Skip to main content

TM Mótsblaðið 2026

Page 1


15. tbl. 08. árg. 11.-18. júní 2026 mótið 11. - 15. júní 2026

Kæru gestir og þátttakendur

VELKOMIN TIL EYJA!

Við hjá Vestmannaeyjabæ, eins og Eyjamenn allir, erum ávallt jafn stolt og glöð þegar ÍBV íþróttafélag heldur sín stóru knattspyrnumót. Þetta eru sannkölluð stórverkefni íþróttasumarsins: TM-mótið og Orkumótið í Eyjum.

Að baki þessum mótum liggur gríðarleg vinna og vandaður undirbúningur, bæði hjá félaginu sjálfu, sjálfboðaliðum þess og öllum þeim fjölmörgu þátttakendum sem sækja mótin. Í flestum tilvikum eru þetta hápunktar sumarsins fyrir iðkendur og þjálfara sem hingað koma.

Eyjamenn eru þekktir fyrir að taka vel á móti gestum sínum og það er óneitanlega sérstök upplifun nánast eins og að fara til útlanda að stíga um borð í Herjólf og sigla til Eyja. ÍBV íþróttafélag leggur mikinn metnað í að mótin gangi vel fyrir sig, og með samstilltu átaki allra þeirra sem koma að, beint eða óbeint, tekst það með eindæmum vel. Raunar má segja að bæjarbúar allir séu á einhvern hátt þátttakendur í þessu sameiginlega verkefni.

TM-mótið fer fram í 37. sinn í ár og aldrei hafa þátttakendur verið fleiri. Það sem stendur upp úr er jákvæð upplifun af Eyjum, leikgleði og heilbrigður keppnisandi. Þessar stundir verða að minningum sem lifa lengi og eru öllum dýrmætar, þátttakendum jafnt sem þeim sem fylgjast með.

Hér í Eyjum eru þetta tvær af stærstu ferðahelgum sumarsins. Foreldrar og fjölskyldur fylgja börnum sínum og skapa með því enn ríkari upplifun. Það er hluti af töfrum mótanna að vera ekki síður áhorfandi eða aðstandandi og fá að upplifa gleðina sem skín úr hverju andliti.

Við í Eyjum erum stolt af því sem Vestmannaeyjar hafa upp á að bjóða og ég efast ekki um að þið munið eiga hér góðar stundir á okkar fallegu Heimaey. Munið þó að þetta er fyrst og fremst upplifun og ævintýri sem vert er að njóta. Að vera til fyrirmyndar, innan sem utan vallar, er hluti af þeirri gleði. Þetta er leikur, þó að hann sé keppni.

Góða skemmtun! Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri

FORSÍÐUMYNDIN: Forsíðumynd vikunnar er tekin á leik landsliðs og pressuliðsins á TM-mótinu 2024. Mynd: Sigfús Gunnar.

TÍGULL

DREIFING:

Dreifing fer fram á fimmtudögum og er blaðinu dreift inn á öll heimili í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is

Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir & Katrín Laufey Rúnarsdóttir.

ÚTGÁFA:

Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is

SKIL Á AUGLÝSINGUM:

Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.

