Menningarmiðstöð Þingeyinga
Almennt
Árið 2025 rann upp átjánda starfsár Menningarmiðstöðvar Þingeyinga (MMÞ), en sjálfseignarstofnunin varð formlega til árið 2007 við sameiningu annars vegar Byggðasafns Suður-Þingeyinga, með þrískipta starfsemi í Sjóminjasafni Þingeyinga og á sýningum byggðasafnsins í Safnahúsinu á Húsavík og á Grenjaðarstað, og hins vegar Byggðasafns Norður-Þingeyinga að Snartarstöðum. MMÞ er sjálfseignarstofnun og um rekstur hennar sjá sveitarfélögin fjögur í Þingeyjarsýslum, þ.e. Langanesbyggð, Norðurþing, Tjörneshreppur og Þingeyjarsveit. Engar breytingar urðu á stjórn MMÞ á milli ára, en tvö fjölmennustu sveitarfélögin, Norðurþing og Þingeyjarsveit, hafa tvo stjórnarmenn hvort, og Langanesbyggð og Tjörneshreppur hafa einn stjórnarmann hvort, samkvæmt núgildandi skipulagsskrá Menningarmiðstöðvar Þingeyinga. Í áranna rás hafa söfn, safneignir og starfsstöðvar bæst við starfsemina og undir MMÞ heyra nú Byggðasafn Þingeyinga (Byggðasafn Suður-Þingeyinga og Byggðasafn Norður-Þingeyinga), auk Sjóminjasafns Þingeyinga, Héraðsskjalasafns Þingeyinga, Ljósmyndasafns Þingeyinga, reksturs sýningar í Sauðaneshúsi og útgáfu Árbókar Þingeyinga. Starfsemi stofnunarinnar snýr fyrst og fremst að rekstri hinna mörgu og ólíku safna og sýninga, en einnig að viðburðum og fjölbreyttum verkefnum sem tengjast starfseminni á hverri starfsstöð.
Í gamla bænum á Grenjaðarstað í Aðaldal er rekin þjóðlífssýning á vegum MMÞ með munum úr Byggðasafni Suður-Þingeyinga. Það má segja að það sé tilhlýðilegt því þar starfaði byggðasafnið fyrstu árin. Tilurð safnsins má rekja til stofnunar Bændafélags Þingeyinga árið 1950 þegar sú hugmynd kom fram að safna þyrfti gripum úr gamla bændasamfélaginu, enda tækniöldin farin að ryðja sér til rúms og nytjamunir fyrri tíma óðum að hverfa. Fyrsta sýningin var opnuð í gamla bænum eftir að hann var opnaður fyrir almenning að lokinni uppgerð hans árið 1958. Því verki stjórnaði þáverandi þjóðminjavörður, dr. Kristján Eldjárn, sem gaf góðfúslegt leyfi fyrir því að sýningin yrði hýst í bænum. Torfbærinn á Grenjaðarstað er í eigu Þjóðminjasafns Íslands en MMÞ sér um eftirlit með honum.
Muni úr sömu safneign byggðasafnsins má einnig skoða á sýningunni Mannlíf og náttúra – 100 ár í Þingeyjarsýslum í Safnahúsinu á Húsavík. Í þeirri glæsilegu starfsstöð, sem jafnframt er höfuðstöð og eign MMÞ, er einnig safneign Myndlistasafns Þingeyinga, sem telur hátt í tvö þúsund verk og hið einstaka Ljósmyndasafn Þingeyinga, sem áætlað er að telji hátt í fimm hundruð þúsund ljósmyndir. Nýverið bárust safninu ljósmyndir frá afkomendum Péturs Jónassonar, sem rak Ljósmyndastofu Péturs á Húsavík
um áratuga skeið. Talið er að um tvö hundruð þúsund myndir hafi bæst við safnið, en skráning þess safns er skammt á veg komin. Enn fremur eru í Safnahúsinu Náttúrugripasafn Þingeyinga þar sem finna má söfn steina, plantna og dýra. Síðast en ekki síst er þar Héraðsskjalasafn Þingeyinga, þar sem tekið er við skjölum úr héraðinu allan ársins hring og bætast þar við um það bil sjö hillumetrar árlega. Að lokum eru þar aðal forvörslurými stofnunarinnar og skrifstofur MMÞ þar sem forstöðumaður, héraðsskjalavörður, safnfræðslufulltrúi og safnvörður hafa aðsetur.
Safneign og sýning Byggðasafns Norður-Þingeyinga er staðsett í gamla skólahúsinu á Snartarstöðum í Öxarfirði en húsið er í eigu MMÞ. Á árinu lauk uppsetningu og lagfæringum á fastasýningu safnsins.
Þátttakendur verkefnisins DIGIMUSE ENTER.
Annáll
Menningarmiðstöð Þingeyinga tók á móti 3,8 milljónum í styrki úr aðalúthlutun Safnaráðs, sem ætlaðar eru til þriggja verkefna á árinu 2025. Afhenti Logi Einarsson ráðherra menningarmála styrkina við hátíðlega athöfn sem haldin var í Þjóðminjasafninu í byrjun febrúar. Átta hundruð þúsund fengust til skráningu muna sem teknir voru úr eldri sýningu á Sjóminjasafni, tvær milljónir í endurbætur á lýsingu í Sjóminjasafni, í samstarfi við EG rafvirkja og Belkod, og loks ein milljón til vinnu við gerð hljóðleiðsagnar á Sjóminjasafni og var hún unnin í samvinnu við Jökul Karlsson. Menningarmiðstöð Þingeyinga er þátttakandi í Erasmus+ verkefninu
DIGIMUSE ENTER sem er stafrænt verkfæri fyrir aðgengi að menningararfi án aðgreiningar, og var þetta annað ár verkefnisins. Markmið verkefnisins er að þróa þjálfunarleiðir og úrræði fyrir starfsfólk safna, til að auka kunnáttu og hæfni þess við innleiðingu á tækni sem aftur eykur aðgengi að menningararfi á stafrænu formi. Verkefnið er mikill vendipunktur í stafrænni þróun lítilla safna um alla Evrópu en því var ýtt úr vör með tveggja daga fundi sem haldinn
var í Genti d’Abruzzo safninu í Pescara á Ítalíu haustið 2024. Þar var saman komið starfsfólk fjölbreyttra menningar- og menntastofnanna víðsvegar um Evrópu, auk aðstandenda verkefnisins, í þeim tilgangi að samræma markmið og framtíðarstefnur. Auk MMÞ (umsjón með sjö safneignum og fjórum starfsstöðvum sem stuðla að miðlun íslenskrar arfleifðar og menningar) eru eftirfarandi stofnanir þátttakendur í samstarfinu: Fondazione Genti d’Abruzzo (Ítalía) - aðalsamstarfsaðili DIGIMUSE ENTER sem stuðlar að svæðisbundinni menningu og varðveislu arfleifðar, EPIC - European Platform for International Cohesion (Ítalía) - samtök sem stuðla að menningarlegri samheldni þvert á landamæri, IHF asbl (Belgía) miðstöð menntunar og þjálfunar í Brussel með áherslu á fjármögnunartækifæri ESB og stafræna umbreytingu án aðgreininga, Internet Web Solutions (Spánn)upplýsingatækni- og verkfræðistofa með aðsetur í Malaga sem sérhæfir sig í stafrænum lausnum fyrir menningarverkefni, Samfélagsráð Steni (Kýpur)umsjón með safni sem varðveitir sögu sveitalífsins á Kýpur frá 19. öld til miðrar 20. aldar, Stichting Schoenenkwartier (Holland) - safn tileinkað arfleifð skóog leðurvöruiðnaðarins og að lokum Museum of Cetinska Krajina (Króatía) - stofnun með safn sem varðveitir fjölbreytta menningararfleifð Cetinska svæðisins.
DIGIMUS ENTER verkefnið styrkir þátttakendurna yfir 30 mánaða tímabil og allir eiga það sameiginlegt að vera smærri stofnanir með staðbundið starf.
Í janúar hófust árlegar heimsóknir frá nemendum úr Framhaldsskólanum á Húsavík í Safnahúsið. Nemendurnir kynntu sér starfsemi Menningarmiðstöðvar Þingeyinga í tengslum við enskukennslu og komu í vikulegar heimsóknir á nokkurra vikna tímabili á meðan á verkefninu stóð. Lokið var vinnu við varðveislurými Myndlistarsafns Þingeyinga á árinu. MMÞ hlaut öndvegisstyrk úr safnasjóði árið 2023 vegna verkefnis sem sneri að safneign myndlistarsafnsins en nauðsynlegt var meðal annars að endurbæta varðveislurými og færa skráningu á sarpur.is. Styrkurinn var til þriggja ára og búið er að flytja síðustu verkin í nýja varðveislurýmið, en þau eru um nítján hundruð talsins. Auk þess hefur þeim verið pakkað inn eftir kúnstarinnar reglum í sýrufrí efni og raðað eftir ákveðnu kerfi í hillur. Þá voru hátt á annað hundrað verk kölluð heim úr útláni og voru þau einnig fullskráð og flutt í nýja rýmið. Samhliða breytingum á varðveislurýminu var verkið Öræfi (MÞ-1401), eftir hina einstöku listakonu Oddnýju E. Magnúsdóttur (f. 17.04.1949 - d. 30.01.2025), fært aftur í stigagang Safnahússins á Húsavík, en hvíla þurfti verkið í nokkur misseri vegna birtuskilyrða og þar með litabreytinga á verkinu. Nú gefst gestum Safnahússins tækifæri til að njóta verksins þar á ný en það er ofið úr ullarbandi. Verkið er í eigu MMÞ.
Menningarmiðstöð Þingeyinga fór í samstarf við Hafnarsjóð Norðurþings
Við vinnslu varðveislurýmis MMÞ. Veggteppið Öræfi e. Oddnýju E. Magnúsdóttir.
um að setja upp skilti á hafnarsvæði Húsavíkur, með gömlum myndum af lífinu við höfnina á Húsavík, en þær koma úr safni Ljósmyndasafns Þingeyinga. Skiltin hafa mikla þýðingu fyrir menningarlíf á svæðinu og gera bæði innlendum og erlendum ferðamönnum kleift að sjá hvernig lífið við höfnina var á árum áður, auk þess sem þau auka sýnileika Safnahússins á meðal fjölmargra ferðamanna sem fara um hafnarsvæðið. Skiltin voru hönnuð og sett upp af MMÞ og eru gott dæmi um hverju öflugt samstarf getur skilað til samfélagsins. Mikil ánægja hefur verið með skiltin og vekja þau talsverða athygli. MMÞ setti einnig lítinn QR-kóða á skiltin sem vísa gestum leiðina upp í Safnahús, sem talið er að skili sér að einhverju leyti í aukinni aðsókn. Áfram var unnið að áætlunum í samstarfi við E.G. rafverktaka um betrumbætta lýsingu í Sjóminjasafni.
