Skip to main content

Fróðleikur og skemmtun - Vormisseri 2018

Page 1

FRÓÐLEIKUR OG SKEMMTUN

MENNING PERSÓNULEG HÆFNI TUNGUMÁL NÁMSKEIÐ FYRIR ÞIG

VORMISSERI 2018

1


Ágætu viðskiptavinir Upp er runnið enn eitt nýtt ár sem við getum fagnað og skorað á okkur sjálf að njóta þess og bæta okkur á ýmsa lund. Hjá Endurmenntun HÍ eru fjölmörg tækifæri til þess því í þessum bæklingi er að finna áhugaverð og spennandi námskeið. Óvenju alþjóðlegur blær er yfir mörgum kvöldnámskeiðum í þetta sinn; Úganda, Enska landsbyggðin, Tenerife, Rússland, París, Mið-Austurlönd, elsti vegur Rómverja að ógleymdri Færeyingasögu. Ritunarog tungumálanámskeið eru á sínum stað auk námskeiða sem bæta andlega og líkamlega líðan og stuðla að auknu jafnvægi. Námskeiðin í þessum bæklingi eru öllum opin án tillits til fyrri menntunar. Gott er að fylgjast með námskeiðsframboði á vef Endurmenntunar þar sem yfirlitið hér er ekki tæmandi. Þar má einnig finna fjölbreytt úrval námskeiða sem nýtast vel í starfi. Vonandi eigum við samleið á nýju ári. Kristín Jónsdóttir Njarðvík, endurmenntunarstjóri Háskóla Íslands

Viltu vinna gjafabréf? Þann 20. janúar drögum við út tvo heppna vinningshafa sem hafa skráð sig á námskeið hjá okkur á haustmisseri og hljóta þeir gjafabréf frá Endurmenntun að verðmæti 15.000 krónur. Skráðu þig fyrir þann tíma – þú gætir dottið í lukkupottinn!

Efnisyfirlit: Menning Persónuleg hæfni Tungumál

Ítarlegar námskeiðslýsingar eru á endurmenntun.is

3-6 8-13 15

Afsláttur fyrir þá sem skrá sig snemma Allir sem skrá sig í síðasta lagi 10 dögum fyrir upphafsdag námskeiðs fá afslátt af námskeiðsgjaldi

Umsjón: Thelma Jónsdóttir. Ljósmyndir: Úr safni Endurmenntunar. Umbrot og hönnun: S. Logason. Prentun: Svansprent Gefið út af Endurmenntun Háskóla Íslands. Reykjavík 2018. Ábyrgðarmaður: Kristín Jónsdóttir Njarðvík.

2


MENNING Færeyinga saga

Færeyinga saga er litrík og skemmtileg saga með eftirminnilegum persónum. Þar ber hæst hetjuna Sigmund Brestisson og bragðarefinn Þránd í Götu. Átök þeirra eru meginefni sögunnar en í þau blandast samskipti við Noregskonunga en líka fjölmargar aðrar áhugaverðar persónur. Færeyinga saga ber vott um áhuga Íslendinga á miðöldum á frændum sínum í nærliggjandi löndum og verður einnig hugað að frásögnum af öðrum íbúum Norður-Atlantshafs sem koma við sögu Færeyja. Sagan verður lesin með hliðsjón af öðrum sögum sem gerast á svipuðum tíma og snerta sögu Færeyja, svo sem konungasögum og sögum af Orkneyjarjörlum. Hvenær: Þrír námskeiðshópar í boði: Þri. 23. jan. - 13. mars kl. 19:30 - 21:30 (8x) Snemmskráning til og með 13. janúar

Mið. 24. jan. - 14. mars kl. 10:00 - 12:00 (8x) Mið. 24. jan. - 14. mars kl. 19:30 - 21:30 (8x)

Jólabókaflóðið með Druslubókum og doðröntum

Á þessu fimm kvölda námskeiði er ætlunin að taka eitt skáldverk til umfjöllunar í hvert skipti. Tveimur höfundum verður boðið í heimsókn til að ræða við þátttakendur um verk sín. Kennarar munu leiða umræðuna og setja verkin í fræðilegt samhengi og síðan geta þátttakendur tekið þátt í umræðunni eins og þeim hentar. Hvenær: Tveir námskeiðshópar í boði: Mið. 24. jan. - 21. feb. kl. 20:00 – 22:00 (5x) – FULLBÓKAÐ Fim. 8. feb. – 8. mars kl. 20:15 – 22:15 (5x) Kennsla: Guðrún Elsa Bragadóttir, Kristín Svava Tómasdóttir, Guðrún Lára Pétursdóttir, Erna Erlingsdóttir, Hildur Knútsdóttir og Salka Guðmundsdóttir Snemmskráning verð: 27.500 kr. Almennt verð: 30.300 kr. Snemmskráning til og með 29. janúar

Snemmskráning til og með 14. janúar Kennsla: Torfi Tulinius, prófessor í íslenskum

Rocky Horror í Borgarleikhúsinu

miðaldafræðum við HÍ Snemmskráning verð: 33.900 kr. Almennt verð: 37.300 kr.

Rocky Horror er hárbeittur og eldfjörugur söngleikur með frábærri rokktónlist sem fjallar um mikilvægi þess að fá að vera sá sem maður er með öllum sínum sérkennum

og sérstöðu. Í tengslum við uppsetningu leikhússins á söngleiknum Rocky Horror, í leikstjórn Mörtu Nordal, er efnt til námskeiðs um verkið og uppsetninguna. Þátttakendur munu jafnframt eiga kost á að fylgjast með æfingu í Borgarleikhúsinu, ásamt því að sækja lokaæfingu og ræða við leikstjóra og aðstandendur um æfingaferli, vinnuaðferðir og markmið. Miði á forsýningu er innifalinn í námskeiðsgjaldi. Hvenær: Fim. 8. og 15. feb. kl. 20:00 - 22:00 í Endurmenntun, fim. 22. feb. kl. 13:00 16:00 í Borgarleikhúsinu og fim. 15. mars kl. 20:00 forsýning í Borgarleikhúsinu og umræður. FULLBÓKAÐ, biðlisti. Kennsla: Bjarni Snæbjörnsson, leikari og listkennari við LHÍ, Páll Óskar Hjálmtýsson, söngvari og aðalleikari sýningarinnar og Marta Nordal, leikstjóri sýningarinnar Snemmskráning verð: 17.500 kr. Almennt verð: 19.300 kr. Snemmskráning til og með 29. janúar

Í samstarfi við Borgarleikhúsið

3


Örnefni á Íslandi Viðfangsefni námskeiðsins eru örnefni á Íslandi í fortíð og nútíð. Fjallað verður um elstu örnefni, breytingar á örnefnum, örnefni í sveitum og örnefni í þéttbýli. Farið verður yfir örnefnaskýringar, hver er uppruni örnefna, hvað þýða þau og hvaða upplýsingar geta verið í þeim fólgnar. Tengsl örnefna og Íslandssögunnar, tengsl við aðrar greinar og fyrirbæri, s.s. þjóðsögur, fornleifar, náttúrufar o.fl. Hvenær: Fim. 8. og 15. feb. kl. 20:15 – 22:15 Kennsla: Hallgrímur J. Ámundason, MA í íslenskum fræðum Snemmskráning verð: 17.500 kr. Almennt verð: 19.300 kr. Snemmskráning til og með 29. janúar

Undraveröld gimsteina Gimsteinar hafa heillað mannkynið frá örófi alda. Heimur gimsteinanna er spennandi, sveipaður dulúð og ævintýraljóma. Á þessu námskeiði munum við skyggnast inn í þennan heim. Við kynnumst demöntum, rúbínum, safír, emeröldum og fleiri tegundum gimsteina. Farið verður yfir öll mikilvægustu atriðin í viðskiptum með gimsteina, sem og uppruna þeirra. Hvenær: Fim. 8. og 15. feb. kl. 19:30 – 22:00 Kennsla: Óskar Haraldsson, AG dipl. frá Asian Institute of Gemological Sciences í Bangkok Snemmskráning verð: 19.500 kr. Almennt verð: 21.500 kr. Snemmskráning til og með 29. janúar

