Skip to main content

Sjálfbærniskýrsla_ELKO_2025_v02

Page 1


2025 SJÁLFBÆRNISKÝRSLA

1.0 ÁVARP FRAMKVÆMDASTJÓRA

VÖXTUR

Árið 2025 markaði tímamót í vegferð ELKO.

Eftir 6 ár af markvissri uppbyggingu og skýrri

framtíðarsýn náðum við einu af okkar mikilvægustu langtímamarkmiðum, að eiga ánægðustu viðskiptavini á raftækjamarkaði. Fyrsta sætið og gullmerki Íslensku ánægjuvogarinnar 2025 var ekki aðeins viðurkenning á framúrskarandi þjónustu heldur staðfesting á því að skýr stefna, samstillt teymi og ábyrgur rekstur skili raunverulegum árangri.

Árangurinn byggir á fimm stoðum sem hafa mótað

starfsemi okkar síðustu ár: verslunum, mannauði, sjálfbærni, stafrænni þróun og þjónustu. Árið 2025

sýndi með skýrum hætti að þessar stoðir styrkja hver aðra. Með því að setja sjálfbærni jafnfætis rekstrarlegum markmiðum tryggjum við ekki aðeins traustan rekstur í dag heldur einnig ábyrgð gagnvart samfélagi, umhverfi og komandi kynslóðum.

Við höldum áfram að uppskera afrakstur af metnaðarfullri vegferð. Fjöldi viðurkenninga sem

ELKO hefur fengið í verslanarekstri, varðandi mannauð, vörumerki og þjónustu, undirstrikar að við erum á réttri leið. Enn mikilvægara er þó að finna að starfsfólk upplifi sig sem trausta ráðgjafa, að viðskiptavinir treysti okkur og samstarfsaðilar taki virkan þátt í sameiginlegri ábyrgð.

Sjálfbærni sem hluti af daglegum ákvörðunum

Sjálfbærni er ekki lengur afmarkað verkefni heldur órjúfanlegur hluti af allri starfsemi ELKO. Á árinu 2025

stigum við afgerandi skref í átt að aukinni yfirsýn, ábyrgð og gagnsæi. Við innleiddum kröfur nýrrar sjálfbærnilöggjafar, framkvæmdum tvöfalda mikilvægisgreiningu og hófum

birtingu á áætlaðri losun vara á elko.is. Sú vinna skapar okkur

grunn til að forgangsraða aðgerðum sem hafa raunveruleg

áhrif.

Við drógum áfram úr vistspori okkar með hagnýtum lausnum

í rekstri meðal annars með því að stórbæta flokkunarhlutfall, ná margfaldri aukningu í sölu á endurnýjuðum vörum

ásamt því að ná góðum árangri í móttöku notaðra raftækja

frá viðskiptavinum. Með samstilltu átaki náði ELKO 93% flokkunarhlutfalli sem er yfir 90% flokkunarmarkmiða til ársins

2030. Með aukinni upplýsingagjöf um sjálfbærnieiginleika

vara á elko.is tökum við jafnframt virkan þátt í að styðja við upplýstar og ábyrgari neysluákvarðanir.

Samfélag, starfsfólk og framtíðarsýn

Ábyrgur rekstur snýst ekki síður um fólk en ferla. Áhersla okkar

á mannauð, jafnrétti, heilsu og þátttöku starfsfólks skilaði sér

í sterku og samheldnu teymi þar sem metþátttaka náðist í

bæði samfélagslegum og heilsutengdum verkefnum. Með virkri þátttöku í íslensku samfélagi, stuðningi við menntun, íþróttir og góðgerðarstarf, viljum við leggja okkar af mörkum og hafa jákvæð samfélagsleg áhrif.

Hvað svo?

Framtíðarsýn ELKO er skýr: að eiga ánægðustu viðskiptavini á raftækjamarkaði með því að vera leiðandi afl á raftækjamarkaði þar sem framúrskarandi þjónusta, nýsköpun og sjálfbærni fara saman. Við munum áfram nýta þann meðbyr sem við höfum skapað til að gera enn betur –með ábyrgum ákvörðunum, gagnsæi, skýrri sýn og traustu langtímasambandi við viðskiptavini að leiðarljósi.

ÞAÐ SEM SKIPTIR ÞIG MÁLI, SKIPTIR OKKUR MÁLI.

2.0 STEFNUR, MARKMIÐ OG VIÐURKENNINGAR

STEFNA, MARKMIÐ OG VIÐURKENNINGAR

ELKO kom með krafti inn á íslenskan raftækjamarkað árið 1998 og er í dag stærsta raftækjaverslun landsins. Verslanirnar eru þrjár á höfuðborgarsvæðinu, ein á Akureyri og tvær á Keflavíkurflugvelli ásamt vefverslun elko.is sem er í dag ein stærsta vefverslun landsins. Vöruhúsaþjónusta ELKO er frá Bakkanum vöruhóteli. ELKO er í fullri eigu Festi hf.

2.2

STEFNA ELKO

ELKO er leiðandi á raftækjamarkaði á Íslandi og eru allar helstu ákvarðanir teknar út frá stefnu fyrirtækisins. Áhersluverkefni hvers árs eru ákveðin út frá gögnum og tilgreind með skýrri framtíðarsýn og kynnt inn á við og heimsótt reglulega svo allt starfsfólk ELKO geti gengið í takt í átt að þar tilgreindum markmiðum.

ELKO er aðili að eftirfarandi samtökum:

STEFNUSKRÁ ELKO

MANNAUÐSSTEFNA

Skapa starfsumhverfi þar sem áhersla er lögð á heilsu, öryggi, heilbrigð samskipti og jákvæða vinnustaðarmenningu. Framtíðarsýn: Ánægðasta starfsfólkið á smásölumarkaði.

INNKAUPASTEFNA

ELKO kaupir vörur til endursölu á heiðarlegan, ábyrgan og sjálfbæran hátt fyrir viðskiptavini í eins góðu samstarfi við sérleyfissala og mögulegt er.

PERSÓNUVERNDARSTEFNA

ELKO ber virðingu fyrir persónuupplýsingum og vill að viðskiptavinir séu upplýstir með einföldum hætti hvernig og af hverju persónuupplýsingum er safnað, notaðar og varðveittar og hvaða réttindi þeir hafa gagnvart ELKO.

UMHVERFISSTEFNA

ELKO ætlar að leggja sitt af mörkum við að draga úr álagi á umhverfið sem hlýst af raftækjaúrgangi sem er tilkomin vegna smásölu og annarrar losunar beint frá rekstri fyrirtækisins. Framtíðarsýn: ELKO ætlar að vera leiðandi fyrirtæki í hringrásarhagkerfi raftækja á Íslandi.

ELKO selur vörur til fyrirtækja á einfaldan og fljótlegan hátt með framúrskarandi þjónustu með áherslu á lítil og millistór fyrirtæki. Framtíðarsýn: ELKO ætlar að vera leiðandi í sölu raftækja til lítilla og millistórra fyrirtækja.

JAFNLAUNASTEFNA

Jafnlaunastefna ELKO gildir fyrir allt starfsfólk, jafnréttis er gætt í launaákvörðunum til að starfsfólk njóti jafnra launa fyrir sambærileg eða jafn verðmæt störf óháð kyni eða öðrum þáttum. Einnig er stefnan órjúfanlegur hluti af jafnréttisstefnu fyrirtækisins.

VERÐSTEFNA

Tryggja þarf samræmda verðlagningu og setja skýran ramma fyrir verklag og ákvarðanatöku og viðhalda samkeppnishæfni og traustum rekstrargrundvelli til framtíðar. Að því marki að lög og reglur séu ávallt virtar. Framtíðarsýn: Viðskiptavinir velja ELKO vegna þess að þeir treysta því að fá bestu verðið.

FRÆÐSLUSTEFNA

Skapa öflugan hóp traustra ráðgjafa sem hafa þekkingu á sínu ábyrgðarsviði til að geta veitt framúrskarandi þjónustu og frætt viðskiptavini til að gera lífið betra, þægilegra og ánægjulegra. Framtíðarsýn: Starfsfólk ELKO telur sig vera trausta ráðgjafa á raftækjamarkaði og hafi góð tök á sínu starfi.

ÞJÓNUSTUSTEFNA

8

Að tryggja að þjónusta ELKO endurspegli framtíðarsýn, loforð og hlutverk fyrirtækisins. Að traustir ráðgjafar veiti viðskiptavinum framúrskarandi og áreiðanlega þjónustu, lausnir og ráðgjöf á grundvelli trausts með það að markmiði að gera líf viðskiptavina betra, þægilegra og ánægjulegra. Framtíðarsýn: ELKO ætlar að eiga ánægðustu viðskiptavinina á raftækjamarkaði.

MARKMIÐ SEM NÁÐUST 2025

Bílafloti félagsins verði að minnsta kosti 50% rafmagnsknúinn

MARKMIÐ NÁÐIST

Birta áætlað kolefnisspor allra vara á elko.is

MARKMIÐ NÁÐIST

Setja upp rafbílahleðslur fyrir

starfsfólk í tveimur verslunum

MARKMIÐ NÁÐIST AÐ HLUTA

Rafbílahleðslur voru settar upp í Lindum

Fá hinsegin vottun

MARKMIÐ NÁÐIST EKKI

Stefnt

Birta sjálfbærnieiginleika 40% vöruúrvals á elko.is

MARKMIÐ NÁÐIST

Ná veikindahlutfalli starfsfólks í 3,5%

MARKMIÐ NÁÐIST EKKI

Veikindahlutfall lækkaði frá 4,66% 4,17%

Verða best í úrlausnum kvartana á raftækjamarkaði

MARKMIÐ NÁÐIST

Yfir 95% starfsfólks telur sig vera trausta ráðgjafa

MARKMIÐ NÁÐIST EKKI 94% telja

Afhendingarseðlar úr vöruhúsi verði rafrænir

MARKMIÐ NÁÐIST EKKI

Stefnt

VIÐURKENNINGAR, TILNEFNINGAR OG VOTTANIR

Gullmerki Íslensku ánægjuvogarinnar (2025)

1. sæti meðal raftækjaverslana, Stjórnvísi

Sérleyfishafi ársins hjá ELKJØP (2024­2025)

Nordic franchisee of the year, ELKJØP

Jafnvægisvogin (2022 ­ 2025)

Jafnrétti á vinnustað, FKA

Framúrskarandi fyrirtæki (2014 ­ 2025)

Creditinfo

ELKO Lindir, veltuhæsta verslun ársins (2025)

Af yfir 400 verslunum á Norðurlöndunum, ELKJØP

2. sæti yfir allar verslanir, Fyrirtæki ársins VR (2025)

VR

Tilnefning fyrir besta íslenska

vörumerki vinnustaðar (2025)

Brandr

HEIMSMARKMIÐIN

ELKO er annt um samfélagslega ábyrgð og vinnur að því að hafa áhrif til góðs og til þess þurfa allir að vera saman í liði; starfsfólk, birgjar og viðskiptavinir.

ELKO hefur unnið hörðum höndum að því að samræma markmið fyrirtækisins við Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna.

ELKO vinnur að því markmiði að vera leiðandi fyrirtæki í hringrásarhagkerfi raftækja á Íslandi til að hafa góð áhrif á heimsvísu.

ÁRIÐ Í TÖLUM

Tækifærisvörur seldar á árinu

Netspjöll afgreidd

Starfsmanna hafa nýtt sér stafræna fræðslu

ELKO gegnir veigamiklu hlutverki á íslenskum raftækjamarkaði eins og sést á tölunum hvílir mikil ábyrgð á herðum félagsins í ljósi hlutdeildar á markaði. ELKO vill bjóða upp á góða þjónustu, sýna ábyrgð gagnvart umhverfinu og uppfylla loforð okkar gagnvart viðskiptavinum og starfs­

fólki: „Það sem skiptir þig máli, skiptir okkur máli.“

Netpantanir týndar úr verslunum

Netpantanir á árinu

Afrit af reikningum sótt rafrænt

Fyrirtækjakennitölur skráðar í reikningsviðskipti

Telja sig vera trausta ráðgjafa í raftækjum

Starfsánægja að meðaltali

Launamunur milli kynja

Af úrgangi var flokkaður

Ánægja viðskiptavina

Starfsfólks hefur fengið 15 mín. spjall

Ánægja með 15 mín. spjöll

Ánægðustu viðskiptavinirnir á raftækjamarkaði

Heildarupplifun í verslun

Mínútur í Lífshlaupinu

Veikindahlutfall

Hafa fengið hrós frá samstarfsfólki

Starfsfólks nýtti líkamsræktarstyrkinn

Seldu gamla símann við kaup á nýjum

Skoðuðu verðsöguna á elko.is

Greiddar fyrir notuð raftæki

Virkar viðbótartryggingar

UFS MÆLABORÐ

LAUFIÐ

ELKO hefur verið hluti af Laufinu síðustu ár. Laufið er stafrænn vettvangur þar sem íslensk fyrirtæki geta hagnýtt sér verkfæri í vegferð að sjálfbærari fyrirtækjarekstri, samfélagslegri ábyrgð og baráttu við loftslagsvána.

ELKO hefur skráð þau umhverfisskref sem hafa verið tekin sem og lykilþætti í Laufinu sem eru þríþættir: umhverfið, félagslegir þættir og stjórnarhættir. Fjölmörg úrbótarverkefni hafa verið skráð út frá þessari vinnu og verið framkvæmd á þessu ári. Í dag er ELKO það fyrirtæki sem er komið einna lengst í að uppfylla umhverfisskrefin hjá Laufinu og til að mynda eru öll úrbótarverkefni tengd stjórnarháttum lokið og 97% félagslegra þátta. Á laufid.is geta neytendur séð hvar fyrirtæki standa í umhverfismálum og gert samanburð.

ELKO sækir töluleg gögn í gegnum rafræna reikninga og fjárhagsbók félagsins til að reikna kolefnisspor Festi og dótturfélaga. Þetta tryggir samræmingu á fjárhags­ og sjálfbærnibókhaldi og tryggir meiri sjálfvirkni og gagnsæi í útreikningum og gögnum.

3.0 UMHVERFISMÁL

UMHVERFISSTEFNA

OG FRAMTÍÐARSÝN

Þar sem ELKO er leiðandi fyrirtæki á íslenskum raftækjamarkaði þarf það að axla ábyrgð í umhverfismálum. Félagið er með skráða umhverfisstefnu sem nær til allrar starfsemi fyrirtækisins með það að markmiði að draga úr álagi á umhverfið og að umhverfissjónarmið séu höfð að leiðarljósi í daglegum rekstri.

ELKO ætlar að leggja sitt af mörkum til að draga úr álagi á umhverfið sem hlýst af raftækjaúrgangi sem er tilkomin vegna smásölu og annarrar losunar beint frá rekstri fyrirtækisins.

FRAMTÍÐARSÝN

Framtíðarsýn ELKO er að verða leiðandi fyrirtæki í hringrásarhagkerfi raftækja á Íslandi.

MARKMIÐ UMHVERFISSTEFNU

1

Flokkaður úrgangur verði orðinn meira en 90% af heildarúrgangi árið 2030.

Vegferð ELKO síðustu árin að bæta flokkunar­ og

úrgangsmál hefur skilað sér og hefur hlutfall flokkaðs

úrgangs aukist með hverju árinu. Markmið fyrir árið 2030 náðist á árinu 2025 þegar hlutfall flokkaðs sorps var 93,1%.