Forstöðumaður MMÞ, Árni Pétur Hilmarsson, hélt fyrirlestur fyrir nemendur við Háskóla Íslands í safnafræði um faglega starfsemi safna. Þar var fjallað um alhliða starfsemi MMÞ og förgun bátanna sem stóðu á útisvæðinu til ársins 2024. Ferlið við að afskrá bátana úr safneign reyndist umfangsmikið og var dýrmætt að miðla þeirri reynslu til háskólanema sem eru að mennta sig í fræðunum. Kennari námskeiðsins var Dr. Guðrún Whitehead.
Stórátak var gert á árinu í tiltekt á útisvæði. Farið var í samstarf við Samgönguminjasafnið á Ystafelli og tóku þau við mörgum munum í millisafnalán, þar eiga þeir betur heima og saga þeirra fær þar viðeigandi umgjörð. Einnig voru nokkrar heyvinnuvélar fluttar á Grenjaðarstað og sóma þau tæki sér vel fyrir framan Hlöðuna. Þingeyjarsveit gaf stofnuninni stórar steinhellur til að stilla vélunum á svo þær standi á traustum grunni og hverfi ekki í gras. Talsverð vinna var lögð í viðhald á Safnahúsinu á árinu en fyrirtækið Sig.
Illugason málaði allt tréverk hússins, að austurhliðinni undanskilinni, og var sú vinna nauðsynleg. Garðvík fjarlægði runna og hreinsaði útisvæðið við Sjóminjasafnið sem er nú tilbúið fyrir nýtt hlutverk sem skýrist á komandi misserum.
Allnokkur tími fór í val á ljósabúnaði fyrir Sjóminjasafnið til að nýta styrkveitingu frá Safnaráði sem best. Fengum við aðstoð ýmissa sérfræðinga frá Svíþjóð og frá fyrirtækinu Belkod við það verkefni, en E.G. rafverktakar sáu um uppsetningu búnaðarins. Ekki tókst að ljúka endurnýjun ljósa í öllu
Sjóminjasafninu þar sem styrkurinn dugði ekki til og bíður það verkefni næstu ára. Hins vegar tókst að skipta út lýsingu í meiri hluta safnsins, þ.e. þar sem ekki er falskt loft, og er mikil ánægja með þær breytingar. Með styrknum frá
Safnaráði náðist að uppfylla helstu markmið verkefnisins.
Hljóðleiðsögn í Sjóminjasafni reyndist einnig tímafrek en samstarf við Jökul Karlsson gekk afar vel og skilaði hann verkefninu af mikilli fagmennsku. Er nú hægt að að sækja upplýsingar um sýningar og einstaka muni með QR kóða og hlusta á bæði íslensku og ensku.
Nicola Van Kulenburg tók að sér að skrá muni sem teknir voru úr sýningu á Sjóminjasafni við breytingar á því á árinu 2024, en töluverður hluti þeirra hafði ekki áður verið skráður. Verkefnið tók stærstan hluta vetrarins og reyndist
Nicola bæði nákvæm og úrræðagóð við að leysa úr skráningu fjölmargra muna. Við tók hefðbundinn undirbúningur sumarstarfseminnar, svo sem ráðning sumarstarfsmanna, heimsóknir á starfsstöðvarnar og undirbúningur fyrir móttöku gesta. Sumartíminn er ávallt annasamur og því minna svigrúm til innra starfs á meðan opnunartíminn er lengdur, en áhersla er lögð á góða upplifun gesta og og ánægjulegt umhverfi. MMÞ stendur fyrir fjölmörgum viðburðum á öllum starfsstöðvum á sumrin sem fjallað verður nánar um í
Frá Landsbyggðarráðstefnu Félags þjóðfræðinga á Narfastöðum.
síðari köflum.
Félag Þjóðfræðinga hélt sína árlegu landsbyggðarráðstefnu í Þingeyjarsveit þetta árið í samvinnu við MMÞ. Fundað var meðal annars á Grenjaðarstað og forstöðumaður MMÞ ávarpaði samkomuna.
Sveitarfélögin sem standa að MMÞ samþykktu á árinu að fjármagna þakskipti á Safnahúsinu á Húsavík við Stóragarð 17. Verðkönnun hafði farið fram árið 2024 og lá því fyrir ágætis kostnaðarmat. Ákveðið var að fara í óformlegt
Gluggar Safnahússins málaðir af Sig. Illugason málningaverktökum.
útboð þar sem flest stærri smíðafyrirtæki á svæðinu, frá Þingeyjarsýslum til Eyjafjarðar, voru beðin um að gera tilboð í verkið. Trésmiðjan Rein átti lægsta tilboð og mun því sjá um þakskiptin sumarið 2026. Um er að ræða mikilvægan áfanga þar sem þakið er orðið lekt og illa einangrað.
Að lokinni sumarvertíð tók við nokkur vinna við frágang á starfsstöðvunum fyrir veturinn og vinna við uppgjör vegna sumarsins. Hefðbundið innra starf fyllir vetrarmánuðina, svo sem vinna í geymslum, uppsetning sýninga, gerð styrkumsókna og þátttaka í námskeiðum og ráðstefnum. Í nóvember og desember var fjölbreytt viðburðahald og er jólamarkaðurinn í Safnahúsinu er orðinn fastur liður í upphafi aðventu. Þar var boðið upp á veitingar, sölutorg með úrvali muna, tónleika, bingó og piparkökuhúsakeppni. Markaðurinn stækkar og eflist með hverju árinu og er áætlað að nálægt eitt þúsund gestir hafi sótt Safnahúsið heim þessa helgi.
Frá fræðslukvöldi um þjóðtrú á Grenjaðarstað Ólína, Anna Karen og Elín lesa.
Viðburðir árið 2025:
• 18. maí: Alþjóðlegi safnadagurinn
• 28. maí: Hvalasýning barnanna
• 1. júní: Sjómannadagurinn - frítt inn og heitt á könnunni
• 17. júní: Frítt inn á allar starfstöðvar, kaffi og konfekt í boði
• 23. júní: Tónleikar víkingahljómsveitarinnar Tríó Krauka í Sjóminjasafninu
• 29. júní: Tónleikar hljómsveitarinnar Í góðu lagi í Sjóminjasafninu
• 20. júlí: Fjölskyldu- og starfsdagur á Grenjaðarstað - tóvinna, eld smíði, gamlir útileikir, torfbæjarlíf, leiðsögn og heitt á könnunni
• 6. ágúst: Windworks með tónleika í Sjóminjasafninu
• 15. Ágúst: Þjóðtrúarkvöld á Grenjaðarstað
• 4. september: Rætur/Icelandic roots með viðburð og kynningu á starfsemi sinni í Sjóminjasafninu
• 12.-19. september: Barnamenningarhátíð Hagsmunasamtaka barna á Húsavík og STEM Húsavík.
• 31. október: Hrekkjavaka hjá MMÞ og Bókasafninu á Húsavík
• 28.-29. nóvember: Jólabærinn minn - markaður og viðburðir í Safnahúsinu
Frá safnaferð austur á firði.
Frá Farskóla safnamanna á Selfossi.
Árið 2025 voru söfnin opin sem hér segir:
Safnahúsið á Húsavík
Sumar (15. maí-31. ágúst): Opið alla daga 11-17
Vetur (1. september-15. maí): Þriðjudaga til föstudaga 13-16, laugardaga 11-16
Grenjaðarstaður
Sumar (1. júní-15. ágúst): Alla daga 11-17
Vetur: Lokað
Snartarstaðir
Sumar (15. júní-31. júlí): Þriðjudaga til sunnudaga 13-17
Vetur: Lokað
Sauðaneshús
Sumar (15. júní-31. júlí): Þriðjudaga til sunnudaga 13-17
Vetur: Lokað
Aðsóknartölur (2023) (2024) 2025
Gestir í Safnahúsinu á Húsavík (samtals) 4095 4128 5082
Gestir á Grenjaðarstað (samtals) 2391 2719 2942
Gestir á Snartarstöðum (samtals) 202 418 294
Gestir í Sauðaneshúsi (samtals) 342 334 433
Aðsóknartölur ársins 2025 sýna áframhaldandi jákvæða þróun í gestafjölda á flestum starfstöðvum. Erfitt er að skýra fjölgunina en MMÞ tekur þátt í fjölbreyttu markaðsstarfi m.a. í gegnum Húsavíkurstofu, Norðurhjara, Handpicked og Markaðskrifstofu Norðurlands. MMÞ kynnir söfn sín í völdum fjölmiðlum, handbókum og vefsíðum. Kynning á staðnum líkt og skiltin sem sett voru upp niður við höfn virðast líka skila okkur aukningu í gestafjölda.
Nokkrar tölur úr rekstri MMÞ
Helstu tekjuliðir: 2025 (2024)
Frá sveitarfélögum 78.339.042 (74.692.583)
með auka 3 milljóna framlagi til viðhalds samkv. aukasamningi
Styrkir samtals: 13.451.194 17.934.367
Frá safnasjóði (aðalúthlutun) 3.800.000 (6.300.000)
Frá safnasjóði öndvegisstyrkur 3/3 2.000.000 (5.000.000)
SSNE 450.000 (450.000)
Aðrir styrkir 4.581.194 (3.590.118)
Framlag ríkisins vegna skjalasafns 1.900.000 (1.820.000) (verkefnastyrkir)
Framlag ríkisins vegna skjalasafns 720.000 (774.249) (rekstrarstyrkir)
Aðgangseyrir og sölutekjur 12.157.587 (8.173.609)
Leigutekjur 6.736.177 (6.351.530)
Styrkir
MMÞ er viðurkennt safn samkvæmt lögum og hefur þar með heimild til að sækja um styrki úr safnasjóði á vegum Safnaráðs. MMÞ leitast við að nýta þessa heimild sem best og sækir um fjölda styrkja á hverju ári, bæði til framþróunar og til að styrkja faglegt starf og rekstur. MMÞ fær jafnframt fasta rekstrarstyrki frá Þjóðminjasafni Íslands og Þjóðskjalasafni Íslands til reksturs
Héraðsskjalasafnsins, en auk þess sækir það um verkefnastyrki.
