reyktan eða kryddaðan með ýmsum tegundum af kryddi sem öll eiga mjög vel við grísakjöt.

Grísabóg er hægt að fá heilan, hringskorinn eða sneiddan. Einnig er hægt að fá hann með beini, úrbeinaðan, nýjan eða reyktan. Þá má alltaf fá hann kryddaðan eða nákvæmlega eins og þú vilt hafa hann.


Grísakjöt - ýmislegt Af öðrum hlutum gríssins en af hrygg, læri og bóg koma margir ágætis vöðvar og steikur, eins og skankar, síður og kinnar. Þá eru grísarif ávallt vinsæl, bæði soðin, reykt og/eða grilluð. Það má því fá góðan og ódýran mat af öðrum hlutum. Frostnr.

2009 2206 2239 2625 2627 2641 2647 2650

2690 2980

Kælinr.

17

Ath.

Grísakinnar Grísaspekk hakkað

2240 2626 2628 2640

500g/pk

Grísaskankar Grísasíða m/beini og puru Grísasíða án puru

Grísasíðu er hægt að fá í mjög mörgum gerðum hjá Kjarnafæði en hér er hin hefðbundna purusteik sem er svo vinsæl enda góð pura eins og sælgæti í munni. Hægt er að fá hana bæði þíða og frosna og einnig er hægt að láta skera í puruna.

Grísarifjur heilar Grísa spare ribs Grísa baby rif erlent

2671 2675 2676 2680 2691

Grísasíða purusteik skorið í erlent Grísasíða purusteik skorið í puru Grísasíða úrb. m/puru Grísasíða úrb. án puru Grísasíðuþynnur Grísalifur hökkuð

2743 2745 8430

Vörulýsing

Pulled pork BBQ spare ribs soðin Bacon forsteikt

500g/pk

Grísaskanki ferskur (að ofan) og tillaga að eldun og framreiðslu (að neðan).


Nautgripakjöt Hjá Kjarnafæði færðu úrvals nautakjöt og eru kjötiðnaðarmeistarar fyrirtækisins boðnir og búnir að útbúa nautasteikina nákvæmlega eins og þú vilt hafa hana. Kjarnafæði bíður svo uppá úrval ólíkra stærða af hamborgurum. Hér fyrir neðan eru vinsælustu vörurnar úr nautgripakjöti, en listinn er langt frá því að vera tæmandi.

Frampartur Úr frampartinum, sem er mjög fitusprengdur, koma nokkrar af bestu steikunum. Vöðvana má bæði fá heila og skorna í steikur, þíða og frosna. Hakk og hamborgara sem einnig koma úr frampartinum, má finna aftar í vörulistanum. Frostnr.

Kælinr.

Vörulýsing

3600

3601

Nauta prime ribs

3605

3603

Nauta ribeye

3606

3607

Nauta framfille

3602

Nauta ribeye erlent

3658

Nauta eðal ribeye erlent

3611

Nauta ribeye steikur

Ath.

Nauta prime ribs er alltaf að verða vinsælli steik af nauti. Þar sem feitara kjöt er alltaf að ná meiri vinsældum þá hentar þessi steik afar vel. Prime ribs kemur úr framhryggnum líkt og ribeye.

250 g stk Nauta ribeye (beinlaus framhryggjarsteik) er bæði selt heilt eða í sneiðum. Þetta er eitt vinsælasta og safaríkasta kjöt sem fáanlegt er. Kjötið er afar meyrt og feitara en flest önnur stykki. Vegna þess hve fitusprengt það er verður ribeye sneið sérlega meyr og safarík steik.

18


Nautgripakjöt - kjarnhiti Lund, ribeye, T-bone, rif.

Blóðrautt (blue).................................. 49°C Miðlungs hrátt (medium rare).............. 57°C Miðlungs (medium)............................ 60°C Miðlungs vel (medium well)............65-66°C Vel eldað (well done).......................... 71°C Hvíla þarf kjötið eftir eldun. Stærri steikur allt að 20-25 mín, en styttra eftir því sem steikin er þynnri. Nánari upplýsingar um kjarnhita og Sous Vide eldun á heimasíðu Kjarnafæði www.kjarnafaedi.is/is/uppskriftir/sous-vide

Hryggur Af hryggnum kemur vinsælasta steikin, nautalundin. Einnig er hægt að hafa hrygginn með beini og nota hann í t-bone steikur og kótilettur. Þessar vörur fást að sjálfsögðu frosnar og þíðar. Frostnr.