Aukin áhersla ELKO á flokkunarmál og mánaðarlegar

yfirferðir sorpmála með starfsfólki hefur skilað sér eins

og sjá má og náðist nokkrum árum fyrr en áætlað var.

Að hlutfall gallaðrar vöru sem fargað er lækki í 0,6% árið 2030. 2

Að yfir 20 þúsund vara verði tengdar hringrásarhagkerfinu fyrir 2030. 3

Unnið hefur verið að gæðamælingum verkstæða til að bæta þjónustu og viðgerðir. Á árinu var unnið enn frekar að þróun þjónustubeiðnakerfis til að bæta ferla. Ítarlegar skýrslur um afskriftir niður á vörunúmer eru aðgengilegar stjórnendum. Á næstu árum er svo áætlað að koma fleiri vörum til viðgerðar en verið hefur. Ekki náðist lækkun á árinu þó að unnið hafi verið statt og stöðugt að umbótum en umtalsverður árangur náðist í lækkun heildarrýrnunar.

Unnið verður áfram með verkefnið á komandi árum til að ná markmiðinu.

Það hefur gengið vel að fá viðskiptavini til að koma með raftæki inn í hringrásarhagkerfið og eykst fjöldinn sem sendur er út í ábyrgt endurvinnsluferli frá ári til árs. Á þessu ári sameinast tveir mælikvarðar og bætast nú við seld notuð raftæki (e. Refurbished/reused/renewed electronics) sem keypt eru til endursölu úr hringrásarhagkerfi raftækja. Þrátt fyrir sameiningu markmiða náðist ekki aukning á árinu en viðbúið er að magnið muni stóraukast árið 2026 þar sem eftirspurn eftir notuðum tækjum hefur aukist umtalsvert og er fyrirhugað að ráðast í markaðsátak á árinu til kynningar á málaflokknum.

Fyrra stig virðiskeðju

Framleiðsla og dreifing

LOFTSLAGSMÁL

OG KOLEFNISSPOR

Eigin rekstur

Verslanir

TÆKIFÆRI

Seinna stig virðiskeðju

Viðskiptavinir

Markmið ELKO er að draga úr kolefnisspori sínu. Á árinu 2021 skuldbatt fyrirtækið sig með undirritun loftslagsyfirlýsingar Reykjavíkurborgar og Festi að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og myndun úrgangs með því að setja sér mælanleg markmið til framtíðar.

99,4% frá fyrra stigi virðiskeðju 0,4% frá eigin rekstri

Bein losun gróðurhúsalofttegunda frá starfsemi og eldsneytisnotkun farartækja. Aðgerðarsvið 1

Aðgerðarsvið 2

Óbein losun gróðurhúsalofttegunda sem tengd eru raforkunotkun og notkun á heitu vatni í fasteignum og á lóðum ELKO.

0,3% frá seinna stigi virðiskeðju

Óbein losun gróðurhúsalofttegunda í virðiskeðju ELKO. Úrgangur frá rekstri og viðskiptaferðir. Aðgerðarsvið 3

KOLEFNISJÖFNUÐAR

Ef horft er til kolefnisjöfnunar er varðar losun á rekstri ELKO fyrir árið 2025 í gegnum móðurfélagið FESTI

hf. skilgreinir ELKO losun reksturs sem umfang 1,2 og úrgang og viðskiptaferðir sem umfang 3[AH1].

Fyrir árið 2025 keypti ELKO í heildina 68 vottaðar

kolefniseiningar frá eftirfarandi  verkefni:

Elmali Wind Power Plant, árgerð 2020

Verkefni GS44421, Tyrkland

Clean Cooking Project for Refugees, Host Communities, and Other

Marginalized Communities

Verkefni GS12114, Bangladess

[HH2] [SS3] [ÓS4] [SS5]

430.000

FJARÐARHORN

Trjáplöntur gróðursettar frá upphafi

70.000 tonn CO2

Áætluð kolefnisbinding næstu 50 árin

ELKO í gegnum móðurfélagið FESTI var meðal fyrstu fyrirtækja hér á landi til að skrá vottað kolefnisbindingarverkefni í Loftslagsskrá Íslands sem unnið er í gæðakerfinu Skógarkolefni. Verkefninu lauk árið 2024 og voru gróðursettar 430 þúsund plöntur í heildina og þar með er svæðið fullgróðursett. Áætlað er að með verkefninu verði bundin ríflega 70.000 tonn af CO2 á næstu 50 árum. Kolefnisbinding í verkefninu er áætluð um 84% af losun vegna starfsemi rekstrarfélaga FESTI á sama tímabili miðað við núverandi losun. Búist er við því að verkefnið verði vottað á árinu 2026. Samstæðan stefnir á að draga úr losun til að koma til móts við það sem stendur út af.

Áætluð kolefnisbinding starfsemi Festi 84%

HRINGRÁSARHAGKERFI

OG LÍFTÍMI RAFTÆKJA

FARSÍMAR

Gagnaviðgerð

Stór viðgerð

Smáviðgerð

Endurunnið

FÁÐU EITTHVAÐ FYRIR EKKERT

ELKO í samstarfi við eistneska fyrirtækið Foxway kaupir notuð raftæki af viðskiptavinum. Markmið samstarfsins er að koma notuðum raftækjum í hringrásarhagkerfi raftækja þar sem þau eru ýmist endurnýtt eða endurunnin á ábyrgan hátt. Foxway endurvinnur hvern einasta smáhlut í tækjum þar sem ekkert fer til spillis. Árið 2025 keypti ELKO 3.163 tæki af viðskiptavinum og við þessar tölur bætast við tæki beint frá rekstri ELKO. Í hringrásarhagkerfið voru því send í heildina 4.324 tæki.

Verðmæti sem ELKO greiddi viðskiptavinum árið 2025 fyrir notuð tæki voru rúmar 20 milljónir sem er svipað og árið áður.

SPJALDTÖLVUR

Gagnaviðgerð

Stór viðgerð

Smáviðgerð

Endurunnið

FARTÖLVUR

Gagnaviðgerð

Stór viðgerð

Smáviðgerð

Endurunnið

Fyrirtækjaþjónusta ELKO býður fyrirtækjum upp á að kaupa af þeim gömul raftæki líkt og fartölvur, borðtölvur, spjaldtölvur, farsíma og snjallúr og koma þeim í ábyrga endurvinnslu þar sem tækin rata áfram í hringrásarferli raftækja í gegnum Foxway. Fyrirtæki fá greitt fyrir þau tæki sem þau skila inn ásamt því að fá skýrslu um CO2 endurnýtingu sem hægt er að gera grein fyrir í rekstrinum.

Haldin er nákvæm skráning hvað verður um tækin sem eru send út. Byrjað er á að greina ástand hverrar vöru fyrir sig, sum tæki þurfa gagnaviðgerð og önnur frekari viðgerð. Reynt er eftir fremsta megni að nota varahluti úr öðrum tækjum áður en keyptir eru nýir varahlutir. Ef tæki eru ekki viðgerðarhæf er hægt að endurvinna þau og endurnýta íhluti, góðmálma og önnur efni úr þeim. ELKO KAUPIR NOTUÐ

ALÞJÓÐLEGUR DAGUR RAFTÆKJAÚRGANGS

ELKO hefur tekið þátt í Alþjóðlegum degi raftækjaúrgangs síðustu þrjú ár. Í ár var framlag ELKO að birta áætlað kolefnisspor raftækja á elko.is. Birting á þessum gögnum gefur neytendum upplýsingar til þess að geta tekið upplýsta ákvörðun um kaup út frá umhverfislegum sjónarmiðum.

3.3

Á alþjóðlegum degi raftækjaúrgangs var einnig minnt á mikilvægi þess að koma raftækjum í réttan farveg í hringrásarhagkerfinu að notkun lokinni. Eins voru viðskiptavinir hvattir til þess að skila inn gömlum snjalltækjum gegn greiðslu. Allir þeir sem skiluðu inn snjalltæki til ELKO í Fáðu eitthvað fyrir ekkert í október áttu möguleika á að vinna 100.000 kr. inneign í ELKO.

Í ár var framlag ELKO á Alþjóðlegum degi raftækjaúrgangs að birta áætlað kolefnisspor raftækja á elko.is

Í október gátu viðskiptavinir nálgast frí endurvinnslubox fyrir rafhlöður í öllum verslunum ELKO og er gert ráð fyrir því að bjóða þau áfram til viðskiptavina til að minna á mikilvægi endurvinnslu.

SJÁLFBÆRNIUPPLÝSINGAR

ELKO birtir margar sjálfbærniupplýsingar undir vörum á elko.is til að gera viðskiptavinum kleift að taka meðvitaðar ákvarðanir við kaup á vörum.

Upplýsingar sem hægt er að sjá á fjölda vara:

Áætlað kolefnisspor raftækja

Ecovadis-vottun

Framleiðsluland

Aðgengi að varahlutum (í árum)

Áætlaðan endingartíma vara (í árum)

Birting áætlaðs kolefnisspors vara, vottanir, aðgengi að varahlutum og endingartími vara er hluti af vegferð ELKO: að vera leiðandi fyrirtæki sjálfbærnimála á raftækjamarkaði og vera fyrirmynd annarra fyrirtækja að gera slíkt hið sama. Með því að hafa áætlað kolefnisspor raftækja sýnilegt og aðgengilegt fyrir neytendur hvetur það til breyttrar og meðvitaðri kauphegðunar neytenda, birgja og framleiðenda.

ÁÆTLAÐ KOLEFNISSPOR VARA

ELKO birtir nú áætlað kolefnisspor vara á elko.is. Birt

kolefnisspor vöru gefur neytendum betri upplýsingar til þess að taka meðvitaða ákvörðun við kaup og gerir valið skýrara á milli tveggja sambærilegra vara sem hafa ef til vill mishátt kolefnisspor.

Þegar upplýsingar eru veittar á þennan hátt ýtir undir að viðskiptavinir ELKO velji vöru með lægra kolefnisspori sem hefur jákvæð áhrif á umhverfið. Áætlað kolefnisspor er mæling sem sýnir hversu mikið kolefni tiltekin vara losar út í umhverfið á líftíma hennar: framleiðsla, dreifing, notkun og endurvinnsla.

Útreikningurinn tekur mið af tveimur þáttum:

á orkueyðslu í framleiðslu og við flutning á vörunni 1

2

Þyngd vöru (með umbúðum) sem hefur bein áhrif

Kolefnisspor hvers vöruflokks samkvæmt alþjóðlegum stuðlum frá DEFRA (Department for Environment, Food and Rural Affairs) í Bretlandi.

Þetta er opinber losunarstuðull sem notaður er

til að reikna út kolefnisspor ýmissa hluta. Þessi stuðull segir til hve mikið CO­ígildi (kg CO₂e) losnar

út í andrúmsloftið við hverja einingu (kg, lítra eða kWh) fyrir ákveðna vöru

ECOVADIS VOTTUN

EcoVadis er alþjóðlegt vottunarfyrirtæki sem vinnu kerfisbundið að því að votta fyrirtæki fyrir sjálfbærnivinnu þeirra og samanstendur af frammistöðu þeirra á umhverfi, varðandi siðferði og samfélagslega ábyrgð. Í gegnum vörumerkjasamning við ELKJOP samstæðuna á Norðurlöndunum hefur ELKO nú bætt við alþjóðlegu vottunarkerfi EcoVadis við vöruupplýsingar á elko.is.

EcoVadis vinnur með mörgum birgjum ELKJOP og metur starfshætti þeirra árlega til að tryggja að vara sé framleidd á sjálfbæran og siðferðislegan hátt við góðar umhverfisog vinnuaðstæður.

AÐGENGI AÐ VARAHLUTUM Í ÁRUM

Aðgengi að varahlutum (í árum) er birt á elko.is þar sem viðskiptavinir geta öðlast upplýsingar hve lengi hægt er að nálgast varahluti vara eftir kaup. Þetta styður við lengri endingartíma og ýtir undir að viðskiptavinir geri frekar við vöru í stað þess að farga henni.

FRAMLEIÐSLULAND

Upplýsingar hvar varan er framleidd getur hjálpað neytendum að átta sig á flutningsfjarlægðum og tengdum umhverfisáhrifum vara.

Tengi við samfélagslega ábyrgð ELKO Markaðurinn

Gefur viðskiptavini til kynna hversu lengi framleiðandi vöru ætlast til að hún endist miðað við eðlilega notkun.

MÆLINGAR VÖRUMERKIS OG SAMFÉLAGSLEGRAR ÁBYRGÐAR

Á raftækjamarkaði er ELKO leiðandi hvað varðar samfélagslega ábyrgð og sjálfbærni og ætlar að ná enn lengra með aðgerðum á næstu árum. Mikill árangur náðist með Alþjóðlegum degi raftækjaúrgangs í október sem sést best í mælingum Prósents á ímynd ELKO á árinu 2025 í tengslum við samfélagslega ábyrgð sem gefur vel til kynna að herferðin hafi náð til neytenda.

ELKO setur sterkar skjáfilmur á allar helstu gerðir snjallsíma, úra og spjaldtölva. Verkefninu er ætlað að lengja líftíma raftækja enda verja skjáfilmurnar snjalltæki fyrir höggum og draga úr líkum á því að skjáir rispist eða brotni. ELKO hefur selt skjávarnir í mörg ár en þessi þjónusta er ólík því sem hefur verið boðið upp á áður enda er filman tryggð út líftíma tækisins. Ef djúp rispa kemur í filmuna eða hún brotnar er hægt að fá nýja í næstu verslun ELKO án endurgjalds. Enn fremur stuðlar þessi þjónusta að minni framleiðslu og sóun þar sem filmurnar eru skornar út í verslunum ELKO og henta því hvaða tæki sem er og krefst ekki sérstakrar skjávarnar fyrir einstök tæki. Þetta minnkar þar af leiðandi birgðahald, flutning og sóun.

Sala á tækifærisvörum í ELKO:

Árið 2025 voru settar 15.952 skjá­

filmur á snjalltæki viðskiptavina ELKO sem er 7,5% aukning frá árinu áður.

Stefna ELKO er að lengja líftíma raftækja en á sama tíma að eiga ánægðustu viðskiptavinina og tryggja að þeir velji rétta vöru. Af því tilefni er skilaréttur viðskiptavina ELKO rúmur og hægt að skila vöru allt að 30 dögum frá kaupum og þrátt fyrir að hún hafi verið tekin úr umbúðum og prófuð.

Skilaréttur á vörum er 30 dagar frá kaupum og hægt er að skila vöru þrátt fyrir að hún hafi verið prófuð

HRINGRÁSARHAGKERFIÐ

GULLEGGINU

Á árinu tók ELKO í fyrsta skipti þátt í hugmyndahraðhlaupi

Gulleggsins. Verkefni ELKO sneri að því að leita að hugmyndum hvernig hægt væri að þróa sjálfbærar og arðbærar lausnir sem styðja við hringrásarhagkerfi raftækja. Leitað var að hugmyndum sem auðvelda endurnýtingu, endursölu eða endurvinnslu á notuðum raftækjum eins og snjalltækjum, tölvum og heimilstækjum. Leitast var einnig eftir lausnum sem bæta viðgerðarþjónustu, einfalda móttökuferli notaðra tækja og byggja á sjálfbæru tekjumódeli sem gagnast bæði neytendum og umhverfinu. Góðar hugmyndir komu úr hugmyndahraðhlaupinu tengdar viðgerðarþjónustu ELKO

og lengingu líftíma raftækja hvar væri hægt að gera betur.

