Skip to main content

Eystrahorn 1.tbl. 2026

Page 1


EYSTRAHORN

1. tbl. 44. árgangur 5. febrúar 2026

FRÁ RITSTJÓRA

Kæru Hornfirðingar og aðrir velunnarar Eystrahorns.

Viðtökurnar við Eystrahorni undanfarið hafa verið ótrúlegar og ég vil byrja á að þakka ykkur kærlega fyrir falleg orð, ábendingar, hugmyndir og stuðning. Það hefur verið mjög skýrt að blaðið skiptir fólk máli og að þörf sé á vettvangi sem heldur utan um það sem er að gerast í samfélaginu.

Í kjölfar jólablaðsins lagði ég fyrir stutta könnun til að staðfesta áhuga og kanna hvort grundvöllur væri fyrir reglulegri útgáfu. Tæplega 270 manns svöruðu, þar af töldu 96,2% frekar eða mjög mikilvægt að Eystrahorn færi aftur af stað og 77,5% töldu frekar eða mjög líklegt að þau myndu styðja við útgáfuna með mánaðarlegri styrktaraðild. Sú svörun var nægileg ástæða til að prófa þetta aftur, en nú í aðeins breyttu formi.

Blaðið mun koma út mánaðarlega árið 2026, að jafnaði fyrsta fimmtudag í hverjum mánuði. Samhliða prentútgáfunni verður lögð sérstök áhersla á virkan og góðan vef og er nú unnið að því að setja heimasíðu Eystrahorns í loftið undir léninu eystrahorn.is. Þar verður hægt að birta efni á milli blaða og byggja upp gagnasafn sem verður dýrmæt heimild til framtíðar. Sveitarfélagið Hornafjörður hefur jafnframt ákveðið að greiða fyrir hýsingu síðunnar, svo að hægt sé að tryggja varðveislu efnisins til lengri tíma. Ég vil að Eystrahorn sé fyrst og fremst vettvangur fyrir samfélagið í Hornafirði. Þetta er áfram skilaboðaskjóða, staður þar sem einstaklingar, félög, stofnanir og fyrirtæki geta sent inn efni, deilt upplýsingum, komið á framfæri ábendingum og birt greinar. Ég mun einnig vinna efni inn í blaðið eftir því sem við á, sérstaklega viðtöl og greinar um mannlífið. Reksturinn ber þó ekki

hefðbundna blaðamennsku, að minnsta kosti ekki strax. Markmiðið er að byggja þetta upp í skrefum og draumurinn er að með tímanum getum við fengið fleiri með í lið við efnisöflun.

Ég vil þakka þeim sérstaklega sem þegar hafa skráð sig í styrktaraðild, það skiptir sköpum fyrir stöðugleika og möguleikann á að byggja upp útgáfuna. Einnig hvet ég fyrirtæki til að setja sig í samband vilji þau styðja við blaðið með reglulegu framlagi eða fastri auglýsingu.

Ég vil endilega heyra frá ykkur og hvet ykkur til að setja ykkur í samband ef þið viljið senda inn efni, auglýsingar, fá aðstoð við yfirlestur eða uppsetningu auglýsinga. Hlakka til að vinna með ykkur og kynnast ykkur öllum enn betur.

Ritstjóri

EÐA FÁ BLAÐIÐ SENT HEIM UTAN SVEITARFÉLAGSINS HORNAFJARÐAR? VILTU

Skannaðu QR kóðann eða hafðu samband. Það tekur aðeins 2 mínútur að skrá sig.

Næsta blað kemur út fimmtudaginn 5. mars. Skilafrestur fyrir auglýsingar og efni er 27. febrú ar.

Útgefandi: HLS ehf.

Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Guðrún Ásdís Sturlaugsdóttir

Netfang: eystrahorn@eystrahorn.is

Sími: 867 6604

Heimasíða: www.eystrahorn.is

Prófarkalestur: Guðlaug Hestnes

Umbrot: Tjörvi Óskarsson

Forsíðumynd: Lísa Þorsteinsdóttir, Klifatindur

Prentun: Litlaprent

ISSN 1670-4126

GUÐRÚN ÁSDÍS

HRÓSIÐ

Ragnheiður Rafnsdóttir hafði samband við ritstjóra Eystrahorns með þá frábæru hugmynd að í hverju tölublaði yrði birt hrós eða þakklæti. Hún ríður á vaðið og skrifar nokkur orð hér fyrir neðan. Við viljum gjarnan gera þetta að föstum lið og eru lesendur sem vilja hrósa eða þakka fyrir eitthvað í okkar samfélagi hvattir til að senda á eystrahorn@eystrahorn.is.

Þar sem mér finnst nóg um neikvæðni og erfiðar fréttir hvert sem ég lít langar mig að við lítum til þess sem vel er gert í sveitarfélaginu og þar er af nógu að taka. Ég ætla að fá að hefja þennan skemmtilega þakklætis og hrós hring. Mig langar að fá að hrósa Samkór Hornafjarðar ásamt undirleikara og stjórnanda kórsins Hrafnkeli Karlssyni fyrir fallega tónlist um jól og áramót. Fyrir að starfa í sjálfboðavinnu fyrir okkur hin bæði á gleði og sorgar stundum.

Kærar þakkir.

Ragnheiður Rafnsdóttir

8. febrúar

kl 11:00

8. febrúar

kl . 14:00

22. febrúar

kl 11:00

22. febrúar

kl . 13:00

1 . mars

kl . 11:00

Sunnudagaskóli

Umsjón: sr Axel Njarðvík

Guðsþjónusta

Gleðig jafar - kór eldri

borgara sjá um söng

Prestur: Sr. Axel Njarðvík

Sunnudagaskóli

Umsjón: Sr Stígur

Kyrrðarstund á föstu

Prestur: Sr. Stígur

Fjölskylduguðsþjónusta

Umsjón: Sr. Stígur

Verið velkomin

Sjá nánar á Facebook þegar nær dregur

Meðlimir í samkórnum ásamt Hrafnkeli stjórnanda og undirleikara kórsins

Aðalfundur Rauða krossins í Hornafirði

Aðalfundur Hornafjarðardeildar Rauða krossins verður haldinn Miðvikudaginn 25. febrúar kl. 17.00 Í Golfskálanum á Höfn

Dagskrá fundarins:

1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.

2. Skýrsla stjórnar um starf deildarinnar á liðnu starfsári.

3. Áritaður og skoðaður ársreikningur lagður fram til afgreiðslu.

4. Framkvæmdaáætlun og fjárhagsáætlun fyrir yfirstandandi ár lagðar fram til kynningar.

5. Kosning deildarstjórnar.

6. Kosning skoðunarmanna og varamanna þeirra.

7. Kosning um sameiningu fjögurra deilda á Suðurlandi, Rangárvallasýsludeild, Víkurdeild, Klausturdeild og Hornafjarðardeild.

8. Önnur mál.

Kjörgengir í stjórn og atkvæðarétt hafa allir félagar, 18 ára og eldri, sem greiddu félagsgjöld fyrir árslok 2025. Fundurinn er opinn öllum félagsmönnum og sjálfboðaliðum með sjálfboðaliðasamning. Kosningar í allar trúnaðarstöður deildarinnar eru leynilegar sbr. 9.tl. 19.gr. laga Rauða krossins á Íslandi.

Stjórnin

ÞRIGGJA KVÖLDA SPILAVIST

Kvenfélagið Eining stendur fyrir sinni árlegu þriggja kvölda spilavist þann 15., 22. og 1. mars næstkomandi, í félagsheimilinu Holti á Mýrum.

Spilakvöldið er öllum opið og er kjörið tækifæri fyrir fólk á öllum aldri til að hittast yfir spilum, eiga skemmtilega stund saman og jafnvel kynnast nýju fólki. Aðgangseyrir rennur óskiptur til góðra málefna, en kvenfélagið hefur um árabil lagt sitt af mörkum til ýmissa verkefna í nærumhverfinu. Við erum ekki margar konurnar í félaginu, einungis tólf og tökum ávallt vel á móti nýjum og áhugasömum konum. En þrátt fyrir að vera ekki fleiri, höfum við náð að standa fyrir hinum ýmsu viðburðum og nýta svo ágóðann til að styrkja bæði einstaklinga og félög. Það helsta sem félagið hefur staðið fyrir er spilavist, kaffisala á hinum ýmsu fundum í Holti, má þar nefna fjölmennan fund á síðasta ári með Hönnu Katrínu Friðriksson atvinnuvegaráðherra, erfidrykkjur, jólaböll og árlega skötuveislu. Síðastliðinn desember var met mæting í skötuveisluna og rann allur ágóði beint í Samfélagssjóð Hornafjarðar. Kvenfélögin á Íslandi í dag eru ekki síður mikilvæg núna en á árum áður og má geta þess að lokum að Eining hefur átt í mjög góðu samstarfi við Kvenfélagið Ósk í Suðursveit og Kvenfélagið Vöku í Nesjum. Kvenfélagskonur hvetja fólk til að mæta á spilavist, taka þátt og styðja gott málefni með góðri samveru.

þorrablót

07.02.2026

Miðaverð 10.000 kr.

Ball 3000 kr.

Húsið opnað kl. 19:00

Borðhald hefst stundvíslega kl. 20:00

Takið dagana frá

ÞRIGGJA KVÖLDA SPILAVIST Holti á Mýrum 15. FEBRÚAR 22. FEBRÚAR 1. MARS

Byrjað að spila kl. 20:00

Aðgangseyrir er 1.500 kr.

Kaffi og kökur að spili loknu

KVENFÉLAGIÐ EINING

Góðar stundir framundan

Böðin við Hoffell hafa verið opnuð á ný og opið er frá 10–19 alla daga til 30. nóvember.

Verð er 4.500 fyrir fullorðna 12 ára og eldri og 900 krónur fyrir börn 2–11 ára.

Við hlökkum til að sjá ykkur.

FJALLASKÓLI ÍSLANDS

Greinarhöfundur: Íris Ragnarsdóttir Pedersen

Það var sáttur hópur þrautseigra kennara sem hóf skólaárið hjá Fjallaskóla Íslands í Hofgarði síðastliðinn ágúst. Eins og flest sem búa hér undir Vatnajökli þekkja, var fjallamennskunám FAS í erfiðri stöðu sem leiddi að lokum til þess að hópur vaskra kennara sem öll höfðu kennt við fjallamennsku námið, stofnaði Fjallaskóla Íslands.

