




![]()





Sólskin, vorhret, haustlægðir og vetrarfrost.
Þetta þurfa íslenskir útveggir að þola á hverju einasta ári.
Steinvari og Þol eru afrakstur þrotlausra rannsókna og vöruþróunar í áratugi. Láttu sérfræðinga okkar aðstoða þig við val á útimálningu og stilltu upp þinni sterkustu vörn.
- sérfræðingar í útimálningu




Utanhússmálning á að fegra húsið og verja það gegn veðri og vindum. Á Íslandi er steinsteypa eitt algengasta byggingarefnið enda sterkt sem slíkt og endingargott ef það fær næga vörn.
Steinvari er vörulína sem þróuð er sérstaklega til að mæta þeim kröfum sem íslenskt veðurfar gerir til steinveggja sem opnir eru fyrir veðrum og vindi.
Steinvari er afrakstur áratuga rannsókna sem hafa skilað sér í öflugri varnarlínu fyrir útveggi íslenskra bygginga. Frábært litaúrval gefur þér kost á að verja veggina í þínum uppáhaldslit.
Bárujárn hefur löngum verið algengasta þakklæðningin á íslenskum byggingum ásamt því að klæða fjölmörg hús að utan með prýðilegum árangri.
Þol er vörulína sem er sérstaklega þróuð til að verja málmfleti gegn ryðskemmdum og öðrum áhrifum af íslensku veðurfari; úrkomu, seltu, hitasveiflum og sólargeislum.
Láttu sérfræðinga okkar aðstoða þig við val á útimálningu og stilltu upp þinni sterkustu vörn.
Njóttu þess að velja öflugustu vörnina fyrir húsið þitt í þínum uppáhaldslit. Litakortið okkar færir þér úrval lita til að velja á milli.
Láttu þinn smekk ráða svo að húsið þitt taki sig sem best út í öllum veðrum með málningu sem eykur endingu og fegrar um leið.





Sjáðu fyrir þér hvaða litur fer húsinu þínu best. Þú finnur hann á þessu litakorti.















Steinsteypa utanhúss
Nýmálun undirbúningur
Flöturinn sem mála skal þarf að vera hreinn, þurr, fastur viðkomu og laus við öll óhreinindi.
Hámarks árangur næst með því að nota KRAFTHREINSI og síðan háþrýstiþvott. Sem bestu lausn ráðleggjum við alltaf sílanböðun með VATNSVARA fyrir málun, sú aðgerð dregur verulega úr vatnsupptöku steypunnar.
Við bjóðum einnig upp á vatnsþynnanlegan VATNSVARA sem má m.a. nota á múrkerfi með PS einangrun og REGNVARA sem hentar t.d. vel á fleti sem ekki á að mála.
Nýmálun
Að loknum undirbúningi og sílanböðun með VATNSVARA skal byrja á því að meðhöndla lárétta og lítið hallandi fleti. Grunna þá með MÚRGRUNNI og mála síðan tvær umferðir með STEINÞYKKNI
Málning framleiðir nokkrar gerðir af útimálningu í STEINVARALÍNUNNI: Grunnar á nýja og duftsmitandi fleti:
STEINGRUNNUR er vatnsþynnanlegur bindigrunnur og STEINAKRÝL er terpentínuþynnanleg grunnmálning
Málning
STEINVARI 2000 er flaggskipið í útimálningu. STEINTEX er vinsælasta útimálningin okkar og STEINSKJÓL er vatnsþynnanleg málning sem má nota niður undir frostmark.
Öll eru þessi efni íslensk framleiðsla og hvert um sig hafa þau sína einstöku eiginleika og ráðleggjum við eindregið að hafa samband við sérfræðinga Málningar eða endursöluaðila við val á rétta kerfinu.
Endurmálun
Mikilvægt er að flöturinn sem mála skal sé þurr og laus við öll óhreinindi, þar með talda myglu og hvers kyns þörungagróður. Hámarks árangur næst með því að nota KRAFTHREINSI og síðan háþrýstiþvott.
Látið þorna vel eftir þvottinn.
Val á málningarkerfi ræðst af ástandi eldri málningar og aðstæðum.
Hafið samband við sérfræðinga
Málningar eða endursöluaðila við val á rétta kerfinu.


Nánari upplýsingar um undirbúning og málun finnur þú á vef okkar: www.malning.is/verklysingar-utimalning







Bárujárn og
Málmklæðningar
Málmklæðningar eru mjög algengar á Íslandi. Til skamms tíma var það aðallega galvanhúðað járn en í dag er alusink orðið mjög algengt, einnig alls konar litaðar klæðningar. Allt þetta þarfnast viðhalds.
Nýmálun
Nýtt alusink og ný óveðruð galvanhúð.
Málning framleiðir þrjár gerðir af þakmálningu. ÞOL er gamla góða þakmálningin, AKRÝL-ÞOL er vatnsþynnanleg akrýlmálning og FJÖLHÚÐ er leysiefnaþynnt og eingöngu fyrir sprautun.
Flöturinn sem mála skal þarf að vera hreinn, þurr og laus við öll óhreinindi. Hámarks árangur næst með því að þrífa með ÞAKHREINSI fyrir málun. Hann fjarlægir olíu, sót og hvers kyns óhreinindi af völdum mengunar. Best er að úða honum á með úðabrúsa og síðan háþrýstiþvo. Látið þorna vel og grunnið með FJÖLGRUNNI. Veðraða galvanhúð er best að grunna með OXYDMENJU.
Hafið samband við sérfræðinga Málningar eða endursöluaðila við val á rétta kerfinu.
Endurmálun
Fjarlægið alla lausa málningu. Hámarks árangur næst með kröftugum háþrýstiþvotti. Fjarlægið allt laust ryð með slípun eða vírbursta. Blettið ryðbletti og bert járn með OXÝÐMENJU eða JOTAMASTIC 90. Málið síðan tvær umferðir með ÞOL, AKRÝL-ÞOL eða FJÖLHÚÐ
OXÝÐMENJA er alkýð- og olíubundin ryðvarnargrunnmálning.
• Má fara beint á óryðgað járn eða á veðrað galvaníserað járn.
• Gerð fyrir klæðningar, bárujárn o.fl. utanhúss.
• Efnisnotkun um 0,12 l/m2

FJÖLGRUNNUR er hraðþornandi, alkýðbundinn ryðvarnargrunnur.
• Stuttur þurrktími.
• Á nýtt alusink eða nýja og óveðraða galvanhúð.
• Efnisnotkun um 0,12 l/m2

ÞOL er terpentínuþynnanleg alkýðmálning sem flýtur vel og myndar sterka og varanlega hálfgljáandi lakkfilmu.
• Gerð fyrir klæðningar, bárujárn o.fl. utanhúss.
• Gott veðrunarþol.
• Varanleg mýkt tryggir endingu.

• Efnisnotkun um 0,12 l/m2
Akrýl - Þol
AKRÝL - ÞOL er vatnsþynnanleg, hálfgljáandi akrýlmálning sem er létt í notkun.
• Gerð fyrir klæðningar, bárujárn o.fl. utanhúss.
• Gott veðrunarþol.
• Auðveld í notkun.
• Efnisnotkun um 0,12 l/m2

Steinveggir utanhúss



VATNSVARI 40 er vatnsfæla af mónósílangerð.
• Smýgur afar vel inn í steinrík byggingarefni.
• Lokar fyrir vatnsupptöku um fíngerðar sprungur.
• Hefur ekki áhrif á rakagegnstreymi steypunnar.
• Festist ekki á gleri.
• Efnisnotkun um 0,20 l/m2
STEINAKRÝL er terpentínuþynnanleg, akrýlbundin grunnmálning.
• Smýgur vel og bindur duftsmitandi fleti.
• Frábær viðloðun. • Má nota sem lokaumferð.
• Má nota við lágt hitastig.
• Efnisnotkun um 0,17 l/m2
STEINGRUNNUR er glær, vatnsþynnanlegur bindigrunnur, gerður úr míkró-akrýlbindiefni.
• Tryggir viðloðun við múr og steinsteypu,
• Smýgur vel og bindur duftsmitandi fleti.
• Ætlaður sem grunnur fyrir STEINTEX og STEINSKJÓL.

• Efnisnotkun um 0,10 l/m2
MÚRGRUNNUR 03 er glær, þunnfljótandi, leysiefnaþynntur grunnur sem smýgur afar vel.
Einkum ætlaður til að grunna stein undir STEINÞYKKNI.
Bindur vel duftsmitandi fleti.
Má nota við lágt hitastig.
Efnisnotkun 0,15 l/m2




STEINÞYKKNI vatnsþynnanleg, akrýlbundin málning sem myndar mjög teygjanlega filmu, jafnvel við lágt hitastig.
• Ætlað á lárétta og lítið hallandi fleti, t.d. vatnsbretti. • Þéttir gegn vatni.
• Brúar fíngerðar sprungur.
• Efnisnotkun um 0,60 l/m2
STEINVARI 2000 er terpentínuþynnanleg, akrýlbundin málning.
• Ver sig vel gegn slagregni og andar vel.
• Mjög gott veðrunarþol
• Smýgur vel og bindur duftsmitandi fleti.
• Frábær viðloðun, þarf ekki að grunna.
• Má nota við lágt hitastig.
• Efnisnotkun um 0,17 l/m2
STEINTEX er hefðbundin, vatnsþynnanleg, akrýlbundin málning með frábært vatns- og veðrunarþol.
• Ver sig vel gegn óhreinindum.
• Sérlega auðveld í notkun.
• Tilvalin til endurmálunar.
• Efnisnotkun um 0,10–0,12 l/m2
STEINSKJÓL er vatnsþynnanleg akrýlmálning sem má mála með allt niður að 0°C.
• Gott teygjuþol, brúar fíngerðar sprungur.
• Gott veðrunarþol.
• Auðveld í notkun.
• Má nota við lágt hitastig.
• Efnisnotkun um 0,10 l/m2
Innkeyrslur, útitröppur og svalagólf Timburfletir utanhús


STÉTTVARI er leysiefnaþynnt akrýllakk sem myndar þétta og veðurþolna filmu.
• Einkum ætluð á mynstursteyptar innkeyrslur, plön, gangstéttar o.fl.
• Fáanlegur mattur og gljáandi.
• Efnisnotkun um 0,20 l/m2
TRÖPPUMÁLNING er mött, terpentínuþynnanleg, hraðþornandi sements- og akrýlmálning.
• Einkum ætluð á útitröppur, svalagólf og ýmsa lárétta fleti utanhúss.
• Efnisnotkun um 0,15 l/m2

Viðarvörn fyrir íslenskar aðstæður.

SÖLUAÐILI