DNA, erfðir og þróun lífsins Hvað er DNA, hvernig er það uppbyggt og hvernig erfast eiginleikar milli kynslóða? Hvernig geta sömu sameindirnar myndað bakteríur og risaeðlur og hvernig þróast ein lífvera í aðra? Hvað eru erfðabreytingar, hvernig er sú tækni notuð í matvælaframleiðslu sem og í læknisfræði? Á námskeiðinu verður m.a. farið í hvernig erfðaefni lífvera er byggt upp í litninga í frumum líkamans og hvernig það erfist milli kynslóða. Hvenær: Mán.12. og 19. feb. kl. 20:00 – 22:00 Kennsla: Katrín Halldórsdóttir, líffræðingur Snemmskráning verð: 17.500 kr. Almennt verð: 19.300 kr. Snemmskráning til og með 2. febrúar

4

Síbreytileg fortíð Margir telja mannkynssöguna dauða og löngu liðna stafi á bók, en svo er hreint ekki. Á námskeiðinu verður stiklað á þeim breytingum sem orðið hafa á sýn manna á sögu sína og menningu á síðustu árum og áratugum. Með þverfaglegum rannsóknum og framförum í tækni og vísindum hefur mörgu verið bylt og annað endurskoðað rækilega. Farið verður yfir forsögulega tíma í ljósi nýjustu rannsókna og dæmi tekin um niðurstöður héðan og þaðan og frá ýmsum tímum fram að upphafi okkar tímatals. Hvenær: Mán. 12. og 19. feb. kl. 19:30 – 22:00 Kennsla: Ragnheiður Gyða Jónsdóttir, dagskrárgerðamaður, blaðamaður og ritstjóri Snemmskráning verð: 19.500 kr. Almennt verð: 21.500 kr. Snemmskráning til og með 2. febrúar

Loftslagsbreytingar í fortíð og framtíð Hefur loftslag ekki alltaf verið að breytast? Skilningur á loftslagi og loftslagsbreytingum byggir á eðlisfræði sem óumdeild. Af hverju er því verið að deila um loftslagsbreytingar? Margt er vitað um breytingar fyrr á tíð og líklegar breytingar í framtíðinni. Farið verður yfir loftslagsbreytingar frá öndverðu og sérstaklega breytingar á Íslandi frá landnámi og líklegar breytingar á komandi öld. Hvenær: Þri. 13. og 20. feb. kl. 20:00 – 22:00 Kennsla: Halldór Björnsson, doktor í veður-og haffræði og formaður vísindanefndar um loftslagsbreytingar Snemmskráning verð: 17.500 kr. Almennt verð: 19.300 kr. Snemmskráning til og með 3. febrúar

Úganda – náttúra, saga og samfélag í perlu Afríku Í samstarfi við Afríku 20:20

Hvað er svona sérstakt við þetta land í Afríku sem svo margir þekkja? Hvernig land er Úganda, hverjar eru áskoranir íbúanna, hvernig er náttúra, landslag og staðhættir og hvaða atburðir í sögu landsins hafa mótað samfélag nútímans? Úganda er fjölbreytt og heillandi land, sem jafnframt glímir við ótal áskoranir sem fjallað verður um á lifandi hátt á námskeiðinu. Námskeiðið hefur það markmið að kynna þátttakendum Úganda, fjölbreytta náttúru þess, mikla sögu og samfélag. Hvenær: Þri 13. og 20. feb. kl. 20:15 – 22:15 Kennsla: Dr. Jón Geir Pétursson

Snemmskráning verð: 17.500 kr. Almennt verð: 19.300 kr. Snemmskráning til og með 3. febrúar

Enska landsbyggðin – falinn fjársjóður England er svo miklu meira en London. Þorpin sem við þekkjum úr breskum sjónvarpsþáttum, grænu grundirnar sem sögupersónur Jane Austen arka um og merkilegar sögu- og menningarminjar bíða þeirra sem skipuleggja sína eigin ferð út á ensku landsbyggðina. Á námskeiðinu verður England kynnt fyrir þeim sem hafa áhuga á að ferðast út fyrir helstu borgir Bretlands. Farið verður skipulega yfir hvert landsvæði og hvað er í boði þar, hvaða samgöngur séu bestar til að komast þangað frá London og að hverju þurfi að gæta. Þátttakendur fá hagnýtar upplýsingar um hvernig þeir geta skipulagt sitt eigið ferðalag um enskar grundir og hvar sé hægt að leita frekari upplýsinga. Hvenær: Fim. 15., þri. 20. og fim. 22. feb. kl. 19:30 – 21:30 (3x) Kennsla: Ingibjörg Rósa Björnsdóttir, blaðakona Snemmskráning verð: 17.500 kr. Almennt verð: 19.300 kr. Snemmskráning til og með 5. febrúar

Lakkrís ... rótin sæta „Lakkrís er slæmur fyrir heilsuna!“ öskra fyrirsagnir í fréttamiðlum. Á sama tíma borðum við sífellt meira af lakkrís og honum bregður fyrir í auknum mæli í alls kyns sælgæti, mat og drykk. Lakkrís, íslenskur og erlendur, sætur og saltur - við smökkum á námskeiðinu ólíkar tegundir, förum yfir söguna og ræðum staðreyndirnar. Fjallað verður um hvernig lakkrís er framleiddur, notaður í eldamennsku, konfektgerð, ísgerð, bjórgerð og margt fleira! Hvenær: Fim. 22. feb. kl. 19:30 – 22:00 Kennsla: Karl Viggó Vigfússon, konditor, bakari og ísgerðarmaður og Héðinn Svarfdal Björnsson, félagsvísindamaður og rithöfundur Snemmskráning verð: 9.900 kr. Almennt verð: 10.900 kr. Snemmskráning til og með 12. febrúar

Ævintýraeyjan Tenerife – náttúrulaugar, pýramídar og gönguleiðir um stórbrotna náttúru Tenerife er sannkölluð ævintýraeyja með fjölbreytt landslag og ótal möguleika til útivistar, náttúruskoðunar og afþreyingar


fyrir alla fjölskylduna. Eyjan hefur upp á svo miklu meira að bjóða en bara sólskin, strendur og sundlaugarbakka. Á einum og sama deginum er t.d. hægt að liggja í sólbaði, ganga í gegnum rakan regnskóg eða þurran furuskóg, skoða pýramída og höfrunga, ganga á hrauni eða í gegnum ávaxtaakra og snerta snjó! Þessi eyja hefur einfaldlega eitthvað fyrir alla. Á námskeiðinu er fjallað um þessa dásemdareyju, s.s. hugmyndir að gönguleiðum, afþreyingu og mögulega ferðamáta um eyjuna. Hvenær: Mið. 28. feb. kl. 19:15 – 22:15 Kennsla: Snæfríður Ingadóttir, ferðalangur með meiru Snemmskráning verð: 13.500 kr. Almennt verð: 14.900 kr. Snemmskráning til og með 18. febrúar

Konur í Hollywood Á námskeiðinu verður sjónum beint að hlut kvenna í bandarískri kvikmyndagerð á gullaldarskeiði Hollywood. Sérstök áhersla verður lögð á fjórða áratuginn, sem var fyrsti áratugur talmyndanna. Námskeiðið er ætlað kvikmyndaunnendum og áhugafólki um stöðu kvenna og birtingarmyndir þeirra innan „stjörnukerfis“ Hollywood og það andóf sem þar fór fram, leynt eða ljóst.