Markmiðið var að halda náminu hér í sveitarfélaginu og halda samfellu í kennslunni. Eins og í mörgum stórum verkefnum, kom stærri hópur að því að þetta varð að lokum að veruleika, en í þessu verkefni fannst samtakamátturinn sem býr í samfélaginu okkar. Sveitarstjórnin átti ríkan þátt í stofnun skólans sem og fyrirtæki sem starfa innan Vatnajökulsþjóðgarðs en 10 fyrirtæki lögðu til stofnfé skólans.

Það var ljóst að samfélagið hér var sammála um mikilvægi þess að námið myndi haldast hér undir Vatnajökli.

Skólinn er óhagnaðardrifin sjálfseignarstofnun og skólastjóri skólans er fyrrum verkefnastjóri fjallamennskunámsins, Smári Stefánsson. Í stjórn skólans sitja Árni Stefán Haldorsen, Erla Guðný Helgadóttir, Eyrún Fríða Árnadóttir, Helga Árnadóttir og Svanhvít Helga Jóhannsdóttir. Stofnendur skólans eru Fallastakkur ehf., Glacier Adventure ehf., Glacier Travel ehf., Glacier Trips ehf., Heading North ehf., Ice Cave Guides ehf., Jökulsárlón Ferðaþjónusta ehf., Niflheimar ehf., Travelshift ehf.

og Tindaborg ehf. Skólinn er skráður til heimilis í Hofgarði og þar hefjast öll námskeið sem kennd eru í Öræfum. Við viljum þakka Áróru skólastjóra í Hofgarði kærlega fyrir að taka vel á móti okkur. Með breyttu rekstrarfyrirkomulagi gefst skólanum tækifæri til að halda úti fjölbreyttari starfsemi. Skólinn kennir námsbrautirnar sem FAS byggði upp, leiðsögumaður með áherslu á jöklaleiðsögn og leiðsögumaður með áherslu á fjallgönguleiðsögn. Ásamt þeim, heldur Fjallaskólinn opin námskeið fyrir almenning sem vill auka færni sína á fjöllum og býður t.d. upp á fjallaskíða-, snjóflóða- og klifurnámskeið. Þá gerði Fjallaskólinn samning við Náttúruverndarstofnun um kennslu á landvarðanámskeiði. Það er mjög ánægjulegt að geta boðið upp á nám í landvörslu en staðlotan í náminu er kennd á tveimur af stærstu landvörslustöðvum landsins, Skaftafelli og Jökulsárlóni. Námskeiðið hófst hjá skólanum um miðjan janúar og fer vel af stað en fjöldi sérfróðra um náttúruvernd og landvörslu koma að kennslunni.

Það er vert að segja frá því að í sumar gerðust þau merku tíðindi að námsbrautirnar okkar fengust samþykktar af menntamálaráðuneytinu. Það þýðir að námsbrautirnar eru orðnar formlegur hluti af íslenska skólakerfinu sem er stór áfangi fyrir íslenska ferðaþjónustu og

Gengið að Dyrhamri á Öræfajökli. Mynd: Erla Guðný Helgadóttir
Tjaldbúðir á Vatnajökli í leiðangri þvert yfir jökulinn. Mynd: Ívar Finnbogason

Sprungubjörgunaræfing

ævintýraleiðsögn á Íslandi.

Skólaárið fór af stað með hefðbundnu sniði síðasta haust hjá Fjallaskólanum á klettaklifri á Hnappavöllum, þá gönguferð um Núpstaðaöræfin og að lokum skriðjöklaferðamennsku á skriðjöklunum í Öræfum.

Það er því ekki að ástæðulausu að nám í ævintýraleiðsögn á heima undir Vatnajökli, hér eru einfaldlega bestu og fjölbreyttustu kennsluaðstæður sem bjóðast á Íslandi. Það er ljóst að án velvilja landeigenda og heimamanna gæti námið ekki gengið. Við vonum því að það góða samstarf sem við höfum átt til þessa við fjölda aðila, haldi áfram að blómstra. Við trúum því að námið efli ferðaþjónustu, auki fagmennsku og fjölbreytni sem skapar styrkari stoð til framtíðar. Við viljum þakka öllum þeim sem hafa greitt leið okkar, starfað með skólanum, gefið aðgang að einstakri náttúru og hjálpað okkur með einum eða öðrum hætti, kærlega fyrir. Stuðningurinn skiptir okkur miklu máli.

Við hvetjum áhugasöm að fylgjast með okkur á samfélagsmiðlum undir “Fjallaskóli Íslands”. Opið er fyrir umsóknir á snjóflóðanámskeið skólans og fleiri námskeið munu vera auglýst á næstu vikum. Þá hefjum við umsóknarferlið í nám í ævintýraleiðsögn í mars.

Klettaklifur á Hnappavöllum. Mynd: Ívar Finnbogason

LJÓSDÍS BAKARÍ

Greinarhöfundur: Aleksandra Katarzyna

Á næstunni opnar nýtt bakarí við Hafnarbraut 34 á Höfn sem hefur fengið

nafnið Ljósdís. Að bakaríinu standa Aleksandra Katarzyna, eða Ola eins og hún er kölluð, hún kemur frá Póllandi, Simone Del Popolo frá Ítalíu og

Katrín Birna Þráinsdóttir.

Höfn sameinaði þrjár manneskjur, Olu, Katrínu og Simone. Við vorum ekki með stór áform, við fundum einfaldlega hvert annað hér og fundum þörf til að skapa eitthvað saman, eitthvað sem væri okkar, en líka fyrir aðra. Af því að við trúum því að matur og samvera á góðum stað skipti raunverulega máli.

Ég heiti Ola. Ísland breytti hjarta mínu og opnaði hugann. Íslenska náttúran kenndi mér ró og einfaldleika og sýndi mér kraft ljóssins, sérstaklega þegar dagarnir eru dimmir, kaldir og vindasamir. Á Höfn saknaði ég staðar þar sem hægt væri að staldra við. Fá sér kaffi. Vera til í augnablikinu með öðru fólki. Bara vera til.

Ég elska að baka. Ég elska nýtt brauð og að deila með öðrum mat sem ég hef búið til með eigin höndum.

Í marga mánuði höfum við hlúð að súrdeiginu okkar og leitað að bragði sem við viljum deila með ykkur. Við bökum pólskar sætar bollur og kökur, hlýjar, kunnuglegar og hughreystandi. Um leið erum við að læra íslenska baksturshefð og tileinka okkur morgunverði, þar sem þessi staður kennir okkur eitthvað nýtt á hverjum degi.

Bakaríið okkar á að vera fullt af ljósi. Af hlýju. Af sannleika. Við viljum að allir, sama hvaðan þeir koma eða hvernig dagurinn þeirra er, finni sig velkomna, samþykkta og afslappaða. Staður sem ilmar af brauði og kaffi og býður upp á góða morgna. Einfaldur. Heiðarlegur. Raunverulegur.

Simone er yfirkokkurinn okkar og bakari. Katrín er stuðningurinn minn, yfirsmakkari og staðgengill. Ég sé um bakkelsið, stemninguna og fólkið. Tungumálaörðugleikarnir hafa verið stærsta áskorunin, íslenskan er enn ekki auðveld fyrir okkur, en stærsta gjöfin hefur verið fólkið. Hlýja þess og opinn faðmur hefur gert alla hluti mögulega.

Við viljum að þú finnir ljósið kalla þig inn. Finnir sannleika, samþykki, ást, samfélag og ilm af brauði sem hvíslar hljóðlega: Þú mátt vera hér aðeins lengur.

Framkvæmdir í húsnæðinu við Hafnarbraut

VILTU HAFA ÁHRIF?

Greinarhöfundur: Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir gjaldkeri og bæjarfulltrúi Kex

Fjögur ár eru liðin frá því Kex framboð var stofnað og nú er komið að því að bjóða aftur fram. Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þessum tíma og dýrmæt þekking og reynsla áunnist hjá okkur sem tókum sæti í bæjarstjórn árið 2022.

Við höfum lært af áskorunum, vaxið í hlutverki okkar og hlökkum nú til að taka aftur þátt og leggja áfram okkar af mörkum til samfélagsins af meiri styrk og festu.

Í febrúar stendur Kex fyrir málefnafundum þar sem mótuð verður stefna framboðsins til næstu fjögurra ára. Fyrir fjórum árum vorum við ný og óreynd, en full eldmóðs, og settum okkur metnaðarfull markmið. Við erum stolt af mörgu sem hefur áunnist, en jafnframt meðvituð um að ekki náðist að hrinda öllu í framkvæmd. Það er einfaldlega eðli stjórnmála og samstarfs að ekki er alltaf hægt að gera allt. Við erum þó sannfærð um að fáum við endurnýjað umboð mun margt af því sem áður var sett á stefnuskrá ná fram að ganga.

Nú horfum við fram á veginn og þar þurfum við þína hjálp. Hvað finnst þér vanta í sveitarfélagið? Hvað má betur fara? Hvað er vel gert og hverju á ekki að breyta? Ef þú hefur skoðun þá eru málefnafundir Kex rétti vettvangurinn fyrir þig.

Ég hvet þig til þess að taka af skarið, hafa áhrif og ekki sitja heima hjá þér með vangaveltur sem eiga heima á vettvangi málefnafundar. Það eru allir velkomnir til okkar og vonumst við til þess að sjá víðan og breiðan hóp sem endurspeglar samfélagið okkar sem best.

Næstu málefnafundir Kex verða haldnir þann 14. febrúar kl.12:00 í Hofgarði og kl. 15:00 á Hrolllaugsstöðum. Annar málefnafundur verður haldinn á Höfn síðar í febrúar og verður auglýstur á samfélagsmiðlum Kex.

FÉLAG ELDRI HORNFIRÐINGA KYNNIR

FÉLAGSVIST

Þriggja kvölda félagsvist hefst kl. 20:00 fimmtudaginn 12. febrúar, næstu kvöld eru 19. febrúar og 26. febrúar

Spilað til sigurs. Leggið spilin á borð og bekennið að það er gaman að spila.

FÖSTUDAGSSAMVERA

Við hittumst í Ekru kl. 16:00 föstudaginn 6. febrúar Auglýst í Ekru og á Facebook síðu félagsins.