Kælinr.

Vörulýsing

3163

3162 3164

Ungnautafille

3404 3410 3445

Ungnautalund T-bone steik

+450 g

Nautakótilettur Nautalund steikur

3451 3452 3460 3461 3467 3469 3473

Ath.

3466 3468 3472

200 g

Nauta t-bone steik er með hryggbeininu sem skilur að fille og lund. Áferðin af hvorum helming er því töluvert misjöfn en líkt og lundin er þetta afar vinsæl steik. Þessi biti er sjaldnast eldaður heill en mjög misjafnt er hvað steikin er þykk. Kjötiðnaðarmeistarar Kjarnafæðis geta sagað hrygginn eftir þínum óskum.

Nautgripalund íslensk Nautgripalund íslensk

+1,4 kg

Nautalund erlend

-1,8 kg

Nautalund erlend

+1,8 kg

Nautafille Nautafille tromlað Nauta entre-cote

Nautalund er talin besti vöðvinn af skepnunni og afar vinsælt er að matreiða hana bæði heila og í steikum. Í steikum næst fram jafnari eldun, en í heilu geta allir fengið eitthvað við sitt hæfi þar sem þunni endinn á lundinni eldast alla jafna meira en þykki hlutinn. Mikilvægt er að sinahreinsa lundina fyrir eldun.

19


Læri Úr læri má finna suma af mögrustu hlutum skrokksins. Innralæri er líklega besti steikarbitinn af lærinu en úr því koma nokkrar af öðrum vinsælustu og mest seldu vörunum. Þar má nefna gúllas, þynnur og fleira. Hakk og hamborgara sem einnig koma úr lærinu, má finna aftar í vörulistanum. Frostnr.

Kælinr.

Vörulýsing

3106

3104

Nautgripainnralæri

3110

3114

Nautamillilæri

3117

3118

Nautgripastroganoff

3131

3132

Nautgripasnitsel án rasps

3133

3134

Nautgripasnitsel m/raspi

3140

3139

Nautgripaþynnur

3142

Naut þunnt skorið

3147

3146

Nautgripasirloinsteik

3152

3150

Nautgripagúllas

3174

3157

Ungnautagúllas

3167

3166

Ungnautainnralæri

20

Ath.


Nautgripakjöt - ýmislegt Nautatunga, kinnar, rif og margt annað er svo eitthvað sem kemur af öðrum hlutum nautgripsins en áður hafa verið nefndir.

Frostnr.

3006 3068 3066 3561 3683 3685

Kælinr.

Vörulýsing

Ath.

Nautarif eru hægelduð lengi til að mýkja þau. Gríðarlegar vinsældir þeirra, sérstaklega í Bandaríkjunum, hafa gert það að verkum að vinsældir nautarifja eru alltaf að aukast á Íslandi.

Nautakinnar

3062

Nautarif hótel

12-15 cm

Nauta uxabrjóst

3560

Osso bucco (skanki) Nautatunga reykt Nautatunga sölt Osso bucco kemur af afturleggnum og dregur í raun nafn sitt af samnefndum rétti. Fjölmargar uppskriftir af þeim rétti er hægt að finna á netinu en langur eldunartími til að ná fram meyru kjöti er nauðsynlegur.

21


Hakk og hamborgarar Nautgripahakk er hægt að fá bæði þítt og frosið í mörgum stærðum. Þá er einnig hægt að fá hakkefni ef eftir því er óskað. Nautgripahakk er hægt að fá blandað með grísa- og/eða kindakjöti. Einnig bjóðum við upp á gott úrval nautgripahamborgara í þyngdum frá 90 g upp í 200 g og með fituinnihaldi frá 12% upp í 30%. Einnig er hægt að fá lambaborgara. Hér fyrir neðan eru aðeins algengustu vörunúmerin í hakki og hamborgurum.

Hakk Frostnr.

Kælinr.