Hvenær: Mið. 28. feb. og 7. og 14. mars

kl. 20:00 – 22:00 (3x) Kennsla: Björn Þór Vilhjálmsson, greinarformaður kvikmyndafræði við HÍ og Guðrún Elsa Bragadóttir, doktorsnemi við SUNY Buffalo Snemmskráning verð: 22.900 kr. Almennt verð: 25.200 kr. Snemmskráning til og með 18. febrúar

Milli steins og sleggju: Baráttan um Mið-Austurlönd Hvað er eiginlega í gangi í Mið-Austurlöndum? Hvað gerist nú? Um hvað er verið að deila? Hvað veldur því að Mið-Austurlönd hafa verið vettvangur langvarandi og erfiðra deilumála? Til að leita svara við þessum spurningum verður kastljósinu á þessu námskeiði beint að nokkrum ákveðnum atburðum sem eru lýsandi fyrir stjórnmálaog menningarsögu Mið-Austurlanda. Vonast er til að þátttakendur fái nýja og gagnrýnni sýn á Mið-Austurlönd og ákveðinn þekkingarramma til að túlka bæði fortíð og nútíð svæðisins og verði þar af leiðandi betur í stakk búnir til að skilja framtíð landanna fyrir botni Miðjarðarhafs. Hvenær: Fim. og mán. 1., 5., 8. og 12. mars kl. 19:30 – 21:30 (4x) Kennsla: Dr. Magnús Þorkell Bernharðsson,

prófessor í sögu Mið-Austurlanda við Williams College í Bandaríkjunum Snemmskráning verð: 28.500 kr. Almennt verð: 31.400 kr. Snemmskráning til og með 19. febrúar

Rússland Pútíns Hver er Vladimír Pútín? Hvernig komst hann til valda og hvernig heldur hann völdum? Hvernig er það Rússland sem hann hefur skapað og er að skapa? Rússland er stærsta land í heimi og hefur á síðustu áratugum gengið í gegnum gríðarlegar þjóðfélagsbreytingar; frá alræði og kommúnisma, til kerfis Vladimírs Pútín, sem kallað er ,,stýrt lýðræði“. En hvað þýðir það? Hvernig hefur rússneska þjóðin það undir stjórn Pútíns og hvað gerist þegar hann hættir (ef hann gerir það)? Hvernig eru framtíðarhorfur þessa mikla ríkis og hvaða hlutverki gegnir Rússland í alþjóðakerfinu? Hvenær: Fim. 15. og 22. mars kl. 20:15 – 22:15 Kennsla: Gunnar Hólmsteinn Ársælsson, stjórnmálafræðingur Snemmskráning verð: 17.500 kr. Almennt verð: 19.300 kr. Snemmskráning til og með 5. mars

UMMÆLI ÞÁTTTAKENDA

„Hef alltaf haft gagn og gaman af öllum þeim námskeiðum sem ég hef sótt í Endurmenntun.“ „Alltaf gott að koma til ykkar og vita meira í dag en í gær.“

„Hef sótt mörg námskeið hjá ykkur og finnst þau almennt mjög góð og notaleg (gott andrúmsloft), góðir kennarar og annað starfsfólk, þannig að bara hrós.“ „Ég er mjög sátt við Endurmenntun og finnst þið hafa fjölbreytni í námskeiðavali. Þeir kennarar sem ég hef haft kynni af, hafa staðið sig vel í sinni kennslu og vakið áhuga á efninu.“ „Alltaf svo gott að koma í endurmenntun - góður andi, huggulegt umhverfi og brosandi starfsfólk. Húrra fyrir ykkur!“ 5


Via Appia og Via Trajana – elsti vegur Rómverja Rómverjar eru frumkvöðlar í vegagerð og lögðu snemma frábæra vegi um ríkið. Elstur veganna var Via Appia, síðar Via Trajana, sem lá frá Róm suður til hafnarborgarinnar Brindisi en þaðan var siglt yfir Adríahafið til Austurlanda nær. Á leiðinni eru margir merkilegir sögustaðir, sögufrægar byggingar og söfn og ógrynni af minjum í borgum og landinu. Á námskeiðinu verður leiðinni lýst og kynnt lauslega það sem fyrir augu ber. Hvenær: Fim. 15. og 22. mars kl. 19:30 – 21:30 Kennsla: Jón Björnsson, rithöfundur og ferðalangur Snemmskráning verð: 17.500 kr. Almennt verð: 19.300 kr. Snemmskráning til og með 5. mars

Hvað er að gerast í eldstöðvum Íslands? Virkustu eldstöðvar landsins sýna um þessar mundir merki um að þær undirbúi gos á næstu árum eða áratugum. Hvernig er hægt að ganga úr skugga um þetta? Hversu oft verða eldgos á Íslandi? Er þetta eðlilegt ástand í eldvirku landi? Hvaða

eldstöð gýs næst? Á námskeiðinu verður fjallað um eldfjöll á Íslandi, virkni þeirra og tengsl við flekaskil, flekahreyfingar og heitan reit. Hvenær: Mið. og mán. 4., 9., 11. og 16. apríl kl. 19:30 - 21:30 (4x) Kennsla: Páll Einarsson, prófessor í jarðeðlisfræði við HÍ Snemmskráning verð: 28.500 kr. Almennt verð: 31.400 kr. Snemmskráning til og með 25. mars

París – líf og lystisemdir Farið verður í sögu Parísar og skoðaðar myndir og kort sem koma þátttakendum að góðum notum í eiginlegri Parísarferð. Þeir munu fá glögga mynd af ólíkum hverfum borgarinnar og upplifa líf og lystisemdir hennar gegnum líflega frásögn Gérard Lemarquis. Farið verður m.a. í sögu Parísar og áhersla lögð á hverfi sem voru miðpunktur borgarinnar á mismunandi tímum. Einnig verða farnir nokkrir leiðangrar um París og með aðstoð korta og annarra gagna verður staldrað við þekkta og lítt þekkta staði. Hvenær: Mán. 9. og 16. apríl kl. 19:30 – 21:30 Kennsla: Gérard Lemarquis, stundakennari

við Hugvísindasvið HÍ Snemmskráning verð: 17.500 kr. Almennt verð: 19.300 kr. Snemmskráning til og með 30. mars

Saga Orkneyingajarla Orkneyingasaga, saga jarlanna í Orkneyjum, er einskonar þjóðar- eða konungasaga þótt konungar séu ekki söguhetjur heldur jarlar, niðjar Rögnvalds Mærajarls í Noregi. Þótt stiklað verði á stóru í yfirferðinni verður líka stuðst við aðrar frásagnir sem tengjast jarlasögunum. Fjallað verður um valdabaráttu, ættavíg og samskipti Eyjajarla við norska og skoska konunga og höfðingja frá því um árið 900 fram á 13. öld. Íslendingar koma mikið við sögu. Hvenær: Þri. og fim. 17., 24. og 26. apríl kl. 19:30 - 21:30 (3x) Kennsla: Magnús Jónsson, BA í sagnfræði Snemmskráning verð: 22.900 kr. Almennt verð: 25.200 kr. Snemmskráning til og með 7. apríl

GJAFABRÉF ENDURMENNTUNAR

6

GJÖFIN GETUR VERIÐ TILTEKIÐ NÁMSKEIÐ EÐA UPPHÆÐ AÐ EIGIN VALI


UNGT FÓLK OG ENDURMENNTUN Ungmenni eru hópur sem við hjá Endurmenntun viljum gjarnan sinna betur, enda höfum við í gegnum tíðina fengið fyrirspurnir um námskeið sem henta aldurshópnum frá 12 ára og eldri. Á vormisseri munum við því brydda upp á þeirri nýjung að bjóða námskeið sem sérstaklega eru ætluð ungmennum. Um er að ræða tvö námskeið til að byrja með en mögulega mun þeim fjölga síðar ef viðtökur verða góðar. Skemmtileg skrif – námskeið fyrir ungt fólk er ritlistarnámskeið sem ætlað er ungu fólki, 14 ára og eldra. Þar mun Kristján Hreinsson,

skáld og heimspekingur, leiða hópinn inn á ritvöllinn. Meðal annars verður farið yfir hvernig nálgast má kjarnann í hugsun sinni og virkja sköpunargleðina til krefjandi verka, hvort sem um er að ræða skáldverk eða ritgerðir. Ungt fólk sem hefur gaman af skrifum ætti ekki að láta þetta tækifæri framhjá sér fara! Námskeiðið er byggt á hinu vinsæla námskeiði Skáldleg skrif, sem Kristján hefur oftsinnis haldið hjá okkur fyrir fullorðna. Betri svefn – hamingjusamari unglingar er námskeið sem ætlað er unglingum á aldrinum 12-18 ára og forráðamönnum þeirra. Þar verður

m.a. fjallað um mikilvægi svefns fyrir heilsu og líðan, hvað skiptir máli fyrir góðan nætursvefn og gefin hagnýt ráð. Kennari á námskeiðinu er Erla Björnsdóttir sálfræðingur, sem hefur í doktorsnámi sínu í líf- og læknavísindum rannsakað tengsl svefns við andlega og líkamlega heilsu ásamt því að sérhæfa sig í hugrænni atferlismeðferð við svefnleysi. Við bendum á að fjölmörg önnur námskeið gætu einnig höfðað til ungmenna ekki síður en fullorðinna. Af mörgu er að taka og úrvalið fjölbreytt, en nefna má t.d. námskeiðin DNA, erfðir og þróun lífsins, Rocky Horror í Borgarleikhúsinu, Undraveröld gimsteina og Lakkrís … rótin sæta.

