

EYSTRAHORN
6. tbl. 44. árgangur 24. júní 2026
FRÁ RITSTJÓRA GLEÐILEGA HUMARHÁTÍÐ!
Humarhátíð verður ekki til af sjálfu sér. Hún verður til af fólki sem mætir, tekur þátt, leggur hönd á plóg og gerir eitthvað, stórt eða smátt, eftir því sem hver getur hverju sinni.

Nefndin sem stóð að hátíðinni árið 2018. Efst frá vinstri: Júlíus Sigfússon, Kristín Vala Þrastardóttir, Jónína Ágústsdóttir, Kristín G. Gestsdóttir, Guðrún Ásdís Sturlaugsdóttir, Steinunn Hödd Harðardóttir, Emil Örn Moravék, Vilhjálmur Magnússon, Tjörvi Óskarsson og Kristjón Elvarsson.
Það er stundum sagt að það sé alltaf sama fólkið sem geri allt og það er auðvitað eitthvað til í því. En það þarf ekki að vera þannig. Allir mega vera með. Ekki endilega í nefnd, ekki endilega með risastórt atriði á dagskrá, heldur bara með því að taka þátt, mæta, bjóða fram hjálp, koma með hugmynd eða skapa smá stemningu.
Sumarið 2017 fannst okkur Tjörva að við yrðum að taka þátt á einhvern hátt. Á þeim tíma fannst mörgum Humarhátíð hafa aðeins misst flugið. Dagskráin var einfaldari en áður og umræðan í bænum bar þess merki að fólk saknaði þess að sjá meiri þátttöku heimamanna.
Við ákváðum því að vera með atriði á dagskrá og úr varð Heimatjaldið. Við hóuðum saman nokkrum hornfirskum tónlistarmönnum sem voru tilbúnir að taka

lagið, leigðum viðburðartjald, keyptum nokkra kúta af bjór, redduðum leyfi fyrir áfengissölu og auglýstum viðburðinn í dagskrá Humarhátíðar. Við nutum góðs af frábærum sjálfboðaliðum og nokkrum styrktaraðilum og tókst að halda þessu á núlli.
Þetta var ekki stórt í sniðum, en það skipti máli. Það var okkar leið til að segja: við viljum vera með.
Hugmyndin þróaðist og árið 2018 buðum við okkur fram í Humarhátíðarnefnd. Okkur langaði að sjá hvort ekki væri hægt að blása meira lífi í hátíðina og kveikja aftur gamla neistann. Þar kom saman góður hópur fólks sem var tilbúið að leggja sitt af mörkum og prófa sig áfram.
Upphaflegi hópurinn hafði þó ekki mikla
reynslu af því að skipuleggja Humarhátíð og úr varð að við fengum Kristínu Gests með okkur. Ég man enn þegar ég pikkaði í hana á miðri Skólabrú, þar sem hún var á leið heim úr vinnunni, og spurði hvort hún gæti ekki verið sérlegur ráðgjafi nýrrar nefndar. Ég vissi vel að hún væri rétta manneskjan, enda búin að standa að baki hátíðinni á upphafsárum hennar. Hún var nú ekki alveg sannfærð, enda búin að skila sínu, en féllst á að koma á einn fund og gefa okkur góð ráð. Það var bara svo gaman á fyrsta fundinum að úr varð að hún varð hluti af nefndinni og hefur ekkert gefið eftir undanfarin ár, meðal annars með árlegum Morávekpalli þeirra Jóa.
Það er einmitt þetta sem gerir svona hátíðir dýrmætar. Reynslan frá þeim sem hafa gert þetta áður, krafturinn frá þeim sem koma ný inn og viljinn til að gera eitthvað saman.
Humarhátíð þarf ekki að vera fullkomin. Hún þarf fyrst og fremst að vera lifandi. Hún þarf fólk sem mætir og tekur þátt.
Ef einhver situr heima þetta árið og hugsar með sér að það vanti eitthvað í dagskrána, þá er kannski hugmynd fyrir næstu hátíð að fæðast?

GUÐRÚN ÁSDÍS Ritstjóri su m a rfrí EYSTRAHORN er komið í
JÚLÍ - ÁGÚST
Fyrsta blað eftir sumarfrí kemur út fimmtudaginn 3. sept. Skilafrestur er föstudaginn 28. ágúst 3. SEPTEMBER eystrahorn.is
Heimasíðan eystrahorn.is verður áfram opin fyrir tilkynningar og tilbúið efni. eystrahorn@eystrahorn.is
Útgefandi: HLS ehf.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Guðrún Ásdís Sturlaugsdóttir
Netfang: eystrahorn@eystrahorn.is
Sími: 867 6604
Heimasíða: www.eystrahorn.is
Prófarkalestur: Guðlaug Hestnes
Umbrot: Tjörvi Óskarsson
Forsíðumynd: Hörður Þórhallsson, Humarhátíð 2024
Prentun: Litlaprent
ISSN 1670-4126

HRÓSIÐ
Við hvetjum lesendur sem vilja hrósa eða þakka fyrir eitthvað í okkar samfélagi til að senda tölvupóst á eystrahorn@eystrahorn.is.
HUMARHÁTÍÐ
Hrósið frá mér
fær fólkið sem hefur staðið vaktina á Humarhátíðinni undanfarin ár.

Fólkið sem stendur á bak skipulagningu hátíðarinnar fyrir okkur heimamenn. Þetta er ólaunað starf með öllu og unnið í sjálfboðavinnu fyrir samfélagið. Allir sem standa vaktina yfir helgina og sjá til þess að hátíðin fari vel fram. Án ykkar væri engin Humarhátíð. Þið vinnið kraftaverk á hverju sumri, samhliða ykkar eigin vinnu, barnauppeldi og fórnið ykkar eigin tíma í að skemmta okkur hinum.
Takk fyrir mig,
Kristín G Gestsdóttir
GÓÐ ÞJÓNUSTA
Ég vil hrósa verkstæðinu hjá Ögmundi og Kristófer. Gott viðmót og vinnubrögð, snyrtimennska og það sem manni er sagt er að marka! Flott fyrirtæki.

Sömuleiðis vil ég hrósa Janine dýralækni fyrir öll góðu samskiptin, afgreiðslu á lyfjum þegar þörfin kallar og almennri fagmennsku. Það verður regluleg eftirsjá að henni þegar hún hættir hér í sumar. Takk fyrir allt Janine og vonandi fáum við góðan og færan dýralækni - annað væri afturför.
Kristín Jónsdóttir



Humarhátíðarnefnd árið 2025
Janine Arens dýralæknir
Verkstæði Ögmunds ehf.
ATLAGA AÐ ÍSLANDSMETUM Á VÍGSLUMÓTI VÍSISVALLAR
Aðsend grein: Bjarni Malmquist Jónsson
Um næstu helgi verður sannkölluð frjálsíþróttaveisla í Suðursveit þegar Ungmennafélagið Vísir heldur Vígslumót Vísisvallar við Hrollaugsstaði. Mótið er haldið nákvæmlega einu ári eftir fyrstu skóflustungu að nýjum frjálsíþróttavelli félagsins og markar tímamót í íþróttasögu svæðisins.
Vígsluhelgin hefst föstudaginn 26. júní klukkan 13:00 með dagskrá í tilefni af Alþjóðlega Ólympíudeginum í samstarfi við Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ). Börnum og ungmennum verður boðið að taka þátt í fjölbreyttum íþróttagreinum, leikjum og hreyfingu við allra hæfi.
Frjálsíþróttamótið sjálft fer fram laugardaginn 27. og sunnudaginn 28. júní. Setningarathöfn hefst klukkan 10:00 á laugardagsmorgni og fyrstu keppnisgreinar hefjast klukkan 10:30.
Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, ásamt hluta stjórnar sambandsins mun heiðra samkomuna með nærveru sinni við vígslu vallarins. Keppt verður í öllum stökk- og kastgreinum frjálsíþrótta auk 60 metra hlaups og 60 metra grindahlaups. Keppt verður í aldursflokkum 10-11 ára, 12-13 ára, 14-15 ára og fullorðinsflokki. Einnig fá 9 ára og yngri tækifæri til að spreyta sig í 60 metra hlaupi og boltakasti.
Þótt margt af fremsta frjálsíþróttafólki landsins verði meðal keppenda er mótið opið öllum. Mótshaldarar hvetja börn, ungmenni og fullorðna til að skrá sig og taka þátt, hvort sem markmiðið er að elta Íslandsmet eða einfaldlega njóta þess að keppa á nýjum frjálsíþróttavelli. Skráning fer fram á meets.rosterathletics. com og er skráningarfrestur til miðnættis fimmtudaginn 25. júní.
Keppendur víðsvegar af landinu hafa skráð sig til leiks, meðal annars frá Ármanni, FH, Fjölni, ÍR, Mána, Sindra, Dímon og fleiri félögum. Þar munu mætast afreksmenn fortíðar, nútíðar og framtíðar á einum og sama keppnisvellinum.
Meðal þeirra sem þegar hafa boðað komu sína er Hera Christensen, núverandi Íslandsmethafi í kringlukasti kvenna,