Eftirfarandi styrkjum var úthlutað til MMÞ á árinu 2025:
• Menningarmiðstöð Þingeyinga fékk 2.000.000 króna í verkefnastyrk úr aðalúthlutun safnasjóðs vegna „Lýsingar í Sjóminjasafni“.
• Menningarmiðstöð Þingeyinga fékk 1.000.000 króna í verkefnastyrk úr aðalúthlutun safnasjóðs vegna „Hljóðleiðsagnar í Sjóminjasafni“.
• Menningarmiðstöð Þingeyinga fékk 800.000 króna í verkefnastyrk úr aðalúthlutun safnasjóðs vegna „Skráningar á munum úr Sjóminjasafni“.
• Menningarmiðstöð Þingeyinga fékk 2.000.000 króna í öndvegisstyrk úr safnasjóði vegna Myndlistasafns Þingeyinga
• Menningarmiðstöð Þingeyinga fékk 817.182 króna úr evrópuverkefninu DIGIMUS ENTER.
• Menningarmiðstöð Þingeyinga fékk 1.358.291 króna í rekstrarstyrk frá Þjóðminjasafni Íslands vegna umsjónar með Sauðaneshúsi og Grenjaðarstað.
• Menningarmiðstöð Þingeyinga fékk 2.293.750 króna frá Þjóðskjalasafni Íslands vegna verkefnastyrkja til Héraðsskjalasafnsins.
• Menningarmiðstöð Þingeyinga fékk 405.118 króna í styrk frá Sveitamennt, starfsmenntasjóði starfsmanna sveitarfélaga á landsbyggðinni innan aðildarfélaga Starfsgreinasambands Íslands, vegna fræðsluferðar starfsfólks MMÞ.
• Menningarmiðstöð Þingeyinga fékk 450.000 króna úr SSNE til verkefnisins „Miðlun á Mánárdýri“.
• Menningarmiðstöð Þingeyinga fékk 2.326.853 króna úr Atvinnuleysistryggingarsjóði á árinu 2025 vegna ráðningarstyrkja.
Ingólfur Pétursson við tiltekt á útisvæði.
Námskeið og ráðstefnur
Á árinu 2025 sóttu starfsmenn Menningarstöðvar Þingeyinga meðal annars eftirfarandi námskeið og ráðstefnur:
• Í febrúar sótti starfsfólk MMÞ námskeiðið Tengslarof náttúru og manns, sem er hluti af Loftum verkefni SSNE.
• Forstöðumaður sótti örnámskeið um geymslur Þjóðminjasafnsin
• Starfsfólk MMÞ sat kynningarfund um Ferðaþjónustu - gjaldtöku og fjárfestingar haldið af SSNE
• Í apríl sótti starfsfólk MMÞ námskeið í DIGIMUSE ENTER
• Í apríl sótti Starfsfólk MMÞ ráðstefnuna Samráð við ferðaþjónustu á Síldarminjasafninu
• Í apríl sat starfsfólk MMÞ ráðstefnu um notkun gervigreindar í ferðaþjónustu á Hótel Húsavík (Erika, Nicola og Árni Pétur)
• 1.-3. október var Farskóli safnamanna haldinn á Selfossi (Árni Pétur, Snorri, Sigríður, Dagný og Nicola)
• 22.-23. nóvember fór starfsfólk MMÞ í fræðsluferð um Austfirði (Árni Pétur, Snorri, Sigríður, Dagný og Nicola)
Jökull Karlsson, Sigríður Örvarsdóttir, Katla Karlsdóttir, Erika Isaksen og Nicola á námskeiði á vegum DIGIMUSE ENTER verkefnisins.
Fundir
• Stjórn MMÞ hélt stjórnarfundi í Safnahúsinu á Húsavík 10. mars, 26. maí og 3. desember.
• Aðalfundur stofnunarinnar var haldinn í Safnahúsinu á Húsavík 29. maí 2025.
• Forstöðumaður (Árni Pétur) sótti fund höfuðsafnana og örnámskeið hjá Þjóðminjasafninu um varðveisluhúsnæði þeirra í Hafnarfirði í byrjun árs.
• Forstöðumaður (Árni Pétur) átti fund með Guðmundi í Garðvík í sambandi við tilboð í gerð bílastæðis fyrir utan bókasafn, tiltekt á útisvæði og umhirðu lóðar.
• Forstöðumaður (Árni Pétur) sat fundi samtaka listasafna.
• Forstöðumaður (Árni Pétur) fundaði með Einari Jónassyni vegna lýsingar í Sjóminjasafni í janúar.
• Forstöðumaður (Árni Pétur) sótti hádegisfundi og menningarspjall á Húsavík yfir vetrartímann.
• Forstöðumaður (Árni Pétur) átti fund við Norðurþing um áætlun uppsetningu skilta við höfnina á Húsavík.
• Nokkrir vinnufundir fóru fram með E.G. Rafvirkjum og Belkod um lýsingu í Sjóminjasafni.
• Fundur með Rótum félagi vesturfara um skilti eða minnisvarða við Safnahúsið fór fram í mars, allir starfsmenn sátu fundinn.
• Fundur í tengslum við Evrópuverkefnið DIGIMUSE fór fram á árinu, allir starfsmenn sátu fundinn.
• Í apríl var haldinn fundur með Minjasafni Austurlands, en fundurinn var um samstarf þar sem Minjasafn Austurlands er að kljást við álíka áskoranir og MMÞ.
• Fundir ritnefndar Árbókarinnar (Árni Pétur, Snorri og Sigríður) voru tveir á árinu.
• Forstöðumaður (Árni Pétur) sat fund í stjórn samtaka um söguferðaþjónustu í apríl.
• Forstöðumaður (Árni Pétur) sat fund og kynningu um Handpicked in Iceland, varðandi markaðsverkefni.
• Fjölmargir fundir haldnir með hafnarstjórn og TN varðandi skiltin við Húsavíkurhöfn (Árni Pétur).
• Fundir haldnir með Helgu formanni Leikfélags Húsavíkur um Árbókarverkefnið (Árni Pétur).
• Forstöðumaður (Árni Pétur) sat fundi með Sambandi Íslenskra Sjóminjasafna sem aðili f.h. MMÞ.
• Starfsfólk MMÞ sat fjölbreytta fundi vegna sýninga og samstarfsverkefna árið 2025.
Starfsfólk
Árið 2025 störfuðu 17 starfsmenn í 5.4 stöðugildum á árinu. Starfsfólk Safnahússins á Húsavík árið 2025 voru: Árni Pétur Hilmarsson, en hann sinnti 100% starfi forstöðumanns MMÞ og hafði þar með umsjón með byggðasöfnum, Sjóminjasafni, Náttúrugripasafni og Myndlistarsafni Þingeyinga. Sigríður Örvarsdóttir var í 20% starfshlutfalli við ráðgjöf og umsjón með lista- og varðveislumálum. Snorri Guðjón Sigurðsson var í 100% stöðu héraðsskjalavarðar og sem umsjónarmaður Ljósmyndasafns Þingeyinga. Erika Lind Isakssen sinnti 100% starfi safnfulltrúa og hafði umsjón með mótttöku gesta, safnfræðslu, hönnun kynningarefnis og skráningu muna en sagði starfi sínu lausu í júlí og tók Dagný Theodórsdóttir við hennar starfi sem safnfulltrúi í 100% starfi. Nicola Van Kuilenburg vann við gestamóttöku í Safnahúsinu og á Grenjaðarstað og við skráningu muna. Stephen Whiting vann við ræstingar í Safnahúsinu tvo daga í viku. Elín Kjartansdóttir hafði umsjón með matarsmakki á Grenjaðarstað, aðstoðaði við viðburði þar og sá um prófarkalestur fyrir Safna. Fanný Cloé sinnti afleysingum í mótttöku Safnahússins og á Grenjaðarstað. Katla Karlsdóttir vann við yfirferð á verkum safneignar Myndlistasafns Þingeyinga og skráningu í Sarp. Styrmir Franz Snorrason vann við stafræna afritun skjala fyrir Héraðsskjalasafn Þingeyinga. Anna Karen Unnsteins var safnvörður á Grenjaðarstað um sumarið, ásamt Eriku Lind Isakssen, Nicolu Van Kuilenburg, Fanný Cloé, Snorra Guðjóni Sigurðssyni og Árna Pétri Hilmarssyni í afleysingum.
Á Snartarstöðum höfðu Þorsteinn Gísli Jónsson og Kristín Sigríður Gunnarsdóttir umsjón með mótttöku gesta frá 15. júní til 15. ágúst. Sigríður sá einnig um skráningu muna og sá Rannveig Halldórsdóttir um eftirlit yfir árið. Í Sauðaneshúsi sáu Auður Lóa Guðnadóttir og Starkaður Sigurðsson um mótttöku gesta frá 15. júní til 15. ágúst, níunda árið í röð. Halldóra Sigríður Ágústsdóttir sá um eftirlit með Sauðanesi yfir árið.
Nicola Van Kuilenburg og Dagný Theodórsdóttir á Farskóla Safnamanna á Selfossi.
Útgáfustarfsemi MMÞ árið 2025
Safni 2025, ársskýrsla Menningarmiðstöðvar Þingeyinga vegna starfssársins 2024, kom út í maí.
Árbók Þingeyinga kom út í 67. sinn og var henni ritstýrt af Sverri Haraldssyni þriðja árið í röð. Í ritnefnd bókarinnar eru Árni Pétur Hilmarsson, forstöðumaður MMÞ, Kristjana Erna Helgadóttir frá Kópaskeri, Sigríður Örvarsdóttir, safnafræðingur hjá MMÞ, Snorri Guðjón Sigurðsson, héraðsskjalavörður og Sæþór Gunnsteinsson, bóndi í Presthvammi í Aðaldal. Ritnefndin fundaði tvisvar sinnum.