7


PERSÓNULEG

HÆFNI Söngtextagerð

Langar þig að læra að yrkja söngtexta? Þá leikur lánið við þig því það að yrkja söngtexta er eitt af því sem allir geta lært. Kristján Hreinsson leiðir þig í allan sannleika málsins á þessu námskeiði. Farið verður í grunnhugtök bragfræðinnar, ýmsar aðferðir við textagerð skoðaðar og þá verður fólki bókstaflega kennt að yrkja söngtexta. Undir lok námskeiðsins munu þátttakendur geta ort sönghæfa texta og metið ýmsa af þeim þáttum sem geta gert góðan texta enn betri. Hvenær: Mán. 22., 29. jan. og 5. feb. kl. 20:00 – 22:00 (3x) Kennsla: Kristján Hreinsson, skáld og heimspekingur Snemmskráning verð: 26.400 kr. Almennt verð: 29.100 kr. Snemmskráning til og með 12. janúar

8

Vönduð íslenska - tölvupóstar og stuttir textar

Kvikmyndahandrit

Gríðarleg aukning hefur orðið í framleiðslu texta á undanförnum áratugum. Sífellt fleiri þurfa að semja ritaða texta, oftast fremur stutta, bæði í starfi og einkalífi. Í langflestum tilvikum eru textar samdir til þess að aðrir lesi þá. Nokkur lykilatriði sem hafa verður í huga eru tími, sjálfsöryggi, þekking á viðfangsefni, bygging texta, málfar og birting. Á þessu námskeiði verður farið yfir helstu einkenni texta sem samdir eru á íslensku og þátttakendur þjálfaðir í að semja stutta texta, t.d. tölvupósta, efni á innri vefi, heimasíður og fréttabréf. Hvenær: Mið. 24. jan. kl. 9:00 – 12:00 – námskeiðið verður endurtekið í apríl Kennsla: Sigurður Konráðsson, prófessor í íslensku við HÍ Snemmskráning verð: 16.800 kr. Almennt verð: 18.500 kr.

Inngangsnámskeið í handritsskrifum fyrir kvikmyndir. Sérstök áhersla verður lögð á að skoða strúktúr og dramatíska uppbyggingu kvikmyndahandrita. Farið verður í grundvallarhugmyndir og hugtök sem varða handritsformið og jafnframt verður myndræn frásögn í kvikmyndum borin saman við skáldsögur, leikrit og sjónvarpsseríur. Þátttakendur verða aðstoðaðir við að þróa hugmynd að kvikmynd upp í sögulýsingu (treatment) fyrir kvikmyndahandrit. Hvenær: Mán. og fim. 29. jan. – 19. feb. kl. 20:15 – 22:15 (6x) Ath. ekki er kennt fim. 8. feb. Kennsla: Huldar Breiðfjörð, BA í almennri bókmenntafræði frá HÍ og MFA í handritsskrifum og kvikmyndagerð frá New York University Snemmskráning verð: 41.900 kr. Almennt verð: 46.100 kr.

Snemmskráning til og með 14. janúar

Snemmskráning til og með 19. janúar


Núvitundarnámskeið. Velkomin í núið – frá streitu til sáttar Átta vikna núvitundarnámskeið sem er hugsað fyrir almenning til að takast á við streitu daglegs lífs. Í núvitundarþjálfun er tvinnað saman aðferðum hugrænnar atferlismeðferðar og sálfræði austrænnar visku. Niðurstöður rannsókna hafa sýnt fram á að núvitundarþjálfun hefur jákvæð áhrif á vellíðan, bætir heilsufar, dregur úr streitu, kvíða og depurð. Hún felur í sér að læra að nema staðar „hér og nú“, láta af sjálfstýringu hugans og sættast betur við það sem er. Hvenær: Mán. 29. jan. – 19. mars kl. 19:30 – 21:00 (8x) Kennsla: Herdís Finnbogadóttir, sálfræðingur Snemmskráning verð: 51.900 kr. Almennt verð: 57.100 kr. Snemmskráning til og með 19. janúar

Byrjaðu í golfi – fyrir byrjendur og lengra komna Í samstarfi við Hissa, ráðgjafar- og fræðslumiðstöð um golf

Á námskeiðinu eru grunnatriðin í golfi kennd með Starting New At Golf (SNAG) golfkennslukerfinu sem hefur slegið í gegn út um allan heim. Kennslan fer fram í formi fyrirlestra, æfinga og leikja. Hvenær: Mán. 29., mið. 31. jan. og mán. 5. feb. kl. 20:00 – 22:00 (3x). Kennt er 31. jan. í æfingahúsnæði GSÍ. Kennsla: Magnús Birgisson, PGA golfkennari og SNAG master leiðbeinandi Snemmskráning verð: 26.400 kr. Almennt verð: 29.100 kr. Snemmskráning til og með 19. janúar

Lýsing á heimilum – hvaða áhrif hefur lýsing á okkur? Rétt lýsing gerir íverustaði okkar mun vistlegri. Lýsing hefur margþætt áhrif á okkur, við þreytumst síður ef hún er rétt og þægileg en hún þarf þó að geta þjónað misjöfnum tilgangi og manneskjum. Á námskeiðinu verður fjallað um lýsingu á heimilinu með það í huga hvernig bæta megi upplifun í mismunandi rýmum. Farið er yfir hvernig lýsing, litir og áferð á flötum geta skipt sköpum. Á námskeiðinu verður farið yfir tegundir lýsingar og rætt um mismunandi lýsingu eftir verkefnum. Hvenær: Þri. 30. jan. kl. 19:15 – 22:15 Kennsla: Emilía Borgþórsdóttir, iðnhönnuður Snemmskráning verð: 14.700 kr.

Almennt verð: 16.200 kr. Snemmskráning til og með 20. janúar

Íbúðaskipti - Meiri upplifun, minni kostnaður Gætirðu hugsað þér að ferðast um heiminn án þess að greiða krónu fyrir gistingu? Viltu fá meiri upplifun út úr ferðalögum þínum? Íbúðaskipti verða sífellt vinsælli, enda bæði hagkvæm og skemmtileg leið sem gefur aukin tækifæri til ferðalaga. Fjölmiðlakonan Snæfríður Ingadóttir hefur gert íbúðaskipti að hluta af lífstíl sínum og ferðast árlega erlendis með fjölskyldu sína án þess að greiða fyrir gistingu. Á þessu námskeiði deilir hún reynslu sinni af íbúðaskiptum og bendir einnig á aðrar óhefðbundnar leiðir til þess að halda ferðakostnaðinum í lágmarki. Hvenær: Þri. 30. jan. kl. 19:30 – 22:00 Kennsla: Snæfríður Ingadóttir, ferðalangur með meiru Snemmskráning verð: 11.900 kr. Almennt verð: 13.100 kr. Snemmskráning til og með 20. janúar

Jóga Nidra Jóga Nidra (Amrit method of Yoga Nidra) er ævaforn hugleiðsluaðferð sem samanstendur af líkams-, öndunar- og núvitundaræfingum. Jóga Nidra þýðir jógískur svefn þar sem farið er inn á dýpsta svið slökunar á sama tíma og fullri meðvitund er haldið. Jóga Nidra virkjar heilunar- og endurnýjunarmátt líkamans, losar um spennu og streitu og kemur jafnvægi á ósjálfráða taugakerfið. Þú tengist þínu djúpa sjálfi og öðlast frelsi frá stöðugum hugsunum, ótta og stjórnun og lærir betur að stýra þínu lífi. Hvenær: Mið. 31. jan. – 7. mars kl. 18:00 – 19:15 (6x) Kennsla: Jóhanna Björk Briem, MA í áhættuhegðun og forvörnum og Amrit Jóga Nidra kennari Snemmskráning verð: 35.900 kr. Almennt verð: 39.500 kr. Snemmskráning til og með 21. janúar

Hugþjálfun – leið til árangurs Sjálfsstjórn og markmiðssetning eru meginviðfangsefni þessa námskeiðs. Hugmyndir eru sóttar víða, t.d. í dáleiðslufræði og hugræna atferlismeðferð. Kennt er um streitu, slökun og aðferðir til að stjórna spennu, setja sér raunhæf markmið og fylgja þeim eftir. Kennsla er í formi fyrirlestra, umræðna,