Með þátttöku í hugmyndahraðhlaupi Gulleggsins vildi ELKO vekja athygli á áskorunum við að lengja líftíma raftækja og stuðla að sjálfbærni og bættu hringrásarhagkerfi raftækja.

MINNI ÚRGANGUR OG FLOKKUN 3.4

Umhverfismarkmið ELKO eru skýr og vill fyrirtækið sýna gott fordæmi og vera viðskiptavinum og öðrum fyrirtækjum hvatning.

FLOKKUN SORPS

ELKO leitar allra leiða til að minnka hlutfall óflokkaðs sorps sem frá starfseminni kemur og hefur til að mynda margfaldað fjölda flokkunartunna á síðustu árum, jafnt fyrir starfsfólk og viðskiptavini og flokkað er í 17 mismunandi flokka. Skrásett flokkunarskrá er til staðar í

ELKO með öllum sorpflokkum og einnig birt á elko.is fyrir áhugasama.

ELKO á í samstarfi við Íslenska gámafélagið og er allt almennt sorp sem til fellur pressað, baggað og sent til Evrópu þar sem það fer í brennslu í hátæknibrennslustöð. Orkan sem verður til er nýtt til rafmagnsframleiðslu og upphitunar húsa þar sem annars væru notuð kol og olía.

ELKO vill alltaf gera betur og hefur því sett sér skýr umhverfismarkmið í von um að sýna viðskiptavinum og öðrum fyrirtækjum gott fordæmi og vera öðrum hvatning að gera slíkt hið sama með því að setja umhverfismál í forgrunn í rekstrinum.

ELKO er með skýrt markmið að ná 90% flokkunarhlutfalli árið 2030. Árið 2025 var metár í flokkunarhlutfalli eða 93,1% sem er til marks um þá öflugu vegferð sem ELKO er á og hefur markmiði til ársins 2030 verið náð töluvert fyrr en áætlað var.

EFTIRFARANDI

SORPFLOKKUM ER SKILAÐ Í ÁBYRGA ENDURVINNSLU EÐA FÖRGUN:

Raftæki í hringrásarhagkerfi

Raftæki í ábyrga endurvinnslu

Flokkunarhlutfall úrgangs 2025

Flokkum skilað í endurvinnslu 2025 93,1% 91,1% 17

Endurvinnluhlutfall úrgangs 2025

Dósir og flöskur til endurvinnslu

Óflokkanlegt sorp

Bylgjupappi

Glært brettaplast

Dökkt brettaplast

Pappír

Málmar

Plast

Lífrænn úrgangur

Perur og flúrperur

Rafhlöður

Trúnaðargögn til eyðingar

Grófur úrgangur

Frauðplast

Snúrur og kaplar

ELKO aðstoðar landsmenn að koma raftækjum í ábyrgt endurvinnsluferli og eru endurvinnsluskápar í öllum verslunum. Hægt er að koma með smá raftæki, perur, rafhlöður, fartölvur og fleiri tæki og ELKO kemur þeim í endurvinnsluferli og tryggir að hráefni séu endurunnin eða endurnýtt eins vel og hægt er.

ENDURVINNSLUBOX FYRIR RAFHLÖÐUR

Í öllum verslunum ELKO geta viðskiptavinir nálgast endurvinnslubox úr pappa fyrir rafhlöður. Boxið auðveldar að halda utan um rafhlöður heimilisins á einum stað og koma þeim síðan á næstu endurvinnslustöð í ábyrgt endurvinnsluferli.

Fyrir tveimur árum síðan hóf ELKO í samstarfi við endurvinnslufyrirtækið Furu að taka á móti snúrum frá viðskiptavinum og koma þeim í ábyrgt endurvinnsluferli. Landsmenn geta komið með gamlar snúrur sem eru ekki lengur í notkun í allar verslanir og er þeim svo komið til Furu þar sem snúrurnar eru tættar í sundur og aðskildar frá kápunni svo kopar og aðrir málmar standi eftir sem hráefni.

Afpökkunarborð er aðgengilegt fyrir utan verslun ELKO í Skeifunni þar sem viðskiptavinir geta tekið umbúðir utan af þeirri vöru sem þeir hafa keypt í versluninni sem er síðan flokkað til endurvinnslu. Um tilraunaverkefni er að ræða áður en slík borð eru pöntuð fyrir aðrar verslanir félagsins.

STARFSEMIN NÁNAST PAPPÍRSLAUS

ELKO er eingöngu með rafræna verðmiða til að minnka pappírsnotkun. Í verslunum ELKO eru 27.000 rafrænir hillumiðar. Framþróunarverkefni síðustu ára hefur verið að draga úr pappírsnotkun innan fyrirtækisins og er magn pappírs sem notað er til reksturs orðið hverfandi.

Heildarnotkun A4 pappírs í stk: Fjöldi reikninga sóttir rafrænt:

SAMANTEKT VEFPANTANA

Allar vefpantanir í vöruhúsi eru teknar saman af starfsfólki í gegnum rafræna skannlausn þar sem pantanir eru flokkaðar í tölvukerfi í stað þess að þær séu prentaðar út. Áætlað er að rúmlega tonn af pappír sparist við að safna saman pöntunum rafrænt. Einnig hafa afköst starfsfólks aukist talsvert.

Umbúðirnar sem vefpantanir af á elko.is eru pakkaðar í er úr 100% endurunnu plasti

Hætt var við að nota bóluplast og þess í stað notaður höggvarnarpappi. Endurunnir plastpokar eru svo notaðir í pökkun vefpantana og endurunnin plastfilma fyrir pökkun bretta. Verið er að innleiða grindur fyrir vefpantanir á nýju ári til að minnka notkun plastfilma.

RAFRÆNAR KVITTANIR

Viðskiptavinir ELKO hafa val um hvort þeir vilji útprentaðar kvittanir eða nótur en hægt er að óska eftir afriti reikninga í tölvupósti þegar viðskiptavinir ljúka við vörukaup á elko. is. Innri vefur elko.is býður viðskiptavinum einnig upp á að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum í gegnum „Mínar síður“ og að skoða kaupnótur, gildistíma, tryggingar, ábyrgð raftækja, viðgerðaraðila á keyptum raftækjum og margt fleira. Árið 2025 voru sóttir 33.183 reikningar í gegnum „Mínar síður“.

DREGIÐ ÚR PRENTUN Á ELKO BLAÐINU

Prentun á ELKO blaðinu hefur dregist umtalsvert saman á undanförnum árum sem skilar sér í töluverðum sparnaði í pappírsnotkun. Dreifingu á ELKO blaðinu verður haldið áfram næstu árin en ELKO leitar alltaf leiða til að auka stafræna dreifingu og lestur á blaðinu rafrænt. Til marks um það voru gerðar tilraunir til þess að gefa fleiri blöð út eingöngu á rafrænu formi árið 2025 sem skilaði sér í færri prentuðum síðum það árið. Blaðinu er deilt á alla stafræna miðla fyrirtækisins en tilraunir með útgáfu á einungis stafrænu blaði styðja þá ákvörðun að halda áfram

blaðaútgáfu á meðan dreifing leyfir en helstu áskoranir við blaðaútgáfu í dag eru dreifileiðir til heimila landsins. Árið 2025 var rafrænni útgáfu ELKO blaðsins flett rúmlega

116.000 sinnum.

Fjöldi prentaðra blaðsíðna í ELKO blöðum:

50M 29M 29M 26M 20M 20M 18M

STAFRÆNT AUGLÝSINGAEFNI Í VERSLUNUM

Á árinu voru settir upp fleiri auglýsingaskjáir í verslunum

ELKO og munu enn fleiri fara upp í verslun á Akureyri á næsta ári. Skjáirnir verða nýttir undir merkingar í verslun og auglýsingaefni og eru ætlaðir til að halda útprentuðu auglýsingaefni í algjöru lágmarki. Markaðsefni er nú stýrt að hluta til miðlægt af markaðsdeild ELKO með stafrænu efni í fjórum af sex verslunum fyrirtækisins.

ORKUSPARNAÐUR Í LÝSINGU

Allar verslanir og starfsstöðvar ELKO eru LED lýstar til að spara orku og huga að umhverfinu

ENDURNÝJANLEGIR ORKUGJAFAR Í RAFMAGNI

Allt rafmagn sem ELKO nýtir í rekstri sínum á uppruna í 100% endurnýjanlegum orkugjöfum. Þetta er tryggt með kaupum ELKO á upprunaábyrgð á raforku.

á

blaðsíður í ELKO-blaðinu 2025 18 M.bls Færri síður prentaðar en árið 2019

Prentaðar

GRÆNAR FJÁRFESTINGAR Í ELKO

ELKO hugar að grænum fjárfestingum, sem stuðla að umhverfisvernd, draga úr losun gróðurhúsalofttegunda eða styðja við sjálfbæra þróun. Skilgreindar grænar fjárfestingar ELKO árið 2025 voru 12 milljónir sem ráðstafað var í hleðslustöðvar fyrir rafmagnsbifreiðar og kælibúnað fyrir verslanir.

STARFSFÓLK FRÆTT UM

UMHVERFISVÆNNI VALKOSTI

Á árinu fékk allt starfsfólk ELKO fræðslu um umhverfisvænni valkosti í vöruúrvali, af hverju orkuflokkar skipta máli og hvaða vörur eru umhverfisvænar svo hægt sé að miðla því til viðskiptavina.

VIÐSKIPTAVINIR UPPLÝSTIR

UM

RAFORKUNOTKUN

Í verslunum og á elko.is eru valdar vörur merktar með stöðluðum orkumerkingum sem gefa til kynna hversu mikla orku tæki notar og veitir upplýsingar um gæði orkunýtingar þess. Ráðgjafar í verslunum aðstoða viðskiptavini við að lesa úr þessum upplýsingum, og við val á rétta tækinu. Leiðbeiningum frá Hús­ og mannvirkjastofnun er fylgt við birtingu á orkuflokkum.

Endurnýjanlegir orkugjafar 2025

Á árinu voru nýir orkumiðar fyrir farsíma kynntir til leiks sem birta munu ítarlegri upplýsingar sem viðskiptavinir geta notað til að auðvelda sér valið. Bætt var við einkunn á höggþoli sem miðast við fall úr eins meters hæð. Einnig var bætt við viðgerðarhæfni sem gefur til kynna hve auðvelt og aðgengilegt er að gera við símtækið.

12 M.kr. 50% Nýjar hleðslustöðvar 2025 6-8

Varið í grænar fjárfestingar 2025 Bílaflota gengur fyrir rafmagni 2025

UMHVERFISVÆNIR FERÐAMÁTAR

Markmið ársins 2025 var að 50% bifreiða félagsins gengju fyrir rafmagni og það markmið náðist. Á árinu var tekinn í notkun 100% rafmagnsbíll

ELKO sem fer með pantanir milli Bakkans vöruhótels og verslana ELKO á höfuðborgarsvæðinu. Þetta er stórt skref í hraðari og skilvirkari þjónustu í dreifingu.

ELKO rekur í heildina fimm bifreiðar, þrjár rafmagnsbifreiðar og tvær sem ganga fyrir dísel. Vöruflutningabifreið félagsins gengur fyrir dísel en eingöngu er tekið lífdísel á þá bifreið. Lífdísel losar aðeins um 0,2% af Co2 í kolefnisbókhaldi félagsins á móti dísel og er því ríkmikil áhersla lögð á notkun þesslífdísel.

Það stendur til að skipta út vöruflutningabifreiðinni í rafmagnsbifreið þegar reglugerðir um ökuréttindi breytast hér á landi og hægt er að keyra þyngri bíla á hefðbundnu ökuskírteini.

Átta hleðslustöðvar fyrir starfsfólk ELKO voru settar upp á árinu og eru þær staðsettar hjá versluninni í Lindum og var eitt af verkefnum þessa árs að hefja innleiðingu á hleðslulausnum í aðrar verslanir. Nú þegar hafa lagnir fyrir hleðslustöðvarnar í Skeifu og á Akureyri verið lagðar og verður hleðslustöð komið fyrir í Skeifunni árið 2026.

Einnig býðst öllu starfsfólk að geyma reiðhjól og lítil rafmagnsfarartæki í starfsmannarýmum ELKO, til að hlaða eða geyma á meðan vinnu stendur.

SJÁLFBÆRNI

VIRÐISKEÐJU

Meirihluti vara sem ELKO kaupir til endursölu er frá samstarfsaðilanum ELKJOP. Aðrir birgjar eru valdir í samræmi við kröfur ELKO varðandi samkeppnishæf verð, þjónustu, skilmála og samfélagslega ábyrgð.

ELKO hefur lokið birgjamati af allri innkaupaveltu. Birgjamatið metur alla birgja okkar út frá þeim siðareglum sem Festi og rekstrarfélög þess hafa sett og snýr þessi liður matsins að því að fá staðfestingu frá birgjum að þessum reglum sé hlítt. Tilgangur birgjamats Festi og rekstrarfélaga þess er að stuðla að áreiðanlegu og traustu innkaupaumhverfi með skýrum kröfum til eigin starfsemi, birgja og þjónustuaðila. Reglurnar styðja við sjálfbærnimarkmið samstæðunnar og lögð er áhersla á ábyrgð í umhverfismálum, virðingu fyrir mannréttindum og á heilbrigða viðskiptahætti. Þá er í birgjamatinu lagður fyrir spurningalisti sem byggir á þessum siðareglum og er ætlað að veita innsýn í starfshætti birgja og þjónustuaðila með tilliti til ábyrgra og sjálfbærra vinnubragða. Með þessu mati tryggjum við skýra, faglega og ábyrga nálgun í samskiptum við birgja okkar.

We need to walk the talk!

Let’s close the loop!

NR. 1 PRODUCT IN ALL CATEGORIES IS GREEN

Because the best deal should come with a minimal price for our planet

We want our products to be used and loved as long as possible

Samkvæmt upplýsingum frá ELKJOP vilja átta af hverjum tíu viðskiptavinum frekar kaupa vöru sem er sjálfbær og tekur ELKJOP ábyrgðarhlutverk sitt alvarlega.

Langtímasjálfbærnimarkmið ELKJOP, sem ELKO nýtur góðs af, eru einföld: Kolefnisjafnaður rekstur, að söluhæstu vörurnar séu umhverfisvænar, allar vörur séu viðgerðarhæfar og endurvinnanlegar.

ELKJOP nýtir sér enn fremur mælikvarðann EcoVadis þar sem framleiðendum er gefin einkunn út frá umhverfisþáttum, félagslegum þáttum og stjórnarháttum. ELKO birtir einkunn á þeim vörum þar sem framleiðandinn hefur verið metinn.

ELKJOP GREEN DEAL

ELKO SÉRLEYFISHAFI ÁRSINS HJÁ ELKJØP

(e. Nordic franchisee of the year).

Verðlaunin voru veitt á stjórnendaráðstefnu ELKJØP sem haldin var í Noregi og eru veitt þeim aðila sem hefur sýnt framúrskarandi árangur í rekstri, þjónustu og frammistöðu yfir árið. ELKJØP er fremst á sínum markaði og starfar með rúmlega 140 sérleyfishöfum sem reka um 170 verslanir víðs vegar um Norðurlöndin sem gefur til kynna hversu mikil viðurkenning þetta er fyrir ELKO. Verðlaunin eru skýr staðfesting á því að ELKO sé leiðandi á sínu sviði og fyllilega samkeppnishæft við hin Norðurlöndin.