Nýjar áskriftir má skrá í gegnum heimasíðu MMÞ, www.husmus.is, í síma 4641860 eða með því að senda tölvupóst á netfangið safnahus@husmus.is
Byggðasafn Þingeyinga, Myndlistarsafn Þingeyinga og Náttúrugripasafn Þingeyinga
Safnahúsið á Húsavík
Heimsóknum á safnahúsið fjölgaði nokkuð á milli ára eða um 864 heimsóknir. Fjölgunina má meðal annars rekja til fjölbreyttra viðburða á árinu, s.s. sýninga, viðburða, tónleika, barna- og unglingastarfs, jólamarkaðar og heimsókna frá innlendum og erlendum ferðamönnum sem hafa hug á að kynna sér menningu í Þingeyjarsýslum. Einnig hafa skilti á hafnarsvæði Norðurþings haft sín áhrif. Svalir á Sjóminjasafninu voru reglulega nýttar til fundahalds og víkingaskipið Hrafninn nýttist
Hilmar Þór og Arndís Inga flytja tónlist í blíðviðrinu á Húsavík á sumardaginn fyrsta.
Sýning Þorra Hringssonar í Safnahúsinu. Frá opnun sýningarinnar “Ný málverk”.
vel sem svið til ræðuhalda og tónleika. Áhersla var lögð á fjölbreytta starfsemi í Safnahúsinu og varð Sjóminjasafnið vinsæll staður fyrir viðburði. Endurbætt lýsing, fundaraðstaða og aðgengi að Hrafninum voru framkvæmdir sem bersýnilega höfðu jákvæð áhrif á starfsemi og viðburðarhald. Snemma árs hófst undirbúningsvinna við Málverkasýningu barnanna í samvinnu við leikskólann Grænuvelli en sýningin var formlega opnuð á jarðhæð hússins þann 12. mars. Á vorönn hófust einnig árlegar heimsóknir nemenda frá Framhaldsskólanum á Húsavík, en þeir komu vikulega í safnaheimsóknir á nokkurra vikna tímabili. Á öskudaginn fékk safnið skemmtilegar heimsóknir frá litríkum gestum sem þáðu sælgæti fyrir söng.
Sýningarárið hófst formlega með opnun sýningar Þorra Hringssonar, Ný málverk/New paintings, þann 12. apríl í Myndlistarsal á 3. hæð Safnahússins. Sýningin var vel sótt og stóð til 24. ágúst. Innblástur málverkanna sótti Þorri í náttúruna og ekki síst þá sem umlykur vinnustofu hans í Haga, ekki síst í vötn og ár sem eru listamanninum hugleikin. Í apríl opnaði jafnframt greiningarsýning á ljósmyndum Jóhannesar Sigurjónssonar á jarðhæð Safnahússins og gerðu gestir og gangandi kunnuglegum andlitum skil með því að skrá niður nöfn þeirra. Á sumardaginn fyrsta 22. apríl var boðið upp á krítar og sápukúlur,
Tónlistarskóli Húsavíkur með atriði á jólamarkaði.
Helstu upplýsingar um Mánárdýrið í Safnahúsinu.
kaffi og konfekt og enginn aðgangseyrir var rukkaður á safninu þann daginn. Alþjóðlegi safnadagurinn var haldinn hátíðlegur þann 18. maí og frítt var inn í Safnahúsið. Nesbandið spilaði í góðu veðri á útitröppunum og boðið var upp á léttar veitingar. Að venju var frítt inn á safnið á Sjómannadaginn 1. júní og boðið var upp á kaffi og meðlæti í tilefni dagsins. Á Þjóðhátíðardaginn 17. júní fór hátíðardagskrá Norðurþings fram í Safnahúsinu. Sama dag var einnig opnuð listasýning Rósu Sigrúnar Jónsdóttur, Umskiptingar/Transformations, í anddyri Safnahússins. Sýningin innhélt litla skúlptúra sem gerðir voru úr rusli sem listakonan tíndi á ferðum sínum á Úlfarsfellið fyrr á árinu sem hún fléttaði við annað efni svo að til urðu 100 stykki en aðeins lítill hluti þeirra komu til sýnis í Safnahúsið. Sýning Nicolu Van Kuilenburg Út úr skuggunum/Out of the shadows - Bakslag/backlash var opnuð á jarðhæð Safnahússins þann 20. júní sem hluti af Hinsegin hátíð Norðurlands eystra og var fólk hvatt til þess að mæta í litum regnbogans og þiggja litríkar veitingar. Sýninginn vakti mikla athygli, viðtöl voru tekin um efni sýningarinnar, við sýningarstjórann Nicolu og Árna Pétur forstöðumann MMÞ, af fréttamanni Ríkisútvarpssins. Þá var sýningin einnig sett á rafrænt form og því hægt að dreifa boðskap hennar víðar. Tvennir tónleikar voru haldnir í Sjóminjasafninu í júní, annars vegar var það víkinga-hljómsveitin Trio Krauka sem steig á stokk í Hrafninum þann 23. júní og hins vegar hljómsveitin Í góðu lagi sem hélt sína tónleika þann


Sýningin Rósu S. Jónssonar “Umskiptingar”. Prúðbúnir gestir í Safnahúsinu á þjóðhátíðardaginn.
Frá opnun sýninganna “Út úr skugganum” og “Bak/slag” undir stjórn Nicolu Van Kuilenburg.
29. júní. Ný skilti sem minna á sögu og mannlíf svæðisins voru sett upp við höfnina á Húsavík 10. júlí. Skiltin prýða sögulegar ljósmyndir sem sýna lífið á hafnarsvæðinu á árum áður - mannlíf, atvinnuhætti og þróun hafnarinnar í gegnum tíðina. Um er að ræða samstarf MMÞ og Hafnarsjóðs Norðurþings og voru ljósmyndir fengnar úr safneign Ljósmyndasafns Þingeyinga. Markmiðið með skiltunum er að auka sýnileika sögu og menningar hafnarsvæðisins og gera gestum og gangandi kleift að kynnast fortíðinni með sjónrænum hætti. Windworks buðu upp á sína árlegu tónleika þann 6. ágúst í Sjóminjasafninu, þar léku Karen Karólínudóttir (flautur) og Helga Björg Arnardóttir (klarínett) kl. 14 og Pamela De Sensi og Petrea Óskarsdóttir (flautur) kl. 15. Félagið Rætur/Icelandic Roots, samtök Vestur-Íslendinga, setti upp litla sýningu í anddyri Safnahússins um vesturfara úr Þingeyjarsýslum. Sýningin var unnin undir stjórn Sunnu Furstenau í samstarfi við MMÞ. Jafnframt héldu samtökin viðburð og kynningu á sínu starfi í Sjóminjasafninu 5. september. Vel var mætt og boðið upp á kaffi og þjóðlegar veitingar, kleinur og ástarpunga. Dagana 12.-19 september fór fram Barnamenningarhátíð Hagsmunasamtaka barna á Húsavík og STEM Húsavík. Hátíðin hófst með fjörugu opnunarhófi í Safnahúsinu. Þemað var framtíðin og var safnið klætt í framtíðarbúning, haldið var “silent disco” og boðið upp á nýstárlegar veitingar. Sömu helgi fór

Skilti MMÞ á hafnarsvæði Norðurþings.
fram ritlistarsmiðja í Safnahúsinu og lego-smiðja á svölum Sjóminjasafnsins. Afrakstur helgarinnar var til sýnis á jarðhæð Safnahússins og fór lokahóf einnig fram á jarðhæðinni og í Sjóminjasafni. Grillaðar voru pylsur og gestir gátu virt fyrir sér það sem börnin höfðu útbúið í hinum ýmsu smiðjum víða um bæinn. Nicola Van Kuilenburg opnaði sína aðra sýningu á árinu sem kallaðist Milli tveggja heima/Between two worlds. Önnur greiningarsýning ársins, á ljósmyndum Jóhannesar Sigurjónssonar, var sett upp 22. september, en myndir hans úr hversdagslegu lífi íbúa Norðurþings vekja ávallt upp margar minningar og gestir duglegir að merkja nöfn þeirra sem eru á myndunum. Á árinu var einnig farið með nokkrar slíkar ljósmyndasýningar í Hlyn, samverustað Félags eldri borgara á Húsavík og víðar.
Í september var sett upp listasýning í Myndlistarsal með verkum eftir konur í safneign. Eftir yfirferð á verkum og skráningu í www.sarpur.is og flutning í nýtt varðveislurými, kom í ljós að einungis um 30% verkanna voru eftir
Líf og
Frá viðburði sem Rætur/Icelandic Roots hélt í Safnahúsinu.
fjör í Safnahúsinu á barnamenningarhátíð.
Óformleg opnun á verkum eftir konur í safneign MMÞ.
Sýning Nicolu Van Kuilenburg
konur. Var þetta kveikjan að sýningunni sem var undir sýningarstjórn Kötlu Karlsdóttur. Hrekkjavaka var haldin hryllileg í samstarfi við Bókasafnið á Húsavík, dagana 31. október og 1. nóvember. Þá var börnum boðið að föndra drauga á bókasafninu og gerast vísindamenn á safninu með sérþekkingu á Mánárdýrum. Að launum fengu börnin gotterí og safnið fékk nýjar upplýsingar um Mánárdýrin. Þann 28.- 29. nóvember fór fram viðburðurinn Jólabærinn minn í Safnahúsinu. Ákveðið var um haustið að Safnahúsið tæki við verkefninu af Markþing eftir vel heppnaðan jólamarkað/viðburði við upphaf aðventu 2024. Fjölbreyttir básar með fallegu handverki voru settir upp á jarðhæðinni ásamt jólakorta-sýningu í glerskáp sem Nicola Van Kuilenburg stýrði, ásamt videoverki með jólakveðjum á hinum ýmsu tungumálum. Haldin var piparkökuhúsakeppni og var þátttaka góð og byggingarnar það glæsilegar
Tónleikar víkingahljómsveitarinnar Tríó Krauka í sjóminjasafninu.
“Milli tveggja heima”.
Opnun sýningarinnar “Guð minn góður/Oh My God”.
Jólabærinn minn, kaffihúsastemning í sjóminjasafni.
Hægt var að klára jólamyndatökuna í Safnahúsinu eins sjá má!
