Evrópuleikskrá ÍBV 22-23
EHF European Cup karla
Donbas - ÍBV 5. nóvember kl.14:00
ÍBV - Donbas 6. nóvember kl.14:00 Íþróttamiðstöðin í Vestmannaeyjum
EHF European Cup kvenna
ÍBV - Madeira 3. desember kl.17:00
Madeira - ÍBV 4. desember kl.17:00 Funchal - Madeira Portúgal
Meistaraflokkur karla Tímabilið 2022-23
#22 - Ívar Bessi Viðarsson #99 - Andri Snær Sigmarsson #5 - Rúnar Kárason #25 - Róbert Sigurðarson #7 - Dagur Arnarsson #64 - Elmar Erlingsson
#23 - Theodór Sigurbjörnsson #19 - Gabríel Mart. Róbertsson #20 - Arnór Viðarsson #24 - Petar Jokanovic #10 - Ísak Rafnsson #27 - Sveinn José Rivera (v.mynd)
Meistaraflokkur karla Tímabilið 2022-23
#2 - Andri Snær Andersen #99 - Jóhannes Esra Ingólfsson #17 - Dánjal Ragnarsson #29 - Nökkvi Snær Óðinsson #3 - Breki Óðinsson #28 - Andrés Marel Sigurðsson
#11 - Svanur Páll Í. Vilhjálmsson #26 - Janus Dam Djurhuus #31 - Sigtryggur Daði Rúnarsson #4 - Hinrik Hugi Heiðarsson #44 - Einar Þór Jónsson #46 - Kári Kristján Kristjánsson
stoltir styrktaraðilar handknattleiksdeildar ÍBV
Hellugerð agnars
Rúnar Kárason leikmaður karlaliðs ÍBV Rúnar Kárason er einn af lykilmönnum karlaliðs ÍBV. Hann gekk til liðs við okkur fyrir síðasta tímabil og hefur stimplað sig vel inn í liðið og Eyja-samfélagið. Rúnar er þrautreyndur en hann lék um árabil í atvinnumennsku erlendis ásamt því að hafa spilað 100 A-landsleiki fyrir Íslands hönd. Við spurðum hann nokkurra spurninga á dögunum. Hefur þú áður tekið þátt í Evrópukeppnum? Eitthvað eftirminnilegt þaðan? Já ég hef bæði tekið þátt í Evrópukeppni með Fram í gamla daga, þar á meðal Champions League, svo bæði hjá Rhein Neckar í Champions League og svo Hannover í EHF keppninni. Eftirminnilegast var nú yfirleitt sem gerðist kvöldið eftir leik en svo stendur auðvitað uppúr í Champions League með Fram að vera 18 ára að skora og spila við Narcisse, Guðjón Val, Robba Gunn og fleiri í Gummersbach á þeim tíma. Svo var mjög gaman að spila í Veszprem og á fleiri stöðum fyrir troðfullu húsi. Hver eru markmið ykkar í Evrópukeppninni í ár? Við ætlum okkur bara alla leið held ég í þessari keppni :)
Hvernig er leikdagsrútínan þín? Engin rútína fyrir leiki, reyni bara að hugsa ekki mikið um leikinn og að það sé samt frekar rólegt hjá mér. Hvernig finnst þér tímabilið hafa verið hingað til og hvernig sérðu framhaldið? Við höfum spilað þokkalega á tímabilinu, annars vegar frábærlega og keyrt yfir andstæðinga okkar en svo því miður hins vegar hikstað of mikið í jöfnum leikjum sem við náðum ekki að snúa. Besta minning úr handboltanum hingað til? Hugsa að landsliðið standi bara upp úr, spila heimsmetsleik í áhorfendafjölda við Frakka í Frakklandi og vera markahæstur á vellinum sé þokkalegt moment. Svo var að vísu alveg geggjað að vinna 2. deildina í Þýskalandi með Bergischer HC á sínum tíma.