Sérleyfishafar

í keðjunni 2025

Verslanir á Norðurlöndunum

MIKILVÆGISGREINING

Hluti af sjálfbærnivegferð móðurfélags

ELKO, Festi, er að framkvæma tvíása mikilvægisgreiningu (DMA) til að greina á kerfisbundinn hátt efnisleg áhrif, áhættu og tækifæri (IROs) í allri virðiskeðju fyrirtækisins. Ferlið er byggt á ítarlegri greiningu á starfseminni, viðskiptaháttum og landfræðilegri starfsemi. Virðiskeðjan var kortlögð sem náði til Festi­samstæðunnar og þar með talið ELKO.

HEIMURINN OG SAMFÉLAGIÐ

TVÍÞÁTTA MIKILVÆGIS-

GREINING

Áhrif efnisleika

Áhrif ELKO á umhverfi og samfélag

Virðiskeðjur fyrirtækja geta verið mjög flóknar og með mörgum milliliðum. Hún hefst með hráefnisöflun, síðan fer fram hreinsun og framleiðsla vara, og að lokum flutningur. Rekstur Festi nær yfir viðskiptaferla og ­sölu, á meðan eftirfarandi þættir í virðiskeðjunni fela í sér notkun og neyslu vara hjá viðskiptavinum, auk úrgangsstjórnunar og endurvinnslu.

Greiningin tók til uppruna vara, þar sem metnir voru lykilbirgjar og aðrir hagsmunaaðilar í framleiðsluferlinu. Kortlagningin byggði á fyrirliggjandi innri gögnum, þ.m.t. á vöruframboði, sölu, þjónustu og starfssvæðum.

Greiningin var unnin í samræmi við ESRS aðferðafræðina þar sem áhersla var lögð á að greina helstu áhrifasvæði í virðiskeðjunni.

Við mat á IROs var notast við frumgögn til að greina raunveruleg áhrif og afleidd gögn til að varpa ljósi á möguleg áhrif. Hagsmunaaðilar komu að ferlinu með viðtölum og samtölum, þar sem fyrstu samskipti fóru fram við notendur sjálfbærniskýrslu Festi, þar á meðal við eigendur fyrirtækisins. Einnig tóku fulltrúar ELKO virkan þátt í staðfestingarferli DMA.

Fjárhagsleg efnisatriði Loftslags­ og sjálfbærniáhrif á ELKO

Áframhaldandi hagsmunaaðilagreining er fyrirhuguð, þar á meðal varðandi nánari samskipti við fulltrúa starfsfólks og viðskiptavini.

Mikilvægisgreiningin skilaði mikilli þekkingu til Festi á áhrifum og áhættu en sérstaklega tækifærum fyrirtækisins. Hún verður notuð til að tryggja samkeppnishæfni ELKO og systurfélaga og er vegvísir til að draga úr áhrifum í allri virðiskeðjunni.

Annað árið í röð hlaut Festi næsthæstu (veittu) einkunn í UFS sjálfbærnimati matsfyrirtækisins

Reitunar, þ.e. B1. samstæðan þykir þar að auki framúrskarandi þegar kemur að opinberri UFS upplýsingagjöf.

Þetta er 6. árið í röð sem félagið ræðst í slíka úttekt og

hefur smám saman verið að bæta árangurinn þótt kröfur matsins herðist ár frá ári. Í ár fóru 43 íslensk fyrirtæki í gegnum matið en aðeins 6 komust í hærri flokk en Festi (A3).

SVANSVOTTUÐ RÆSTINGARÞJÓNUSTA

ELKO er umhugað um að umhverfisvottuð hreinsiefni séu notuð við þrif hjá fyrirtækinu og hefur ræstingarþjónusta, sem vottuð er með norræna gæða­ og umhverfismerkinu Svaninum, séð um þrif hjá fyrirtækinu frá árinu 2010.

4.0

FÉLAGSLEGIR ÞÆTTIR

ÁNÆGJA VIÐSKIPTAVINA

Stefna ELKO og framtíðarsýn er skýr: að eiga ánægðustu viðskiptavini á raftækjamarkaði.

ÁNÆGJA VIÐSKIPTAVINA

SKIPTIR OKKUR ÖLLU MÁLI

ELKO leggur upp úr því að veita framúrskarandi þjónustu og mælir ánægju viðskiptavina í rauntíma alla daga.

Mælingin „Happy or not“ er notuð til að mæla ánægju þeirra sem geta svarað því hvernig þeim fannst þjónustan á leið sinni úr verslun með því að gefa bros­ eða fýlukarl, einnig er hægt að skilja eftir opin svör ef viðskiptavinir kjósa svo.

Stjórnendur ELKO vakta ánægjumælingar daglega og ef þjónustufall verður eru viðeigandi ráðstafanir gerðar. Til þess að eiga ánægðustu viðskiptavinina eru þessar ánægjumælingar ELKO dýrmætar.

Niðurstöður úr þjónustukönnunum

2023 2024 2025

VILJUM ALLTAF GERA BETUR

Þjónustukönnun er framkvæmd árlega þar sem viðskiptavinir eru spurðir út í upplifun þeirra af verslun og þjónustu ELKO, ásamt tryggð þeirra við fyrirtækið. ELKO er stolt af því hversu ánægðir viðskiptavinir eru með þjónustuna og tryggð þeirra við fyrirtækið.

„MEÐ ÓTRÚLEGRI TÆKNI HJÁLPUM VIÐ ÖLLUM AÐ GERA

LÍFIÐ BETRA, ÞÆGILEGRA OG ÁNÆGJULEGRA“

Væntingar þjónustu og upplifun þeirra sem versluðu í ELKO

ÞJÓNUSTUKANNANIR SENDAR Á VIÐSKIPTAVINI

Á árinu var tekin upp sú nýjung að senda þjónustukannanir á viðskiptavini út frá erindi í þjónustuveri eða eftir að viðgerðarferli vöru lýkur. Viðskiptavinir ELKO fá einnig tækifæri til að svara þjónustukönnun í verslun. Niðurstöður þessara kannana sýna að ELKO veitir framúrskarandi þjónustu á öllum sínum vígstöðum. Neikvæðar niðurstöður eru yfirfarnar af viðskiptavinaráði með því markmiði að koma auga á tækifæri til umbóta.

Ánægja með viðgerðarbeiðnir 2025 78,3%

Ánægja með þjónustuver 2025

Heildarupplifun

MARKAÐI SAMKVÆMT ÍSLENSKU ÁNÆGJUVOGINNI

ELKO er stoltur handhafi gullmerkis Íslensku ánægjuvogarinnar 2025. ELKO var efst raftækjaverslana með 77,1 stig og er þetta í fyrsta skipti sem marktækur munur mælist varðandi ánægju viðskiptavina ELKO og þeirra sem á eftir koma. ELKO hefur undanfarin fimm ár, eða frá 2020, unnið eftir framtíðarsýninni að eiga ánægðustu viðskiptavinina. Áhrif þessarar stefnu hafa verið skýr, allir mælikvarðar eru upp á við

Ánægjuvogin á raftækjamarkaði

Samkeppnisaðili ELKO

hvort sem þeir snúa að ánægju viðskiptavina, starfsfólks eða rekstri. ELKO hefur einsett sér það markmið að halda áfram, gera enn betur og viðhalda þessari mikilvægu mælingu. ELKO var ofarlega meðal smásala og mældist í fjórða sæti.

Niðurstöður ánægjuvogarinnar 2025: Í flokki allra smásöluverslanna

TRAUSTIR RÁÐGJAFAR

Hlutverk starfsfólks að vera traustir ráðgjafar er skýrt í stefnu ELKO. Traustir ráðgjafar tengjast strax inn í ferlið og þurfa að hafa loforðin að leiðarljósi svo félagið geti náð framtíðarsýn sinni og uppfyllt tilgang félagsins þar sem ramminn er skýr og skiptist í þrjá flokka: viðmót, aðgerðir og upplifun. Markmið ársins var að 95% starfsfólks teldi sig vera trausta ráðgjafa. Það markmið náðist ekki alveg en rúmlega 93% starfsfólks taldi sig vera traustan ráðgjafa og var aukningin um tæp 7% stig frá árinu áður.

ÞJÓNUSTUVER VEX UM HRYGG

Áhersla á skýr hlutverk, gildi og stefnu gerir starfsfólki kleift að tengjast vörumerkinu djúpt og upplifa að það sé ómissandi hluti af árangri þess.

Þjónustuver ELKO hefur vaxið frá ári til árs síðan það var sett á laggirnar í ársbyrjun 2020. Erindum fjölgar með

hverju árinu og voru þau í ár rúmlega 106 þúsund sem er 13% aukning frá árinu áður. Þjónusturáðgjafar eru vel

þjálfaðir til að aðstoða viðskiptavini alla daga í gegnum alla helstu samskiptamiðla, síma, tölvupóst og netspjall.

Viðskiptavinaupplýsingakerfi ELKO er ætlað að bæta

þjónustuna og gerir starfsmönnum kleift að skrá og greina erindi viðskiptavina svo hægt sé að vinna betur úr þeim.

Fjöldi erinda í þjónustuveri: 2020­2025

Tilgangur upplýsingakerfisins er að stytta þjónustutímann og aðlaga þjónustuna að hverjum og einum. Starfsfólks telur sig vera

ELKO leggur mikla áherslu á stafræna

þróun til að bæta þjónustu og aðgengi fyrir viðskiptavini. Vefverslun elko.is er meðal stærstu söluvefja landsins og fer 29% af sölu

ELKO­verslana innan tollsvæðis í gegnum vefverslunina. Vefurinn nýtur mikilla vinsælda meðal landsmanna en samkvæmt rannsóknum heimsækja 83% vefinn árlega.

Á árinu fékk vefverslun elko.is mikla

upplyftingu eftir ítarlegar notendaprófanir.

Nýtt netspjall og símkerfi fyrir þjónustuver voru innleidd.

STAFRÆNN RÁÐGJAFI

ELKO hefur tekið í notkun nýjan stafrænan

ráðgjafa sem auðveldar viðskiptavinum að finna upplýsingar og lausnir. Ráðgjafinn

hjálpar til við val á raftækjum og lausnum út frá þörfum viðskiptavina.

Tæknin að baki er umfangsmeiri en þekkist í öðrum spjallmennum því stafrænn ráðgjafi ELKO byggir svör sín bæði á innri vöruupplýsingum og ytri gögnum til að hægt sé að koma til móts við flóknar fyrirspurnir og bregðast við ólíkum þörfum og aðstæðum hverju sinni.

Stafrænn ráðgjafi ELKO nýtir vefinn á nýjan hátt og einfaldar hlutina fyrir viðskiptavini. Hann veitir persónulega og skilvirka aðstoð, hvort sem fyrirspurnir varða heimilistæki,

tölvubúnað eða snjalltæki og styður við þjónustu okkar í netviðskiptum, þannig að fólk fái alltaf áreiðanlega ráðgjöf þegar því hentar. Ráðgjafinn svarar í rauntíma og nýtir gervigreind til að greina þarfir og kröfur viðskiptavina og kemur með tillögur sem byggja á raunverulegum forsendum, til dæmis hvort ákveðin stærð sjónvarps henti rými og fjárhagsáætlun gerð hvaða tölva hentar best. Stefnan er að nýta tæknina til að bæta þjónustuna, ekki til að breyta núverandi þjónustu. Stafræni ráðgjafinn vinnur þannig við hlið starfsfólks og auðveldar viðskiptavinum að taka upplýstar ákvarðanir, hvar og hvenær sem er.

Stafrænn ráðgjafi er nú þegar í boði á vef ELKO fyrir innskráða notendur og verður þróaður áfram með nýjum tólum og virkni sem bætist við eftir því sem tæknin þróast. Með þessu stígur ELKO næsta skref í að samþætta gervigreind við þjónustu sína.

Festi, móðurfélag ELKO, hlaut nafnbótina UTfyrirtæki ársins 2025 í flokki stærri fyrirtækja á Upplýsingatækniverðlaunum Ský.

Festi og dótturfélög þess, Krónan, N1, Elko og Lyfja, hafa lagt mikla áherslu á að nýta snjallar lausnir til að bæta enn frekar þjónustu hjá félögum samstæðunnar og einfalda daglegt líf viðskiptavina.

STAÐSETNINGARKERFI Í VERSLUNUM

Til að auðvelda viðskiptavinum að finna hvar vara er staðsett í verslun er hægt að finna staðsetningarkerfi vara inn á elko.is þar sem viðskiptavinir geta séð í rauntíma hvar vara er staðsett í verslun í gegnum kort og látið stafrænan verðmiða blikka til að finna réttu vöruna.

ELKO býður upp á þá þjónustu að allir landsmenn hafi aðgang að sömu vörum hvort sem varan er til í verslun eða vefverslun. Ef vara er uppseld í vefverslun er hún frátekin fyrir viðskiptavin í þeirri verslun þar sem hún er fáanleg. Með þessu næst hagkvæmari dreifing og þar af leiðandi minni losun út í andrúmsloftið.

Með stöðugri framþróun í stafrænum lausnum heldur ELKO áfram að þróa sterka vefverslun sem býður upp á hraða, þægilega og persónulega þjónustu fyrir einstaklinga jafnt sem fyrirtæki.

Á elko.is er prófkúruhöfum fyrirtækja veittur sá möguleiki að sækja um reikningsviðskipti, stýra úttektaraðilum, skilgreina heimildir og hafa yfirsýn yfir kaupnótur, allt á einum stað. Þessi lausn hefur stórbætt þjónustu við þau rúmlega 20 þúsund fyrirtæki sem versla árlega hjá ELKO.

Nú þegar hafa yfir 5.000 fyrirtæki skráð sig í viðskipti í gegnum elko.is

ELKO dreifir um allt land

Viðskiptavinir ELKO geta fengið vörur sendar út um allt land og hafa úr mörgum afhendingarmöguleikum að velja. Í boði er að senda vörur með Dropp á fjölda N1 stöðva og í afhendingarbox

víða um land. Einnig er í boði að fá heimsendingu á stórum heimilistækjum.

Árið 2025 var metár í dreifingu pantana en ELKO dreifði

rúmlega 118 þúsund pöntunum á árinu sem er rúmlega 15%

aukning á milli ára.

Fyrir utan ELKO í Lindum er fyrirtækið með sitt eigið afhendingarbox fyrir pantanir úr vefverslun sem er opið allan sólarhringinn.

ELKO DREIFIR SJÁLFT

ELKO Skutlan, rafknúin flutningabifreið var tekin í notkun á árinu samhliða sendibíl. Skutlan sinnir flutningi á neytendapöntunum milli vöruhúss og verslana og hluta af akstri tækja í viðgerð. Tilgangurinn að bæta við þessari flutningabifreið er sá að bæta þjónustu við viðskiptavini og koma vörum hratt og örugglega í verslanir. ELKO rekur einnig stærri flutningabifreið sem sér um að sækja og senda tæki sem eru í viðgerðarferli.

ALLT Í EINU

ELKO, í samstarfi við samstarfsfyrirtækið Herra Snjall, býður upp á tækniþjónustu og uppsetningu í heimahúsum á höfuðborgarsvæðinu. Á árinu var boðið upp á heildarpakka í heimsendingarþjónustu. Í þjónustunni felst heimsending á vöru, uppsetning og förgun á eldri vöru og umbúðum. Í þessu felst að tæki eru sett upp af fagmönnum og umbúðum og eldri tækjum komið áfram til ábyrgrar endurvinnslu. Eins sparar þessi þjónusta bílferðir þar sem akstur og uppsetning voru áður aðskilin þjónusta.

