Skip to main content

Hátíðarútgáfa Eystrahorn 1.tbl. 2025

Page 1


18. desember 2025

Hátíðarútgáfa

EYSTRAHORN

VIÐTÖL Í BLAÐINU

RAGNAR IMSLAND 8.

Guðlaug Hestnes spjallaði við Ragnar um listina og lífið.

22.

MINNINGARSJÓÐUR

Jón Haukur segir okkur frá tilurð og tilgangi minningarsjóðs sem stofnaður var í minningu Gunnlaugs Þrastar.

28.

BJARNI MALMQUIST

Farið yfir víðan völl um uppbyggingu á Hrollaugsstöðum í Suðursveit.

31.

GUÐJÓN RAGNAR

Kynning á nýjum skólameistara FAS og áherslum í starfi.

STÚDÍÓ DRULL 34.

Þær Hanna Dís og Birna Jódís hafa komið sér upp sameiginlegri leirvinnustofu, við tókum þær tali.

40.

SNÆVARR GUÐMUNDSSON

Krakkarnir spurðu Snævarr spjörunum úr um stjörnur, gervitungl og fleira.

Útgefandi: HLS ehf.

Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Guðrún Ásdís Sturlaugsdóttir

Netfang: eystrahorn.is@gmail.com

Prófarkalestur: Guðlaug Hestnes

Umbrot: Tjörvi Óskarsson

Forsíðumynd: Þorvarður Árnason

Aðstoð við efnisöflun: Tjörvi Óskarsson, Guðrún Stefanía Vopnfjörð

Prentun: Litlaprent

ISSN 1670-4126

47.

LJÓÐAKISTAN

Sædís Harpa Stefánsdóttir segist innblásin af heimahögum og segir okkur frá útgáfu Ljóðakistunnar.

60.

HRAFNKELL KARLSSON

Albert Eymundsson spjallaði við organista Hafnarkirkju um tónlistina og lífið.

68.

HÓLMUR Á MÝRUM

Við tókum Magnús og Guðrúnu á Hólmi tali og forvitnuðumst um lífið á Mýrum.

75.

OSLÓ TIL HORNAFJARÐAR

Björg Blöndal og Þorkell Ragnar fluttu nýlega til Hafnar eftir margra ára búsetu erlendis.

FRÁ RITSTJÓRA

Eftir að Eystrahorn hætti útgáfu og enn frekar eftir að ég hætti í vinnunni sem ég hafði starfað í síðustu 10 ár hef ég ítrekað fengið fyrirspurnir um hvort ekki stæði til að hefja útgáfu blaðsins á ný. Það eru ekki nema um þrjú ár síðan við Tjörvi hættum og það stóð alls ekki til að fara aftur af stað, enda er varla hægt að segja að útgáfan hafi verið sjálfbær í þeirri mynd sem hún þá var. En það hefur ekki leynt sér að söknuðurinn eftir Eystrahorni er nánast áþreifanlegur.

Einn góðan dag í þungri umferð í Reykjavík í lok nóvember hringdi ég í Tjörva og sagði honum að ég væri að spá í að gefa út jólablað Eystrahorns. Það þýddi reyndar að hann var sjálfkrafa ráðinn í aukastarf við umbrot, og hann var til í það. Viðbrögðin hafa farið fram úr öllum væntingum. Fjöldi fólks hefur haft samband, sent hugmyndir, hvatt okkur áfram, sent jólakveðjur og stutt við útgáfuna. Fyrir það erum við afar þakklát. Þetta hefur staðfest þá tilfinningu sem við höfðum, að Eystrahorn skiptir íbúa máli.

Í kjölfarið höfum við hafið samtal um hvort Eystrahorn geti hafið reglubundna útgáfu á ný, þó í breyttri mynd en áður. Ég hef alla tíð haft mikinn áhuga á miðlun og þessi reynsla hefur kveikt áframhaldandi hugmyndir, meðal annars um uppsetningu vefsins eystrahorn.is og frekari útgáfu.

Vonandi hafið þið gaman af blaðinu. Við lögðum áherslu á að vanda efnisval og gefa okkur tíma til að setja það saman. Þegar leið á undirbúninginn bárust fleiri greinar og efni en upphaflega var gert ráð fyrir, sem staðfesti áhugann og þátttökuna í kringum útgáfuna. Af því höfum við lært fyrir framhaldið, ekki endilega að stytta blaðið heldur að það verði innbundið, jólabókin í ár?

Hafi fólk áhuga á að styðja við framtíð Eystrahorns eða fylgjast með næstu skrefum er hægt að hafa samband við mig á Facebook.

Gleðileg jól

GUÐRÚN ÁSDÍS

Ritstjóri

JÓL Í HAMBORG & Í BORGUM

Greinarhöfundur: Karl Skírnisson

Margot og Skírnir í Borgum árið 1965

Í sumar kom út bókin „Frá Hamborg að Borgum“. Þar er sagt frá viðburðaríkri ævi Margotar Gamm (1931-2007), stúlku sem upplifði hörmungar seinni heimstyrjaldarinnar í Hamborg í Þýskalandi. Rakin eru tildrög þess að henni bauðst 17 ára gamalli, að gerast húshjálp í eitt ár í Kaupfélagshúsinu á Höfn í Hornafirði. Örlögin höguðu því svo til að fljótlega kynntist hún Skírni bónda Hákonarsyni á Borgum í Nesjasveit. Hún fékk sig lausa eftir 10 mánaða vist í Kaupfélagshúsinu og fluttist til unnustans að Borgum. Þau giftust árið 1950, hún nýorðin 19 ára en hann 39 ára. Í Borgum ólu hjónin upp fimm börn

Margot óx inn í sveitalífið og íslenskt samfélag, í veruleika sem var órafjarri því sem hún hafði alist upp við og kynnst heima í Hamborg. Fljótlega kom í ljós að tilveran í dreifbýlinu reyndist erfiðari heldur en Margot hafði búist við. Hún hafði flutt á bóndabæ langt uppi í sveit þar sem þægindi voru lítil, einkum fyrstu árin. Olíukynding kom í húsið 1951, rafmagn

var leitt í bæinn 1960 og gott rennandi vatn var tengt þar í krana árið 1965.

Margot tókst á við þessar aðstæður með jákvæðni, óbilandi dugnaði og góðum aðlögunarhæfileikum. Lítill tími gafst til að velta sér upp úr fortíðinni, sem varð fljótt býsna fjarlæg og óraunveruleg. Stundum var hún þó við það að bugast á aðstæðunum, sem hún hafði fjötrað sig

í ung að árum. Dró hún ekki dul á það við ritun endurminninga sem hún skráði á síðustu árum ævinnar. Margot missti eiginmanninn 48 ára gömul. Að verða ekkja markaði skörp tímamót í lífi Margotar. Hún skipti um starfsvettvang, hætti búskap og tók að kenna handmennt og þýsku við grunnskólana í Hornafirði. Hér verður gripið niður í frásagnir Margotar af óllíku jólahaldi í Hamborg og í Hornafirði.

JÓLIN Í

KAUPFÉLAGSHÚSINU

Í endurminningum sínum rifjar Margot upp fyrstu jól sín á Íslandi. „Þau eru mér minnisstæð fyrir þær sakir að þá bjó ég til aðventukrans úr eini sem sóttur hafði verið inn á Laxárdal. Kransinn og kertin sem hann var skreyttur með vöktu mikla athygli vegna þess að á þeim tíma var ekki venjan að búa til aðventukransa á Höfn. Kransinn var stór og var honum komið fyrir í anddyri húss kaupfélagsstjóra. Margir gerðu sér ferð til okkar til að skoða kransinn og dást að honum.“ Kannski var þetta fyrsti aðventukransinn sem búinn var til á Höfn!

Myndina málaði Bjarni Guðmundsson, kaupfélagsstjóri árið 1949, sama ár og Margot Gamm réðist til starfa í Kaupfélagshúsinu á Höfn og sýnir hún landslag í Nesjasveit. Málverkið er í eigu Kolbrúnar Sigurbjargar Ingólfsdóttur, lífeinda- og sagnfræðings, en hún fæddist í Kaupfélagshúsinu á Höfn 1943! Á dögunum rak höfundur augun í þetta fallega málverk heima hjá Kolbrúnu þegar bókin um lífshlaup Margotar var borin þar í hús. Margir ólíkir þræðir sameinast í Kaupfélagshúsinu á Höfn!

Þegar aðventan gekk í garð 1949 hafði Margot þegar kynnst Skírni bónda í Borgum.

Líkast til var það hann sem útvegaði einihríslurnar í kransinn. Skírnir þekkti jú hverja þúfu á Laxárdal og vissi hvar finna mátti eini fyrir ungu, huggulegu stúlkuna í húsi kaupfélagsstjóra.

JÓLAHALD Í HAMBORG

Þegar ég var lítil stelpa í Hamborg, áður en stríðið hófst, var keypt jólatré sem náði alveg upp undir loft í stofunni heima. Bróðir minn og ég fengum samt ekki að sjá jólatréð fyrr en á aðfangadagskvöld.

Foreldrar okkar skreyttu tréð - en svo var stofunni læst.

Við fengum pappadisk með kökum og hnetum á, einnig marzipani og súkkulaðihringjum. Ekki þekktist að pakka gjöfum inn í pappír heldur voru gjafirnar lagðar undir tréð. Á aðfangadagskvöld máttum við ekki snerta eða skoða neitt og ekki smakka á neinu góðgæti inni í stofu fyrr en við vorum búin að fara með jólakvæði. Kvæðið þurftum við að kunna utan að!

Þegar leið á stríðsárin máttum við alltaf eiga von á loftárásum. Eitt árið byrjuðu loftárásirnar klukkan 12 á jólanótt og urðum við að hraða okkur, undir skerandi sírenuvæli, niður í loftvarnabyrgi þar sem héldum svo til í marga klukkutíma í kulda og myrkri.

Eftir að stríðinu lauk gekk ég í kirkjukór og þá fór ég auðvitað á jólum í kirkjuna til að syngja, bæði klukkan 6 á aðfangadagskvöld og svo aftur á miðnætti“.

JÓLAHALD Í BORGUM

Jólahaldið í Borgum var með gjörólíku sniði. Þar hafði ekki verið til siðs að gefa jólagjafir nema þá helst einhverjar heimaunnar prjónaðar eða saumaðar flíkur og lítið var um jólaskraut.

En ég fékk senda

jólapakka frá Þýskalandi fyrir hver jól. Stærsti pakkinn kom frá mömmu. Hún sendi okkur alls konar

jólasælgæti, sem fyllti búðir í Þýskalandi löngu fyrir jólahátíðina.

Og krakkarnir fengu pakka með leikföngum. Gjöfunum var pakkað í jólapappír. Utan um pakkana vafði móðir mín gömlum og nýjum flíkum, einnig handklæðum og sængurverum og tróð svo öllu af kostgæfni niður í stóran poka úr þykku lérefti sem hún saumaði síðan vandlega fyrir með sterku garni. Að endingu reið hún allþétt net úr seglgarni utan um allt saman. Tollarar opnuðu aldrei svona pakka.

Í endurminningum sínum ber Margot saman gjörólíkan jólamat á heimilunum. Einnig klukkan hvað jólamaturinn var borðaður. Í Hamborg hófst máltíðin stundvíslega klukkan sex en á fyrstu árum Margotar í Borgum réði gangur í tilhleypingum úti í fjárhúsunum mestu um það hvenær hægt yrði að hefja borðhaldið og opna pakkana. Stundum ekki fyrr en vel var liðið á kvöld þegar bóndinn var kominn inn. En fljótlega fékk Margot því ráðið að eiginmaðurinn lagði tímanlegar af stað með hrútana í fjárhúsin þannig að innanhúss gætu jólin hafist á skaplegum tíma þannig að eftirvæntingarfullir krakkar fengju opnað pakkana - sem flestir höfðu borist frá Þýskalandi - áður en þeir sofnuðu ofan í diskana.

Óskum ættingjum og vinum gleðilegra

jóla og farsæls nýs árs. Kveðja,

Arna Ósk og Þórhallur Malmquist

Við óskum vinum og

kunningjum okkar bestu

jóla og nýárskveðjur.

Hrafnhildur og Björn Ingi

Óskum vinum og ættingjum gleðilegra

jóla með þökk fyrir árið sem er að líða.

Eiríkur og Ella Seljavöllum

Við sendum okkar bestu kveðjur með ósk um gleðilega hátíð og farsæld á komandi ári, þökkum liðin ár

Úlfar og Unnur

Kæru ættingjar og vinir.

Bestu óskir um gleðileg jól, gott og heillaríkt komandi ár. Þakka allt liðið.

Kærar kveðjur, Lóa í Hjarðarnesi

Kæru ættingar og vinir

Gleðileg jól og farsælt nýtt ár

J ólakveðjur

Gréta Stína og Sverrir

Gleðilega hátíð

Verið velkomin í Hoffell á nýju ári

JÓLAKVEÐJA FRÁ HOFFELLI

Fyrir hönd okkar hjá Bláa Lóninu og ferðaþjónustunni við Hoffell, vil ég senda Hornfirðingum allra bestu jólakveðjur og þakka fyrir ánægjulegt samstarf á árinu.

Við stóðum í nokkrum framkvæmdum við Hoffell á liðnu ári. Opnuðum við meðal annars nýjan baðstað við Hoffellsbæinn. Hafa viðtökur verið einstaklega góðar og sérstaklega meðal heimamanna.

Við hjá Bláa Lóninu vinnum nú að undirbúningi baðstaðar við Hoffellslón. Ákveðið var að fara með verkefnið í umhverfismat, en það opnar skipulagsferlið, eykur á gagnsæi og fleiri geta komið með hugmyndir eða athugasemdir.

Í fyrstu hugmyndum okkar var ætlunin að byggja gistingu og baðstað við Hoffellslón. Eftir blendin viðbrögð á íbúafundi á síðasta ári, höfum við ákveðið að vera ekki með gistingu við lónið, heldur færa gistinguna yfir á skógræktarsvæðið austan megin í Hoffellsfjalli.

Við munum leggja uppbyggðan heilsársveg inn að Hoffellslóni og þar með mun aðgengi allra að lóninu batna mikið. Baðstaðurinn sem reistur verður norðan megin í jökulöldunni, mun ekki vera sýnilegur þeim sem aka inn dalinn. Baðstaðurinn mun einnig hýsa kaffihús og jöklasýningu sem byggð verður á safni Þrúðmars og Ingibjargar að Hoffelli. Þá höfum við óskað eftir samstarfi við þjóðgarðinn um móttöku gesta; skilti, lagningu göngustíga og aðra miðlun upplýsinga, rétt við jaðar þjóðgarðsins. Þannig eiga sem flestir að geta notið heimsóknar, hvort sem gestir eru komnir til að viðra hundinn sinn, fara á skauta, fá sér kaffibolla eða fara í bað.

Síðla árs 2026 stefnum við að því að sýna Hornfirðingum útlit byggingarinnar, en markmið okkar er að skapa mannvirki

sem fellur vel að náttúrunni og sýni metnað í hönnun og umhverfisþáttum. Einungis er gert ráð fyrir að raska um 2% jökulöldunnar við Hoffell við framkvæmdina og að hluta er það svæði nú þegar raskað.

Stefnt er að því að 50-70 manns muni starfa við baðstaðinn en við horfum til þess að taka þátt í íbúðauppbyggingu á Höfn, svo tryggja megi húsnæði fyrir starfsmennina. Þannig viljum við vera virkir þátttakendur í samfélaginu enda er Höfn bæjarfélag í mikilli sókn og spennandi tímar eru framundan. Við hlökkum til að vera hluti af þeirri vegferð.

Með góðum kveðjum um ánægjulega jólahátíð og farsæld á nýju ári.

Magnús Orri Schram

Bláa Lóninu – Ferðaþjónustan að Hoffelli

RAGNAR IMSLAND LISTIN & LÍFIÐ

Greinarhöfundur: Guðlaug Hestnes

Listamaðurinn Ragnar Imsland fer ekki mikinn, hógværðin og róleg nærvera er hans aðalsmerki, og það sama gegnir um eiginkonu hans, Júlíu. Ég hef lengi gengið með þann draum að kynna þau hjón, því alltaf bætast jú nýir hópar í skörðin! Tók því hús á þeim hjónum svona í svartasta skammdeginu, vitandi að ljós og hlýja myndi mæta mér.

Jú rétt, mér mætti hlýja í notalegu húsi þeirra hjóna, Ragnars og Júlíu, í húsi sem örðugt er að lýsa öðruvísi en stórkostlegu listaverki.

Við eldhúsborðið var gott að spjalla, og kóngur hússins rölti á milli okkar og spjallaði við hjónin en lét gestinn vera, mjálmaði þó einu sinni. Ragnar Imsland er fæddur á Höskuldsstöðum á Djúpavogi á því herrans ári 1936, en er upprunalega Norðfirðingur. Faðir hans reri frá Norðfirði en móðirin beið í foreldrahúsum á Djúpavogi eftir að fæða. Lífsbaráttan var oft erfið á bernskuárum Ragnars, berklar herjuðu á og allir aðdrættir um allt ólíkir og eru í dag. Menn björguðu sér um nánast allt sem þeir þurftu og finnst mér

ekki ólíklegt að snemma hafi komið í ljós smíðahæfileikar Ragnars, því þeir eru svo ekki er um villst aldeilis stórkostlegir. Hann sagðist hafa verið um sex ára aldurinn þegar hann fór með 3ja mastra skútu, Stellu Maríu frá Norðfirði til Seyðisfjarðar og man mest og best eftir hvað hún var falleg, öll í mahoni! Lars afi Ragnars var listasmiður og eins Kristján Imsland faðir Ragnars, og Höskuldur móðurafi hans einnig, þannig að þetta með eplið og eikina á vel við í þessu samhengi.

EKKI EFNI Í BÓNDA

Fjölskylda Ragnars flutti hingað á Höfn árið 1944 og hefst þá nýr kafli í lífi okkar manns. Ragnar vann ýmsa vinnu eins og

títt var um unga menn í lífsbaráttunni, vann mikið við smíðar og keyrslu. Lars bróðir Ragnars átti vörubíl sem Ragnar vann á og fór víða. Meðal annars norður á Langanes. Í einni vinnuferðinni aðstoðaði hann unga stúlku með bilaðan bíl, og bingó, þar var konuefnið komið. Júlía er frá Ytra Lóni á Langanesi og hafa þau gengið sömu götuna yfir 70 ár og eiga þau 4 börn. Ragnar segir sposkur að það hafi verið reynt að gera hann að bónda en lítið hefði hafst upp úr því. Ungu hjónin flytja svo hingað á Höfn og má segja að þau séu nokkurns konar frumbyggjar staðarins. Ragnar og Júlía byggðu sér myndarlegt hús í Miðtúni og búa þar enn. Vinna, uppbygging, barnauppeldi og allt

Ragnar og Júlía á heimili sínu

sem þurfti var gert, húsið er nánast alfarið þeirra verk. Ragnar vann lengi á Stokksnesi en Júlía sá um börn og bú. Seinna rak hún svo verslun, sá um happdrætti Das og var umboðsmaður Sjóvár, ásamt því að vera fréttaritari hjá DV.

Þegar Ragnar hætti á Stokksnesi varð hann slökkviliðsstjóri og eldvarnareftirlitsmaður sýslunnar og endaði sína vinnustund þar. Ásamt allri vinnu smíðaði hann og skapaði ótrúleg listaverk. Að vera kominn á þennan aldur og geta afrekað það sem hann gerir er ótrúlegt. Sama hvert litið er í þessu stóra húsi eru listaverk, og hvergi sést svo mikið sem rykarða. Júlía sér um það! Tvisvar á ári tekur hún sig til og ber eðalolíu á alla smíðamuni, og getur það hvorki verið auðvelt né fljótlegt.

FÓSTURJARÐARTROG

Ragnar hefur smíðað ótal hluti og gefið, ekki kemur til mála að selja! Hann hefur smíðað og gefið í 6 kirkjur svokölluð fósturjarðartrog. Það er nýyrði eftir Ragnar, og hefur ratað í Árnastofnun. Fósturjarðartrog er moldarker sem notað er til moldunar við útfarir. Ellefu ræðupúlt eru til eftir Ragnar, og 5 bátar prýða heimilið sem væri hægt að sjósetja strax í dag. Aðspurður finnst Ragnari þó mest til koma bátnum Hvanney SF 51, en hann stendur sína pligt úti í Skinney – Þinganesi. Klukkur af öllum stærðum og gerðum eiga sinn stað í húsinu ásamt öllu sem vart er hægt að koma í orð. Fyrir nú utan að Ragnar er jafnvígur á tré og járn. Fyrir leikmann eins og mig skil ég ekki hvernig einn maður getur gert allt þetta, og ég veit að aðrir listasmiðir gapa af undrun við að heimsækja þau hjón. Einn vinur Ragnars hvatti hann mjög fyrir margt löngu að smíða eitthvað sem enginn hefði smíðað og

hringdi af og til þessu til áréttingar. Svar Ragnars var að það tæki tímann sinn að skerpa sögina því gripurinn átti að verða fínn. Þá datt uppúr listamanninum eftirfarandi vísa:

Gæti ég leyst það verkefnið

sem yrði mitt handverks undur.

Þá væri það helst að föndra við að saga sandkorn í sundur.

Sem sagt: Maðurinn getur líka sett saman vísur. Það var yndislegt að sitja og spjalla við þessa tvo öðlinga sem láta ekki deigan síga þrátt fyrir háan aldur. Megi listin og góð heilsa fylgja þeim hjónum Ragnari og Júlíu Imsland áfram sem hingað til.

Þeir félagarnir kvöddu undiritaða með virktum.

Handverk þeirra hjóna. Báturinn Júlía SF 30 ásamt prjónlesi Júlíu

AÐ HLAUPA Í SKARÐIÐ

OG ALLT HITT!

Þegar ég frétti af jólablaði Eystrahorns fór ég að hugsa um að skrifa kannski smá pistil um eitthvað náttúrutengt og upplifanir mínar af nægtarborði útvistar í okkar einstaka bakgarði.

Í einni af viðrun minni fyrir stuttu hvar ég nýtti mér gömlu þjóðleiðina yfir Almannaskarð til að ná í súrefni fyrir mig og viðra labradorinn minn í leiðinni, þá flaug í kollinn á mér að kannski myndu fleiri tengja við Almannaskarð, fremur en tilburði mína við útilegu í frosti undir stjörnuhimni í lok nóvember eða næturgistingu í fjallasal undir björtum sumarhimni. Allavega, í þessari klassísku gönguferð um skarðið þá fór ég virkilega að hugsa um hvað þetta væri í raun frábær staður til útivistar og ætti skilið góða þakklætiskveðju. Vissulega er efnistaka á svæðinu sem veldur miklu lýti á umhverfinu en það er efni í annan pistil og ég kýs að taka ekki með í samhengi þessarar skrifa.

Í bók Rannveigar Einarsdóttur, “Gönguleiðir við Hornafjörð” er m.a. að finna þessar upplýsingar um Almannaskarð:

24. júní 2005”. Þessa nýja notkun á skarðinu - sem útivistarsvæði - átti því 20 ára afmæli í sumar!

Leiðin um Almannaskarð hefur verið aðal leiðin milli Nesja og Lóns frá ómunatíð, enda mun styttri en aðrar leiðir.

Í upphafi var þarna aðeins mjó gata, troðin af fótum manna og hesta. Fyrsta bílferðin yfir Almannaskarð var farin mánudaginn 18. nóvember 1929. Almannaskarðsgöng voru formleg opnuð

Skarðið, eins og ég hef verið alin upp síðustu 12 ár að kalla það, er ég þegar ég hugsa það meira, svona fullkomið fyrir þolþjálfun. Í röskri göngu tekur það innan við klukkutíma að ganga Hafnarmegin frá, upp í skarðið, niður Lónsmegin og til baka - hversu oft hef ég ekki skroppið í skarðið til að ná þessari fullkomnu viðrun? Svo eru alls konar útfærslur til. Það er hægt að fara fleiri ferðir, eða fara bara upp í skarð og strax niður aftur. Við hlaupararnir þurfum stundum að taka brekkuspretti og eins og það getur verið kostur að þurfa ekki að glíma við brekkur í daglegum göngu- eða hjólaferðum á Höfn, þá er viss ókostur að hafa ekki nógu margar “brekkuspretta” brekkur í bænum! Þá er nú gott að hafa eitt Almannaskarð! Ég hef ekki reynt mikið við að hjóla upp skarðið en ég er viss um að það er hið mesta fjör og argasta puð. Ég reyndi síðasta vetur að fjallaskíða í skarðinu - það var frekar mikið misheppnuð tilraun - en eldhugar hér áður fyrr skilst mér að hafi náð að koma upp toglyftu Lónsmegin í einhvern tíma. Kosturinn við skarðið er líka að það er frekar aðgengilegt allt árið um kring. Í minningunni eru ekki mörg skiptin þar sem reynt hefur á að vera með brodda þar yfir veturinn, þó vissulega beri að skoða og meta aðstæður hverju sinni. Það sem helst ber kannski að varast er sjálfstæða veðrakerfið sem býr í skarðinu - það er eiginlega aldrei

að vita hvaða veðra er von þar og eins gott að vera viðbúinn hressum hviðum úr öllum áttum! Svo má náttúrulega ekki gleyma að minnast á útsýnið frá syðstu brún Almannaskarðs sem á góðum degi af mörgum talið hið fegursta á landinu.

Efalaust deila mörg með mér reynslu af útivist í skarðinu - þau sem hafa ekki prófað hvet ég til að fara - og svo vona ég að við sameinumst um að sýna þessu svæði þakklæti fyrir þau lífsgæði sem það hefur fært okkur og getur fært áfram. Helga Árnadóttir, hlaupastelpa og fjallakona.

Sonur Helgu á góðum degi í skarðinu.

Sendi mínar bestu óskir um gleðileg jól og gæfuríkt komandi ár. Þakka fyrir viðskiptin á árinu.