Hvernig finnst þér lífið í Eyjum og hjá ÍBV? Lífið í Eyjum hefur verið frábært, ótrúlega skemmtilegt fólk og hlýtt og okkur fjölskyldunni hefur liðið mjög vel hér og vel tekið á móti okkur. ÍBV kom inn í líf mitt þegar ég var með frekar mikið ógeð á öllu handboltastandi, þess vegna fluttum við til Íslands meðal annars, svo bara er búið að vera ógeðslega gaman, metnaður og gleði fyrir handboltanum komin aftur og það er bara geggjað. Eitthvað að lokum? Áfram ÍBV og allir á völlinn!
stoltir styrktaraðilar handknattleiksdeildar ÍBV
Magnús Stefánsson aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla Magnús Stefánsson, aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla, er reynslumikill í þjálfun yngri flokka og kom inn í þjálfarateymi liðsins fyrir yfirstandandi tímabil. Hann á sömuleiðis að baki glæstan leikmannaferil en afrek hans með ÍBV þarf líklega ekki að kynna fyrir stuðningsfólki félagsins. Hann vann fjöldann allan af titlum á sínum árum sem leikmaður og lék lykilhlutverk í varnarleik liðsins. Við tókum Magnús tali á dögunum og spurðum hann nokkurra spurninga. Hvað vitum við um næsta mótherja í Evrópukeppninni, úkraínska liðið Donbas? Við vitum í raun lítið um þá annað en að þeir koma frá Úkraínu, við nálgumst þetta verkefni af virðingu eins og hvert annað. Hvað viljið þið þjálfararnir helst fá út úr þátttöku í Evrópukeppni? Þetta er kjörið tækifæri til að máta sig við önnur lið, það þjappar hópnum saman að fá að taka þátt í svona verkefnum. Við nýtum þessa leiki til að halda áfram að bæta okkar leik og vinna í ákveðnum hlutum.
Áttu þér draumamótherja/ áfangastað í næstu umferð ef við förum áfram? Engir óska mótherjar, við myndum kjósa eitthvað þægilegt ferðalag. Hver eru markmið ykkar í keppninni í ár? Það væri gaman að komast sem lengst og bæta í reynslubankann hjá drengjunum. Frægastur/frægust í símaskránni þinni? Alfreð Gíslason - Hann hringdi í mig og sagðist ómögulega geta komist þessa umræddu helgi sökum anna en vildi þess í stað endilega fá mig í heimsókn, ég gæti þá klárað teikninguna af garðinum og jafnvel pantað efni… þegar ég komst svo loks að, baðst hann innilega afsökunar á að hafa slegið inn rangt númer. Auðvitað vistaði ég númerið hans í kjölfarið. Áttu eitthvað skemmtilegt atvik úr handboltanum í gegnum tíðina til að segja frá? Minningarnar sem standa uppúr eru úrslitakeppnirnar og úrslitaleikirnir sem við höfum spilað þar sem Hvítu Riddararnir fara ávallt á kostum, mögnuð tilfinning að sjá hvíta stúkuna syngja og tralla í takt… Ég fæ gæsahúð bara við tilhugsunina!
Eitthvað að lokum? Vonandi sjáum við sem flesta í höllinni um helgina og tökum vel á því.
stoltir styrktaraðilar handknattleiksdeildar ÍBV
Bílaverkstæði Harðar og Matta
Dagur Arnarsson Kynnumst honum aðeins betur! Gælunafn: Dagur
Hvaða liði myndir þú aldrei spila með: Aldrei að segja aldrei, en ég hugsa að það sé Fram
Aldur: 26 ára Hjúskaparstaða: Í sambandi Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki: 8. desember 2012 Uppáhalds Max
drykkur:
Pespi
Uppáhalds matur: Lasagna Hvernig bíl áttu: Toyota Auris Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Friends, alltaf þæginlegir Uppáhalds tónlistarmaður: Júníus okkar Meyvant er mikið spilað á heimilinu. En íslensk tónlist er í miklu uppáhaldi og ég er algjör alæta á tónlist Fyndnasti Íslendingurinn: Pétur Jóhann Hver var fyrirmyndin þín í æsku: Daniel Narcisse og Aron Pálmarsson Uppáhalds staður á Íslandi: Vestmannaeyjar en ef það er undanskilið þá held ég að ég segi Akureyri eftir að hafa kynnst því aðeins Sætasti sigur:Íslandsmeistaratitilinn 2014 verður ekkert sætara en það.