ÁBYRG ÞJÓNUSTA OG EFTIRKAUPAÞJÓNUSTA

Markmið ELKO er að bjóða bestu eftirkaupaþjónustu

á raftækjamarkaði og var þjónustupantanakerfið

Golíat innleitt til að styðja við þá vegferð. Kerfið heldur utan um eftirkaupaþjónustumál og hefur

vaxið fiskur um hrygg frá innleiðingu og hjálpað

okkur að bæta þjónustu og draga úr sóun. Notkun kerfisins gefur fyrirtækinu betri yfirsýn yfir skipulag og fjölda tækja í viðgerð. Golíat sendir viðskiptavinum reglulega stöðufærslu af vöru í viðgerð og hefur það skilað sér bæði í betra utanumhaldi á öllum tækjum í viðgerðarferli sem og aukinni ánægju hjá starfsfólki og viðskiptavinum.

ELKO býður upp á lengri skilafrest á vörum en söluaðilar gera almennt til þess að tryggja öflugt þjónustustig og lengri líftíma raftækja með því að tryggja að viðskiptavinir hafi valið rétt.

SAMSTARF VIÐ YFIR 60 VERKSTÆÐI UM ALLT LAND

ELKO á í samstarfi við um 60 verkstæði um allt land sem sinna viðgerðum á raftækjum. Til að styrkja enn frekar viðgerðarferlið rekur ELKO sérstakan viðgerðarlager sem er eingöngu ætlaður til að hýsa vörur í viðgerðarferli. Þessu til viðbótar rekur ELKO flutningabíl til að sjá um akstur milli verkstæða og til viðskiptavina sem stóreykur þjónustustig og minnkar viðgerðartíma. Viðskiptavinir sem flytjast búferlum innan Norðurlandanna geta fengið vöruþjónustu í gegnum samstarfsaðila ELKO. Öflug eftirkaupaþjónusta eykur líkur á lengri líftíma vara og dregur þar með úr sóun.

ELKO býður upp á sjö ára ábyrgð á stórum heimilistækjum frá vörumerkinu EPOQ til viðskiptavina í stað tveggja ára. Neytendaábyrgðin er ein sú besta á Íslandi á sjálfbærum vörum á viðráðanlegu verði sem framleiddar eru undir ströngum skilyrðum.

FJÁRTÆKNILAUSN

ELKO hefur tekið í notkun nýja fjártæknilausn undir heitinu

ELKO­snjallgreiðslur og er því fyrsta íslenska verslunin til að veita slíka þjónustu. Um er að ræða fjármögnunarleið sem gerir viðskiptavinum kleift að fjármagna kaup sín á einfaldan, öruggan og sveigjanlegan hátt á hagstæðum kjörum.

Snjallgreiðslur ELKO eru sams konar fjármögnunarleið og félagið hefur boðið upp á í gegnum þriðja aðila til fjölda ára.

Lausnin er hönnuð með þarfir viðskiptavina í huga og mun bjóða upp á örugga og gagnsæja leið til að skipta greiðslum niður án flókins umsóknarferlis. Markmiðið er að gera stór og smá kaup aðgengilegri fyrir alla, hvort sem um er að ræða nýjan síma, tölvu, sjónvarp eða heimilistæki.

BROSTRYGGING

„Það sem skiptir þig máli, skiptir okkur máli“ er eitt af loforðum ELKO og er Brostryggingin því ein leið til að uppfylla loforð ELKO. Það sem fellur undir hana er meðal annars:

30 DAGA SKILARÉTTUR

Til að stuðla að ánægju viðskiptavina býður ELKO upp á 30 daga skilarétt. Ef viðskiptavinum líkar ekki varan geta þeir skilað henni og fengið inneign eða vöruna endurgreidda að fullu. Þetta á líka við um vörur þar sem umbúðir hafa verið fjarlægðar og þær prófaðar. Öllum skilavörum sem hafa líka verið prófaðar, er komið í sérstakan vöruflokk sem markaðssettur er sem „tækifæri“ og eru vörurnar þá seldar aftur á lækkuðu verði. Skilavörur fá því nýtt líf í höndum nýrra eigenda á kostakaupum.

FRAMLENGDUR SKILARÉTTUR

ELKO framlengir skilarétt á jóla­ og fermingargjöfum ár hvert. Venjulegur skilaréttur er 30 dagar en framlengdur skilaréttur er á jólagjöfum eða fermingargjöfum og getur hann verið yfir 100 dagar. Hjá ELKO er engum vörum sóað sem missa marks því skilavörur rata alltaf í hendur nýrra eigenda.

VERÐÖRYGGI

Lækki vara í verði hjá ELKO innan 30 daga frá kaupum í verslun geta viðskiptavinir haft samband og fengið mismuninn endurgreiddan að því gefnu að varan sé enn til í vöruúrvali. Verðöryggi gildir einungis um vörur sem keyptar voru í ELKO.

GJAFAKORT OG INNEIGNARNÓTUR

Ef viðskiptavinir fá gjafakort úr ELKO eða eignast inneign vegna vöruskila þá eiga þeir þá upphæð inni hjá fyrirtækinu. ELKO hefur í hávegum heiðarlega viðskiptahætti og því er enginn gildistími á inneignum eða gjafakortum. ELKO gaf út á árinu 2.520 gjafakort og um 14.451 inneignarnótur og er því mikilvægt að skilmálarnir séu hagstæðir fyrir viðskiptavini.

GJAFA- OG SKILAMIÐAR

Þegar viðskiptavinir ELKO kaupa gjöf er boðið upp á auðkennda gjafamiða til að auðvelda skil á vörum og gilda þá almennar reglur varðandi skilarétt. Rúmur skilaréttur á gjöfum stuðlar að ánægju viðskiptavina og tryggir að allar gjafir hitti í mark. Viðskiptavinir eiga því ekki að sitja uppi með vörur sem þeir ætla sér ekki að nota.

VERÐSAGA OG HAGSTÆTT VERÐ

ELKO leggur áherslu á traust og gagnsæi í viðskiptum og sýnir verðsögu allra vara á elko.is. Flettingar aukast með hverju árinu. Verðsagan sýnir verð á vöru frá því hún kemur í sölu til dagsins í dag, ef hækkanir verða eða vara fer á tilboð er það sérstaklega merkt í verðsögunni. Með þessu útspili sýnir ELKO það í verki að það sem skiptir viðskiptavini máli, skiptir okkur máli. Samkeppnishæfni er svo mæld reglulega og er skýrt markmið með verðstefnu að hagstæðasta verðið sé hjá ELKO.

VIÐBÓTARTRYGGING

Viðskiptavinir geta keypt viðbótartryggingu með langflestum vörum hjá ELKO. Viðbótartryggingin nær yfir óhöpp og tjón á tækjum sem heimilistryggingar ná oft ekki að bæta. Ekki skiptir máli hvort óhappið hafi átt sér stað heima eða á ferðalagi, viðbótartryggingin gildir um allan heim og er hægt að segja upp hvenær sem er á tímabilinu. Áður en kemur til útskipta þar sem skemmt tæki er bætt með nýju tæki er ávallt viðgerð reynd á skemmda tækinu. Þannig reynir ELKO að lengja líftíma raftækja og vernda umhverfið. Viðbótartryggingin nýtur mikilla vinsælda, en í dag eru um 57.500 virkra trygginga í gildi og á árinu var stofnað til 25.000 nýrra trygginga. Með þessari lausn veitir ELKO viðskiptavinum aukið öryggi, betri fjárhagslega vernd og stuðlar að sjálfbærari notkun raftækja.

JAFNVÆGISVOG FKA Í FJÖGUR ÁR

Fjórða árið í röð fékk ELKO Jafnvægisvog FKA fyrir jafnrétti á vinnustað. Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA) og var ELKO meðal 130 fyrirtækja sem hlutu viðurkenninguna í ár fyrir að hafa náð markmiði um jafnt kynjahlutfall í efsta lagi stjórnunar fyrirtækisins.

ELKO fékk í tilefni viðurkenningarinnar að planta tré í Jafnréttislundi og eru þá komin um 360 tré í lundinn.

Óttar Örn Sigurbergsson framkvæmdarstjóri ELKO fékk í tilefni viðurkenningar Jafnvægisvogarinnar tækifæri til að mæta í útvarpsviðtal á Rás 2 og tala um jákvæða hlið reksturs ELKO með auknum fjölbreytileika, meðal annars með jöfnun kynjahlutfalls.

FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI 11. ÁRIÐ Í RÖÐ

Það er virkilega eftirsóknarvert að skara fram úr. ELKO er stolt að greina frá því að fyrirtækið hefur hlotið viðurkenningu CreditInfo sem framúrskarandi fyrirtæki samfleytt frá árinu 2014.

Ásamt því leggur ELKO mikið kapp á að veita framúrskarandi þjónustu á öllum sviðum fyrirtækisins.

4X

Jafnvægisvog FKA viðurkenningar 2022 ­ 2024

2014 ­ 2024 10X

Framúrskarandi fyrirtæki Creditinfo

Á JAFNRÉTTI

Hjá ELKO starfa rúmlega 70 konur en mun fleiri karlmenn eða tæplega 220. Ein aðaláskorun fyrirtækisins er að jafna kynjahlutfallið og kynna ELKO sem skemmtilegan vinnustað sem hentar öllum kynjum. Unnið hefur verið markvisst að þessu með markaðsstarfi inn og út á við sem og að horfa til uppsetningar atvinnuauglýsinga svo þær laði að fjölbreyttari hóp umsækjenda. ELKO hefur fengið Jafnvægisvogina

síðustu þrjú ár fyrir jafnt kynjahlutfall í forstöðumannahópi en enn er langt í land með heildarmyndina.

Viðtal við forstöðukonur ELKO í tölublaði FKA blaðsins um vinnustaðinn.

VÖRUMERKI ÁRSINS 2025

Þetta er þriðja árið í röð sem ELKO er tilnefnt og jafnframt fjórða tilnefningin sem ELKO hlýtur til markaðsverðlauna Brandr.

Að þessu sinni er merki ELKO tilnefnt sem vörumerki ársins í flokki vörumerkja stærri vinnustaða en ELKO er handhafi þessarar viðurkenningar frá árinu 2024. Viðurkenningin fyrir árið 2025 verður veitt á fyrsta ársfjórðungi 2026.

Tilnefningin er frábær viðurkenning á því góða starfi sem unnið hefur verið að innan fyrirtækisins við að efla merki þess, sem byggir á sýnileika á markaði og góðu orðspori

jafnt meðal viðskiptavina, samstarfsfyrirtækja og hjá starfsfólki.

ELKO er í fararbroddi við innleiðingu margvíslegra nýjunga og aukinnar þjónustu á smásölumarkaði raftækja. Nægir þar að nefna hluti á borð við verðsögu, nýjar leiðir í fjármögnun kaupa og tækni sem leiðir viðskiptavini að vörum í hillu. Tilnefning Brandr er okkur hvatning til að halda áfram og gera enn betur.

ELKO

Fræðsla og þjálfun eru lykilatriði í að ELKO geti átt ánægðustu viðskiptavini á raftækjamarkaði í takt við framtíðarsýn. ELKO er með virka fræðslustefnu og á hverju ári er starfsfólki kynnt fræðsluáætlun sem birt er fram í tímann.

TILGANGUR FRÆÐSLUSTEFNU ER AÐ SKAPA

ELKO hefur ávallt lagt mikla áherslu á að veita framúrskarandi þjónustu og stuðla að ánægjulegri upplifun viðskiptavina. Fræðslustefna ELKO endurspeglar þessa áherslu með því að skapa öflugan hóp traustra ráðgjafa sem eru tilbúnir að fræða og aðstoða viðskiptavini á hverjum degi. Stefnan inniheldur skýra framtíðarsýn og markmið um að starfsfólk telji sig vera trausta ráðgjafa á raftækjamarkaði og hafi góð tök á sínu starfi.

Með markvissri fræðslu og þjálfun skapar

ELKO umhverfi þar sem starfsfólk fær tækifæri til að gera líf viðskiptavina betra, þægilegra og ánægjulegra.

SKIPULÖGÐ OG MARKVISS FRÆÐSLA Í ELKO

Hjá ELKO starfa um 290 einstaklingar og er markmiðið að allt starfsfólk sé vel upplýst um fyrirtækið, vörur og þjónustu, verkferla og til hvers er ætlast af þeim í starfi. Á hverju ári eru nýliðar þjálfaðir og starfsfólk bætir við sig þekkingu. Í hverjum mánuði kemur fram á sjónarsviðið ný tækni og er líftími raftækja í sölu skemmri en tólf mánuðir að jafnaði. Því þarf öflugt fræðslustarf til að viðhalda þekkingunni, en hluti hverrar vinnuviku er helgaður fræðslu, sem miðar meðal annars að því að kynna nýjar vörur og skerpa á þekkingu. ELKO á í farsælu sambandi við innlenda og erlenda vörubirgja og umboðsaðila sem og sölunámskeið.

ELKO GETUR GEFIÐ STARFSFÓLKI

EININGAR Í FRAMHALDSSKÓLA

ELKO býður upp á að vera milliliður fyrir starfsfólk sem óskar eftir náms­ og/eða starfsráðgjöf. Starfsfólki er boðið upp á að fara í raunfærnimat sem er staðfesting og mat á færni einstaklingsins. Matið gerir færni og þekkingu sýnilega með því að meta hana á móti formlegu námi eða kröfum atvinnulífsins.

Hann er hannaður með mikilvægi fræðslu og áhuga starfsfólks í huga, en í grunninn snýst fræðslustarfið um að tryggja starfsfólki greiðan aðgang að upplýsingum og að það fái stuðning jafnt í starfi sem starfsþróun. Í fræðslupakkanum er ótalin öll sú fræðsla út á við sem ELKO sinnir gagnvart viðskiptavinum.

Nemendur geta fengið raunfærnimatið metið til eininga á móti kenndum áföngum á framhaldsskólastigi. Einstaklingar með starfsreynslu og hæfni fá matið metið til eininga og styttingar á námi til stúdentsprófs eða fagnáms verslunar og þjónustu. Í mannauðsdeild ELKO er vottaður matsmaður sem sótti námskeið hjá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins og hefur því leyfi til að stýra raunfærnismatsviðtölum.

ELKO fagnar og viðurkennir námsárangur. Þegar starfsfólk

útskrifast úr námi fær það útskriftargjöf sem samanstendur blómvendi úr verslunum ELKO.

Þessi viðurkenning stendur öllu starfsfólki til boða, óháð

NÝLIÐAMÓTTAKA

ELKO vill að starfsfólk viti frá upphafi til hvers er ætlast af því og að það geti mætt þeim kröfum. Starfsfólk fær nýliðakynningu og í kjölfarið tekur við starfsþjálfun. Með skýru ferli fyrir nýráðið starfsfólk er ELKO betur í stakk búið til að tryggja jákvæð tengsl við nýliðana og þar gegna starfsþjálfarar lykilhlutverki. Þeir veita félagslegan stuðning sem miðar að því að nýliðar kynnist starfsfólki og félagslífinu fyrr sem dregur úr óöryggi og kvíða sem gerir oft vart við sig í nýju starfi.

FRÆÐSLA

Starfsfólk ELKO hefur aðgang að víðtæku fræðslusafni Akademías sem býður upp á námskeið fyrir framlínufólk, skrifstofufólk og stjórnendur fyrirtækja. ELKO er einnig skráð í Stjórnvísi og Dokkuna þar sem áhugaverðir fyrirlestrar eru í boði fyrir starfsfólk til að bæta við sig þekkingu.