K Æ R U A U S T U R - S K A F T F E L L I N G A R

VIÐ ÓSKUM YKKUR GLEÐILEGRAR HÁTÍÐAR

OG FARSÆLDAR Á KOMANDI ÁRI MEÐ

ÞÖKK FYRIR ÁRIÐ SEM ER AÐ LÍÐA

Signý Ingvadóttir

Fótaaðgerðastofa

H o r n a f j a r ð a r

Við óskum Hornfirðingum öllum, sem og lesendum blaðsins, gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári

Bestu óskir um gleðileg jól og heilsuríkt nýtt ár

Takk fyrir samfylgdina á árinu.

Hlökkum til að sjá ykkur á nýju ári.

Kær kveðja, Hjálmar og Einar, sjúkraþjálfarar

Þórbergssetur

Óskum Hornfirðingum gleðilegra jóla og þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða

ECIT á Íslandi ehf. Bókhald, laun og ráðgjöf

Vilt þú verða landvörður?

Náttúruverndarstofnun auglýsir

landvarðanámskeið 2026

Þátttaka í námskeiðinu veitir réttindi til að starfa sem landvörður.

Skráning hefst 2. janúar 2026 kl. 10 á vef

Náttúruverndarstofnunar.

Námskeiðið er frá 29. janúar til 1. mars.

SAMTÖK SUNNLENSKRA SVEITARFÉLAGA

Landvarðanámskeið → náttúra.is/vernd/landvardanamskeid

Óskar Sunnlendingum og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári

Óskar Sunnlendingum og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári

Árnanes óskar viðskiptavinum og

Hornfirðingum gleðilegra jóla og farsæls nýs árs. Kærar þakkir fyrir einstaklega vel heppnað kvöld í Vetrargleðinni.

HVAÐ ER FAB LAB HORNAFJÖRÐUR?

Fab Lab Hornafjörður hefur verið starfandi í Vöruhúsinu frá árinu 2013 og er í dag vel búin tækni- og nýsköpunarsmiðja fyrir íbúa, nemendur og fyrirtæki á svæðinu. Markmiðið með smiðjunni er að skapa rými þar sem fólk getur lært nýja tækni, unnið að hugmyndum sínum og fengið aðstoð við hönnun og framleiðslu.

Notendahópurinn er fjölbreyttur og samanstendur af einstaklingum á öllum aldri sem hafa áhuga á sköpun, tækni og handverki. Sumir koma til að læra grunnatriði, eins og að nota laserskera eða 3D-prentara, á meðan aðrir vinna að stærri persónulegum verkefnum eða frumgerðavinnu. Margir nýta einnig aðstöðuna einfaldlega til að kynnast nýjum verkfærum og þeim tæknilausnum sem eru í boði hér.

Það er áberandi hversu ólík verkefnin eru sem verða til í smiðjunni, og það er einmitt hluti af því sem gerir starfið svona skemmtilegt.

Yfir árið eru haldin fjölbreytt námskeið fyrir byrjendur og lengra komna, auk reglulegra viðburða og opins húss. Slíkir

viðburðir skapa góð tækifæri til að koma saman, læra hvert af öðru og prófa nýjar aðferðir og verkfæri.

Fastur liður í starfsemi smiðjunnar er opnu tímarnir á þriðjudögum og fimmtudögum frá kl. 15:00–19:00.

Þá getur hver sem er komið í heimsókn og fengið leiðbeiningar, hjálp eða unnið að eigin verkefnum. Þessir tímar hafa reynst afar mikilvægir og tryggja að smiðjan sé aðgengileg fyrir alla íbúa, óháð reynslu.

Fab Lab er þannig bæði tækjasafn og samfélagsrými þar sem fólk fær að skapa á sínum forsendum. Hvort sem fólk vill prófa eitthvað nýtt, fullgera hugmynd eða kynnast tækninni, þá er smiðjan opin og velkomin fyrir alla.

Hægt er að fylgjast með viðburðum og því sem er að gerast á Facebook-síðu smiðjunnar, Vöruhúsið / Fab Lab. Sindri Örn Elvarsson, forstöðumaður Vöruhúss og Fab Lab smiðju Hornafjarðar

JÓLAHEIMSÓKN Á HÖFN 1900

Greinarhöfundur: Gísli Sverrir Árnason

Í haust kom út fjögurra binda

ritverk, Saga Eymundar og

Halldóru í Dilksnesi, eftir Gísla

Sverri Árnason. Þórbergssetur

á Hala er útgefandi verksins ásamt Bókaútgáfunni Sæmundi. Í

eftirfarandi kafla úr 1. bindi verksins segir frá jólaheimsókn hjónanna í Dilksnesi í Kaupmannshúsið á Höfn.

Á annan í jólum aldamótaárið fór Dilksnesfjölskyldan í jólaboð út á Höfn og í skírnarveislu að Hafnarnesi 27. desember. Lovísa og Björn voru búsett í Hoffell með sonum sínum, Eymundi tveggja ára, Jóni á fyrsta ári og fóstursyninum Eymundi Lúther sjö ára. Foreldrar hennar í Dilksnesi skrifuðu henni bréf milli hátíðanna og sögðu frá jólahaldinu hjá sér:

Dilksnesi29.desember1900.

Gleðilegt nýár góða Lóa mín.Nú var glatt á jólunum, ég var hálfgert að kvíða fyrir því, að allt yrði svo dauft og dapurt, „en sofandi gefur Guð sínum“. Á afmælið mitt vorum við að tala um hvað falleg væru húsin á Höfn, svo ég orti tvær vísur, en kvöldið áður gleymdi Björn hnífnum sínum þar, svo hann beiddi Höða að skreppa úteftir. Ég gerði mig þá einbeittan, og sendi vísurnar.

Vísurnar sem Eymundur orti sem kveðju til Ottos Tuliniusar kaupmanns og fjölskyldu hans kallaði hann „Fjórðu jólin á Höfn“ á hófust á þessu erindi:

Eymundur Jónsson og Halldóra Stefánsdóttir. Lituð eftirgerð myndar Nicoline Weywadt. Myndin er stór og hékk lengst af í stofunni í Dilksnesi, síðar mörg ár í byggðasafninu í Gömlubúð.

börnunum boðið úteftir einhverntíman á jólunum. Á annan gat ég svo komið mömmu þinni á stað með mér, svo fóru Stebbi, Höði og Siggi líka.

Nú er hafin Höfn úr kafi húsin fríð hjá bláum víði ein þau reisti er orku treysti ötul mund og framgjörn lundin.

Grunna trausta á gömlum naustum og glæsta sali byggði halur.

Nú er hafin Höfn úr kafi húsin fríð hjá bláum víði

Þegar Höskuldur sneri aftur frá Höfn með hníf bróður síns kom hann með óvænt svar eða viðbrögð kaupmannshjónanna við vinarkveðjum Eymundar til þeirra:

Svo kemur Höði aftur með heldur fallegt bréf, vinakort og lukkuósk á bakinu, koníaksflösku. Og þar með er okkur og öllum

Dilksneshjónunum og þremur yngstu sonum þeirra var vel tekið í Kaupmannshúsinu. Otto Tulinius og Valgerður Friðriksdóttir kona hans áttu tvær ungar dætur, Ragnheiði fjögurra ára og Guðrúnu tveggja ára. Meðal vinnuhjúa á heimilinu var Stefán Eymundsson, stóri Stebbi, sem þá var 35 ára. Hann átti eftir að fylgja kaupmannshjónunum til Akureyrar á næsta ári. Eymundur lýsti nú þeirri miklu upplifun sem þau urðu aðnjótandi í jólaheimsókninni á Höfn:

Viðtökum og veitingum lýsi ég ekki, það yrði of langt bréf. Ég get þess eins, að það var líkara því að við værum börnin þeirra en vandalausir fátæklingar. Eftir máltíð um kvöldið var jólatréð skreytt á ný og á því kveikt yfir 40 ljós. Drengjunum gefnar jólagjafir. Stebba „Lýsing Íslands“ í bandi, Höð hnífur og Sigga spil og hljóðpípa. Svo var spilað á orgel og sungið, eftir það voru leiknir málsháttaleikir. Þeir eru svo: Fyrst er fólkinu skipt í tvennt, svo fer hvor flokkur í sína stofu svo hvorugur sér annan. Svo velur maður

sér málshátt, til dæmis „Ástin hylur lýti“. Þar eru látin vera hjón, konan er mesta ómynd og vitleysingur en maðurinn sér engin lýti á henni fyrir ofboði ástarinnar. Þegar búið er að leika þetta á einhver af hinum flokkunum að geta upp á réttum málshætti. Svo kemur til hins flokksins alveg á sömu leið og svo koll af kolli. Sé vel leikið er þetta besta skemmtun.

„Nú hættir pabbi þinn en mamma tekur við að segja frá“ stóð næst í bréfinu til Lovísu. Það var komið að frásögn Halldóru af leikjum í jólaboðinu. Þessi skemmtilega heimsókn hlaut að vera forboði einhvers, sagði hún.

Góða Lóa mín! Hvort heldur þú að reki hvalur eða ég sé feig? Á annan í jólum fór ég í heimboð út á Höfn og kom ekki heim fyrr en á þriðja, í myrkri. Það hefur víst

aldrei verið reynt til að skemmta mér eins vel og þar var gert, enda var mér komið til að leika mér, svo að ég hef víst aldrei gert það eins síðan ég var barn. Hvað heldur þú að þú hefðir sagt hefðir þú séð mig við hliðina á frúnni og tveimur öðrum knjákrjúpandi með krosslagðar hendur í mjallhvítum nunnubúning. Svo kom blindfullur dóni og gerði þann óskunda, að æða ofan á okkur, svo við í dauðans ofboði flúðum og undir borðið til þess að bjarga okkur úr klónum á honum. Þetta var máltækið „Illur veftur í vaðmáli“.

Leikirnir á kaupmannsheimilinu stóðu til klukkan þrjú um nóttina. Daginn eftir var búið að sækja hest heim í Dilksnes handa Halldóru en feðgarnir voru gangandi. Þau fóru þó ekki beina leið heim heldur að Hafnarnesi þar sem þeim hafði verið boðið í skírnarveislu. Drengurinn sem skírður var þennan dag fékk nafnið Sigurjón og var sonur Bergs Jónssonar vinnumanns og Pálínu Einarsdóttur vinnukonu frá Árnanesi, bróðurdóttur Halldóru. Þau héldu til Vesturheims árið 1902 og tóku þar upp eftirnafnið Hornfjörð.

Áður en Lovísa var kvödd var svolítil frétt heiman frá Dilksnesi: „Nú er kvígan ykkar borin, hún er í fimm mörkum, jöfnum mjöltum. Afi lætur kálfinn lifa, fyrir nafna sinn, það er víst fyrsta bónin sem hann

hefur beðið pabba sinn um.“ Afi og amma söknuðu drengjanna en heima í Dilksnesi voru þó tveir dóttursynir þeirra, Stefán Guðmundur sjö ára og Ragnar Einar á fyrsta ár. Kveðjan til Lovísu var einlæg og þess var ekki langt að bíða að þau Björn kæmu aftur að Dilksnesi og fjölskyldan sameinaðist á ný.

Kysstu nú manninn þinn og alla litlu drengina fyrir okkur gömlu hjúin. Algóður Guð annist þig og alla þína. Þess óska af hjarta þínir elskandi foreldrar, Eymundur og Halldóra.

Eftirskrift. Berðu Jóni og Halldóru og börnum þeirra kæra kveðju og hjartans lukkuósk á komandi ári og öld. E. H.St.

Otto Tulinius kaupmaður og Valgerður Friðriksdóttir kona Ottos
Lovísa Eymundsdóttir og Björn Jónsson

BJÖRGUNARFÉLAGIÐ NÝR HÖFN 3

Í apríl 2021 var farið að tala í alvöru um að endurnýja Ford F-350 sem Björgunarfélag Hornafjarðar hafði átt í nærri 20 ár. Sá bíll var þá að nálgast fertugsaldurinn og komið að talsverðu viðhaldi á gripinn.

Settur var saman hópur innan sveitarinnar með það að markmiði að kanna og ákveða hvaða möguleikar væru í boði, en aðeins nýr bíll kom til greina sem hægt væri að nota í hin ýmsu verkefni sem falla til í starfi sveitarinnar. Kom hópurinn sér saman um að nýr Ford F-350 væri ágætis kostur og fljótlega var pantaður þannig bíll frá Bandaríkjunum í gegn um IB bílainnflutning á Selfossi. Þetta var seint í covid-19 faraldrinum, illa gekk að fá þann bíl sem við óskuðum eftir og loks fengust þau svör að þessi bíll yrði ekki framleiddur fyrir Evrópumarkað. Verkefnið lagðist því í dvala þar til snemma árs 2023 þegar fannst ónotaður eftirársbíll í Kanada sem hentaði í verkefnið og þá var ekki aftur snúið.

Ákveðið var að bílnum yrði breytt sem mest í heimabyggð, af nokkrum félögum úr björgunarsveitinni. Byrjað var að útvega hluti sem þyrfti til breytingarinnar eins og hægt var, td. notaðar Mercedes-Benz Unimog hásingar frá Bretlandi, felgur frá Hollandi og dekk frá Bandaríkjunum.

Þann 22. mars 2023 kom svo bíllinn til landsins og fljótlega var hafist handa við breytingar, Friðrik Jónas sá um aukarafkerfi fyrir ljós og fjarskiptabúnað eins og hægt var meðan bíllinn var óhækkaður og í þægilegri vinnuhæð. Þá um sumarið tók greinarhöfundur við keflinu og hófst þá vinna við undirvagn, hásingaskipti, smíði á nýju fjöðrunarkerfi og gera pláss fyrir dekkin, stærstu löglegu jeppadekk í heiminum eða 58 tommu. Til að nægilegt pláss fengist fyrir framdekkin var brugðið á það ráð að lengja bretti og húdd um 25 cm. Unnið var nokkuð stíft í þessu verkefni fram að áramótum en þá þurfti yfirsmiðurinn að fara í önnur verkefni og bíllinn því keyrður undir eigin vélarafli í geymslu. Flest allt í undirvagni tilbúið en eftir var að klára frágang á ýmsum smærri hlutum. Sumarið 2024 var svo hafist handa á nýjan leik og stefnan tekin

á að koma bílnum á skrá um haustið og í kjölfarið fara með hann á sýninguna Björgun sem Landsbjörg heldur annað hvert ár, en hún var um miðjan október. Þetta gekk allt upp, bíllinn fór í skoðun í september og í framhaldinu keyrðum við hann til Reykjavíkur og gekk jómfrúarferðin vel í alla staði. Þegar sýningin í Hörpu var afstaðin héldum við heim með gripinn, sem hafði fengið talsverða athygli og þótti almennt vel heppnaður. Bíllinn hefur farið í nokkur útköll og allt gengið mjög vel, en aðeins ein ferð hefur þó verið farin á jökulinn, þegar nokkrir félagar skelltu sér á Grímsfjall fyrr á árinu. Færið var mjög krefjandi og gekk ferðin afar hægt í byrjun en allt hafðist þetta þó að lokum og komið var í skála undir morgun. Það verður gaman að prufa hann í annarskonar færi því jökullinn er svo sannarlega margbreytilegur og aðstæður þar geta verið allskonar.

Þessi bíll er búinn helstu fjarskipta- og staðsetningatækjum, VHF talstöð, Tetra talstöð og þremur GPS tækjum. Að auki höfum við verið að prófa okkur áfram með Starlink gervihnattabúnað. Við þökkum Símanum kærlega fyrir að hafa samband

og útvega okkur GSM símasendi sem við erum með í bílnum til prufu og getum því búið til símasamband þar sem áður hefur verið sambandslaust. Þessi búnaður hefur ekki verið prófaður á bíl áður og útskýrir hversu mörg loftnet eru á tækinu.

Smíði sem þessi verður ekki framkvæmd á einni nóttu og þarfnast ýmissar kunnáttu og þekkingar, Björgunarfélag Hornafjarðar hefur stóran hóp fólks sem allir hafa kunnáttu og þekkingu á sínu sviði en þeir félagar sem að breytingum á þessari bifreið stóðu voru þeir Ásgeir Ingi Óskarsson yfirsmiður, Friðrik Jónas Friðriksson rafvirki og Sigurður Gunnar Jónsson bifvélavirki. Að auki þökkum við Einari Birni Einarssyni kærlega fyrir að lána okkur verkstæði á meðan breytingum stóð.

Ásgeir Ingi Óskarsson, vélvirki og áhugamaður um breytta jeppa

Gleðileg jól Gleðileg jól

og farsælt komandi nýtt ár

Þökkum liðið ár

Hjalti Egilsson og fjölskylda Seljavöllum

Óskum öllum Hornfirðingum og viðskiptavinum, gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.

Takk fyrir liðnar stundir á árinu sem er að líða.

Bestu kveðjur Jóhann Hilmar, ökukennari

Mjólkurstöðin óskar viðskiptavinum og Hornfirðingum gleðilegra jóla og farsæls nýs árs. Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða.

Jólabækur frá Sæmundi

Sæmundur

KÆRU HORNFIRÐINGAR NÆR OG FJÆR

Þar sem margir Hornfirðingar hafa fylgst með Ægi Þór okkar í gegnum árin og stutt okkur dyggilega fannst mér tímabært að færa ykkur fréttir af því hvernig gengur hjá honum. Eins og eflaust margir vita höfum við mæðginin verið lítið á Hornafirði síðustu þrjú ár en ástæðan er sú að kraftaverkið gerðist loksins. Ægir komst að í klínískri tilraun í Bandaríkjunum. Þar sem engar meðferðir eru í boði fyrir Ægi á Íslandi var þetta einstakt tækifæri sem ekki var hægt að neita og gaf okkur miklar vonir.

Ég get því miður lítið farið út í smáatriði þar sem okkur er ekki heimilt að ræða tilraunina eða meðferðina sjálfa. Meðferðin virðist þó hægja á sjúkdómnum, þó hún stöðvi hann ekki. Við Ægir höfum verið mestmegnis í Atlanta og hefur okkur liðið vel þar og allt gengur vel hjá honum. Restin af fjölskyldunni er enn á Heiðarbrautinni en Sævar og eldri systkini Ægis reyna að heimsækja okkur eins oft og

í þetta ævintýri, kvaddi vini sína og öryggi heimahaganna. Að mörgu hefur þurft að huga að, svo sem landvistarleyfi, húsnæði og að aðlagast nýjum aðstæðum. Með góðri hjálp hefur þetta allt gengið. Ægi líður afskaplega vel hér í hitanum sem gerir honum mjög gott.

Við Ægir komum heim um jólin og verður dásamlegt að hitta alla, fara í sundlaugina og njóta alls þess sem við

Við hjá Beinlínis viljum þakka fyrir ánægjuleg viðskipti á árinu sem er að líða. Hlökkum til að byggja áfram upp sterk tengsl og skapa ný tækifæri á komandi ári.

höfum saknað. Svo höldum við ótrauð áfram inn í nýtt ár með vonina í farteskinu.

Að lokum vil ég senda innilegar jóla- og kærleikskveðjur fyrir hönd fjölskyldunnar og þakka af hjarta fyrir þann hlýhug og stuðning sem við höfum fengið. Hann er okkur ómetanlegur.

Gleðilega hátíð og takk fyrir samstarfið á árinu sem er að líða

Hulda Björk
Ægir Þór á góðri stund í Atlanta

SNJÓFLÓÐ Í VÍÐIDAL 1849

Víðidalur í Stafafellsfjöllum hafði staðið auður um árabil þegar Þorsteinn Hinriksson og Ólöf Nikulásdóttir, ásamt börnum sínum, fluttu þangað seint að vori árið 1847. Ólöf hafði þá misst fyrri maka og börn og átt erfitt uppdráttar vegna þess að þau áttu hvorki jörð né fast heimili

Á Melrakkanesi í Álftafirði höfðu þau eignast saman tvo syni, Sigurð og Þorstein, og með þeim var einnig dóttir Ólafar, Halldóra Sigurðardóttir, úr fyrra hjónabandi. Þar sem enga jörð var að fá við sjávarsíðuna reyndist eyðibýlið Víðidalur vera sá eini kostur sem stóð þeim opinn.

Í Víðidal settust þau að á Grund, bænum sem síðar varð vettvangur hörmulegra náttúruhamfara. Frásagnir eru fáar um dvöl fjölskyldunnar í Víðidal árin 1847 og 1848, en verslunarúttektir sýna að þrotabúskapur og fátækt fylgdu þeim. Vegalengdir voru miklar, vetur harðir og samskipti við láglendið strjál.

Á þrettánda degi jóla, 6. janúar 1849 féll snjóflóð á bæinn. Samkvæmt munnmælum og annálum hafði þá safnast upp mikill snjór í hlíðunum ofan bæjarins, snjór sem féll í logni og lá laus ofan á jörðinni. Þegar hlánaði varð snjófargið óstöðugt. Þorsteinn og synir hans tveir voru í baðstofunni það kvöld. Sumir segja að Ólöf og Halldóra hafi verið að mjólka eða að skammta í búrinu. Allt í einu heyrðist hávær dynur. Snjóflóðið reið yfir bæinn og gróf baðstofuna, Þorstein og drengina. Talið er að þeir hafi farist samstundis.

Önnur hús hrundu að hluta, en Ólöf og Halldóra lifðu af. Rústirnar héldu þeim skjóli, þó að Ólöf hafi orðið illa meidd. Heimildir greina á um það, ýmist að hún hafi verið síðubrotið, rifbeinsbrotin eða

handleggsbrotin, en ljóst er að hún hafði slasast og orðið veikburða.

Ólöf og Halldóra voru nú einar í Víðidal, gátu ekki kveikt upp eld og voru hjálpalausar og án tryggrar leiðar til byggða. Þær lifðu á súrmjólk og hangikjöti sem þær fundu í rústunum. Hve lengi þær dvöldu í rústunum er óvíst, sumar heimildir nefna hálfan mánuð, aðrar telja tímann lengri.

Að lokum, að talið er í byrjun þorra, tóku þær ákvörðun sem fáir hefðu þorað. Þær lögðu af stað til byggða yfir fjallskarð þar sem leiðir eru varla færar nema að björtu sumri. Þær fóru frá Grund í Víðidal um Sandhóla, yfir í Tungubót og Hofsbót í Álftafirði og síðan yfir Axlir inn að Stóragili, þar sem þær sáu ekki lengur fram vegna ófærðar. Daginn eftir héldu þær áfram niður Innri-Bót og um Snið út í Ytri-Bót á Hofsdal og þaðan yfir Buga. Þar, við stakan stein á norðurbrún Múladals, hrundu þær niður í örmögnuðu ástandi, bæði kaldar og svangar.

Á Hvannavöllum var vinnumaður að nafni Jón Jónsson, frá Skálafelli í Suðursveit. Þegar hann stóð yfir fé út í Hólum þennan dag sá hann hreyfingu við steininn, sem ber við loft úr Hólunum. Hann gerði sér ekki grein fyrir hvað þetta var, enda fjarlægð um 400 metrar og farið að rökkva en hreyfingin vakti athygli hans. Þegar Jón kom heim um kvöldið sagði hann heimafólkinu frá því sem hann taldi sig hafa séð. Guðrún, húsfreyjan á bænum

bað Jón að fara þegar í stað að gá að þeim því að hana hefði dreymt undarlega drauma um fólkið í Víðidal undanfarnar nætur.

Jón fór strax og fann mæðgurnar við steininn, kaldar, örmagna og nær dauða. Hann flutti þær heim á Hvannavelli, þar sem þær dvöldu í nokkra daga til að jafna sig. Morguninn eftir er sagt að veður hafi aftur orðið ófært og hefði björgun þeirra því varla getað beðið mikið lengur.

Síðar var mönnum safnað til ferðar í Víðidal og lík Þorsteins og drengjanna grafin upp. Séra Þórarinn á Hofi sá um greftrunina, en á þessum tíma var vinnumaður hjá honum sem einnig hét Jón Jónsson, frá Lambleiksstöðum á Mýrum. Séra Þórarinn treysti sér ekki til að fara í Víðidal þar sem útförin skyldi fara fram og fékk vinnumann sinn til að sjá um hana og syngja yfir þeim látnu. Eftir þetta fékk Jón vinnumaður viðurnefnið „Jón söngur“.

Ólöf Nikulásdóttir og Halldóra Sigurðardóttir lifðu hörmungarnar af og héldu áfram lífi sínu, þótt missirinn hafi væntanlega fylgt þeim alla tíð. Snjóflóðið í Víðidal situr eftir í sögunni sem vitnisburður um ógnarafl náttúrunnar og þrek þeirra sem lifðu af.

Frásögn þessi byggir á texta Þorsteins Geirssonar í Gamla hugljúfa sveit II, þar sem stuðst er við munnmæli, annála og eldri heimildir. Guðrún Ásdís og Vaka Sif tóku saman.

Vaka Sif Tjörvadóttir, vatnslitamynd af Víðidal

SÓKNARNEFND HAFNARSÓKNAR OG STARFSFÓLK KIRKJUNNAR

ÓSKA SKAFTFELLINGUM OG ÖÐRUM

LANDSMÖNNUM GLEÐILEGRA JÓLA OG FARSÆLDAR Á NÝJU ÁRI.

GÓÐA JÓLASKAPIÐ

Það er þetta með jólaskapið – hvernig komumst við í það? Við eigum öll okkar leiðir.

Sjálfur hlusta ég á jólalög, eins og margir aðrir, og leyfi þeim að draga mig aftur til barnæskunnar þegar eftirvæntingin var svo mikil að maður átti erfitt með að standa kyrr.

Oft er sagt að jólin séu hátíð barnanna. Þá rifjum við upp söguna um lítið barn sem fæðist í fjárhúsi – Guð sem kemur í heiminn sem hjálparvana barn. Hann þarfnast kærleika og verndar líkt og öll börn sem fæðast. Með því tengir Guð sig öllum mönnum órjúfanlegum böndum og skapar tengsl sem lýsa upp allan heim. Við stöndum hlið við hlið – við og Guð – og lýsum heiminn upp, rétt eins og Valdimar og Bríet syngja svo fallega:

“Jólin eru sáttmáli um frið sem við gerum allan heiminn við hlið við hlið… Jólin eru okkar, og allt sem fylgir þeim, lýsa upp allan heim.”

En jólin eru ekki aðeins hátíð barnanna. Þau eru hátíð okkar allra. Sagan af fæðingu Jesú, vonarljósinu, er saga vonar – vonar sem á erindi til hvers og eins. Þessa von þurfum við að rifja upp, tileinka okkur og leyfa henni að lifa í hjörtum okkar, hvort sem við erum ung eða orðin fullorðin.

Höfum því hugann opinn fyrir birtunni sem jólin færa. Leyfum ljósinu að lýsa upp líf okkar – nú og alla daga. Finna jólaskapið, gleðjast og eiga gleðileg jól!

Séra Gunnar Stígur Reynisson

Um leið og við sóknarnefndarfólk og starfsfólk Hafnarsóknar fögnum þessari hátíðarútgáfu Eystrahorns finnst okkur viðeigandi að nota tækifærið og birta hugvekju og kveðjur í tilefni af jólahátíðinni. Jafnframt viljum við koma til skila ýmsum gagnlegum upplýsingum um almenna starfsemi innan kirkjunnar og reksturinn

FJÖLBREYTT OG LÍFLEGT STARF Í KIRKJUNNI

Líflegt starf er í innan Hafnarsóknar. Messur hafa verið fjölbreyttar og skemmtilegar, þar á meðal bleikar- og grænar messur, prjóna- og kaffihúsamessur.

Sunnudagaskólinn hefur notið mikilla vinsælda þar sem er sungið, hlustað á sögur, föndrað og margt fleira. Æskulýðsstarf hefur verið virkjað á ný og hefur verið starf fyrir 6 – 10 ára börn þar sem farið er í allskonar leiki, glens og gaman ásamt því að fræða börnin um hið góða sem kristin trú hefur að bjóða. Fermingarfræðslan er fastur liður yfir veturinn þar sem væntanleg fermingarbörn eru frædd um gildi kristinnar trúar og hvernig trúin getið hjálpað börnunum þegar haldið er af stað út í lífið. Skírnir eru reglulegar um allt sveitarfélagið og það sama má segja um giftingar og er alltaf ánægjulegt þegar fólk kemur saman í Guðs nafni til að sýna kærleika til barna sinna eða hvors annars. Aldrei er samhugurinn meiri en þegar kemur að útförum. Við andlát og útfarir stöndum við þéttara saman og styðjum hvert annað – sýnum umhyggju og kærleika. En í þessum grunnstoðum er einmitt að finna kjarnann í kristinni trú, samkennd, kærleikur –að standa saman, að sýna hvort öðru kærleika bæði á björtum dögum og dimmum.

Margt fleira fer fram í kirkjunni m.a. fastir liðir eins og AAfundir, Vinir í bata (12 sporin), foreldramorgnar með ungbörnin, kóræfingar Samkórsins og Karlakórsins, og kirkjan er eftirsótt til hvers kyns tónleikahalds.

SÓKNARGJÖLDIN MIKILVÆG

Það gætir oft misskilning í umræðu um sóknargjöldin, bæði um tilurð þeirra og hvernig þeim er ráðstafað. Vegna mikilvægi sóknargjaldanna fyrir rekstur og alla starfsemi í kirkjunum er full ástæða að gera nokkra grein fyrir málinu. Á heimasíðu Þjóðkirkjunnar (https://kirkjan.is/skraning-i-thjodkirkjuna) eru upplýsingar um sóknargjöldin og skráningar, þar stendur:

„Þjóðskrá annast utanumhald um trúfélagsskráningar á Íslandi og því fer skráning í Þjóðkirkjuna fram á vefsíðunni Island.is með rafrænum skilríkjum. Þú þarft að hafa netfang og símanúmer til að staðfesta skráninguna. Til að skrá barn 15 ára eða yngra er þörf á samþykki forráðamanna.

Hið opinbera innheimtir sóknargjöld fyrir hvern skráðan einstakling í Þjóðkirkjunni. Sóknargjöldin renna óskipt til þeirrar sóknar sem þú tilheyrir og fjármagnar fjölbreytt starf þinnar hverfiskirkju. Með þessum gjöldum styrkir þú safnaðarstarf kirkjunnar, þar á meðal barna- og æskulýðsstarf, eldriborgarastarf, tónlistarstarf, rekstur kirkjukóra, laun tónlistarfólks og viðhald kirkjubygginga. Sóknargjöldin tryggja þannig að kirkjan geti veitt þjónustu, stuðning og samveru fyrir þig og alla í þínu hverfi. Sóknargjöld eru uppistaða tekna kirknanna í landinu.“

Sóknargjöldin eru ákveðin með lögum og í kjölfar hrunsins 2008 fór svo að sóknargjöldin voru tekin úr sambandi við launavísitölu og ákveðin „handvirkt“ með tímabundnum ákvæðum. Nú 17 árum síðar lifir þessi arfleifð hrunsins áfram og samkvæmt samkomulagi sem gert var á sínum tíma eiga sóknargjöldin í dag að vera 2.765kr. á hvern greiðanda en eru aðeins 1.133- kr., það munar um minna. Í Hafnarsókn eru skráðir 1176 einstaklingar og af þeim eru 970 gjaldendur 16 ára og eldri. Tekjur af sóknargjöldum eru svipaðar núna og fyrir hrun, um 20 árum síðar.

Helstu kostnaðarliðirnir sem sóknargjöldin standa undir hjá okkur eru m.a.:

• Vegna orgelleikara og kórstjórnanda

• Ýmiss konar félagsstarf

• Barna- og fermingarstarf

• Viðhald og rekstri Hafnarkirkju og Stafafellskirkju

Það má árétta að umsjón með kirkjunum og rekstri er unnin af sjálfboðaliðum.

Á NÆSTA ÁRI ERU 60 ÁR FRÁ VÍGSLU HAFNARKIRKJU ÁRIÐ 1966

Fyrir 10 árum héldum við veglega upp á 50 ára afmælið á ýmsan hátt. Að þessu sinni verður tímamótanna minnst á ýmsan hátt en ekki haft eins mikið við og fyrir 10 árum. Við gerum ráð fyrir að halda hátíðarmessu á nýju ári til að fagna vígslu afmælis kirkjunnar. Nýlega skiptum við um eldhúsinnréttingu (var frá upphafi árið 1966) og í tilefni af afmælinu stefnum við líka á að bólstra stólana í safnaðarheimilinu og skipta um gluggatjöld.

Ungir feður skemmta sér vel á jólaballi
Búninga sunnudagaskóli
Fjölmennt var á jólaballinu
Prjónamessa

MINNINGARSJÓÐUR GUNNLAUGS ÞRASTAR

Greinarhöfundur: Tjörvi Óskarsson

Eystrahorn ákvað að taka Jón Hauk Hauksson að tali og spyrja hann nánar út í minningarsjóð sem hann stofnaði til minningar um Gunnlaug Þröst hálfbróður sinn.

Ég hitti Jón Hauk á heimili hans á Smárabrautinni, en stofan þar þjónar jafnframt sem æfingahúsnæði Spaghettíbandsins. Þar er trommusett og lítið hljóðkerfi út í horni, fjölmargir gítarar og nokkrir bassar hanga á veggnum ásamt allskyns ásláttarhljóðfærum. Tvö hljómborð og nokkrir gítar- og bassamagnarar eru við vegginn. Allt er tengt, það þarf bara að grípa í hljóðfæri og byrja. Þegar mest hefur verið hafa allt að 13 manns æft saman í stofunni.

“Gunnlaugur Þröstur var 13 árum eldri en ég en við vorum samt nánir. Þegar ég var yngri þá heimsótti ég hann á hverjum degi í hádeginu og jafnvel á kvöldin líka, hann hafði byggt sitt hús fyrir aftan okkar og ég þurfti bara að skjótast út um þvottahúsdyrnar og inn í þvottahúsið hjá honum, svona var þetta alveg þangað til ég fór á sjóinn og þá hittumst við ekki jafnt oft. En því miður þá nýtti ég mér það ekki að læra að spila á hljóðfæri hjá honum.”

Gunnlaugur Þröstur lést árið 2016 eftir baráttu við krabbamein. Hann var menntaður húsasmíðameistari og vann sem slíkur framan af. Tónlistarferill hans var fjölbreyttur og hófst snemma, hann var til að mynda farinn að koma fram með danshljómsveitum um 16 ára aldur. Hann starfaði einnig sem tónlistarkennari í Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu í yfir 40 ár.

Tónlistarskólinn og

nemendurnir þar skiptu

hann rosalega miklu máli og mig langaði að minnast Þrastar og halda minningu hans á lofti.

Hann lést árið 2016, en árið áður höfðum við spilað saman um verslunarmannahelgi í sumarbústaðnum í Lóni og ætluðum að endurtaka leikinn að ári. En nokkrum dögum fyrir verslunarmannahelgi þá var hann að klára lyfjameðferð og gat því ekki spilað því hann var orðinn svo dofinn í höndunum og svo deyr hann rúmri viku eftir verslunarmannahelgina.“

Í framhaldi verður Spaghettíbandið til fyrir hálfgerða slysni, um haustið hringir Þorkell Ragnar gítarleikari í Jón Hauk og spyr hvort hann vilji koma og hitta nokkra stráka í Vöruhúsinu og spila saman. Jón hélt að þetta væri grín þar sem hann hafði ekki snert trommusettið síðan á unglingsárunum og ætlaði aldrei að byrja aftur.

Nafnið á hljómsveitinni er ekki úr lausu lofti gripið en spaghettí var í miklu uppáhaldi hjá þeim bræðrum.

„Þetta var allt Þorkeli að kenna að Spaghettíbandið varð til en þarna var farið að brjótast um í mér hvernig ég gæti haldið minningu Þrastar á lofti en það tók um tvö ár að koma því í framkvæmd. Ég fékk hugmynd um að halda minningartónleika í Pakkhúsinu þar sem ég gæti eldað spaghettí og selt inn og stofnað sjóð.“

Spaghettíbandið hefur haldið tónleika á milli jóla og nýárs undanfarin ár. Tónleikarnir eru þó meira djamm þar sem tónlistarfólk og hljómsveitir koma og spila saman frekar en eiginlegir tónleikar og allur aðgangseyrir rennur óskiptur í

Jón Haukur í stofunni/æfingarhúsnæðinu

Hljómsveitin Pan kvintett. Í aftari röð er Sigurður Hannesson, Gunnlaugur Þröstur og Albert Eymundsson. Í fremri röð Örn Arnarson og Grétar Sigurðsson. sjóðinn, sem er þó ekki formlegur sjóður eins og er.

„Flækjustigið við að stofna formlegan sjóð er mikið. Það verður að vera stjórn með einum ættingja, endurskoðandi, það þarf að stofna kennitölu og þess háttar. Þannig að þetta er meira eins og minningabók eins og er. Ég fer með innkomuna til Jóa [Jóhanns Morávek skólastjóra tónskólans, innskot blaðamanns], og hann leggur þetta inn á bankabók.“

Markmið sjóðsins er að styðja við ungt og efnilegt tónlistarfólk í Hornafirði og geta þau leitað til sjóðsins ef t.d þau stefna á framhaldsnám, eru að taka stigspróf eða eitthvað annað tengt tónlist. Sjóðurinn er að verða að því sem Jón Haukur sá fyrir sér í upphafi og styrkti sjóðurinn stelpurnar í hljómsveitinni Fókus þegar þær fóru og tóku þátt í músíktilraunum, en eins og Hornfirðingum er kunnugt sigruðu þær í keppninni árið 2023.

„Ef ungt tónlistarfólk vill sækja í sjóðinn þá þarf bara að tala við mig svo fer ég til Jóa í tónskólanum og við ræðum málin og tökum ákvörðun í sameiningu.“

Ég þakka Jóni Hauki fyrir spjallið og hvet íbúa til að mæta á Hafið þann 28. desember næstkomandi þar sem Spagettíbandið verður með sitt árlega tónlistar djamm þar sem allur aðgangseyrir rennur í sjóðinn.

TÓNLISTAR JAM

Allur aðgangseyrir rennur í styrktarsjóð í vörslu Tónskólans. Vonumst til að sjá sem flesta spilara og söngfugla

AÐGANGSEYRIR 2500 KR. EKKI TEKIÐ VIÐ KORTUM Á HAFINU

HVENÆR: KLUKKAN: SPAGHETTÍBANDIÐ VERÐUR MEÐ JAM Á HAFINU 28. DESEMBER

28/12

20:30

FERÐAFÉLAG AUSTUR-SKAFTFELLINGA

Yfirlit af starfi ferðafélags AusturSkaftafellssýslu á árinu sem er að líða

AFMÆLISFERÐ

Ferðafélag Austur-Skaftfellinga er 45 ára og af því tilefni var boðið upp á afmælisferð til Skotlands í vor, þar sem Inga og Magga hjá Skotgöngu sáu um leiðsögn. Þar var ferðast um á rútu og komið við á ýmsum áhugaverðum stöðum til að skoða kastala og fleiri sögustaði, teknar gönguferðir og einnig farið í heimsókn á hreindýrabúgarð og til bónda sem sýndi okkur hvernig hann þjálfar hundana sína til að smala sauðfé. Bóndinn sýndi okkur líka hvernig hann dáleiddi eina kindina með því að sveifla flautu fyrir framan hana, hún sat grafkyrr þangað til hann vakti hana aftur – nokkrir úr hópnum keyptu af honum flautur en engum sögum fer af því hvernig þeim gekk að dáleiða! Það var almenn ánægja með ferðina, það var virkilega gaman að njóta dagskrárinnar í góðum félagsskap. Sumir í hópnum höfðu tekið þátt í gönguferðum allt frá því að félagið var stofnað, en auðvitað voru

sumir líka að koma með í fyrsta skipti: það er alltaf gaman þegar fólk mætir aftur og aftur í göngu, en það er líka gaman að sjá ný andlit.

MÚLASKÁLI

Ferðafélag A-Sk. á og rekur Múlaskála í Lónsöræfum, á svæði sem er stórbrotið og litadýrð fjallanna heilla flesta sem þangað koma. Í júlí er félagið með leiðsögn í fjögurra daga gönguferðum út frá Múlaskála og bóka þarf tímanlega í þá ferð, en á öðrum tímum er hægt að bóka gistingu í skálanum hjá formanni félagsins. Margir gönguhópar og aðrir vinahópar hafa nýtt sér það, nokkur fyrirtæki hafa tekið að sér akstur inn að Illakambi og þaðan þarf að ganga þrjá kílómetra að skálanum með vistir og annan farangur. Árlega fer félagið í tvær vinnuferðir inn að skála: í apríl/maí er farið með gas fyrir eldavél og sturtur, og vistir fyrir hópa sem hafa pantað gistingu um sumarið. Um miðjan júní er farið aftur og þá er farið í viðhaldsverkefni af ýmsum toga og allt þrifið hátt og lágt: skálinn, skálavarðarhúsið og þjónustuhúsið. Þau sem vilja koma í Lónsöræfi en treysta sér ekki í margra daga göngu geta skráð

sig hjá formanni félagsins og tekið þátt í vinnuferðunum, margar hendur vinna létt verk.

GÖNGUDAGSKRÁ

Ferðanefndin setur upp göngudagskrá fyrir árið og þar er horft til þess að dreifa göngunum um áhugaverða staði sem víðast um sveitarfélagið. Ávallt er leitast við að setja dagskrána þannig upp að allir geti fundið eitthvað við sitt hæfi: það kemur fram í auglýsingunum hvort um er að ræða fjallgöngu eða léttari leiðir og alltaf er hægt að hafa samband við þann sem sér um að leiða gönguna til að fá nánari upplýsingar. Félagið hefur tekið þátt í átaksverkefninu Gulum september þar sem boðið er upp á gönguferðir til að efla andlega heilsu, en auðvitað á það við um gönguferðirnar allan ársins hring. Hæfileg hreyfing er góð fyrir heilsuna, og það eflir geðheilsuna að ganga í góðum félagsskap. Ferðanefndin tekur vel á móti öllum sem vilja mæta í göngurnar og við hvetjum ykkur öll til að prófa að taka þátt.

Ferðafélag Austur-Skaftfellinga

Mynd úr Lónsöræfum

Golfklúbbur Hornafjarðar óskar félagsmönnum sínum, styrktaraðilum og öðrum velunnurum gleðilegrar jólahátíðar og farsældar á nýju ári

Óskum viðskiptavinum okkar, starfsfólki og Hornfirðingum öllum gleðilegrar hátíðar og þökkum samskiptin á árinu.

Ferðafélag Austur-Skaftfellinga

sendir félagsmönnum sínum, göngufólki og landsmönnum öllum hugheilar jóla og nýárskveðjur, með þakklæti fyrir ánægjulegar samverustundir og gott samstarf á árinu sem er að líða. Hlökkum til að hitta ykkur á nýju ári.

Ferðaáætlun 2026

Dagsetning Ferð Erfiðleikastig

Janúar/febrúar

Skautað í góðu veðri, nánar auglýs síðar

28. febrúar Hrómundarey í Álftafirði - jeppaferð

11. apríl Mýrarslóð, Haukafell að Skálafelli

31. maí Ganga og helgistund í Einholti á Mýrum Júní Vinnuferð í Kollumúla, nánar auglýst síðar

2. - 5. júlí Sæludagar í Lónsöræfum

15. ágúst Hnappavellir í Öræfum

September

Lýðheilsugöngur og gulur september, nánar auglýst síðar

Geymið auglýsinguna og fygist með á Fésbókarsíðu félagsins

ÞAR SEM HJARTAÐ SLÆR

OG HUGMYNDIR BLÓMSTRA

HÖFNIN

Ég var 8 ára þegar ég fyllti á netanálar í Garðeyjarskúrnum í Miklagarði, í hinum enda Miklagarðs beitti ég og stokkaði upp um 12 ára aldurinn, 14 ára gekk ég út úr humarvinnslunni í Borgey yfir í Silfurnesið sem var á humartrolli og óskaði eftir plássi. Þá hófst sjómannsferillinn sem spann yfir 12 ár og reglulega landaði ég á bryggjunni á Höfn. Tvítug opnaði ég fyrstu „verslunina“ í gámi á bryggjunni á Humarhátíð, síðar koma ég að rekstri verslunar í Kartöfluhúsinu, skapaði í Miklagarði og margt fleira á þessu svæði. Það er stórkostlegt hvernig Hornfirðingar hafa byggt upp þetta svæði með heimsklassa veitingastöðum, sýninga- og vinnurýmum og umbreytingar á gamla sláturhúsinu sem var farið að líta út eins og rassgatið á bænum yfir í það sem ég upplifi nú sem „hjarta bæjarins“ eru magnaðar og mikilvægar.

DOKK

Í janúar sl. tók ég við lyklunum af einu af rýmunum í Heppu með veitingastaði, vinnustofur, verslanir og fleira á aðra hönd og flutningsfyrirtæki, viðgerðarþjónustur, verkstæði, matvælaframleiðslu og fiskvinnslu á hinn bóginn. Í hjarta bæjarins stóð ég í fallegu 150 m2 rými með hjartað í buxunum og hugsaði „hvað í ósköpunum ætla ég að gera hér!“ Ég vissi að þetta yrði samsuða af öllu sem mér finnst skemmtilegast að gera og finnst vanta hér en vissi ekki

Ævintýraverur HVAÐ

nákvæmlega hvernig. Og þannig hófst mikil tilraunastarfsemi sem stendur enn yfir. Í mars opnaði ég Dokk- skapandi rými fyrir skapandi fólk, þar sem hægt er að búa til vörur, selja þær, kenna öðrum og halda viðburði td. námskeið, kósýkvöld, hópefli og fleira sem hefur vaxið vel síðustu mánuði. Í upphafi var ég ein en nú eru listakonurnar Eyrún Axels, Lísa Þorsteins og kertagerðarkonan Kaja allar með vinnustofur í Dokk. Við rekum verslunina saman og höldum viðburði og námskeið saman og í sitthvoru lagi. Auk þess nýta sér margir vinnuborð, efnivið, tæki og tól sem í boði eru fyrir gesti og í barnarýminu geta börn skapað og leikið.

HVAÐ

Í markþjálfanámi árið 2019 kviknaði hugmyndin af 5 hvetjandi ævintýraverum. Ég skrifaði sögur um þær og hélt skapandi hönnunar- og listnámskeið. Í fyrra hélt ég svo í samstarfi við Leikfélag Hornafjarðar í fyrsta sinn leiklistarnámskeið út frá

sögunni. Ég vonaðist eftir svona 8 þátttakendum en fékk til mín 16 börn með þvílíka hæfileika og krafta að eftir fyrstu æfinguna sá ég að við þyrftum að setja upp alvöru sýningu. Sem við gerðum svo á Hafinu fyrir akkúrat einu ári síðan. Síðan þá hef ég verið með reglulegar leiklistaræfingar og sett upp fleiri leikverk, og þátttakendur á námskeiðum á þessari önn voru 43 á aldrinum 7-13 ára.

SAMFÉLAGIÐ

Hugmyndir einar og sér stækka ekki frekar en fræ ef mold, vatn og loft vantar. Fólk, fyrirtæki og verkefni þurfa stað til að eiga stökkunarmöguleika. Dokk er jarðvegurinn sem hugmyndir mínar þurfa og vökvunin kemur svo í gegnum allt sem styður og hvetur td. fólkið sem segir „engar áhyggjur“ og „finnum lausnir“ þegar maður er sjálfur að farast úr stressi og sér ekki fram úr verkefnunum. Vökvun er fjárhagslegur stuðningur og styrkir til þess að geta fjármagnað allt í upphafi, stækkað og bætt við. Vökvun er skapandi fólk og frumkvöðlar sem ryðja brautina, toga mann áfram, tengja við tuðið í manni og er til í að taka þátt í verkefnum. Vökvun eru viðskiptavinir og velunnarar sem nýta sér þjónustuna, mæta á viðburði og tala hlutina upp. Vökvun er samfélag sem hefur hugsjónir, hugrekki og framkvæmdargetu til að segja „upp, upp og áfram“. Allt þetta hef ég fengið á Hornafirði, fyrir það þakka ég innilega og hlakka mikið til nýrra verkefna, hugmynda og framkvæmda á nýju ári.

Ágúst Margrét Arnardóttir

Verslunin DOKK

Við óskum Hornfirðingum öllum, ættingjum og vinum, nær og fjær, gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.

Með kærri kveðju, Sigurlaug og Jón Kristinn, Brunnhóli

Við óskum viðskiptavinum og Hornfirðingum gleðilegra jóla og farsæls nýs árs. Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða.

Gróðrarstöðin Dilksnes

VIRKIR DAGAR Í DES. KL. 12-18

HELGIN 13. OG 14. DES. KL. 12-16

HELGIN 20. OG 21. DES. KL. 12-18

23. DES.ÞORLÁKSMESSA KL. 12-22

24.-28. DES. LOKAÐ

29. OG 30. DES. KL. 12-16

31. DES.- 5. JAN. LOKAÐ

FRÁ 6. JAN. OPIÐ:

Óska nemendum mínum undanfarinna

ára og öllum Hornfirðingum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári með

þökk fyrir það liðna.

Dúddi ökukennari

OPNUNARTÍMI Í DESEMBER OG JANÚAR:

20. DESEMBER: 14-16 MATARMARKAÐUR 20-24 UNGMENNAHITTINGUR Í SAMSTARFI VIÐ HEIMAHÖFN

NÁMSKEIÐ OG VIÐBURÐIR Í BOÐI: MYNDLIST OG MYNSTURGERÐ BUDDU- OG TÖSKUGERÐ

SKART OG SKRAUTGERÐ ILMKERTAGERÐ

MARKÞJÁLFUN

SJÁLFSRÆKT

KÓSÝKVÖLD OG MARKAÐIR

60 DAGA ÁSKORUN Í ÁTT AÐ

AUKINNI ÁNÆGJU OG ÁRANGRI KYNNING 8. JANÚAR KL. 20

VIRKA DAGA 12-16 OG LAUGARDAGA KL 14-16

BARNALAND MEÐ SKAPANDI EFNIVIÐ OG FÖNDRI

ER ALLTAF OPIÐ Á SAMA TÍMA OG VERSLUNIN

Dokk Iceland á Facebook og Instagram

Verslun, vinnustofur, viðburðir og fleira. Heppuvegur 6, 780 Höfn

SJÁLFBOÐALIÐAR BYGGJA

FRJÁLSÍÞRÓTTAVÖLL

Í SUÐURSVEIT

Greinarhöfundur: Guðrún Ásdís Sturlaugsdóttir

Í Suðursveit er unnið að áhugaverðu verkefni þessi misseri, byggingu fullbúins frjálsíþróttavallar við Hrollaugsstaði. Verkefnið er unnið að stórum hluta í sjálfboðavinnu með þátttöku íbúa og velunnara úr sveitinni og nágrenni. Markmiðið er ekki aðeins að bæta aðstöðu til íþróttaiðkunar, heldur einnig að styrkja samfélagið með sameiginlegu átaki. Bjarni Malmquist Jónsson, formaður Ungmennafélagsins Vísis, greinir frá aðdraganda verkefnisins og framkvæmd þess í viðtali við Eystrahorn.

Uppbygging nýja frjálsíþróttavallarins er framhald af langri sögu íþróttastarfs á svæðinu. Grunnur að íþróttasvæðinu við Hrollaugsstaði var lagður á árunum 1993–1994 þegar Ungmennafélagið Vísir byggði þar stóran grasvöll, en fyrir það var aðstaðan að mestu náttúrulegur völlur á Staðarárbökkum. Með nýja vellinum má því segja að verið sé að ljúka gömlum draumi sem hófst fyrir rúmum þrjátíu árum.

Ákvörðunin um að ráðast í verkefnið varð ekki til af einni ákveðinni ástæðu, heldur samspili margra þátta. Frá upphafi var lögð áhersla á að byggja völlinn í sameiginlegu átaki, þar sem íbúar legðu sjálfir sitt af mörkum. Hugmyndin var sú að raunverulegur áhugi yrði aðeins til staðar ef fólk væri tilbúið að setja sinn tíma í verkið, annars væri betra að sleppa því.

Til að kanna áhugann voru haldin innanhúss frjálsíþróttamót um páska 2023 og 2025. Á fyrra mótið mættu 85 þátttakendur og kepptu 49, en á því síðara kepptu um 80 manns. Yngstu keppendur voru eins árs og kepptu í fimm metra skriði og sá elsti, 78 ára, setti Íslandsmet í kúluvarpi kvenna í sínum aldursflokki. Alls féllu fimm Íslandsmet í öldungaflokki, sem endurspeglar sterkan íþróttaanda í Suðursveit.

MIKIL SJÁLFBOÐAVINNA

Framkvæmdin hefur kallað á mikla sjálfboðavinnu samhliða daglegum störfum og það hefur verið helsta áskorunin. Á móti hafa komið skýrar gleðistundir, ekki síst þegar búið var að steypa alla 900 fermetrana og þegar hlaupabrautin sjálf var lögð á völlinn og verkefnið varð loks áþreifanlegt.

Sjálfboðaliðastarfið hefur einnig vakið athygli utan Suðursveitar. Ungmennafélagið Vísir hlaut hvatningarverðlaun á sambandsþingi UMFÍ fyrir uppbyggingu vallarins og félagsstarfið í heild. Á degi sjálfboðaliðans 5. desember var verkefnið kynnt í höfuðstöðvum UMFÍ og ÍSÍ.

FJÁRMÖGNUN

Fjármögnun verkefnisins byggist á blöndu af framlögum sveitarfélagsins, styrkjum og umfangsmikilli sjálfboðavinnu. Metið er að 1200–1500 vinnustundir hafi farið í verkefnið, auk vinnu á vélum og búnaði sem velunnarar og fyrirtæki tengd sveitinni hafa lagt til. Hönnun vallarins var unnin í sjálfboðavinnu og efni fengið á kostnaðarverði með stuðningi samstarfsaðila.

Frá vinstri Bjarni Malmquist Jónsson, Oddi Breiðfjörð, Anna Karen Malmquist Bjarnadóttir, Atli Már Björnssonar

Völlurinn er hugsaður sem fjölnota aðstaða fyrir íbúa Suðursveitar og nærliggjandi svæða. Þar munu börn og ungmenni æfa frjálsar íþróttir, en einnig er gert ráð fyrir að aðstaðan nýtist til almennrar hreyfingar og annarra greina, svo sem körfubolta og pickleball. Á vellinum verður hægt að keppa í öllum vallargreinum frjálsíþrótta, bæði köstum og stökkum, þar á meðal stangarstökki. Þá verða fjórar brautir fyrir 60 metra hlaup og grindahlaup, sem auðveldar bæði þjálfun og mótahald.

Gert er ráð fyrir að haldin verði frjálsíþróttamót á vellinum í samstarfi við félög í nágrannasveitum og að tekið verði á móti öðrum félögum í æfingabúðir. Með tilkomu vallarins skapast ný aðstaða fyrir viðburði og samkomur sem geta haft jákvæð áhrif á samfélagið.

Félagsstarf Ungmennafélagsins Vísis hefur einnig verið öflugt á öðrum sviðum. Borðtennis hefur vaxið hratt og reglulegar æfingar eru haldnar í Hrollaugsstöðum, þar sem iðkendur eru á breiðu aldursbili. Félagið er aðili að Borðtennissambandi Íslands og tekur þátt í mótum og deildarkeppni. Haldið hefur verið kynningarmót og æfingabúðir, meðal annars fyrir hreyfihömluð börn, og áformað er að endurtaka slíkt starf.

Á næstu misserum eru einnig fram undan ýmsir viðburðir. Jólamót Vísis í borðtennis verður haldið 28. desember nk. þar sem Atli Már Björnsson, ríkjandi meistari síðustu tveggja móta verður mótsstjóri. Keppt verður í einliðaleik í bæði fullorðins- og ungmennaflokki. Vígslumót frjálsíþróttavallarins fer fram 27. júní í sumar í samstarfi við Frjálsíþróttasamband Íslands.

Með uppbyggingu frjálsíþróttavallarins, öflugu sjálfboðaliðastarfi og fjölbreyttu félagslífi hefur Ungmennafélagið Vísir skapað nýja aðstöðu og tækifæri fyrir íbúa Suðursveitar. Verkefnið sýnir hvernig samvinna og dugnaður geta skilað varanlegum innviðum fyrir samfélagið.

sjálfboðaliðar - Mynd: Hanna Jónsdóttir
Unnið að því að steypa völlinn - Mynd: Sigrún Elfa Bjarnadóttir

Hlýjar jóla- og hlaupakveðjur til allra iðkenda og velunnara í hlaupasamfélaginu okkar í Hlaupahóp Hornafjarðar.

Helga Árna

Kæru vinir og ættingjar.

Ég sendi ykkur öllum mínar bestu jólaog nýársóskir, með þakklæti fyrir liðið ár.

Bjarney Pálína Benediktsdóttir

Ég óska skyldfólki mínu og vinum gleðilegra jóla og gæfuríks nýárs þakka öll liðnu árin, Hjartanskveðja,

Friðrik Friðriksson, Hraunkoti

Sendi ættingjum og vinum hugheilar jóla- og nýársóskir. Þakka auðsýnda samúð og stuðning við andlát og útför Dísu minnar fyrr á árinu.

Gísli í Ártúni

Kæru ættingjar og vinir.

Við sendum ykkur okkar bestu jólakveðjur með þökk fyrir liðnar stundir.

Jólakveðja Ester og Bjössi

Sendum íbúum sveitarfélagsins innilegar jóla- og nýjárskveðjur.

Þökkum fyrir árið sem er að líða. Konnekt ehf. Ingólfur og Árdís

Yfir sjó og land til þín

Í áratugi hefur Eimskip fært landsmönnum allt til jólanna, jólagjafirnar, jólafötin, jólamatinn og jólaljósin. Eimskip kemur með jólin.

Gleðilega hátíð!

GUÐJÓN RAGNAR SKÓLAMEISTARI FAS

Guðjón Ragnar Jónasson hóf störf sem skólameistari Framhaldsskólans í Austur-Skaftafellssýslu 1. nóvember síðastliðinn.

Hann fæddist í Reykjavík árið 1974 og ólst upp í Breiðholtinu ásamt bróður sínum. Foreldrar hans eru Jónas Þór Steinarsson frá Skuld í Vestmannaeyjum og Þórey Morthens. Á unglingsárum dvaldi Guðjón reglulega í sveit að Næfurholti á Rangárvöllum og segir sveitastörfin hafa mótað hann og fylgt sér þaðan í frá. Eftir stúdentspróf úr MR lauk hann búfræðiprófi á Hvanneyri og bjó um tíma á blönduðu búi í Fljótshlíðinni.

Guðjón er með meistaragráðu í íslenskum fræðum, M.paed í kennslufræðum, B.Ed gráðu og diplómagráðu í menntastjórnun og matsfræðum frá Háskóla Íslands. Hann kenndi við Menntaskólann í Reykjavík í áratug og starfaði áður sem forstöðumaður Háskólagáttar og símenntunar við Háskólann á Bifröst. Einnig hefur hann sinnt ýmsum stjórnunar- og þróunarverkefnum innan skólakerfisins.

Að sögn Guðjóns vaknaði hjá honum löngun til að halda áfram að spreyta sig í stjórnun eftir stjórnunarreynslu sína við Háskólann á Bifröst. Þegar staðan hjá FAS losnaði sá hann tækifæri til að nýta menntun sína og reynslu til að efla skólastarf og verða hluti af samfélaginu á Höfn. „Skólinn kemur mér vel fyrir sjónir, móttökurnar hafa verið hlýjar og nemendur og kennarar bera skólann uppi af metnaði og samheldni,“ segir hann.

Guðjón lofar sérstaklega náin samskipti kennara og nemenda, fjölbreytt nám og öflugt fjarnám sem gerir kleift að kenna í litlum hópum með persónulegri þjónustu. Aðstaða skólans, þar á meðal mötuneytið og húsnæðið, þykir honum til fyrirmyndar.

Hann hefur einnig fundið sig fljótt í samfélaginu í Hornafirði.

Fólk gerir sér far um að kynnast manni og það er augljóst að hér vill samfélagið skólanum vel.

Það sem hefur komið honum mest á óvart er hversu alþjóðlegt og blómlegt samfélagið er, með sterku tónlistarlífi og öflugri menningu.

Framundan sér Guðjón fjölmörg tækifæri fyrir skólann. Hann vill styrkja bæði staðnám og fjarnám og skoða möguleikann á að byggja upp starfsnám á ný. Þar skiptir einnig máli að efla tengsl við atvinnulífið. Hann leggur sérstaka áherslu á að þjónusta fjölmenningarsamfélagið í Hornafirði og segir það starf þegar hafið, meðal annars með íslenskunámi fyrir nemendur sem eiga annað móðurmál en íslensku.

Utan vinnu sinnir Guðjón ritstörfum og hefur gefið út nokkrar bækur auk þess að þýða fræðirit úr þýsku. Nú vonast hann til að halda áfram að rannsaka og skrá sögu forfeðra sinna, Rósu Guðbrandsdóttur og Edwards Morthens, sem var ævintýramaður og settist að hér á landi snemma á síðustu öld.

Gildin sem FAS stendur fyrir eru fjölbreytni, áræðni og sköpun og segir Guðjón þau verða leiðarljós í starfinu. „Það er sóknarhugur í skólanum og við viljum þróa námsframboðið áfram og byggja upp öflugt nám sem þjónar samfélaginu vel.“

Við óskum Hornfirðingum gleðilegra jóla og farsæls nýs árs.

Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða.

Guðjón Ragnar út á Stokknesi

Hér verður ekki farið í nákvæma lýsingu á verkefninu en HeimaHöfn miðar að því að styrkja samkeppnishæfni og aðdráttarafl Sveitarfélagsins Hornafjarðar sem framtíðarbúsetukosts. Með ólíkum verkþáttum er markvisst stuðlað að jákvæðri upplifun og viðhorfi ungmenna til framtíðarinnar í Hornafirði og öflugum tengslum þeirra við samfélagið. Lögð er áhersla á efla félagslega virkni og samfélagsþátttöku meðal annars með miðlun upplýsinga um fjölbreytt tækifæri til menntunar, atvinnu og félagsstarfs á svæðinu. Þessar megináherslur HeimaHafnar eiga rætur í niðurstöðum kannana sem hafa verið unnar síðustu ár af Nýheimum þekkingarsetri.

MÁLEFNI UNGS FÓLKS

Frá stofnun setursins árið 2014 hefur verið lögð áhersla á málefni ungs fólks og á þeim tíma hefur setrið framkvæmt fjölda viðhorfskannana meðal ungmenna í sveitarfélaginu. Niðurstöður okkar hafa bent til þess að atvinnutækifæri, tækifæri til menntunar, félagslegar aðstæður og tengsl við samfélag og stað séu helstu áhrifaþættir þegar kemur að búsetuvali ungmenna. Áhugavert hefur verið að sjá hvernig þessir sömu þættir hafa komið ítrekað fram þvert á árganga síðustu árin. Með stökum viðburðum og verkefnum höfum við unnið að því að mæta þessum niðurstöðum en með stofnun HeimaHafnar var sú vinna formgerð enn frekar og útvíkkuð í samstarfi við lykilaðila innan samfélagsins.

Ég hef víða fjallað um málefni ungmenna, upplifun þeirra af samfélaginu og umhverfi okkar hér í Hornafirði. Gjarnan er talað um togkrafta og ýtiöfl innan samfélaga, það er hvaða þættir hvetja okkur til að vera eða fara. Þetta eru þættir sem er vert fyrir okkur sem samfélag að hafa í huga.

OKKAR HEIMAHÖFN

Nú eru tvö ár frá því að hugmyndin að þróunarverkefninu HeimaHöfn kviknaði þar sem ég sat á ráðstefnu Nordregio í Reykjavík og hlustaði á kynningu frá Nordfjord í Noregi. Síðan þá hefur margt gerst og í dag er HeimaHöfn orðið öðrum samfélögum á landsbyggðinni fyrirmynd og hvatning til þess að vinna markvisst að málefnum byggðaþróunar með ungt fólk í öndvegi.

Ekki síst til að við getum haft hugfast hvaða eiginleika samfélagsins okkar við viljum rækta og hvað mætti betur fara.

Þegar við höfum í könnunum okkar rætt við ungmenni um einkenni góðs samfélags hefur verið áhugavert að sjá að undantekningalaust nefna þau fyrst þá þætti sem eru í okkar eigin höndum. Virðing, umhyggja, hvatning, kærleikur og vinátta eru dæmi um þætti sem skipta miklu máli í þeirra huga. Sama gildir um þá þætti samfélagsins sem þykja hafa hvað mest ýtiafl og neikvæð áhrif á upplifun þeirra af samfélaginu. Neikvæð orðræða, slúður, fordómar og dómharka eru meðal þess sem ungmennin nefna.

ÞÁTTTAKA SAMFÉLAGSINS

HeimaHöfn er samfélagslegt verkefni og er stuðningur og þátttaka samfélagsins í heild forsenda þess að markmiðum verkefnisins verði náð. Nýheimar þekkingarsetur getur leitt verkefnið en það er í höndum okkar allra að skapa gott samfélag sem börnin okkar sjá sem sitt heima. Hvert sem þau kunna að fara og hvað sem þau velja að gera þá viljum við að þau upplifi að Sveitarfélagið Hornafjörður verði ávallt þeirra heimahöfn. Frá þeirri hugsun dregur verkefnið nafn sitt og er hún leiðarljós okkar í allri þróun þess og aðgerðum. Okkur þarf að takast að skapa aðstæður, andrúmsloft og viðhorf sem styðja og hvetja ungt fólk til þess að taka virkan þátt í mótun samfélagsins og framþróun þess. Þannig tekst okkur að móta samfélag sem þessi sömu ungmenni horfa til sem búsetukosts til framtíðar.

Frumkvöðlafræðsla fyrir nemendur Grunnskólans og FAS

Á fyrstu tveimur árum verkefnisins hefur það fengið frábærar viðtökur hér heima. Eitt af því sem vakið hefur athygli á landsvísu er að við höfum ekki aðeins verið svo lánsöm að hafa stuðning sveitarfélagsins heldur höfum við einnig náð að vinna að verkefninu í nánu samstarfi við ungt fólk, skóla, atvinnulíf, félagasamtök og aðra hagaðila á svæðinu. Við vonumst þó til að enn fleiri sláist í hóp samstarfsaðila og því hvetjum við einstaklinga og fyrirtæki til þess að skrá sig til þátttöku í verkefninu í gegnum heimasíðu þess www.heimahofn.is

Einnig er hægt að fylgjast með verkefninu á samfélagsmiðlum (Facebook og Instagram) þar sem við deilum ýmsu efni, bæði til gagns og gamans.

Fyrir nánari upplýsingar um verkefnið eða ef spurningar vakna má alltaf hafa samband við okkur á heimahofn@nyheimar.is eða kíkja til okkar í Nýheima.

Hugrún Harpa Reynisdóttir

Forstöðumaður Nýheima þekkingarseturs

Gistiheimilið Hali

óskar viðskiptavinum og Hornfirðingum gleðilegra jóla og farsæls nýs árs. Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða.

Hugleiðing um jólin

Í hugum margra eru jólin umvafin ljóma minning um kalda daga með kakó og rjóma

Smákökur sem kitla bragðlaukana

Hjá einhverjum tekur í sparibaukana

Tilhlökkun við tendrun jólaljósanna

Á jólatrénu með alla jólapakkana

Mikil spenna fyllir aðventu dagana

Freistingarnar tæla hugana

Og jólasveinar læðast um og kíkja á glugga

setja í skóinn og hverfa í skugga

Nema einn sem skellir mjög fast hverri hurð og annar s em dettur ofan í skurð

Margt þarf að gera fyrir hver jól

Þrífa og baka og kaupa svo kjól

Laufabrauð skorið af mikilli list

Jólaís, sörur og fleira er fryst

Talið er niður hvern einasta dag

Tónlistin spiluð og sungið jólalag

Freistingar hljóma og birtast á skjám

Ljósin ljóma á húsum og trjám

Jólamatur er borinn á borð

Enginn segir eitt einasta orð

Hátíðleg stund

Létt er þó lund

Samveran sameinar fjölskylduf und

Snjóflyksur svífa svo létt á freðna jörð

Hve fallegt er um að litast við Hornafjörð

Friður og ró yfir sveitir og bæ

Tekið í spil, sungið, sett niður fræ

Gleðilega jólahátíð til handa ykkur öllum

Njótum samverunnar og saman spjöllum

Megi nýtt ár færa ykkur hamingju og gleði

Stórt jólaknús til ykkar, lifið í friði

Eyrún, Sigurjón,

Steindór, Margrét og Jahem Tristan

INNLIT Í VINNUSTOFU STÚDÍÓ DRULL

Leir, kaffibollar, kremkex og góðar hugmyndir. Á

Heppunni deila Birna og Hanna Dís verkstæði þar sem drullumall og sköpun fara hönd í hönd. Í þessu viðtali segja þær frá því hvernig þetta allt saman byrjaði, hvers vegna nafnið varð til og hvernig dagarnir líða í leirnum.

Hvernig kom það til að þið ákváðuð að deila verkstæði saman?

Við vorum báðar að leita að stærra rými fyrir leirinn, en það er erfitt að finna aðstöðu fyrir leirvinnustofu, þar sem leir fer ekki með hverju sem er. Okkur bauðst svo bil í Heppu sem passar okkur svona líka vel.

Það eru margir kostir við að deila svona verkstæði, þar sem við getum samnýtt ýmislegt, eins og ofna, áhöld og kremkex.

Hvernig varð nafnið til?

Satt best að segja vorum við ekkert að leita að nafni. Okkur datt bara báðum sama nafnið í hug, í sitthvoru horninu. Það komu bókstaflega engar aðrar uppástungur.

Við erum pínulítið drull og við vinnum við drullumall. Þetta var skrifað í skýin.

Hvernig er dæmigerður dagur hjá ykkur á vinnustofunni?

Við erum yfirleitt mættar um 8 á morgnana og byrjum daginn auðvitað á kaffistofunni. Þar fáum við okkur kaffibolla úr annarri hvorri senseo vélinni okkar, því við erum með tvær. Ekki spyrja af hverju. Það bara gerðist.

Svo tökum við stöðuna og hvor fer á sinn bás, enda að vinna í sitthvoru fyrirtækinu. Verkefnin eru af ýmsum toga. Stundum erum við til dæmis að steypa

í mót, stundum handmóta eða glerja. Stundum snúumst við líka bara í hringi og syngjum 2 become 1 með Spice Girls. Stundum er Hanna Dís líka að vinna í öðru en leir í Miklagarði eða í hlutverki safnvarðar á Byggðasafninu.

Hvað er það sem drífur ykkur áfram í listsköpun?

Hanna: Hugmyndir sem sífellt koma upp, hver á eftir annarri sem leiða mann bara áfram á einhverjar ókunnar spennandi slóðir. Ég er líka mikil áhugamanneskja um handverk og finnst gaman að prófa mig áfram með að blanda saman mismunandi efnivið.

Birna: Ætli það sé ekki einhver tjáningarþörf og þörf fyrir að rannsaka, þróa og sjá hvort hugmyndirnar geti orðið að einhverju áþreifanlegu.

Er eitthvað planað hjá ykkur á næstunni?

Við ætlum báðar að hafa opnar vinnustofur fyrir jól, Birna verður með sínar vörur til sölu í stúdíó Drull og Hanna Dís með sínar í Miklagarði.

Næsta opnun hjá okkur er laugardaginn 20.des, frá kl. 13:00-18:00.

Mögulega verðum við með opið á Þorláksmessu líka, en við auglýsum það þá síðar.

Á næsta ári stefnum við svo á að halda leirnámskeið og einhverjar sýningar.

Geta íbúar og gestir kíkt við hvenær sem er?

Þetta er fyrst og fremst verkstæði og því ekki hægt að taka á móti fólki hvenær sem er. En við auglýsum ef okkur dettur í hug að hafa opið og svo er alltaf hægt að hafa samband við okkur.

Stúdíó Drull er til húsa á Heppuvegi 6 (Heppa, bryggju megin, við hliðina á Laundromat Höfn)

Hægt er að fylgjast með þeim á Facebook: Stúdíó Drull og á Instagram: instagram.com/studiodrull

Hanna Dís og Birna Jódís eru Drull

Við sendum öllum íbúum Sveitarfélagsins

Hornafjarðar okkar bestu óskir um gleðileg jól og hlökkum til þess að taka á móti ykkur í Vatnajökulsþjóðgarði á nýju ári.

Starfsfólk Náttúruverndarstofnunar á

Breiðamerkursandi, Höfn og í Skaftafelli

Við óskum viðskiptavinum og Hornfirðingum gleðilegra jóla og farsæls nýs árs.

Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða.

Verkfærni óskar viðskiptavinum og

Hornfirðingum gleðilegra jóla og farsæls nýs árs. Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða.

Nettó óskar viðskiptavinum og Hornfirðingum gleðilegra jóla og farsæls nýs árs. Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða.

Við óskum Hornfirðingum öllum, sem og lesendum blaðsins, gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári

Kalli og Nína, Fákaleiru 6b Höfn

Anna, Gunnar Þór og Nökkvi

Iðunn Tara, Bergþór Lár og börn

Anna Halldórsdóttir

Jóna Imsland og Magnús Danielsen, Akri Höfn og Hafnarfirði

Palli og Dagný

Amalía og Tjörvi

Halldór Hilmarsson

Vinnuvélar Úlfars Helgasonar ehf. Hoffelli

JÓLAÞORP KIWANIS

Kiwanis er alþjóðleg þjónustuhreyfing sem vinnur að því að bæta líf barna og ungmenna. Mottóið er „Hjálpum börnum heimsins“ og markmiðið er að stuðla að betri tækifærum fyrir börn, bæði í heimabyggð og á heimsvísu. Í gegnum Kiwanis

Children’s Fund eru styrkir veittir til verkefna sem snúa að menntun, heilsu og öryggi barna.

UMDÆMISSTJÓRAR OG SAGA KLÚBBSINS

Kiwanisklúbburinn Ós hefur starfað frá árinu 1987 og er orðinn 38 ára og hefur núna átt tvo umdæmisstjóra í Kiwanisumdæminu Ísland-Færeyjar.

Haukur Þorleifur Sveinbjörnsson sem gegndi embætti umdæmisstjóra á starfsárinu 2016 – 2017 og er hann heiðurfélagi í Ós. Á starfsárinu 2025 – 2026 er Sigurður Einar Sigurðsson umdæmisstjóri. Á næsta ári, dagana 11.12.september 2026 verður umdæmisþing á Höfn og það væri gaman að sjá fleiri ganga í Kiwanis og vera með í mikilvægum verkefnum sem eru fram undan.

VERKEFNI HJÁ

KLÚBBNUM

Auðkennisverkefni: Styrkjum leikskólana á Höfn og Öræfum með ýmsum leiktækjum og búnaði.

Samfélagsstuðningur: Á hverju ári styrkir Ós um 500.000 krónur í gegnum

Samfélagssjóð Hornafjarðar með Nettó kortum. Nettó leggur 1/3 á móti framlagi Óss, sem hjálpar mörgum fjölskyldum að halda gleðileg jól. En ágóði af verkefnum hjá Ós renna í styrktarsjóð og er þetta einungis lítil hluti af stuðningi hjá Ós á hverju ári af því sem hér er nefnt. .

Jólatrjáasala og jólaþorp: Félagar safna í styrktarsjóð með skógarhöggi í Steinadal og Hoffelli. Jólatrén eru seld í jólaþorpi Kiwanis við ráðhúsið, þar sem einnig eru sölukofar góðgerðarsamtaka. Hliðarklúbbur Óss tekur þátt í sölu og safnar í sinn styrktarsjóð. Öll góðgerðarsamtök fá að vera frítt í jólaþorpinu.

Samfélagsgleði: Ósfélagar skapa með vinnu sinni gleði og samhug í heimabyggð, sérstaklega yfir jólin með jólaþorpi og styrkjum.

Sendi öllum Hornfirðingum mínar bestu jólakveðjur með ósk um farsæld á nýju ári

Grétar Örvarsson

ÞAKKIR OG ÓSKIR

Félagar í Ós þakka öllum sem hafa stutt við verkefnin á árinu og sérstaklega þökkum við vildarvinum Kiwanisklúbbsins Óss sem eru; Bláa lónið, Grábrók ehf, Þingvað ehf, Nettó, Mikael ehf, Martölvan, Olís, Húsasmiðjan og Sveitarfélagið Hornafjörður. Við sendum okkar bestu óskir um gleðileg jól og óskum öllum friðar og gleði á komandi ári.. Áhugasamir sem vilja ganga í Kiwanis eru hvattir til senda okkur línu á kiwanis@kiwanis.is og vera með í gefandi félagsskap. Það er góð tilfinning að láta gott af sér leiða. Er ekki bara best að vera með í Kiwanis!

Með jóla- og nýárskveðju Sigurður

Einar Sigurðsson, umdæmisstjóri Kiwanisumdæmisins Ísland-Færeyjar

Framsóknarfélag Austur-Skaftfellinga sendir Hornfirðingum hugheilar jóla- og nýárskveðjur Þökkum stuðninginn á liðnum árum.

Jólaþorpið er milli Ráðhússins og Nýheima eins og fyrri ár
Sigurður Einar

BARNAHORNIÐ

Á þessum síðum fá krakkarnir að njóta

sín! Nemendur í Grunnskóla Hornafjarðar sendu inn myndir, smásögur, ljóð og meira að segja orðaleit sem við erum rosalega glöð að deila með ykkur. Sköpunargleðin er allsráðandi og hugmyndaflugið fær að flæða. Við viljum þakka öllum sem tóku þátt fyrir að senda inn efni.

JÓLASAGA

Einu sinni var jólasveinn sem hét Kertasníkir. Honum fannst gaman að stela kertum. Hann bjó í myrkum heimi og vildi fá ljós.

Eitt kvöld sá hann ljós í litlu húsi. Hann laumaðist þangað og teygði höndina inn um gluggann. Lítil stelpa, Gréta sá hann. Hún var ekki hrædd. Gréta gaf honum eitt kerti. Hún sagði: ,,Hlýja er betri þegar henni er deilt.”

Kertasníkir tók kertið og fór heim í hellinn. Hann kveikti á því. Honum leið vel í hjartanu.

Eftir það hætti Kertasníkir að stela. Hann fór að gefa börnum litlar gjafir í skóinn. Hann lærði að það að gefa er skemmtilegra en að taka.

Bestu gjafirnar eru þær sem koma frá hjartanu.

Ena Rakovic, 8. JÞ

Guðbjörg Dalía Björgvinsdóttir teiknaði þessa mynd

KRAMPUS

Krampus krakkana tekur og upp í helli fer Hann bara veit ei betur

En krakkakjöt í magann á sér

Passið ykkur að vera góð

Annars hann tekur þig

Núna lýkur þetta ljóð og núna verður maður að passa sig

Höfundur: Katla Eldey

Auður S. í 7. bekk teiknaði þennan jólakrans

EKKI SEGJA GRÝLA!

eftir Gunnar Leó Rúnarsson

Einn góðan desemberdag var Þorgils að horfa á fréttirnar og í fréttunum var þetta helst. Að það mætti ekki lengur segja Grýla, annars myndi Grýla koma og éta mann. Þá kom Hákon og sagði “ég held að þetta virki ekki” og hann sagði “Grýla, grýla grýla - sko ekkert gerist”.

Svo heyrði hann skrítin hljóð og svo sá Þorgils Stúf taka Hákon og kalla “mamma ég náði honum” og svo heyrðist smjatt hljóð og hann hljóp í burtu. Svo þú sem ert að lesa, aldrei segja “Grýla”.

Endir, endir, endir.

JÓLASMÁSAGA

Einu sinni var stelpa sem trúði ekki neinu. Mamma hennar var ekki sátt og gerði svolítið geggjað. Þegar litla stelpan var farin að sofa fór mamma hennar í göngutúr upp í fjall. Þar sà hún Skjóðu sem er systir jólasveinanna og hún var í fýlu. Hún spurði Skjóðu hvort það væri ekki allt í lagi, en hún neitaði og sagði: “Nei ég mà ekki hjàlpa jólasveinunum að setja í skóinn”. Þá sagði mamman: “heyrðu ég er með verkefni fyrir þig ef þú vilt”. “Uuu já ég hef aldrei fengið verkefni áður” og hún fór strax í gott skap, frekar hissa og spurði, “hvað er verkefnið?” Gætir þú farið niður í bæ og hjálpað litlu dóttur minni að trúa á jólasveinana og þig? Uu já, trúir hún ekki á jólasveina? Nei því miður. Já ég skal hjálpa henni. Á ég bara að fara inn í herbergið hennar og segja einhvað til að láta hana trúa? Já. Svo labbaði Skjóða niður fjallið og í húsið hjá mömmunni. Hún vakti litlu stelpuna og sagði, hæ ég er Skjóða systir jólasveinanna. Þeir skilja mig alltaf út undan, en viltu tala við einhvern eða viltu spjalla? Já, segir litla stelpan, ertu í alvöru systir jólasveinanna?

Já ég er það en þeir eru mjög leiðinlegir. Síðan setur Skjóða súkkulaði í skóinn hennar og labbar út.

Stelpan gat ekki trúað þessu og sofnaði í sjokki. Þegar hún vaknaði segir hún við mömmu sína hvað hún sá og heyrði í

JÓLASAGA

Ég kom heim og sparkaði stígvélunum af mér, enda orðin rennandi blaut út af slyddu. „Hvað, er ekki allt í lagi?“ spurði mamma. „Nei! Ég hata bekkjabræður mína! ÉG hata stígvélin mín! Ég hata jólin! O..o..o.. é..ég.. hata.. ykkur líka!“

Ég skellti hurðinni og lagðist í rúmið mitt og brast í grát. Ég ætlaði ekki að segja

þetta hugsaði ég. Ég sofnaði. Mamma brast í grát og settist í stólinn. Þar kom falleg rauðhærð álfadís í hvítum kjól og spurði, „er ekki allt í lagi?“.

„Nei, ég er ömurleg móðir“ sagði mamma snöktandi.

„Nú, af hverju segir þú það?“

„Af því.. umm.. ég veit það ekki alveg.“

„Ég veit af hverju.“

„Er það?“ sagði mamma í smá sjokki. „Hvað.. hvernig þá, eða þússt hvað er ég að gera?“

„Sko, þú ert að verða of hörð við dóttur þína. Þú þarft að gera eitthvað með henni.“

„Eins og hvað?“

„Þið getið bakað, búið til jólasokk, jólakrans, sungið, dansað eða jólaskreytts.“

„Já, ég ætla að gera eitthvað með henni. Ég skal búa til lista.“

„Það líst mér vel á“, þá fór álfadísin.

„Elskan, viltu koma og gera eitthvað saman, bara við tvær?“

„Já já“ svaraði ég dálítið þreytulega. „Mamma?“

„Já“

„Ég meinti þetta ekki áðan, ég hata þig ekki, ég elska þig“

„Allt í lagi. Nú skil ég af hverju þú varst reið.“

Við bökuðum, dönsuðum, sungum, töluðum, gerðum jólakrans saman og fórum í búðina að kaupa snakk og nammi fyrir kósíkvöld. „Þetta var frábær dagur í dag. Getum við gert þetta oftar?“ sagði ég.

„Já ég er sammála“ sagði mamma. Endir.

Höfundur: Laufey Ósk Ásgeirsdóttir, 7.ÓÞ

Grímur teiknaði þessa mynd
Laufey Ósk teiknaði þennan jólakrans

SVEITIN HJÁ MAGGA

Einu sinni voru tvíburar sem hétu Úlfur og Aríel. Dag einn voru þau að fara í sveitina hjá Magga frænda í einn dag. Þau flýttu sér fram úr og fóru niður og fengu sér að borða. Svo pökkuðu þau niður og fóru út í bíl. Og loksins voru þau komin. Þau hoppuðu út úr bílnum og fóru and skoða sig um. Svo kallar mamma þeirra; “ekki fara of langt”, krakkarnir hrópa “okey” og leggja af stað. Þegar þau voru búin að skoða sig aðeins um ákváðu þau að fara heim. En þau mundu ekki leiðina heim og vissu ekki hvert þau áttu að fara en svo sáu þau gamla hundinn hans Magga sem hét Snati en krakkarnir kölluðu hann lata Snata. Það var orðið dimmt og kalt og það voru alveg að gefast upp. En svo byrjaði Snati að gelta og eftir nokkrar mínútur kom Maggi og hleypti þeim inn í hús og gaf þeim heitt súkkulaði, kex og spiluðu alveg fram á kvöld. ENDIR

Saga eftir: Iðunni Örnu Halldórsdóttur, Nönnu Eir Gunnlaugsdóttir og Ólöfu

Ingu Björgvinsdóttur

Ingibjörg Matilda teiknaði þessa mynd

Auður S. í 7. bekk

AÐ HORFA TIL STJARNANNA

Hefur þú einhvern tímann horft upp í stjörnubjartan himinn og velt því fyrir þér hvernig það væri að skoða stjörnurnar ennþá betur? Við tókum viðtal við Snævarr Guðmundsson, sem hefur mikinn áhuga á stjörnum og notar sérstakan stjörnusjónauka til að sjá enn lengra út í geiminn.

Hvað heitir þú fullu nafni og af hverju heitir þú Snævarr?

Ég heiti Snævarr Guðmundsson. Mamma mín nefndi mig í höfuðið á ömmu sinni sem hét Snjólaug. Nafnið kemur langt aftur í ættir og tengist Hornafirði.

Ertu stjörnufræðingur?

Nei, en ég er áhugastjörnufræðingur og stjarnmælingarmaður.

Er Betlehemstjarnan til?

Stjörnufræðingar vita ekki nákvæmlega hvað Betlehemstjarnan var. Stjörnufræðingar vita að fyrir um 2031 ári, eða árið 6 f. Kr. voru reikistjörnurnar Júpíter og Satúrnus svo nálægt hvor annarri að þær litu út fyrir að vera ein mjög skær stjarna á himninum. Það má vera að í augum forfeðra okkar hafi það verið Betlehemstjarnan.

Hvernig virkar stjörnusjónaukinn þinn?

Stjörnusjónaukinn minn safnar ljósi frá daufum stjörnum á himninum. Hann er með stórt op sem tekur inn ljósið og stóran spegil, jafn stór og 16 tommu pizza, sem hjálpar mér að sjá stjörnur og

Máni Tjörvason og Gylfi Einarsson sóttu Snævarr heim þar sem hann sýndi þeim stjörnusjónaukann og svaraði fullt af spurningum.

fyrirbæri í geimnum sem eru of dauf til að sjá með berum augum. Svo er myndavél inn í honum sem tekur myndir af því sem hann sér.

Hvernig verða stjörnur til?

Stjörnur eru úr gasi. Í geimnum er gas í miklum skýjum. Ef skýin dragast saman í þykkildi getur það síðan hitnað í miðjunni. Þegar nóg gas er til staðar og mikill hiti í kjarnanum byrjar stjarnan að lýsa og þá er hún í raun orðin sjálflýsandi hnöttur.

Er sólin ekki líka úr gasi?

Jú, sólin er líka úr gasi, alveg eins og allar stjörnur. Í raun eru allar stjörnur sólir, bara langt í burtu frá okkur og þess vegna virðast þær ekki jafn skærar eða stórar eins og sólin okkar.

Hvernig myndast stjörnumerki?

Stjörnumerki eru mynstur sem heilinn okkar býr til úr stjörnunum. Menn hafa notað þessi mynstur til að rata og sagt sögur um þau kynslóð fram af kynslóð.

Hvað veistu mikið um stjörnur?

Ég veit í sjálfu sér alveg óskaplega lítið um stjörnur, en held að ég viti samt aðeins meira en sem nemur meðalþekkingu manna á þessum fyrirbærum.

Hefur þú farið út í geim?

Nei, ég hef ekki gert það! Ég held að það sé stórkostlegt að fara upp í geim, en ég er ekki viss um að ég myndi vilja það núna.

Af hverju býrðu á Höfn?

Ég starfa hérna sem náttúrufræðingur og rannsaka jökla. Hér í Hornafirði er líka miklu meira myrkur en t.d. í Reykjavík, sem hentar vel fyrir stjörnuáhugann minn.

Hvernig rannsakar þú stjörnur?

Ég rannsaka stjörnur með sjónaukanum mínum. Ég tek myndir af sömu stjörnunni í marga klukkutíma og mæli hvernig birtan frá henni breytist. Stundum sést að ljósið frá stjörnunni verður tímabundið aðeins daufara – þá er reikistjarna að fara fyrir framan stjörnuna. Við nefnum þær fjarreikistjörnur því þær eiga ekki heima í okkar sólkerfi heldur eru á braut í kringum fjarlægar sólstjörnur. Það tekur sumar þeirra 1- 3 daga að fara í kringum stjörnuna, en jörðin okkar tekur 365 daga að fara í kringum sólina. Ég sendi svo upplýsingarnar til evrópsku geimrannsóknarstofnunarinnar, sem notar þær í rannsóknir. Um allan heim eru um 2000 manns að safna svona upplýsingum, ekki bara ég.

Afhverju eru gervitungl send út í geim, hvað gera þau?

Gervitungl hjálpa okkur að fylgjast t. d. með veðri, gróðurfari eða breytingum á hafís eða jöklum. Sum þeirra gagnast til leiðsagnar. Þau senda upplýsingar niður á jörðina og auðvelda okkur lífið.

Áttu húsdýr?

Nei, en ég átti kött, sem dó skyndilega, það var svo sorglegt. Samstöðu

Krökkunum fannst spennandi að skoða stjörnusjónaukann

Steinunn Lilja Tjörvadóttir, Sturlaugur

Kæru vinir

Við sendum ykkur hugheilar jólakveðjur og óskir um gleðilegt og farsælt nýtt ár.

Þökkum okkar kæru viðskiptavinum góð samskipti, tryggð og áratugavináttu.

Megi framtíðin verða okkur öllum góð og gjöful.

Þrastarhóll ehf. - bókhaldsþjónusta

og starfsfólkið á liðnum þrjátíu árum,

Guðbjartur, Agnes og Birna

Sefdalur Guesthouse

óskar Hornfirðingum öllum gleðilegra jóla og þakkar fyrir alla velvild og hjálp á árinu

Óskum samstarfsfólki og viðskiptavinum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.

Þökkum samstarfið á árinu sem er að líða og hlökkum til komandi árs.

Hátíðarkveðjur, Skaftverk ehf. og Sauðanes Guesthouse

JÓLAKVEÐJA FRÁ LEIKFÉLAGI HORNAFJARÐAR

Leikfélag Hornafjarðar óskar öllum gleðilegra jóla og þakkar innilega fyrir frábært ár.

Við sendum hugheilar jólakveðjur til alls þess góða fólks sem kom að uppsetningu rokksöngleiksins Hársins –Leikara, tónlistarmanna, tæknimanna, hár og förðunarfræðinga, búningahönnuðar og leikmyndasmiða. Einnig sendum við jólakveðjur til þeirra sem studdu okkur fjárhagslega.

Áhorfendur okkar fá sérstakar þakkir. Um 830 manns mættu á sýningarnar og nutu kvöldsins með okkur. Við í stjórn Leikfélagsins erum ótrúlega þakklát fyrir þessar hlýju og rausnarlegu viðtökur –þær gefa okkur innblástur og kraft til áframhaldandi sköpunar.

100. UPPSETNING LEIKFÉLAGSINS

Þótt haustið hafi verið rólegra á yfirborðinu, höfum við aldeilis ekki slakað á. Við höfum verið að vinna hörðum höndum að nýrri og spennandi frumsaminni leiksýningu í samstarfi við Aron Martin Ásgerðarson, sem sett verður upp árið 2026 þegar Leikfélag Hornafjarðar fagnar 100. uppsetningu sinni frá upphafi.

Frumsýning verður laugardaginn 14.

mars, og enn er opið fyrir þátttakendur sem vilja vera með í þessari leiksýningu. Það er okkur sönn ánægja að bjóða nýtt fólk velkomið í hópinn.

Sendið okkur skilaboð, ef þið hafið áhuga á að taka þátt í uppsetningu. Það vantar alltaf fólk í uppsetningarnar okkar eins og tæknifólk, leikmyndasmiði, förðun og hár, búningagerð, leikara, ofl. ofl.

STOLT AF HÓPNUM

Eitt af því sem gerir starf Leikfélags Hornafjarðar svo sérstakt er fjölbreytnin innan hópsins. Við erum óendanlega stolt af því hvernig ungt fólk og fullorðnir vinna saman, þar er ekkert kynslóðabil. Í sýningum okkar má finna bæði 16 ára hressa krakka og allt upp í reynslumikla þátttakendur á áttræðisaldri – og allt þar á milli.

Samspil ólíkra aldurshópa og listforma er það sem gerir leikhúsið svo töfrandi. Þar verða til tengsl, vinátta, nýjar hugmyndir og samfélag sem nær langt út fyrir sviðið sjálft. Ekki síst á sér stað samspil þekkingar og reynslu, yngri einstaklingar kenna þeim eldri eru og svo öfugt.

EN HVERT STEFNUM VIÐ?

Við í stjórn Leikfélagsins erum hvergi nærri hætt – þvert á móti erum við með stóra og djarfa drauma um að byggja upp starfsemi sem nær yfir fleiri sýningar á ári.

Við viljum leggja enn meiri rækt við barnastarfið sem Ágústa Arnardóttir hefur af miklum metnaði þróað, og vonumst til að smám saman skapist tækifæri fyrir sérstakar leiksýningar barna og unglinga, sem og smærri sýningar sem hægt er að fara með í heimsóknir um víðan völl. Þátttaka barna í leikhúsinu er sjálfseflandi og gefur þeim tækifæri í framtíðinni að standa með sjálfum sér og sínu samfélagi.

Hópurinn sem fer með stjórnina í Leikfélagi Hornafjarðar er hvergi nærri saddur, þó vissulega að við höfum aðeins þurft að endurstilla mörkin okkar. Þar sem allt er í sjálfboðavinnu og þegar eigin börnum fjölgar verður sá tími styttri sem hægt er að gefa í leikhúsið. Draumurinn er að koma nýju fólki með okkur í hópinn sem er tilbúið að keyra smærri verkefni á eigin spýtur.

Á undanförnum árum hefur Leikfélag Hornafjarðar orðið að mikilvægu

Leikhópurinn sem tók þátt í uppsetningu á söngleiknum Hárinu

athvarfi fyrir börn og unglinga sem ekki hafa fundið sig innan annara tómstunda. Í leiklistinni má vera öðruvísi, skapandi, hugmyndaríkur og tilfinningaríkur. Þar eru engir varamenn á bekk, engar tímamælingar, engin stig. Þar eru allir jafn mikilvægir þegar á hólminn er komið, enginn er mikilvægari en annar.

Framtíðarsýnin er að Leikfélagið standi fyrir sýningu á hverju ári, ásamt smærri verkefnum, eins og aðkomu að Humarhátíð, Improv og gjörninga verkefni, leiklestri, og öðrum sköpunarverkefnum.

Íslenskt samfélag á landsbyggðinni stendur og fellur oft með sjálfboðaliðavinnu, og Leikfélag Hornafjarðar er skýrt dæmi um hvað hægt er að skapa þegar hugur, sköpunargleði og samheldni fara saman.

Óska viðskiptavinum og Hornfirðingum öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári

FRUMSÝNING

Laugardagurinn 14. MARS

Hafðu samband ef þú vilt vera með í leikfélaginu

Fylgstu með hvað er að gerast í leikfélaginu

leikfelaghornafjardar@gmail.com

ÞAR SEM VATNIÐ ER ALLTAF KALT

Á Suðurlandi má finna ógrynni af fossum, ám, vötnum og lóna. Á veturna er vatnshitinn yfirleitt á bilinu 2 til 4°C og á sumrin um 3 til 10°C. Í stuttu máli, ég hef fundið fullkomin stað þar sem hægt er að fara í köld böð allt árið um kring.

Köldu ævintýrin mín á Íslandi byrjuðu árið 2023. Þá fór ég að kanna mismunandi staði fyrir ískaldar dýfur, ýmist einn eða með vinum. Þetta var blanda af staðaleit, gönguferðum og ísköldum böðum í náttúrunni, allt gert fyrir heilsuna, gleðina og til að brjóta upp rútínuna.

Árið 2024 ákvað ég að stofna hóp hér á Höfn sem ég kalla Sea Lions. Vor og sumar eru alltaf annasamir tímar, margir koma hingað til starfa, mikið er um að vera, veðrið gott og.... vatnið er alltaf kalt. Ferðirnar okkar leiddu okkur á einhverja fallegustu staðina hér í Hornafirði. Hver útivist var nýtt ævintýri, fullt af spennu, adrenalíni og þessari ólýsanlegu sæluvímu sem fer um mann þegar dópamín flæðir um líkamann. Við komum alltaf heim hamingjusöm, endurnærð og tilbúin fyrir það sem næsti dagur færir okkur.

Kaldar dýfur eru fyrst og fremst kraftmikil endurstilling fyrir líkama og sál.

Þetta snýst um að stíga út fyrir þægindarammann, sjá líkamann bregðast við kuldanum og finna hvernig hann nær aftur jafnvægi.

Því fylgir augnablik þar sem allar áhyggjur hverfa og þú ert í algjörri núvitund, einfaldlega hér og nú. Þess vegna laðast svo margir að ferðum okkar, þrátt fyrir upphaflegan ótta. Ég hef varla

tölu á því hve oft ég hef heyrt „Þetta er ekki fyrir mig“, „Ég gæti aldrei gert þetta“ eða „Þið eruð klikkuð“, og svo séð sömu manneskjur standa við hliðina á mér, sokknar upp að hálsi í vatninu við Skútafoss, Jökulsárlón eða Haukafell.

Ótti hefur oft stór augu, við hræðumst gjarnan það sem við þekkjum ekki. Þess vegna unnum við með Nýheimum í sumar og buðum yngstu krökkunum að æfa sig, kynnast köldu vatni og uppgötva ávinning kaldra baða.

Ef þú vilt fylgjast með því sem við erum að plana fyrir árið 2026, þá er bara að fylgja okkur í Facebook-hópnum „Sea Lions, Höfn, Iceland“. Vonandi sjáumst við næst úti í náttúrunni.

Maciej Różański

Maciej Różański fyrir framan Fláajökul
Hluti af meðlimum Sea Lions

Höfum bætt við okkur

ýmiskonar gjafavöru.

Dömuúr, herraúr og skart. Hjartanlega velkomin.

Gleðileg jól

Sigga og Stefán

Við óskum viðskiptavinum og samstarfsfólki gleðilegra

jóla og farsældar á komandi ári með þökk fyrir

viðskiptin og samstarfið á árinu sem er að líða

Gleðilega hátíð

notalegrar jólahátíðar og gæfu og gleði á nýju ári.

Verbúðarbarinn okkar er opinn alla daga frá 16–23. Verið velkomin! Frá 18–20 er gleðistund með drykkjum á tilboðsverði og hægt að panta létta rétti af snakkseðli.

Gleðilega hátíð

Gleðilega hátíð

Hótel Jökull óskar Hornfirðingum

og viðskiptavinum gleðilegra jóla

og þakkar fyrir árið sem er að líða

HÖFN VERÐUR ALLTAF HEIMA

Sumir brottfluttir Hornfirðingar líta aldrei til baka meðan aðrir finna djúpa tengingu við heimabæinn sinn þrátt fyrir að vera með póstnúmer í öðru bæjarfélagi. Sædís Harpa Stefánsdóttir er ein af þeim sem segist ennþá fara heim á Höfn og leitar þangað þegar hana vantar innblástur.

Sædís Harpa flutti suður eftir útskrift frá framhaldsskólanum á Höfn og útskrifaðist með BA í Tómstunda- og félagsmálafræði og Master í kennslu list- og verkgreina með áherslu á sjónlistir. Hún vinnur sjálfstætt að listsköpun sinni og kennir samhliða myndlist á unglingastigi í Garðabæ.

STÚKUSALURINN FRÁBÆRT TÆKIFÆRI

Sædís Harpa á það til að fá heimþrá og fóðrar hana með listsköpun sinni. Sýningin hennar Manstu eftir… vakti mikla athygli sumarið 2024 og seldist upp áður en henni lauk. Þar málaði hún verk eftir ljósmyndum frá Hirðingjunum, nytjamarkaðinum á Höfn. Sædís er þakklát fyrir umræðurnar sem mynduðust í kringum sýninguna, bæði um liðna tíma og framtíðina.

Í sumar kom hún í annað skiptið austur á Höfn með sýningu og í þetta skiptið í Stúkusalinn. Öll erum við mávar var hluti af Menning í Miklagarði og tóku Hanna Dís Whitehead og Ragnheiður Sigurðardóttir Bjarnason einnig þátt. Þar velti Sædís fyrir sér

Mynd úr Ljóðakistunni, á innfelldu myndinni má sjá sumarhúsið sem var innblásturinn að myndinni.

Sædís Harpa Stefánsdóttir

Mynd: Rakel Ýr Stefánsdóttir

sambandi okkar við máva og varpaði ljósi á fegurðina við þá, þótt þeir séu stundum smá pirrandi. Það gefur greinilega góða raun að vera með sýningu á Höfn því í kjölfar sýningarinnar var Sædís beðin um að setja hana upp í Epal í maí 2026.

Um þessar mundir leggur Sædís alla sína vinnu í útgáfu Ljóðakistunnar. Ljóðakistan er samansafn af 20 myndskreyttum söngspjöldum með íslenskum vísum, þar sem fuglinn Ljóð og hagamúsin Lag eru í aðalhlutverki. Ljóðakistan er gefin út af Bókabeitunni í samstarfi við Ljóð og Lag sem var stofnað fyrr á árinu af Sædísi Hörpu, Halldóru Guðlaugu Þorvaldsdóttur og Júlíu Sif Liljudóttur. Sædís er jafnframt myndhöfundur verksins en litlu munaði að hún tæki það ekki að sér vegna tímaleysis og reynsluleysis á sviði bókaútgáfu. Þetta er fyrsta myndskreytingarverkefnið hennar en klárlega ekki það síðasta. Hún hvetur öll til að grípa gæsina (eða mávinn) meðan hún gefst og láta tækifærin ekki fljúga í burtu.

HÖFN INNBLÁSTUR MYNDSKREYTINGA LJÓÐAKISTUNNAR

Tungumálið er Sædísi hugleikið og sérstaklega gömlu íslensku vísurnar sem eru menningararfur okkar Íslendinga. Ljóðakistan sameinar list, sögur, leiki, ljóð og tónlist en með verkefninu vilja Sædís, Júlía og Halldóra minna fólk á að orð eru töfrar, tónlist veitir gleði, og samvera er dýrmætasta gjöfin sem við getum gefið hvort öðru. Íslenska er ekki bara tungumál, hún er brú á milli kynslóða og menningar og ef við gætum hennar ekki, hver á þá að gera það?

Myndirnar eru óður til heimabæjarins og leitaði Sædís á æskuslóðir þegar hún vann að þeim. Sem dæmi má nefna sumarhúsið sem afi hennar og amma byggðu á Mýrunum, símaborð ömmu hennar og kassabíl sem hún og bróðir hennar smíðuðu fyrir kassabílarallí á Humarhátíð þegar þau voru yngri. Bíllinn var vissulega mjög fallegur en of þungur til að ná verðlaunasæti. Hann fékk þó bikar fyrir frumlegasta bílinn og er Sædís ennþá mjög stolt af þeirri viðurkenningu.

Ljóðakistan er fáanleg í Nettó á Höfn, á Ljodoglag.is og helstu bókaverslunum um land allt.

SELIÐ, VIRKNI OG STUÐNINGSÞJÓNUSTA

Í Selinu sem opnað var á haustdögum, fer fram virkni og stuðningsþjónusta fyrir fatlaða og langveika einstaklinga í Sveitarfélaginu Hornafirði. Starfsemin miðar að getu og áhuga hvers og eins. Verkefnastjóri virkni og dagþjónustu er Ragnheiður Rafnsdóttir, hjúkrunarfræðingur en einnig starfa þær Aðalheiður Sól og Klara Ösp í Selinu.

Við reynum að hafa fjölbreytt úrval verkefna fyrir alla. Verkefni eins og að perla, mála, leira, tálga og föndra allskonar en við erum nokkuð öflug í kerta- og sápugerð.

Venjulegur dagur gæti litið einhvern veginn svona út: Byrjum í morgunmat og spjalli, svo er farið yfir í Selið og allir gera það sem þá langar og stundum langar fólki ekki að gera neitt og það er allt í góðu. Stundum felst virknin í að koma og spjalla, fá sér kaffibolla og hitta aðra. Svo er hádegismatur og eftir hádegið reynum við að gera eitthvað annað eins og spila, pússla, gönguferðir eða rúntur. Einnig erum við nýfarin að syngja saman í Ekru á mánudögum kl 13.00. Svo hefur verið upplestur, slökun og hugleiðsla í boði ásamt stólayoga í Ekru á föstudögum. Við

njótum þess að taka þátt í hátíðisdögum og þess háttar og það er vinsælt að baka vöfflur.

Skjólstæðingar virkni- og stuðningsþjónustu á blíðviðrisdegi upp í Lóni

Þessa dagana eru jólin í fyrsta sæti, allskonar jólaföndur, bakstur og fleira sem fylgir jólunum hjá flestum.

Við tókum þátt í aðventuhátíð sveitarfélagsins og vorum með ýmsan varning til sölu t.d. útikerti í niðursuðudósum og þorláksmessu-sápu með ljóði sem var mjög vinsæl. Við erum dugleg að endurnýta efni og nota hluti sem

Ungmennasambandið Úlfljótur - USÚ sendir aðildarfélögum, sjálfboðaliðum og

Hornfirðingum nær og fjær

Hugheilar jólakveðjur með ósk um gleði og gæfu á komandi ári.

við finnum í náttúrunni eins og steina, tré og fleira til föndurgerðar. Eins og áður sagði er mikilvægt að það séu fjölbreytt verkefni í boði þar sem geta einstaklinganna er mismunandi og mikilvægt að allir finni eitthvað við sitt hæfi. Það að hafa eitthvað fyrir stafni, stuðlar að daglegri rútínu sem eflir líkamlega, félagslega og andlega færni. Einnig getur iðja og virkni haft dýpri merkingu fyrir fólk með fatlanir þar sem það styrkir sjálfsmynd og sjálfstæði og þegar fólk velur hverju það tekur þátt í eykst tilfinning þess fyrir stjórn á eigin lífi. Enginn getur allt en allir geta eitthvað. Sendum kærar jólakveðjur til allra vina og velunnara.

Ragnheiður Rafnsdóttir

Bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár. Með þökk fyrir viðskiptin á árinu sem er að líða.

ÞORRABLÓT

FÉLAGS ELDRI HORNFIRÐINGA

Sindrabær

30. janúar 2026

kl. 19:00

10.500 kr.

Miðasala fer fram þriðjudaginn 27. janúar

kl. 16-18 í Ekru. Ekki er tekið við kortum.

Þeir sem óska eftir akstri til og frá Sindrabæ fá allar frekari upplýsingar í miðasölunni.

Nefndin

Breytt leiðakerfi á Suðurlandi

1. janúar 2026 straeto.is

Kæru ættingar og vinir.

Sendum okkar bestu jóla- og nýársóskir með þökk fyrir árið sem er að líða.

Hátíðarkveðjur

Sigurður og Jóhanna, Stórulág

Okkar bestu óskir um gleðilega hátíð og farsæld á nýju ári.

Kær kveðja Björk og Geir

Við sendum fjölskyldu, vinum og Hornfirðingum öllum okkar bestu óskir um gleðileg jól og gæfu og frið á nýju ári. Þökkum fyrir allar góðu stundirnar á árinu sem er að líða.

Ragga og Grétar, Kirkjubrut 9

Sendum Austur Skaftfellingum, nær og fjær, hugheilar jóla- og áramótakveðjur.

Þökkum stuðning á liðnum árum.

Minnum á árlegu skötuveisluna í Holti, 18. desember kl. 19.30.

Félagskonur í kvenfélaginu Einingu á Mýrum

Óska vinum og ættingjum gleðilegra jóla með þökk fyrir árið sem er að líða.

Gunnar Ásgeirsson

Kæru ættingjar, vinir og Hornfirðingar allir. Við óskum ykkur gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Hátíðarkveðjur

Kristinn, Sandra og fjölskylda

Takk fyrir samveruna á árinu sem er að líða Hátíðarkveðjur frá fjölskyldunni Hagatúni 4.

Anna og Emil

Sóley, Jóhann og Egill

Óskum viðskiptavinum okkar sem og öllum

Austur-Skaftfellingum gleðilegra jóla og farsæls

nýs árs. Með þökk fyrir viðskiptin á árinu. H. Christensen ehf.

Okkar bestu óskir um

Gleðileg jól og farsæld á komandi ári, með þökk fyrir hið liðna.

Reynir og Svandís Vesturbraut 21, Höfn

Óskum öllum íbúum Hornafjarðar gleðilegra jóla og nýárs

Pálmi og Elín Lækjarbrekku

Sendi sýslubúum hugheilar jólaog nýárskveðjur. Með þökk fyrir viðskiptin á árinu sem er að líða

Dr. med vet. Janine Arens

Kæru ættingjar og vinir

Okkar bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár. Með þökk fyrir árið sem er að líða.

Jólakveðja Eygló og Ásgeir

JÓLAMINNING ÚR ÖRÆFUM

Greinarhöfundur: Sigrún Sigurgeirsdóttir

Í gömlum jólasögum er oft talað um hvað það var hátíðlegt þegar jólaljósin voru kveikt og að allir fengu kerti í jólagjöf. Það er ótrúlega stutt síðan ljós voru munaðarvara og þurfti að fara sparlega með þau.

Fyrsta raflýsingin á Íslandi kom í Hafnarfirði í árslok 1904 en í Öræfum kom fyrst raflýsing á Fagurhólsmýri

árið 1922 þegar Helgi Arason setti upp sína fyrstu virkjun. Miklir frumkvöðlar og hugsjónamenn í báðum Skaftafellssýslum sáu til þess að rafvæðingin gekk hratt á þessu svæði, mun hraðar en í sumum öðrum landshlutum. Enginn núlifandi Öræfingur man hvernig lífið var án rafmagns en Ari langafi minn lýsti því í bréfi til vinar síns hvað það sé mikill munur að hafa rafmagn á Fagurhólsmýri, bæði gaf það ljós og yl.

Í dag eru ljósin alls staðar, en þegar sveitin var að rafvæðast fyrir um hundrað árum síðan voru aðstæður ekki jafn góðar og við þekkjum í dag. Landbúnaður var undirstaða heimilanna því allir þurftu að vera sjálfbjarga með mjólk og kjöt. Það var hvorki notaður tilbúinn áburður né fóðurbætir, kindur voru á beit nánast allan veturinn til að spara heyið. Víða má sjá tóftir gamalla beitarhúsa því það var auðveldara að halda fé á beit með því að dreifa því um svæðið, heldur en að hafa allt féð í einu fjárhúsi. Það er auðvelt að sjá fyrir sér hversu mikið öryggi fólks jókst þegar útiljós voru sett upp, sérstaklega þeirra sem fóru út að sinna húsdýrum daglega í öllum veðrum – það hlýtur stundum að hafa verið erfitt að rata aftur heim í snjókomu eða byl.

Fyrstu rafstöðvarnar voru yfirleitt afllitlar en dugðu fyrir ljósum og eldavélarhellu. Heima hjá mér var

Mynd frá 100 ára afmæli rafstöðvarinnar í Skaftafelli

til bökunarofn sem Helgi bróðir Guðnýjar ömmu hannaði og smíðaði, ofn sem hægt var að setja á eldavélarhellu. Sjálf man ég ekki eftir honum í notkun því það var komin aflmeiri rafstöð á Fagurhólsmýri svo hægt var að nota venjulegan bökunarofn við heimarafmagnið. Það var mikið framfaraskref þegar Öræfin tengdust inn á rafmagn frá Smyrlabjargarárvirkjun en þá kom bæði sterkara rafmagn og meira af því, svo það var hægt að kaupa alls konar rafmagnstæki sem ekki var hægt að nota áður.

Á unglingsárunum mínum var mikið bakað fyrir fyrir jólin: lagtertur, rjómatertur og aldrei færri en tíu tegundir af smákökum. Jólanna var beðið í eftirvæntingu, það var harðbannað að laumast í smákökurnar fyrr en hátíðin gengi í garð! Síðustu dagana fyrir jól þurfti iðulega að skammta rafmagnið: það var hægt að baka í Suðursveit fyrir hádegi og Öræfum eftir hádegi (eða öfugt). Það mátti alveg treysta því að í jólapökkunum voru bækur og ég á yndislegar minningar um bernskujólin þar sem við lágum í bókum, nutum þess að borða alls konar góðgæti og vera saman við marglit ljósin á jólatrénu.

Sigrún Sigurgeirsdóttir

UPPBYGGINGARÁR HJÁ

SKINNEY-ÞINGANESI

Árið 2025 hefur verið bæði viðburðaríkt og spennandi hjá Skinney-Þinganesi hf., þar sem stöðug vinnsla, fjárfestingar og tækniþróun mótuðu starfsemi ársins. Rekstur félagsins hefur verið öflugur þrátt fyrir miklar áskoranir í umgjörð sjávarútvegs og áfram haldið á þeirri uppbyggingarbraut sem hefur einkennt fyrirtækið undanfarin ár.

Árið hefur einkennst af umfangsmiklum framkvæmdum og áframhaldandi fjárfestingum í innviðum og tækni. Stærstu verkefni ársins eru smíði nýs uppsjávarskips í Skagen í Danmörku, ásamt byggingu á nýrri alsjálfvirkri frystigeymslu á Höfn, en báðar fjárfestingar eru nú komnar á lokametrana. Með nýrri tækni verður vinnsla uppsjávarafurða bæði skilvirkari og orkuminni og skapar geymslan þannig mikilvægan grunn fyrir framtíðina.

Á árinu lauk einnig stórum endurbótum á fiskimjölsverksmiðjunni, sem styrkja reksturinn til lengri tíma og bæta heildarorkunýtingu. Í framhaldi af þeim framkvæmdum var settur upp nýr landtengingarbúnaður, sem gerir okkur kleift að landa úr skipum á rafmagni í stað olíu. Þetta er mikilvægt skref í átt að umhverfisvænni og hagkvæmari starfsemi og mun nýtast sérstaklega vel þegar nýr Ásgrímur Halldórsson SF-250 kemur til Hafnar á fyrri hluta næsta árs.

Veiðar og vinnsla gengu vel á árinu og bolfiskvinnsla var stöðug bæði á Höfn og í Þorlákshöfn. Samstarfið við Gjögur hf. í uppsjávarveiðum hélt áfram á árinu. Þá var Jóna Eðvalds SF-200 seld til Horneyjar ehf.,

Fiskimjölsverksmiðjan séð frá lofti

sem er í sameign Skinneyjar-Þinganess og Ísfélags hf. Skipið hefur hlotið nafnið Júpíter VE-161 og var gert út á makríl á árinu. Það verður áfram nýtt í tilfallandi verkefni hjá báðum eigendum.

Samfélagsleg þátttaka er og verður áfram mikilvægur hluti starfseminnar. Á árinu tók fyrirtækið þátt í kostnaði við uppbyggingu nýs björgunarsveitarhúss á Höfn - mikilvægu verkefni sem styrkir

bæði öryggi og samheldni bæjarins. Slík verkefni, ásamt fjárfestingum ársins og innleiðingu nýrrar tækni, leggja traustan grunn fyrir áframhaldandi uppbyggingu félagsins á komandi árum.

Við sendum Hornfirðingum og starfsfólki okkar hlýjar jóla- og nýárskveðjur og þökkum kærlega fyrir gott samstarf á árinu 2025.

Skinney-Þinganes

Nýja frystigeymslan hjá Skinney-Þinganesi

Óskum Hornfirðingum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs með þökk fyrir liðna

Inga Kristín og Bjössi

Höfn Staðarleiðsögn sendir

Hornfirðingum öllum innilegar

hátíðarkveðjur og þakkar

viðskiptin á árinu sem er að líða.

Óskum ættingjum og vinum

gleðilegra jóla með þökk fyrir árið sem er að líða.

Gugga og Siggi

Skinney -

Kæru vinir !

Gleðileg jól og gæfuríkt komandi ár. Þökkum hlýjar kveðjur og góðar samverustundir á árinu sem er að líða.

Gerða og Unnsteinn

Okkar allra bestu jóla- og áramótakveðjur til vina, ættingja og Skaftfellinga allra hvar sem þeir eru á jarðarkringlunni.

Þórgunnur og Ásgrímur

Við sendum okkar allra bestu óskir um gleðileg jól. Takk fyrir ánægjulegt samstarf á liðnu ári.

Jóhann Morávek og Kristín G Gestsdóttir

Þinganes

hf. óskar starfsfólki sínu, viðskiptavinum og Hornfirðingum öllum gleðilegra jóla og þakkar samstarfið á liðnu ári

Jökulsárlón Ferðaþjónusta

Óskar öllum íbúum Austur-Skaftafellssýslu gleðilegr jólaogfarsældarákomandi ári

JÓLAKVEÐJA FRÁ SKJÓLGARÐI

Í tilefni þessarar hátíðarútgáfu Eystrahorns fannst mér tilvalið að segja frá starfsemi Skjólgarðs.

Starfsemi Skjólgarðs snýst fyrst og fremst um fólkið sem þar býr og eyðir síðustu ævidögunum, og starfsfólk leggur sig fram við að gera þeim lífið sem best. Á Skjólgarði er pláss fyrir 27 íbúa í hjúkrunarrými og jafnframt eru 3 sjúkrarými sem eru rekin í samstarfi við HSU. Ekki hefur verið fullnýting á hjúkrunarrýmunum síðustu ár svo íbúasamsetningin er blönduð Hornfirðingum, íbúum frá Djúpavogi og nærsveitum, og einnig íbúum sem koma til okkar frá Reykjavík þar sem biðlistar eru langir. Eins og hefur líklega ekki farið framhjá Hornfirðingum þá standa yfir framkvæmdir að nýrri viðbyggingu við hjúkrunarheimilið. Framkvæmdir hafa valdið því að þrengt hefur að starfseminni þar sem við höfum misst rými undir framkvæmdir. Við höfum lagt okkur fram við að halda uppi öflugri starfsemi og vil ég meina að okkur hafi tekist það með ágætum. Við reynum að búa íbúum áhyggjulaust líf þar sem mismunandi þörfum er sinnt alla daga ársins. Starfsemin er nokkuð fastmótuð, eftir morgunmat tekur við hreyfiprógramm þar sem flestir íbúar hjóla, fá sér göngutúr, gera æfingar og taka þátt í leikfimi. Samhliða er unnið með félagslegar þarfir íbúa sem geta verið margs konar. Það er farið í orðlu, tekist á við krossgátur, listahópar eru starfandi,

tónlistarhópur og kaffiklúbbar í smærri hópum. Eins er farið út í gönguferðir, dagdvölin í Ekru heimsótt, haldin böll, farið út að hjóla á hjólinu okkar svo eitthvað sé nefnt. Við fáum einnig heimsóknir frá sjálfboðaliðum sem lesa fyrir íbúa eða spila tónlist. Tónskólinn kemur reglulega til okkar og einnig leikskólabörn. Ég vil færa þeim þakkir sem hafa gefið sér tíma til að aðstoða okkur við að stytta íbúum stundir og bjóða upp á fjölbreytta afþreyingu.

Byggingaframkvæmdirnar við Skjólgarð hafa fengið mikla og oft á tíðum neikvæða umræðu að undanförnu og auðvitað leiðist okkur að þurfa að bíða svo lengi eftir afhendingu húsnæðisins. Í

nýbyggingunni eru 20 hjúkrunarrými og því þurfa einhverjir íbúar enn að deila herbergi með öðrum fyrst um sinn. Þegar við verðum flutt í nýbygginguna hefjast framkvæmdir í gamla húsnæðinu þar sem verður ein deild með 10 herbergjum og þar verða einnig þrjú sjúkrarými. Í gamla húsnæðinu verður einnig aðstaða fyrir hár- og fótsnyrtingu og sjúkraþjálfunaraðstaða. Við höfum fengið að skoða nýbygginguna reglulega og við erum fullviss um að húsnæðið verður algjör bylting fyrir okkur og það er mjög fallegt. Hvenær við flytjum hefur nú ekki verið fastsett en það verður örugglega á næsta ári.

Nú þegar jólahátíðin er á næsta leiti er gott að gefa sér tíma, heimsækja ástvini og skapa þægilegar samverustundir. Gestir eru ávallt velkomnir og má hafa samband við undirritaða ef áhugi er fyrir að aðstoða okkur með einhvers konar sjálfboðastörfum.

Jólakveðjur frá starfsfólki Skjólgarðs Matthildur Ásmundardóttir, sjúkraþjálfari og verkefnastjóri Skjólgarðs

Ekrubandið tekur lagið fyrir íbúa Skjólgarðs

VETRARÆVINTÝRI MEÐ JÖKLUM OG JÖKUM

Veturinn er tími jöklanna. Og þá um leið sérstakra ævintýra sem ekki er hægt að upplifa á öðrum árstíma. Áður en ég flutti til Hornafjarðar fyrir rétt tæpum 20 árum hafði ég mjög takmarkaða innsýn inn í þessa ævintýraveröld. Auðvitað þekkti ég snjó og frost og það kom fyrir að ég, borgarbúinn, brá mér á skíði en heilt yfir var veturinn inni-tími hjá mér. Tími sem maður notaði í bóklestur eða til að hlusta á plötur eða annað sem inniveran gaf færi á. Útivist að vetrarlagi var bara hreinlega ekki í kortunum - enda ekkert „þarna úti“ annað en vetrarmyrkur og -kuldi. Eða hvað?

Þetta átti allt heldur betur eftir að breytast. Það byrjaði allt með blámanum. Álengdar sá ég sá hann byrja að springa út í skriðjöklunum um miðjan nóvember fyrsta veturinn minn á Höfn. En vissi ekkert hvað væri á seyði, hélt jafnvel að þetta væri bara einhver sjónvilla eða tálsýn. Svo var það einn góðan veðurdag næsta vetur, í byrjun febrúar 2008, að forvitnin varð vananum yfirsterkari. Ég brá mér upp í jeppann og keyrði að Hoffellsjökli og sá þá jökul í vetrarbúningi í fyrsta sinn í návígi.

Þetta var skömmu eftir að Austurfljótið hætti að flæða úr lóni Hoffellsjökuls og yfirborð lónsins hafði lækkað svo mikið að ég gat gengið þurrum fótum alveg að jökuljaðrinum. Tugir ef ekki hundruð stórra jaka höfðu strandað við lónsbakkann, þar á meðal nokkrir dimmbláir á lit sem seiddu augað til sín. Þessa jaka myndaði ég í bak og fyrir með myndavél sem ég hafði þá nýlega eignast. Síðan fór ég að mynda jökulinn sjálfan sem ég gat nú labbað beint út á.

Eftir þetta fór ég að venja komur mínar að Hoffellsjökli á öllum árstímum til að taka myndir og njóta fagurrar náttúru og næsta vetur steig ég svo fyrst fæti út á lónið sjálft. Þetta hófst með myndaleiðangri á jóladag 2009 þar sem ég hætti mér samt ekki langt frá þurru

landi. En nóg til að heillast gjörsamlega af því að geta gengið inn á milli blárra jaka af öllum stærðum og gerðum og með ótal blátónum. Það er undursamlegur heimur sem gefur íshellunum ekkert eftir (þótt heimsókn í þá geti líka verið stórkostleg upplifun).

Ég sagði Dúdda vini mínum í Hoffelli frá þessari fyrstu heimsókn og hann bauðst til að fara með mig í lengri leiðangur yfir lónið. Það var ógleymanleg ferð í alla staði og svo mögnuð að við ákváðum að fara aftur strax næsta dag, því það var svo margt að skoða. Með okkur í för var Kolli, smalahundur

góður og mjög tryggur húsbónda sínum –hann var ekkert sérstaklega spenntur fyrir svona vitleysisgangi en fylgdi samt í hvert fótmál Dúdda – augljóslega til að gæta hans – fyrri daginn.

En þegar við komum aftur að lóninu daginn eftir höfðu orðið mikil og snörp veðrabrigði – lofthitinn hafði snarhækkað og þá leist hvutta ekki á blikuna. Hann harðneitaði að fara með okkur út á ísinn en hélt sig við bakkann og gólaði á eftir okkur. En við létum gól hans sem vind um eyrun þjóta sem var kannski ekki mjög gáfulegt því bráðum fóru að sjást pollar á ísnum

Tignarlegur jaki á ísilögðu Hoffells lóni

og alltaf brakaði og brast meir og meir í honum sem varla hafði látið frá sér hljóð daginn áður. En við komumst þó heilir og höldnu til baka og vorum að minnsta kosti jafnfegnir því og Kolli!

öðrum orðum, ekki ferðamenn heldur heimamenn. Lón Hoffellsjökuls hafði umbreyst í samkomustað Hornafirðinga. Þangað mætti ég síðan sjálfur ítrekað á meðan kalt hélst í veðri og alltaf hitti ég eitthvert fólk þar fyrir. Og sá ekki annað en að allir skemmtu sér konunglega.

Nú liðu árin og alltaf

sætti ég færis á að fara út á frosin jökullón þegar aðstæður leyfðu.

Sjaldan sá ég nokkra aðra manneskju bregða fyrir í þessum ferðum þótt ég kæmi stundum auga á nýleg spor í snjónum eða rispur eftir jöklabrodda á ísnum. Reiknaði þá með að þar væru erlendir gestir á ferðinni sem höfðu rambað á lónið og ákveðið að skella sér út á það (til allrar hamingju veit ég ekki um nein dæmi –nema frá Jökulsárlóni – um fólk sem hefur komið sér í bráða hættu í slíkum ferðum).

Ég rak því upp stór augu á Nýársdag 2021 þegar ég kom að Hoffellsjökli, einu sinni sem oftar, og sá fjölda fólks vera að spóka sig úti á freðnu lóninu. Þarna voru greinilega heilu fjölskyldurnar á ferðinni, fólk með ung börn á sleðum og aðrir að viðra hundana sína. Eða með

Meginskýringarinnar var auðvitað að leita í Kófinu – venjulegar jóla- og nýárssamkomur lágu niðri og það gat jafnvel verið lífshættulegt að sækja þær. Og enginn var heldur að skreppa í jólafrí til útlanda. Fólk leitaði því að einhverju öðru sem gaf færi á góðri samvist með fjölskyldu eða vinum, dægradvöl og skemmtun eða bara einfaldlega því að geta andað rólega undir berum himni. Þótt ég hafi ekki síðan orðið var við jafnmiklar mannaferðir á jökullónum þá leyfi ég mér samt að ímynda mér að eitthvað af þessari upplifun hafi setið eftir hjá þeim sem nutu hennar. Og að ég muni því hitta fleiri sveitunga mína fyrir á jökulsvellinu næstu veturna. En farið þið varlega, sérstaklega ef enginn smalahundur er með í för!

GLEÐILEG JÓL!

Þorvarður Árnason

“Hálfa” af greinarhöfundi

FJÖGUR ÁR AF UPPBYGGINGU NÆSTU SKREF KEX FRAMBOÐS

Árið 2022 var Kex Framboð stofnað og bauð fram í fyrsta sinn í sveitarstjórnarkosningum í Sveitarfélaginu Hornafirði. Kjörtímabilið hefur gengið vel og samstarf við hina flokkana sem og starfsfólk sveitarfélagsins hefur verið farsælt. Það hefur margt áunnist á síðustu 3 ½ ári og erum við ánægð með þau verkefni sem við höfum náð að koma á laggirnar þó að auðvitað sé það þannig að maður nái aldrei að gera allt.

SAMFÉLAGIÐ Í FYRSTA

SÆTI

Við höfum unnið að fjölbreyttum verkefnum, m.a.:

• Endurskoðun samninga við nánast öll félagasamtök.

• Uppbyggingu leikvalla og vinnu við heildstæða leikvallaáætlun.

• Bættri aðstöðu í félagsheimilum.

• Stækkun leikskólans Sjónarhóls

• Umbótum í sorphirðu og málaflokknum í heild.

• Aukin fjárveiting í viðhald eigna sveitarfélagsins.

• Fullklárað Sindrabæ (nema hljóðkerfi sem er á leiðinni).

• Sterk samskipti við atvinnulíf og Vatnajökulsþjóðgarð. Sérstaka áherslu á þátttöku og aðkomu ungs fólks.

• Viðurkenningu sem Barnvænt sveitarfélag – fjórða sveitarfélagið á landinu til að hljóta þann titil.

• Endurskoðun á innri starfsemi og skipuriti sveitarfélagsins til að styrkja þjónustu og bæta starfsaðstæður starfsfólks.

Við erum einnig stolt af virkri hagsmunabaráttu gagnvart ríki og stofnunum. Þar má nefna hringtorgið, framlenging bráðaviðbragðs í Öræfum yfir veturinn, og öflugt samstarf við FSRE um uppbyggingu hjúkrunarheimilis. Þá höfum við átt gott samstarf við þingmenn og aðra kjörna fulltrúa sem hafa reynst okkur mikil aðstoð í hinum ýmsu málum.

Við höfum lagt okkur fram við að sinna öllum þeim ólíku hópum sem saman mynda sveitarfélagið. Börnum, eldri borgurum, erlendum íbúum, íbúum í dreifbýli og þéttbýli.

Við erum stolt af okkar fjárhagsáætlun sem við afgreiddum nú fram í fjórða sinn. Í henni má sjá þær áherslur sem við höfum unnið með á þessu kjörtímabili. Metnaðarfull framkvæmdaáætlun sem endurspeglar okkar áherslur vel þar sem unnið er af krafti að innviðum um sveitarfélagið allt.

BYGGJUM TIL FRAMTÍÐAR

Þó að metnaðarfullar framkvæmda-áætlanir liggi fyrir er ljóst að ekki verður allt unnið á einu kjörtímabili. Sumar framkvæmdir þurfa lengri undirbúning, aðrar hafa tafist af ýmsum ástæðum.

Við hefðum viljað að íþróttahúsið væri komið lengra en hinsvegar hefur öll sú vinna verið til góðs og mun leiða til þess að allir kostir hafa verið fullkannaðir þegar framkvæmdin loksins hefst.

Þá hafa einnig komið upp áhyggjur af stöðu húsnæðis Grunnskóla Hornafjarðar sem við höfum nú samþætt framkvæmdaplani varðandi íþróttamannvirki á miðsvæðinu. Oft var þörf en nú er nauðsyn, að koma börnunum okkar í framtíðar aðstöðu til náms og leiks sem hugsuð er með heildstæðum hætti til lengri tíma.

NÆSTU SKREF Í MÁLEFNAVINNU

Við erum full eldmóði að halda áfram og vinna fyrir sveitarfélagið með hag þess alls fyrir brjósti. Næstu mánuðir verða því þéttir fram að kosningum með málefnavinnu og fjölbreyttum viðburðum.

Okkur finnst mikilvægt að fólk sjái sig og samfélagið sitt í stefnuskrá flokksins og þess vegna viljum við fá sem flesta að borðinu þegar við förum af stað í málefnavinnu.

Í janúar munum við boða til fyrsta málefnafundar og við hvetjum ykkur öll til að hafa samband, senda okkur ábendingar og taka þátt í að móta samfélagið okkar saman til framtíðar.

Okkar bestu jóla- og nýárskveðjur, Eyrún Fríða Árnadóttir, formaður bæjarráðs Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir, bæjarfulltrúi

Efnalaug Dóru óskar viðskiptavinum sínum og starfsfólki gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.

Fjölskyldan á Bakka sendir sínar bestu óskir um gleðileg jól og von um gæfuríkt nýtt ár.

Jólakveðja

Sigga, Guðrún, Sverrir Þorri, Styrmir Hrói og Þura Soffía

Sendum ættingjum og vinum innilegar hátíðarkveðjur.

Ari og Sigga, Hólabrekku

Við óskum öllum okkar vinum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári, jólakveðja

Helgi Hilmar og Jóhanna Ránarslóð 4

Kæru ættingjar og vinir. Gleðileg jól og farsælt komandi ár. Óskar og Laufey

Ættingjar og vinir um land allt. Bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár. Innilegar þakkir fyrir allt gott á liðnum árum.

Fjölskyldan Stapa

FÉLL FYRIR NÁTTÚRUNNI

OG UMHVERFINU

Greinarhöfundur: Albert Eymundsson

Fyrir rúmu ári kom til starfa hér í Bjarnanesprestakalli nýr ungur orgelleikari, Hrafnkell Karlsson. Það er ástæða til að kynna hann betur og notfæra þennan vettvang.

ÓLST UPP Á ÝMSUM STÖÐUM

Ég flutti ungbarn með fjölskyldu minni í Voga á Vatnsleysuströnd. Þá bjuggu einungis um 900 manns þar, góður staður til að ala upp börn og nóg að gera líkt og við þekkjum hér á Hornafirði. Skólagangan var skemmtileg en erfið líka. Síðar fluttum við í Hafnarfjörð og ég fór í Menntaskólann við Hamrahlíð. Þar var ég á tónlistar- og félagsfræðibraut en útskrifaðist einungis á tónlistarbrautinni vegna galla í kerfinu. Síðast bjó ég í stúdentaíbúð í Grafarholtinu í Reykjavík meðan ég kláraði orgelnámið áður en ég kom hingað fyrir rúmu ári.

MIKILL TÓNLISTARÁHUGI Í ÆTTINNI

Tónlistaráhuginn kemur bæði úr móður og föðurætt. Pabbi hefur spilað og samið tónlist alla tíð, mikið popp og hljóðfæratónlist og gefur enn út tónlist á síðum eins og Soundcloud og fleira. Móðurfjölskylda mín hefur í nokkrar kynslóðir verið í klassískri tónlist og lært á hljóðfæri, þar má nefna Bryndísi Höllu sellista og Nínu Margréti píanóleikara sem hafa báðar kennt mér á einhverjum tímapunkti. Þá má ekki gleyma móðurafa mínum, Fjölni Stefánssyni tónskáldi, fyrirmynd sem hefur veitt mér mikinn innblástur í tónlistinni. Hann spilaði á selló þegar hann var yngri og frá honum kemur þessi áhugi á sellói í ættinni og ég lærði og spilaði á í yfir áratug. Áhugi á orgelleik kemur seinna og man ég alltaf eftir sögu sem mamma sagði mér þegar hún tók mig með í Hallgrímskirkju að kaupa miða á jólatónleika Mótettukórsins. Þegar ég kom inn í kirkjuna og sný mér við og undrandi á að sjá þetta gígantíska hljóðfæri. Mamma útskýrði orgelið sem leit út eins og lítið hús í mínum augum og sagði að hægt væri að spila á það. Ég bætti píanónámi við sellónámið og þurfti að taka ákvörðun á hvort hljóðfærið ég vildi sérhæfa mig að

spila. Ég var óákveðinn og neitaði að velja. Í staðinn prufaði ég orgelnám í eitt ár hjá Lenku Máteóvu í Kópavogskirkju sem hafði spilað undir hjá Drengjakór Reykjavíkur sem ég hafði sungið með í nokkur ár undir stjórn Friðriks S. Kristinssonar. Þá var ekki aftur snúið og hér er ég enn að spila á orgel. Ég spilaði seinna á orgelið í Hallgrímskirkju við útskrift mína og söng einnig í Mótettukórnum undir stjórn Harðar Áskelssonar í um fimm ár.

HVERS VEGNA HORNAFJÖRÐUR?

Ég var að vinna hjá Isavia samhliða organistastarfinu en það var eitthvað sem gekk ekki upp. Ég þurfti á breytingum að halda og þegar maður sendir einhverja ósk út í kosmóið þá svarar það með einhverju. Þá hringir þáverandi söngmálastjóri þjóðkirkjunnar, Guðný Einarsdóttir, í mig og spurði hvort ég hefði áhuga að taka að mér starf organista og kórstjóra á Hornafirði. Eftir nokkur samtöl við Guðnýju og Albert, Gullu og Bróa sem voru á fundi með söngmálastjóra þá ákvað ég að skoða þetta af alvöru og mér var boðið í heimsókn á Hornafjörð. Leist mér svo vel á fólkið, bæinn, náttúruna og umhverfið að ég ákvað að gefa þessu tækifæri og hér er ég enn.

STARFIÐ MEÐ FÓLKINU

Samskipti við fólkið í öllum sóknum prestakallsins hefur verið mjög gott. Ég nýti mér reynslu samstarfsfólksins og hlusta á hugmyndir þeirra og tillögur, sömuleiðis hefur mínum áherslum líka verið vel tekið. Starf mitt er bæði að vera organisti við sóknirnar fimm í sýslunni og æfa og stjórna Samkórnum. Kórinn æfir á þriðjudagskvöldum og syngur bæði veraldlega og andlega tónlist. Það er alltaf gaman að hittast á æfingum og syngja saman. Svo erum við einnig í góðu samstarfi við alla hina kórana hér. Það fer

Hrafnkell við orgelið í Hafnarkirkju

mikill tími í undirbúning fyrir athafnir og kallar á gott samstarf við alla viðkomandi aðila og svo þarf ég að æfa mig vel, sérstakleg þegar flutt er tónlist sem ég hef ekki spilað áður eða látið kór syngja. Svo fæ ég ýmsar, jafnvel frumlegar hugmyndir og hef áhuga að fylgja þeim eftir og skapa notalegar og öðruvísi stundir í kirkjunni. Ég hvet fólk til að fylgjast með og mæta ef boðið er upp á slíka viðburð. Mikið yrði ég ánægður ef einhverjir fleiri vildu koma á æfingu hjá kórnum og sjá hvort þeir gætu ekki hugsað sér að taka þátt í starfseminni.

KENNI LÍKA Í GRUNNSKÓLANUM

Ég kenni tónmennt í fyrsta til sjötta bekk og áherslan er að kynna tónlistina á almennum nótum og grundvallaratriði eins og hvað eru nótur og þessi merki sem við notum í tónlist. Sömuleiðis að hlusta á fjölbreytta tónlist frá ýmsum löndum og tímabilum innan tónlistarinnar og æfa okkur að tala saman um tónlist, nýta hugtökin sem við höfum lært og alltaf með virðingu fyrir mismunandi smekk og skoðunum.

ER ÁNÆGÐUR HÉR

Ég elska að vera hér á Hornafirði. Ég þekki svona bæjarbrag vel eftir að hafa alist upp í Vogum. Fólkið er æðislegt og gott að vinna með en kannski voru

það náttúran og umhverfið með fjöllin, fjörðinn og hafið sem heilluðu mig mest. Að búa í svona litlum bæ með einstaka náttúrufegurð og umhverfi er einmitt það sem ég er að sækjast eftir. Svo var það sérstaklega gleðilegt þegar maki minn Luis flutti til mín núna síðasta sumar og erum við ekki lengur aðskildir, komnir loksins undir sama þak. Hann vinnur í dag í framhaldsskólanum hér á Höfn og líður okkur mjög vel. Þess má geta sérstaklega hvað fólk er búið að taka vel á móti okkur báðum í sveitarfélaginu, ekki hægt að hugsað sér betri móttökur, vinskap og samstarf.

JÓLATÓNLEIKAR KARLAKÓRSINS JÖKULS OG GESTA

Sunnudaginn 21. desember

Kl. 20:00 í Hafnarkirkju

Hinir árlegu jólatónleikar sem Karlakórin Jökull

stendur fyrir verða sunnudagin 21. desember 2025. Miðaverð 2500 kr.

Hægt er að leggja inn á reikning og sýna kvittun við miðasölu: BN: 0169 - 26 - 1510. Kt: 610280-0139

Hrafnkell á yngri árum að spila á Selló

ÁRIÐ Á MENNINGARMIÐSTÖÐINNI

Nú þegar jólin eru að ganga í garð er mér þakklæti efst í huga. Fyrir um ári síðan tók ég við starfi forstöðumanns Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar og á þessu síðasta ári hef ég kynnst enn betur þeim mikla fjölbreytileika og krafti sem býr í samfélaginu okkar. Starfssvið Menningarmiðstöðvarinnar er víðtækt og starfið síbreytilegt, allt er þó gert til að þjónusta samfélagi sem best, í nútíð og framtíð.

Rannsóknir og varðveisla skipa stóran sess í starfi okkar en þjónusta við samfélagið ekki minni, aðgangur að gögnum, listum og viðburðum er snertiflötur okkar við samfélagið í nútíð og mikill og ánægjulegur drifkraftur fyrir starfsfólkið.

TEYMI MENNINGARMIÐSTÖÐVARINNAR

Starfsárið hefur einkennst af miklum mannabreytingum, nýjum verkefnum og meiri snertingu við samfélagið. Auk mín í starfi forstöðumanns er safnvörður Svavarssafns, Birta Guðjónsdóttir, bæði nýr starfsmaður og íbúi svæðisins, Vilhjálmur Magnússon kom aftur til starfa hjá sveitarfélaginu og sér nú um markaðsmál og viðburði. Guðbjörg Halldóra Ingólfsdóttir flutti einnig heim og tók við starfi verkefnastjóra ferðamála og fyrir skemmstu bættist Hanna Dís Whitehead í hópinn sem byggðasafnsvörður. Þá eru þrír nýir starfsmenn sem deila einu stöðugildi á kvöld- og helgarvöktum í Gömlubúð. Einnig samdi sveitarfélagið við Nýheima þekkingarsetur um 50% stöðu byggða- og nýsköpunarfulltrúa sem fellur undir stofnunina. Reynsluboltar menningarmiðstöðvarinnar hafa tekið vel á móti nýliðunum og standa þétt við bakið á okkur, þ.e. Dagur Snær Guðmundsson á héraðsskjalasafninu, Sandra Björg Stefánsdóttir á bókasafninu og Sigríður Guðný Björgvinsdóttir á rannsóknarsviðinu. Teymi menningarmiðstöðvarinnar er því öflugt og ákaflega vel mannað til að takast á við áskoranir og þjónustu við síbreytilegt samfélag.

GAMLABÚÐ

Endurvakning Gömlubúðar var stóra verkefnið í ár og verður áfram á nýju ári. Miklar vangaveltur höfðu verið um nýtingu hússins innan sveitarfélagsins og þar rekin tímabundin upplýsingamiðstöð ferðamanna. Menningarmiðstöðin hefur nú fengið þetta dásamlegt hús í varanlegt fóstur og opnuðum við dyrnar á ný þann 1. júní síðastliðið sumar, á sjómannadeginum sjálfum, við mikla gleði íbúa. Góð stemning hefur verið í húsinu síðan þá og hefur samfélagið tekið endurvakningu Gömlubúðar fagnandi. Hornfirskir tónlistarmenn undir forystu Hauks Þorvaldssonar stukku til og buðu íbúum og gestum upp á lifandi tónlist í hverri viku í allt sumar. Það var mikill fengur fyrir Gömlubúð að geta boðið upp á svo veglega dagskrá í samstarfi við heimafólk og kunnum við öllum þeim sem fram komu kærar þakkir fyrir. Íbúar og gestir hafa fyllt húsið af lífi undanfarna mánuði og boðið hefur verið upp á listasmiðjur, fræðsluerindi og fjölbreytta viðburði.

Við tökum fagnandi við áhugasömum einstaklingum sem nýta vilja rýmið í þágu samfélagsins á opnunartíma hússins sem er alla daga kl.14-20.

Yfirstandandi jólasýning í Gömlubúð er einstaklega falleg og flytur gesti aftur í tímann. Á efri hæð hússins eru íslensku jólasveinarnir kynntir til leiks á íslensku og ensku og munir þeim tengdum úr fórum byggðasafnsins gefa frásögninni skemmtilegan blæ. Hvetjum við sérstaklega nýbúa Hornafjarðar til að kíkja við og læra um íslenskar jólahefðir. Í risi Gömlubúðar er boðið upp á notalega stemningu og borðspil fyrir gesti og gangandi nú í desember.

Ævintýri Gömlubúðar heldur áfram en á liðnu ári hlaut Menningarmiðstöðin styrk úr Kvískerjasjóði til að setja upp sýningu til heiðurs Kvískerjafjölskyldunni í Gömlubúð. Sýningin verður í þróun allt næsta ár enda af mörgu að taka, starfsfólk Menningarmiðstöðvarinnar hefur þegar hafið ferlið, heimsótt Kvísker og heyrt sögur af fólkinu sem þar bjó frá aðstandendum. Sköpunarferli sýningarinnar verður sýnilegt í Gömlubúð

Gamla búð var endurvakin á árinu
Kristín Vala forstöðumaður Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar

yfir árið 2026 og íbúar eru hvattir til að fylgjast með handtökunum sem búa að baki sýningagerðarinnar, segja sögur af fólkinu ef það þekkir til og taka þátt í ferlinu. Aðaláhersla verður lögð á yngsta barn Kvískerjafjölskyldunnar Hálfdáns Björnssonar sem var mikill náttúrufræðingur og mun sýningin opna á 100 ára afmælisdegi hans, 14. mars 2027.

SAMFÉLAGSÞÁTTTAKA LYKILLINN AÐ ÖFLUGU MENNINGARLÍFI

Menningarmiðstöðinni barst óvænt og skemmtilegt verkefni síðastliðið vor þegar óskað var eftir stuðningi við Graffíl –listahátíð ungs fólk. Hugmyndaríkir nemendur úr FAS hófu undirbúning hátíðarinnar í frumkvöðlaáfanga í skólanum, hlutu styrk frá bæjarráði og stóðu að frábærri og þéttri dagskrá fyrstu Graffílhátíðarinnar 19. júlí síðastliðinn. Aðstandendur hátíðarinnar voru öll undir 18 ára aldri og var verkefnið mikið lærdómsferli en þau hlutu einnig stuðning úr ólíkum áttum í samfélaginu, skemmst er frá því að segja að skemmtifélagið sá til þess að tónlistarupplifun væri til fyrirmyndar og SkinneyÞinganes lánaði Skreiðarskemmuna sem setti góða umgjörð um hátíðina. Á dagskrá voru fjölbreyttir viðburðir, tíska-, myndlist, tónlist, kvikmyndir, dans, graffítí, sundlaugarparty og margt fleira var á boðstoðnum – frítt fyrir alla! Nú þegar er verið að leggja drög að næstu Graffíl hátíð og hvetjum við ungt fólk sem vill taka þátt með listsköpun, framkomu eða skipulagningu hátíðarinnarl að hafa samband!

Það besta við starf mitt hjá Menningarmiðstöðinni er hvað ég hef komist í samband við margt skapandi og framtakssamt fólk hér á svæðinu. Mannlífið hér í sveitarfélaginu er mótað af okkur, það sem ekki er í boði er oft einfalt að framkvæma og hvetja aðra til að vera með. Við sem hér búum erum lykilaðilar samfélagsins og þurfum að virkja okkur og aðra til þátttöku. Graffíll, Humarhátíð, Þorrablót, Blúshátíð, leiksýningar og fleira er allt til hér fyrir tilstillan framtakssamra einstaklinga sem bjóða fram vinnu sína samfélaginu öllu til góða. Ég hvet áhugasama um þátttöku að setja sig í samband við skipuleggjendur og ég get einnig aðstoðað við að tengja saman fólk. Þá vil ég hvetja íbúa til að kynna sér nýjar úthlutunarreglur styrkja sveitarfélagsins á hornafjordur.is, þegar hefur verið opnað fyrir umsóknir fyrir árið 2026 og hvet ég alla sem búa yfir góðri hugmynd að sækja um og láta stóra eða smáa hugmyndir verða að veruleika á nýju ári.

Hér var aðeins sagt frá nýjum áherslum Menningarmiðstöðvarinnar á árinu en hefðbundið starf á bókasafni, héraðsskjalasafni, listasafni og rannsóknarsviði heldur einnig áfram að blómstra og verður gerð betri skil á facebook síðu Menningarmiðstöðvarinnar og endurbættri heimasíðu okkar mmh.hornafjordur.is á nýju ári.

Ekki er hægt að ljúka pistli um menningarlíf Hornafjarðar á árinu án þess að nefna Hlaðvarp Gömlubúðar. Þegar eru komnir út 14 þættir með fjölbreyttan hóp áhugaverðra Hornfirðinga. Hlaðvarpið er aðgengilegt á öllum helstu streymisveitum og verður sennilega helsta samkeppnin við jólabókaflóðið í ár! Ég hvet alla til að hlusta og óska Hornfirðingum öllum gleðilegrar hátíðar og hlakka til að taka á móti ykkur í starfi Menningarmiðstöðvarinnar á nýju ári.

Jólakveðja, Kristín Vala Þrastardóttir Forstöðumaður Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar

Jólasveinarnir mættu þegar kveikt var á jólatréi sveitarfélagsins

Haukur Helgi Þorvaldsson ásamt Einari Sigjónssyni spila á nikkurnar í Gömlubúð

Innilegar hátíðarkveðjur

Gulla, Brói, Svanfríður og Ingvi

Óskum ykkur öllum gleðilegra jóla með þökk fyrir vináttu og

tryggð alla tíð.

Svava og Siggi

Við óskum Hornfirðingum öllum gleðilegra jóla og þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða

Þjónustumiðstöð SKG

Tjaldsvæðið á Höfn

Óskum Skaftfellingum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs með þökk fyrir liðna

Sturlaugur og Helga Lilja

Sendi Hornfirðingum mínar bestu jóla og nýjárskveðjur

Sigbjörn Guðmundsson

Sendi öllum vinum og vandamönnum bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár með þökk fyrir liðnar samverustundir.

Svava Sverrisdóttir

Sendum ættingjum og vinum hugheilar jólaog nýársóskir með þakklæti fyrir liðin ár.

Pálína og Ólafur Svínafelli

Óskum öllum ættingjum og vinum Gleðilegra jóla og gæfu og gleði á nýju ári

Sigrún, Unnar Freyr, Vigdís Dröfn og Kristján Darri

Við sendum ykkur öllum okkar bestu óskir um gleðileg jól og farsælt nýár.

Bestu þakkir fyrir allt liðið.

Guðrún og Þórir

Sendum vinum og vandamönnum innilegar jóla- og nýárskveðjur með þökk fyrir liðin ár.

Snæja og Stebbi

Gleðileg jól og farsælt komandi ár. Þökkum liðnar samverustundir.

Ingaló og Ari

Kæru Hornfirðingar

Gleðileg jól og farsælt komandi ár, þökkum liðin ár.

Kveðja, Gréta og Ingvaldur

FYRSTU HVÍTU JÓLIN MÍN

Greinarhöfundur: Aida Gonzáles Vicente

Jólin tákna fjölskyldusamveru, góðan mat, jólasöngva og göngutúra um bæinn, skreyttan ljósum, þar sem jólamarkaðir skapa hlýja stemningu.

Ég flutti til Íslands í desember árið 2016. Ég kom til landsins rétt eftir jól, tilbúin að hefja árið 2017 í nýju landi og full tilhlökkunar yfir því að upplifa mín fyrstu hvítu jól.

Ísland tók á móti mér með miklu stórhríðarveðri. Allt varð hvítt á svipstundu. Hvað var þetta eiginlega? Ég sá varla neitt, vegir voru lokaðir, innanlandsflugi aflýst og allir bílaleigubílar uppbókaðir.

Sólarhring síðar gátum við ekið frá Reykjavík til Hafnar, þar sem ég kynntist hluta af íslenskri fjölskyldu minni. Allt var hvítt, dimmt og lokað. Daginn eftir tókst okkur að komast til Neskaupstaðar, þar sem ég upplifði mín fyrstu íslensku áramót og ótrúlega flugeldasýningu.

Á Spáni er hefð fyrir því að bjóða nýtt ár velkomið með því að borða tólf vínber í takt við klukkusláttinn á miðnætti. Hvert slag

Kæru Austur-Skaftfellingar

Óskum ykkur gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Með þökk fyrir viðskiptin á liðnum árum.

Þingvað ehf byggingaverktakar

Geir og Björk

Þingvað ehf byggingaverktakar

táknar eitt vínber og hvert vínber einn mánuð ársins. Takist manni að klára öll tólf er það talið boða gæfu og velmegun á komandi ári. Um leið er afar skemmtilegt að fylgjast með fjölskyldunni reyna þetta, þar sem fólk lítur eiginlega út eins og hamstur á meðan. Hefðin á rætur að rekja til loka 19. aldar, þegar vínberjauppskeran var óvenju mikil og bændur hvöttu fólk til að neyta meiri ávaxta. Ég mun aldrei gleyma þeirri upplifun sem fyrstu hvítu jólin mín voru, né þeirri gleði sem fylgdi því að hefja nýtt ár, ekki aðeins á Íslandi heldur sem hluti af íslenskri fjölskyldu.

Og hér er ég, níu árum síðar, búin að skapa mín eigin spænskíslensku jól, þar sem við höfum þrettán jólasveina sem ekki er alveg hægt að treysta, einn rauðan loðinn jólasvein og þrjá vitringa sem fylgja stjörnu.

Við óskum viðskiptavinum og Hornfirðingum gleðilegra jóla og farsæls nýs árs. Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða.

Ögmund ehf.

GAMLABÚÐ HLAÐVARP

Gamlabúð Hlaðvarp er nýr

vettvangur Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar þar sem Vilhjálmur Magnússon, verkefnastjóri markaðsmála og viðburða, ræðir við Hornfirðinga um lífið, reynslu þeirra og ýmislegt sem tengist samfélaginu.

Hlaðvarpið er blanda af fróðleik, fíflagangi og persónulegum röddum íbúa. Við hvetjum íbúa til að gefa sér tíma til að hlusta. Hlaðvarpsþættina má nálgast á Spotify. Hér eru tvær tilvitnanir í viðmælendur.

Ég vil hnykkja á því hvernig tónlistin sameinar einhvern veginn, bæði lönd og mismunandi menningarheima og síðan kynslóðir!

-Magnús Guðjónsson frá Hólmi

Kvennakór Hornafjarðar auglýsir viðburði um jólin

Jólasöngur heim að dyrum

Viltu gleðja ömmu og afa? Vini eða vandamenn? Viðskiptavini eða fjölskylduna?

Kvennakór Hornafjarðar verður syngjandi laugardaginn 20. desember til að gleðja bæjarbúa. Hægt er að hafa samband í síma 697-3116 og leggja fram pöntun.

20. desember 697-3116

Jólabingó í Nýheimum

Jólabingó Kvennakórs Hornafjarðar verður á sínum stað um jólin.

Sunnudaginn 28. desember Bingóið hefst kl. 14:00

Verð: 1000 kr. spjaldið

Veglegir vinningar í boði

Ég keypti gítar af Sigga Guðna. Svo kom Þröstur í heimsókn og hann sagði að þetta væri ekki hljóðfærakaup, þetta væri bara fjárfesting. Þannig datt mér í hug að kaupa bara falleg hljóðfæri í staðinn fyrir misjafnlega ljót

-Jón Haukur Hauksson

Jökla Dekk óskar viðskiptavinum og Hornfirðingum gleðilegra jóla og farsæls nýs árs. Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða

AFL Starfsgreinafélag, stjórn og starfsfólk, óskar þér og fjölskyldu þinni gleðilegra jóla og farsæls komandi árs.

HÓLMUR Á MÝRUM

UPPSPRETTA HUGMYNDA OG GRÆNMETIS

Í Hólmi á Mýrum búa hjónin Guðrún Guðmundsdóttir og Magnús Guðjónsson og reka þar búskap og ferðaþjónustu þar sem grænmetisrækt, kindur, alifuglar og móttaka gesta fléttast saman við daglegt líf. Einnig reka þau flutningafyrirtæki.

Þau kynntust við nám í bændaskólanum á Hvanneyri, þar sem sveitin heillaði þau bæði. Magnús er fæddur og uppalinn í Hólmi en Guðrún er frá Fossum í Austur Húnavatnssýslu. Þau keyptu jörðina Hólm af foreldrum Magnúsar í lok búskapar þeirra. Þau segja að það sem heilli mest við að búa í sveit sé náttúran og það að geta verið sjálfs síns herrar.

Í Hólmi er stunduð grænmetisræktun ásamt því að þau eru með kindur og alifugla, í alls kyns litum, skapgerðum og formi. Grænmetið og kryddjurtirnar rækta þau af því þeim finnst það einfaldlega skemmtilegt og mikilvægt að vita hvað þau eru að bjóða gestum sínum, viðskiptavinum og sjálfum sér að borða. Ræktaðar eru meðal annars ýmsar káltegundir, kartöflur, rófur og kryddjurtir. Þau eru sífellt að prófa eitthvað nýtt og segja árangurinn eðlilega misjafnan. Grænmetisræktun á Íslandi fylgir óvissa og veðrið ræður miklu.

Þau segja að þó oft sé sagt að eins og maður sái muni maður uppskera, þá sé það ekki alveg svo einfalt.

Á vorin fylgir því alltaf smá kvíði að flytja plöntur út í reiti, þar sem ómögulegt er að vita hvernig veðrið verður yfir vaxtartímann. Þau hafa upplifað frostanætur og jafnvel snjó í júní. Þar sem engin varnarefni eru notuð geta skordýr og sniglar einnig sett strik í reikninginn. Til að halda arfa niðri og skýla plöntunum hafa þau meðal annars verið að prófa að leggja hálm og ull yfir reitina. Þau lýsa þessu sem stöðugu tilraunastarfi þar sem reynslan

Guðrún að uppskera ásamt Arndísi Ósk dóttur þeirra hjóna

safnast smám saman.

Ræktunin í Hólmi tengist ferðaþjónustunni með beinum hætti. Afurðir úr ræktuninni eru nýttar í eldhúsið, bæði á morgunverðarborði gististaðarins og í kvöldverði yfir sumartímann þegar veitingastaðurinn er opinn. Einnig eru unnar vörur úr grænmetinu til sölu fyrir gesti, og til sölu á mörkuðum. Á staðnum hafa einnig verið haldnir ýmsir viðburðir,

þar á meðal árlegt írskt kvöld sem yfirleitt er haldið undir lok veturs, jólakaffi með lifandi tónlist og markaðir á aðventunni. Þá hafa oft verið ýmsir tónlistarviðburðir á veitingastaðnum og stundum uppskerumarkaður síðsumars.

Samhliða þessu eru þau að vinna að því að koma upp upptökustúdíói í Hólmi. Þau hafa þegar fjárfest í töluverðum búnaði og á staðnum er nóg af hljóðfærum. Ýmsar hugmyndir eru enn hjá þeim í mótun og ekki allt tilbúið til að líta dagsins ljós. Hugmyndir verða gjarnan til við eldhúsborðið og kostar það óhemjumikla kaffidrykkju. Sumar lifa stutt, aðrar lengur og sumar taka sig til flugs. Hvernig framtíðin þróast ræðst að hluta af því hvernig vindarnir blása, og á Hornafirði geta þeir blásið úr öllum áttum í einu.

Dagarnir á Hólmi eru sjaldnast eins og mótast af árstíðum, gestakomum og verkefnum. Samhliða búskap, ferðaþjónustu og flutningum skipar tónlist stóran sess í lífi þeirra og bæði syngja þau með Samkór Hornafjarðar. Og Magnús spilar einnig í hljómsveitum. Auk þess liggja áhugamál þeirra víða. Aðspurð um ráð til þeirra sem hugsa um að hefja búskap eða flytja í sveit nefna þau mikilvægi þekkingar,

Magnús í Hólmi

sem t.d. sé hægt að fá í bændaskólanum, aðgengi að fjármagni og virðingu fyrir náttúrunni, dýrum og landinu. Að lifa í sátt við umhverfið sé lykilatriði.

Að lokum deila þau einfaldri uppskrift úr eldhúsinu á Hólmi, viðeigandi á aðventu.

SÝRÐAR RAUÐRÓFUR

Rauðrófur, edik, vatn, sykur, hunang, negulnaglar og eða kanilstangir.

Ediki og vatni er blandað til helminga. Ef notaður er einn lítri af vökva eru um 800 grömm af sætu sett á móti, til dæmis 600 grömm af sykri og 200 grömm af hunangi. Kryddi er bætt út í eftir smekk. Rauðrófur eru sneiddar og soðnar í leginum í 40–50 mínútur, eftir þykkt sneiðanna.

Geymist nánast endalaust í óopnaðri krukku.

RISTAÐ GRÆNKÁL

Í nammimánuðinum nefna þau einnig einfalt millimál.

Grænkál er rifið niður, velt upp úr olíu, hafsalti og smá laukdufti og bakað í ofni eða air fryer þar til það er stökkt. Fyrir þá sem vilja má strá parmesan yfir eftir bökun.

Gleðileg jól.

K V E N F É L AG I Ð VA K A AUGLÝSIR VIÐBURÐI UM JÓLIN H

ÓSKUM ÖLLUM SKAFTFELLINGUM

GLEÐILEGRA JÓLA OG

FARSÆLDAR Á NÝJU ÁRI

KVE NF ÉL AGI Ð

Hátíðarstraumar um allt land

Gleðileg jól

Við óskum viðskiptavinum okkar, samstarfsaðilum og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og gæfu á nýju ári. Við leggjum línurnar að framþróun og uppbyggingu sem hreyfir samfélög á landsbyggðinni til framtíðar.

RARIK.IS

HRÚÐURKARLARNIR MARGT VITLAUSARA

Greinarhöfundur: Júlíus Sigfússon

Hrúðurkarlarnir eru uþb. sex mánaða gömul hljómsveit sem skipuð er eftirfarandi meðlimum: Bjartmar Ágústsson, kontrabassi, Halldór

Halldórsson, trommur, Heiðar Sigurðsson, píanó, bakraddir o.fl., Júlíus Sigfússon, gítar, söngur og blístur.

Við ákváðum að stofna minimalískt coverband og sáum fyrir okkur að taka létt og skemmtileg lög eftir aðra. Fyrsta æfingin var haldin á pallinum við bústaðinn hjá Heiðari uppi í Stafafellsfjöllum og úr varð hið skemmtilegasta partý. Þetta fannst okkur ákaflega skemmtilegt og því fannst okkur tilvalið að önnur æfingin yrði haldin við varðeldinn um verslunarmannahelgina, en þar hafa Heiðar og Júlli áður spilað undir nafninu Hei Jú.

Einhver hafði á orði að það að hafa Heiðar í hljómsveitinni og láta Júlla um sönginn væri svolítið eins og að láta Plácido Domingo tromma og Sigmund Davíð syngja. Við skildum ekki samlíkinguna til fulls, en vissum þó að þarna væri um hrós að ræða.

Ekki veit ég hvernig það atvikaðist, en allt í einu voru komin tvö frumsamin lög. Þá hættum við að spá í að æfa coverlög og tókum þá ákvörðun að taka lögin okkar bara upp í staðinn. Allt í einu vorum við búnir að gefa út tveggja laga smáskífu á netinu, eftir að hafa æft tvisvar sinnum, og aldrei æft lögin sem við tókum upp. Þetta fannst okkur ákaflega sniðugt fyrirkomulag og hugsuðum með okkur að hljómsveit sem þarf ekkert að æfa ætti að sjálfsögðu að gefa út lögin á löngu útdauðu formi sem aðeins örfáir steingervingar hefðu tök á að hlusta á. Smáskífan Margt vitlausara kom því út á sjö tommu vínyl 7. desember síðastliðinn, í 32 eintökum, sökum lesblindu. Ætlunin hafði verið að panta 25 plötur, en Júlla tókst að millifæra vitlausa upphæð og því komu 32 eintök. Nú sitjum við því skuldugir upp fyrir haus, enda hefur platan einungis selst í 25 eintökum þegar þetta er ritað.

Þennan sama dag og vínyllinn kom út tókum við óformlegt útgáfugigg í

Pakkhúsinu. Það var eiginlega tvöfalt útgáfuhóf, því sama dag kom önnur smáskífan okkar, Jólaenglabossar, út á Spotify, einnig með tveimur frumsömdum lögum.

Bjartmar og Dóri eru ákaflega þolinmóðir menn og þykjast bara hafa gaman af þessu öllu saman, meðan Júlli og Heiðar hnakkrífast tímunum saman um hvort eigi að bjóða upp á sörur og smákökur eða flatbrauð með hangikjöti og heitt súkkulaði við upptökur. Einnig rífast þeir um hvort lag eigi að fá að vera á hlið A, þar sem B-hliðar lög þóttu ekki jafn fínn pappír hér áður fyrr. Eftir strangheiðarlegt rifrildi, sjómann, skæri-blað-steinn og nokkur glóðaraugu komust þeir þó að þeirri niðurstöðu að Júlla-lag skyldi vera á hlið B og Heiðars lag á hlið 2.

Lögin hafa fengið góðar viðtökur á útvarpsstöðinni Trölli FM, sem næst í Eyjafirði, á Siglufirði og á Hvammstanga. Við viljum því stinga upp á að Höfn verði gerð að einhvers konar vinabæ þeirra

þarna fyrir norðan, með sameiningu í huga, og fá í kjölfarið Trölla FM í spilun hér á svæðinu. Einnig viljum við kanna áhugann á því að leggja niður útsendingu Rásar 2 hér á svæðinu, enda komust lögin okkar ekki áfram í jólalagakeppninni. Sigurjón bæjarstjóri gæti kannski svarað þeirri beiðni í næsta tölublaði.

Við viljum þakka frábærar viðtökur á þeim sex mánuðum sem hljómsveitin hefur starfað og óskum öllum lesendum gleðilegra jóla.

Áfram Hornafjörður, Eyjafjörður, Siglufjörður og Hvammstangi!

Jólakveðjur, Hrúðurkarlarnir

HORNAFJÖRÐUR ÁR FRAMFARA OG ÁRANGURS

Ég vil hefja þessa grein á að þakka Guðrúnu Ásdísi Sturlaugsdóttur og Tjörva Óskarssyni fyrir frábært framtak með hátíðarútgáfu Eystrahorns nú fyrir jólin. Það er ekki lítið verk að standa að slíkri útgáfu og fyrir það færi ég ykkur einlægar þakkir. Í þessari grein ætla ég að líta til baka yfir árið sem er að líða og stikla á stóru um áherslur, verkefni og tímamót í Hornafirði.

EFTIRMINNILEG FORSETAHEIMSÓKN

Í mars komu forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, og eiginmaður hennar, Björn Skúlason, í opinbera heimsókn til Hornafjarðar. Þetta var fyrsta opinbera innanlandsheimsókn forsetahjónanna og með henni sýndu þau samfélagi okkar mikla virðingu.

Í heimsókninni kynntu þau sér mannlíf og fjölbreytta starfsemi í sveitarfélaginu og heilluðu með einlægni sinni, ekki síst í samskiptum við börn og ungt fólk, þar sem hlýja, nærvera og áhugi á sjónarmiðum þeirra var áberandi. Hornafjörður skartaði sínu fegursta og lýstu forsetahjónin mikilli ánægju með heimsóknina.

BARNVÆNT SVEITARFÉLAG –VERÐMÆT VIÐURKENNING

Í ár hlaut Hornafjörður viðurkenningu UNICEF sem Barnvænt sveitarfélag, það fjórða hér á landi. Viðurkenningin var veitt við hátíðlega athöfn þar sem börn og ungmenni léku lykilhlutverk og undirstrikuðu að hér er ekki aðeins um titil að ræða, heldur mikilvæga vegferð.

Verkefnið byggir á Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og markmiðið er skýrt: að hagsmunir barna séu hafðir að leiðarljósi í allri ákvarðanatöku. Hugmyndin um „ekkert um börn án barna“ minnir okkur á að allt sem er gott fyrir börn er líka gott fyrir samfélagið í heild.

ÖRYGGISMÁL OG INNVIÐIR –SAMEIGINLEGT BARÁTTUMÁL

Öryggi íbúa og gesta hefur verið eitt af lykilviðfangsefnum sveitarfélagsins undanfarin ár. Hornafjörður er víðfeðmt sveitarfélag með krefjandi náttúru, mikla umferð ferðamanna og langar vegalengdir,

sem kallar á öfluga viðbragðsaðila og trausta öryggisinnviði.

Á árinu urðu mikilvæg tímamót þegar nýtt björgunarskip, Ingibjörg, kom til Hornafjarðar og samhliða var sett upp ný flotbryggja við höfnina. Þá standa Björgunarfélag Hornafjarðar og Slysavarnadeildin Framtíðin að byggingu nýrrar björgunarmiðstöðvar á Höfn sem verður tekin í notkun á næstunni og mun styrkja öryggisinnviði sveitarfélagsins verulega.

Í Öræfum var ný og öflug slökkvibifreið tekin í notkun og jafnframt hafin vinna við þarfagreiningu fyrir nýja björgunarmiðstöð sem stefnt er að því að rísi þar. Öryggismál eru okkur ofarlega í huga – og þau eru

sameiginlegt ábyrgðarmál okkar allra. FRAMKVÆMDAGLEÐI OG KRAFTUR

Eitt af því sem hefur einkennt árið í Hornafirði er framkvæmdagleði og trú á framtíðina. Sveitarfélagið sjálft, fyrirtæki og einstaklingar hafa ráðist í fjölmörg verkefni sem bæta aðstöðu, styrkja innviði og efla samfélagið til framtíðar. Af nægu er að taka og það sem hér er nefnt er langt frá því að vera tæmandi.

NÝR SINDRABÆR OG VIÐBYGGING VIÐ LEIKSKÓLANN

Á árinu lauk vel heppnuðum breytingum á Sindrabæ, þar sem aðstaða var stórbætt og húsið gert enn betur í stakk búið fyrir menningar- og félagslíf. Með framkvæmdunum fær Tónskólinn okkar glæsilega endurnýjaða aðstöðu sem styrkir tónlistar- og menningarstarf til framtíðar.

Jafnframt var vígð ný og glæsileg viðbygging við Leikskólann Sjónarhól sem hefur þegar skilað sér í betri aðstöðu fyrir börn og starfsfólk – mikilvæg fjárfesting í framtíð samfélagsins.

FJÁRFESTING Í SJÁVARÚTVEGI OG VERÐMÆTASKÖPUN

Atvinnulífið hefur sýnt sama metnað. Skinney-Þinganes hf. hefur ráðist í umfangsmiklar fjárfestingar, þar á meðal byggingu nýrrar, alsjálfvirkrar frystigeymslu sem markar tímamót í íslenskri sjávarútvegsstarfsemi.

Þá hefur fiskimjölsverksmiðjan farið í gegnum mikla endurnýjun og svo styttist í komu nýs uppsjávarskips félagsins, en afhending þess er áætluð um miðjan febrúar. Slík verkefni byggja á langtímahugsun og endurspegla sterka trú á samfélagið, atvinnulífið og áframhaldandi verðmætasköpun í Hornafirði.

HÚSNÆÐI, BÚSETA OG VAXANDI BÆR

Uppbygging íbúðarhúsnæðis hefur einnig verið áberandi. Í Hagahverfi, nýju og spennandi íbúðahverfi á Höfn, er verið að skapa fjölbreytt og vandað búsetuumhverfi með góðum tengingum við útivist, gönguleiðir og þjónustu.

Þar er lögð áhersla á skýrt skipulag, góða aðstöðu fyrir fjölskyldur og möguleika til uppbyggingar til framtíðar. Hagahverfi er mikilvægt skref í að mæta eftirspurn eftir lóðum og íbúðum og styrkja Höfn sem eftirsóknarverðan búsetukost.

árangur og segir sitt um kraftinn sem hér býr.

Kannski er eitthvað í vatninu, eins og spurt var – en líklegra er að skýringin sé fólkið sjálft: frumkvæði, dugnaður, stuttar boðleiðir og mikil samstaða.

Þegar fyrirtækjum gengur vel, gengur samfélaginu vel – og þessi hringrás er Hornfirðingum vel kunn.

SAMTAKAMÁTTUR Í SUÐURSVEIT

Ég vil einnig nefna samtakamáttinn í Suðursveit, þar sem íbúar hafa sýnt í verki hvað er hægt að gera þegar fólk stendur saman. Frjálsíþróttavöllur Ungmennafélagsins Vísis er ekki aðeins mannvirki, heldur tákn um dugnað, sjálfboðaliðaanda og samhug.

Það er þessi andi – fólkið sjálft – sem byggir samfélag til framtíðar.

Við þetta tækifæri vil ég líka nefna að vígslumót Vísis vallarins verður haldið 27. júní 2026, nákvæmlega ári eftir fyrstu skóflustunguna. Ég hlakka til að sjá sem flesta þar.

RÍKIÐ TEKUR ALFARIÐ VIÐ –SVEITARFÉLAGIÐ LOSNAR UNDAN FJÁRHAGSÁHÆTTU

losnað undan verulegri fjárhagsáhættu og framtíðarskuldbindingum sem nema hundruðum milljóna króna.

Þá liggur fyrir að Ístak mun taka verkefnið yfir sem stýriverktaki. Framkvæmdir eru nú að komast aftur á réttan kjöl og gert er ráð fyrir að taka nýja hjúkrunarheimilið í notkun næsta sumar.

LEIÐARSTEFIÐ ER SKÝRT –BYGGJUM NÝJAN MIÐBÆ FYRIR ÍBÚANA

Á árinu var stigið mikilvægt skref í átt að uppbyggingu nýs miðbæjar á Höfn. Markmiðið er að skapa lifandi og aðlaðandi miðpunkt bæjarins þar sem mannlíf, verslun, þjónusta, menning, íbúðir og opin svæði mætast.

Áherslan er skýr: að byggja miðbæinn fyrst og fremst fyrir heimafólk – reynslan sýnir að þegar hlutirnir eru gerðir fyrir samfélagið sjálft, verður staðurinn um leið aðlaðandi fyrir aðra.

NÝR VEGUR YFIR HORNAFJARÐARFLJÓT – ÞAÐ

HAFÐIST

Á næstu mánuðum verður nýi vegurinn yfir Hornafjarðarfljót opnaður og nú stendur yfir lokafrágangur framkvæmda. Um mitt ár náðist loks sú niðurstaða sem við höfum lengi barist fyrir: að fá hringtorg á veginn þar sem hann tengir þéttbýlið á Höfn og Nes, í stað tveggja stórhættulegra T-gatnamóta.

Vegurinn mun stytta leiðina til Hafnar um rúma 14 kílómetra og bæta bæði öryggi og tengingar innan sveitarfélagsins til framtíðar.

VERÐMÆTI JÓLANNA

Jólin minna okkur á að hægja á okkur og gefa því gaum sem skiptir mestu máli – samveru með fjölskyldu og vinum. Fyrir mér eru jólin tími þakklætis; fyrir samfélagið okkar, fólkið sem hér býr og starfar og fyrir það traust sem mér hefur verið sýnt.

KANNSKI EITTHVAÐ Í VATNINU?

Það vakti ekki litla athygli á árinu þegar Creditinfo birti lista sinn yfir

Framúrskarandi fyrirtæki og í ljós kom að sautján slík fyrirtæki hafa aðsetur í Hornafirði. Hlutfallslega er það einstakur

Eitt af stærri baráttumálum sveitarfélagsins á árinu var að losna undan fjárhagslegri ábyrgð á framkvæmdum við nýja hjúkrunarheimilið. Verkið hefur tafist verulega og skapað óvissu fyrir heimilisfólk og starfsfólk Skjólgarðs.

Nú hefur þó náðst mikilvæg niðurstaða þar sem ríkið hefur tekið verkefnið alfarið yfir og sveitarfélagið

Ég óska öllum Hornfirðingum, nær og fjær, gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Megi jólin færa ykkur hlýju, frið og góðar stundir með þeim sem ykkur þykir vænst um.

Sigurjón Andrésson, bæjarstjóri Forsetahjónin

Takk fyrir viðskiptin öll 34 árin okkar á Hafnarbúðinni

Við óskum Tómasi og Alla velfarnaðar á nýja árinu með vissu að að þeir muni taka vel á móti ykkur og gera góða og gómsæta hluti

INGIBJÖRG, KELI, DÆTUR OG DÆTRASYNIR

Gleðileg jól og farsælt komandi ár

Bókhaldsþjónusta Hornafjarðar sendir viðskiptavinum og nærsveitungum bestu óskir um gleðilega hátíð og heillaríkt komandi ár, með þökkum fyrir ánægjulegt samstarf á liðnu ári

BÓKHALDSÞJÓNUSTA

HORNAFJARÐAR

1/ Krosseyjarvegi7info@bokhorn.is

Þorkell er mörgum kunnugur, enda ólst hann upp á Höfn, sonur þeirra hjóna Grétars Más Þorkelssonar og Nönnu Dóru Ragnarsdóttur. Björg ólst hins vegar upp í miðbæ Reykjavíkur og segist vera algjör miðbæjarrotta, en það hafi komið sér vel að hafa heimsótt Hornafjörð reglulega síðustu átta árin. Leiðir þeirra lágu saman í tónlistarnámi í Tónlistarskóla FÍH árið 2017 og síðan þá hafa þau verið nátengd bæði í sköpun og starfi.

HEIMKOMA OG NÝR KAFLI Á HÖFN

Flutningurinn til Hornafjarðar varð til með nokkuð skyndilegum hætti. Í vor bárust þeim bæði kennslutilboð frá Jóhanni Morávek við Tónskóla AusturSkaftafellssýslu, á sama tíma og þau voru stödd í Osló að ljúka meistaranámi í tónlist. Óvissan um næstu skref varð til þess að þau ákváðu að slá til og flytja á Höfn, ekki síst þar sem stórborgarskarkalinn var farinn að þreyta.

Kennslan í tónskólanum hefur verið bæði krefjandi og skemmtileg. Þau segja miklu hafa munað um góða leiðsögn og stuðning frá samstarfsfólki og að vinnuaðstaðan sé til fyrirmyndar eftir endurbætur. Stemningin sé góð og áhugi nemenda greinilegur. Þau segjast hafa fengið hlýjar móttökur frá upphafi og að krakkarnir hafi tekið sér einstaklega vel.

FRÁ OSLÓ TIL HORNAFJARÐAR

Greinarhöfundur: Guðrún Ásdís Sturlaugsdóttir

Þorkell Ragnar Grétarsson og Björg Blöndal eru nýlega flutt til Hornafjarðar eftir margra ára nám og tónlistarstarf erlendis. Þau eru bæði tónlistarfólk og kennarar við Tónskóla AusturSkaftafellssýslu og hafa þegar látið að sér kveða í menningarlífi Hornafjarðar með tónleikum og ýmsum verkefnum.

Margir áttuðu sig á því í sumar, þegar þau spiluðu á Humarhátíð, að þau væru að fara að kenna þeim í haust. Síðan þau fluttu til Hafnar hafa þau spilað mikið við ýmis tilefni og segja orðið hafa spurst hratt út, fyrir það eru þau mjög þakklát.

Að vera hluti af litlu samfélagi finnst þeim bæði notalegt og krefjandi. Þau segja gott að búa þar sem allir þekkja alla, þó það geti líka verið varasamt að skjótast í Nettó á náttfötunum. Björg tekur fram að hún sjái mjög illa og geti því óvart sleppt því að heilsa fólki sem hún þekkir, einfaldlega af því hún þekki það ekki í sjón, og biður bæði fyrirfram og afturvirkt afsökunar á slíku.

Í slíku samfélagi þurfi tónlistarfólk jafnframt að vera tilbúið að bregða sér í ýmis hlutverk. Þau nefna sem dæmi að þau séu farin að æfa sig á túbu og althorn, og vonast til þess að fá inngöngu í lúðrasveitina þegar þau eru orðin nógu seig.

TÓNLIST OG VERKEFNI

Samhliða kennslunni eru þau bæði virk í eigin tónlistarverkefnum. Björg gaf út sína fyrstu plötu fyrr í haust með hljómsveitinni Björg Blöndal’s C4THERINE. Platan, Wild Blue Yonder, er tileinkuð móður hennar, Áslaugu Blöndal, sem lést árið 2021, og sameinar nútímajazz og psychedelic rokk. Útgáfunni var fagnað með tónleikum á Hafinu í ágúst og Björg kom einnig fram á Jazzhátíð Reykjavíkur. Hún er jafnframt meðlimur í skandinavísku hljómsveitinni I LOST MY LASER!, sem nýverið gaf út plötuna Laserism, tekin upp í beinni á tónleikum í Svíþjóð.

Þorkell er um þessar mundir að leggja lokahönd á sína aðra plötu með hljómsveitinni Ragnarök Trio. Platan,

Your Ass!, er væntanleg með vorinu. Tríóið spilar frumsamda tónlist eftir Þorkel þar sem pönk, jazz og frjáls spuni mætast. Fyrsta plata sveitarinnar, Prepare to Die, kom út í nóvember 2024 og er fáanleg bæði á streymisveitum og á geisladiski.

Auk þess eru þau tvö með dúóverkefni í vinnslu og stefna á upptökur á komandi ári.

HORFT FRAM Á VEGINN

Þau segjast ekki hafa gert sér sérstakar væntingar áður en þau fluttu, en það hafi komið þeim á óvart hversu mikið þau hafi fengið að spila við ýmis tilefni. Fyrir það eru þau afar þakklát og vonast til að það haldi áfram.

Fram undan eru einnig verkefni erlendis, meðal annars tónleikar í Hollandi þar sem þau koma fram á þungarokkshátíðinni Roadburn.

Í desember verður jafnframt mikið að gerast. Þau spiluðu jólatónlist í Gömlubúð 17. desember, Þorláksmessutónleikar þeirra á Hafinu hefjast klukkan 21:30 og annan í jólum, 26. desember, verður jóladansiball með hljómsveitinni Ær og Kýr á Hafinu. Þau hvetja bæjarbúa og nærsveitunga til að fjölmenna, ekki síst þar sem Þorkell hefur sett sér það markmið að safna fyrir nýjum gítar.

Björg Blöndal - Mynd: Felicia Ahlqvist
Þorkell Ragnar - Mynd: Hans Vera

Sveitarfélagið Hornafjörður

óskar íbúum, starfsmönnum og landsmönnum

öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári!

Myndin af Skyrgámi er frá yfirstandandi jólasýningu í Gömlubúð.

Á f o r s í ð u h e i m a s í ð u

s v e i t a r f é l a g s i n s m á f i n n a

u p p l ý s i n g a r u m o p n u n a r t í m a

s t o f n a n a y f i r h á t í ð a r n a r .

www.hornafjordur.is

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Hátíðarútgáfa Eystrahorn 1.tbl. 2025 by Héraðsfréttablaðið Eystrahorn - Issuu