Vörulýsing

2200 3800 3829 3832 4067

2204 3801 3827 3831 4070 3824 7532

Grísahakk Nautgripahakk Blandað nautgripa- og kindahakk Blandað kinda- og grísahakk Sparhakk Blandað nautgripa- og grísahakk Blandað nautgripahakk

Nautgripahakk er hægt að fá bæði þítt og frosið í mörgum stærðum. Þá er einnig hægt að fá nautahakk blandað og þá bæði með kinda- og grísakjöti. Hægt er að fá hakkefni ef eftir því er óskað.

Sparhakk má fá bæði þítt og frosið hjá Kjarnafæði en Sparhakk er eins og nafnið gefur til kynna hagkvæmur og ódýr kostur fyrir heimili, mötuneyti og fleiri.

22


Hamborgarar Frostnr.

1926 3727 3741 3742 3743 3746 3748 3756

Kælinr.

3726

3747

Vörulýsing

Ath.

Lambaborgarar 140 g

10 pk

Hamborgarar 120 g, 20% fita

10 pk

Hamborgarar 150 g, 30% fita

5 stk í pk

Hamborgarar 200 g, 8-12% fita

10 pk

Hamborgarar 90 g, 8-12% fita

10 pk

Nautagrillborgarar 90 g

10 pk

Nautagrillborgarar 120 g

10 pk

Hamborgarar 120 g, 8-12% fita

10 pk

120 g hamborgarar 100% nautgripakjöt, 8-12% fita, kollagen minna en 2%. Athugið að hamborgararnir okkar eru gerðir úr 100% nautgripahakki og eru án allra viðbættra aukefna. 120 g hamborgararnir eru langvinsælustu hamborgararnir okkar.

23


Hrossa- og folaldakjöt Kjarnafæði selur hrossa- og folaldakjöt en framboðið getur þó verið mjög misjafnt eftir árstíma. Hrossakjöt eða folaldakjöt er af mörgum talið vera besta kjötið. Íslensk hross eru alin upp í hreinni íslenskri náttúru, uppi á heiðum í algeru frjálsræði. Kjötið af þeim kemur beint frá náttúrunni og er því hreint og ómengað. Rannsóknir sýna að það er líka fitulítið með hátt hlutfall af omega3 fitusýrum, er próteinríkt og inniheldur mikið magn lífsnauðsynlegra amínósýra og járns.

Hrossakjöt Frostnr.

Kælinr.

Vörulýsing

4049

4055

Hrossalundir

4069

4053

Hrossafille

4052

4058

Hrossagúllas

4903

4906

Trippastroganoff

4258 4054

24

Eining

Hrossakjöt saltað úrb.

4047

Hrossainnralæri

Hrossagúllas


Folaldakjöt Frostnr.

Kælinr.

Vörulýsing

4501 4507 4508 4509 4510 4512 4650 4652 4712 4702 4714 4740

4499 4524 4519 4520 4521 4517 4654 4653 4713 4701 4715 4741

Folaldavöðvar

25

Eining

Folaldastroganoff Folaldagúllas Folaldainnralæri Folaldafille Folaldalundir Folaldasnitsel m/raspi Folaldasnitsel án rasps Saltað folaldakjöt m/beini Reykt folaldakjöt m/beini Saltað folaldakjöt úrb. Reykt folaldakjöt úrb

Folaldalundir getur þú fengið bæði þíðar og frosnar. Þá hafa kjötiðnaðarmeistarar okkar þróað frábæra kryddlegi með folaldakjöti sem reynast afar vel á lundirnar. Það er því vel hægt að fá folaldalundir klárar á grillið, pönnuna og í ofninn.


Fuglakjöt - kjúklingur og kalkúnn Kjarnafæði bíður upp á innfluttan frosinn kjúkling. Allur kjúklingurinn kemur í 2 kg pokum og eru 5 pokar í kassanum. Einnig býður Kjarnafæði upp á frosnar kalkúnabringur og heilan íslenskan kjúkling. Frostnr.

5001 5010 5012 5013 5014 5015 5018

26

Kælinr.

Vörulýsing

Ath.