Besti leikmaður sem þú hefur mætt: Örugglega besti handboltamaður í heiminum í dag, Ómar Ingi Magnússon Besti þjálfarinn sem hefur þjálfað þig: Ég hef verið það heppin að upp alla yngri flokka og í meistaraflokki hef ég fengið frábæra þjálfara. Get ekki tekið einhvern einn út Mest óþolandi leikmaður sem þú hefur mætt: Held að ég verði að nefna Elvar Örn hann er óþolandi vinnusamur og hættir ALDREI Mestu vonbrigðin: Alltaf vonbrigði að detta út úr bikar eða úrslitakeppni, en ætli mestu vonbrigðin seu ekki þegar við duttum út í bikar á móti Selfossi árið 2016 í framlengingu. Hvaða þrjá leikmenn tækir þú með þér á eyðieyju? Ég tæki Smíðabræður ehf (Róbert Sigurðarson og Svein Jose) því þeir myndu byggja kofa og veiða mat og svo væri Nökkvi Snær þarna því það þarf að hafa einn eins og Nökkva því hann myndi finna uppá einhverju spjalli.
Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru íslensku liði í þitt lið, hver væri það? Þeir eru nokkrir sem erfitt væri að líta framhjá en til að nefna einhverja þá Magnús Óli, Róbert Aron og fleiri góðir. Efnilegasti handboltamaður/kona landsins: Þeir eru í mínu liði og geta náð ansi langt en það er t.d. Elmar, Ívar Bessi, Arnór og fleiri drullu flottir peyjar sem eru að koma upp. Hver er fyndnastur í liðinu: Ísak Rafnsson hefur komið með skemmtilega fimmaura sem verðskulda gott shout. Sturluð staðreynd um sjálfan þig: Ég á flesta Evrópuleiki fyrir Bandalagið
Meistaraflokkur kvenna Tímabilið 2022-23
#11 - Birna Berg Haraldsdóttir #15 - Karolina Olszowa #8 - Herdís Eiríksdóttir #2 - Ingibjørg Olsen
#34 - Amelía Dís Einarsdóttir #7 - Hrafnhildur Hanna Þrastard. #23 - Ásta Björt Júlíusdóttir #13 - Marija Jovanovic
Meistaraflokkur kvenna Tímabilið 2022-23
#29 - Sunna Jónsdóttir #14 - Elísa Elíasdóttir #5 - Alexandra Ósk Viktorsdóttir #9 - Ólöf María Stefánsdóttir #6 - Harpa Valey Gylfadóttir
#21 - Sara Dröfn Richardsdóttir #1 - Bernódía Sif Sigurðardóttir #12 - Tara Sól Úranusdóttir #27 - Marta Wawrzynkowska #16 - Dröfn Haraldsdóttir (v.mynd)
Birna berg haraldsdóttir leikmaður kvennaliðs ÍBV Birna Berg Haraldsdóttir er einn af lykilmönnum kvennaliðs ÍBV. Birna lék lengi í atvinnumennsku erlendis og á að baki fjölda landsleikja. Við hittum hana á dögunum og spurðum hana nokkurra spurninga. Hefur þú tekið þátt í Evrópukeppnum áður? Eitthvað skemmtilegt þaðan? Já áður en ég flutti út spilaði ég með Fram í Evrópukeppni nokkur tímabil og svo þegar ég var atvinnumaður þá spilaði ég þrjú tímabil í Meistardeild Evrópu og 2 tímabil í European League. Það sem stendur hvað mest uppúr fyrir mig persónulega úr þessum Evrópukeppnum er þegar ég var valin leikmaður umferðarinnar í Meistaradeildinni. Hvernig er leikdagsrútnínan þín? Ég er vakin af kærasta mínum sem kemur með kaffibolla í rúmið til mín. Svo horfi ég aðeins á klippur af okkar liði og frá liðinu sem við erum að mæta. Síðan borða ég 2 ristuð brauð með osti og þrjú egg. Eftir matinn þá set ég mín uppáhalds lög í græjurnar og hækka í botn svo að allt húsið hristist. Svo er það bara að pakka í töskuna og ef veður leyfir þá labba uppí Íþr. hús.