æfinga og verkefna. Hvenær: Fim. 1., mán. 5. og fim. 8. feb. kl. 16:15 – 19:15 (3x) Kennsla: Jóhann Ingi Gunnarsson og Hörður Þorgilsson, sálfræðingar Snemmskráning verð: 40.900 kr. Almennt verð: 45.000 kr. Snemmskráning til og með 22. janúar

Náum tökum á lestrarnáminu á skemmtilegan hátt við eldhúsborðið heima Lestur er undirstaða alls náms og því mikilvægt að styrkja grunninn og auðvelda börnum lestrarnámið eins og kostur er. Námskeiðið er fyrir fjölskyldur 5 - 7 ára barna sem vilja styðja vel við nám barnsins og styrkja þekkingu barna sinna á bókstöfum og hljóðum og efla þannig lestrarkunnáttu þeirra. Á námskeiðinu eru kynntar árangursríkar, fjölbreyttar og skemmtilegar leiðir til að æfa bókstafi, hljóð og hljóðtengingu sem allt er grunnur í lestrarnáminu. Þátttakendur fá í hendurnar gögn og hugmyndir sem hægt er að notast við heima og því er auðvelt að hefjast handa samstundis. Hvenær: Fim. 1. feb. kl. 20:00 – 21:30 Kennsla: Helga Kristjánsdóttir, leik- og grunnskólakennari Snemmskráning verð: 6.300 kr. Almennt verð: 7.000 kr. Snemmskráning til og með 22. janúar

Konur á besta aldri – fæða og flóra skipta máli Á námskeiðinu er fjallað um fæðu og þarmaflóru í tengslum við breytingaskeið kvenna. Fæðuval hefur áhrif á örveruflóru meltingarfæranna. Farið er yfir hvernig röskun á þessari mikilvægu flóru getur stuðlað að hitakófum og svitaköstum og haft áhrif á svefn og andlega líðan. Námskeiðið byggir á rannsóknum í næringarlæknisfræði. Hvenær: Fim. 1. feb. kl. 19:30 – 22:00 Kennsla: Birna G. Ásbjörnsdóttir, MSc í næringarlæknisfræði Snemmskráning verð: 11.900 kr. Almennt verð: 13.100 kr. Snemmskráning til og með 22. janúar

Skattlagning útleigu á íbúðarhúsnæði – heimagisting o.fl. Það verður sífellt vinsælla að fólk leigi út íbúðir sínar um skemmri eða lengri tíma. 9


Með slíku móti má halda að mögulegt sé að leysa talsverð fjárhagsvandræði, gróðinn verði svo mikill. En er það svo? Er kostnaðurinn af útleigunni jafnvel yfirþyrmandi? Og verði gróði er hann þá ekki allur heimtur í skatt? Á námskeiðinu verður m.a. fjallað um skattlagningu útleigu á íbúðarhúsnæði, farið yfir lög og reglur um heimagistingu og gerð grein fyrir muninum á skattlagningu á langtíma-og skammtímaleigu. Hvenær: Fim. 1. feb. kl. 16:15 – 19:15 Kennsla: Ásmundur G. Vilhjálmsson, lögmaður og aðjúnkt í skattarétti við HÍ Snemmskráning verð: 14.900 kr. Almennt verð: 16.400 kr. Snemmskráning til og með 22. janúar

Að rita ævisögur og endurminningar Langar þig að skrásetja minningar sem sækja á þig? Siturðu uppi með fróðleik um ættingja, vini eða tímabil sem þú veist ekki hvað skal gera með? Ertu kannski með bók í bígerð? Á námskeiðinu verður fjallað um ævisögur og endurminningar frá ýmsum sjónarhornum. Helstu skólar í ævisagnaritun verða kynntir en líka aðferðir til þess að takast á við eigin minningar, fróðleik eða upplýsingar. Farið verður vandlega í frásagnaraðferðir og ýmsar leiðir sem hægt er að nota, og jafnframt fjallað um heimildanotkun og frágang þeirra. Hvenær: Þri. 6. feb. – 27. feb. kl. 19:30 – 21:30 (4x) Kennsla: Páll Valsson, bókmenntafræðingur og rithöfundur Snemmskráning verð: 36.900 kr. Almennt verð: 40.600 kr. Snemmskráning til og með 27. janúar

Betri svefn – hamingjusamari unglingar Á þessu námskeiði verður fjallað um svefn unglinga. Farið verður yfir atriði sem skipta máli fyrir góðan nætursvefn og hagnýt ráð gefin fyrir unglinga og forráðamenn. Einnig verður fjallað um eðli og uppbyggingu svefns og mikilvægi þess að sofa vel fyrir líkamlega og geðræna heilsu. Farið verður yfir hversu mikið unglingar þurfa að sofa og þau áhrif sem of lítill svefn getur haft á heilsu þeirra og líðan. Sérstök áhersla verður lögð á að gefa hagnýt ráð sem nýtast bæði unglingum og forráðamönnum þeirra til að bæta svefn og auka lífsgæði. Hvenær: Mán. 12. feb. kl. 19:30 – 21:30 10

Með hverjum skráðum þátttakanda fylgir eitt frítt sæti fyrir ungling (12 – 18 ára) á námskeiðið. Kennsla: Erla Björnsdóttir, sálfræðingur Snemmskráning verð: 11.500 kr. Almennt verð: 12.700 kr. Snemmskráning til og með 2. febrúar

Öflugt sjálfstraust Sjálfstraust er undirstaða margra færniþátta, svo sem því hvernig okkur vegnar í samskiptum við aðra, hvernig við setjum markmið, tökum ákvarðanir og vinnum undir álagi. Í raun má segja að öflugt sjálfstraust sé ákveðin forvörn þar sem sterkir einstaklingar eiga auðveldara en aðrir með að taka ákvarðanir, setja mörk og verjast óæskilegum áhrifum frá umhverfinu. Á námskeiðinu er lögð áhersla á að kenna þátttakendum að greina muninn á miklu og litlu sjálfstrausti og ekki síst að kenna aðferðir til að byggja upp og efla sjálfstraust. Hvenær: Þri. og fim. 13., 15. og 20. feb. kl. 16:15 – 19:15 (3x) Kennsla: Jóhann Ingi Gunnarsson, sálfræðingur Snemmskráning verð: 39.900 kr. Almennt verð: 43.900 kr. Snemmskráning til og með 3. febrúar

Heimili og hönnun Á námskeiðinu er farið í grunnatriði hönnunar innan heimilisins s.s. uppröðun húsgagna, hvernig hengja eigi upp myndir og litaskema. Hvernig má láta húsgögn, persónulega muni, myndir, liti og lýsingu spila saman til að mynda góða heild á heimilinu? Tekin eru fjölmörg dæmi um vel heppnaðar samsetningar. Hvað fer saman, hvað ekki og af hverju ekki? Að loknu námskeiðinu ættu þátttakendur að geta gert einfaldar breytingar heima við sem draga betur fram þann stíl sem hentar vel þeim munum og húsgögnum sem eru til á heimilinu. Ekki er nauðsynlegt að fara í dýrar framkvæmdir til að endurspegla persónulegan stíl. Hvenær: Mið. 14. – 21. feb. kl. 19:30 – 21:30 – námskeiðið verður endurtekið í apríl Kennsla: Emilía Borgþórsdóttir, iðnhönnuður Snemmskráning verð: 17.900 kr. Almennt verð: 19.700 kr. Snemmskráning til og með 4. febrúar

Fæðubótarefni: Er hægt að taka of mikið? Hvað þurfum við til viðbótar við matinn Margs konar fæðubótarefni seljast nú sem aldrei fyrr og veltir þessi iðnaður í heiminum tugum milljarða á ári. En eru fæðubótarefni virkilega „bót” í fæðunni? Hvar liggja mörkin milli skorts og ofnotkunar? Hvenær getur inntaka orðið hættuleg? Markmið námskeiðsins er að þátttakendur öðlist innsýn í notkun/ofnotkun fæðubótarefna með vísindalega vitneskju að leiðarljósi. Áhersla verður lögð á rannsóknir á inntöku mismunandi vítamína, steinefna og annarra lífrænna efna. Hvenær: Mið. 14. feb. kl. 16:00 – 19:30 Kennsla: Freydís Hjálmarsdóttir, næringarfræðingur M.Sc. Snemmskráning verð: 14.900 kr. Almennt verð: 16.400 kr. Snemmskráning til og með 4. febrúar