þátttaka var í piparkökuhúsakeppninni.
að erfitt var að velja sigurvegara keppninnar. Kaffihúsastemning myndaðist á svölum Sjóminjasafnsins og kom nýja lýsingarhönnunin sér vel við að búa til huggulega stemningu. Veitingasala Candybar bauð gestum upp á kökur og annað sætmeti og Gamli baukur bauð upp á sjávarréttasúpu. Hljómsveitin
Ingólfur Pétursson og Snorri Guðjón við tiltekt í geymslum Safnahússins.
Land Rover á leið í millisafnalán.
Góð
Í góðu jólalagi hélt uppi stemningunni með tónleikum í Hrafninum og nemendur Tónlistarskólans á Húsavík héldu einnig tónleika í bátnum. Í samvinnu við Þekkingarnet Þingeyinga voru haldnir “sing-along” tónleikar með íslenskum jólalögum, en markmið samsöngsins var að bjóða íbúum
Norðurþings af erlendu bergi að gefa íslenskunni séns og syngja með. Þá var boðið upp á að láta taka myndir af sér með ísbirninum með jólalegum bakgrunni og jólatréi, sem sló rækilega í gegn. Sömu helgi var opnun sýningarinnar Guð
minn góður / Oh My God haldin í Myndlistarsal við undirspil Frímanns kokks. Sýningin samanstóð af guðsorðabókum, ljósmyndum og gömlum kirkjumunum úr Þingeyjarsýslum. Fyrir jólaviðburðinn þurfti að skreyta húsið hátt og lágt en Safnahúsið bauð
öllum börnum í frístund að koma að föndra jólaskraut í nóvember og að fá aðstoð þeirra að skreyta. Það heppnaðist afar vel og komu um 90 börn í jólaföndur í nóvember. Lokasýning
ársins var netsýning á verkum Rögnu Hermannsdóttur sem fór í loftið þann 29. desember og var lokahluti verkefnis er tengist öndvegisstyrk til Myndlistarsafns, en hægt er að skoða sýninguna á husmus.is og lesa fróðleik um listakonuna Rögnu.
Bókakynning á aðventu í Sjóminjasafni. Ester Hilmarssdóttir les úr bók sinni “Sjáandi”.
Heyvinnuvélum komið fyrir á Grenjaðarstað.
Öskudagsfjör í Safnahúsinu í febrúar.
Yfirlit yfir sýningar í Safnahúsinu 2025
• 12. apríl: Ný málverk/New paintings Þorri Hringsson
• 22. apríl: Greiningarsýning á ljósmyndum Jóhannesar Sigurjónssonar
• 12. mars: Myndlistasýning barnanna
• 17. júní: Umskiptingar Rósa Sigrún Jónsdóttir - hátíðardagskrá í safnahúsinu
• 20. júní: Út úr skuggunum/Out of the shadows - Bakslag/backlashNicola
• 10. júlí: Ljósmyndasýning við höfnina á Húsavík
• 4. september: Vesturfarasýning Icelandic roots í anddyri Safnahússins
• 18. september: Milli tveggja heima/Between two worlds - Nicola
• 2. september: Greiningarsýning á myndum Jóhannesar Sigurjónssonar
• 27. september: Verk eftir konur í safneign
• 28. nóvember: Guð minn góður - Oh My God
• 29. desember: Ragna Hermannsdóttir – netsýning
Myndlistarsýning barnanna er alltaf á meðal stærstu og skemmtilegustu opnanna hjá MMÞ.
Grenjaðarstaður
Sýningin í gamla bænum á Grenjaðarstað var opin daglega frá kl. 11 til 17 á tímabilinu frá 1. júní til 15. ágúst. Torfbærinn tilheyrir húsasafni Þjóðminjasafns Íslands, en Menningarmiðstöð Þingeyinga (MMÞ) sér um þjóðlífssýningu sem unnin er upp úr safneign Byggðasafns Suður-Þingeyinga.
Frá fræðslukvöldi um þjóðtrú á Hlöðuloftinu á Grenjaðarstað.
Frá árinu 1958 og fram að stofnun MMÞ árið 2007 var bærinn á ábyrgð byggðasafnsins en við stofnun miðstöðvarinnar tók Þjóðminjasafnið formlega við eignarhaldi. Samkvæmt samningi við Þjóðminjasafnið hefur MMÞ eftirlit með torfbænum og Hlöðuloftinu allt árið um kring. Stofnunin hefur einnig umsjón með Hlöðunni, þar sem gestir geta notið veitinga, nýtt snyrtingar og skoðað eða keypt handverk úr héraði sem unnið er af meðlimum handverkshóps Hlöðunnar. Minniháttar viðhald er á höndum MMÞ en Þjóðminjasafnið annast stærri viðhaldsverkefni. Bærinn þarfnast töluverðs viðhalds og ýmislegt er orðið tímabært að lagfæra. Skipt var um sísalteppi á moldargólfum Gamla bæjarins fyrir háannatímann. Á árinu var tekið á móti gestahópum utan hefðbundins opnunartíma og gerði MMÞ sérstaka samninga við nokkur ferðaþjónustufyrirtæki um slíkar heimsóknir. Nokkrir hópar komu í heimsóknir með matarsmakki og fengu gestir þá að bragða þjóðlegan, íslenskan mat, s.s. svið og fjallagrös ásamt því að fá leiðsögn um bæinn. Þannig tókst að skapa einstaka upplifun í sögulegu umhverfi
HÉRAÐSSKJALASAFN ÞINGEYINGA
torfbæjarins. Gestakomum á Grenjaðarstað fjölgaði áfram á milli ára eða um ríflega 200 manns. Var boðið upp á leiðsagnarbæklinga á fimm tungumálum fyrir ferðamenn. Á Þjóðhátíðardaginn var að venju boðið upp á léttar veitingar og frían aðgang að bænum og voru gestir sérstaklega hvattir til þess að mæta í þjóðbúningum í tilefni dagsins. Þann 20. júlí var haldinn fjölskyldu- og starfssdagur á Grenjaðarstað. Þennan dag gafst gestum kostur á því að fylgjast með og taka þátt í tóvinnu, eldsmíði, gömlum útileikjum, torfbæjarlífi og jafnframt var boðið upp á leiðsögn, fróðleik og léttar veitingar. Fjölskylduog starfsdeginum lauk með vikivaka en það var Anna Karen Unnsteins sem hafði umsjón með dagskránni. Sumaropnun á Grenjaðarstað lauk þann 15. ágúst með fræðslukvöldi um þjóðtrú þar sem m.a. voru sagðar sögur af hulduheimum, óvenjulegum atburðum og reglum sem mótuðu daglegt líf fólks fyrr á öldum og snertu þjóðtrú. Egill Helgason kom í heimsókn á Grenjaðarstað í sumar. Hann hefur tekið að sér að vinna þætti um valda bæi úr húsakosti Þjóðminjasafn Íslands og var Grenjaðarstaður einn þeirra staða sem valdir voru til umfjöllunar.Viðmælendur Egils voru Sigurlaug Dagsdóttir, Indriði Ketilsson, Þorgrímur Daníelson og Árni Pétur Hilmarsson.
Snartarstaðir
Byggðasafnið að Snartarstöðum var opið þriðjudaga til sunnudaga kl. 13.-17 frá 15. júní til 15. ágúst. Sumarið gekk nokkuð vel en þó nokkur samdráttur í komum gesta á safnið. Erfitt er að skýra hvað veldur en nýbúið er að breyta fastasýningu safnsins, sem og að bæta við lítilli sýningu frá Skjálftasetrinu á Kópaskeri. Það starf vann Elín Björg Ingólfsdóttir sýningarhönnuður á síðastliðnum misserum og er það samdóma álit að vel hafi til tekist. Elín kláraði í vor að
Úr sýningaskáp á Snartarstöðum. Ný sýning, ásamt textum, var unnin af Elínu Björgu Ingólfsdóttur.
HÉRAÐSSKJALASAFN ÞINGEYINGA
setja upp ný textaspjöld við sýningargripi og er sýningin nú fullgerð. Kristín Sigríður Gunnarsdóttir var í 60% starfi seinnihluta árs 2025 við að skrá muni og taka saman texta til nota í hljóðleiðsögn á staðnum.
Sauðaneshús
Sauðaneshús hýsir byggðasýninguna Að sækja björg í björg og er hún rekin af MMÞ en húsið sjálft er hluti af húsasafni Þjóðminjasafns Íslands. Sýningin var opin um sumarið, frá 15. júní til 15. ágúst, þriðjudaga til sunnudaga milli klukkan 13 og 17. Ásamt byggðasýningunni voru tvær tímabundnar sýningar í húsinu sumarið 2025. Elín Elísabet
Einarsdóttir hélt listsýninguna Verk úr hendi í veitingasalnum í kjallaranum og voru verkin á sýningunni máluð bæði á Syðra Lóni á Langanesi og í
Kollsvík í Rauðasandshreppi á Vestfjörðum, en Elín er ættuð frá báðum stöðum. Hin sýningin var sett upp víðsvegar um húsið, innan um aðalsýninguna, nefndist Ó-rækt og var unnin af Ásdísi Hönnu Gunnhildar
Þann 17. júní var haldin hátíðleg dagskrá á Snartarstöðum líkt og á öðrum starfsstöðvum MMÞ. Byggðasafni Norður Þingeyinga barst svo höfðingleg gjöf á árinu. Jóhannes Ari Arason, sem er í forsvari fyrir minningarsjóð sem stofnaður var að ósk Sigurðar Óskars Sigvaldasonar í þeim tilgangi að reisa og viðhalda minnismerki um foreldra hans, hjónin Sigurlaugu Jósefsdóttur og Sigvalda Sigurgeirsson sem bjuggu á Gilsbakka í Öxarfirði, færði byggðasafninu perningagjöf úr sjóðnum þar sem ákveðið var að leggja hann niður. Vilji núverandi stjórnar sjóðsins var að því fé sem sjóðurinn byggi nú yfir, rúmlega átta milljónum króna, yrði ráðstafað í samræmi við 7.gr. skipulagsskrár sjóðsins. MMÞ þakkar kærlega fyrir gjöfina en hún mun nýtast vel til ýmissa viðhaldsverkefna á staðnum sem þörf er á að vinna. Kristín Sigríður Gunnarsdóttir og Þorsteinn Gísli Jónsson störfuðu við gestamóttöku um sumarið, en Rannveig Halldórsdóttir sinnti eftirlit með Snartarstöðum, eins og áður. Frá sýningunni “Ó-rækt” í Sauðaneshúsi.