TM Mótið í Eyjum

DAGSKRÁ 2026

Miðvikudagur 10. júní

10:00/12:00/14:00/17:00

11:00-20:30

18:00-20:00

Brottför Herjólfs frá Landeyjarhöfn

Bátsferðir - skemmtisigling í Klettshelli

Kvöldmatur

Fimmtudagur 11. júní

7:00-9:00

8:00-18:00

8:20-12:20

11:30-13:30

13:00-17:00

16:30-18:30 19:00

Morgunmatur í Höllinni

Bátsferðir - skemmtisigling í Klettshelli

Leikir - riðlakeppni

Hádegismatur

Leikir - riðlakeppni

Kvöldmatur

Setning - hæfileikakeppni í íþróttahúsinu

Föstudagur 12. júní

7:00-9:00

8:20-12:20

9:00-17:00

11:30-13:30

13:00-17:00

16:30-18:30

19:00-19:45

20:00

Morgunmatur í Höllinni

Leikir - riðlakeppni

Liðsmyndataka við Sundlaugina - SportHero Hádegismatur í Höllinni

Leikir - riðlakeppni

Kvöldmatur

Landslið - Pressulið, 2 leikir á Hásteinsvelli

Þær sem keppa landsleik mæta 45 mín. fyrir leik í Herjólfshöll

Kvöldvaka í íþróttahúsinu - Tónhylur

Úrslit í hæfileikakeppni kynnt

Laugardagur 13. júní

7:00-9:00

8:00-14:00

11:15-13:15 15:00-16:30 16:30 17:00 17:15-18:00

20:00/22:00/23:55

Morgunmatur í Höllinni

Leikir - riðlakeppni

Hádegismatur í Höllinni

Jafningjaleikir

Bikarúrslitaleikir

Úrslitaleikur um TM Mótsbikarinn

Grillveisla við Týsheimili

Brottför Herjólfs frá Vestmannaeyjum

MÓTSSVÆÐI

Illugagata

TÝSVÖLLUR

ÍÞRÓTTAHÚS - SUNDLAUG

Myndataka SPORTHERO

Tjaldsvæði

Skrifstofa ÍBV - Mótsstjórn

Týsheimili

HÁSTEINSVÖLLUR ÞÓRSVÖLLUR H ama r s v e gur

HERJÓLFSHÖLL

Veitingasala

Tjaldsvæði

Þórsheimili

fyrir tjaldsvæði

Tjaldsvæði

Tjaldsvæði

Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? já, í fyrsta sinn þegar ég var 1 árs og svo fór ég á TM mótið í fyrra og ég hef farið á þjóðhátíð einu sinni.

Hvað er uppáhalds leikmaðurinn þinní íslenska landsliðinu? Cecilia markmaður.

Númer hvað spilar þú og afhverju? Númer 23 því að uppáhaldsleikmaðurinn minn var Sveindís og hún er númer 23 en eftir að èg varð markmaður þá er Cecilia uppáhalds leikmaðurinn minn en ég er samt ennþá númer 23.

Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila? Mark. Hvaða lið er uppáhalds í enska boltanum? Liverpool.

BIRTA RÓS UNNARSDÓTTIR

Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Já oft. Þetta er þriðja Pæjumótið mitt. Á þjóðhátíð og svo hef ég farið á marga meistaraflokksleiki í Eyjum með mömmu.

Uppáhaldsleikmaðurinn þinn í íslenska landsliðinu?

Glódís Perla og að sjálfsögðu Grindvíkingurinn Ingibjörg Sigurðardóttir.

Númer hvað spilar þú og er einhver ástæða fyrir þeirri tölu? Númer 44 því 4 var ekki laust. En mamma og systur mínar voru allar nr 4. Ég spila númer 8 í körfubolta og 4+4 eru 8.

Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila? Frammi. Hvað er uppáhalds liðið þitt í enska boltanum? Liverpool að sjálfsögðu.

Hefur þú komið til Vestmannaeyjar, ef já, þá hvenær?

Já ég hef komið áður, ég keppti á síðasta ™ móti. Svo hef ég komið nokkrum sinnum áður til að keppa á móti ÍBV.

Uppáhalds leikmaðurinn þinn í íslenska landsliðinu?

Glódís Perla Viggósdóttir.

Númer hvað spilar þú og er einhver ástæða fyrir þeirri tölu ? Ég er númer 3 í fótbolta því mamma mín var númer 3 þegar hún var lítil.

Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila?

Ég er varnarmaður

Hvað er uppáhalds liðið þitt í enska boltanum?

Manchester United .

STELLA ARNARDÓTTIR

Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Já, hef komið einu sinni og það var í júlí 2021. Uppáhaldsleikmaðurinn þinn í íslenska landsliðinu?

Glódís Perla Viggósdóttir

Númer hvað spilar þú og er einhver ástæða fyrir þeirri tölu? Ég spila númer 44. Við drögum númer þegar við komum í 5.flokk hjá Breiðablik og ég dróg 44.

Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila?

Mér finnst skemmtilegast að spila á miðjunni.

Hvað er uppáhalds liðið þitt í enska boltanum?

Liverpool

Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja ef já hvenær? Aldrei komið áður til Vestmannaeyja.

Hver er uppáhalds leikmaðurinn þinn í íslenska landsliðinu? Glódís Perla.

Númer hvað spilar þú og er einhver ástæða fyrir

þeirri tölu? Nr.18 - á afmæli 18. desember og 18 er lukkutalan mín.

Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila?

Mér finnst skemmtilegast að spila vörn.

Hvað er uppáhalds liðið þitt í enska boltanum? Liverpool.

KRISTJANA LIND ÞRASTARDÓTTIR

Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Já, á TM mótið síðustu 2 ár og keppni á íslandsmótinu.

Hvað er uppáhalds leikmaðurinn þinní íslenska landsliðinu? Glódís Perla Viggósdóttir.

Númer hvað spilar þú og afhverju? 11, Ég valdi töluna í 8. flokki vegna þess að ég var sóknarmaður og hef bara haldið henni síðan.

Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila? Í 5. fl. á miðjunni - Í 4. flokki á miðjunni.

Hvaða lið er uppáhalds í enska boltanum? Manchester united.

Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja ef já hvenær? Já tvisvar, fyrsta á TM mótið í fyrra og svo til að spila leik í Íslandsmótinu við ÍBV.

Hver er uppáhalds leikmaðurinn þinn í íslenska landsliðinu? Cecilía Rán Rúnarsdóttir.

Númer hvað spilar þú og er einhver ástæða fyrir

þeirri tölu? Ég er númer 16, engin ástæða fyrir því.

Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila?

Mér finnst skemmtilegast að spila í marki.

Hvað er uppáhalds liðið þitt í enska boltanum? Liverpool.