FASTIR LIÐIR

Minnum á hreyfingu í vatni undir styrkri stjórn Gorans alla fimmtudaga kl 13:30

Gönguhópur fer frá Ekru kl. 10:00 á mánudögum og miðvikudögum

Gleðigjafar æfa á þriðjudögum, alltaf er tekið vel á móti nýjum fullþroska röddum

Prjónahittingur og kaffi eftir hádegi alla miðvikudaga.

Boccia er spilað kl 09:30 þriðjudaga, fimmtudaga og föstudaga Snóker, píla, spil og fleira og fleira.

Í mars verður kynnt hvenær endurbætur á Ekru byrja. Um leið verður auglýst hvernig félagslífi verður háttað.

Stjórn FeH 2025-2026

Ari Jónsson formaður, Þóra Jóna Jónsdóttir ritari, Guðbjörg Jónsdóttir, Bjarney Pálína Benediktsdóttir, Sverrir Þórhallsson, Reynir Gunnarsson og Eirný Vals gjaldkeri

Frá fundi Kex í Golfskálanum Mynd: Sigrún Sigurgeirsdóttir

NÝTT FYRIRKOMULAG HJÁ UPPBYGGINGARSJÓÐI

Stjórn Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga hefur samþykkt að breyta verklagi við úthlutun úr Uppbyggingarsjóði Suðurlands. Helsta breytingin felst í því að fækka úthlutunum sjóðsins úr tveimur á ári í eina. Um er að ræða tilraunaverkefni til næstu tveggja ára sem miðar að því að efla faglegan stuðning við umsækjendur og tryggja skilvirkari nýtingu fjármuna.

Á 632. stjórnarfundi SASS var ákveðið að innleiða þetta nýja fyrirkomulag strax á árinu 2026. Þetta þýðir að hefðbundin vorúthlutun, sem alla jafna hefur farið fram í febrúar og mars, mun ekki eiga sér stað í ár. Þess í stað verður boðað til einnar stórrar úthlutunarlotu næstkomandi haust.

SAMRÆMING OG AUKIN GÆÐI RÁÐGJAFAR

Með þessari breytingu samræmir SASS vinnubrögð sín við önnur landshlutasamtök á landinu, sem öll hafa tekið upp eina úthlutun á ári. Meginmarkmiðið er að draga úr stjórnsýsluþunga og skapa þess í stað svigrúm fyrir byggðaþróunarfulltrúa og verkefnastjóra SASS til að sinna:

• Öflugri stuðningur og ráðgjöf: Ráðgjafar SASS hafa meira svigrúm til að veita umsækjendum persónulegri aðstoð. Umsækjendur fá nú meira svigrúm til að vinna með ráðgjöfum við að þróa hugmyndir sínar, vanda umsóknir og styrkja viðskipta- eða menningaráætlanir sínar áður en frestur rennur út.

• Sanngjarnara mat og meira gagnsæi: Þegar öll verkefni ársins eru metin samtímis er tryggt að þau fái jafna umfjöllun innan sama fjárhagsramma og það tryggir að bestu umsóknirnar hljóti brautargengi.

AÐALFUNDUR

3. framboðið X-E boðar til aðalfundar

þann 20. febrúar á Hótel Höfn kl. 18:00

20. FEBRÚAR 2026

Allir félagar og áhugasamir eru hvattir til að mæta og taka þátt í fundinum

Fundargestir eru beðnir um að staðfesta mætingu á thoreyb@simnet.is svo hægt sé að undirbúa fundinn sem best.

Með nýárskveðju, stjórnin

• Fyrirsjáanleiki og áætlanagerð: Með einum föstum umsóknarfresti á ári verður ferlið skýrara. Umsækjendur geta gert langtímaáætlanir og nýtt tímann fram á haust til að tryggja að öll fylgiskjöl og samstarfsaðilar séu í höfn.

• Vandaðri eftirfylgni: Breytingin gerir SASS og ráðgjöfum kleift að fylgja styrktum verkefnum betur eftir. Þannig verður sjóðurinn ekki aðeins fjárhagslegur bakhjarl heldur virkur samstarfsaðili sem styður við framgang verkefna yfir allt árið.

ÚTHLUTUNARFLOKKAR ÓBREYTTIR

Þrátt fyrir breytta úthlutunartíðni verður áfram úthlutað úr tveimur flokkum: Menningu annars vegar og Atvinnuþróun og nýsköpun hins vegar. Fagráð mun starfa með sama hætti og áður og tryggja faglega yfirferð allra umsókna.

Stjórn SASS telur þessa breytingu nauðsynlega til að styrkja sjóðinn sem öflugan bakhjarl sunnlensks samfélags. Verkefnið verður metið að tveimur árum liðnum og tekin ákvörðun um framtíðarfyrirkomulag í ljósi þeirrar reynslu sem komst á tilraunatímabilinu.

Senda má fyrirspurnir á sass@sass.is

KOSNINGAVOR

Framundan er spennandi tími.

Ég hef á síðustu fjórum árum safnað dýrmætri reynslu af setu í bæjarstjórn.

Starfið hefur verið krefjandi, lærdómsríkt og ekki síst skemmtilegt.

Því hef ég ákveðið að bjóða mig aftur fram í komandi kosningum. Ég sækist eftir 1.–2. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins.

Ég hvet íbúa sveitarfélagsins til að bjóða sig fram á lista eða til annarra starfa innan flokksins og hafa þannig áhrif á sitt nærumhverfi.

Hjördís Edda Olgeirsdóttir Bæjarfulltrúi og formaður umhverfis- og skipulagsnefndar

Hæ krakkar!

Okkur langar að bjóða þér og barninu þínu (4-8 ára) að taka þátt í RAFRÆNNI RANNSÓKN fyrir börn og foreldra.

Fer fram í gegnum Zoom Um það bil 30-40 mínútur

Þátttakendur eiga möguleika á að vinna gjafakort í Eymundsson

Þú og barnið þitt munuð hitta aðila úr teyminu okkar á Zoom. Barnið þitt mun horfa á stutt myndbönd og segja frá því hvað þeim finnst um það sem gerist í myndböndunum. Þú og barnið þitt verðið saman allan tímann og á meðan barnið horfir á myndböndin svarar þú könnun.

Skannaðu QR kóðann til þess að læra meira eða til þess að skrá þig

www.thecutelab.com

cutelab@unak.is

KVÍSKER AÐSTAÐA FYRIR FRUMKVÖÐLA

OG RANNSAKENDUR

Aðsend grein: Nýheimar Þekkingarsetur

Nýheimar Þekkingarsetur býður nú upp á nýja aðstöðu fyrir frumkvöðla og rannsakendur sem hefur fengið nafnið Kvísker, með vísun í bæinn Kvísker í Öræfum og það merka fræðastarf sem unnið var þar.

Aðstaðan er staðsett á austurgangi Nýheima í samstarfi við Sveitarfélagið Hornafjörð og er hugsuð sem vettvangur fyrir nýsköpun, rannsóknir og samvinnu þar sem einstaklingar geta unnið að þróun hugmynda, verkefna eða rannsókna í skapandi og faglegu umhverfi.

Í rýminu eru fjögur skrifborð, hvert búið skjá, lyklaborði og mús, og hentar aðstaðan bæði þeim sem starfa að nýsköpunarverkefnum og rannsóknum á vegum stofnana eða háskóla. Aðgang má fá með því að senda tölvupóst á nyheimar@ nyheimar.is.

Notendur hafa aðgang að stuðningi og ráðgjöf frá starfsfólki þekkingarsetursins, auk þess sem þeir verða hluti af lifandi samfélagi Nýheima sem sameinar menntun, rannsóknir, nýsköpun og atvinnulíf undir einu þaki. Hér er tækifæri fyrir

Aðstaðan Kvísker í Nýheimum

þá sem vilja efla eigin verkefni eða leggja sitt af mörkum til nýsköpunar og rannsókna í samfélaginu. Kvísker markar mikilvægt skref í áframhaldandi þróun Nýheima sem miðstöð þekkingar og samstarfs.

YFIRFERÐ Í LOK KJÖRTÍMABILSINS

Aðsend grein: Gauti Árnason

Hér ætla ég að tæpa á nokkrum af þeim markmiðum sem fram komu í málefnasamningi XD og KEX fyrir kjörtímabilið.

Skipulagsmál er umfangsmikill og krefjandi málaflokkur - ekki síst þegar kraftur er settur í framkvæmdir og mikil uppbygging. Fundum umhverfis- og skipulagsnefndar hefur verið fjölgað, og reynst ákaflega vel.

Endurskoðun aðalskipulags var sett í gang strax í upphafi kjörtímabilsins. Á öllum stigum vinnunnar hefur verið lögð áhersla á vandaða upplýsingagjöf og samtal við íbúa og aðra haghafa. Vinnslutillaga var kynnt í skipulagsgátt í sumar. Tillögur að svörum lagðar fyrir umhverfis- og skipulagsnefnd í byrjun október. Og þaðan send á Skipulagsstofnun til yfirferðar. Á næstu dögum verður tillagan auglýst að nýju og opnað fyrir athugasemdir.

Strax í upphafi kjörtímabilsins var stefnan sett á að leggja drög að nýju hverfi. Nú eru lóðir í fyrsta áfanga í glæsilegu Hagahverfi lausar til úthlutunar. Í fyrsta áfanga er gert ráð fyrir öllum gerðum íbúða.

Á þessu ári munum við ná stórum áfanga með framkvæmdum við svokallaðan áfanga 4b, og að þessu loknu verður allur bærinn loks kominn í tengingu við dælustöðina í Óslandi.

Við höfum unnið markvisst allt kjörtímabilið að því að bæta leikvelli sveitarfélagsins. Nýr leikvöllur var settur upp í Miðtúninu og nýr glæsilegur leikvöllur á Leirusvæðið. Þá fór fram endurnýjun á leikvellinum á tjaldsvæðinu hér á Höfn. Þá er ný leikvallaáætlun langt komin en hún tekur til allra leikvalla í sveitarfélaginu.

Unnið er þétt að nýrri og endurskoðaðri umferðaröryggisáætlun. Við höfum malbikað göngustíga unnið að því að bæta ferðaleiðir innabæjar t.d. við golfvöllinn.

Fjárfest hefur verið í tveimur nýjum slökkvibílum. Annar bíllinn er hér á Höfn og hinn bíllinn í Öræfum. Sú bifreið er bylting fyrir viðbragðsaðila í Öræfum og Suðursveit.