Vísisvöllur við Hrollaugsstaði verður vígður um næstu helgi með fjölbreyttri dagskrá og frjálsíþróttamóti þar sem fremsta frjálsíþróttafólk landsins verður meðal keppenda.
sem mun freista þess að bæta eigið Íslandsmet. Þá hafa nokkrir af sterkustu spretthlaupurum landsins skráð sig í 60 metra hlaup karla og telja mótshaldarar raunhæfan möguleika á að Íslandsmetið í greininni verði bætt á mótinu. Þar ber helst að nefna Kristófer Þorgrímsson sem er meðal þeirra sem eiga raunhæfan möguleika á að gera atlögu að núverandi Íslandsmeti.
Eitt af því sem vekur sérstaka athygli er stangarstökkskeppnin. Í fyrsta sinn verður keppt í stangarstökki í Suðursveit við nútíma aðstæður og aðeins í annað sinn á þessari öld innan USÚ. Nokkrir af fremstu stangarstökkvurum landsins eru skráðir til leiks og eiga möguleika á að stökkva yfir fimm metra markið.
Önnur grein sem vekur sérstaka athygli er 60 metra hjólastólasprettur, en slík keppni sést sjaldan á íslenskum frjálsíþróttamótum.
Lýsing á mótinu verður í höndum Sigurbjörns Árna Arngrímssonar sem mun fylgja keppendum og áhorfendum í gegnum dagskrána alla helgina.
Mótið er skráð í Global Calendar hjá World Athletics og verður því í fyrsta sinn hægt að ná alþjóðlega skráðum árangri á frjálsíþróttamóti í Suðursveit við fullgildar keppnisaðstæður.
Mótshaldarar hvetja alla áhugasama til að leggja leið sína að Vísisvelli um helgina, fylgjast með fremsta frjálsíþróttafólki landsins og taka þátt í þeirri gleði sem fylgir því þegar nýr kafli hefst í íþróttasögu Suðursveitar.
Bjarni Malmquist Jónsson Formaður USÚ og Umf. Vísis
MÝS EÐA MENN?
Við eigum land sem feður okkar fundu fjarri hinum suðlægari ströndum.
Þeir reistu byggð svo langt frá öðrum löndum í lágum kotum út með klettadröngum en elskuðu landið frá hinni fyrstu stundu.
Við eigum land með auðlegð hafs og dala, unaðsreiti, jökulhvel og tinda. Úti á miðum sjávarfiskar synda, svífa í lofti fuglar meðal vinda. Í blómskreyttri fjallshlíð lækirnir litlu hjala.
Við áttum land sem Íslendingar misstu, erlendu valdi þurftum við að hlíta.
Hér var um aldir fátt að brenna og bíta, beztu miðin aðrir fengu að nýta, soltnir menn á konungafætur kysstu.
Við endurheimtum land sem hafði lengi lotið valdi fjarri okkar ströndum. Soltin þjóð var loksins leyst úr böndum, líf og gæfa varð í eigin höndum. Landið og hafið léku á hörpustrengi.
Við eigum land sem ýmsir vilja gefa, Evrópa með náðarfaðminn bíður. Næðir í sumar vetrarstormur stríður stattu nú fast á móti æskulýður. Örlaganornir eru að spinna og vefa.
Við eigum land sem áfram þarf að vera utan hinna gylltu tjóðurbanda. Munum þá sem fullir frelsisanda fluttu ljósið aftur heim til stranda, kyndil sem áfram eigum við að bera.
Guðbjartur Össurarson, í júní 2026



Úti allt árið og fjúka ekki
handsmíðuð húsgögn úr gæðavið

Heimili og sumarhús
Bæjarfélög og opin svæði
Gistiheimili og hótel



Skoðaðu úrvalið og hafðu samband
info@utihusgogn.is
„VIÐ EIGUM AÐ SEGJA SÖGUR SEM BINDA HIÐ LIÐNA VIÐ FRAMTÍÐINA“
Aðsend grein: Þorbjörg Arnórsdóttir
Þórbergssetur hefur nú starfað í 20 ár þann 1. júlí næstkomandi. Stór og mikil opnunarhátíð var haldin 30. júní 2006. Þannig týnist tíminn í kringum okkur og flýgur áfram, og ef litið er til baka er margt að rifja upp og fjöldi viðburða og atburða sem einkennt hafa starfsemina undanfarin 20 ár.

Þar bera hæst ótal málþing, listviðburðir, sýningar og gönguferðir þar sem andi Þórbergs hefur svifið yfir, en einnig hefur Þórbergssetur veitt ótal styrki til menningarmála svo sem bókaútgáfu sem tengist héraðinu, listsköpunar, kvikmyndagerðar og stutt við menningarstarf hér heima fyrir.
Í tilefni afmælisins verður starfsemin blómleg þetta ár. Segja má að Jón Hjartarson leikari hafi riðið á vaðið með stórkostlegum einleik sínum úr
Sálminum um blómið í febrúarmánuði - sú kvöldstund var að mínu mati hápunktur starfseminnar hér í Þórbergssetri síðastliðin 20 ár. Veglegt málþing var síðan haldið í lok marsmánaðar, - samstarf við Framhaldsskóla Austur-Skaftafellssýslu hófst eftir áramótin og fjarnám tengt verkum Þórbergs Þórðarsonar var vel sótt og fjölmenn bridgehátíð var að vanda í apríl.
Gísli Sverrir Árnason hefur frá því um áramót unnið að skráningu allra muna í Þórbergssetri í safnaforritið Sarp, með aðstoð Björns Gísla Arnarsonar myndatökumanns, - einnig skráningu bókasafns og gjafa sem borist hafa til Þórbergsseturs í öll þessi ár. Það er víða sem Þórbergur og verk hans koma fram og ævinlega fylgir góður hugur og skemmtileg kynni og frásagnir frá þeim sem koma í Þórbergssetur færandi hendi og gjarnan með ólíkar gjafir til varðveislu. Það kallar aftur á móti á skyldur okkar að standa vel að skráningu og varðveislu muna - oft er um mikil menningarleg verðmæti að ræða og einlægar tilfinningar sem fylgja afhendingu en jafnframt ánægja viðkomandi gefenda að geta lagt eitthvað

