Skip to main content

Bikarblað Keflavíkur 2026

Page 1


KEFLAVÍK Á STÓRA SVIÐINU

– SAMAN ALLA LEIÐ KÆRU KEFLVÍKINGAR

Það er eitthvað sérstakt í loftinu þegar líður að úrslitakeppni bikarsins. Spennan, eftirvæntingin og stoltið – allt blandast saman í þá tilfinningu sem við þekkjum svo vel hér í Keflavík. Nú stöndum við á tímamótum þar sem bæði karla- og kvennalið félagsins eru komin í undanúrslit og fram undan eru leikir sem skipta öllu máli. Á morgun stíga strákarnir okkar á parketið gegn Stjörnunni. Þeir hafa sýnt undanfarið mikinn karakter, seiglu og baráttuvilja og eiga það sameiginlegt að gefast aldrei upp –sama hvernig staðan er. Þetta er lið sem mun leggja allt í sölurnar fyrir merkið á brjóstinu.

Á miðvikudaginn taka stelpurnar við keflinu þegar þær mæta Hamar/Þór. Kvennaliðið okkar hefur vaxið leik frá leik og sýnt oft á tíðum hvers þær eru megnugar. Þær eru til alls líklegar þegar mest á reynir og alveg ljóst að þær munu mæta sterku liði sem gefur ekkert eftir. Við vitum öll hvað býr í okkar liði og þær eru staðráðnar að sýna það.

En leikmenn vinna ekki bikarinn einir. Við getum öll hjálpað til. Stuðningurinn úr stúkunni hefur ávallt verið eitt sterkasta vopn Keflavíkur og nú þurfum við meira á honum að halda en nokkru sinni fyrr. Þegar íþróttahúsin fyllast, söngurinn dynur og þegar svarblái liturinn tekur yfir – þá gerist eitthvað sérstakt. Þá verður Keflavík erfitt viðureignar fyrir hvern sem er.

Ég hvet alla Keflvíkinga, unga sem aldna, til að mæta á leikina, klæðast litunum okkar og standa þétt við bakið á liðunum. Sýnum hvað það þýðir að vera hluti af Keflavík –liðsheild, metnaður og barátta fram á síðustu sekúndu.

Áfram Keflavík – saman alla leið. Magnús Sverrir Þorsteinsson formaður körfuknattleiksdeildar Keflavíkur

© Körfuknattleiksdeild Keflavíkur 2026

Umbrot og umsjón með útgáfu: Jóhann Páll Kristbjörnsson

Hönnun forsíðu: Davíð Örn Óskarsson

Myndir: Keflavík/JPK, Víkurfréttir og fleiri. Prentun: prentun.is

... OG EF VIÐ BARA LEGGJUMST Á EITT ...

Það styttist óðum í bikarúrslitaviku Körfuknattleikssambands Íslands en hún fer fram 3.–7. febrúar næstkomandi í Smáranum í Kópavogi.

Með frábærri frammistöðu í bikarkeppninni í vetur hjá báðum meistaraflokksliðunum okkar í körfuknattleik er nú komið að fjögurra liða úrslitum. Keflavík á möguleika á að vinna tvöfalt í sjötta sinn en ekkert félag á Íslandi hefur afrekað það.

Öll munum við eftir fræknum sigrum liðanna okkar árið 2024.

Magnús Haraldsson féll frá fyrir skömmu. Hann var mikill Keflvíkingur og einn af okkar dáðustu sonum. Mikill stuðningsmaður og annt um félagið sitt. Magnús talaði oft um það við fólkið í kringum sig að ef eitthvað bjátaði á þá væri lausnin sú að gera hlutina saman, vinna sameiginlega að lausn. Þetta finnst mér að við í Keflavíkurfjölskyldunni ættum að taka til okkar. Við getum hjálpað liðunum okkar með jákvæðum stuðningi á ýmsan hátt.