MÝRÚN HRANNARSDÓTTIR

Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Já ég hef komið til Vestmannaeyja.

Það var síðasta sumar.

Uppáhalds leikmaðurinn þinní íslenska landsliðinu?

Glódís Perla.

Númer hvað spilar þú og afhverju? Ég er númer 22 af því að ég á afmæli 22 september.

Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila?

Vinstri vörn.

Hvaða lið er uppáhalds í enska boltanum?

Ég held með Liverpool í enska.

Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Þrisvar sinnum, síðast í apríl í fyrra í afmælisferð pabba míns.

Hver er uppáhaldsleikmaðurinn þinn í íslenska landsliðinu? Sveindís Jane Jónsdóttir .

Númer hvað spilar þú og er einhver ástæða fyrir þeirri tölu? Ég er búin að vera nr. 9 síðan ég var lítil bæði í körfubolta og fótbolta.

Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila? Sem miðvörður.

Hvað er uppáhalds liðið þitt í enska boltanum? Manchester United.

ANDREA

ALDÍS AUÐUNSDÓTTIR

Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Já ég hef komið til Eyja, ég keppti á TM mótinu í fyrra og svo fór ég með systur minni á mótið þar á undan. En svo er amma mín frá Vestmannaeyjum þannig að ég hef komið og verið hjá frændfólki. Uppáhaldsleikmaðurinn þinn í íslenska landsliðinu?

Glódís Perla

Númer hvað spilar þú og er einhver ástæða fyrir þeirri tölu? Ég spila í fjarkanum og hef alltaf gert, frændi minn spilaði númer 4 og var fyrirliði HK í mörg ár og er það ástæðan fyrir þvi afhverju ég valdi fjarkann.

Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila? Ég get spilað flest allar stöður en er oftast hægri bakvörður.

Hvað er uppáhalds liðið þitt í enska boltanum? Ég held með Liverpool.

Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Í fyrra á TM mótið og til að keppa á Íslandsmótinu og einu sinni þegar ég var lítil.

Hver er uppáhaldsleikmaðurinn þinn í íslenska landsliðinu? Það er bara ein drottning, Sara Björk. Númer hvað spilar þú og er einhver ástæða fyrir þeirri tölu? 8, því mamma var númer 8.

Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila?

Á kantinum og sem senter.

Hvað er uppáhalds liðið þitt í enska boltanum? Liverpool.

ANDREA ÍSLEIFSDÓTTIR

Hefur þú komið áður til Eyja,ef já þá hvenær?

Já, hef oft komið, frænkur mínar búa í Vestmannaeyjum Hver er uppáhalds leikmaðurinn þinn í íslenska landsliðinu?

Cecilía Rán Rúnarsdóttir.

Númer hvað spilar þú og er einhver ástæða fyrir því?

Ég er númer 10 því pabbi minn var alltaf nr. 10.

Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegasta að spila?

Frammi og líka stundum í marki.

Hvað er uppáhalds liðið þitt í enska boltanum? Liverpool.

ANNA RAKEL BALDVINSDÓTTIR

Hvað er uppáhalds leikmaðurinn þinní íslenska landsliðinu? Var Sandra Sigurðardóttir en er núna

Cecilía Rán Rúnarsdóttir.

Númer hvað spilar þú og afhverju? Ég er með númerið 2 af því að pabbi var númer 2 þegar hann spilaði í gamla daga.

Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila? Markvarsla.

Hvaða lið er uppáhalds í enska boltanum? Manchester United af því það er uppáhalds liðið hans afa Magga og mömmu og þeir eru líka bestir.

KATRÍN HEKLA ELÍASDÓTTIR HJÖRVAR

Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Já. Fimm sinnum. Þrisvar að horfa á eldri systur keppa og tvisvar að keppa sjálf. Þetta er fjórða TM mótið sem ég mæti á.

Uppáhalds leikmaðurinn þinn í íslenska landsliðinu?

Sveindís Jane.

Númer hvað spilar þú og er einhver ástæða fyrir þeirri tölu? Nr. 2 og nei.

Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila? Vörn.

Hvað er uppáhalds liðið þitt í enska boltanum? Liverpool.

Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Nei er að koma í fyrsta skipti til eyja og er mjög spennt.

Hver er uppáhaldsleikmaðurinn þinn í íslenska landsliðinu? Sveindís Jane.

Númer hvað spilar þú og er einhver ástæða fyrir þeirri tölu? Ég spila nr. 45 það var besta númerið af þeim þremur sem ég dróg.

Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila?

Mér finnst skemmtilegast að spila vörn.

Hvað er uppáhalds liðið þitt í enska boltanum?

Manchester United.

ERIN ÓLAFSDÓTTIR

Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Já ég fór í fyrsta skiptið síðasta sumar til Vestmannaeyja á TM mótið.

Hvað er uppáhalds leikmaðurinn þinní íslenska landsliðinu? Karólína og Sveindís Jane en Hákon Haralds og Ísak Bergmann hjá kk.