af mörkum til minningar um þau Þórberg og Margréti eiginkonu hans.
Í sumar verða settar upp tvær nýjar sýningar í Þórbergssetri. Listasafn A.S.Í. bauðst til að lána í tilefni 20 ára afmælisins nokkur málverk frægra listamanna úr listaverkasafni Þórbergs og Margrétar sem þau hjónin ánöfnuðu Listasafni alþýðu á sínum tíma. Það verða því breytingar á Hringbrautinni og Umskiptingastofan fær tímabundið á sig svip myndlistar í bland við bókmenntaarfinn. Einnig verður sett upp ljósmyndasýning í Eystri sal með jöklalistaverkum sem Þorvarður Árnason lét birtast í linsuopi myndavélar sinnar síðustu 20 árin á samfelldu flakki um jöklalandslag sýslunnar, - á sýningu hans verða aðallega myndir frá Breiðamerkursandi og jöklaupplifun hans þar.
Það er því alltaf ástæða til að kíkja við í Þórbergssetri og sjá eitthvað nýtt á menningarsviðinu.
María Sjöfn listakona verður starfandi í júlímánuði við leiðsögn í Þórbergssetri og um að gera að njóta vel leiðsagnar hennar um staðinn.
Davíð Birgisson ungur háskólanemi í málvísindum hefur setið við síðustu vikurnar að skrá Esperantóbókasafn Íslands sem telur þúsundir bóka, bæklinga og tímarita og barst til varðveislu í Þórbergssetur fyrir tveimur árum. Bókasafnið skreytir vesturvegg Eystri salar í Þórbergssetri í fallegum sérsmíðuðum bókaskápum í stíl við bókaskápa Þórbergs.
Jón Hjartarson leikari í Umskiptingastofunni. Mynd úr safni Þórbergsseturs
Esperantósamband Íslands veitti styrk í þetta verkefni og ánafnaði Þórbergssetri safnið til varðveislu. Segja má að misjafnt hafist menn að í sveitum landsins, en tungumálið esperantó er alþjóðamál sem ruddi sér til rúms í veröldinni eftir aldamótin 1900. Með esperantó opnuðust Þórbergi hulduheimar heimsbókmenntanna og merkilegir menningarstraumar bárust til Íslands á árunum fyrir heimsstyrjöldina síðari með innleiðingu þess.
VIÐBURÐIR FRAMUNDAN
Tónleikar í samstarfi við Kálfafellsstaðarkirkju verða að kvöldi 29. júlí á Ólafsmessu og nú mætir Bjartmar Guðlaugsson hress að vanda og verður með okkur þessa kvöldstund, auk þess sem gengið verður að Völvuleiðinu undir Hellaklettum ef veður leyfir.
Stórt og mikið afmælisþing verður síðan haldið 25. október í Þórbergssetri.
Þar verður m.a. frumflutt kvikmynd þar sem eru viðtöl við fjóra merka Íslendinga um Þórberg og tengsl þeirra við hann og Margréti konu hans. Efni þetta hefur ekki birst áður en það eru þau Guðbjörg Steindórsdóttir, dóttir Þórbergs, Vilborg Dagbjartsdóttir skáld, Pétur Pétursson þulur og Haraldur Ólafsson mannfræðingur sem fjalla um kynni sín af þeim hjónum. Myndin er sett saman af þeim Hjálmari Heiðdal og Pétri Gunnarssyni rithöfundi en kvikmyndirnar tók Dagur Kári Pétursson árið 2005.
Starf forstöðumanns Þórbergsseturs er nú laust frá og með 1. janúar 2027. Nú að 20 árum liðnum verður gaman að fá nýjar og ferskar hugmyndir að starfinu, - mestu máli skiptir þó að starfsemi Þórbergsseturs sé tryggð til framtíðar.
Þórbergssetur er sjálfseignarstofnun með sérstakri stjórn og skipulagsskrá og starfar sjálfstætt í samvinnu við Menningarmiðstöð Hornafjarðar,
ÞÓRBERGSSETUR Í 20 ÁR
Málverk úr safni Þórbergs og Margrétar sem eru nú í eigu Listasafns A.S.Í verða til sýnis í Þórbergssetri frá og með 26. júní
Breiðamerkursandur í 20 ár
Ljósmyndasýning Þorvarðar Árnasonar í Eystri sal Opnun tilkynnt síðar
Lífið undir Fellinu
Alice Watterson og Kieran Baxter; Sýndarveruleiki/stuttmynd úr sögu eyðijarðarinnar Fells
Háskóla Íslands og Rithöfundasamband Íslands. Það er mikilvægt í síbreytilegu og fjölþjóðlegu samfélagi nútímans að halda á lofti menningarverðmætum okkar sem þjóðar - Þar eru án nokkurs vafa bókmenntir og sagnalist ofarlega ef ekki efst á lista. Við þurfum því umfram allt að halda áfram að segja sögur frá liðinni tíð og viðhalda þekkingu forfeðranna á náttúru, sögu og nánasta umhverfi, en jafnframt að færa þær í nútíma form til varðveislu til framtíðar.
Nýjar heimabakaðar tertur verða með kaffinu í sumar og ýmislegt góðgæti á boðstólum auk hefðbundins íslensks matseðils.
Allir velkomnir að koma við í Þórbergssetri, - Þórbergur er alltaf nýr Þorbjörg Arnórsdóttir forstöðumaður


FERÐAFÉLAGIÐ UNDIRBÝR GÖNGUÁRIÐ
OG SUMARIÐ Í MÚLASKÁLA
Aðsend grein: Ferðafélag Austur-Skaftfellinga
Starf Ferðafélags Austur-Skaftfellinga hefur verið með hefðbundnum hætti síðustu misseri. Á aðalfundi félagsins, sem haldinn var í apríl, urðu nokkrar breytingar á stjórn og nefndum. Félagið þakkar þeim sem létu af störfum kærlega fyrir þeirra framlag og býður nýja fulltrúa velkomna til starfa.
Árið 2025 var viðburðaríkt hjá félaginu. Farnar voru sex styttri ferðir um nærumhverfi sveitarfélagsins, auk þess sem félagið tók þátt í geðræktargöngum í Gulum september. Þá var ein ferð farin í samstarfi við Bjarnanesprestakall og séra Stíg, þar sem gengið var fyrir Horn og ferðinni lauk með hugvekju í kirkjuleikmynd við Hafnartanga.
Sæludagar á Lónsöræfum voru einnig á sínum stað og tóku 24 þátt í þeirri ferð, sem nýtur mikilla vinsælda. Ferðafélagið fagnaði jafnframt 45 ára afmæli sínu með utanlandsferð til Skotlands undir leiðsögn Ingu Geirsdóttur. Ferðin var uppseld og afar vel heppnuð, með léttum göngum, skoðunarferðum og fjölbreyttri dagskrá.
Múlaskáli var vel nýttur sumarið 2025. Fyrsti hópur kom 2. júlí og sá síðasti 20. ágúst. Alls voru gistinætur 697 og gestakomur 307. Þótt nokkrar afbókanir hafi orðið vegna veðurs og ófærðar gekk sumarið vel og gestir nutu fegurðar og friðsældar Lónsöræfa.
Ferðanefnd hefur nú sett saman ferðaáætlun fyrir gönguárið 2026. Uppsetningin er að hluta til sveigjanleg, þar sem sumar ferðir verða auglýstar eftir veðri og færi. Félagið hvetur því fólk til að fylgjast vel með auglýsingum á samfélagsmiðlum.

Sæludagar á Lónsöræfum verða á sínum stað og er uppselt í þá ferð. Skálaverðir verða í Múlaskála frá 28. júní til 20. ágúst og landvörður verður á svæðinu á sama tíma.
Undirbúningur sumarsins í Kollumúla er einnig hafinn af fullum krafti. Vinnuferð félagsins var farin helgina 12. til 14. júní og tókst afar vel. Veðrið lék við hópinn og góður vinnuandi ríkti alla helgina. Skálinn var þrifinn hátt og lágt, smíðaður pallur, girðing lagfærð þar sem þurfti að þétta á
milli staura og einnig gafst tími til að fara í gönguferð um svæðið.
Bókanir og upplýsingar um Múlaskála má finna á www.gonguferdir.is, með tölvupósti á ferdafelag@gonguferdir.is eða hjá Möggu í síma 868-7624. Árgjald félagsins er 9.900 kr. og innifalin er árbók Ferðafélags Íslands og félagsskírteini sem veitir afslátt í skála, ferðir og ýmsar útivistarbúðir.

Múlaskáli í Lónsöræfum. Mynd úr vinnuferð sumarsins

534-9600 heyrn.is



nytjamarkaður
Opið alla fimmtudaga
frá kl. 16:30 - 18:30 & alla laugardaga í sumar
frá kl. 13:00 - 15:00

24. júní kl . 20:00
28 júní kl 11:00
5 júlí kl 11:00
5 júlí kl 20:00

Sumarmessa í Hofskirkju
Sumarmessa í Bjarnaneskirkju
Sumarmessa í Hafnarkirkju
Sumarmessa í Brunnhólskirkju
29. júlí kl . 20:00 Ólafsmessa í Kálfafellsstaðarkirkju
5. ágúst kl . 18:00
30. ágúst kl . 14:00

18–20

Sumarhelgistund í Hafnarkirkju
Vígsluafmælismessa í Hafnarkirkju
Verið velkomin. Birt með fyrirvara um breytingar Sjá nánar á Facebook þegar nær dregur
GIRNILEGAR GLEÐISTUNDIR Á BARNUM

Við bjóðum upp á létta og ljúffenga rétti af snakkseðli, alla daga frá 18–22.
Barinn er opinn alla daga frá 16–23 og frá 18–20 eru drykkir á tilboðsverði.
Á Verbúðarbarnum er gott að slaka á og njóta útsýnis yfir sjóinn.
Við hlökkum til að sjá ykkur!
verbudarbarinn
NÝR VEGUR YFIR
HORNAFJARÐARFLJÓT VÍGÐUR
Í dag, miðvikudaginn 24. júní, eru tímamót í samgöngusögu
Hornafjarðar þegar nýr kafli í Hringveginum um Hornafjörð er formlega opnaður.
Fáar framkvæmdir hafa verið jafn lengi í umræðunni hér heima og nýi vegurinn, enda um að ræða breytingu sem hefur áhrif á daglegt líf margra, ekki síst íbúa á Mýrum, Suðursveit og í Öræfum sem og þeirra sem sækja vinnu og þjónustu á milli svæða.
Með nýja veginum styttist Hringvegurinn um 12 km og leiðin til Hafnar um 14,6 km. Lagðir hafa verið tæpir 19 km af nýjum Hringvegi, auk tengivega og hliðarvega, og byggðar fjórar nýjar brýr yfir Djúpá, Hornafjarðarfljót, Hoffellsá og Bergá. Einnig hefur verið gert hringtorg við Hafnarveg og áningarstaður við Brunnhól.
Aðdragandinn hefur verið langur. Samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar voru fyrstu áætlanir lagðar fram árið 2004, en eins og margir muna hófst umræðan hér heima nokkru fyrr. Framkvæmdin hefur í gegnum tíðina verið mikið rædd, meðal annars vegna leiðarvals, umhverfisáhrifa og kostnaðar. Fyrsti áfangi var boðinn út árið 2017 og fólst í gerð um 5 km langrar vegfyllingar. Meginframkvæmdin var síðan boðin út og samið við Ístak sumarið 2022. Framkvæmdir hófust þá um haustið. Með opnun vegarins fækkar einbreiðum brúm á Hringveginum um þrjár.