Betri svefn – grunnstoð heilsu Á námskeiðinu verður fjallað um mikilvægi svefns fyrir heilsu og líðan. Farið verður yfir helstu svefnvandamál og hagnýt ráð gefin til að bæta eigin svefn. Fjallað verður um eðli og uppbyggingu svefns og mikilvægi þess að sofa vel fyrir líkamlega og geðræna heilsu. Farið verður yfir hversu mikið við þurfum að sofa og þau áhrif sem of lítill eða of mikill svefn getur haft á heilsu og líðan. Fjallað verður um helstu vandamál sem tengjast svefni, s.s. svefnleysi og kæfisvefn og fólki gefin ráð til að bæta eigin svefn. Hvenær: Mán. 19. og 26. feb. kl. 19:30 – 21:30 Kennsla: Erla Björnsdóttir, sálfræðingur Snemmskráning verð: 16.900 kr. Almennt verð: 18.600 kr. Snemmskráning til og með 9. febrúar

Skemmtileg skrif – námskeið fyrir ungt fólk Hér lærir þú hvernig þú berð þig að ef þig langar að skrifa. Þú lærir um þá grunnþætti sem ráða ferðinni þegar þú tekur fyrstu skrefin á ritvellinum. Hér er þér bókstaflega kennt að stýra hugmyndum þínum í farveg og koma þeim á rétta braut. Hér er útskýrð uppbygging ritgerðar og skáldverks. Hér er grunnur lagður að góðu ritverki eða góðum stíl. Hvenær: Þri. 20. feb. – 20. mars kl. 17:30 – 19:30 (5x)


Kennsla: Kristján Hreinsson,

Jákvæð sálfræði og styrkleikaþjálfun (Coaching) - nýttu styrkleika þína á nýjan hátt

skáld og heimspekingur Snemmskráning verð: 38.900 kr. Almennt verð: 42.800 kr. Snemmskráning til og með 10. febrúar

Skáldleg skrif Á námskeiðinu verður farið í það með afar einföldum hætti hvernig við berum okkur að þegar við höfum í hyggju að skrifa. Hér er bent á þann grunn sem verður að vera til staðar, hvort sem um er að ræða eina vísu, ljóð, smásögu, skáldsögu eða annað form ritlistar. Alltaf eru sömu hugtökin að skjóta upp kollinum, grunnurinn sem við byggjum verk okkar á. Við munum fara hægum skrefum og skoða vandlega þau form sem koma við sögu. Einfaldar skýringar og fjölmörg dæmi verða tekin fyrir. Hvenær: Mið. 21. feb. – 21. mars kl. 20:15 - 22:15 (5x) Kennsla: Kristján Hreinsson, skáld og heimspekingur Snemmskráning verð: 38.900 kr. Almennt verð: 42.800 kr. Snemmskráning til og með 11. febrúar

Jákvæð sálfræði fæst við rannsóknir á því sem fólk gerir rétt frekar en því sem fólk gerir rangt. Á námskeiðinu verður farið yfir rannsóknir á styrkleikum, bjartsýni og hamingju og fjallað um gildi jákvæðni fyrir sköpun og árangur. Einnig verður farið í kosti styrkleikaþjálfunar og hvernig hægt er að nýta sér verkfæri úr styrkleikaþjálfun í daglegu lífi. Hvenær: Fim. 22. feb. – 22. mars kl. 19:30 - 21:30 (5x) Kennsla: Anna Jóna Guðmundsdóttir, kennari og ráðgjafi og Kristín Linda Jónsdóttir, gestakennari Snemmskráning verð: 41.900 kr. Almennt verð: 46.100 kr.

hefur fært okkur eru rannsóknir á því sem einkennir fólk sem gengur vel í lífinu. Við getum öll tileinkað okkur aðferðir sem geta stuðlað að aukinni hamingju okkar og vellíðan. Fjölmargar æfingar og andleg „leikfimi“ getur leitt okkur inn í afskaplega hamingjuríkt líf. Ræktum okkur sjálf, kærleikann, húmorinn og hamingjuna. Með gleðina að vopni erum við ósigrandi. Hvenær: Mán. 26. feb. – 19. mars kl. 17:15 – 19:15 (4x) – námskeiðið verður endurtekið í apríl Kennsla: Edda Björgvinsdóttir, leikkona og Ragnhildur Vigfúsdóttir, markþjálfi. Báðar með diplómu í jákvæðri sálfræði. Snemmskráning verð: 36.900 kr. Almennt verð: 40.600 kr. Snemmskráning til og með 16. febrúar

Snemmskráning til og með 12. febrúar

Að vaxa og ná árangri með aukinni þrautseigju

Fjörefni fyrir 50+

Er hraðinn og kröfur í vinnu og einkalífi miklar? Ert þú að eða hefur þú þurft að takast á við áskoranir í vinnu eða einkalífi, jafnvel áföll, sem reynast þér erfið? Langar þig að kynnast áherslum sem geta hjálpað þér að nýta bjargráð þín betur, aukið þrautseigju þína, ýtt undir vöxt þinn, vellíðan og

Vísindalegar rannsóknir hafa sannað að hamingjan eykst með hækkandi aldri. Aldurinn einn og sér tryggir þó ekki hamingjuna heldur viðhorfin sem við tileinkum okkur. Eitt af því sem jákvæða sálfræðin

FYLGSTU MEÐ ENDURMENNTUN SKRÁÐU ÞIG Á PÓSTLISTANN OKKAR VERTU MEÐ OKKUR Á FACEBOOK

11


árangur líka þegar á móti blæs? Á þessu námskeiði verður farið yfir hvernig við getum betur mætt mótlæti og skoðað hvað gerir það að verkum að sumir virðast þrautseigari en aðrir. Allir getað þróað þrautseigju sína og fundið leiðir sem henta þeim til að auka orku, vellíðan, vöxt og persónubundinn árangur þrátt fyrir mótlæti, streitu og álag. Hvenær: Fim. 1. mars kl. 17:00 – 22:00 Kennsla: Sigríður Björk Þormar, dr. í áfallasálfræði og Ylfa Edith Jakobsdóttir, ACC markþjálfi og diplóma í jákvæðri sálfræði Snemmskráning verð: 28.900 kr. Almennt verð: 31.800 kr. Snemmskráning til og með 19. febrúar

Svefnherbergið – hvíldar- og griðarstaður Er svefnherbergið afgangsstærð á heimilinu? Nærðu góðri hvíld? Lærðu hvað hægt er að gera til að bæta umhverfið og andrúmsloftið. Hvernig væri að gefa svefnherberginu andlitslyftingu og draga fram það sem þig hefur alltaf dreymt um? Námskeiðið mun gefa þér innsýn í grunnþætti hönnunar og skilgreina hvað þarf til að gera rýmið notalegt. Hvaða þætti þarf að uppfylla til að standast þær kröfur? Svefnherbergið vill oft verða út undan þrátt fyrir að við verjum mestum tíma sólarhringsins þar og því er mikilvægt að okkur líði vel þar inni. Við þurfum gott loft, góða lýsingu, hlýleika en einnig ferskleika og margt fleira. Hvenær: Mið. 7. mars kl. 19:15 – 22:15 Kennsla: Emilía Borgþórsdóttir, iðnhönnuður Snemmskráning verð: 14.700 kr. Almennt verð: 16.200 kr. Snemmskráning til og með 25. febrúar

12

Almennt verð: 16.200 kr. Snemmskráning til og með 3. mars

Skáldleg skrif – framhaldsnámskeið Námskeiðið er einungis ætlað þeim sem lokið hafa grunnnámskeiðinu, Skáldleg skrif. Hér lærir þú hvernig þú berð þig að þegar þú hefur ákveðið að skrifa. Þú lærir að skoða, vega og meta þá þætti sem ráða för á ritvellinum. Hér er þér bókstaflega kennt að stýra skrifum þínum þannig að þú sjáir hvernig þú markar þér braut og varðar þinn veg. Hvenær: Þri. 13. og 20. mars og 3., 10. og 17. apríl kl. 20:00 – 22:00 (5x) Kennsla: Kristján Hreinsson, skáld og heimspekingur Snemmskráning verð: 38.900 kr. Almennt verð: 42.800 kr. Snemmskráning til og með 3. mars

Gerlar og geðheilsa – hvað segja vísindin? Á námskeiðinu er fjallað um örveruflóru þarmanna í tengslum við geðheilsu. Nýjar rannsóknir sýna að ýmsir gerlar, þar á meðal mjólkursýrugerlar (probiotics), hafa áhrif á geðheilsu. Mjólkursýrugerlar hafa einnig áhrif á örveruflóru meltingarvegar. Farið er yfir hvernig er best að hlúa að þessari mikilvægu örveruflóru með réttu mataræði og réttum gerlum. Námskeiðið byggir á rannsóknum í næringarlæknisfræði. Hvenær: Mið. 14. mars kl. 19:30 – 22:00 Kennsla: Birna G. Ásbjörnsdóttir, MSc í næringarlæknisfræði Snemmskráning verð: 11.900 kr. Almennt verð: 13.100 kr. Snemmskráning til og með 4. mars

Stofan á heimilinu – heildarmynd á fjölnota rými

Fjármál við starfslok

Hvernig þjónar stofan þörfum fjölskyldunnar? Stofan er fjölnota rými og því skiptir máli að skilgreina hlutverk hennar – stór og smá. Við viljum hafa hana hlýlega og umfram allt nýtilega þannig að hún þjóni þörfum okkar, hvort heldur sem við höfum sjónvarp, borðstofu og/eða vinnurými í sama rými. Á námskeiðinu verður farið í nánast allt sem viðkemur stofunni: liti, lýsingu, uppröðun húsgagna, myndir á veggjum og fleira. Hvenær: Þri. 13. mars kl. 19:15 – 22:15 Kennsla: Emilía Borgþórsdóttir, iðnhönnuður Snemmskráning verð: 14.700 kr.

Fróðlegt og gagnlegt námskeið um það sem mikilvægast er að hafa á hreinu þegar starfsævi lýkur. Vandlega verður farið yfir þær breytingar sem vefjast fyrir mörgum, svo sem varðandi Tryggingastofnun, lífeyrismál, skatta og sparnað. Með aukinni þekkingu má spara umtalsverðar fjárhæðir auk þess sem við fáum betri yfirsýn yfir væntar tekjur þegar lífeyrisgreiðslur taka við af launatekjum. Hvenær: Mán. 19. mars kl. 16:15 – 19:15 Kennsla: Björn Berg Gunnarsson, viðskiptafræðingur og fræðslustjóri Íslandsbanka og VÍB

Snemmskráning verð: 12.900 kr. Almennt verð: 14.200 kr. Snemmskráning til og með 9. mars

Núvitund í uppeldi barna Núvitund (mindfulness) hjálpar börnum og fullorðnum við að takast á við áskoranir daglegs lífs og öðlast meiri hugarró og vellíðan. Á þessu stutta en hagnýta námskeiði færðu innsýn í hvað núvitund er og kynnist leiðum og æfingum sem stutt geta við núvitund barna og um leið hvernig þú getur aukið eigin núvitund og styrkt þig sem uppalanda. Hvenær: Þri. 20. mars kl. 19:30 – 22:00 Kennsla: Bryndís Jóna Jónsdóttir, diplóma í jákvæðri sálfræði og MA í náms- og starfsráðgjöf Snemmskráning verð: 11.900 kr. Almennt verð: 13.100 kr. Snemmskráning til og með 10. mars

Nýttu verkfærakistu Google fyrir skjölin þín, myndirnar og samskiptin Sístækkandi hópur einstaklinga og fyrirtækja þarf að koma samskiptum sínum og gögnum fyrir í „skýjunum“ í kjölfar aukinnar notkunar snjallsíma og taflna, þar sem geymslupláss er ekki kostur. Risarnir þrír, Apple, Microsoft og Google bjóða upp á lausnir á þessum vanda. Á þessu námskeiði öðlast þú grunnfærni í því að nota Google kerfið til að vinna, geyma og deila gögnum og upplýsingum. Hvenær: Mið. 4. apríl kl. 19:15 - 22:15 Kennsla: Maríanna Friðjónsdóttir, sjálfstætt starfandi fjölmiðlari Snemmskráning verð: 14.900 kr. Almennt verð: 16.400 kr. Snemmskráning til og með 25. mars

Ættfræðigrúsk – fjölskyldusaga þín á netinu Lærðu að nýta þér gagnagrunna og skjalasöfn á netinu til að afla upplýsinga um sögu fjölskyldu þinnar allt að 200 ár aftur í tímann. Berðu upplýsingarnar saman við lýsingar sagnfræðinga og annarra á lífskjörum og möguleikum almennings til að takast á við fátækt, barnadauða, vistarbönd, farsóttir og harðindi. Þínu fólki tókst það – annars værir þú ekki hér. Hvenær: Mán. 9., 16. og 23. apríl kl. 19:30 - 21:30 (3x) Kennsla: Stefán Halldórsson,


félagsfræðingur og ættfræðigrúskari Snemmskráning verð: 26.400 kr. Almennt verð: 29.100 kr. Snemmskráning til og með 30. mars

Icelandic roots - ættfræðivefur Mörg þúsund Kanada- og Bandaríkjamenn af íslenskum ættum búa í Norður-Ameríku. Á þessu námskeiði geta þátttakendur fundið út hvort þeir eigi ættingja í Ameríku og hvernig mögulegt er að komast í samband við þá. Fjallað verður um vefinn icelandicroots.com sem geymir mikinn fjársjóð upplýsinga um ævi og störf Íslendinga á Íslandi og í Ameríku sem og afkomendur íslensku landnemanna. Ath. námskeiðið fer að hluta til fram á ensku. Hvenær: Þri. 10., mið. 11. og fim. 12. apríl. Þri. og fim. kl. 20:00 - 22:00 og mið. kl. 19:15 - 22:15 (3x) Kennsla: Sunna Furstenau, höfundur og hugmyndafræðingur ættfræðivefsins Snemmskráning verð: 30.900 kr. Almennt verð: 34.000 kr. Snemmskráning til og með 31. mars

Að verða betri en ég er – að ná hámarksárangri í lífi og starfi Hvernig hámarka ég árangur minn? Hvernig getum við unnið með og breytt viðhorfum okkar og venjum til að ná fram okkar besta þegar máli skiptir? Á þessu þjálfunarnám-

skeiði verður áherslan lögð á þær aðferðir sem afreksfólk á hinum ýmsu sviðum beitir til að ná árangri í leik og starfi. Þetta námskeið er sjálfstætt framhald námskeiðsins Öflugt sjálfstraust sem notið hefur mikilla vinsælda um árabil. Hvenær: Fim. 12. og mán. 16. apríl kl. 16:15 – 19:15 Kennsla: Jóhann Ingi Gunnarsson og Bragi Sæmundsson, sálfræðingar Snemmskráning verð: 26.400 kr. Almennt verð: 29.100 kr. Snemmskráning til og með 2. apríl

Húmor og gleði í samskiptum ... dauðans alvara Húmor í öllum sínum fjölbreytileika er viðfangsefnið á þessu námskeiði. Húmor getur verið afar uppbyggilegur og nærandi en er einnig vandmeðfarið samskiptatæki. Fjölmargar rannsóknir sýna að það er t.d. mikil heilsubót af því að nota húmor á jákvæðan hátt. Húmor getur gjörbreytt andrúmslofti og aukið til muna ánægju og gleði í samskiptum, hvort sem um er að ræða fjölskyldur, vinnustaði, félagasamtök eða vinahópa. Húmor í daglegum samskiptum auðveldar fólki að takast á við allskonar uppákomur, leysa úr vandamálum og draga úr streitu. Hvenær: Mið. 25. apríl kl.19:00 - 22:00 Kennsla: Edda Björgvinsdóttir, leikkona, MA

í menningarstjórnun og diplóma í jákvæðri sálfræði Snemmskráning verð: 12.900 kr. Almennt verð: 14.200 kr. Snemmskráning til og með 15. apríl