Heill kjúklingur Kjúklingalundir

2 kg pk

Kjúklingaleggir

2 kg pk

Kjúklingalæri úrb án skinn

2 kg pk

Kjúklingabringur

2 kg pk

Kjúklingalæri m/beini

2 kg pk

Kalkúnabringur

800 g stk


Kjúklingaleggir í stökkum raspi Hráefni 8-10 kjúklingaleggir eða sundurhlutaður heill kjúklingur 5 dl kornflex 2 egg Salt og pipar eftir smekk 2 msk fínsaxaður hvítlaukur 4 msk ólífuolía Aðferð Hitið ofninn í 200°C. Myljið kornflexið smátt. Hrærið saman egg og krydd. Þerrið kjúklingaleggina og kryddið með salti og pipar. Blandið saman olíunni og hvítlauknum og veltið leggjunum upp úr blöndunni. Veltið svo leggjunum upp úr eggjunum og síðan muldu kornflexinu. Þrýstið kornflexinu vel að leggjunum. Raðið kjúklingnum í eldfast fat og dreifið afganginum af flögunum yfir. Setjið fatið í forhitaðan ofninn og bakið í 35 mínútur, eða þar til leggirnir eru gegnsteiktir. Meðlæti Gott er að bera réttinn fram með mexíkósku meðlæti, eins og t.d. tómatsalsa, sýrðum rjóma, avocado (lárperu) og góðu salati.

Sesamgljáðar kjúklingabringur Hráefni 4 kjúklingabringur 1 búnt basilíka eða önnur kryddjurt 50 ml ólífuolía Salt og pipar eftir smekk 50 ml sojasósa 1 dós kókósmjólk Sesamfræ 400 g sætar kartöflur 400 g gulrætur Aðferð Hitið ofninn í 190°C. Bringurnar eru brúnaður í ólífuolíunni á heitri pönnu og kryddaðar til með salti og pipar. Hellið kókósmjólkinni og sojasósunni yfir bringurnar og stráið því næst sesamfræjum yfir. Bakið í forhituðum ofninum í u.þ.b. 12 mínútur, eða þar til kjarnhiti er orðin 70°C. Ristið sætu kartöflurnar og gulræturnar á pönnu og bakið svo í ofni þar til þær eru orðnar mjúkar. Kryddið með salti og pipar. Meðlæti Stráið gróft saxaðri basilíku yfir réttinn og berið fram með góðu og fersku salati.

27


Kynntu þér kosti græna skráargatsins Áleggið frá Kjarnafæði er sannkallað gæðaálegg

Hollara og betra álegg

Spægipylsan ásamt pepperóní og sterku pepperóní hafa hlotið gullmerki Meistarafélags kjötiðnaðarmanna

Lítill eða enginn viðbættur sykur Ekkert glútein Enginn laktósi

Veldu gæði - veldu Kjarnafæði


ní

a ki s na

ði

Álegg Heilsusamlegra og betra álegg. Við vinnum stöðugt að því að fækka ofnæmis- og óþolsvöldum, minnka magn salts og sykurs og gera áleggið okkar eins heilsusamlegt og mögulegt er, en þó ekki á kostnað bragðsins. Það þarf vart að taka fram að áleggið okkar er allt án msg, glútens og laktósa. Allt áleggið frá okkur fæst í 16 sneiða pakkningum fyrir stóreldhús. Þá er einnig hægt að fá minna magn í bréfum sem annars eru seld til verslana vítt og breytt um landið.

Gullverðlaun Kjötiðnaðarmeistarar Kjarnafæðis hafa um árabil unnið fjölmörg verðlaun fyrir framúrskarandi gott álegg og höfum við haldið í þau grunngildi að gera hollt og gott álegg. Pepperoni-ið okkar er margverðlaunuð hágæðavara sem við erum stolt af að kynna sem okkar flaggskip í áleggslínunni.

Græna skráargatið Kjarnafæði er í góðu samstarfi við Ísfugl með kjúklingaálegg sem eins og svo margar skinkurnar okkar ber að sjálfsögðu græna skráargatið. Græna skráargatið byggir á því að vörur í þeim flokki eru hollari en aðrar eða eru undir ákveðnum viðmiðum. Viðmiðin fyrir álegg eru eftirfarandi; · Minnst 50% kjöt · Mest 10 g fita í 100 g · Mest 5 g sykur í 100 g Við reynum ætíð að vera vel fyrir neðan þessi viðmið. T.d. er 1. fl. skinkan okkar 80% kjöt, sykurtegundir aðeins 0,3 g (þar af leiðandi sykursnauð vara) og fita aðeins 2%.