Í upphafi kjörtímabilsins var gerð heildstæð úttekt á íbúðaeignum sveitarfélagsins með það að markmiði að tryggja að eignasafnið endurspeglaði raunverulega þörf íbúa. Í kjölfarið voru 18 íbúðir seldar inn í Leigufélagið Bríet. Með sölunni tók Bríet yfir lán að fjárhæð um 170 milljónir króna, skuldbatt sig til uppbyggingar nýrra leiguíbúða í sveitarfélaginu.

Þá eru viðræður við Bríet um að byggja hagkvæmar leiguíbúðir á fjölbýlishúsalóð í nýju Hagahverfi.

Eitt af því sem sveitarfélagið hefur gert undanfarið er aukinn stuðningur við íþróttafélög og tómstundastarf. Nýr fimm ára samningur var nýlega undirritaður við UMF Sindra og framlög hækkuð. Þá voru endurnýjaðir samningar við fleiri félög, framlög hækkuð og fjárhæðir vísitölutengdar. Í þessu sambandi má nefna Golfklúbbinn, UMF Vísi í

Suðursveit og Akstursíþróttafélag Austur Skaftafellssýslu.

Eitt af stóru málunum var að fara í undirbúning og skipulagsvinnu varðandi nýtt íþróttahús á miðsvæði Hafnar í góðu samráði við alla hagsmunaaðila.

Nú er unnið að því að samræma vinnu stýrihóps við þarfagreiningu fyrir grunnskólann, þannig að þessi stóru verkefni tali saman á öllum sviðum. Markmið okkar er að framkvæmdir geti hafist á árinu.

Þótt ég hefði kosið að þetta hefði gengið hraðar, tel ég jafnframt að þessi langi og mikli undirbúningur geti skilað enn betri niðurstöðu fyrir samfélagið til lengri tíma litið.

Ný tveggja deilda viðbygging var tekin í notkun við leikskólann á síðasta ári og nú fá öll börn í Hornafirði leikskólavist frá 12 mánaða aldri. Leikskólamál hafa verið í forgangi hjá bæjarstjórn á kjörtímabilinu. Til að bregðast við mönnunarmálum var settur á laggirnar þverpólitískur starfshópur um leikskólamál sem skilaði í byrjun árs 2024 ítarlegri greiningu á stöðu málaflokksins. Markmiðið var skýrt: að styrkja mannauðinn, bæta aðstæður starfsfólks og gera leikskólana okkar að eftirsóknarverðum vinnustöðum. Bæjarstjórn samþykkti tillögurnar.

Viðbrögð starfsfólks hafa verið jákvæð og starfsánægja hefur aukist, þótt mönnun sé enn áskorun – og verði líklega áfram í einhverjum mæli.

Gríðarlega mikið og gott starf hefur verið unnið á velferðarsviðinu á kjörtímabilinu og höfum við markvisst veitt málaflokknum aukna athygli. Það hefur skilað sér í bættri og aukinni þjónustu við okkar besta fólk, bæði í Miðgarði, Ekru og í virkniþjónustunni í Selinu. Nú eru framundan mikilvægar framkvæmdir í Ekru, unnar í góðu samstarfi við Félag eldri Hornfirðinga, þar sem farið verður í endurnýjun á sal, eldhúsi og dagvist aldraðra í öðru rými í Ekru.

Umfangsmiklum endurbótum á Sindrabæ lauk síðasta haust. Húsnæðið allt hefur nú verið endurbætt frá grunni og aðstaða færð upp á það stig sem best verður á kosið.

Komið var á fót íbúaráðum með fulltrúum úr Öræfum, Suðursveit, Mýrum, Nesjum og Lóni, til að efla upplýsingaflæði og styrkja samtal við íbúa dreifbýlisins. Þessi aðgerð hefur reynst afar verðmætur vettvangur fyrir samráð, samtal og miðlun sjónarmiða

Áhersla er á að efla Menningarmiðstöð Hornafjarðar. Menningarmiðstöðin fékk meðal annars Gömlubúð aftur til afnota á kjörtímabilinu, tveir starfsmenn voru ráðnir til starfa í húsinu og líf hefur snúið aftur í þessa sögulegu byggingu með lifandi tónlistar- og menningarviðburðum.

Í upphafi kjörtímabilsins var farið í heildarútboð á sorphirðu í sveitarfélaginu og síðan þá hefur verið unnið markvisst að því að bæta bæði þjónustu við íbúa og rekstur málaflokksins. Ljóst að sorpmál eru og verða áfram áskorun, bæði hvað varðar framkvæmd, skipulag og kostnað, enda um stóran, tæknilega flókinn og síbreytilegan málaflokk að ræða.

Fjármálastjórn hefur einkennst af skynsemi, skýrri forgangsröðun og langtímahugsun, þar sem markmiðið hefur verið að tryggja stöðugleika, draga úr áhættu og skapa svigrúm til nauðsynlegra fjárfestinga í innviðum og þjónustu.

Við höfum lagt okkur fram um að taka ákvarðanir á grundvelli gagna og raunhæfra forsendna, fremur en skammtímasjónarmiða, og haft að leiðarljósi að hver króna nýtist íbúum og samfélaginu sem best.

Sveitarfélagið Hornafjörður stendur í dag mjög vel fjárhagslega og er vel í stakk búið til að takast á við áframhaldandi uppbyggingu innviða og þjónustu við íbúa.

Með virkri hagsmunabaráttu höfum við í fyrsta skipti í sögunni, náð raunverulegum fyrirsjáanleika í dýpkun á Grynnslunum, losnað undan fjárhagslegri skuldbindingu upp á rúmlega hálfan milljarð króna vegna nýja hjúkrunarheimilisins og unnið þarfagreiningu fyrir nýja björgunarmiðstöð í Öræfum. Jafnframt hefur verið tryggt áframhaldandi heilsárs bráðaviðbragð á svæðinu og komið af stað verkefni hjá HSU um að skoða með hvaða hætti hægt er að byggja upp varanlega heilbrigðisþjónustu í Öræfum.

Í þessari grein hef ég stiklað á stóru um helstu áherslur og árangur kjörtímabilsins, en það sem hér hefur verið nefnt er þó langt frá því að vera tæmandi listi. Verkefnin eru mörg, fjölbreytt og spanna ólíka málaflokka – en eiga það sameiginlegt að snúast um að styrkja samfélagið okkar, bæta þjónustu og byggja upp til framtíðar.

Þetta hefur verið skemmtilegt kjörtímabil sem hefur einkennst af bjartsýni, framkvæmdagleði og trú á Hornafjörð. Uppbygging hefur verið mikil víðs vegar um sveitarfélagið, bæði í þéttbýli og dreifbýli.

Atvinnulífið í Hornafirði er geysilega kröftugt og það sést best á öflugum fjárfestingum, nýsköpun og metnaði. Það er þessi þróttur, dugnaður og framtíðarsýn sem knýr samfélagið áfram

– og það er ekki sjálfgefið, heldur byggir á fólkinu sjálfu.

Framundan eru spennandi tímar fyrir Hornafjörð: nýr þjóðvegur, hringtorgið góða, uppbygging á nýju verslunarsvæði, nýtt íbúðahverfi mun rísa, nýtt uppsjávarveiðiskip kemur innan skamms, nýr frystiklefi sem er í raun leikbreytir, uppbygging í Hoffelli og samstarf við Landsbyggð um nýjan miðbæ á Höfn –svo aðeins brot sé nefnt. Þetta eru ekki bara hugmyndir á teikniborði, heldur raunveruleg verkefni sem munu hafa áhrif á daglegt líf fólks, atvinnu, þjónustu og samfélagsanda.

Samstarf meirihlutans, XD og KEX, hefur verið traust og málefnalegt, en ekki síður vil ég leggja áherslu á að samskipti og samtal við aðra flokka hafa verið í heildina jákvæð og uppbyggileg. Við erum heppin hér í Hornafirði að deila að mörgu leyti svipaðri sýn á helstu verkefnin og áherslurnar – að við viljum öll byggja upp fallegt, öflugt og mannvænt sveitarfélag þar sem fólk vill búa, starfa og ala upp börn sín.

Ég er þakklátur fyrir traustið sem mér og okkur hefur verið sýnt og stoltur af því sem við höfum unnið saman –kjörnir fulltrúar, starfsfólk sveitarfélagsins, fyrirtæki, félagasamtök og íbúar. Hornafjörður er samfélag í sókn – og framtíðin hér er björt.

Fyrir hönd kjörinna fulltrúa X-D lista Sjálfstæðismanna í Hornafirði Gauti Árnason

VINNUSTOFUR Í STÚKUSALNUM

Greinarhöfundur: Lísa Þorsteinsdóttir

Undanfarnar

vikur hef ég verið með vinnustofu í Stúkusalnum og þar finnst mér mjög gott að vera. Stúkusalurinn er í Miklagarði, gömlu heillandi húsi með mikla sögu og góða sál.

Þaðan er fallegt útsýni yfir höfnina þar sem maður getur fylgst með mannlífinu á bryggjunni. Ég hef notið tímans þarna og hef gert nokkur verk sem ég er mjög ánægð með. Það er líka mun skemmtilegra að vera með vinnustofu utan heimilisins heldur en að mála við eldhúsborðið heima.

Menningarmiðstöð Hornafjarðar bauð listamönnum að sækja um rými í Stúkusalnum og ég er ein af þeim sem nýtti mér það og sé ekki eftir því. Menningarmiðstöðin á hrós skilið fyrir þetta framtak.

Ég ætla að vera með opið á vinnustofunni í Stúkusalnum föstudaginn 6. og laugardaginn 7. febrúar frá kl 10.00 - 18.00 og býð fólki að líta við í spjall og skoða afraksturinn. En annars er alltaf hægt að líta við þegar hurðin er opin.

Lísa í vinnustofunni í Stúkusalnum

ÞEGAR SKOÐANIR OKKAR ERU EKKI ENDILEGA OKKAR

Greinarhöfundur: Svava Bjarnadóttir, andlegur einkaþjálfi og geðsjúkraliði

Flest okkar ganga inn í fullorðinsárin með ósýnilegan farangur. Hann er ekki í tösku heldur býr hann í huga okkar. Skoðanir, viðhorf og hugmyndir um hvernig heimurinn „er“. Þetta eru ekki endilega skoðanir sem við höfum valið sjálf, heldur þær sem við ólumst upp við, heyrðum í kringum eldhúsborðið, í skólanum eða í samfélaginu sem mótaði okkur.