Hef nýtt mér rafræna fræðslu síðustu 12 mánuði

Já Nei

SAMSKIPTAKERFI

Á árinu var tekið upp nýtt samskiptakerfi Workvivo hjá öllum félögum innan móðurfélags Festi. Nýja samskiptakerfið var tekið upp til þess að tryggja gott upplýsingaflæði innan samsteypunnar. Þar er haldið utan um samskipti starfsfólks, viðburði, fréttir og aðrar nytsamlegar upplýsingar.

Finnst þér þú hafa fengið nauðsynlega fræðslu eða þjálfun til að sinna starfi þínu í dag?

Já Nei

FRÆÐSLUMÆLINGAR

Það skiptir ELKO miklu máli að starfsfólk fái vettvang til að koma mati á þjálfun sinni á framfæri, þar sem félaginu er gert kleift að bæta fræðslustarfið enn frekar.

Þjálfun, námskeið og fræðsla eru metin út frá ánægju og notagildi, og niðurstöður mælinga ásamt opnum svörum úr könnunum eru nýttar til að bæta þá þætti sem þarfnast úrbóta. Auk mælinga á gæðum og ánægju með fræðslu er einnig litið til árangurs ákveðinna átaksverkefna.

Hef fengið nauðsynlega þjálfun til að sinna mínu starfi:

Í vinnunni fæ ég hvatningu til að nýta þá þjálfun og fræðslu sem ég hef sótt mér:

Í vinnunni fæ ég tíma til þess að bæta þekkingu mína (ELKO skólinn, elko.is, YouTube, rting.com o.s.frv.):

Hversu vel eða illa finnst þér almennt staðið að þjálfun og fræðslu á vinnustaðnum?

FRÆÐSLUÁRIÐ

GERT UPP

ELKO lagði ríka áherslu á fræðslu og starfsþróun á árinu. Fyrirtækið styrkti átta starfsmenn í námi sínu og hélt tólf nýliðanámskeið fyrir 33 nýliða. Þá sendi ELKO 26 fulltrúa á Campus, stærstu raftækjaráðstefnu Norðurlandanna, þar sem starfsfólk fékk dýrmæta innsýn í nýjustu tækni, átti samtöl við vöruframleiðendur og aflaði sér nýrrar þekkingar.

Fræðsla um vörur var í algjörum forgangi. Alls voru haldin 72 fræðsluerindi á árinu, þar af voru 56 erindi vörutengd, en sú fræðsla náði yfir fjölbreytt svið og fór fram vikulega.

Vörustjórar félagsins sömdu reglulega vörufræðslu sem þeir, ásamt þjálfurum, miðluðu til starfsfólks í staðkennslu.

Fræðslan var jafnframt hýst í ELKO­skólanum, þar sem hún var aðgengileg hlutastarfsfólki og öðrum sem ekki áttu kost á að sækja staðkennslu.

Samhliða þessu var unnið markvisst að uppfærslum á

öryggisnámskeiðum með tilkomu eftirlitsdeildar ELKO. Þar var lögð sérstök áhersla á þjófnað og ógnandi tilburði gegn starfsfólki. Jafnframt fengu stjórnendur

ný tól og verkfæri til að styrkja heilbrigð samskipti, efla samningatækni og samræma sýn félagsins til framtíðar.

GRÆJUHORNIÐ Í BÍTINU

ELKO-BLOGGIÐ

Fræðsla er ómissandi hluti af starfsemi ELKO og lykillinn að framúrskarandi þjónustu og faglegri ráðgjöf til viðskiptavina. Með stöðugri þekkingaröflun tryggir ELKO

að starfsfólk sé vel undirbúið til að takast á við nýjungar í tækniheiminum sem gerir lífið betra, þægilegra og ánægjulegra.

ELKO kostar græjuhorn í Bítinu á Bylgjunni alla fimmtudagsmorgna en Bítið er einn vinsælasti útvarpsþáttur landsins. Markmið þess er að fræða hlustendur um áhugaverðar vörur og benda á notkunarmöguleika og hagnýt atriði, sem hjálpa viðskiptavinum að velja réttu vörurnar og bætir notkun þeirra á tækjunum. Innslagið í þáttunum er einnig nýtt til þess að leggja enn frekari áherslu á markaðs­ umhverfisog sjálfbærnimál.

YFIR 75 FÆRSLUR

SKRIFAÐAR Á

ELKO heldur úti bloggsíðu þar sem haldið er utan um upplýsingar og fréttir um raftæki sem passa ekki í vörulýsingu á elko.is. Bloggið miðar að því að miðla fræðslu um raftæki, eiginleika þeirra og notkun með það að markmiði að hjálpa neytendum að finna réttu vöruna sem hentar þeirra þörfum sem og að bæta nýtingu og auka líftíma vara.

Um 75 færslur voru skrifaðar á árinu og fékk bloggið vel yfir 80.000 heimsóknir á árinu 2025. Langtímamarkmiðið er að koma blogginu yfir á vef elko.is þannig að viðskiptavinir geti nálgast allar vörutengdar upplýsingar og fréttir á einum stað.

SÆKIR SÉR ÞEKKINGU

Í hröðum heimi tækninýjunga í raftækjum hefur ELKO lagt

mikið upp úr því að halda starfsfólki sínu vel upplýstu um þær vörur og tækninýjungar sem fyrirtækið hefur upp á að bjóða.

Á árinu sendi félagið 26 aðila á stærstu raftækjaráðstefnu

Norðurlandanna sem haldin er af Elkjöp í Noregi en ELKO fær boð

á ráðstefnuna ár hvert í gegnum vörumerkjasamning sinn við samsteypuna. Einnig fór starfsfólk á bæði CES­raftækjasýninguna í

Las Vegas sem og IFA­sýninguna í

STÆRSTU RAFTÆKJARÁÐSTEFNUR NORÐURLANDANNA, EVRÓPU

Berlín. Á þessum ráðstefnum fékk starfsfólk tækifæri til að kynna sér nýjar vörur, tækninýjungar og sækja sér fræðslu.

Það sem stóð einna helst upp úr fyrir starfsfólk ELKO á

OG BANDARÍKJANNA HEIMSÓTTAR Á ÁRINU ráðstefnunni er sú áskorun sem raftækjaframleiðendur standa frammi fyrir í umhverfismálum og gervigreind. Lykiláhersla raftækjaframleiðenda til framtíðar er að leggja áherslu á lengri líftíma tækja sem og viðgerðar­ og endurvinnsluhæfni þeirra ásamt því að nýta sér gervigreind til að minnka sóun og auka gæði.

LÍFSHLAUPIÐ

HEILSA OG ÖRYGGI

ELKO hvetur starfsfólk til að hreyfa sig og tóku verslanir og skrifstofa þátt í Lífshlaupinu árið 2025 sem er heilsuog hvatningarverkefni Íþrótta­ og Ólympíusambandsins.

Verkefnið stendur yfir í þrjár vikur í febrúar ár hvert.

ELKO var í 18. sæti í sínum flokki. Verðlaun voru veitt því starfsfólki sem var með flestar skráðar mínútur, bæði yfir fyrirtækið allt og á hverri starfsstöð.

STARFSFÓLK HVATT TIL HREYFINGAR

ELKO hvetur starfsfólk sitt til að stunda hreyfingu og í hverri viku stendur starfsfólki annars vegar til boða að mæta í tíma með þjálfara í líkamsræktarstöð eða innanhússfótbolta.

REYKJAVÍKURMARAÞON

Starfsfólk ELKO tók þátt í Reykjavíkurmaraþoninu og fengu allir sem vildu hlaupabelti, sokka, gleraugu og hlaupaboli. Hlaupnir voru samtals 404 kílómetrar og styrkti ELKO málefni allra hlaupara um 20.000 krónur, að heildarupphæð 500.000 kr.

VELFERÐARPAKKINN

ELKO er annt um að starfsfólk sitt rækti

bæði andlega sem og líkamlega heilsu og

býður fyrirtækið upp á velferðarpakka sem

styður við heilbrigt líferni. Starfsfólki býðst

að fá margs konar þjónustu niðurgreidda, til

að mynda með íþróttastyrk, sálfræðitíma,

hjónabandsráðgjöf og fleira. Allt nýtt starfsfólk

er kynnt fyrir velferðarpakkanum og eru allir

reglulega minntir á yfir árið að nýta sér það

sem í boði er.

VELFERÐARPAKKI ELKO

INNIHELDUR MEÐAL ANNARS:

Sálfræðiráðgjöf

Íþróttastyrkur

Siðferðisgáttin

Starfslokanámskeið

Sálfræðiráðgjöf

Sjúkraþjálfun

Áfallahjálp

Næringarráðgjöf

Lífsstílsráðgjöf

Hjónabandsráðgjöf

Uppeldisráðgjöf

Streituráðgjöf

Markþjálfun

HAM námskeið

ÖRYGGI ER Í FYRIRRÚMI

Annað hvert ár er öryggismánuður þar sem lögð er áhersla á að framkvæma áhættumat verslana ásamt því að haldin eru ýmis námskeið sem varða lýðheilsu, skyndihjálp, líkamsbeitingu og öryggisatriði. Tveir öryggisfulltrúar eru í starfi hjá ELKO í ljósi aukins þjófnaðar, til að tryggja öryggi starfsfólks og koma í veg fyrir þjófnað. Öryggisfulltrúar sjá reglulega um öryggisfræðslu og er fræðsluþörf mæld reglulega.

SAMSKIPTASÁTTMÁLINN

ELKO er með samskiptasáttmála sem snýr að því að starfsfólk sýni ábyrga hegðun á netinu þegar kemur að umtali tengt fyrirtækinu, viðskiptavinum eða samstarfsfólki. Sáttmálinn setur skýrar línur hvað eigi ekki heima á netinu. Einnig eru skýrar verklagsreglur hvernig fjölmiðlum skuli svarað svo það fari rétt skilaboð frá félaginu og tímanlega.

ÁVEXTIR OG HOLLUR HÁDEGISMATUR

ELKO styður við heilbrigðan lífsstíl og heilbrigt mataræði hjá sínu starfsfólki. Á öllum starfsstöðvum ELKO er starfsfólki boðið upp á niðurgreiddan hádegismat, auk

þess sem því stendur til boða að fá sér millimál í formi ávaxta og heilsustanga. Á árinu niðurgreiddi ELKO um 17.000 matarskammta handa starfsfólki sínu.

EINELTI, KYNBUNDIÐ ÁREITI, KYNFERÐISLEG ÁREITNI OG OFBELDI

ÁRLEG HEILSUFARSSKOÐUN

OG FLENSUSPRAUTA

Á hverju ári stendur starfsfólki til boða að fara í einfalda heilsufarsskoðun á sinni starfsstöð. Hjúkrunarfræðingur frá Heilsuvernd mælir púls og blóðþrýsting ásamt því að gerð er blóðfitumæling og blóðsykursmæling. Í viðtali hjúkrunarfræðings er m.a. komið inn á almenna líðan og heilsufar og áhættuþætti. Hjúkrunarfræðingur veitir ráðgjöf og fræðslu vegna heilsufars­ og/eða lífsstílsvandamála eftir aðstæðum og niðurstöðum mælinga.

Markmið heilsufarsskoðunar er að veita hverjum einstaklingi innsýn í eigin heilsu sem getur í sumum tilfellum stuðlað að snemmbæru inngripi í heilsufarsvandamál. Fjölmargir starfsmenn fara í skoðun á hverju ári sem hefur verið árangursríkt.

Árlega er svo starfsfólki gefið tækifæri á að fá flensusprautu til að varna óþarfa veikindum.

ELKO vill vera til staðar fyrir starfsfólk sitt upplifi það einelti eða kynferðislega áreitni á vinnustað. Sett var upp viðbragðsáætlun og ef starfsfólki finnst brotið á sér í starfi getur það tilkynnt tilfellið til næsta yfirmanns, mannauðsdeildar eða beint til Siðferðisgáttarinnar sem er öruggur vettvangur fyrir starfsfólk þar sem óháður aðili tekur á málinu. Á árinu var kynning frá Auðnast sem fræddi starfsfólk og stjórnendur um EKKO­viðmið á vinnustað til að leggja grunn að sálfélagslegu öryggi starfsfólks.

Matarskammtar niðurgreiddir til starfsmanna 2025 Starfsmanna vita hvernig á að tilkynna einelti, áreiti o.fl. 2025 17.000 86%

VEIKINDI OG VIÐBRAGÐ

Veikindahlutfall: 2018

Eitt af markmiðum ársins 2025 var að lækka veikindahlutfall starfsfólks í 3,5%. Reynt var eftir fremsta megni að koma í veg fyrir veikindi með fjölmörgum forvarnaraðgerðum til að efla andlega og líkamlega heilsu. Fylgst er grannt með veikindahlutfalli starfsfólks og brugðist við án tafar þegar viðvörunarmerki sjást. Stjórnendur bregðast skjótt við með samtali við starfsmann þar sem boðið er upp á stuðning með velferðarpakka ELKO eða aðstoð ráðgjafa frá Heilsuvernd.

Til að styrkja stjórnendur í fjarverusamtölum var boðið upp á ráðgjöf í samstarfi við Mental með vinnustofu ásamt tveimur handleiðslum sem eftirfylgni. Á námskeiðinu var farið yfir hvað gekk vel og hvað mætti gera betur.

ELKO reynir að bjóða upp á heilsusamlegt starfsumhverfi þar sem starfsmenn upplifa jákvæðan starfsanda og ánægju í vinnu.

ELKO er virkur þátttakandi í samfélaginu og starfar samkvæmt skýrri stefnu um samfélagslega ábyrgð. Styrkveitingar fyrirtækisins eru hluti af því starfi og styður við hlutverk fyrirtækisins um að hjálpa öllum að njóta ótrúlegrar tækni sem gerir lífið betra, þægilegra og skemmtilegra. Um leið er eitt af loforðum ELKO uppfyllt um að það sem skipti þig máli, skipti okkur máli.

STYRKTARSJÓÐUR ELKO

Verkefni tengd styrktarsjóði ELKO hjálpa öllum að njóta ótrúlegrar tækni. Áhersla er lögð á styrkveitingar í formi raftækja þar sem málefni sem nýtast fleirum en færri eru sett í forgang.

Viðskiptavinir jafnt sem starfsfólk fá að kjósa um styrktarmálefni sem stendur því nærri á elko.is undir yfirskriftinni „Viltu gefa milljón“.

Fjögur þúsund manns tóku þátt í könnuninni á elko.is og það málefni sem flestir viðskiptavinir vildu styrkja um eina milljón var Ljósið. Forstöðumenn ELKO afhentu Ljósinu styrkinn og fengu að kynnast því faglega og mikilvæga starfi sem Ljósið sinnir.

Starfsfólk ELKO styrkti ellefu málefni; kvennaathvarfið, MS­félagið, Slysavarnarfélagið Landsbjörg, Barnaspítala Hringsins, Neistann, Minningarsjóð Bryndísar Klöru, Stígamót, Villiketti, Konukot, Gleim mér ei og Þúfuna.

ELKO er stoltur endursöluaðili Bleiku slaufunnar og árið 2025 seldust slaufur fyrir 1.350.000 krónur í bleikri viku í verslunum ELKO. Á bleikum dögum renna einnig 10% af söluvirði valdra bleikra vara til Bleiku slaufunnar. ELKO tekur einnig þátt í Mottumars og seldust sokkar fyrir tæpa 1.000.000.

Barnaspítali Hringsins Kæliskápar í herbergi

Menntasjóður Mæðrastyrksnefndar Tölva

Nýsköpunarkeppni grunnskólanna Gjafakort

Ýmis málefni tengd Reykjavíkurmaraþoni

500.000 kr.