Besta minning frá handboltaferlinum hingað til? Þegar ég var valin handboltakona ársins af HSÍ. Hvernig finnst þér tímabilið hafa verið hingað til og hvernir sérðu framhaldið? Tímabilið hefur verið upp og niður hjá okkur, við höfum átt góða leiki og slæma leiki. Sem betur fer hafa góðu leikirnir verið fleiri en þeir slæmu og það er engin krísa þó svo að tveir leikir hafi tapast en mér finnst við eiga nokkuð inni bæði sóknar- og varnarlega. En við vonandi klárum árið 2022 með stæl og springum svo út eftir áramót og toppum í úrslitakeppninni. Við erum með gott lið og ég held að tíminn vinni bara með okkur. Hvernig finnst þér lífið í Eyjum og hjá ÍBV? Mér finnst lífið í Eyjum frábært, stundum finnst mér eins og ég hafi aldrei búið annars staðar. Ég hef alltaf laðast að Eyjafólki og samfélaginu í Eyjum. Það er bara eitthvað svo einstakt við fólkið sem býr hér. Áður en ég flutti árið 2020 átti ég svo góðar minningar héðan bæði frá ættarmótum og þegar ég spilaði fyrir ÍBV í fótboltanum. Þannig ég vissi að ég myndi alltaf koma aftur.
Hver eru markmið ykkar í Evrópukeppninni í ár? Markmiðið er að fara eins langt og ÍBV leyfir, því auðvitað kostar svona Evrópukeppni mikið og það er oft kostnaður sem stoppar lið að taka þátt en við erum ótrúlega glaðar yfir að fá að taka þátt í ár og þökkum þann stuðning sem við höfum fengið. Þetta kryddar tímabilið alveg heilmikið og svo er gaman að mæta liðum sem maður hefur aldrei mætt áður. Þetta gaf liðinu mikið í fyrra bæði innan og utan vallar og ég held að það verði engin breyting í ár. Eitthvað að lokum? Hlakka til að sjá sem flesta á vellinum í vetur og takk fyrir stuðninginn! ÁFRAM ÍBV!
stoltir styrktaraðilar Stoltir styrktaraðilar stelpnanna okkar! handknattleiksdeildar ÍBV
Hilmar Ágúst Björnsson aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna Hilmar Ágúst Björnsson, aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna, hefur þjálfað liðið ásamt Sigurði Bragasyni frá haustinu 2019. Hann hafði þjálfað yngri flokka hjá ÍBV um árabil með góðum árangri áður en hann fór í þjálfun meistaraflokks en hefur þó þjálfað yngri leikmenn samhliða því. Við ræddum við Hilmar og spurðum hann nokkurra spurninga. Hvað viljið þið þjálfararnir helst fá út úr þátttöku í Evrópukeppni? Evrópukeppnin er svakalega skemmtileg og það er rosalega gaman að fá að undirbúa sig og keppa á móti öðruvísi mótherjum en við eigum að venjast. Í ár viljum við nýta þessa skemmtilegu leiki í að bæta okkar leik og þétta hópinn. Áttu þér draumamótherja/ áfangastað í næstu umferð ef við förum áfram? Stefnum við ekki alltaf á sól í janúar?!? Annars eru Slavia Prague frá Tékklandi og H71 frá Færeyjum að mætast, ég væri til í mæta öðru hvoru af þeim liðum.
Hvað vitum við um næsta mótherja í Evrópukeppninni, portúgalska liðið Madeira? Madeira Andebol SAD er sigursælasta lið kvennaboltans í Portúgal. Við erum nú ekki komnir langt í undirbúningi, þar sem leikirnir eru 3.- 4. desember. Við erum þó búnir að sjá leiki síðan í fyrra og skoða leikmannahópinn. Þær fóru nokkuð auðveldlega í gegnum 64 liða úrslitin á móti SSV Brixen Sudtirol frá Ítalíu, unnu 56-43 samanlagt. Þær eru með þrjá brasilíska leikmenn, landsliðs-línumann frá Angola og svo er þetta blanda af eldri og yngri leikmönnum frá Portúgal. Flestir leikmenn þeirra eru í A og/eða yngri landsliðum. Þær eru litlar, mjög snöggar á fótunum og góðar maður á mann. Þær geta bæði spilað góða 6-0 vörn en voru í 3-2-1 vörn þessa leiki sem við sáum frá því í fyrra. Hver eru markmið ykkar í keppninni í ár? Auðvitað viljum við reyna að komast eins lang og við getum og bæta árangurinn síðan í fyrra þegar við komumst í 8 liða úrslit.
