Skip to main content

Eystrahorn 32.tbl 2022

Page 1

Eystrahorn 32. tbl. 40. árgangur

Fimmtudagurinn 22. september 2022

www.eystrahorn.is

Fyrstu skóflustungurnar fyrir nýtt hjúkrunarheimili

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra ásamt fulltrúum elstu og yngstu kynslóðarinar í sveitarfélaginu tóku fyrstu skóflustungurnar að nýju hjúkrunarheimili

Hátt í 250 manns mættu til að fagna þegar fyrstu skóflustungur að nýju hjúkrunarheimili á Höfn voru teknar. Heilbrigðisráðherra, elstu íbúar á Skjólgarði og elstu börn á leikskólanum Sjónarhóli tóku saman fyrstu skóflustungurnar fyrir stærri Skjólgarði við hátíðlega athöfn á mánudaginn. Elstu konurnar í hópnum eru 99 ára. Að lokinni athöfninni var boðið til samsætis í Ekru, sal félagsstarfs aldraðra þar sem börn frá Tónskóla A- Skaft. léku á hljóðfæri. Seinna um daginn var einnig samsæti á Skjólgarði þar sem gestum var boðið til að fagna með íbúum.

Verktakafyrirtækið Húsheild ehf. mun byggja nýja hjúkrunarheimilið. Skrifað var undir samninga við verktakann 22. júlí. sl. Samkvæmt upplýsingum frá verktaka mun hann hefja framkvæmdir á næstu dögum og áætlað er að fyrstu íbúar í nýrri byggingu muni flytja inn í janúar 2024. Þetta mál hefur verið baráttumál lengi hér í Hornafirði og hafa margir lagt hönd á plóg í baráttunni fyrir auknum lífsgæðum okkar eldri íbúa. Til hamingju Hornfirðingar.

Gleðigjafar - kór eldri borgara Nú er sumarið á enda og haustkaflinn tekur við…..o.sv. frv. Mig langar að minna á vetrarstarf Gleðigjafa, kórs eldri borgara, og hvetja fólk til að dusta af raddböndunum. Við höfum alltaf þörf fyrir söngfólk, og í almáttugs bænum ekki telja ykkur trú um að til að syngja með okkur þurfi þig að vera með háskólagráðu í söng! Kóræfingar byrja ekki fyrr en um miðjan október að venju og er æft einu sinni í viku, en oftar ef eitthvað mikið stendur til. Eins og nafnið á kórnum bendir til er þetta hressilegur hópur og við tökum ykkur fagnandi. Hafið samband við einhvern úr okkar hópi til að melda ykkur, eða beint við mig og ég læt mig hlakka til vetrarins. Guðlaug Hestnes


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Eystrahorn 32.tbl 2022 by Héraðsfréttablaðið Eystrahorn - Issuu