STARFSÁNÆGJA OG MANNAUÐUR

ELKO ER ANNT UM STARFSFÓLK SITT VIÐBURÐIR OG SKEMMTANIR

Mikilvægasti auður ELKO er starfsfólkið. Hjá fyrirtækinu starfa 290 einstaklingar. Áhersla er lögð á faglegt ráðningarferli og er stefna

ELKO að gæta jafnréttis og að starfsfólki sé ekki mismunað vegna kyns, aldurs, uppruna, trúar eða annarra þátta. ELKO er með jafnlaunastefnu og jafnréttisstefnu og hvetur öll kyn til að sækja um auglýst störf.

ELKO leggur upp úr því að gera sér dagamun fyrir starfsfólk og þjappa hópnum betur saman. Á hverju ári er jólahlaðborð, óvissuferð, árshátíð, uppskeruhátíð og stefnumót. Einnig er haldið upp á öskudaginn, bóndadaginn, konudaginn og kváradaginn. Stjórnendur fá fjármagn og eru hvattir til að taka hádegismat með sínu lykilfólki, a.m.k. einu sinni á ári til að kynnast betur og efla vinskapinn. Enn fleiri viðburðir eru haldnir á vegum starfsmannafélagsins Festival, sem dæmi má nefna golfmót, bingó, píla, jólaball og fjölskyldudagur.

DÆMI UM VIÐBURÐI:

Golfmót Festival

Frisbígolfmót Festival

Páskabingó Festival

Partípíla ELKO

Hrekkjavökupartí ELKO

ELKO-LAN og tölvuleikjamót

Jólaball Festival

Fjölskyldudagur Festival

Lagt erupp úrþví að veita starfsfólki tækifæri til starfsþróunar og hefur margt starfsfólk byrjað í hlutastarfi og unnið sig upp í stjórnendastöður. Þar má nefna að 78% stjórnenda hafa náð að vinna sig upp í fyrirtækinu. Starfsaldur er líka hár hjá fyrirtækinu miðað við verslunarrekstur en um 27% hafa starfað lengur en fimm ár hjá félaginu.

RÁÐNINGARFERLI

Lagt er upp úr faglegu ráðningarferli og aðstoðar mannauðsdeild stjórnendur að tryggja skilvirkt og faglegt ferli. Til að laða að fjölbreyttan hóp umsækjenda eru notaðar auglýsingar sem höfða til flestra og staðlaður spurningalisti notaður í atvinnuviðtölum til að tryggja sanngirni meðal umsækjenda.

Ég fékk spjall á síðustu 30 dögum > Ánægja 2025 2024

Hef ekki fengið 15 mín. 1:1 spjall Hef fengið 15 mín. 1:1 spjall

VIRKT SAMTAL STJÓRNENDA OG STARFSFÓLKS

ELKO er samheldinn vinnustaður þar sem góð vinnustaðamenning ríkir. Áhersla er lögð á að allir hafi rödd og að

Óútskýrður launamunur kynjanna

SÖMU LAUN FYRIR SÖMU STÖRF

ELKO er með jafnlaunavottun og er áhersla lögð á að greiða jöfn laun fyrir jafn verðmæt störf óháð kyni.

Framkvæmd er launagreining á ári hverju til að sjá hvort einhver óútskýrður launamunur sé til staðar milli kynja.

Stjórnenda hafa

unnið sig upp í

stjórnendastöðu

2025 78%

Starfsfólks hefur verið lengur en fimm ár í starfi

2024

Starfsfólks hefur fengið 15 mín. spjall sl. mán. 2025

samskipti séu opin og óþvinguð. Til að undirstrika góð samskipti eru starfsreglur skýrar að stjórnendur eigi að hitta sitt starfsfólk mánaðarlega, maður á mann í 15 mínútna spjalli þar sem rætt er um líðan, frammistöðu og/eða almennt um lífið, til að mynda traust og öryggi. Alls 73% starfsfólks hefur fengið mánaðarlegt spjall að meðaltali samkvæmt mánaðarlegum starfsmannakönnunum og mældist meðalánægja 4,52 af 5 varðandi spjallið.

Það má sjá beina fylgni milli starfsánægju og virkni af 15 mínútna spjalli. Þeir starfsmenn sem fá spjall eru að meðaltali 11% ánægðari í starfi.

Jafnlaunakerfið er tekið út árlega og hefur óútskýrður launamunur kynjanna dregist saman síðustu ár. Árið 2025 var óútskýrður launamunur X,X%.

BESTI VINNUSTAÐURINN

BESTI VINNUSTAÐURINN OG BEST Í

ELKO ætlar að standa sig gagnvart starfsfólki og viðskiptavinum

VINNUSTOFUR

Langtímamarkmið ELKO er að eiga ánægðasta starfsfólk á raftækjamarkaði og lykilatriði til að ná því er að starfsfólk hafi rödd hvernig

hægt sé að bæta vinnustaðinn og þjónustuna.

Í ársbyrjun er því farið af stað með verkefnin „Besti vinnustaðurinn“ og „Besta þjónustan“

sem er grundvöllur fyrir starfsfólk að koma tækifærum og áskorunum á framfæri til úrlausnar.

Allt starfsfólk fyrirtækisins sækir vinnustofur þar sem öllum gefst tækifæri á að koma sínum hugmyndum á framfæri hvernig vinnustaðurinn eða þjónustan geti orðið betri. Allar hugmyndir eru vel þegnar og í lokin kjósa þátttakendur um aðalverkefni sem þarfnast úrbóta.

SPJALL VIÐ ALLT STARFSFÓLK

Framkvæmdastjóri og forstöðumenn taka árlega 15 mínútna spjall við allt starfsfólk sem hluta af upplýsingaöflun. Markmiðið er að skrá nafnlausa punkta niður sem koma úr spjallinu sem notaðir eru til að bæta úr þeim verkefnum sem þarfnast úrbóta. Oft er vísað í þessa aðgerð sem „heilsufarskönnun vinnustaðar“.

Vinnustofur 1:1

Starfsþjálfun forsöðumanna

BESTI VINNUSTAÐURINN

Verkefnastýring

Vinnustaðagreining Markaðssetning

Þjónustufrávik Ánægjukannanir

VINNUSTAÐAGREINING: VINNUSTOFUR

Vinnustaðagreining er framkvæmd ár hvert sem mælir líðan og afstöðu starfsfólks til vinnustaðarins. Hver starfsstöð velur málefni sem skoraði lágt og kemur starfsfólk með tillögur að úrlausnum hvað er hægt að gera betur. Niðurstöður vinnustofanna eru settar á lista og mikilvægustu atriðin tekin fyrir og sett inn í verkefnið.

STARFSÞJÁLFUN FORSTÖÐUMANNA

Forstöðumenn fá starfsþjálfun í ýmsum störfum fyrirtækisins. Afurðin af þessari vinnu er að bera kennsl á áskoranir sem annars gætu verið ósýnilegar stjórnendum. Forstöðumenn skrá hjá sér tækfæri til úrbóta.

ÞJÓNUSTUFRÁVIK

Á árinu var viðskiptavinaráð ELKO stofnað sem samanstendur af forstöðumanni þjónustu, forstöðumanni verslana og framkvæmdastjóra. Ráðið fer mánaðarlega yfir öll frávik (m.a. kvartanir) varðandi þjónustu sem skráð eru í viðskiptavinaupplýsingakerfi félagsins. Leitað er að tækifærum til úrbóta við áskorunum sem þar koma upp.

ÁNÆGJUKANNANIR

Á árinu var hafið að mæla ánægju eftirkaupaþjónustu og verslana með könnunum í verslunum og einnig eftir að eftirkaupaþjónustuferli lýkur. Í þeim tilvikum sem ánægja mælist lág og viðskiptavinir hafa gefið ELKO leyfi til að hafa samband er reynt að finna lausn á þjónustufráviki. Viðskiptavinaráð fer yfir ánægjukannanir mánaðarlega og finnur tækifæri til úrbóta varðandi verkefnið.

NIÐURSTÖÐUR

Niðurstöður úr vinnustofum, spjalli, vinnustaðagreiningum, starfsþjálfun og þjónustumælingum eru notaðar til að setja saman safn af verkefnum inn í tvo verkefnahópa: „Besti vinnustaðurinn“ og „Besta þjónustan“. Verkefnin eru kynnt fyrir starfsfólki formlega og staða verkefna gefin upp ársfjórðungslega. Í árslok er heildarniðurstaða verkefna kynnt og hvernig gekk að leysa úr verkefnunum. Í verkefnahópunum eru núna 60 verkefni í vinnslu og á ábyrgð forstöðumanna að klára.

ELKO býður starfsfólki sínu upp á nafnlausar ábendingar í gegnum samskiptakerfið Workvivo. Þær eru algerlega ópersónugreinanlegar og eru viðbót við mánaðarlegar mælingar þar sem starfsfólki gefst tækifæri að gefa opin svör. Farið er yfir nafnlausar ábendingar og brugðist við öllum áskorunum samstundis sem þar koma inn.

MÁNAÐARLEGAR

MÆLINGAR

Framkvæmdar eru mánaðarlega ópersónugreinanlegar

mælingar til að kanna starfsánægju. Þátttaka í könnunum er frá 40­70% eftir atvikum. Árið 2025 bárust um 1350 svör og

meðaltal svara var 4,21.

Starfsánægja

Hrós samstarfsfólks

Hrós stjórnanda

Tíðni 15 mín 1:1 spjalla

Ánægja með 1:1 spjöll

Ánægja með viðburði

Opin svör

Eftir hverja könnun fara forstöðumenn yfir niðurstöðurnar

og meta hvort þurfi að bregðast við. Ef upp koma frávik

þurfa mannauðsstjóri eða forstöðumaður verslana í sumum

tilfellum að fara á starfsstöð og fylgja tilfelli eftir með 1:1 spjalli

með starfsfólki til að greina áskorun betur.

Ánægjumælingar starfsfólks milli ára

ÁRLEGAR MÆLINGAR

Árlega er framkvæmd stærri og dýpri vinnustaðagreining til að veita innsýn í upplifun starfsfólks hvað gengur vel og hvað ekki. Árið 2025 var vinnustaðagreining framkvæmd með samstarfsaðilanum Maskínu.

Mér finnst góður starfsandi ríkja í minni deild

ELKO var í öðru sæti yfir allar verslanir í Fyrirtæki ársins VR 2025. Í niðurstöðum nýjustu könnunar VR

má sjá glæsilegan árangur ELKO. Heilt yfir mældist starfsánægja og stolt 4,35 af 5. ELKO hefur ekki hlotið hærri heildareinkunn síðustu tvö ár en fyrirtækið er í öðru sæti sé horft til fyrirtækja í smásölu.

Það er sérstaklega ánægjulegt að sjá hve samheldni og sameiginleg markmið endurspeglast í niðurstöðunum. Árlega hafa verið haldnar vinnustofur með öllu starfsfólki ELKO undir heitinu Besti vinnustaðurinn. Vinnustofurnar hafa leitt af sér verkefni sem miða að því að skapa betri vinnustað og jákvæða starfsmenningu. Starfsfólk fær svo einnig mánaðarleg 15 mín. samtöl með næsta yfirmanni ásamt árlegum samtölum við forstöðumenn og hefur þetta spjall sýnt fram á aukna ánægju starfsfólks.

Starfsandi - Fyrirtæki ársins (VR)

Svipaðir aðilar á markaði

Jafnrétti - Fyrirtæki ársins (VR)

Svipaðir aðilar á markaði

Ímynd - Fyrirtæki ársins (VR)

Svipaðir aðilar á markaði

Heildareinkunn - Fyrirtæki ársins (VR)

Svipaðir aðilar á markaði

ELKO HVETUR TIL HRÓSMENNINGAR

ELKO hvetur til jákvæðrar endurgjafar og hrósmenningar milli starfsfólks. Rík áhersla hefur verið

lögð á jákvæð samskipti og að það megi gera mistök sem endurspeglar loforð ELKO „Snjallari til framtíðar“. Hrós og endurgjöf eru mæld mánaðarlega fyrir stjórnendur og almenna starfsmenn.

Síðastliðinn mánuð hef ég fengið hrós frá samstarfsfólki mínu 2023 2024

STARFSFÓLK TEKUR ÞÁTT Í MARKAÐSSTARFI

Á árinu voru starfsmenn fengnir til að taka upp myndbönd fyrir samfélagsmiðla. Töluvert af efni var birt á TikTok sem og á Instagram og fleiri miðlum, s.s. vörur og ýmis góð ráð varðandi raftæki.

VERÐLAUN Í ÁTAKSVERKEFNUM

Yfir árið eru ýmis átaksverkefni í gangi hjá ELKO þar sem starfsfólki gefst kostur á að ná sérstökum árangri og eru veitt verðlaun fyrir þau sem skara fram úr.

DÆMI UM STARFSMANNAFRÍÐINDI:

Afsláttarkjör

Velferðarpakki

Fótboltatímar

Aðgangur að Reykjavíkurmaraþoni

Fræðslupakkinn

Skóstyrkur

STARFSFÓLK FÉKK KAUPRÉTT Í FESTI

Starfsfólk Festi var boðinn kaupréttur, réttur til að kaupa hlutabréf í móðurfélaginu á föstu gengi sem margir nýttu sér á árinu. Markmiðið var að tengja hagsmuni allra fastráðinna starfsmanna félagsins við afkomu og langtímamarkmið félagsins. Allt starfsfólk fékk góða kynningu og fræðslu á nýtingu kaupréttarins.

Fatastyrkur

Niðurgreiddur hádegismatur

Ávaxtaborð á starfsstöðvum

Starfsaldursviðurkenningar

Stórafmælisgjafir

STARFSMANNAFRÍÐINDI OG KJÖR

Starfsfólk ELKO nýtur fjölbreyttra fríðinda í gegnum félagið og þá einnig starfsmannafélagið. Allir fá ríflegan afslátt í ELKO og góðan afslátt hjá systurfélögunum Lyfju, Krónunni og N1 og um jólin er gert enn betur fyrir starfsfólk með sérstökum jólaafslætti. Starfsfólk fær einnig aðgang að velferðarpakkanum þar sem veglegur íþróttastyrkur er í boði ásamt allt að þremur tímum hjá sérfræðingi, s.s. sálfræðingi. Starfsmenn fá m.a.:

Brúðkaupsgjafir

Jólagjöf

Páskaegg, bollur og annað matarkyns á tyllidögum

Viðurkenningu á námsárangri

Árlega heilsufarsskoðun

Tækifæri til að velja styrktarmálefni fyrir ELKO

Aðgangur að bústöðum til leigu

Ungbarnagjafir

GERVIGREIND EYKUR SKILVIRKNI

Gervigreind (AI) er orðin stór partur í daglegu starfi í mörgum störfum innan ELKO með það að markmiði að auka skilvirkni, bæta þjónustu og létta álagið á starfsfólki.

Allt starfsfólk skrifstofu og allir stjórnendur hafa fengið fræðslu í notkun gervigreindar, þar sem lögð var áhersla á hvernig tæknin gæti einfaldað og örugglega stuðlað að betra vinnuflæði. Gervigreind er nú þegar farin að gegna mikilvægu hlutverki í daglegum rekstri ELKO og hefur verið innleidd á ýmsum sviðum:

Gagnavinnsla og úrvinnsla upplýsinga:

Gervigreind aðstoðar við greiningu stórra gagnasafna, sem flýtir fyrir ákvörðunum og dregur úr villum í útreikningum.