Númer hvað spilar þú og afhverju? Ég er númer 18 þar sem hún er happatalan mín.

Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila? Frammi og kanntur.

Hvaða lið er uppáhalds í enska boltanum? Manchester United.

ÁFRAM STELPUR

Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Já þegar ég var í sumarfríi 2024 og á seinasta TM mót 2025.

Hvað er uppáhalds leikmaðurinn þinní íslenska landsliðinu? Sveindís Jane.

Númer hvað spilar þú og afhverju? Númer 1, því að ég er markmaður.

Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila? Mark Hvaða lið er uppáhalds í enska boltanum? Liverpool.

KATLA HJALTADÓTTIR

Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja?

Já einu sinni þegar bróðir var að keppa í fótbolta.

Hver er uppáhaldsleikmaðurinn þinn í íslenska landsliðinu? Sveindís Jane.

Númer hvað spilar þú og er einhver ástæða fyrir þeirri tölu?

Númer 8 því það er besta talan.

Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila?

Vörn eða miðju.

Hvað er uppáhaldslið þið í enska boltanum? Liverpool.

Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Já nokkrum sinnum, t.d. á TM mótið í fyrra. Hver er uppáhaldsleikmaðurinn þinn í íslenska landsliðinu? Dagný Brynjarsdóttir.

Númer hvað spilar þú og er einhver ástæða fyrir þeirri tölu? Nr. 12, ég á afmæli 12. júní.

Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila? Vörn.

Hvað er uppáhalds liðið þitt í enska boltanum? Liverpool.

BRÍET LÍF PÉTURSDÓTTIR

Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Já, fór á TM mótið í fyrra og hef farið nokkrum sinnum með vinkonu minni sem á fjölskyldu í Vestmannaeyjum, t.d hef ég tekið þátt i pysjubjörgun.

Hver er uppáhaldsleikmaðurinn þinn í íslenska landsliðinu? Glódís Perla.

Númer hvað spilar þú og er einhver ástæða fyrir þeirri tölu? Ég er númer 12. Allir í KR fá úthlutað númeri, en ef ég fengi að ráða myndi ég velja að vera númer 19 af því mér finnst það flott tala.

Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila? Örugglega miðju.

Hvað er uppáhalds liðið þitt í enska boltanum? Liverpool.

Áfram stelpur!

Karólína Lea Vilhjálmsdóttir, leikmaður Inter.

STELPURNAR OKKAR

Í 5. FLOKKI

BRÍET BJÖRK GÍSLADÓTTIR 13

ELÍSABET DAVÍÐSDÓTTIR 18

HAFDÍS HELGA GUÐMUNDSDÓTTIR 15

BRYNJA RUT SIGURÞÓRSDÓTTIR 25

EMELÍANA ÅBERG KRISTJÁNSDÓTTIR 46

HEKLA HRÖNN RICHARDSDÓTTIR 17

AGLA HRÖNN GEORGSDÓTTIR 9

ELENA RUT EINISDÓTTIR 16

EVA LAUFEY LEIFSDÓTTIR 28

HRAFNTINNA TRYGGVADÓTTIR 22

ANNA RAKEL BALDVINSDÓTTIR 2

ELÍSA ÓLÖF ELÍSDÓTTIR 4

EYRÚN STELLA EINARSDÓTTIR 23

ILSE ÍVARSDÓTTIR 19

INGIBJÖRG SVANA ÓLAFSDÓTTIR 62

ÍSEY HREFNA GYLFADÓTTIR 24

MÍA DRÖFN KRISTJÁNSDÓTTIR 32

UNA ÁRNÝ HARALDSDÓTTIR 5

INGUNN ÁSA FANNARSDÓTTIR 8

KAMILLA ÝR ADÓLFSDÓTTIR 11

SELMA DÍS HAUKDAL BIRKISDÓTTIR 14

ÍSOLD ÓTTARSDÓTTIR

ÍRIS DRÖFN GUÐMUNDSDÓTTIR 10

KATLA SVAVA KARLSDÓTTIR 10

SUNNA KAREN HAUKDAL BIRKISDÓTTIR 11

MYRRA RÚN

ÍRIS EMMA ÍSFJÖRÐ 26

KRISTÍN DÓRA GUÐJÓNSDÓTTIR 23

SUNNA MARIN HALLSDÓTTIR 9

RICHARD GOFFE ÞJÁLFARI

Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Já á síðasta Tm-móti sem var sjúklega gaman.

Hvað er uppáhalds leikmaðurinn þinní íslenska landsliðinu? Sveindís frænka.

Númer hvað spilar þú og afhverju? 66 og nei félagið gaf mér hana bara.

Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila? Kantur er uppáhalds.

Hvaða lið er uppáhalds í enska boltanum? Arsenal sem voru að vinna deildina.

ÚLFHILDUR ÍSAFOLD STYRMISDÓTTIR

Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Nei þetta er í fyrsta skiptið, er mjög spennt að koma á eyjuna.

Uppáhalds leikmaðurinn þinn í íslenska landsliðinu?

Sædís Rún Heiðarsdóttir algjör fyrirmynd fyrir okkur.

Númer hvað spilar þú og er einhver ástæða fyrir

þeirri tölu? Ég er númer 22, afmælisdagurinn minn.

Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila?

Markið er minn staður.

Hvað er uppáhalds liðið þitt í enska boltanum?

Manchester United lang besta liðið.

HEKLA

Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær?

Já ég hef komið til Vestmannaeyja með fjölskyldunni og kom síðast í fyrra á TM mótið.

Uppáhaldsleikmaðurinn þinn í íslenska landsliðinu?

Sveindís Jane Númer hvað spilar þú og er einhver ástæða fyrir þeirri tölu? Ég spila númer 32. Engin sérstök ástæða fyrir því.

Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila? Vörn.

Hvað er uppáhalds liðið þitt í enska boltanum? Liverpool.

ELÍN HARPA JÓNSDÓTTIR

Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Já á mótið í fyrra og nokkrum sinnum áður. Hver er uppáhaldsleikmaðurinn þinn í íslenska landsliðinu? Glódís Perla

Númer hvað spilar þú og er einhver ástæða fyrir þeirri tölu? 8 það er happatalan mín.

Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila?

Vörn eða frammi.

Hvað er uppáhalds liðið þitt í enska boltanum?

Man City

Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Já, ég var að keppa á Tm mótinu á síðasta ári og svo fór ég líka í maí á þessu ári og keppti einn leik.

Hver er uppáhaldsleikmaðurinn þinn í íslenska landsliðinu? Sveindís Jane er uppáhalds

Númer hvað spilar þú og er einhver ástæða fyrir

þeirri tölu? Ég er númer 44. Mér finnst 44 góð tala.

Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila?

Hægri kanti

Hvað er uppáhalds liðið þitt í enska boltanum?

Liverpool að því það er gott lið

SALKA VÍÐISDÓTTIR

Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Já ég hef oft komið til Vestmannaeyja. Mamma mín og pabbi eru bæði þaðan og ég er dugleg að koma að heimsækja frændur mína sem búa þar, þá Erik og Óliver og við spilum mikið fótbolta saman.

Hver er uppáhaldsleikmaðurinn þinn í íslenska landsliðinu? Glódís Perla Viggósdóttir og Sveindís Jane. Margrét Lára var líka uppáhalds.

Númer hvað spilar þú og er einhver ástæða fyrir þeirri tölu? Ég spila númer 16, eins og Amad úr Man United. Draumurinn minn er að vera jafn ung og hann þegar ég fer í landsliðið.

Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila? Frammi.

Hvað er uppáhalds liðið þitt í enska boltanum? Mancester United auðvitað, besta liðið :)

HELGA DÓRA KRISTJÁNSDÓTTIR

Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Já, á TM mótið árið 2025

Hver er uppáhaldsleikmaðurinn þinn í íslenska landsliðinu? Sveindís Jane Jónsdóttir

Númer hvað spilar þú og er einhver ástæða fyrir þeirri tölu? 6 og nei, þurfti bara að velja einhverja slétta tölu haha

Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila?

Vörn og miðja

Hvað er uppáhalds liðið þitt í enska boltanum?

Liverpool

ELÍN ÞURÍÐUR OLAVSDÓTTIR

Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Já, á TM mótið í fyrra, og í æfingaferð með

Halla Heimis þjálfara

Hver er uppáhaldsleikmaðurinn þinn í íslenska landsliðinu? Glódís Perla Viggósdóttir

Númer hvað spilar þú og er einhver ástæða fyrir þeirri tölu?

28 sem er afmælisdagurinn minn

Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila?

Vörn

Hvað er uppáhalds liðið þitt í enska boltanum? Manchester city

Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Já tvisvar sinnum, sumarið 2024 með frænku minni og svo á TM mótið í fyrra.

Hver er uppáhaldsleikmaðurinn þinn í íslenska landsliðinu? Sveindís Jane og Karólína Lea.

Númer hvað spilar þú og er einhver ástæða fyrir þeirri tölu? Ég er nr. 2 þar sem ég þurfti að velja slétta tölu og 2 er uppáhalds slétta talan mín.

Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila?

Miðjunni og frammi.

Hvað er uppáhalds liðið þitt í enska boltanum? Manchester United.

BERGDÍS ÞÓRA ANDRÉSDÓTTIR

Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Á TM mótið í fyrra.

Hver er uppáhaldsleikmaðurinn þinn í íslenska landsliðinu? Glódís Perla.

Númer hvað spilar þú og er einhver ástæða fyrir þeirri tölu? Ég er númer 30 útaf því að mér finnst það flott tala.

Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila?

Miðju, af því að þá er ég hreyfanleg á vellinum.

Hvað er uppáhalds liðið þitt í enska boltanum? Liverpool!

Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Nei! Ég hef aldrei farið til Vestmanneyja og er mjög spennt að fara þangað.

Hver er uppáhaldsleikmaðurinn þinn í íslenska landsliðinu? Glódís Perla.

Númer hvað spilar þú og er einhver ástæða fyrir þeirri tölu? Ég er númer 28 af því það var næsta tala sem var laus!

Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila? Uppáhaldsstaðan mín er hægri kantur.

Hvað er uppáhalds liðið þitt í enska boltanum? Liverpool. MARÍA ELÍSABET

ERLA KARITAS GUÐMUNDSDÓTTIR

Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já,  þá hvenær? Já, á seinasta TM móti og nokkrum sinnum með fjölskyldunni minni.

Hver er uppáhaldsleikmaðurinn þinn í íslenska landsliðinu? Glódís Perla Viggósdóttir.

Númer hvað spilar þú og er einhver ástæða fyrir

þeirri tölu? Ég spila númer 5, því mér finnst það flott tala og hún hefur verið happatalan mín síðan ég byrjaði í fótbolta.

Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila? Vörn Hvað er uppáhalds liðið þitt í enska boltanum? Manchester United.

Auglýsingasími

Tíguls: 481-1161

tigull@tigull.is

Starfsmaður óskast í ræstingar

Hlýja tannlæknastofa leitar eftir áhugasömum starfsmanni til að sinna þrifum á stofunni seinnipartinn alla virka daga.

Umsóknarfrestur til 20. Maí 2026

Umsóknir berast til palina@hlyja.is

Við höfum séð um verðlaunagripina á TM- & Orkumótinu. Gangi ykkur vel stelpur!

Er júní þinn skoðunarmánuður?

Frumherji í Eyjum vikuna 22. - 25. ágúst

Lokað í hádeginu

Tímapantanir í síma 570 9090

Faxastígur 38

FH TM-MÓTSMEISTARAR 2025

Það voru lið FH og Gróttu sem mættust á Hásteinsvelli í úrslitaleik TM-mótsins 2025. Það var allt stál í stál í venjulegum leiktíma og staðan að honum loknum 0-0. FH kom sterkara inn í framlengingu og skoraði Elísabet Una Jakobsdóttir tvö mörk beint úr aukaspyrnum og því sigraði FH Gróttu 2-0.

ELÍSABET UNA JAKOBSDÓTTIR SKORAÐI

TVÖ MÖRK Í ÚRSLITALEIKNUM Á TM MÓTINU Í FYRRA

Elísabet Una Jakobsdóttir skoraði tvö mörk í úrslitaleiknum á TM mótinu í fyrra og því vildum við taka létt spjall við hana.

Elísabet Una er 13 ára og spilar helst frammi, en hún segir að hún sé nánast alltaf sett í þá stöðu. Hún spilar í treyju númer 41 og hefur gert það lengi. „Ég hef ekki viljað skipta,“ segir Elísabet.

Aðspurð um fyrirmyndir í fótboltanum segir Elísabet að þær séu margar. „Mínar fyrirmyndir í fótboltanum eru allar stelpurnar í landsliðinu og svo nokkrar í Barcelona. Ef ég á að nefna eina þá er það Vicky López í Barcelona.“

Elísabet hefur ekki komið til Vestmannaeyja nema til að keppa á TM mótinu, en hún hefur farið þrisvar til Eyja í tengslum við mótið. „Það var alltaf ótrúlega gaman,“ segir hún.

Henni fannst frábært að koma til Eyja og segir að margt hafi staðið upp úr, en sigurinn hafi þó verið það allra stærsta. „Mér fannst allt ótrúlega gaman en það stóð klárlega upp úr að sigra mótið!“

Elísabet Una á TM mótinu í fyrra.

Þegar dómarinn flautaði úrslitaleikinn af og liðið var orðið meistari lýsir Elísabet tilfinningunni sem mikilli gleði og þakklæti. „Mikil gleði og þakklæti fyrir liðið mitt, þjálfarana og þetta tækifæri,“ segir hún.

Að lokum segir Elísabet að hún hefði gjarnan viljað fara aftur til Eyja að keppa, en nú taki önnur mót við. „Ég og mitt lið ætlum að vinna þau!“

AÐ NJÓTA ÞESS AÐ SPILA ER STÆRSTA MARKMIÐIÐ

Fæðingardagur? 29. júlí 1995

Staða á vellinum? Miðvörður en spila líka oft bakvörð þannig segjum bara varnarmaður.

Ferill sem leikmaður? Í meistaraflokki er það: Selfoss-Breiðablik-Djurgården-Rosengård-Braga-Hammarby

Bestu leikmenn sem þú hefur spilað með?

Caroline Seger

Erfiðasti andstæðingurinn?

Það var ekki létt að spila á móti Barcelona.

Titla sem þú hefur unnið?

Íslandsmeistari 2x, Bikarmeistari 3x, Sænskur meistari 3x, sænskur bikarmeistari 2x.

Hver eru markmið þín í fótboltanum?

Að njóta þess að spila.