Einhverjir munu eflaust sakna hossubrúarinnar svokölluðu yfir Hornafjarðarfljót. En hver veit nema það verði í staðinn vinsæll sunnudagsrúntur að aka gamla veginn og rifja upp fyrri tíma.
Kvennakór Hornafjarðar syngur við vígslu vegarins, en kórinn vakti athygli árið 2020 þegar hann söng á öllum einbreiðum
brúm í Austur-Skaftafellssýslu.
Vígslan fer fram á nýju brúnni yfir Hornafjarðarfljót klukkan 15:00, miðvikudaginn 24. júní. Að henni lokinni verður boðið til kaffisamsætis í félagsheimilinu Holti á Mýrum þar sem öll eru velkomin.

GÁS
Mynd frá framkvæmdum árið 2024. Mynd: Vegagerðin
Brúin yfir Djúpá. Mynd: Vegagerðin
Kæru Hornfirðingar
Til hamingju með nýja veginn

Nýr Hringvegur (1) um Hornafjörð er stór áfangi fyrir samgöngur á svæðinu.
Við þökkum fyrir góða samvinnu og þolinmæði á framkvæmdatímanum.

TUNGUMÁLAKAFFI
Aðsend grein: Eugenie Parent / Jenný
Síðan í apríl hefur
Gamlabúð haldið reglulegan viðburð: Tungumálakaffi, notalega
samverustund þar sem fólk getur æft íslensku, kynnst nýju fólki og notið kaffis saman. Verkefnið hefur reynst afar vel og við erum mjög ánægð að sjá vaxandi og stuðningsríkt samfélag myndast í kringum það. Takk fyrir!


Hugmyndin að Tungumálakaffinu er að skapa hlýlegt og aðgengilegt rými þar sem íslenskumælandi og erlendir íbúar geta hist og átt samtöl á íslensku. Með fjölgun erlendra íbúa í Sveitarfélaginu Hornafirði er enska í auknum mæli notuð í daglegu lífi. Á sama tíma ríkir víðtæk áhyggja á Íslandi um að vaxandi notkun ensku geti ógnað stöðu íslenskrar tungu.
Að læra tungumál þess lands þar sem maður velur að búa og starfa er lykilatriði í aðlögun. Þó að frumkvæðið komi eðlilega frá þeim sem flytja til Íslands er einnig mikilvægt að íslenskumælandi taki þátt og styðji við það ferli. Tungumálakaffið byggir á þessari hugmynd um gagnkvæma þátttöku, skipti og stuðning.
Ein helsta áskorun Tungumálakaffisins
er að hvetja íslenskumælandi til að mæta og taka þátt ásamt þeim sem eru að læra tungumálið. Þessi þátttaka gerir nemendum kleift að heyra eðlilegt íslenskt mál, bæta framburð, auka orðaforða og öðlast meira sjálfstraust í öruggu og styðjandi umhverfi. Hún skapar einnig dýrmæt félagsleg tengsl milli fólks sem annars hefði ekki endilega hist.
Þetta er ekki formleg tungumálakennsla, heldur afslappað og notalegt rými með hlýlegu og vinalegu andrúmslofti. Öll sem tala íslensku eru hjartanlega hvött til að koma og styðja við þá sem eru að læra. Það skiptir miklu máli og stuðlar að því að íslenska haldist lifandi.
Næsta Tungumálakaffi fer fram fimmtudaginn 2. júlí kl. 18:00 í Gömlubúð. Um er að ræða sérstaka “matar- og uppskriftarútgáfu” viðburðarins. Þátttakendur eru hvattir til að koma með eitthvað sem þeir hafa eldað eða bakað
eftir uppskrift frá sínu heimalandi eða menningu (en það er þó alls ekki skylda). Saman æfum við íslensku með því að deila matarhefðum, með sérstakri áherslu á orðaforða tengdum mat, matreiðslu og uppskriftum. Öll eru velkomin. Íslendingar eru hvattir til að mæta, taka þátt, deila íslenskum hefðbundnum uppskriftum og hjálpa öðrum að læra að lesa og skilja uppskriftir á íslensku.
Við stefnum að því að efla tengsl innan samfélagsins og hvetja íslenskumælandi sem hafa áhuga á að gefa smá tíma til að taka þátt í þessu sameiginlega náms- og samverurými.
Æfum íslensku saman! Við hlökkum til að sjá ykkur! Takk kærlega fyrir þátttökuna.

Tungumálakaffið hefur verið vel sótt



Velkomin á SUMARMÓT HVÍTASUNNUMANNA
SUMARMÓT HVÍTASUNNUMANNA
Höfn í Hornafirði Helgina 26.-28. júní
Sáning og uppskera Sáning og uppskera


Dagskrá helgarinnar
17:00 Humarsúpa í boði kirkjunnar
- Allir velkomnir
20:00 Mótssetning: Halldór Sævar Birgissson Samkoma - Ræðumaður: Cristiano Oliveira Kaffi og samfélag å eftir
10:00 - 11:30 Lofgjörð & bæn
Kennsla: Anna Stefanía
13:00 - 14:30 Fræðslu- og bænaganga um Höfn (Gangan byrjar við Hvítasunnukirkjuna)
17:00 - 18:00 Samsöngur (hörpustrengir)
20:00 Samkoma - Ræðumaður: Matthildur Þorsteinsd.
11:00 Samkoma. Ræðumaður: Halldór Birgisson
12:30 Barnstund. Húllumhæ við Hvítasunnukirkjuna 14:00 Mótsslit
Lofgjörð helgarinnar verður í höndum Hvítasunnukirkjunnar í Vestmannaeyjum, sannkölluð tónlistarveisla.
Við hlökkum til aç sjá ykkur
Fyrir gistingu viljum við benda á tjaldstæðið á Höfn sem er í göngufæri frá kirkjunni Allar fyrirpurnir sendist á halldorsb71@gmail.com


Hafðu samband og fáðu frítt verðmat
VIÐBURÐARDAGATAL HVAÐ ER UM AÐ VERA?
Miðvikudagur 24. júní - Humarhátíð
Humarhátíð 2026 samkvæmt útgefinni dagskrá
15:00 Opnun og vígsla nýja Hringvegarins um Hornafjörð, við brúna yfir Hornafjarðarfljót. Kaffisamsæti í félagsheimilinu Holti að vígslu lokinni
17:00 Opinn fundur um framtíðaruppbyggingu við Jökulsárlón, Hrollaugsstaðir
18:00 Hverfahátíðir, grill og skreytingar í hverju hverfi
20:00 Sumarmessa í Hofskirkju
20:00 Þjófstart á Humarhátíð, bjórbingó í Golfskálanum
Fimmtudagur 25. júní - Humarhátíð
Humarhátíð 2026 samkvæmt útgefinni dagskrá
16:00 FLÓ fataverslun Rauða krossins opin til 18:00, Sæbraut 5
20:30 Bremsulaus, uppistand með Birnu Rún á Hafinu til 22:00 Miðasala á tix.is
22:30 Blúsbræla á Hafinu til 01:00
Föstudagur 26. júní - Humarhátíð
Humarhátíð 2026 samkvæmt útgefinni dagskrá
13:00 Ólympíudagurinn á Vísisvelli við Hrollaugsstaði
17:00 Sumarmót Hvítasunnukirkjunnar hefst Sumarsýningar á afmælisári Þórbergsseturs hefjast í Þórbergssetri
Laugardagur 27. júní - Humarhátíð
Humarhátíð 2026 samkvæmt útgefinni dagskrá
10:00 Vígslumót Vísisvallar við Hrollaugsstaði, setningarathöfn og frjálsíþróttakeppni
10:00 Sumarmót Hvítasunnukirkjunnar
11:00 Öræfahlaupið hefst frá þjónustumiðstöðinni í Skaftafelli. Skráning á netskraning.is
12:00 Hornafjarðarmanni í Nýheimum
12:30 Urban sketchers á hátíðarsvæði
13:00 FLÓ fataverslun Rauða krossins opin til 16:00, Sæbraut 5 23:00 Stórdansleikur með Færibandinu í íþróttahúsinu. Forsala miða í Sundlauginni
Sunnudagur 28. júní - Humarhátíð
Humarhátíð 2026 samkvæmt útgefinni dagskrá
08:00 Sjóvá Humarhátíðarmót á golfvellinum
10:30 Vígslumót Vísisvallar heldur áfram við Hrollaugsstaði
11:00 Sumarmessa í Bjarnaneskirkju
11:00 Sumarmót Hvítasunnukirkjunnar, samkoma, barnstund og mótsslit
11:00 Listasmiðja á vegum Krakkaklúbbsins Kóbru í Gömlubúð til 12:30
13:00 Hanna Dís með opna vinnustofu í Miklagarði til 15:00
Þriðjudagur 30. júní
13:00 Barnastarf Menningarmiðstöðvarinnar, golf í Hrossó
EYSTRAHORN STYRKTARAÐILD
E
viðburður framundan sem þú að eigi heima hér?
HAFÐU SAMBAND




Á HUMARHÁTÍÐ

Föstudagur, 26. júní ................ 06:45 – 21:00 Laugardagur, 27. júní .............. 10:00 – 19:00 Sunnudagur, 28. júní ............... 10:00 – 19:00
Frítt í sund frá 10:00 - 13:00 laugardag og sunnudag.
Gleðilega Humarhátíð!

Fimmtudagur 2. júlí
18:00 Tungumálakaffi í Gömlubúð / Language Café at Gamlabúð
20:00 Una Torfa á Hafinu. Miðasala á tix.is
Sunnudagur 5. júlí
11:00 Sumarmessa í Hafnarkirkju
20:00 Sumarmessa í Brunnhólskirkju
Fimmtudagur 9. júlí
20:30 Tónleikar með Björgu Blöndal og Þorkeli Ragnari, ásamt Freyju Dís og Bryndísi Björk, á Hafinu
Fimmtudagur 23. júlí
18:00 Tungumálakaffi í Gömlubúð / Language Café at Gamlabúð
Þriðjudagur 28. júlí
11:00 Listasmiðja, Krakkaklúbburinn í Gömlubúð til 12:30
Miðvikudagur 29. júlí
20:00 Ólafsmessa í Kálfafellsstaðarkirkju, tónleikar með Bjartmari Guðlaugssyni og ganga að Völvuleiðinu ef veður leyfir
Er viðburður framundan sem þú telur að eigi heima hér?
Hafðu samband eystrahorn@eystrahorn.is
Sveitarfélagið Hornafjörður / Hafnarbraut 27 / S: 4708000 / www.hornafjordur.is
Miðvikudagur 5. ágúst
18:00 Sumarhelgistund í Hafnarkirkju
Föstudagur 28. ágúst
Skilafrestur fyrir efni og auglýsingar í 7. tbl. Eystrahorns
Sunnudagur 30. ágúst
14:00 Vígsluafmælismessa í Hafnarkirkju
Fimmtudagur 3. september 7. tbl. Eystrahorns kemur út
OPNUNARTÍMAR Á HÖFN 2026
JÚLÍ 13. - 15. ÁGÚST 17. - 19. OKTÓBER 12. - 14. NÓVEMBER 16. - 18. SEPTEMBER 14. - 16.
Bifreiðaskoðun

SUMAR
FASTIR LIÐIR
Þriðjudaga
10:30 Krílakaffi á bókasafninu
13:00 Minigolf FEH við Ekru
16:00 Kvennagolf
Fimmtudaga
16:00 Opið í Fló fataverslun til 18:00
16:30 Opið í Hirðingjunum til 18:30
Laugardaga
10:00 Badminton fyrir 16 ára og eldri í íþróttahúsinu á Höfn. Nánari upplýsingar á Facebook, Badminton Höfn

Tímabókanir á netinu og í síma 570-9090 Frumherji er við Sæbraut 5
Frumherji bifreiðaskoðun - Fyrir mikilvægasta fólkið

13:00 Opið í Hirðingjunum til 15:00 alla laugardaga í sumar
14:00 Opið í Fló fataverslun til 16:00 fyrsta laugardag mánaðarins, Sæbraut 5. (Athugið opið 13:00-16:00 á Humarhátíð)
Sunnudaga
11:00 Badminton fyrir 16 ára og eldri í íþróttahúsinu á Höfn. Nánari upplýsingar á Facebook, Badminton Höfn
13:00 Samkoma í Hvítasunnukirkjunni á Höfn

OPNUNARTÍMI FLÓ FATAVERSLUNAR

16:00-18:00
ÁGÚST Verslunarmannahelgi FIM. 2. JÚLÍ 16:00-18:00 LAU. 4. JÚLÍ 14:00-16:00 FIM. 9. JÚLÍ 16:00-18:00 FIM. 16. JÚLÍ 16:00-18:00 FIM. 23. JÚLÍ 16:00-18:00 FIM. 30. JÚLÍ 16:00-18:00
LAU. 1. ÁGÚST 14:00-16:00 FIM. 6. ÁGÚST 16:00-18:00 FIM. 13. ÁGÚST 16:00-18:00 FIM. 20. ÁGÚST 16:00-18:00 FIM. 27. ÁGÚST 16:00-18:00
Hægt er að koma með hreinan og vel með farinn fatnað og skó á opnunartíma FLÓ. Einnig er hægt að fara með fatnað í Gáruna
KRÓNAN STEFNIR AÐ OPNUN Í NÓVEMBER
Krónan stefnir að því að opna nýja verslun
á Höfn í nóvember á þessu ári. Verslunin verður að Hafnarbraut 60A, á svæðinu við gömlu mjólkurstöðina.
Að sögn Guðrúnar Aðalsteinsdóttur, framkvæmdastjóra Krónunnar, hefur undirbúningurinn gengið vel og segir:
Við erum mjög spennt að komast inn í húsnæðið eftir verslunarmannahelgi og hefja uppsetningu verslunarinnar. Nú fer verkefnið virkilega að taka á sig mynd og það er mikil tilhlökkun í teyminu.
Verslunin verður um 1.200 fermetrar að stærð, svipuð að stærð og verslanir Krónunnar á Akrabraut og í Norðurhellu. Þar verður lögð áhersla á bjarta, nútímalega og þægilega verslun með góðu skipulagi, breiðum göngum, góðri lýsingu og umhverfisvænum kælilausnum. Sjálfsafgreiðslukassar verða í versluninni og viðskiptavinir geta nýtt sér Skannað og skundað frá fyrsta degi. Síðar verður verslunin einnig tilbúin fyrir snjallverslun.

Ferskleiki verður í forgrunni, með stórri ávaxta- og grænmetisdeild, ferskvörudeild, fjölbreyttu vöruúrvali og áherslu á hagstætt verð.
Guðrún segir Krónuna hafa lengi horft til Hafnar sem spennandi staðsetningar. Samfélagið sé öflugt og í vexti, ferðamennska mikil og aukin samkeppni, meira vöruúrval og öflug þjónusta geti skilað ávinningi fyrir bæði íbúa og gesti. Þá hafi fyrirtækið fundið fyrir sterku ákalli frá íbúum sem hafi lengi kallað eftir Krónuverslun á Höfn.
Opnun verslunarinnar mun einnig skapa ný störf á svæðinu. Þegar hafa verið ráðnir verslunarstjóri og vaktstjóri, sem hafa starfað hjá Krónunni um nokkurt skeið. Á næstu vikum og mánuðum verður ráðið í fleiri stöður og gert er ráð fyrir að verslunin skapi 12 til 15 stöðugildi í upphafi.
Aðspurð hvort sérstök áhersla verði á vörur beint frá bónda eða frá framleiðendum á svæðinu segir Guðrún að það sé eitthvað sem Krónan vilji gjarnan skoða.
„Við höfum átt farsælt samstarf við íslenska framleiðendur víða um land og það skiptir okkur miklu máli að geta boðið viðskiptavinum upp á sem mest af góðri íslenskri framleiðslu. Við viljum að verslunin endurspegli sitt nærumhverfi og erum þegar farin að ræða við aðila á svæðinu.“ segir hún.
„Við erum gríðarlega spennt fyrir því að opna Krónuna á Höfn. Það er okkur mikilvægt að verða hluti af samfélaginu, skapa störf og byggja upp traust langtímasamband við íbúa svæðisins,“ segir Guðrún.