Textasmíð og samskipti:

Gervigreind er nýtt við textagerð og til að betrumbæta texta fyrir ýmis skjöl, viðskiptatengsl og markaðsefni.

Töflureiknihugbúnaður og kóðagreining:

Gervigreind styður við úrvinnslu flókinna gagna í töflureiknum og getur metið einfaldan kóða sem sparar tíma og eykur gæði gagnaúrvinnslu.

Innleitt var á árinu sjálfvirknivædd flokkun á þjónustuerindum með gervigreind með það að markmiði að hraða þjónustu við viðskiptavini og auðvelda starfsfólki að sinna erindum á skilvirkan hátt.

ELKO mun halda áfram að þróa og bæta innleiðingu gervigreindar á næstu misserum með það að markmiði að nýta hana betur í rekstrinum, bæta starfsumhverfi og veita enn betri þjónustu.

Með þessum aðgerðum er ELKO ekki aðeins að styrkja innri ferla fyrirtækisins, heldur líka að stíga inn í framtíðina með tækni sem styður við bæði starfsmenn og viðskiptavini.

5.0

STJÓRNARHÆTTIR

5.1

ÁHÆTTUMAT

OG GREININGAR

Áhættumat ELKO er uppfært að minnsta kosti árlega og er

gert til að greina, meta og lágmarka áhættu sem gæti haft áhrif á starfsemi, starfsfólk, viðskiptavini eða nánasta umhverfi. Framkvæmdastjóri ber ábyrgð á því að vinna að áhættuskrá með forstöðumönnum félagsins. Ásamt að greina áhættu eru stýringar tilgreindar eftir umfangi og er áhætta áætluð og tíðni og áhrif metin. Áhætta er flokkuð í 16 mismunandi flokka og enn fleiri undirflokka. Árið 2025 eru skilgreindir 44 mismunandi þættir varðandi áhættu í ELKO og þar af aðeins einn á aðgerðarbili. Haldið er utan um miðlæga aðgerðarskrá fyrir áhættu á aðgerðarbili. Öll frávik í rekstri eru

skráð miðlægt í frávikaskrá til að hægt sé að draga lærdóm og lagfæra eða stýra ferlum betur.

5.2

HEILBRIGÐIR VIÐSKIPTAHÆTTIR

Stjórnendur ELKO eru meðvitaðir um áhrifin

sem félagið hefur á samfélagið og leggja upp

úr góðum og heilbrigðum viðskiptaháttum.

Á heimasíðu Festi eru siðareglur sem ná

yfir öll dótturfélögin og alla starfsemi ELKO, hvort sem um er að ræða starfsfólk, stjórn eða verktaka sem vinna fyrir félagið.

STJÓRN OG STJÓRNARHÆTTIR

Í samræmi við lög nr. 138/1994 um einkahlutafélög, sitja í stjórn ELKO einn karl og tvær konur og er önnur þeirra stjórnarformaður. Stjórn Festi hf. fer með æðsta vald

í málefnum ELKO og annarra rekstrarfélaga

í eigu móðurfélagsins á milli lögmætra hluthafafunda.

Framkvæmdarstjóri ELKO situr í framkvæmdarstjórn Festi og fer stjórn móðurfélagsins með meginábyrgð á rekstri Festi hf. og rekstrarfélaganna, þar með talið ELKO.

Nánari upplýsingar um

stjórnarhætti Festi er að finna á heimasíðu félagsins.

Félagið leggur áherslu á

sanngjarnan vinnurétt og er það val starfsfólks hvort það sé í stéttarfélagi.

Stjórnarformaður ELKO er Ásta S. Fjeldsted og stjórnarmaður Magnús Kr. Ingason. Kynjahlutfall stjórnar er 50%.

Kynjahlutfall kvenna í forstöðumannahóp var 50% árið 2025.

6.0 MARKMIÐ ELKO 2025

MARKMIÐ ELKO 2025

Ná 85 M.kr. veltu í hringrásarhagkerfi raftækja. Kaup og sala notaðra raftækja.

Setja upp rafbílahleðslur fyrir starfsfólk í einni verslun.

Styrkir í boði fyrir íþróttafélög barnaog fjölskyldu.

Birta áætlað kolefnisspor viðskiptavina á „Mínum síðum“ á elko.is

Afhendingarseðlar úr vöruhúsi verði rafrænir.

Innleiða rafrænt gjafakortakerfi - engin kort.

Bjóða upp á ELKO-fjölnotapoka í verslunum.

Bílafloti félagsins verði a.m.k. 80% rafmagnsknúinn.

Innleiða hjólagrindur fyrir vefpantanir til að minnka notkun plasts í vöruhúsi.

7.0 UM SKÝRSLUNA

UM SKÝRSLUNA

Sjálfbærniskýrslan er unnin af starfsfólki og sérfræðingum

ELKO og Festi. Á árinu 2025 var lögð áhersla á að kortleggja

sjálfbærnigögn innan samstæðu Festi og nýta fjárhagsbókhald sem grunn fyrir sjálfbærnibókhaldið. Til þess voru nýtt kerfi eins og bókhaldskerfi, vöruupplýsingakerfi og sölukerfi.

Þessi breyting gerir félaginu kleift að reikna áhrif, þar á

meðal kolefnisspor og fleiri þætti og veita betri yfirsýn yfir umhverfisáhrif starfseminnar. Félagið telur að með því að

tengja sjálfbærnigögn við fjárhagsbókhald aukist nákvæmni í útreikningum. Auk þess að miðlun og vöktun upplýsinga verði einfaldari, t.d. í mælaborðum samstæðunnar.

Fjárhagsbókhald og tengdir ferlar byggja á samþykktum reikningum sem eru reglulega endurskoðaðir, sem tryggir að sjálfbærniupplýsingar séu byggðar á áreiðanlegum og samþykktum gögnum.

Með innleiðingu rafrænna reikninga og fjárhagsbókhalds í útreikningum á kolefnisspori bættist einnig verulega við útreikninga þar að lútandi.

Í kjölfar þessarar vinnu hefur árið 2023 verið ákveðið sem grunnár.

SJÁLFBÆRNIUPPGJÖRIÐ

Félagið er skráð á aðallista NASDAQ og er sjálfbærniuppgjör

þetta unnið með hliðsjón af ESG­ leiðbeiningum NASDAQ á Íslandi og Norðurlöndunum og ESG Reporting guide 2.0 útgefnum í febrúar 2020 með ársskýrslu. Þær leiðbeiningar byggja á ráðleggingum sem settar voru fram árið 2015 af Sameinuðu þjóðunum, samtökum um sjálfbærar kauphallir

(e. Sustainable Stock Exchange Initiative) og vinnuhópi

hjá Alþjóðasamtökum kauphalla (e. World Federation of Exchange). Upplýsingar í skýrslunni koma frá starfsfólki og sérfræðingum á viðkomandi sviðum ELKO. Deloitte hefur staðfest valda sjálfbærnimælikvarða með takmarkaðri vissu. Í áritun Deloitte sem er birt í sjaálfbærniuppjöri Festi er nánar útskýrt hvað felst í slíkri staðfestingu og hvaða þættir skýrslunnar voru metnir.

8.0 YFIRLITSTÖFLUR

REKSTARÞÆTTIR

REKSTRAR Þ ÆTTIR

Orkukræfni

LOSUNARBÓKHALD

LOSUNARBÓKHALD

UMHVERFISÞÆTTIR

UMHVERFISÞ ÆTTIR

UMHVERFISSTJÓRNUN

8.4

UMHVERFISSTJÓRNUN

Endurvinnsluhlutfall úrgangs %

UMHVERFISSTJÓRNUN

Umhverfisstarfsemi

Fylgir fyrirtæki ý formlegri umhverfisstefnu? já/nei

Fylgir fyrirtæki ý sérstökum úrgangs-, vatns-, orku- og/eýa endurvinnslustefnum? já/nei

Notar fyrirtæki ý ðitt vi ýurkennt orkustjórnunarkerfi? já/nei

Loftlagseftirlit

Hefur framkvæmdastjórn yfirumsjón meý og/eýa st ³rir loftslagstengdri áhættu? já/nei

Hefur stjórn ðín eftirlit meý og/eýa stjórnar loftslagstengdri áhættu? já/nei

Mildun loftlagsáhættu

Heildarfjármagn sem árlega er fjárfest loftslagstengdum innvi ýum, seiglu og vöruðróun

FÉLAGSLEGIR Þ ÆTTIR

STJÓRNARHÆTTIR

STJÓRNARHÆTTIR

HEIMSMARKMIÐ

Tengsl við forgangsmarkmið Stjórnarráðsins

3.4 Eigi síðar en árið 2030 hafi ótímabærum dauðsföllum af völdum annarra sjúkdóma en smitsjúkdóma verið fækkað um þriðjung með fyrirbyggjandi aðgerðum og meðferð og stuðlað að geðheilbrigði og vellíðan

Stefna ELKO:

Það sem skiptir

þig máli, skiptir okkur máli

Stefna ELKO:

Það sem skiptir

þig máli, skiptir okkur máli

Velferð starfsfólks

Velferð starfsfólks

Að allt starfsfólk viti hvernig hægt er að nýta sér velferðarpakkann og siðferðisgáttina

Að allavega helmingur starfsfólks ELKO nýti sér árlegan 30.000 kr. líkamsræktarstyrk

Stefna ELKO:

Það sem skiptir þig máli, skiptir okkur máli

3.8 Komið verði á heilbrigðisþjónustu fyrir alla óháð fjárhagslegri stöðu, aðgengi veitt að góðri og nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu og að öruggum, virkum og nauðsynlegum lyfjum og bóluefni á viðráðanlegu verði fyrir alla

Stefna ELKO:

Það sem skiptir þig máli, skiptir okkur máli

Stefna ELKO:

Það sem skiptir

þig máli, skiptir okkur máli

Velferð starfsfólks

Aukum ánægju starfsfólks í vinnu

Hlutfall starfsfólks sem kann að nýta sér þjónustuna

Velferð starfsfólks

Viðhalda góðum starfsanda hjá starfsfólki

Hlutfall starfsfólks sem nýtir sér styrkinn

Allir starfsmenn fái

Velferð starfsfólks

samtal við stjórnanda reglulega á hverju ári

Meðaltal mánaðarlegra ánægjukannanna

Árleg mæling starfsfólks „mér finnst góður starfsandi í minni deild“

Árleg mæling starfsfólks um hvort þau fái

Tengsl við forgangsmarkmið Stjórnarráðsins

Tenging við stefnu Festi Heiti markmiðs Undirmarkmið

Jafnlaunastefna

Jafnlaunavottun

5.5 Tryggð verði virk þátttaka

kvenna og jöfn tækifæri

þeirra til að vera leiðandi við

ákvarðanatöku á öllum sviðum stjórn­ og efnahagsmála sem

og á opinberum vettvangi

Jafnlaunastefna

Jafnrétti

Lækka óútskýrðan launamunur kynjana

Nýtt Markmið Lokið

Jafnlaunastefna

Jafnrétti

Að jafna hlutfall kynja starfi

Hlutfall óútskýrðs launamuns kynja úr jafnlaunakerfinu

Konur sem hlutfall af heild

Jafnlaunastefna

Jafnrétti

Jafna hlutfall kvenna í stöðu forstöðumanna

Jafna hlutfall kvenna í stöðu stjórnenda

Konur sem hlutfall af heild Konur sem hlutfall af heild stjórnanda með mannaforráð (forstöðumenn undanskildir)

Tengsl við forgangsmarkmið Stjórnarráðsins

8.2 Aukinni framleiðni í atvinnulífinu verði náð með fjölbreytni, tækninýjungum og nýsköpun, meðal annars með því að beina athygli að vinnuaflsfrekum geirum sem fela í sér mikinn virðisauka

Stefna ELKO: Ánægðustu viðskiptavinirnir

Þjónustustefna

Mannauðsstefna

Mannauðsstefna

Þjónustuáherslur

Aukum ánægju viðskiptavina verslana ELKO í ánægjumælingum Happy or Not

Auka hlutfall vefverslunar af viðskiptum ELKO innanlands

Mannauður

Hlutfall ánægðra viðskiptavina

Hlutfall vefverslunar af sölu verslana innanlands

Mannauður

Allir starfsmenn séu skráðir rafrænt samskiptakerfi

Hlutfall skráðra í samskiptakerfi af starfsmannafjölda

Mannauður

Mannauðsstefna Þjónustuáherslur

Auka rafræna þjálfun starfsfólks

Að þjálfunar­ og fræðslustarf gagnist starfsfólki

Hlutfall starfsfólks sem hefur nýtt sér rafræna þjálfun

Tengsl við forgangsmarkmið Stjórnarráðsins

12.5 Eigi síðar en árið 2030 hafi forvarnir, minni úrgangur, aukin endurvinnsla og endurnýting dregið verulega úr sóun.

Umhverfisstefna

Flokkun

Auka flokkun á úrgangi

Umhverfisstefna

Sjálfbærni raftækja

Auka fjölda tækja sem fara í hringrásarferli

Umhverfisstefna

Umhverfisstefna

12.6 Fyrirtæki, einkum stór og alþjóðleg fyrirtæki,verði hvött til þess að innleiða sjálfbæra þróun í starfsemi sína og veita upplýsingar um sjálfbærni í skýrslum sem gefnar eru út á þeirra vegum.

Umhverfisstefna

Sjálfbærni raftækja

Lækka hlutfall gallaðra vara endurvinnslu

Sjálfbærni raftækja

Auka sölu á notuðum vörum

Flokkunarhlutfall úrgangs

Fjöldi tækja sem fer í hringrásarferli

Hlutfall afskrifta á móti sölu

Umhverfisstefna

Sjálfbærni raftækja

Sjálfbærni raftækja

Auka styrki til verkefna tengdum minnkun raftækjaúrgangs

Auka birtingu sjálfbærnivottana á vörum

Notaðar vörur seldar til endaneytenda Hlutfall styrkja umhverfisverkefni

Hlutfall vara í úrvali með sjálfbærnivottun

Umhverfisstefna

Sjálfbærni raftækja

Hafa virkt sjálfbærnismat birgja á meirihluta innkaupa ELKO

Hlutfall innkaupaveltu frá birgjum með sjálfbærnimat

Tengsl við forgangsmarkmið Stjórnarráðsins

Tenging við stefnu Festi Heiti markmiðs Undirmarkmið

Loftslagsyfirlýsing

Loftlagsmarkmið

13.1 Auka viðbragðsáætlanir og forvarnir við vá af völdum loftslagsbreytinga og náttúruhamfara alls staðar í heiminum.

Loftslagsyfirlýsing

Loftlagsmarkmið

Draga úr losun gróðurhúsalofttegund í umfangi 1

Auka hlutfall bifreiða sem ganga á umhverfisvænum orkugjöfum

Mæld losun í umfangi 1: jarðefniseldsneyti

Hlutfall bifreiða með umhverfisvænum orkugjöfum

Umhverfisstefna

Loftlagsmarkmið

13.2 Ráðstafanir vegna loftslagsbreytinga verði að finnaí landsáætlunum, stefnumótunum og skipulagi

Umhverfisstefna

Loftlagsmarkmið

Skilgreindar mælingar umfangi 1, 2 og 3 eru kolefnisjafnaðar með vottuðum kolefniseiningum

Móðurfélag ELKO gróðursetur trjáplöntur í vottuðum skógi til kolefnisjöfnunar í framtíðinni

Fjöldi trjáplantna gróðursettar frá upphafi

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook