Skip to main content

Leikskrá knattspyrnudeildar 2026

Page 1


Knattspyrnudeild Leikskrá 2026

Knattspyrnudeild ÍBV

Leikskrá

Knattspyrnuráð

Daníel Geir Moritz

Esther Bergsdóttir

Eva Rut Gunnlaugsdóttir

Guðrún Ágústa Möller

Jökull Andri Sigurðsson

Karl Sigurðsson

Magnús Sigurðsson

Óskar Jósúason

Örn Hilmisson

Sigurbergur Armannsson

Svanur Gunnsteinsson

Alex Freyr Hilmarsson, fyrirliði ÍBV

Alex Freyr Hilmarsson, fyrirliði ÍBV

„Eyjar

eru frábært samfélag og það

fylgir því ákveðið frelsi að búa hér.”

Alex Freyr Hilmarsson, fyrirliði ÍBV hefur komið sterkur inn eftir meiðsli í upphafi sumars. Við ræddum stuttlega við hann um tímabilið.

Ertu sáttur við byrjunina í sumar?

Nei, ég get ekki sagt að ég sé sáttur við byrjunina ef maður horfir á úrslitin. En ég er mjög ánægður með hvernig við höfum spilað og snúið þessu við í síðustu leikjum Það gefur okkur trú á því sem við erum að gera.

Hver eru markmiðin í sumar?

Markmiðið er að halda áfram að bæta okkur frá leik til leiks Við viljum verða lið sem enginn vill mæta – lið með mikla orku og kraft og er erfitt að spila á móti.

Eitthvað sem hefur komið þér á óvart?

Það sem hefur komið mér mest á óvart er hvað við erum með öflugan hóp og gott teymi í kringum liðið. Það er mikill metnaður hjá öllum og það skilar sér inn á völlinn.

vernig hefur þér og fjölskyldunni liðið í Eyjum?

Okkur fjölskyldunni líður rosalega vel hér. Eyjar eru frábært samfélag og það fylgir því ákveðið frelsi að búa hér Það hefur verið mjög auðvelt fyrir okkur að aðlagast og okkur líður virkilega vel.

Alex Freyr Hilmarsson, fyrirliði ÍBV

„við

lofum að leggja allt í sölurnar fyrir félagið og stuðningsmennina”

Helsti kostur við að vera í Eyjum?

Samfélagið. Hér er stutt í allt og það er mikil samheldni. Maður finnur hvað fólkið styður vel við félagið og það skapar skemmtilegt umhverfi

En ókostur?

Kannski helst að þurfa að skipuleggja ferðir aðeins meira en annars staðar. Annars eigum við í raun erfitt með að finna eitthvað til að kvarta yfir

En ókostur?

Kannski helst að þurfa að skipuleggja ferðir aðeins meira en annars staðar. Annars eigum við í raun erfitt með að finna eitthvað til að kvarta yfir.

Eru mörg ár í Bestu deildinni eftir á tankinum?

Ég vona það. Tíminn verður að leiða í ljós hversu mörg þau verða, en mér líður mjög vel í skrokknum og hef ennþá mikinn metnað og gaman af því að spila

Eitthvað að lokum?

Mig langar bara að þakka stuðningsmönnum fyrir frábæran stuðning í fyrri hluta mótsins. Við finnum virkilega fyrir þeim, bæði heima og að heiman

Vonandi sjáum við sem flesta á leikjum í seinni hlutanum – við lofum að leggja allt í sölurnar fyrir félagið og stuðningsmennina.

Allt fyrir tjaldið Sjáumst í dalnum

Fáðu meira með Vild

Edda Dögg Sindradóttir, leikmaður ÍBV

Edda Dögg Sindradóttir, leikmaður ÍBV

„ ...lykillinn sé samheldni...”

Edda Dögg Sindradóttir, er einn efnilegast leikmaður ÍBV og er hér í léttu spjalli um tímabilið og það sem framundan er.

Þú hlítur að vera ánægð með byrjunina hjá liðinu í sumar ?

Já, ég er mjög ánægð og stolt af liðinu. Við höfum lagt mikla vinnu í undirbúninginn og það er gaman að sjá það skila sér inn á völlinn.

Hvað telurðu vera lykilinn að þessum góða árangri ?

Ég held að lykillinn sé samheldni, mikil vinna á æfingum og að allir í hópnum séu tilbúnir að leggja sitt af mörkum fyrir liðið.

Ertu ánægð með þína frammistöðu ?

Já svona nokkuð. Það er alltaf eitthvað sem ég get bætt, en ég er sátt og ætla bara að halda áfram að vinna í því.

Hver eru markmiðin hjá þér í boltanum ?

Markmiðið mitt er að halda áfram að bæta mig, hjálpa liðinu eins mikið og ég get og sjá svo bara hversu langt ég get náð.

Er góður andi í liðinu ?

Já það er mjög góður andi í liðinu þar sem við náum allar vel saman og það gerir allt skemmtilegra bæði í leikjum og á æfingum.

Lyftum við bikar í sumar ?

Það er klárlega markmiðið. Við vitum að það verður erfitt og krefst mikillar vinnu, en ef við höldum áfram á sömu braut tel ég að við eigum góða möguleika

Ertu á le

í dalinn

Jón Ólafur Daníeslsson, þjálfari mfl kvenna

„Leikmenn eiga mjög mikið hrós skilið “

Við ræddum stuttlega við Jón Ólaf Daníelsson þjálfara mfl. kvenna sem hefur verið að gera frábæra hluti með liðið sl. tvö ár.

Þú hlítur að vera ánægður og stoltur að byrjunin hjá ykkur í sumar ?

Ég er mjög ánægður með þessa fyrri umferð þá sérstaklega í ljósi þeirra skakkafalla sem við höfum orðið fyrir Leikmenn eiga mjög mikið hrós skilið fyrir frammistöðuna bæði í deild og bikar.

Ertu ánægður með hópinn sem þú ert með ?

Já mjög ánægður en því miður allt of fámennur hópur og of mikið af reynslulausum leikmönnum sökum aldurs

Álagið hefur verið of mikið því ungir leikmenn þurfa eðlilega einnig að leika með sínum aldursflokki sem eykur meiðslahættu til muna og höfum við þegar fengið okkar skerf af því

Hvernig list þér á framhaldið í sumar?

Það er erfitt að segja. Eins og áður segir er hópurinn þunnur og við misstum Emblu í alvarleg meiðsl sem gerir það að verkum að hún missir af restinni af leiktímabilinu, þá mun Ragna Sara fara til Bandaríkjanna á næstunni en ef við fáum liðsstyrk og meiddir leikmenn ná að koma sterkar til baka þá líst mér ágætlega á framhaldið

Jón Ólafur Daníelsson, þjálfari mfl kvenna

„Þessir ungu leikmenn hafa fengið verðskuldaða athygli fyrir frammistöðu sína enda staðið sig frábærlega.“

Hver eru markmið sumarsins ?

Markmið mitt er alltaf það sama það að taka einn leik fyrir í einu og reyna vinna hann.

Nú ertu með nokkuð ungt lið, er mikill efniviður í hópnum ?

Efniviðurinn er sannarlega til staðar og hjá okkur fá ungir leikmenn sannarlega tækifæri. Þessir ungu leikmenn hafa fengið verðskuldaða athygli fyrir frammistöðu sína enda staðið sig frábærlega

Nú þarf bara tvo sigra í að ná í Bikarinn minntu leggja höfuðáherslu á Bikarinn eða er það bara bónus ?

Ef við náum að breikka hópinn getum við barist á tveimur vígstöðvum. Það er auðvitað mikið ævintýri fyrir leikmenn að komast í þessa leiki það er að segja undanúrslit og sjálfan úrslitaleikinn Ef sú vinna sem er í gangi núna gengur upp þá munum við gera allt sem í okkar valdi stendur til að komast alla leið í bikar þó svo að deildin sé það sem skiptir mestu máli.

Eitthvað að lokum?

Ég hvet Eyjamenn til að vera dugleg að mæta á völlinn í sumar og styðja við bakið á ÍBV liðunum Það er allt miklu skemmtilegra er við höfum góðan stuðning frá bæjarbúum.

GAMAN

Áfram ÍBV

Bylgja VE 75

150 krakkar tóku þátt í fótboltaskólanum

Í vor voru haldnir fótboltaskólar fyrir yngstu iðkendur félagsins.Voru skólarnir haldnir í samstarfi við Heildverslun Karls Kristmanns. Skólarnir voru undir stjórn Guðnýjar Geirsdóttur auk annarra þjálfara ÍBV og leikmanna meistaraflokka félagsins.

Það voru um 150 krakkar sem tóku þátt og var gaman að sjá leikmenn meistaraflokka félagsins tengjast enn betur yngri iðkendum félagsins og gáfu af sér til komandi kynslóða

Sérstakir þakkir fá: Guðný Geirsdóttir, Guðmundur Sigfússon, Kjartan Stefánsson, Yngvi Borgþórsson, Sigríður Inga Kristmannsdóttir, Ingólfur Arnarsson, leikmenn meistaraflokks karla og kvenna, Vestmannaeyjabær, TM, Orkan og Heildverslun Karls Kristmanns.

Áfram ÍBV

TheOriginal

Örn Hilmisson

Takk fyrir stuðninginn

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Leikskrá knattspyrnudeildar 2026 by ÍBV Íþróttafélag - Issuu