Við lærum snemma hvað telst „eðlilegt“ og hvað „skrítið“. Til dæmis hafa margir alist upp við þá hugmynd að fólk sem stundar jóga, hugleiðslu eða andlega vinnu sé sérvitur hópur, jafnvel fjarlægur raunveruleikanum. Slíkar hugmyndir verða sjaldan til af djúpri íhugun, þær einfaldlega smitast. Svokölluð lærð hegðun. Þetta á við um svo ótrúlega marga hluti, ekki bara „skrítnu“ hlutina, heldur staðhæfingar sem aðrir bera á borð fyrir okkur og við trúum

án þess að mynda okkar eigin skoðun.

Vandinn er ekki að við höfum skoðanir, heldur að við skoðum þær ekki. Við höldum áfram að lifa eftir gömlum mynstrum, jafnvel þegar þau passa ekki lengur við reynslu okkar eða innri sannleika. Þá getur skapast togstreita: hluti af okkur er forvitinn, en annar hluti stoppar okkur með setningum eins og „þetta er ekki fyrir fólk eins og mig“.

Að vakna upp úr slíku mynstri krefst hugrekkis. Það krefst þess að við spyrjum: Er þetta mín skoðun, eða eitthvað sem ég lærði að halda? Þegar við leyfum okkur að

efast opnast nýtt rými. Rými þar sem við getum upplifað hlutina sjálf, án gamalla stimpla.

Kannski uppgötvum við að jóga er ekki „skrítið“, heldur einfaldlega fólk að hlusta á líkama sinn. Kannski minnir það okkur á að heimurinn er flóknari og fallegri en einfaldar skoðanir leyfa.

Að losa sig úr viðjum gamalla hugmynda er ekki að hafna upprunanum, heldur að vaxa. Og vöxtur byrjar oft á einni einfaldri spurningu: Hvað finnst mér í raun?

NORÐURLJÓSA

EYÞÓR INGI OG ÓSKAR LOGI

HLJÓMSVEITIN REFILL

ÞORKELL OG BJ ÖRG

HÁTT UPP TIL HLÍÐA

THE CHA CHA CHA´S

GG BLÚS

FORSALA OG MIÐAVERÐ VERÐA AUGLÝST SÍÐAR

FRÁ TÓNSKÓLANUM KENNSLAN OG HÚSNÆÐIÐ

Aðsend grein: Tónskóli Austur-Skaftafellssýslu

Tónskólastarfið hófst í haust á viðamiklum flutningum milli húsa, eftir heilan vetur þar sem starf Tónskólans var á víð og dreif.

Þrátt fyrir að hafa gefið okkur 5 daga í flutninga, þá þurfti enn að dusta rykið eftir framkvæmdir, margt eftir í kössum og fleiri ákvarðanir eftir að taka þegar við hófum kennsluna. Kennarar voru samt kátir, enda mikill munur á aðstöðu og ýmsum þáttum í húsinu, okkur í hag. Það komu tveir nýir kennarar til starfa haustið 2025 og tveir kennarar létu af störfum. Við vorum þegar með tvo nýja kennara sem komu til starfa haustið 2024, þannig að kennarastaðan hjá okkur er í góðum málum, þó að það mætti bæta við einu stöðugildi enn.

Vonandi rætist úr því næsta haust. Kennarar Tónskólans eru Björg Blöndal píanó og söngur, Eymundur Ragnarsson trommur, Hörður A. Eggertsson píanó, Lilja Rún Kristjánsdóttir klarinett og saxofónn, Telma Bastos þverflauta og Þorkell Ragnar Grétarsson gítar og bassi. Jóhann Morávek er skólastjóri og hefur kennt á ýmis hljóðfæri auk bóklegra greina.

Nýlunda við skólann eru söngnámskeið fyrir krakka, sem hafa verið í aldursskiptum hópum í vetur og vakið mikla lukku. Einnig hafa bæst við fleiri fullorðnir í nemendaflóruna okkar, meira en við höfum séð í mörg ár, bæði í hljóðfæranámi og söngnámi. Við söknum hins vegar nemenda á málmog tréblásturshljóðfæri, en þeim hefur fækkað verulega undanfarin ár og við getum alveg bætt við þar (þverflauta, klarinett, trompet, horn og básúna) þó að það sé fullt á önnur hljóðfæri. Við söknum einnig nemenda á framhaldsskólastigi, en það fylgist að þegar nemendur flytja burt og fara í annan framhaldsskóla en FAS, það hefur áhrif á Tónskólann líkt og önnur íþrótta- og tómstundastörf.

DAGUR TÓNLISTARSKÓLANNA

Laugardaginn 7. febrúar er Dagur Tónlistarskólanna, í tilefni dagsins verður opið hús í Sindrabæ milli klukkan 11:00 og 15:00. Þá munu nemendur skólans vera með tónleika í salnum í þremur til fjórum hópum og fólk getur komið að vild, skoðað húsnæðið um leið og það hlustar

á nemendur spila á hljóðfærin sín. Það verður auglýst nánar inn á heimasíðu Tónskólans: www.hornafjordur.is/tonskoli.

Eins og flestum er ljóst voru gerðar heilmiklar endurbætur á húsinu sem hefur bætt aðstöðuna mjög mikið. Eins og áður segir þá erum við ákaflega ánægð með hvernig til tókst. Því miður höfum við lent í áföllum með þessa framkvæmd að hluta til. Allur sviðsbúnaður var boðinn út á einu bretti og vissulega fengum við hagkvæm tilboð sem við tókum. Annar aðili sem bauð í búnaðinn var ekki sáttur og kærði tilboðið, sem þýddi að það varð 7 mánaða bið eftir niðurstöðu sem setti okkur á byrjunarreit. Svo er það búið að taka mánuð að greiða úr þessu og gefa okkur grænt ljós með að halda áfram. Það er enn óljóst hvenær við klárum þann hluta og þá ætlum við að halda formlega opnun á nýjum Sindrabæ. Um leið og við hvetjum alla til að læra á hljóðfæri þá óskum við Hornfirðingum til hamingju með Tónlistarog menningarhúsið Sindrabæ.

Mynd frá jólatónleikum nemenda tónskólans
Salurinn í Sindrabæ er orðinn glæsilegur

Sveitarfélagið vill minna íbúa og fyrir tæki á eftirfarandi:

Tryggið sorpílát

Gætið þess að sorpílát standi stöðug og geti hvorki fallið um koll né fokið bur t

Ekki fylla ílát umfram það sem þau rúma Lok skulu alltaf vera vel lokuð

Aldrei skilja úrgang eftir við hlið íláta eða utan þeirra Laus úrgangur fýkur auðveldlega og veldur mengun

Leiðbeiningar til ferðaþjónustuaðila

Flokkun er skilyrði fyrir losun Rangflokkaður úrgangur verður ekki losaður Límt verður viðvörunarmerki á ílátið þar sem rangflokkun kemur fram og verður ílátið ekki losað fyrr en búið er að leiðrétta flokkun

Heimili með umframúrgang eru beðin um að koma honum á flokkunarstöðina við Sæbraut á opnunartíma, eða sækja um stærri tunnu í gegnum Íbúagátt

Ferðaþjónustufyrir tæki skulu hafa flokkunarleiðbeiningar skýrar og aðgengilegar, á fleiri en einu tungumáli, svo gestir sem og nýir eða tímabundnir starfsmenn geti flokkað rétt

Ítarlegar flokkunarleiðbeiningar og leiðbeiningar á einu blaði má finna á heimasíðu sveitarfélagsins. Einnig er hægt að skanna QR-kóða hér að neðan til að nálgast upplýsingarnar.

Takk fyrir að hjálpa okkur að halda umhver finu hreinu og snyr tilegu!

The municipality would like to remind residents and businesses of the following:

Secure your bins

Make sure bins are stable and cannot tip over or blow away

Do not overfill bins Lids must always be fully closed

Never place waste next to or outside the bins Loose waste easily becomes windblown litter

Notes to tourist businesses

Correct sor ting is mandatory

Incorrectly sor ted bins will NOT be emptied A sticker will be placed on the bin explaining the problem The bin will only be collected once the sor ting has been corrected

Households with excess waste must bring it to the sor ting station at Sæbraut during opening hours, or apply for a larger bin through Íbúagátt

Tourist businesses should ensure that sor ting instructions are clearly displayed and available in multiple languages so that visitors and temporary or new staff can sor t waste correctly.

Full sorting instructions and a one-page guide are available on the municipality’s website. You may also scan the QR code below for direct access.

Small actions make a big difference. Toge ther we can keep Hornafjörður clean, safe, and beautiful.

“SMÁHÝSIN” Í SKAFTAFELLI

Aðsend grein

Í Öræfum hefur byggst upp samheldið og öflugt samfélag þar sem íbúum hefur fjölgað um tæp 120% frá árinu 1998 til 2025. Þessi þróun endurspeglar þrótt þeirra sem hér búa til að byggja upp sjálfbæra framtíð í heimabyggð og vilja ungs fólks til að koma sér upp búi og nýta tækifærin sem náttúruauðlindir svæðisins hafa gefið.

Sveitarfélagið Hornafjörður er víðfeðmasta sveitarfélag landsins en lengi hefur borið á þeirri vegalengd varðandi afskipti og samskipti sveitarfélagsins við íbúa í Öræfum, þrátt fyrir fögur loforð sveitarstjórnarfulltrúa um aukið samtal og samráð við íbúa. Nærtækasta dæmið í dag er uppbygging í Skaftafelli III og IV sem fjöldi íbúa í Öræfum hafa lýst yfir andstöðu við. Mikið hefur verið skrifað um málið en ósk okkar er að útskýra málið frá okkar hlið, fyrir íbúum sveitarfélagsins.

Fyrstu skipulagshugmyndir varðandi lóðirnar Skaftafell III og IV voru lagðar fram árið 2018. Þá stóð til að byggingarmagnið yrði 5.200 m2 en í kjölfar andstöðu íbúa og fjölda umsagnaraðila var byggingarmagnið minnkað niður í 1.400 m2 eða 35 smáhýsi á einni hæð með svefnlofti, sem féllu vel að landslagi.