Öflugt sjálfstraust Nú býðst áhugasömum að taka þetta vinsæla námskeið á einum degi. Sjálfstraust er undirstaða margra færniþátta, svo sem því hvernig okkur vegnar í samskiptum við aðra, hvernig við setjum markmið, tökum ákvarðanir og vinnum undir álagi. Í raun má segja að öflugt sjálfstraust sé ákveðin forvörn þar sem sterkir einstaklingar eiga auðveldara en aðrir með að taka ákvarðanir, setja mörk og verjast óæskilegum áhrifum frá umhverfinu. Á námskeiðinu er lögð áhersla á að kenna þátttakendum að greina muninn á miklu og litlu sjálfstrausti og ekki síst að kenna aðferðir til að byggja upp og efla sjálfstraust. Hvenær: Fös. 27. apríl kl. 9:00 – 17:00 Kennsla: Jóhann Ingi Gunnarsson, sálfræðingur Snemmskráning verð: 34.900 kr. Almennt verð: 38.400 kr. Snemmskráning til og með 17. apríl

FLEIRI ÁHUGAVERÐ NÁMSKEIÐ Á EFTIRFARANDI SVIÐUM MÁ FINNA Á ENDURMENNTUN.IS • Erlendir sérfræðingar • Ferðaþjónusta • Fjármál og rekstur • Heilbrigðis- og félagssvið • Starfstengd hæfni

• Stjórnun og forysta • Uppeldi og kennsla • Upplýsingatækni • Verkfræði og tæknifræði

13


NÝ OG SPENNANDI TUNGUMÁLANÁMSKEIÐ Námskeiðin Ungverska fyrir byrjendur og Rússneska fyrir ferðalanginn eru nýjungar í fjölbreyttri flóru tungumálanámskeiða hjá okkur á vormisseri. Ungverska telst til finnsk-úgrískra tungumála og hefur stundum verið talið eitt erfiðasta tungumál Evrópu og hefur heillað marga að takast á við. Íslendingar hafa í auknum mæli sótt Ungverjaland heim vegna beinna flugsamganga og einnig má nefna að margir hafa sótt læknanám þar á síðustu árum. Líklega er ekki á margra vitorði að margar af okkar kærustu dægurlagaperlum eru upphaflega ungversk þjóðlög, s.s. Til eru fræ og hið ástkæra Ég er kominn heim. Á námskeiðinu Ungverska fyrir byrjendur verður gefin tilfinning fyrir takti og uppbyggingu þessa fallega tungumáls ásamt því sem veitt verður innsýn í ungverska menningu og matarhefðir. Kennari á námskeiðinu er Zita Rézné Zádori, sem er frá Ungverjalandi en hefur verið búsett á Íslandi um nokkurra ára skeið. Hún hefur langa reynslu sem enskukennari og er með MA í Public Relations og BA í ensku. Rússneskunámskeiðið okkar hentar öllum þeim sem hyggja á ferðalög til Rússlands, ekki síst þeim sem eru á leið á HM í sumar! Enskukunnátta er ekki almenn í Rússlandi og því getur komið sér vel að þekkja og skilja einfalda frasa, merkingar á kýrilíska letrinu og fleira. Á námskeiðinu verður einnig fjallað um rússneska menningu og venjur, en Rússar eru til að mynda almennt hljóðlátir og láta lítið fyrir sér fara á almannafæri, sem er annað en segja má um íslenska fótboltaaðdáendur! Kennari á námskeiðinu er Rebekka Þráinsdóttir, MA í rússnesku og rússneskum bókmenntum.

FRÆÐSLUSTYRKIR STÉTTARFÉLAGA

14

Stéttarfélög styrkja félagsmenn sína til að sækja nám og námskeið. Við hvetjum alla til að nýta þessa styrki.


TUNGUMÁL Þýska Þýska fyrir byrjendur II Í samstarfi við Mála- og menningardeild við Hugvísindasvið HÍ Hvenær: Mán., þri. og fim. 8. jan. – 26. apríl

kl. 12:30 – 13:10 Kennsla: Aune Stolz Almennt verð: 64.900 kr.

Pólska Pólska fyrir byrjendur I Í samstarfi við Mála- og menningardeild við Hugvísindasvið HÍ Hvenær: Þri. og fim. 9. jan. – 15. feb. kl.

16:40 – 18:10 Kennsla: Monika Franciszka Sienkiewicz Almennt verð: 55.500 kr.

Almennt verð: 38.400 kr. Snemmskráning til og með 2. febrúar

Ítalska Ítalska fyrir byrjendur Hvenær: Mán. og mið. 22. jan. – 12. feb.

kl. 17:00 - 19:00 (6x). Ekki kennt 29. jan. Kennsla: Maurizio Tani, stundakennari í ítölsku við HÍ Snemmskráning verð: 34.900 kr. Almennt verð: 38.400 kr.

Franska Franska fyrir byrjendur II Í samstarfi við Mála- og menningardeild við Hugvísindasvið HÍ Hvenær: Mán. og mið. 5. feb.- 16. mars kl.

16:40 – 18:10 Kennsla: Ásta Ingibjartsdóttir Almennt verð: 55.500 kr. Snemmskráning til og með 29. janúar

Snemmskráning til og með 12. janúar

Franska fyrir starfsmenn í ferðaþjónustu

Enska

Kennsla: Florent Gast,

Practical English Hvenær: Mán. og mið. 22. jan. – 7. feb. kl.

16:30 – 18:30 (6x)

Hvenær: Þri. og fim. 6. - 20. mars

kl. 19:15 - 21:15 (5x) MA í frönskum kennslufræðum Snemmskráning verð: 32.900 kr. Almennt verð: 36.200 kr. Snemmskráning til og með 23. febrúar

Kennsla: Mica Allan, enskukennari Snemmskráning verð: 39.900 kr. Almennt verð: 43.900 kr. Snemmskráning til og með 12. janúar

Ungverska

kl. 16:40 - 18:10 Kennsla: Monika Franciszka Sienkiewicz Almennt verð: 55.500 kr.

Practical English

Hvenær: Mán. og mið. 5. – 21. mars

Snemmskráning til og með 20. febrúar

kl. 16:30 – 18:30 (6x)

Kennsla: Zita Rézné Zádori, MA í Public

Kennsla: Mica Allan, enskukennari Snemmskráning verð: 39.900 kr. Almennt verð: 43.900 kr. Snemmskráning til og með 17. febrúar

Snemmskráning verð: 34.900 kr. Almennt verð: 38.400 kr. Snemmskráning til og með 23. febrúar

The Bee´s Knees – take your English to the next level

Rússneska

Pólska fyrir byrjendur II Í amstarfi við Mála- og menningardeild við Hugvísindasvið HÍ Hvenær: Þri. og fim. 27. feb. – 12. apríl

Spænska Spænska I Hvenær: Þri. og fim. 16. jan. – 1. feb.

kl. 17:00 - 19:00 (6x) Kennsla: Steinunn Björk Ragnarsdóttir, MA í spænsku Snemmskráning verð: 34.900 kr. Almennt verð: 38.400 kr.

Hvenær: Þri. og fim. 27. feb. – 15. mars

Hvenær: Þri. 17. apríl frá 9:00 – 12:00

og 13:00 – 17:00 Kennsla: Mica Allan, enskukennari Snemmskráning verð: 27.900 kr. Almennt verð: 30.700 kr.

Ungverska fyrir byrjendur kl. 17:00 - 19:00 (6x) Relations, BA í ensku og kennari

Rússneska fyrir ferðalanginn Hvenær: Mán. og mið. 5. - 21. mars

kl. 19:30 - 21:30 (6x) Kennsla: Rebekka Þráinsdóttir,

Hvenær: Mán. og mið. 12. – 28. feb.

MA í rússnesku og rússneskum bókmenntum Snemmskráning verð: 34.900 kr. Almennt verð: 38.400 kr.

kl. 17:00 - 19:00 (6x)

Snemmskráning til og með 23. febrúar

Snemmskráning til og með 6. janúar

Spænska II

Snemmskráning til og með 7. apríl

Kennsla: Steinunn Björk Ragnarsdóttir,

MA í spænsku Snemmskráning verð: 34.900 kr. 15


Endurmenntun Háskóla Íslands – Dunhagi 7 – 107 Reykjavík Netfang: endurmenntun@hi.is Opnunartími skrifstofu Endurmenntunar er mán. - fös. kl. 8:00 - 17:00 Nánari upplýsingar og skráning á endurmenntun.is eða í síma 525 4444

Fylgdu okkur á Facebook 16

/endurmenntun.is


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Fróðleikur og skemmtun - Vormisseri 2018 by Endurmenntun Háskóla Íslands - Issuu