Fyrir mér er Keflavíkurfjölskyldan aldrei mikilvægari en á þessum stundum – úrslitastundum. Þarna reynir á að við stöndum saman, erum hluti af stórri heild og sýnum hversu megnug við erum. Í laginu sem sýnt var í lok ánnálsins á þorrablótinu kemur þetta svo skýrt fram að ef við leggjumst á eitt þá er allt hægt og svo segir einnig í textanum: „Nú þarf hver íbúi hér að rísa upp og láta heyra í sér.“ Til að láta heyra í sér þarf maður að mæta á staðinn. Ég hvet ykkur kæru stuðningsmenn Keflavíkur til að mæta í Smárann, komum liðunum okkar í gegnum undarúrslitin og tökum þessa tvo bikara með okkur til Keflavíkur.

Höldum áfram að skrifa söguna, stöndum saman – erum Keflavík

Hlakka til að sjá ykkur í Smáranum, ÁFRAM KEFLAVÍK!

Björg Hafsteinsdóttir formaður

MEISTARAFLOKKUR KVENNA

Hörður Axel Vilhjálmsson

Þjálfari

Keishana Washington Bakvörður

Eva Kristín Karlsdóttir Miðherji

Anna Ingunn Svansdóttir Bakvörður

María Jónsdóttir Miðherji

Emelía Ósk Gunnarsdóttir Framherji

Katla Rún Garðarsdóttir Bakvörður

Agnes María Svansdóttir Framherji

Anna Lára Vignisdóttir Framherji

Telma Lind Hákonardóttir Bakvörður

Oddný Hulda Einarsdóttir Bakvörður

Sara Rún Hinriksdóttir Framherji

Birna Valgerður Benónýsdóttir Miðherji

Thelma Dís Ágústsdóttir Framherji

Bríet Sif Hinriksdóttir Bakvörður

Sofie Tryggedsson Preetzmann Framherji

Angelina Turmel Miðherji

MEISTARAFLOKKUR KARLA

Viktor Magni

Sigurðsson Bakvörður

Frosti Sigurðarson Framherji

Nikola Orelj Bakvörður

Ólafur Björn

Gunnlaugsson Miðherji

Remy Martin Bakvörður

Eyþór Lár Bárðarson Bakvörður

Daniel Eric Ottesen Clarke Bakvörður

Halldór Garðar Hermannsson Bakvörður

Egor Koulechov Bakvörður

Craig Edward Moller Miðherji

Jaka Brodnik Framherji

Jakob Máni Magnússon Bakvörður

Hilmar Pétursson Bakvörður

Daníel Guðni Guðmundsson Þjálfari

Dagur Stefán Örvarsson Bakvörður

Mirza Bulic Framherji

Hvað spilaðir þú marga bikarúrslitaleiki?

„Ég spilaði tíu bikarúrslitaleiki, vann sjö en tapaði þremur.“

Hvernig tilfinning er það að taka þátt í svona úrslitaleikjum?

„Þetta er einn af skemmtilegustu leikjum tímabilsins. Alltaf gaman að spila í höllinni, mikil spenna, fullt af áhorfendum og mikil læti. Allt getur gerst í bikarúrslitaleikjum því þarna skiptir staðan í deildinni engu máli, bara að vinna leikinn og þá ertu bikarmeistari. Algjörlega geggjað!“

Hvað stendur upp úr í minningunni frá bikarviku?

„Samheldnin var mikil hjá okkur og við gerðum alltaf eitthvað skemmtilegt fyrir hvern leik. Eftirminnilegast eru þó flétturnar 1998, Keflavíkur„tattooin“ og stríðsmálningin árið 2004. Það voru þó alltaf fastir liðir eins og að elda saman pasta og borða

heima hjá mér kvöldið fyrir úrslitaleikinn, svo var morgunmatur fyrir leikinn heima hjá Erlu Sveins. Þetta var æðislegur tími og eigum við margar dýrmætar og skemmtilegar minningar frá þessum árum. Allir sigrarnir voru sætir en bikarleikurinn 1997 var ógleymanlegur en það var sennilega okkar versti leikur, spennustigið var alltof hátt hjá okkur en við náðum að vinna KR eftir framlengingu. Árið 2004 unnum við líka KR þrátt fyrir slakan leik en við náðum að snúa þessu okkur í vil á síðustu mínútunum.“