HÉRAÐSSKJALASAFN
Guðnadóttur. Ásdís málaði verkin á Langanesi. Voru landslag og form á svæðinu einkennandi í báðum sýningum.
Listafólkið Auður Lóa Guðnadóttir og Starkaður Sigurðsson höfðu umsjón með starfseminni í Sauðaneshúsi yfir sumartímann og komu að uppsetningu listsýninganna. Var þetta þeirra 10. sumar á staðnum og tókst þeim að skapa einstakt andrúmsloft þar sem saman fóru list, safngæsla og kaffisala. Heimsóknum fjölgaði þó nokkuð milli ára, eða um 100 gesti, sem bendir til vaxandi áhuga á fallegu umhverfi gamla prestsetursins og þeim sýningum sem boðið er þar upp á. 17. júní var að venju opið hús í Sauðaneshúsi, boðið upp á kaffi og kleinur og gestir hvattir til þess að klæða sig upp í þjóðbúninga í tilefni dagsins. Egill Helgason kom í heimsókn í Sauðanes en hann tók að sér að vinna þætti um valda bæi úr húsakosti Þjóðminjasafn Íslands og var Sauðaneshús einn þeirra staða sem valdir voru til umfjöllunar.Viðmælendur Egils voru Auður Lóa og Starkaður.
MMÞ hefur eftirlit með Sauðaneshúsi allan ársins hring samkvæmt samningi við Þjóðminjasafn Íslands og sá Halldóra Sigríður Ágústsdóttir um það um veturinn eins og áður. Stofnunin sér um minniháttar viðhald á staðnum en stærri verkefni heyra undir Þjóðminjasafn. Á árinu voru ekki unnin nein stór viðhaldsverk en margt er þó komið á tíma, t.d. er þörf á að kalka húsið að utan, lagfæra þarf glugga og hurðir og eru vindskeið við það að detta af húsinu. Auður Lóa og Starkaður sáu um minni lagfæringar á árinu 2025, t.d. að kalka veggi í kjallara, skipta út fúnum staurum, ásamt lagfæringum í eldhúsi sem hafði mjög jákvæð áhrif á starfsemina. Um slátt og umhirðu lóðarinnar sáu Halldóra Sigríður Ágústsdóttir og Karl Ásberg Steinsson. Með störfum þeirra allra hélt Sauðaneshús áfram að vera snyrtilegt og hlýlegt mótttökusvæði fyrir gesti hvaðanæva að.
Frá sýningunni “Verk úr hendi” í Sauðaneshúsi.
Aðföng
Byggðasafn Þingeyinga
28/03/2025: Sveitarfáni. Nýr fáni Ljósvetninga sem Aðalgeir Halldórsson á Stórutjörnum var fenginn til að mála fyrir Laugahátíð 1974. Gefandi: Margrét Hólm Valsdóttir.
28/03/2025: Sveitarfáni. Nýr fáni Reykdæla og Laxdæla. Talinn málaður af Jóhanni Björnssyni á Húsavík árið 1932. Gefandi: Margrét Hólm Valsdóttir.
23/04/2025: Íslenskt stafrófsspil/spjöld. Notandi: Halldóra Jónsdóttir, kennari f. 31.3.1948. Gefandi: Anna Gerður Guðmundsdóttir.
03/12/2025: Gulur sjóstakkur. Gefandi: Jónína Þorgrímsdóttir. Saumað í Belgjagerðinni árið 1957 á Jónínu þá 10-11 ára.
15/01/2025: Helgi Viðar Björnsson og systkini hans gáfu safninu eftirtalda muni úr búi foreldra þeirra Snæfríðar Helgadóttur (1926-2011) og Björns Gríms Jónssonar (1922-2021): Dökkblá heimasaumuð matrósaföt, dökkbrún bréfamappa / bréfsefnismappa, hvít heimasaumuð barnasamfella, dökkblár barnajakki/frakki fóðraður með ljósfjólubláu satíni, sparikjóll, saumaður á unga stúlku, bleik spariföt, pils og vesti, kóngablár ermalaus sparikjóll, hvít spari barnaskyrta, brúnt púðaver með útsaumuðum blómum, korselett/ magabelti, leðurbelti eða ól, stakur málmhnappur/tala, tveir silfur ermahnappar, lítið innsigli/signet með stöfunum JVSD, dúkkulísur, hvít gerviblóm og græn lauf á vírspöng, e.t.v. fermingarskraut í hár, handprjónuð barna-alpahúfa úr ljósri ull.
11/01/2025: Bússur. Fyrrum eign Völundar Hermóðssonar bónda og leiðsögumanns frá Álftanesi í Aðaldal. Upphaflega lánað á sýninguna Mannlíf og náttúra árið 2010 og er enn á þeirri sýningu (2024). Gefandi: Halla Lovísa Loftsdóttir. 11/01/2025: Veiðistakkur frá miðri 20. öld. Fyrrum eign Völundar Hermóðssonar bónda og leiðsögumanns frá Álftanesi í Aðaldal. Upphaflega lánað á sýninguna Mannlíf og náttúra árið 2010 og er enn á þeirri sýningu (2024). Gefandi: Halla Lovísa Loftsdóttir.
24-01-2025: Lampi. Úr búi hjónanna Kristbjargar Sveinsdóttur og Þórhalls Sigtryggssonar. Systkinabörnin Kristbjörg Jónasdóttir og Þórdís Ósk Sigtryggsdóttir færðu safninu þennan mun. Lampinn er útskorinn af Ríkarði Jónssyni myndskera.
24-01-2025: Útskorin gestabók. Systkinabörnin Kristbjörg Jónasdóttir og Þórdís Ósk Sigtryggsdóttir færðu safninu þennan mun úr búi afa þeirra og ömmu, Þórhalls Sigtryggssonar og Kristbjargar Sveinsdóttur.
24-01-2025: Tveir matardiskar merktir K.Þ. 1882-1932. Systkinabörnin Kristbjörg Jónasdóttir og Þórdís Ósk Sigtryggsdóttir færðu safninu þennan mun úr búi afa þeirra og ömmu, Þórhalls Sigtryggssonar og Kristbjargar Sveinsdóttur.
06-03-2025: Húfa gerð af prjónastofunni Prýði á Húsavík. Gefandi: Ágúst Sigurður Óskarsson.
Áður mótteknir “Ó- munir” skráðir í Sarp 2025
10/01/2025: Áfengismælir.
10/01/2025: Lágmynd af Jóni Gauta Jónssyni, fyrsta kaupfélagsstjóra á Kópaskeri, eftir Ríkarð Jónsson.
14/01/2025: Altarisdúkur. Saumaður af dætrum Þórunnar Jóhannsdóttur og Kristjáns Kristjánssonar frá Vöglum í Fnjóskadal. Þær voru Sigríður, Kristín, Helga, Kristbjörg, Þóra og Guðrún. Þær gáfu Hálskirkju dúkinn árið 1952 til minningar um móður þeirra. Handsaumuð í dúkinn eru eftirfarandi texti: Gefinn Hálskirkju 1952 til minningar um Þórunni Jóhannsdóttur f. 19.11.1896-d.21.4.1949. Dúkurinn er vel notaður og örlítið slitinn og á honum eru nokkur göt.
22-01-2025: Skapalón/stensill úr hvítmáluðu járni. Tekið er út fyrir nöfnunum Sævar Húsavík. Sigurður Friðbjarnarson átti spjaldið, nafn á bát þeirra bræðra Sigurðar og Hreiðars Friðbjarnasona. Gefandur: Kristbjörg Sveinsdóttir og Þórhallur Sigtryggsson:
29-01-2025: Minningabók útskorin af Jóhanni Björnssyni í tilefni 80 ára afmælis Bjarna Benediktssonar athafnamanns á Húsavík, 29. september 1957. Þórdís Ósk Sigtryggsdóttir dótturdóttir Bjarna færði safninu bókina.
04-03-2025: Sjal. Eigandi: Kristjana Helga Helgadóttir (f. 06.07.27 - d. 30.07.18).
06-03-2025: Veggteppi. Útsaumað í kringum 1940 af Birnu Hernitsdóttur (f. 23.des.1917 - d. 20. apríl 2001).
06/03/2025: Filtdúkur.
26/03/2025: Þelþráður. Að öllum líkindum úr fórum Halldóru Bjarnadóttur rit- og skólastýru (f.14.101873 - d. 28.4.1981).
25/04/2025: Köflóttur poki. Að öllum líkindum úr fórum Halldóru Bjarnadóttur rit- og skólastýru (f.14.101873 - d. 28.4.1981).
Myndlistasafn Þingeyinga
Margar nýskráningar voru gerðar í safninu eftir tiltekt í safneign en þar að auki bættust við verk sem gefin voru Myndlistarsafninu á árinu: Skúlptúr. Gefandi Rósa Sigrún Jónsdóttir. Fjögur Akrýlmálverk, Kolateikning eftir Rögnu Hermannsdóttur, vatnslitamynd frá Þingvöllum eftir Veturliða Gunnarsson, olíumálverk eftir Jón Þorleifsson af Axlarhyrnu, 1943, vatnslitamynd eftir Örlyg Sigurðsson, rósastrengur – útsaumsverk, vatnslitamynd eftir óþekktan höfund frá 2002, olíumálverk eftir óþekktan höfund, nafnlaust verk eftir Rögnu Hermannsdóttur, blýantsteikning eftir Arngrím Gíslason frá 1880, vatnslitamynd eftir Rögnu Hermannsdóttur
frá 1983, fimm vatnslitamyndir eftir óþekkta höfunda, vatnslitamynd frá 1970, höfundur óþekktur, vatnslitamynd eftir Jóhann Björnsson, máluð 1934, frá Eyvík á Tjörnesi, blómakarfa - pappírsskúlptúrar, frá 2016. Eftir: Julie Laenkholm sem einnig var gefandi sama ár, olíumálverk eftir Rögnu Hermannsdóttur frá 1988, vatnslitamynd eftir Sigurð Hallmarsson frá 1989. Gefandi: Páll Sigurjónsson.
Náttúrugripasafn Þingeyinga
Engir munir voru afhentir Náttúrugripasafni Þingeyinga á árinu.
Sjóminjasafn
“Ó- munir” skráðir í Sarp 2025:
Fiskikarfa úr tágum (3 stk.), skipsklukka, skrúfublöð úr skipsvél (3 stk.), netnálar (5 stk.), slóði - öngull - önglar með gúmmísvuntu (5 stk.), fantur (notaður við að hreinsa æðardún á dúngrind. Frá 1880-1900 frá Laxamýri), sigti , skotabelti, drífholt, hákarlshnífur, önglar í kassa, merktir “O. Mustad & Son. Mustad -Kirby Sea Kroker”, handfæri (öngull og taumar til að nota á hákarlaveiðum) (4 stk.), hákarlasókn með keðju, reipi, og vaðsteini, kaðall eða lína notuð til veiða, lampi (sem líklega var notaður á skipi), skilma, námsefni frá Björgunarskólanum, námsefni fyrir almenna björgunarsveitamenn, knippi af krókum með áhnýttum taumum (2 stk), ullarfatnaður, norska sjókortið 1976 (Noregur-Ísland), kort, Grímsey-Glettinganes, Gefið út af Sjómælingum Íslands 1979, haflás, neðansjávarmyndavél til fiskileitar, sakka til handfæraveiða
Héraðsskjalasafn Þingeyinga
HÉRAÐSSKJALASAFN ÞINGEYINGA
Starfsemi og aðbúnaður Hlutverk héraðsskjalasafna er söfnun, innheimta, skráning og varanleg varðveisla skjala og annarra heimilda er tengjast héraðinu, til notkunar fyrir stjórnendur og starfsmenn sveitarfélaga og stofnanna þeirra, svo og fyrir einstaklinga. Héraðsskjalasöfnum ber einnig að annast eftirlit og ráðgjöf varðandi skjalavörslu. Þjónustuhlutverk Héraðsskjalasafns Þingeyinga verður stöðugt veigameira og mikilvægt er að tryggja að sveitarfélögin og almenningur hafi aðgang að safnkostinum. Frá árinu 2010 hefur tölfræði yfir ýmsa þætti starfseminnar verið tekin saman. Söfnun og greining á þeirri tölfræði er mikilvæg til að móta framtíðarstefnu skjalasafnsins.
Alls bárust 255 fyrirspurnir á árinu eða að meðaltali rúmlega 21 á mánuði.
Flestar fyrirspurnirnar, um 44%, bárust með tölvupósti. Í um 41% tilfella var komið á safnið og í rúmlega 9% tilfella bárust þær símleiðis. Þá bárust 3 fyrirspurnir í gegnum samfélagsmiðla eða vef. Héraðsskjalavörður fór í 11 heimsóknir á árinu. Þetta voru eftirlitsheimsóknir, heimsóknir til aðila sem voru að skila inn skjölum og óskuðu eftir leiðbeiningum um frágang skjalasafna og svo heimsóknir á önnur opinber skjalasöfn.
Skjalasafnið var opið alla virka daga kl. 10-16, en á mánudögum er einungis tekið við fyrirspurnum símleiðis eða í gegnum tölvupóst. Alls voru 97 skjalaöskjur afgreiddar á lestrarsal.
Ráðstefnur, námskeið og málþing
Fyrsti forstöðumannafundur opinberra skjalasafna fór fram 28. mars 2025. Eins og nafnið gefur til kynna er þetta fundur forstöðumanna allra héraðsskjalasafna á Íslandi ásamt Þjóðskjalasafni Íslands. Framvegis verður þessi fundur haldinn tvisvar á ári. Á fundinum voru skipaðir fjórir samstarfshópar, Frá sýningunni „Guð minn góður“ í Safnahúsinu.
þ.e. um varðveislu einkaskjalasafna, um miðlun, um skjalaskráningu og um fagráðstefnu opinberra skjalasafna.
Sjöunda vorráðstefna Þjóðskjalasafns Íslands fór fram 14. maí 2025. „Hver er hagur stjórnsýslunnar af skjalastjórn og skjalavörslu“ var yfirskrift ráðstefnunnar. Fluttir voru 5 fyrirlestrar: Skjalavarsla og hagur stjórnsýslunnar – hvað er undir, Traust skjalavarsla – forsenda upplýsingaréttar, Hirðar sögunnar, Vegferð SMH í skjalastjórnun og Traust skjalastjórn – áskoranir Landsbankans.
Héraðsskjalavörður sótti norrænu skjaladagana sem voru haldnir í Osló 16.-17. september. Norrænir skjaladagar eru einn meginvettvangur norrænna skjalasafna og samstarfs norrænna þjóðskjalasafna. Ráðstefnan byggir á langri hefð og hefur verið haldin að jafnaði þriðja hvert ár frá 1935, en þetta var í 27. skipti sem hún fór fram. Yfirskrift ráðstefnunnar var „Hlutverk skjalasafna í samfélaginu“ og skiptust málstofur í þrjú þemu sem voru Hagnýtar tækninýjungar, Öryggi skjalasafna á óvissutímum og Möguleikar skjalasafna. Meðal aðalfyrirlesara á ráðstefnunni var Guðni Th. Jóhannesson, prófessor við Háskóla Íslands, og fyrrverandi forseti Íslands. Vegna norrænu skjaladagana var engin haustráðstefna Félags héraðsskjalavarða haldin árið 2025. Aðalfundur félagsins var haldinn í tengslum við norrænu skjaladagana í Osló og fór fundurinn fram í Deichman Bjørvika bókasafninu. Heiðraði Guðni Th. Jóhannesson fundinn með nærveru sinni. Héraðsskjalavörður Þingeyinga var endurkjörinn í stjórn félagsins. Í nýrri stjórn félagsins sitja nú héraðsskjalaverðir Austur-Skaftafellssýslu, Vestmannaeyja, Ísafjarðar, Akraness og Þingeyinga.
Miðlun
Héraðsskjalasafnið fékk tvo verkefnastyrki frá Þjóðskjalasafni Íslands á árinu.
Annar styrkurinn var fyrir verkefnið „Gjörðabækur hreppa“ og var hann upp á kr. 1.000.000. Verkefnið fólst í því að ljósmynda gjörðabækurnar, skrá lýsigögn og miðla bókunum á vefnum. Alls voru 40 bækur myndaðar og skráðar eða samtals 4.703 blaðsíður.
Hinn styrkurinn var fyrir verkefnið „Sýslunefnd N-Þingeyjarsýslu“. Nam styrkurinn kr. 900.000. Um var að ræða laus skjöl nefndarinnar sem ná yfir tímabilið 1879-1918. Samtals 4.850 blaðsíður. Starfsmaður Menningarmiðstöðvar Þingeyinga, Dagný Theodórsdóttir, var fengin í bæði verkefnin og eru henni færðar þakkir fyrir vel unnið verk. Bæði þessi verkefni gengu vel. Bækurnar munu birtast á skjalavef safnsins í byrjun árs 2026. Þann 28. nóvember var sýningin „Guð minn góður“ opnuð í Myndlistarsal Safnahússins. Á sýningunni voru gamlar kirkjubækur m.a. Guðbrandsbiblía, líkræður og kirkjumunir úr Þingeyjarsýslu til sýnis. Sýningin var opin til loka febrúar 2026.
Miðstöð héraðsskjalasafna um rafræna skjalavörslu (MHR)
Stafræn þróun er eitt af stóru verkefnum sveitarfélaga á næstu árum. Slíkt verkefni er í raun samheiti yfir fjölda stórra og lítilla verkefna sem tengjast m.a. notkun á tölvutækni, gervigreind og þróun hugbúnaðar, til að bæta enn frekar þá þjónustu sem sveitarfélögin veita íbúum sínum, óháð opnunartíma eða búsetu. Héraðsskjalasafn Þingeyinga er stofnaðili að MHR.
Miðstöðin einfaldar skil á rafrænum gagnasöfnum sveitarfélaga, styður við hlítingu reglna, auðveldar ráðgjöf og samræmingu verkferla. Hlutverk miðstöðvarinnar er að stýra verkefninu og tryggja að rafræn gagnasöfn séu varðveitt og gerð aðgengileg. Stafræn vegferð héraðsskjalasafna og aðgengi að rafrænum gagnasöfnum sveitarfélaga í héraði tryggir samfellu í þjónustu á sveitarstjórnarstiginu. Samstarf héraðsskjalasafnanna þýðir að fjármunir sveitarfélaganna nýtast með skynsamlegum hætti. Sveitarfélagið Þingeyjarsveit er eina sveitarfélagið í Þingeyjarsýslu sem hefur sótt um að taka upp rafræna skjalavörslu og að fá leyfi til að skila skjölum á rafrænu formi. Umsóknin var samþykkt í apríl 2025 og fyrstu rafrænu skil verða í maí 2027.
Rannsóknir
Í febrúar komu Trausti Dagsson og Rósa Þorsteinsdóttir og rannsökuðu skjalasafn Baldvins „skálda“ Jónatanssonar. Fengu þau aðstöðu á skjalasafninu til að afrita þjóðsögusafn Baldvins. Hluti af rannsókninni var fyrirlestur sem þau héldu í félagsheimilinu Breiðumýri.
Í september hafði lektor við Háskóla Íslands samband við safnið og spurði hvort nemi við Hagnýta skjalfræði gæti unnið verkefni á skjalasafninu og hvort við gæti komið með tillögu að verkefni. Úr varð að nemandinn kom dagbókum Bárðar Sigurðsson, smiðs og ljósmyndara, yfir á stafrænt form og miðlaði þeim á skjalavef safnsins.
Aðföng
Alls bárust skjalasafninu 43 afhendingar á árinu, 6 frá skilaskyldum aðilum og 37 einkaskjalasöfn. Afhendingarnar fylltu samtals tæpa 7,3 hillumetra í skjalasafninu. Allar afhendingarnar voru skráðar á árinu og voru því engin skjöl óskráð í Héraðsskjalasafninu um áramótin. Héraðsskjalasafn Þingeyinga - aðföng 2025:
(Aðfanganúmer – Innihald – Umfang í hillumetrum eða gagnamagni - Afhendandi)
2025/1 Reykdælahreppur. Ýmis skjöl. 0,09 hm. Jón Benediktsson, Auðnum. 2025/2 Sigurður Sigurðsson, Núpum. Bréfasafn o.fl. 0,33 hm. Sigríður Sigurðardóttir. 2025/3 Halldóra Jónsdóttir. Skólabækur. 0,08 hm. Anna Gerður Guðmundsdóttir.
2025/4 Dvalarheimili aldraðra sf. Ársreikningar. 0,06 hm. Þingeyjarsveit.
2025/5 Sigurgeir Tómasson. Reykdæladeild K.Þ.. 0,96 hm. Snorri Kristjánsson.
2025/6 Vísir hf. Skipaskjöl 0,03 hm. Dagbjartur Sigtryggsson.
2025/7 Framsóknarfélag Reykdæla. Gjörðabók. 0,03 hm. Anna Karen Unnsteins.
2025/8 Theodór Gunnlaugsson. Bréfasafn o.fl. 0,08 hm. Sólveig Sigurðardóttir.
2025/9 Kristján Eiríksson. Bréfasafn. 0,03 hm. Baldur Hallgrímsson.
2025/10 UNÞ og Brynjar Halldórsson. Ársskýrslur og bréf. 0,29 hm. Brynjar Halldórsson.
2025/11 Ketill Tryggvason. Bréfasafn. 0,03 hm. Björn Pálsson.
2025/12 Grunnskólinn á Bakkafirði. Gjörðabækur o.fl. 0,49 hm. Hilma Steinarsdóttir.
2025/13 Skjöl fimm hreppa. Ýmis skjöl. 1,32 hm. Þingeyjarsveit.
2025/14 Hallbjarnarstaðaheimilið. Bréfasafn o.fl.. 0,15 hm. Eiður Árnason.
2025/15 Kvenfélagasamband N-Þingeyinga. Fundargerðir. 0,03 hm. Sigríður S. Jóhannsdóttir.
2025/16 Tækniþjónustan og Tækniþing. Gjörðabækur. 0,08 hm. Vigfús Sigurðsson.
2025/17 Heimilið á Reykjum. Ýmis skjöl. 0,03 hm. Hermann R. Herbertsson. 2025/18 Snorri Jónsson úrsmiður. Bréfasafn. 0,09 hm. Bergljót og Herdís Snorradætur.
2025/19 Mjólkursamlag K.Þ.. Myndband frá samlaginu. 348 Mb. Hlífar Karlsson og Jón Ingi.
2025/20 Aldís Pála Benediktsdóttir. Myndaalbúm. 0,06 hm. Benedikt Sigurðsson.
2025/21 Svínadalur og Þórunnarsel. Bréf og minningarskrár o.fl. 0,03 hm. Jóhann L. Jónsson.
2025/22 Efrihóla- og Sandhólaheimilin. Bréfasafn. 0,09 hm. Gunnþórunn R. Þórhallsdóttir.
2025/23 Friðjón Jónsson og Rósa Þorsteinsdóttir. Ýmis skjöl. 0,06 hm. Ásgeir Baldursson.
2025/24 Aðalbjörg V. Karlsdóttir. Bréf og ljósmyndir. 0,08 hm. Lilja Ólafsdóttir.
2025/25 Kristján Jóhannesson. Bréfasafn og dagbækur. 0,36 hm. Kristín Þ. Matthíasdóttir.
2025/26 Úlfur Indriðason. Skarðsbók. 0,06 hm. Helga Þórólfsdóttir. 2025/27 Öxarfjarðarhreppur. Gjörðabók o.fl. 0,06 hm. Sigurrós Þórarinsdóttir.
2025/28 Friðjón Jónsson og Rósa Þorsteinsdóttir. Leyfisbréf. 0,01 hm. Steinþór Þráinsson.
2025/29 Skógaheimilið Kópaskeri. Ýmis skjöl. 0,06 hm. Hugrún Óladóttir.
2025/30 Theodór Gunnlaugsson. Hljóðsnældur. 0,01 hm. Sólveig Sigurðardóttir.
2025/31 Guðmundur og Halldóra Snartarstöðum. Bréfasafn. 0,03 hm. Rannveig og Erna Ben.
2025/32 Björg Pétursdóttir. Vísur og ljóð. 0,03 hm. Björg Karlsdóttir.
2025/33 Völsungur. Leikskrár. 0,03 hm. Unnur Mjöll Hafliðadóttir.
2025/34 Kelduneshreppur. Gjörðabækur o.fl.. 1,23 hm. María Pálsdóttir.
2025/35 Björn Ingólfsson. Árbókarskjöl. 0,01 hm. Björn Ingólfsson.
2025/36 Saumastofan Sif hf. Fundargerðir. 0,01 hm. Guðmundur Sigurðsson. 2025/37 Ýmsir. Ýmis skjöl. 0,03 hm. Sigurjón Páll Ísaksson.
2025/38 ITC Fluga. Ljósmyndir o.fl. 0,06 hm. Guðrún Sigurðardóttir.
2025/39 Baldur Jónsson og Arnbjörg Aradóttir. Bréfasafn. 0,06 hm. Margrét Baldursdóttir.
2025/40 Sauðfjárræktarfélag Tjörnesinga. Skýrslur. 0,01 hm. Halldór Sigurðsson. 2025/41 Félag Þingeyskra kvenna. Ljósmyndir. 0,06 hm. Guðmunda Þórhallsdóttir.
2025/42 Völsungur. Jólablöð o.fl. 0,03 hm. Ingólfur Freysson.
2025/43 Eysteinn Sigurðsson. Árbókarskjöl. 0,38 hm. Ásta Kristín Benediktsdóttir.
Ljósmyndasafn
Þingeyinga
Starfsemi og aðbúnaður
Heildarfjöldi mynda í safninu í lok árs 2025 er talinn vera um fjögur til fimmhundruð þúsund myndir. Erfitt er að tilgreina nákvæmari tölu þar sem ljósmyndasafn Péturs Jónassonar ljósmyndara er ennþá óskráð. Ljósmyndasafn Þingeyinga er skráð í tvo aðskilda gagnagrunna, Ljósmyndasafn og Mannamyndasafn. Af þessum heildarfjölda voru í lok ársins 122.028 myndir tölvuskráðar í gagnagrunni ljósmyndasafnsins og 16.801 mynd í gagnagrunni mannamyndasafnsins. Samtals voru því 138.829 myndir tölvuskráðar í lok ársins. Á árinu náðist að skanna og skrá 11.312 myndir í ljósmyndasafnið og 342 myndir í mannamyndasafnið.
Árið 2024 bárust safninu rúmlega 7.000 ljósmyndir og filmur úr fórum Jóhannesar Sigurjónssonar. Árið 2025 bárust síðan safninu nokkur þúsund stafrænar ljósmyndir sem Jóhannes tók. Í lok árs hafa tæplega 16.000 myndir hans verið skráðar. Áætlað er að skráning ljósmyndanna klárist á árinu 2026. Á árinu var haldið áfram að skanna og skrá ljósmyndasafn Péturs Jónassonar. Í lok árs var búið að skrá um 4.000 myndir úr safni hans.
Logi Guðmundsson var tvo mánuði í hlutastarfi við að skanna ljósmyndir. Skannaði hann einkum ljósmyndir úr fórum Brynjars Halldórssonar.
Miðlun
Fimm greiningarsýningar fyrir eldri borgara voru haldnar á árinu. Þrjár á Húsavík, ein í Þingeyjarskóla og ein í Mývatnssveit. Einnig var ein greiningarsýning á myndum Jóhannesar Sigurjónssonar haldin í Safnahúsinu. Á opnunartíma byggðasafnsins á Grenjaðarstað var myndasýning á sjónvarpsskjá á Hlöðuloftinu sem sýndi gamlar myndir úr héraði. Í mars var
myndasýning á myndum sr. Arnars Friðrikssonar í Skjólbrekku í Mývatnssveit. Í desember tók ljósmyndasafnið þátt í jóladagatali Þingeyjarsveitar. Birt var ein mynd á dag úr ljósmyndasafninu á tímabilinu 1. – 24. desember. Þessi nýbreytni vakti mikla athygli og ánægju.
Kristbjörg Jónasdóttir kom nokkrum sinnum á safnið og greindi ljósmyndir í sjálfboðavinnu. Eru henni færðar þakkir fyrir það.
Aðföng
Alls bárust ljósmyndasafninu 13 afhendingar á árinu og varð safnaukinn 15.172 myndir. Þetta er áætluð tala þar sem afhendingar eru ekki frágengnar í lok árs. (Aðfanganúmer; um myndirnar; afhendingaraðili; fjöldi mynda;).
2025/1 Myndir frá Stórulaugaheimilinu. Hallfríður Jónasdóttir. 34 stk.
2025/2 Myndir úr fórum Jónínu A. Hallgrímsdóttur. Jónína Hallgrímsdóttir. 17 stk.
2025/3 Mynd úr fórum Guðrúnar Sigurðardóttur. Guðrún Sigurðardóttir. 1 stk. 2025/4 Myndir úr fórum Guðrúnar Sigurðardóttur. Sigrún Jónsdóttir. 23 stk.
2025/5 Myndir frá Þorbjörgu Theodórsdóttur og Sigurði Gunnarssyni. Sólveig Sigurðardóttir. 12 stk.
2025/6 Myndir úr fórum Járnbrár B. Jónsdóttur. Járnbrá B. Jónsdóttir. 51 stk.
2025/7 Myndir úr fórum Heiðar Sigurðardóttur. Dagbjartur Sigtryggsson. 16 stk.
2025/8 Myndir Jóhannesar Sigurjónssonar. Sigríður Þórhallsdóttir. Um 15.000 stk.
2025/9 Myndir úr fórum Guðrúnar Sigurðardóttur. Guðrún Sigurðardóttir. 18 stk. 2025/10 Myndir frá Norðurþingi. Katrín Sigurjónsdóttir. 10 stk.
2025/11 Myndir úr fórum Kristins Ármannssonar. Halldór Kr. Hjaltason. 12 stk.
2025/12 Skólaspjöld frá Framhaldsskólanum á Húsavík. Halldór J. Gíslason. 17 stk.
2025/13 Hópmyndir. Sigurður Pálsson. 3 stk.
Úr safni Péturs Jónassonar Sláturhús KÞ 1964