GÁS
Guðrún Aðalsteinsdóttir framkvæmdastjóri Krónunnar
Unnið er að því að klára húsnæðið fyrir haustið en verslunin verður um 1.200 fm. Mynd: Krónan
Hreyfum samfélagið til framtíðar

Með virðingu fyrir náttúruauðlindinni aukum við verðmætasköpun og lífsgæði hringinn í kringum landið og hreyfum samfélög stór sem smá, til framtíðar.
ÞRJÁTÍU ÁR FRÁ ÞVÍ AÐ
HUGMYNDIN KVIKNAÐI
Greinarhöfundur: Guðrún Ásdís Sturlaugsdóttir
Hornafjarðarmanni hefur lengi átt sinn sess í spilamenningu
Hornfirðinga, hvort sem spilað er heima við eldhúsborð, á Humarhátíð eða á öðrum mannamótum. Sjálf lærði ég spilið á unglingsárunum og hef síðan mætt á mörg mannamót, bæði á Höfn og í Reykjavík.
Hornafjarðarmanninn var farinn að gleymast þegar Albert Eymundsson tók sig til í kringum 100 ára afmæli Hafnar árið 1997, skráði reglurnar, gaf út sérstakan spilastokk og kom á keppnisformi sem hefur að nokkru leyti haldið síðan.
Í tilefni Humarhátíðar rifjar Albert upp hvernig hugmyndin kviknaði, hvernig Hornfirðingar tóku spilinu og hvernig Hornafjarðarmanninn varð aftur hluti af lifandi spilamenningu bæjarins.
Hver var aðdragandinn að því að þér datt í huga að gera Hornafjarðarmannann að keppnisspili?
Hugmyndin kviknaði árið 1996 eftir að farið var að auglýsa hátíðarhöld í tilefni af hundrað ára byggðarafmæli Hafnar 1997. Afmælisnefndin auglýsti eftir hugmyndum sem gætu átt heima í dagskrá hátíðarhaldanna. Ég var reyndar ekkert sérstaklega með það í huga þegar við fjölskyldan dvöldum í sumarbústað uppi í Lóni. Anna Kristín dóttir okkar þá 16 ára var með okkur ásamt Auði


Öddi Tobbalingur (Örn Þór Þorbjörnsson) heimsmeistari ánægður með sig í skrúðgöngu með Humarskálina. Mynd úr safni Leikfélags Hornafjarðar
Jónsdóttur vinkonu sinni. Þá voru ekki farsímar við höndina til að drepa tímann og upp úr þurru segir Anna Kristín; „Pabbi viltu spila við okkur Hornafjarðarmanna“? Hún og Auður sem er af miklu spilafólki, Snjólfunum, kunnu spilið. Eftir nokkur spil smelli ég fingri og segi; „Hér er komin hugmynd, keppni í Hornafjarðarmanna.“ Ég fór síðan að útfæra hugmyndina og sá að hún var framkvæmanleg en varð að vera einföld. Ég sendi afmælisnefndinni hugmyndina og fékk til baka að nefndin vildi kanna möguleikann á að fá fólk til að koma saman og spila Hornafjarðarmanna. Ég hafði aðrar hugmyndir og bauðst til að bera alla ábyrgð á framkvæmd og kostnaði við hugmyndina. Eftir nokkur tilraunamót datt ég niður á formið eins og það er í dag. Margir voru hjálplegir og tilraunadýrin þolinmóð. Svo treysti ég alltaf á Palla á Fiskhól (Sigurpál Ingibergsson) og bar undir hann álitamál.
En svo gafstu út sérstök spil?
Fljótlega sá ég fyrir mér að hægt væri að þróa hugmyndina áfram og gefa út sérhönnuð spil með humrinum og setja í tvöfaldan spilabakka með spilastokknum,
reglunum á fjórum tungumálum, skorkortum og stuttri kynningu á Hornafirði.
Hugmyndin var að skapa jákvæða kynningu á Hornafirði m.a. notuðu ferðamálasamtökin hér yfir 200 fría spilastokka frá mér til að dreifa á ferðamálakynningum.
Hvernig kemur það til að spilið er kennt við Hornafjörð?
Mér fannst áhugavert að kanna tilurð spilsins og nafngift þess. Við eftirgrennslan, aðallega í viðtölum við eldra fólk, komst ég að því að séra Eiríkur Helgason (18921954) í Bjarnanesi var talinn höfundur þessa spilaafbrigðis. Allir sem ég ræddi við og þekktu Eirík könnuðust við spilaáhuga hans.
Albert með Humarskálina

Eru spilareglur í Mannanum flóknar miðað við önnur spil?
Kostir Hornafjarðarmannans eru að spilið er einfalt en samt ákveðin fjölbreytni sem gerir spilið ekki leiðigjarnt. Spilið er fjölskylduvænt þar sem allir geta spilað það. Þó hafa vanir spilamenn forgjöf á byrjendur. Í Hornafjarðarmanna er dregið um sögnina og getur komið upp grand og nóló ásamt trompi en aðeins tromp í öðrum afbrigðum og þar er sögnin alltaf ákveðin fyrirfram og regluleg. Manni var mjög mikið spilaður á mínu heimili og hjá nágrönnum okkar en með breytingum á högum fólks hefur dregið úr spilamennsku almennt og Hornafjarðarmanninn var farinn að gleymast. Roskið fólk sem spilaði Mannann var farið að ryðga í reglunum og það heyrði til undantekninga að ungt fólk þekkti spilið.
Hvaða mót eru haldin í Hornafjarðarmanna í dag?
Fyrst skal telja mótin sem ég byrjaði með. Heimsmeistaramótið 1997 er að sjálfsögðu eftirminnilegast enda mættu 300 spilarar í stóra tjaldið á bryggjunni. Nokkrir bridsspilarar komu til mín eftir keppnina og sögðust hafa búist við allsherjar klúðri og sögðust bara ekkert skilja í því hvernig þetta gat gengið snurðulaust fyrir sig. Í framhaldinu kom Hornafjarðarmeistaramót í lok desember og Íslandsmeistaramót í Reykjavík eftir áramót. Það er löngu orðið hefð að spila Hornafjarðarmanna á opnum dögum hjá Framhaldsskólanum sem
er ánægjuleg viðbót. Svo hafa margir notað keppnisformið við ýmis tækifæri. Á Unglingalandsmóti UMFÍ 2007 var ég beðinn um að halda Mannamót. Mig langaði að hafa einhvern sérstakan tilgang sem minnti á aðstæður barna og þá var nærtækt að gefa ágóðann til styrktar UNICEF. Vegna áheita frá SkinneyÞinganesi söfnuðust 200 þúsund krónur en 250 tóku þátt. Það var því viðeigandi að keppendur á mótinu þau Siggerður Aðalsteinsdóttir og Maríus Sævarsson afhentu styrkinn og auk þess aðstoðaði Maríus afastrákur minn við mótshaldið og kenndi fólki leikreglurnar. Heims-, Íslandsog Hornafjarðarmeistaramót hafa verið haldin árlega síðan nema í Covid. Þá er hægt að sjá spilareglurnar á netinu og meira að segja spila Mannann á heimasíðu GAMERULES.
Væntanlega hefur verið nokkur vinna í kringum þetta?
Ég skal viðurkenna að það fór ótrúlega mikill tími í hugmyndavinnuna og allan undirbúning. Ég lagði mikla áherslu á að leita til fagfólks t.d. Jónasar Braga Jónassonar við gerð Humarskálarinnar, Kristbjargar Guðmundsdóttur sem hannaði gripinn fyrir Íslandsmótið og Jóns Halldórs (Nonna gull) sem gerði verðlaunagrip fyrir Hornafjarðarmeistaramótið. Þá hafa ýmsir aðstoðað mig m.a. með þýðingar á reglunum og alltaf hefur verið auðvelt að safna verðlaunum.
Hvernig tóku Hornfirðingar spilinu þegar það var endurvakið?
Þessir 300 spilarar sem tóku þátt í fyrsta mótinu segja allt sem segja þarf. Sömuleiðis undirtektir varðandi spilaútgáfuna og sölu á þeim til einstaklinga og fyrirtækja sem keyptu töluvert í forsölu og tryggðu að ég treysti mér í útgáfuna.
Fyrir utan hvað málið er jákvætt á margan hátt þá er ég sérstaklega ánægður fyrir að hafa tryggt að Hornafjarðarmanninn er ekki alveg gleymdur.
Að lokum vil ég fá að þakka öllu því góða fólki sem hefur tekið þátt í þessari ánægjulegu vegferð.