29


Spægipylsan er einstaklega bragðgóð enda eru verkunaraðferðirnar sem kjötiðnaðarmeistarar Kjarnafæðis beita til þess fallnar að skapa þetta hefðbundna og góða spægipylsu bragð.

Frostnr.

Kælinr.

Vörulýsing

1689

1669 6003 6006 6025 6100

Húskarla hangilæri sneitt

6156 6203 6208 6209 6212 6216 6218 6219 6224

Hangiálegg Hangikurl

Ath. 16 sneiðar 300 g pk

Lambasteik

16 sneiðar

Lambarúllupylsa

16 sneiðar

Sveitakæfa

250 g stk

Pizzuskinka lítil

1 kg pk

Baconkurl

1 kg pk

Pizzuskinka stór

1 kg pk

Bacon sneitt

1 kg pk

Bacon í heilu

1 stk

Salamí Hansen

290 g stk

Spægipylsa

16 sneiðar

Svínarúllupylsa

16 sneiðar

húskarla hangilæri er hráverkað og reykt og því tilbúið til neyslu.

Haldið er í gamlar hefðir þegar kemur að lambarúllupylsunni og er hún verkuð á gamla mátann. Kjarnafæði býður auk þess upp á reykta ósoðna rúllupylsu og saltaða ósoðna rúllupylsu.

Pizzuskinkan er frábær kostur á pizzuna og unir sér hvergi betur. Hana má þó að sjálfsögðu nota við fleiri tilefni eins og sem álegg á brauðið, í skinkusalatið, skinkupasta og svona mætti lengi telja. Athygli skal vakin á því að hægt er að fá hana bæði 40 cal og 100 cal fyrir mötuneyti og veitingastaði.

30


Hangiáleggið frá Kjarnafæði er taðreykt.

Frostnr.

Kælinr.

Vörulýsing

6228 6231 6235 6240 6246 6250 6255 6304 6306 6312 6402 6601 6802 6806

Léttreykt brauðskinka

16 sneiðar

Pepperoni

1 kg pk

Pepperoni smátt 20 cal

1 kg pk

Pepperoni sterkt

1 kg pk

Hamborgarhryggur álegg

16 sneiðar

Sveitaskinka

16 sneiðar

Dönsk lifrarkæfa

190 g stk

Skinka 1. flokkur

16 sneiðar

Skinkukurl

Léttreykt brauðskinka er afar ljúffeng enda gefur léttreykingin skinkunni aðeins aukið bragð sem skilar sér svo sannarlega. Þá er léttreykta skinkan aðeins með 2% fituinnihald.

1 kg pk

Brauðskinka

16 sneiðar

Roast beef

16 sneiðar

Malakoff

16 sneiðar

Kjúklingaálegg

16 sneiðar

Kjúklingaálegg léttreykt

16 sneiðar

“Kjarnafæði pepperoni, alvöru pepperoni, af því að það er Kjarnafæði pepperoni” var slagorð sem við gerðum fyrir auglýsingaherferð og það á svo sannarlega við. Verkunaraðferðirnar sem kjötiðnaðarmeistarar Kjarnafæðis beita ná fram alvöru pepperoni bragði. Athygli skal vakin á því að Kjarnafæði pepperoni inniheldur ekki sykur. Sterkt pepperoni er eins og nafnið ber með sér aðeins sterkara og bragðmeira en það venjulega.

31

Ath.

Sveitaskinka er unnin úr grísalæri, er heilvöðva skinka, léttsöltuð og krydduð og með 90% kjötinnihaldi. Hún er tilvalin í veisluna, pinnamat, morgunverðahlaðborðið eða sem máltíð ein og sér. Hægt er að fá hana bæði í heilu og sneidda.