Besti þjálfari sem þú hefur haft og af hverju?

Ég er mjög hrifin af þjálfaranum mínum í Hammarby núna. Hann er gagnrýnin, peppandi og taktísktlega klár.

Hver var þín helsta fyrirmynd þegar þú varst yngri?

Ég leit upp til Katrínar Jóns á fótboltavellinum en mamma hefur alltaf verið mín helsta fyrirmynd í lífinu.

Hvað finnst þér skemmtilegast að gera á æfingum?

Elska að spila 5 á móti 5.

En það leiðinlegasta sem þú gerir á æfingum?

Upphitunin er sjaldnast skemmtileg þó hún sé mikilvæg.

Mestu vonbrigði á vellinum?

Þegar við töpuðum úrslitaleiknum í evrópubikarnum núna í vor. Ég fór líka meidd útaf í þokkabót.

Stærsta stund á þínum ferli?

Erfitt að ákveða eitt móment, en fannst stórt að fá að spila á EM fyrir Ísland og að spila úrslitaleik í

Evrópubikarnum með Hammarby.

FÓTBOLTI ÚTI Í EYJUM

Lag og texti: Jón Jónsson

Nú er tími ævintýra.

Grænir vellir okkar bíða.

Hér eignast munum haug af minningum

Tvöföld skæri og svo spretta.

Í góðu færi verð að negla.

Við skiljum allt eftir á vellinum

Oooooh, gaman útí Eyjum

Oooooh, sameiginlegt eigum

að trúa draumana á.

Hér í Eyjum upplifum þá

Oooooh, í fótbolta' útí Eyjum

Oh oh ooooh!

Pabbi og mamma, afi og amma

Dómarann má ekki skamma

Ef eitthvað klikkar gengur betur næst

Viljum njóta, viljum þora.

Þarft að skjóta til að skora.

Við vitum öll að draumar geta ræst.

Oooooh, gaman útí Eyjum

Oooooh, sameiginlegt eigum að trúa draumana á.

Hér í Eyjum upplifum þá

Oooooh, í fótbolta’ útí Eyjum

Oh oh ooooh!

„VIÐ EIGUM ÖLL RÉTT Á ÞVÍ

AÐ LÍÐA VEL Í EIGIN SKINNI“

Rakel Björk býður upp á Reiki-heilun í Vestmannaeyjum dagana 19.–21. júní

Rakel Björk mun dvelja í Vestmannaeyjum dagana 19.–21. júní þar sem hún býður upp á Reiki-heilun í hlýju og öruggu umhverfi. Rakel hefur starfað sem sjúkraliði og líkamsræktarþjálfari um árabil en síðustu ár hefur hún einnig helgað sig Reiki-heilun og hjálpað fólki að finna meiri ró, slökun og jafnvægi í daglegu lífi.

Í samtali við Tígul segir Rakel að áhuginn á heilun hafi í raun fylgt henni alla ævi.

„Ég hef óhefðbundnar skynjanir, heyri raddir og sé fólk og verur sem aðrir sjá ekki. Ég hef lengst af starfað við að hjálpa fólki bæði líkamlega og andlega og fann oft hvernig fólki leið. Fólk hefur alltaf treyst mér og ég vissi að ég gæti róað með snertingu, en ég vissi ekki að ég væri í raun að heila.“

Hún segir að mikil sjálfsvinna sem hófst árið 2023 hafi orðið vendipunktur. „Ég hafði ýtt þessum hluta af mér til hliðar í mörg ár en fór að treysta meira á það sem ég sá og fann. Vinkona mín benti mér á Reiki-heilunarnámskeið í Hveragerði og þar fékk ég staðfestingu á því að allt sem ég hafði fundið fyrir alla ævi væri raunverulegt. Ég áttaði mig á því að ég gæti í alvöru hjálpað fólki með handayfirlagningu.“

Djúp slökun og innri ró Margir velta fyrir sér hvað gerist í Reiki-heilun. Rakel segir meðferðina einfalda en áhrifaríka.

„Fólk liggur á bekk eða situr á stól á meðan ég held höndum yfir ákveðin svæði líkamans. Stundum er um létta snertingu að ræða en oftast eru hendurnar aðeins yfir líkamanum. Sumir finna fyrir hita eða kulda og aðrir upplifa mikla slökun.“

Hún segir að margir sem koma í fyrsta skipti upplifi fyrst og fremst vellíðan og ró. „Það þarf ekki að gerast neitt stórkostlegt. Oft er það bara slökunin sem fólk hefur verið að leita að.“

Kvíði og streita minnka Rakel segir Reiki-heilun hafa reynst mörgum vel í baráttunni við streitu og kvíða.