Þú ert þekktur fyrir skemmtilega fróðleiksmola um handboltann í Eyjum, áttu einn fyrir okkur? Gintaras Savukynas þjálfaði og spilaði með ÍBV árið 20062008. Við komumst upp úr 1.deild og við enduðum neðstir ári síðar. Eftir þetta hefur Gintaras þjálfað landslið og síðan flott lið Meshkov Brest, Bergsoy IL, Cocks og HC Motor. Frægastur/frægust í símaskránni þinni? Guðmundur Ásgeir “Pönk” “Bikaróður Eyjamaður” “Kára” “Brimnes” Grétarsson! Eitthvað að lokum? Við erum með frábæra stuðningsmenn og vona ég að þeim fjölgi sem á líður tímabil. Það væri gaman að sjá sem flesta í Maideira í desember!
stoltir styrktaraðilar handknattleiksdeildar ÍBV
Ásta björt júlíusdóttir kynnumst henni aðeins betur! Gælunafn: Júlludiskó
Besti þjálfarinn sem hefur þjálfað þig: Unnur Sigmarsdóttir
Aldur: 23 ára Hjúskaparstaða: Ekki single Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki: 14 ára Uppáhalds Max
drykkur:
Pepsi
Uppáhalds matur: Taco Hvernig Micra
bíl
áttu:
Nissan
Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Horfi ekki á þætti Uppáhalds tónlistarmaður: Blaz Roca Uppáhalds hlaðvarp: Spjallið Fyndnasti Íslendingurinn: Pétur Jóhann eða Steindi Jr Hvernig hljómar síðasta sms sem þú fékkst: Píkuprumpari 2 mín var fyrir 10 mín - Erika Hvaða liði myndir þú aldrei spila með: ÍR Besti leikmaður sem þú hefur mætt: Ólöf María Stefánsdóttir Hver er fyndnust í liðinu: Ég
Mest óþolandi leikmaður sem þú hefur mætt: Ólöf María Stefánsdóttir Hver var fyrirmyndin þín í æsku: Hrafnhildur Ósk Skúladóttir Sætasti sigurinn: Sigur á móti KA/Þór á útivelli 20/21 (4 liða) Mestu vonbrigðin: Þegar við töpuðum einvíginu á móti KA/ Þór í 4 liða 20/21 Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru íslensku liði í þitt lið, hver væri það?: Elna Ólöf úr HK Efnilegasti handboltamaður/kona landsins: Elín Klara Þorkelsdóttir
Uppáhalds staður á Íslandi: Vestmannaeyjar Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: Þegar það var girt niður um mig í miðri finntu! Ertu með einhverja hjátrú tengda handbolta: Spila aldrei í nærbuxum
Í hverju varstu/ertu lélegust í skóla: Öllu Hvaða þrjá leikmenn tækir þú með þér á eyðieyju : Sunnu því hún er svo geðgóð, Ólöfu útaf því að hún er reddari og Birnu til þess að hlægja af bröndurunum mínum Sturluð staðreynd um sjálfan þig: Ég get ekki gengið í svörtum sokkum
stoltir styrktaraðilar handknattleiksdeildar ÍBV
STAVEY
stoltir styrktaraðilar handknattleiksdeildar ÍBV Andri Berg Haraldsson Arnar Richardsson Arnheiður Pálsdóttir Ágúst Karlsson Ásta Eyjólfsdóttir Ásta María og Grímur Þór Bensínsalan Klettur Bergey Edda Eiríksdóttir Bjössi og Edda Bríet Ósk, Stefán Máni og Andri Freyr Diljá og Ingi Einar Gunnarsson og Sara Jóhannsdóttir Erna Tómasdóttir Eygló Kristinsdóttir Flóki Dagsson Geldungur ehf Gígja Óskarsdóttir Guðbjörg H. Bjarnadóttir Gunnar Einarsson Gurra húsvörður Helga Ingvadóttir Hildur Gísladóttir Hjalti Einarsson Hörður Pálsson
Hrafnhildur Helgadóttir Inga Magg Jóhann Pétursson Jóhann Sigurbergsson Jóhannes Grettisson Kolbrún Ásta og Tómas Elí Kristjana og Júlli Laila Margrèt Magnús Bragason Nuddstofa Erlu NÆS restaurant Óskar Freyr og Lóa Pálmi Harðarson Sigríður Magnúsdóttir Steini pípari Svenni Magg og Thelma Theresa Lilja og Óliver Atlas Ufsaberg ehf. Unnur Baldursdóttir Unnur Sigmarsdóttir Þóranna Halldórsdóttir Þórunn Júlía Jörgensdóttir Þuríður Jónsdóttir
Takk fyrir stuðninginn!