Morgunverðarpylsur

Pylsur Grillpylsurnar frá Kjarnafæði eru margrómaðar sem einar af bestu grillpylsum landsins. Þær eru kjötríkar og afar bragðgóðar. Viljir þú fara með bragðlaukana þína í ferðalag er ráð að tryggja sér safaríku grillpylsurnar frá Kjarnafæði. Kjötiðnaðarmeistarar fyrirtækisins eru alltaf að þróa og prófa nýjar tegundir sem skilar sér í bestu útkomunni. Þá erum við með bæði grófar og fínar morgunverðarpylsur sem eru hannaðar fyrir hótel, gistiheimili og aðra þá sem bjóða upp á morgunverð. Einnig erum við með litlar kokteilpylsur sem gera gott partý enn betra! Þá bíður Kjarnafæði að sjálfögðu uppá hefðbundnar pylsur og er lögð rík áhersla á að minnka fitu og salt en auk þess er unnið að því að fækka ofnæmisvöldum og aukefnum í pylsunum. Til dæmis eru engar mjólkurvörur notaðar í vínarpylsurnar frá Kjarnafæði.

32


Pylsur Allar grillpylsurnar sem Kjarnafæði bíður uppá hafa hlotið gullverðlaun í fagkeppni Meistarafélags Kjötiðnaðarmanna. Grillpylsurnar innihalda flestar mjög hátt kjöthlutfall, eða um 76-90%. Frostnr.

7630

7612

Kælinr.

Vörulýsing

7600 7603 7604 7610 7607 7611 7615 7617 7624 7634 7635

Bratwurste pylsur 4 stk

Ath. 360 g pk

Grófar morgunverðarpylsur

U.þ.b. 1 kg

Morgunverðarpylsur

U.þ.b. 1 kg

Vínarpylsur 10 stk

480 g pk

Kielbasa pylsur 5 stk

250 g pk

Kokteil pylsur

U.þ.b. 1 kg

Mexico pylsur 10 stk

220 g pk

Pólskar pylsur 4 stk

360 g pk

Vínarpylsur 5 stk

240 g pk

Bacon pylsur 6 stk

300 g pk

Óðals-osta pylsur 4 stk

300 g pk

Kjötríkustu pylsurnar frá Kjarnafæði eru Kielbasa pylsur með 90% kjötinnihald og afar fá innihaldsefni. Ef þú ert á Ketó þá eru Kielbasa pylsurnar frábær kostur, engin kolvetni, enginn sykur og um 27% fituinnihald.

Kjötiðnaðarmeistarar Kjarnafæðis hafa undanfarin ár unnið að því að bæta vínarpylsurnar frá Kjarnafæði auk þess að fækka aukefnum og ofnæmisvöldum, s.s. glúteni, laktósa og soya. Kjarnafæði pylsur eru sælgæti í pottinn, á grillið eða í ofninn.

33


Heimilismatur Kjarnafæði selur mikið úrval af heimilismat bæði í verslunum og fyrir stór og smá mötuneyti, veitingahús, stofnanir og fleiri. Þar á meðal eru bjúgu, búðingar og kjötfars og margt fleira. Þó um unnar kjötvörur sé að ræða leitast kjötiðnaðarmeistarar fyrirtækisins við að minnka aukefni, óþolsvalda eins og í öðrum vörum.

Búðingar Búðingar eru fljótleg og þægileg vara til að elda með skömmum fyrirvara. Með búðingum er hægt að gera marga spennandi pottrétti eins og sjá má á myndinni hér fyrir ofan. Ódýr, fljótlegur og góður kostur í mötuneytið þitt! Frostnr.

Kælinr.

Vörulýsing

Ath.

7511 7507 7510

Medisterpylsa

630 g stk

Kjötbúðingur

480 g stk

Krakkabúðingur

635 g stk

Medister búðingur er lang vinsælasti búðingurinn sem Kjarnafæði selur. Hann er afar bragðgóður og auðveldur í meðhöndlun. Hægt er að fá hann þíðan. Kjötbúðing má fá þíðan hjá Kjarnafæði. Kjötbúðingurinn er mild en samt bragðgóð kjötpylsa.

Krakkabúðingurinn er fyrir Kjarnakrakka með það að leiðarljósi að koma fyrir í bragðgóða pylsu spínati, gulrótum og papriku. Krakkabúðingurinn uppfyllir kröfur græna skráargatsins og er um leið hollur kostur.

Græna skráargatið auðveldar hollara val og þar með að fara eftir opinberum ráðleggingum um mataræði, því matvörur sem bera merkið verða að uppfylla ákveðin skilyrði varðandi samsetningu næringarefna; minni og hollari fita - minna af sykri - minna af salti - meira af trefjum og heilkorni.