Hér eru spilarar sem mættu reglulega bæði á Höfn og í Reykjavík að spila til úrslita á Íslandsmóti 2012. Þorgrímur Guðmundsson, Þóra (Bebba) Sigurðardóttir og Kristján Þórðarson úr Uppsveitum Árnessýslu
Stefán Ingi Stefánsson, framkvæmdastjóri UNICEF tekur við styrknum
HUMARSÚPAN MÍN
Aðsend grein: Sturlaugur Þorsteinsson
Ég átti því láni að fagna að fá pláss á humarbát flest mín táningssumur – og átti því margar góðar stundir út af suðurströndinni, og þá ekki síst Hornafirði. Aldrei nýttum við humarinn til matseldar um borð, og má mörgum það einkennilegt virðast.
Humarréttum og -súpu kynntumst við Helga fyrst þegar við fluttum til Hafnar árið 1983. Þá voru dýrleg ár framundan, raunar að öllu leyti.
Við fórum að prófa okkur áfram í humarsúpugerð – og í áranna rás höfum við þróað það sem okkur finnst besta humarsúpa heims, hvorki meira né minna!
Galdurinn er að láta humarinn njóta sín og forðast sterk krydd. Aldrei höfum við mælt nákvæmlega.
Við skelflettum humarinn og eigum stundum humarskeljar í frysti til viðbótar. Eftir að hafa brotið þær rækilega steikjum við þær í smjöri (ekki spara það um of), söltum og sjóðum í vatni í góðan tíma, þannig að við náum örugglega kraftinum úr.
Þá gerum við hefðbundna smjörbollu, sem sagt slatti af hveiti og smjöri. Soðið er síðan hrært saman við bolluna í smá slöttum. Hendi einum fiskteningi út í, eða



tveimur. Hvítvíni bætt við, allt eftir því hvað maður tímir. Slettu af koníaki, ef ekki er búið að klára það.
Þá smá tómatsósa – gerir líka gott fyrir útlitið. Örlítið af Ceyanne pipar – fara varlega! Salta og pipra eftir smekk. Og svo rjómi – eiga örugglega nóg af honum, en passa að humarinn fái að njóta sín.
Uppskrift að heimbökuðu brauði Helgu
• 4 dl ylvolgt vatn
• 1 tsk salt
• 5 tsk þurrger
Hitað þar til suðan kemur upp. Slökkva á hellunni og demba skelflettum humrinum út í.
Tilbúið með góðu heimabökuðu brauði.
• 2-4 msk matarolía (má sleppa)
• 2-3 msk hunang / sykur (má sleppa)
• hveiti eftir þörfum (ekki of mikið)
Öllu nema hveiti og olíu blandað saman. Hveiti sett smátt og smátt saman við og allt hnoðað í hrærivél. Olían sett út í undir lokin. Hnoðað þangað til deigið festist ekki við fingurna. Skipt í 16-24 jafna hluta og formað í bollur. Látið lyfta sér undir rökum klút um sirka helming. Bakað ofarlega við 200° þar til fallega gyllt. Einnig má vefja deiginu utan um grillpinna, eða forma í litlar flatbökur og baka á grilli. Sett beint á grillið og snúið öðru hvoru. Grillað þar til fallega gyllt.
Stulli ásamt Helgu Lilju á góðri stund á Spáni
Besta humarsúpa í heimi samkvæmt þeim hjónum

ÞAÐ ER GAMAN AÐ VERA MEÐMORÁVEKPALLURINN
Aðsend grein: Kristín Gestsdóttir
Sumarið 2017 stóð Humarhátíðin á ákveðnum krossgötum má segja, það var mikilvægt að halda hana að okkar mati. Við eigum að eiga bæjarhátíð sem dregur til okkar gesti, gesti sem vilja vera saman og skemmta sér. Það er ekki sjálfgefið að fá einstaklinga til að halda hátíð eða gefa af sér heila helgi í sjálfboðavinnu.


Þess vegna fórum við í þá vegferð að finna út úr því hvað við gætum gert fjölskyldan á Ránarslóð til að bjóða upp á eitthvað fyrir bæjarbúa án þess að vera að trufla eiginlega dagskrá hátíðarinnar og auka fjölbreytni í viðburðum. Þannig verður Morávekpallurinn til sumarið 2017.
En hvað einkennir okkar fjölskyldu og hvað getum við lagt til sem aðrir hafa áhuga á. Þetta var svo sem enginn hausverkur. Lá eiginlega í augum uppi. Það sem einkennir okkur er tónlistin og einlægur mataráhugi. Þetta sumar var til humar og hljóðfæri á heimilinu. Því varð það úr að setja hljóðfæri á pallinn okkar og fíra undir grillinu. Öllum sem komu var velkomið að grípa í hljóðfærin og spila. Haldin var djammsession og þeir tónlistarmenn sem komu fram voru: Marteinn Eiríksson trompet, Þorkell Ragnar Grétarsson gítar, Birgir Freyr Elvarsson bassa, Jóhann Morávek saxaphone, Sturlaugur Þorsteinsson hljómborð, Heiðar Sigurðsson hljómborð, Salóme Morávek söngur og Haukur Ingólfsson trommur, öll eru þau tengd Hornafirðinum á einhvern
hátt. Því var það sumarið 2018 þegar ég var í Humarhátíðarnefndinni þá tókum við þá ákvörðun að allir gætu boðið upp á pallapartý á laugardeginum utan hefðbundinnar dagskrár. Eitthvað var um það að opnir pallar væru á heimilum en þetta hefur ekki fest sig í sessi nema á Morávekpallinum sem hefur verið óslitið síðan 2017 að undanskildu einu sumri 2022.
Aðeins einu sinni á þessum árum hefur pallurinn færst inn í stofu, það var hreinlega ekki hundi út sigandi.
Þá voru það Salóme Morávek og Sædís Harpa Stefánsdóttir sem spiluðu fyrir gesti þá var fátt í stofunni á Ránarslóð um 20 manns sem komu. Konan barðist í rigningunni við grillið. Við erum ekkert að gefast upp þó móti blási.
Það hefur alltaf verið hægt að vera úti þessi árin, við klæðum okkur eftir veðri og tökumst á við það.
Alls hafa listamennirnir verið 33 sem hafa haft viðkomu á pallinum í gegnum árin en inni í þeirri tölu eru alls ekki allir sem hafa komið við og gripið í hljóðfæri. En þeir eru æði margir.
Gestirnir sem hafa komið eru á milli 300 og 400, ekki hefur verið haldin gestabók yfir þá því er þetta eins og svo margt annað hrein ágiskun.
Fjölmennasti pallurinn er sennilega sumarið 2021 en þá var Una Stef og SP74 að spila. Þá voru milli 80 og 90 manns sem mættu.
Vissulega má segja að við þekkjum nokkra tónlistarmenn sem hafa gefið af sér á Morávekpallinum. En upphaflega hugmyndin er sú að einhver sem kemur fram með sveitinni verður að hafa tengingu við Hornafjörð. Þar hafa börnin okkar sterka tengingu og vinir þeirra.
Morávekpallurinn hefur undið upp á sig en sumarið 2024 þegar Teitur Magnússon var hér þá var um leið myndlistasýning. Listamaðurinn Dagur Benedikt Reynisson var með sýningu. Þetta fannst mér styrkja þessa uppákomu og 2025 þá bauð ég myndlistamönnum á Hornafirði að vera með sýningu hjá
Hljómsveitin Dópamín kom fram á Morávekpallinum árið 2025
okkur, meðan hljómsveitin Dópamín spilaði. Við ætlum að halda áfram að bjóða listamönnum til okkar og í ár er það leirlistakonan Birna Jódís Magnúsdóttir sem ætlar að vera með sínar vörur á pallinum.
Hljómsveitin í ár er með sterka tengingu við okkur heimilisfólk en þar spilar Sólveig Morávek. En hljómsveitin Látún er með skemmtilegri hljómsveitum sem ég hef hlustað á. Því miður missi ég yfirleitt af þeirra tónleikum þannig að ég brá á það ráð að fá þau til okkar og ætla svo sannarlega að njóta.
Það er ekki alveg einfalt að halda þennan viðburð eins og hann er orðinn í dag. En undanfarin ár hefur Humarhátíðin stutt við bakið á okkur með því að nýta tónlistarmennina í að koma fram á hátíðinni sjálfri. Menningarmiðstöð Hornfjarðar aðstoðaði okkur á covid árunum þegar engin hátíð var en aðrar uppákomur voru styrktar.
Þau fyrirtæki sem komu að þessu í fyrra og í ár fá þúsund þakkir frá okkur hjónum um að gera okkur kleift að koma þessu á koppinn. Humarhátíðarnefndin kemur að þessu líka í ár og ætlar Látún að styrkja Lúðrasveit Hornafjarðar og spila í Humarsúpunum og á hátíðarsvæðinu á föstudeginum. Þannig náum við að tengja þetta saman allt.
Árið 2027 á Morávekpallurinn 10 ára afmæli og þá verður húllumhæ, við erum þegar byrjuð að skipuleggja hann þar verða kannski fleiri uppákomur alla helgina eða stórtónleikar en allt fer það fram á pallinum okkar góða. Til hvers að

hvers
Við viljum skemmta öðrum líka

eiga pall ef þú býður engum heim? Til
að skemmta alltaf bara sjálfum sér?
Teitur Magnússon spilaði fyrir gesti árið 2024
Una
FÓLKIÐ Á BAK VIÐ HUMARHÁTÍÐ
Humarhátíðarnefndin í ár er skipuð níu öflugum einstaklingum, þar af nokkrum sem hafa staðið vaktina síðustu ár og nokkrum nýjum andlitum. Saman mynda þau hópinn sem heldur utan um undirbúning hátíðarinnar og vinnur að því að skapa skemmtilega dagskrá fyrir heimafólk og gesti.
Nefndarfólk segir starfið bæði krefjandi og gefandi. Það skemmtilegasta sé að fá að vera hluti af góðu teymi, vinna með frábæru fólki og taka þátt í að móta viðburð sem skiptir samfélagið miklu máli. Þar fái ólíkir styrkleikar að njóta sín, hvort sem það er í skipulagi, samskiptum, fjármögnun, dagskrárgerð, auglýsingum eða samfélagsmiðlum.
Það sem kemur mörgum á óvart er hversu mikil vinna liggur að baki hátíð sem þessari. Margt þarf að ganga upp áður en gestir mæta á svæðið og fjölmörg smáatriði þarf að leysa áður en hátíðin getur hafist. Það þarf að huga að kostnaði, styrkjum, leyfum, kynningu, viðveru á hátíðinni og öllum litlu hlutunum sem flestir hátíðargestir taka kannski aldrei eftir.
Nefndarfólk hlakkar til að njóta hátíðarinnar með öðrum, hvort sem það er á tónleikum, uppistandi, balli, í súpurölti, við matarvagnana eða einfaldlega í góðri stemningu með íbúum og gestum.
Um leið vill nefndin hvetja fólk til að íhuga að bjóða sig fram í Humarhátíðarnefnd á næsta ári. Starfið er skemmtilegt, fjölbreytt og gefandi, en hátíðin verður aðeins til vegna þess að fólk er tilbúið að leggja hönd á plóg. Það skiptir máli að fá inn nýjar hugmyndir, ólíka reynslu og fólk sem vill taka þátt í að halda þessari mikilvægu hátíð lifandi.
Humarhátíð er hátíð okkar allra, en hún verður ekki til án fólksins sem stendur á bak við hana.










Humarhátíðarnefnd 2026. Uppi frá vinstri: Róslín Alma Valdemarsdóttir, Svandís Perla Snæbjörnsdóttir, Heiðrún Ásta Torfadóttir, Katrín Birta Björgvinsdóttir, Birna Jódís Magnúsdóttir, Anna Ragnarsdóttir Pedersen, Þórdís María Rossiter Einarsdóttir, Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir og Emil Örn Moravék
Kassabílarall Landsbankans er fastur liður á Humarhátíð. Mynd: Hörður Þórhallsson



LITRÍKT GÖTULEIKHÚS
VIÐTAL VIÐ GUÐJÓN SIGVALDASON
Greinarhöfundur: Guðrún Ásdís Sturlaugsdóttir
Margir muna eftir litskrúðugum skrúðgöngum sem fylgt hafa
Humarhátíðinni í gegnum tíðina. Óhætt er að fullyrða að þær hafi sjaldan verið skrúðugri en þegar haldið var upp á 100 ára afmæli byggðar á Höfn á Humarhátíðinni árið 1997. Þá var efnt til sannkallaðrar karnival-skrúðgöngu sem margir muna vafalaust vel eftir.
Skrúðgangan er enn fastur liður á hátíðinni, þótt mismikið hafi verið lagt í hana síðustu þrjá áratugi og inn á milli hafi hún jafnvel legið niðri. Síðustu ár hefur hún þó verið á uppleið á ný, þar sem íbúar hafa fengið að sjá ýmsar kynjaverur og eldgleypa undir fögrum tónum lúðrasveitarinnar.
Nostalgían lifir greinilega enn og margir væru eflaust til í að upplifa þessa göngu aftur. Af því tilefni hafði Eystrahorn samband við Guðjón Sigvaldason leikstjóra, sem kom að mótun götuleikhúss og ýmissa uppákoma á Humarhátíð á þessum árum, í samstarfi við öflugan hóp úr Leikfélagi Hornafjarðar.
Tengsl Guðjóns við Höfn hófust haustið 1993 þegar Kristín Gestsdóttir, þá formaður Leikfélags Hornafjarðar, hafði samband við hann og bauð honum að koma og leikstýra hjá félaginu. Úr varð að Leikfélagið setti upp Djöflaeyju Einars

Kárasonar, sem sýnd var í Sindrabæ árið 1994 við miklar vinsældir. Síðar sama ár var sýningin flutt fyrir fullu húsi í Þjóðleikhúsinu eftir að hafa verið valin athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins.
Á sama tíma var Humarhátíðin að mótast, en hún var fyrst haldin sumarið 1993. Árið eftir kom Leikfélag Hornafjarðar með enn meiri hætti að hátíðinni og Guðjón tók þátt í að móta skrúðgöngur og alls kyns uppákomur sem settu svip á hátíðina á þessum árum. Hann hafði þá þegar góða reynslu af götuleikhúsi, meðal annars sem einn af stofnfélögum fyrsta götuleikhúss Íslands, Svarts og Sykurlauss.
Guðjón réðst ekki á garðinn þar sem hann var lægstur og hóf að kenna fólki á stultur, auk eldgleypinga og eldblásturs.

Í gegnum reynslu mína af götuleikhúsi gat ég kennt þetta, en það höfðaði auðvitað helst til ungu töffara plássins, segir Guðjón.
Fiskhóll og húsnæði leikfélagsins þar urðu að eins konar miðju verkefnisins, þar sem unnið var að búningum, hugmyndum og æfingum fyrir hátíðina. Að baki stóð, að sögn Guðjóns, gífurlega sterkur og samhentur hópur. „Skrúðgöngurnar voru sumar undir minni stjórn en aðrar undir stjórn Kristínar Gestsdóttur. En við unnum alltaf saman af heilindum, til gleði og skrauts þessarar einstöku bæjarhátíðar.“
Þegar Guðjón er spurður hvaða atburði hann muni helst eftir frá þessum tíma í kringum Humarhátíðina nefnir hann eitt atriði sérstaklega. „Sennilega er mín gleðilegasta, sem og súrrealíska, minning þegar ákveðið var að skapa Von Trapp fjölskylduna á reiðhjólum, à la Sound of Music,“ segir Guðjón. Hópurinn ferðaðist um bæinn á hjólum, söng lög úr söngleiknum og var klæddur gardínuklæðnaði sem saumaður var í anda Julie Andrews í kvikmyndinni.
Hátíðin var um tíma haldin á bryggjunni á Höfn.
Mynd: Leikfélag Hornafjarðar
Guðjón fyrir miðri mynd í skrúðgöngunni á 100 ára afmæli Hafnar. Mynd: Leikfélag Hornafjarðar

Guðjón segir að Höfn hafi verið virkilega lifandi og spennandi bæjarfélag á þessum tíma og vonar að svo sé enn. „Fólkið er opið, skapandi, frjálslegt og að mínu mati ekki of kreddufullt.“
„Það var alveg gífurlega gaman að fá að skapa svona uppákomur í bænum,“ segir Guðjón. Hann segir þó að sum atriðin hafi vakið umtal og að einhverjum hafi þótt hann ganga full langt í túlkun sinni á bæjarlífinu. Í heildina hafi þessu þó verið vel tekið og sjálfur hafi hann haft gaman af því að fá sinn skerf af háði á þorrablótum bæjarfélagsins.
Þátttaka íbúa var með besta móti á þessum árum, ungir sem aldnir og fólk úr öllum kimum samfélagsins. „Það fallega við þessa vinnu var að öllum, ÖLLUM, var velkomið að vinna með okkur, það var ekki farið í manngreiningarálit,“ segir Guðjón. Hann segir þetta hafa þjappað hópnum saman og gert þennan hluta hátíðarinnar að því sem hún varð.
Guðjón vill þakka öllum þeim sem tóku þátt í því að skapa Humarhátíð með sér.
„Það var alveg ofboðslega gaman að vinna með ykkur, og ef tækifæri gæfist væri ég til í það enn og aftur.“
Þegar Eystrahorn spurði Guðjón hvort hann vildi einhverju bæta við sagði hann: „You kids out there, there is a way, follow the rainbow.“




Mikið var um skemmtilega búninga á hátíðinni. Mynd: Leikfélag Hornafjarðar
Skrúðgangan var litrík árið 1997. Mynd: Leikfélag Hornafjarðar
Guðjón Sigvaldason. Aðsend mynd
Eldgleypir á Humarhátíð 1997. Mynd: Leikfélag Hornafjarðar




Sveitarfélagið Hornafjörður / Hafnarbraut 27 / S: 4 708000 / www.hornafjordur.is