Það er því ekki að undra að íbúar voru forviða þegar “smáhýsin” á “einni hæð” birtust um miðjan nóvember í Skaftafelli.

Það leiddi til þess að hópur fólks kafaði í málið og rak sig í kjölfarið á fjölda atriða sem höfðu verið unnin á vafasaman hátt.

Þá sást að byggingarmagnið hafði verið aukið úr 1.400 m2 í 4.200 m2 án nokkurrar kynningar, grenndarkynningar eða samtals við íbúa. Þrátt fyrir að afstaða íbúa var ljós eftir fyrri umfjöllun um skipulag á

þessum stað og þrátt fyrir loforð um aukið samtal og samráð við íbúa.

Samkvæmt deiliskipulagi frá ágúst 2022 var heimilað að reisa 35 einnar hæðar hús, allt að 40 fermetrar að stærð, með hámarksvegghæð 4,5 m og mænishæð 6 m á umræddum lóðum. Heimilt var að hafa svefnloft í húsunum, samtals 35 hús á báðum lóðum. Síðla árs 2022 samþykkti bæjarstjórn að gera það sem þau telja vera óveruleg frávik frá

Húsin falla ekki vel í landslagið, enda er ómögulegt að láta kassalaga hús falla inn í marflatann jökulsandinn. Mynd: Íris Ragnarsdóttir Pedersen

Hér má sjá fyrsta áfanga af húsunum, sem staðsett eru beint fyrir framan Skaftafellsstofu og Skaftafellsheiði. Mynd: Íris Ragnarsdóttir Pedersen

deiliskipulagi en frávikið fólst í því að hækka vegghæð húsanna úr 4,5 metrum í 6 metra með einhalla þaki. Ekkert var fjallað um möguleg sjónræn áhrif eða hagsmuni nágranna.

Á seinni stigum málsins ákveða landeigendur að allt byggingarmagnið verði nýtt á lóð sem er kölluð Skaftafell III. Síðar er sótt um sambærilegt byggingarmagn á lóðinni Skaftafelli IV á þeim forsendum að það sé þegar búið að fullnýta byggingarheimildir beggja lóða á hinni lóðinni.

Auglýsing um breytinguna þar sem staðfest var tvöföldun á fjölda húsa birtist frá 19. desember 2023 – 15. janúar 2024 eins og virðist vera vinsælt þegar um umdeildar framkvæmdir er að ræða.

Samkvæmt svörum sveitarstjórnarfulltrúa töldu þau ekki vera hægt að neita landeiganda um að byggja á hinni lóðinni þar sem nú þegar hafði verið gefið leyfi á annarri lóðinni, jafnvel þótt að um sé að ræða sama svæði og svæðisráði þótti áður ríflegt byggingarmagn að hafa samtals 35 hús. Á svipuðu tímabili er umsókn um uppbyggingu hótels í Nesjum hafnað, meðal annars vegna þess að uppbyggingin væri í of mikilli samkeppni við fyrirtæki á svæðinu.

Þar sem önnur hæð húsanna í Skaftafelli er skilgreind sem svefnloft, er landeigandi og framkvæmdaraðili, sá eini sem græðir því svefnloftið telst ekki til fermetra sem greiða ber fasteignagjöld af. Sveitarfélagið hefur því selt sig eins ódýrt og hægt er fyrir hag framkvæmdaraðila á kostnað sveitarfélagsins, íbúa og náttúru.

Samkvæmt grunnteikningu eru teiknuð rúm fyrir 4-6 manns í húsunum og tvö baðherbergi. Öll leyfi gera hinsvegar ráð fyrir tveimur gestum í hverju húsi og útgefin leyfi eru fyrir að hámarki 140 gesti. Húsin eru teiknuð svo hýsa megi yfir 280 manns (meiri en fjöldi íbúa Öræfa) en svo landeigandi fái leyfi fyrir öllum þessum gistirýmum þarf að fara í mat á umhverfisáhrifum og sveitarfélagið þyrfti að breyta aðalskipulagi sínu, aftur.

Ekki einungis er allt ferlið og ákvörðunartaka varðandi uppbygginguna í Skaftafelli III og IV óvirðing við íbúa og

Vigdísarholt

SUMARSTÖRF Á SKJÓLGARÐI

Viltu vinna með skemmtilegu fólki og við spennandi aðstæður, hvernig væri að prófa starf á hjúkrunarheimili í sumar. Getum bætt við okkur sumarstarfsfólki á Skjólgarði.

HÆFNISKRÖFUR

Góð þjónustulund

Samskiptafærni

Góð íslenskukunnátta

Húsin eru vissulega á tveimur hæðum. Sökkullinn rís um 40 cm upp úr landslaginu og gerir húsin enn meira áberandi. Mynd: Íris Ragnarsdóttir Pedersen

atvinnurekendur í Öræfum, heldur vanvirðing við þjóðgarðinn, náttúruna og svæði á heimsminjaskrá UNESCO. Það er alls óljóst hvaða áhrif þessi uppbygging mun hafa á íbúa, fyrirtæki, gesti, fjárhag og náttúru sveitarfélagsins þar sem hagsmunir landeigenda voru þeir einu sem tekið var tillit til.

Við vonum að greinin skýri málin fyrir íbúum og varpi ljósi á stöðunni sem íbúar í Öræfum eru í.

Fyrir hönd íbúahóps, Íris Ragnarsdóttir Pedersen

Klaus Kretzer

Regína Hreinsdóttir

Svanhvít Helga Jóhannsdóttir

Alexander Vigfússon

Á ÞRIÐJUDÖGUM

Í FEBRÚAR VERÐUR SUNDLAUG HAFNAR OPIN TIL 21:30

Um tilraunaverkefni er að ræða í kjölfar umræðna á Barna- og ungmennaþingi í nóvember þar sem ungmenni í sveitarfélaginu óskuðu eftir fleiri samverustöðum og samverustundum.

Sundlaugar Hafnar

BLÓMABÚÐIN AMOR FIMM ÁRA

Greinarhöfundur: Guðrún Ásdís Sturlaugsdóttir

ár frá því Eystrahorn greindi frá opnun nýrrar blómabúðar á Hafnarbraut 34.

Blómabúðin opnaði 20. mars 2021, en er nú til húsa í húsnæði sem margir þekkja sem gömlu sundlaugina við Hafnarbraut 11.

Amor Mantilla segir að draumurinn um að vinna með blóm hafi lengi verið til staðar, en upphafið hafi verið einfalt. Hún byrjaði heima, viku fyrir bóndadag 2021, þegar hún tók fyrst við blómapöntunum. Viðtökurnar urðu til þess að hún lét verða af því að opna verslun, og segir hún að opnun verslunarinnar á sínum tíma hafi verið bæði áskorun og sigur í senn.

Á fimm árum hefur blómabúðin

flutt þrisvar og segir Amor að núverandi staðsetning við Hafnarbraut 11 hafi haft jákvæð áhrif og reksturinn sé nú stöðugri. Vöruúrval og þjónusta hefur líka þróast. Í dag er megináhersla á fersk og vönduð blóm, blómaskreytingar og persónulega þjónustu fyrir ólík tilefni. Jafnframt er boðið upp á valdar tækifærisgjafir sem styðja við blómaúrvalið. Amor segir að hún leggi nú meiri áherslu á gæði fremur en magn, og að reynslan hafi gert vinnubrögðin markvissari.

Hún nefnir einnig að eitt það skemmtilegasta við starfið sé að fá að kynna fyrir Hornfirðingum blóm og samsetningar sem ekki hafi verið áberandi hér áður. Amor er upprunalega frá Filippseyjum og þekkir því margar plöntutegundir sem ekki vaxa við íslenskar aðstæður, og að sú þekking nýtist henni í vöruvali og hugmyndum þegar hún setur saman blóm og skreytingar.

Amor segir að það sem hafi komið henni mest á óvart í rekstrinum tengdist því hve litla reynslu hún hafði af rekstri í

upphafi. Hún hafi fundið fyrir óvissu og efasemdum á köflum og eftir á að hyggja hefði hún viljað sækja sér námskeið í rekstri fyrr. Á sama tíma segir hún að reynslan hafi kennt sér mikið og að sjálfstraustið hafi aukist með árunum.

Amor segir að hún sé sérstaklega þakklát Hornfirðingum fyrir hlýjar viðtökur og traust í gegnum árin. Hún nefnir einnig stuðning fjölskyldu og vina sem hafi skipt miklu þegar hefur reynt á. Í mars eru liðin fimm

Blómabúðin er opin á virkum dögum frá kl. 14 til 17 og á laugardögum frá kl. 12 til 16. Pantanir eru teknar í síma 848 6807 og á netfanginu amorblomabud@gmail.com.

Amor í verslun sinni við Hafnarbraut 11

Hvernig hljómar sumar

með

náttúru Íslands?

Náttúruverndarstofnun auglýsir nú fjölbreytt

störf landvarða og þjónustufulltrúa víða um landið meðal annars í Vatnajökulsþjóðgarði

Umsóknarfrestur er til og með 16. febrúar 2026.

Nánar hér → náttúra.is eða vjp.is

LJÚFFENGT BARSNARL TILBOÐ Á BARNUM frá 14-23

RÓMANTÍSKAR GLEÐISTUNDIR Í FEBRÚAR

Í tilefni af Valentínusar- og konudeginum framlengjum við gleðistundirnar og bjóðum upp á drykki á tilboðsverði allan daginn, eða frá kl. 14–23, helgarnar 13.–15. og 20.–22. febrúar.

Hjartanlega velkomin, öll sem eitt!

verbudarbarinn

SVEITARFÉLAGIÐ HORNAFJÖRÐUR BARNVÆNT SVEITARFÉLAG

Aðsend grein

Sveitarfélagið Hornafjörður fékk útnefningu sem Barnvænt sveitarfélag í apríl í fyrra. Með útnefningunni hefur

Sveitarfélagið sýnt að það hefur með markvissum hætti unnið að innleiðingu Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í stjórnsýslu og starf sveitarfélagsins.

Það er gert með því að taka tillit til þarfa barna og ungmenna við ákvarðanatöku og eiga samtal við þau um málefni er þau varðar. Það er gert á ýmsan hátt en stærsti vettvangur þessa samtals er á barna- og ungmennaþingi sem halda á reglulega eða á tveggja til fjögurra ára fresti.

Á þinginu tóku yfir 300 ungmenni þátt allt frá elsta árgangi leikskóla upp í elstu nemendur FAS. Markmið þingsins var að skapa vettvang fyrir ungt fólk til að ræða sýn þeirra á samfélagið og hverju mætti breyta. Boðið var upp á sex þemu til umræðu eða málstofur sem byggðu á hugmyndum frá ungmennaráði. Málstofurnar sem voru aðlagaðar að aldri, þroska og aðstæðum þátttakenda fjölluðu um skólastarf, íþróttir og útivist, öryggi og umhverfi, félagslíf, heilsu og samskipti og atvinnu. Nemendur í 6. bekk og upp í framhaldsskóla unnu saman í 15 hópum í Nýheimum en yngri börnin unnu í sínum skólum. Samhliða málstofunum var unnið í rýnihópum þar sem raddir fámennari hópa voru dregnar fram. Þessir hópar voru börn með fötlun, börn af erlendum uppruna, börn úr dreifbýli og ungmenni sem farin eru að vinna

NIÐURSTÖÐUR

BARNA- OG

UNGMENNAÞINGS

Hóparnir máttu ráða á hvaða málstofum þeir byrjuðu. Flestir hóparnir náðu að ræða um tvær til þrjár málstofur en nokkrir hópar komust í gegnum þær allar. Vinsælast var að fjalla um skólaog íþróttamál og voru þau rædd í öllum hópum.

SKÓLAMÁL

Skortur á viðhaldi á mannvirkjum og skólalóðum var gegnumgangandi í

umræðu um skólamál. Þó almenn ánægja væri með starfsfólk og andrúmsloft í skólunum kom fram skýr ósk um fjölbreyttara nám, meiri skapandi og verklega kennslu og að það væri hlustað meira á nemendur. Þá vildu nemendur meiri sveigjanleika, seinni skóladag, betri aðstöðu bæði inni og úti, þar á meðal betri matsal og hvíldarrými.

ÍÞRÓTTA- OG ÚTISVÆÐI

Ákall var eftir meiri og betri aðstöðu til að stunda íþróttir bæði úti og inni. Ungt fólk vill stærra og nútímalegra íþróttahús og betri líkamsræktaraðstöðu, upphitað gervigras og endurbætur á íþróttasvæðum á borð við Báruna en umgengni þar þarf að vera talsvert betri og viðhaldsverkefni að ganga hraðar. Taka þyrfti í gegn miðsvæðið og tengist sú umræða inn í umræðu um skólalóðir. Rætt var um fjölbreytni í útivistarsvæðum og langar unga fólkinu að sjá margskonar leik- og afþreyingarmöguleika sem hvetja til útiveru og hreyfingar en laða líka að ólíka aldurshópa og skapa möguleika á

Mynd af Ungmennaráði Hornafjarðar

tengslum.

Óskað var eftir fjölbreyttari framboði á íþróttum, jafnvel í formi námskeiða og ekki eingöngu keppnisíþróttir. Mikilvægt væri að skapa tækifæri fyrir þá einstaklinga sem vilja taka þátt að geta gert það án þess að skuldbinda sig í keppni. Þá finna ungmennin fyrir samkeppni milli íþróttadeilda um iðkendur.

ÖRYGGI OG

UMHVERFI

Unga fólkið okkar benti á að bæta þyrfti gangstéttir, hjólastíga og lýsingu auk þess sem umhverfið mætti vera hreinna. Sérstaklega var kallað eftir öruggari hjólaleiðum og bættri lýsingu á hjóla- og gönguleiðum. Félagslegt öryggi, að draga úr einelti og efla samkennd, var einnig stór þáttur í umræðunum. Að fjölga tækifærum og stöðum fyrir ólíkan aldur til að hittast og hafa gaman var í raun gegnum gangandi í öllum málstofum og að það að líða vel og eiga vini og góða fjölskyldu væri mikilvægast.

FÉLAGSLÍF

Ósk um fleiri samverustaði þar sem allur aldur gæti hist og þá án áfengis kom oft fram. Ungmennin óska eftir kaffihúsi, bakaríi, bíói og fjölbreyttari viðburðum fyrir alla aldurshópa. Þau vilja rými þar sem hægt er að vera saman, spila, hlusta á tónlist og skapa. Þetta snýst ekki um að fjölga úrræðum fyrir ungt fólk heldur að skapa aðstæður sem fólk á öllum aldri sækist í. Unga fólkið, sérstaklega á aldrinum 14 ára og upp úr vill tilheyra og vera hluti af samfélaginu. Þarna var talað um hversu frábærir viðburðir körfuboltaleikirnir væru og hversu gaman það er á jólamarkaði í Nýheimum og á Hafnarhittingum. Allir þessir viðburðir eiga það sameiginlegt að vera ekki sér viðburðir fyrir ungt fólk heldur viðburðir þar sem allskonar fólk hittist og tekur þátt.

HEILSA OG SAMSKIPTI

Áhersla var á mikilvægi vina, fjölskyldu og góðs stuðnings. Margir þekkja einhvern sem glímir við kvíða eða vanlíðan og kallað var eftir enn betra aðgengi að sálfræðingum og skýrari upplýsingum um úrræði. Samskipti voru ofarlega í huga ungmenna að allar málstofur í flestum hópum fóru á einhverjum tímapunkti að ræða þá félagslegu þörf sem allt fólk hefur og í framhaldi af því að það skorti

fleiri staði þar sem fólk getur komið saman og einfaldlega verið að gera það sem það langar til hverju sinni.

ATVINNA

Fram kom að þrátt fyrir að auðvelt sé að fá vinnu vanti fjölbreyttari störf fyrir ungmenni og meiri tengingu við framtíðarnám. Einnig var nefnt að það mætti auglýsa Heimahafnar verkefnið betur.

FRAM UNDAN

Um þessar mundir er verið að kynna niðurstöður þingsins á starfsstöðvum sveitarfélagsins, í fastanefndum, bæjarráði

og víðar. Með kynningunni fylgir hvatning um að fólk taki tillit til hugmynda ungmenna og að það láti niðurstöður hafa áhrif á starf sitt og stefnumótun.

Þá mun ungmennaráð halda niðurstöðunum á lofti ekki síst þeim rauða þræði sem var í gegnum allar málstofurnar að ungmennin vilja samfélag sem hlustar á þau, skapar fjölbreytt tækifæri til leikja og samveru og styður við þroska þeirra og velsældar. Barna- og ungmennaþingið sýndi að ungt fólk er tilbúið að taka þátt í uppbyggingu samfélagsins og frá unga fólkinu okkar koma skýrar, framkvæmanlegar hugmyndir um hvernig megi gera Hornafjörð sem er frábær enn betri.

Hópur ungmenna í vinnustofu á Barna- og ungmennaþingi í október 2025

HUMARHÁTÍÐ

26. – 28. JÚNÍ 2026

Við viljum byrja á að þakka öllum þátttakendum og gestum kærlega fyrir frábæra Humarhátíð 2025, hún heppnaðist einstaklega vel. Nú stefnum við á að gera hátíðina enn glæsilegri og til þess þurfum við ykkar hugmyndir og þátttöku!

Við efnum því til opins samtalsfundar þann 18. febrúar næstkomandi kl. 20:00 í Gömlubúð. Allir velkomnir og vonumst til að sjá sem flesta.

Kemst þú ekki á fundinn? Sendu okkur endilega hugmyndir eða áhuga um þátttöku á humarhatidarnefnd@gmail.com.

Saman gerum við Humarhátíðina 2026 ógleymanlega.

Humarhátíð Humarhátíð

vilt þú halda vilt þú halda 2026? 2026?

Komdu á opinn fund: Komdu á opinn fund: Gamlabúð Gamlabúð 18. febrúar 18. febrúar kl 20:00 kl 20:00

Auglýsing um skipulagsmál

Kynningarfundur um heildarendurskoðun á deiliskipulagi í Skaftafelli verður haldinn þriðjudaginn 10. febrúar 2026, kl. 12:00 í Freysnesi Öræfum.

Gunnlaugur Róbertsson, skipulagsfulltrúi

Sveitarfélagið Hornafjörður / Hafnarbraut 27 / S: 4708000 / www.hornafjordur.is

Söngvakeppni barnanna er fastur liður á hátíðinni
Eldgleypar vekja ávallt mikla aðdáun gesta hátíðarinnar

HUNDRAÐASTA SÝNING LEIKFÉLAGS HORNAFJARÐAR

Aðsend grein

Í ár fagnar Leikfélag Hornafjarðar þeim merka áfanga að setja upp

sína hundruðustu sýningu. Af því tilefni vildum við gera eitthvað sannarlega sérstakt.

Í ár fagnar Leikfélag Hornafjarðar þeim merka áfanga að setja upp sína hundruðustu sýningu. Af því tilefni vildum við gera eitthvað sannarlega sérstakt. Upp kom sú hugmynd að skapa nýtt leikverk frá grunni og við ákváðum að láta á það reyna. Við héldum tvær vinnustofur í samstarfi við Aron Martin Ásgerðarson og þar urðu til bæði persónur og fyrstu drög að handriti. Nú hefur verkið tekið á sig fullmótaða mynd og æfingar eru hafnar af krafti.

Verkefnið státar einnig af frumsömdum lögum og textum eftir Þorkel Ragnar Grétarsson og Björgu Catherine Blöndal, sem setja einstakan svip á sýninguna. Að uppfærslunni kemur fjölbreyttur hópur fólks á öllum aldri og endurspeglar það þann kraft og þann samhug sem einkennir starfið í félaginu. Leikstjórinn er einnig úr okkar röðum, en þetta er í fyrsta sinn sem Birna Jódís Magnúsdóttir stígur í það hlutverk. Hér er því um ramm hornfirskt verk að ræða og heimsfrumsýningu á nýju íslensku leikriti.

Við erum afar þakklát fyrir þær frábæru viðtökur sem síðasta sýning okkar, Hárið, hlaut. Það var yndislegt að sjá hversu margir lögðu leið sína í leikhúsið og við vonum innilega að sú verði raunin á ný. Við hlökkum til að taka á móti ykkur og eiga með ykkur eftirminnilega leikhússtund.

Frumsýning verður í Mánagarði laugardaginn 14. mars. Fylgist með.