„Við lifum á tímum þar sem margir eru undir miklu álagi. Í heiluninni fær fólk tækifæri til að staldra við og slaka á. Stundum leiði ég fólk í gegnum öndunaræfingar eða líkamsskönnun til að hjálpa því að ná meiri ró.“ Hún segir að margir sem hafi glímt við mikinn kvíða eða streitu hafi fundið fyrir verulegum breytingum. „Fólk hefur komið vikulega til að byrja með en síðan aðeins á tveggja til þriggja mánaða fresti. Það segir mér að kvíðinn hafi minnkað og streitan orðið viðráðanlegri.“

Verkjalaus í fyrsta sinn í marga mánuði

Spurð hvort hún hafi upplifað augnablik sem staðfesti að hún væri á réttri leið nefnir Rakel nokkur dæmi. „Það kom til mín maður sem hafði glímt við hnémeiðsli og verið í meðferð hjá sjúkraþjálfara í tæp tvö ár. Daginn eftir heilunina sagði hann mér að hann hefði sofið verkjalaus í fyrsta skipti í marga

mánuði. Mér fannst það magnað.“ Önnur kona hafði glímt við mikinn höfuðverk í tvær vikur. „Hún lýsti því eins og ég hefði dregið verkinn af höfði hennar eins og slæðu. Svona reynslur fylla mig þakklæti og minna mig á hvers vegna ég geri þetta.“

Elskar Vestmannaeyjar

Rakel á sérstakt samband við Vestmannaeyjar og hefur búið þar um tíma. „Ég bjó í Vestmannaeyjum í mörg ár og kem reglulega í heimsókn. Ég var hvött til að koma með bekkinn minn og bjóða upp á heilun þegar ég kæmi næst til Eyja.“ Hún segir að náttúran og fólkið í Eyjum eigi stóran stað í hjarta hennar.

„Ég elska fjöllin, sjóinn, klettana, fuglalífið og tenginguna sem maður finnur hér. Auðvitað líka fjölskylduna, vini og allt það góða fólk sem býr hér.“

„Gefðu þessu séns“

Fyrir þá sem hafa verið að velta fyrir sér að prófa Reiki-heilun en ekki enn þorað að taka skrefið á Rakel einföld skilaboð:

„Gefðu þessu séns. Það gerist ekkert sem líkami þinn eða hugur ræður ekki við. Reiki er hvorki töfralækning né hefðbundin meðferð, heldur leið til að styðja við taugakerfið og gefa sjálfum sér tíma og umhyggju.“

Aðspurð um það fallegasta sem hún hafi upplifað í starfi sínu segir hún erfitt að gera upp á milli. „Ég hef séð fólk gráta af hamingju, séð fólk ljóma eftir að hafa fundið fyrir nærveru látins ástvinar og séð fólk upplifa verkjalausa daga eftir langa baráttu við verki. Það er ómetanlegt að fá að vera hluti af slíkum augnablikum.“

Rakel býður upp á Reiki-heilun í Vestmannaeyjum dagana 19.–21. júní og hægt er að panta tíma með því að senda skilaboð í síma 691-9449.

Vísnagátukeppni

Á goslokahelginni í júlí verður kynnt nýútkomin bók eftir Sigurgeir Jónsson, sú 16., sem hann hefur skrifað og gefið út, og heitir Vísnagátur úr Vestmannaeyjum. Þar er að finna um 150 vísnagátur sem flestar tengjast Vestmannaeyjum. Eldri gáturnar með gömlu sniði þar sem á að finna lausnina í innihaldi gátunnar. Nýrri gáturnar fjalla allar um örnefni, eyjar, dranga og sker, ýmsa staði og húsanöfn í Vestmannaeyjum. Þar á aftur á móti að finna lausnina með þvíað lesa beint úr vísunni, án þess að rugla stöfum.

Sem dæmi er hér vísnagáta þar sem finna á eyju í Vestmannaeyjum:

Um huliðsheima Eyja hljóða margar góðar sögur. Huldumanna og meyja margt er fært í ljóð og bögur.

Lausnina er að finna í 1. línu, Heimaey.

Tígull hefur ákveðið, í samráði við Sigurgeir, að efna til getraunar og verður ein vísnagáta birt í þessu blaði og tveimur næstu, þar sem á að ráða úr örnefnum og fleiru í Vestmannaeyjum.

Senda skal svör við öllum þremur gátunum saman fyrir 28. júní á netfangið sigurge@internet.is . Dregið verður úr réttum lausnum og úrslitin kynnt á kynningu bókarinnar á Goslokahátíð. Þrír heppnir munu hljóta verðlaun, sem eru áritaðar bækur.

En hér er fyrsta gátan. Spurt er um eyju, drang eða sker í Vestmannaeyjum. Lesa á lausnina beint úr texta vísunnar, ekki rugla stöfum í orðum.

Áður fyrr það oft við bar, einkum þó um helgarnar. Ýmislegt þá iðkað var, kenderí og kvennafar.

Eins og áður segir verða þrjár vísnagátur hér í Tígli og skal senda svör við þeim öllum í einu lagi fyrir 28. júní nk. Meira í næsta blaði Tíguls.

l íf in u

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
TM Mótsblaðið 2026 by ÍBV Íþróttafélag - Issuu