34


Kjötfars Hægt að fá mismunandi stærðir en í neytendapakkningum eru um það bil 630 gr. Í mötuneyti og veitingastaði er hægt að fá um 2 kg einingar. Mörgum finnst ómissandi að fá góðar kjötfarsbollur á bolludaginn og þar komum við sterk inn! Frostnr.

Kælinr.

Vörulýsing

7020 7026

7550 7557

Kjötfars

Ath.

Ömmufars

Bjúgu Hinn sanni íslenski heimilismatur sem stendur alltaf fyrir sínu hvort heldur sem er með kartöflum og uppstúf eða kartöflustöppu og grænum baunum. Við skorum á þig að prófa að bjóða upp á gamla góða Ritz kexið með bjúgunum. Svo eru einhverjir farnir að grilla bjúgun og við fögnum öllum nýjungum í kringum þau. Frostnr.

Kælinr.

Vörulýsing

4254 4255 7572 7577

Hrossabjúgu fín 2 stk

480 g pk

Hrossabjúgu gróf

690 g stk

Kindabjúgu 2 stk

420 g pk

Sveitabjúgu kofareykt 6 stk

Ath.

Hrossabjúgu gróf upp á gamla mátann eru afar vinsæl meðal landans enda alvöru kjötmikil bjúgu (97%). Athugið að mikilvægt er að stinga göt á bjúgun fyrir suðu og gott að sjóða í að minnsta kosti 90 mínútur við vægan hita.

1.260 g pk

Kofareyktu sveitabjúgun og kindabjúgun frá Kjarnafæði innihalda engan viðbættan sykur og aðeins um 2 g salt á hver 100 g. Gott er að sjóða bjúgun í að minnsta kosti 25 mínútur við vægan hita.

35


Eldaðar vörur Ef þú leitar að fljótlegum og bragðgóðum vörum sem auðvelt er að bjóða upp á með skömmum fyrirvara þá gætu elduðu vörurnar frá okkur í Kjarnafæði verið svarið. Mikið úrval er til af bollum, buffum, sneiðum, hakki og hakkréttum, svo dæmi séu tekin. Þá er einnig hægt að fá aðrar soðnar og/eða forsteiktar vörur hjá okkur eftir óskum en þær pantanir þurfa að berast með góðum fyrirvara. Dæmi um það eru lærissneiðar, kótilettur, snitsel og fleira í raspi ásamt soðnu hangikjöti, hamborgarhrygg, saltkjöti og fleira. Þessi listi er alls ekki tæmandi og erum við sífellt að auka úrvalið í elduðum vörum. Hafðu samband fyrir frekari upplýsingar.

36


Frostnr.

Kælinr.

Vörulýsing

Ath.

8403

Lasagne minna

2,5 kg

8404

Lasagne stærra

5 kg

8410

Kjötfarsbollur steiktar 80 g

5 kg ks

8411

Danskar hakkbollur steiktar (grís og naut) 50 g

5 kg ks

8412

Danskt buff forsteikt (grís og naut)

5 kg ks

8413

Sænskar kjötbollur steiktar 20 g

5 kg ks

8415

Sesambollur steiktar (grís og naut) 20 g

5 kg ks

8417

Lambabuff

5 kg ks

8416

Lambabollur u.þ.b. 50 g

5 kg ks

8418

Lambabollur u.þ.b. 20 g

5 kg ks

8419

Ömmufarsbollur soðnar 80 g

5 kg ks

8420

Ítalskar bollur (grís) 20 g

5 kg ks

8430

Bacon forsteikt

2 kg pk

8459

Nautgripahakk forsteikt

8450

Hamborgarar 90 g forsteiktir

8454

Hamborgarar mini 30 g forsteiktir

7023

Lambasneiðar formótaðar

5 kg ks

7025

Svínasnitsel m/raspi forst

5 kg ks

37

2743

Pulled pork

2745

BBQ spare ribs soðin

u.þ.b. 1 kg pk 60 stk ks 5 kg ks (u.þ.b. 166 stk)


DALVÍK

HRÍSEY GRENIVÍK

LITLI ÁRSKÓGSSANDUR HAUGANES

AKUREYRI

sala@kjarnafaedi.is - kjarnafaedi.is


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Vorulisti by kjarnafaedi - Issuu