Leikfélag Hornafjarðar

ÍRSKT KVÖLD

Hið árlega Írska kvöld verður á Jóni Ríka í Hólmi laugardaginn 28. febrúar nk. kl. 21:00

Laugardaginn 28. febrúar

Húsið opnað kl. 21:00

Jón Ríki, Hólmur

Tónlistarmenn víðsvegar frá stíga á stokk

Stuð og veigar

Meðlimir leikfélagsins að störfum
Frá æfingu leikfélagsins

GLÆPURINN

Það var gott að vera barn og unglingur í þorpinu við fjörðinn. Frelsið var mikið og yfirleitt var ekki verið að jagast mikið í okkur strákunum nema þegar við vorum að atast í einhverjum. Það var hluti af dægradvöl okkar á síðkvöldum þegar skyggja tók, að gera at og helst í þeim sem létu æsa sig. En stundum endaði sá leikur með að einhver lét mæður okkar vita, og þá áttum við yfir höfði okkur refsingu. Sú refsing gat verið fólgin í útgöngubanni eða þegnskylduvinnu fyrir þann sem fyrir atinu varð.

Það var alltaf nokkur tilhlökkun hjá okkur strákunum þegar von var á skipakomum. Þetta voru fyrst og fremst strandferðaskipin, en stöku sinnum komu skip til að lesta fiskafurðir og afurðir tengdar landbúnaði.

Það var sérstakur maður hjá Kaupfélaginu, sem sá um skipakomur. Það var heilmikið fyrirtæki. Það þurfti að setja niður stóran nótabát og trillu til að draga hann. Ræst var út sérstakt gengi til að sjá um að setja niður og upp þegar búið var að afgreiða eða ferma skipið. Verkstjórinn lét boð út ganga með góðum fyrirvara.

Allir skyldu mæta stundvíslega svo allt gæti gengið sem best. Það var ys og þys á bryggjunni og kringum Kaupfélagið. Okkur strákunum þótti mikið til þessa koma og reyndum alltaf að fylgjast með því sem fram fór. Að vísu fannst okkur eins og þessi skip væru oftast á ferðinni á nóttunni.

út um ýmsan nauðsynlegan búnað. Prímus fengum við í einum beituskúrnum, tjöru stálum við frá Kaupfélaginu. Við útbjuggum okkur stiga á laun til að komast upp að svefnherbergisglugganum. Loks rann upp stundin. Von var á skipi. Við ákváðum að hittast á miðri nóttu og tjarga gluggann. Þetta var heilmikið verk. Hita þurfti tjöruna þannig að hægt væri að bera hana á gluggann með pensli. Allt gekk það samkvæmt nákvæmri áætlun, sem við höfðum samið. Síðan var gengið frá öllu svo tryggt væri að engin sönnunargögn fyndust. Síðan læddumst við heim og skriðum í bólin.

Fljótlega flaug sagan um þorpið og vakti óneitanlega hlátur. Sumir dáðust meira að segja að hugmyndflugi pörupiltanna. Verkstjórinn hafði gefið sér tíma, þótt mikið væri að gera, að hafa samband við mæður ákveðinna drengja.

Einhverju sinni sátum við fóstbræður og fylgdumst með uppskipun. Þá datt mér allt í einu í hug. Hvað myndi gerast ef verkstjórinn mætti ekki.

Við ræddum þetta fram og aftur þar til að hugmyndin kviknaði. Við ákváðum að næst þegar væri von á skipi að næturlagi þá skyldum við tjarga svefnherbergisgluggann hjá verkstjóranum. Nú leið og beið og notuðum við tímann til að verða okkur

Menn mættu til vinnu á boðuðum tíma og sett var niður og allt var til reiðu, nema verkstjórinn var ókominn. Menn ræddu þetta sín á milli, ef til væri hann alvarlega veikur eða jafnvel dauður. Rétt er að geta þess að verkstjórinn var einsetumaður og lítt gefinn fyrir konur. Urðu menn sammála um að senda tvo valinkunna menn heim til verkstjórans til að kanna málið. Þeir bönkuðu og seint og um síðir kom verkstjórinn til dyra á prjónabrókinni með stírur í augum. Komumenn spurðu hvort verkstjórinn væri ekki væntanlegur. Nú áttaði verkstjórinn sig á því hvers vegna enn var niðamyrkur inni hjá honum. Viðbrögð verkstjórans voru hroðaleg, að sögn sendimanna. Fyrst bölvaði hann svo hroðalega að komumenn höfðu ekki heyrt nokkurn mann hnýta saman svona mörgum blótsyrðum, í næstu andrá bað hann almáttugan Guð um hjálp og

Á þessum árum var ég yfirleitt árrisull en nú bar svo við að drengur svaf sem fastast í rúmi sínu. Er hann nú vakinn og spyr móðir hans hvort hann sé lasinn. Ekki var svo en hann sagðist hafa sofið illa. Þá kom undarleg spurning. Má ég sjá á þér hendurnar? Jú, en ég þvoði mér í gær áður en ég fór í rúmið. Spurningin er endurtekin með ögn meiri þunga. Þá dró ég hendurnar undan sænginni og þá varð mér ljóst að nú var orrustan töpuð.

Af hverju ertu svona svartur á höndunum? Við félagarnir vorum að mála bíl sem við smíðuðum. Mér sýnist nú að

blessun.
Bakkagerði efri byggð árið 1977. Mynd: Sverrir Aðalsteinsson
Guðmundur Ingi á góðri stundu. Mynd: Sverrir Aðalsteinsson

Hann tók okkur vel en hélt yfir okkar langa og mjög leiðinlega ræðu.

Bakkagerðisþorp, Borgarfirði eystra árið 2010. Mynd: Sverrir Aðalsteinsson

þetta sé tjara á höndunum á þér en ekki málning Nú var fátt um varnir. Ég ákvað að nú skyldi staðið við eiðinn. Einn fyrir alla og allir fyrir einn. En réttarhöldin héldu áfram með vaxandi þunga og erfiðum spurningum. Endaði með að ég sat skælandi í rúminu og tilgreindi með ekkasogum hverjir hefðu verið þátttakendur í glæpnum.

Nú báru mæður óþokkanna saman bækur og ákváðu refsingu. En það var einhvern veginn þannig að bæði dómsvald

og framkvæmdavald var í höndum mæðra á þessum tíma.

Niðurstaðan var einföld: Þið farið og hreinsið eftir ykkur. Síðan farið þið og biðjið verkstjórann fyrirgefningar. Niðurlægingin var alger. Stoltið var fótumtroðið.

Við fórum fremur lúpulegir og vorum lengi að ná tjörunni af glugganum. En að lokum samþykktu mæður okkar að nógu vel væri hreinsað. Þá tók við næsta stig refsingarinnar. Við gengum á fund verkstjórans og báðumst fyrirgefningar.

En þó við höfum beðið ákveðið skipbrot og hlotið erfiða refsingu fyrir ódæðið þá vorum við samt svolítið stoltir innst inni. Svo mikið er víst að það var lengi talað um glæpinn og hlegið að uppátækinu.

Mörgum árum síðar kom ég í þorpið. Þegar við hjónin ókum hægt niður götuna sá ég hvar maður í brúnum sloppi var að bogra yfir málningardollu. Ég sá að þarna var gamli verkstjórinn. Ósjálfrátt datt mér í hug að ef til vill væri málningin svört! Ég stoppaði og heilsaði. Hann þekkti mig ekki. Ég kynnti mig. Þá horfir hann á mig og segir síðan: „Manstu þegar ég klagaði þig fyrir móður þinni.“ Ég svara: „Já, því gleymi ég aldrei.“

S P E N N A N D I S U M A R S T Ö R F

Á F R Æ Ð S L U - O G F R Í S T U N D A S V I Ð I

Verkefnastjóri á fræðslu- og frístundasviði - afle ysing í fæðingarorlofi

Verkefnastjóri er aðstoðarmaður sviðsstjóra. Yfir sumarið snýr starfið fyrst og fremst að vinnuskólanum og sumarfrístund en einnig ungmennaráði og ýmsum viðburðum

Starfstími er umsemjanlegur en getur verið frá byrjun maí og út ágúst

Forstöðumaður í félagsmiðstöðinni Þr ykkjunni - afle ysing í fæðingarorlofi

Yfir sumarið er starfið mjög fjölbreytt og verkefnin ólík Á opnunar tímum félagsmiðstöðvar ber forstöðumaður ábyrgð á daglegum rekstri félagsmiðstöðvarinnar og skipuleggur starf hlutastarfsmanna Yfir sumarið breytist starfið og tekur líka yfir sumarfrístund hjá yngri börnum eftir hádegi, opnanir í félagsmiðstöð fyrir miðstig á morgnana og kvöldopnanir fyrir unglingastigið. Í júlí snýr starfið að vinnuskólanum og fjölbreyttum verkefnum þar.

Starfstími er umsemjanlegur Getur verið frá byrjun maí og fram í október en líka hluta af þessum tíma

Yfir flokksstjóri vinnuskólans

Yfirflokksstjóri skipuleggur starf vinnuskólans í samráði við yfirmann áhaldahúss og verkefnastjóra á fræðslu- og frístundasviði Hann sér um skipulag og framkvæmd á daglegum störfum og útdeilir verkum til flokksstjóra og leiðbeinir þeim eftir þörfum

Heldur utan um mætingar í vinnuskólanum og vinnuskýrslur Yfirflokksstjóri er mikilvæg fyrirmynd og tekur virkan þátt í starfi vinnuskólans.

Starfstími er umsemjanlegur. Getur verið frá miðjum maí og út ágúst.

Flokksstjóri vinnuskólans

Starf flokkstjóra felst í að stjórna starfi hóps nemenda vinnuskólans, leiðbeina þeim um verklag og vinnubrögð, efla starfsanda og vinnumenningu og gæta að jafnræði og líðan nemenda.

Flokksstjóri er mikilvæg fyrirmynd í vinnu, heilbrigðum lífsstíl, stundvísi og tillitssemi

Starfstími er umsemjanlegur en nauðsynlegt að hann sé a m k í júní og júlí

Frekari upplýsingar um störfin ásamt umsóknareyðublaði má nálgast á heimasíðu sveitarfélagsins Sumarstörf | Hornafjörður.

Skannaðu QR-kóðann fyrir frekar upplýsingar!

Sveitarfélagið Hornafjörður / Hafnarbraut 27 / S: 4708000 / www.hornafjordur.is

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Eystrahorn 1.tbl. 2026 by Héraðsfréttablaðið Eystrahorn - Issuu