Lumarðu á heilræði fyrir liðin okkar? „Já, það skiptir öllu að spila saman, berjast saman og njóta þess að spila þennan frábæra leik. En eins og góður maður sagði þá er það vörnin sem vinnur titlana. Að lokum er mikilvægt að passa að spennustigið sé ekki of hátt.“

Skilaboð til stuðningsmanna?

„Verum stoltir Keflvíkingar, hvetjum liðin okkar á jákvæðan hátt. Góða skemmtun og upp upp og ÁFRAM KEFLAVÍK!!!“

Kristín Stefanía Þórarinsdóttir:

GÓÐ HUGMYND AÐ LÁTA FLÉTTA ALLAR Í LIÐINU

Hvað spilaðir þú marga bikarúrslitaleiki?

„Ég varð fjórum sinnum bikarmeistari.“

Hvað stendur upp úr í minningunni frá bikarviku?

„Það sem stendur upp úr er ekki endilega að vinna titlana heldur minningarnar í kringum leikina, eins og bikarpasta

kvöldið fyrir leik á Hrauntúninu, morgunmaturinn hjá Erlu Sveins fyrir úrslitaleiki og leikurinn 1998 þar sem okkur fannst góð hugmynd að láta flétta allar í liðinu.“

Lumarðu á heilræði fyrir liðin okkar?

„Heilræði væri kannski helst að reyna að átta sig á hversu magnaður tími þetta er. Það er svo allt öðru vísi stemmning í bikarnum heldur en Íslandsmótinu og þrátt fyrir pressuna og stressið þá verða þau líka að muna að njóta því þau eru komin þetta langt.“

Skilaboð til stuðningsmanna?

„Það væri ótrúlega gaman að sjá fólkið okkar mæta. Daníel, þjálfari, hefur sagt það margoft í viðtölum hversu miklu skemmtilegra það er að spila fyrir fullu húsi og það er staðreyndin að stuðningsfólkið okkar sem mætir á leiki skiptir rosalega miklu máli. Ég veit ekki hvort að allir geri sér grein fyrir því hvað það skiptir miklu máli fyrir þjálfara og leikmenn að sjá fulla stúku af stuðningsfólki sem lætur í sér heyra.“

EINN AF TOPPUNUM Á TÍMABILINU

Hvað spilaðir þú marga bikarúrslitaleiki?

„Ég tók þátt í fimm bikarúrslitaleikjum, það voru þrír sigrar og tvö töp.“

Hvernig tilfinning er það að taka þátt í svona úrslitaleikjum?

„Hún er náttúrlega alveg geggjuð.

Þetta er einn af toppunum á tímabilinu, að komast í úrslitaleikinn. Þannig að það er mjög gaman.“

Hvað stendur upp úr í minningunni frá bikarviku?

„Undirbúningurinn, aðdragandinn og svo auðvitað úrslitaleikurinn sjálfur –og þegar maður vinnur, það er náttúrlega alveg ógleymanleg tilfinning.

Þetta er auðvitað bara „do or die“, ef maður tapar ertu náttúrlega úr leik, þannig að þú þarft að vinna alla leiki. Þannig að það er mjög gaman að standa uppi með bikarinn eftir svona.“

Lumarðu á heilræði fyrir liðin okkar?

„Bara mæta klár og njóta þess að vera þarna. Leggja sig fram og hafa gaman af þessu.“

Skilaboð til stuðningsmanna?

„Já, allir að mæta á völlinn til að styðja okkar lið og búa til frábæra stemmningu. Áfram Keflavík!“

ÁFRAM KEFLAVÍK

LANGTÍMALEIGA

LANGTÍMALEIGU BLUE

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Bikarblað Keflavíkur 2026 by Keflavik - Issuu